Ull og tóvinna III
Þjóðminjasafn Íslands – Spurningaskrá 15
Ull og tóvinna 3
Nr. spurningaskrár 1966-1
Til að nálgast pdf. skjal með öllum svörum heimildafólks ýttu á forsíðu skráarinnar hér til hliðar (Mynd 2 af 2).
Til að nálgast frekari upplýsingar má senda póst á thjodhattasafn@thjodminjasafn.is
Titilmynd skráarinnar: Ljósm. Hans Kuhn. Safnnr. Lpr. 2003-774
Hér að neðan má sjá þær spurningar sem heimildafólk þjóðháttadeildar fékk sendar í tengslum við skrána:
Þjóðháttaskráning Þjóðminjasafnsins XV.
Apríl 1966.
Ull og tóvinna III.
Í spurningaská þeirri, sem hér fer á eftir, er fjallað um vefnað. Efnið er svo mikið, að því verða ekki gerð skil í einni spurningaská. Mun önnur spurningaská send út varðandi einstakar vefnaðargerðir (einskeftu, glit, salún, vaðmál o.s.frv.) og annað, er vefnað varðar og hér er ekki spurt um. Leggja verður áherslu á, að svörin miðist einkum við vefnað eins og hann var á sveitaheimilum, áður en áhrifa frá húsmæðraskólum og prentuðum vefnaðarbókum fer að gæta. Um þau áhrif er þó gott að fá fræðslu í sérstökum kafla, er að því kemur.
Vefnaður:
Segið frá vefnaði almennt. Hvenær hófst t.d. vefnaður að hausti og hvenær var honum að jafnaði lokið að vetri? Hvað var einkum látið ganga fyrir í vefnaði hvers vetrar ef vefa þurfti margar voðir? Var reynt að fella vef fyrir jól og setja ekki til að nýju, fyrr en kom fram um nýár? Hverjir önnuðust einkum um vefnað? Hafði ákveðinn heimilismaður einn það verk með höndum að vefa? Sat hann í vefnum frá fótaferð til háttumála eða aðeins milli mála, sem kallað var? Hvað þóttu góð afköst í vefnaði daglangt og að hvaða leyti var það breytilegt miðað við einstakar vefnaðargerðir? Á hvaða aldri byrjuðu börn eða unglingar að vefa? Voru einstakir menn, karlar eða konur, sem höfðu atvinnu af vefnaði? Fóru þeir milli bæja að vefa eða tóku þeir vefnað heim til sín? Var nokkur ákveðin greiðsla fyrir vefnað, t.d. miðað við álnatal voðar? Var vefnaður notaður í vöruskiptaverslun? Segið frá því.
Vefstóll:
Undir hvaða nafni gekk vefstóll í daglegu tali (vefstóll, vefstaður)? Þekkjast nokkrar sagnir um gamla kljásteinavefstaðinn? Vita menn, hvenær notkun hans lagðist niður með öllu? Hafa einstakir hlutar hans verið til í geymslum eða annars staðar fram á daga núlifandi manna?
Segið frá smíði vefstóla og vefstólasmiðum. Segið frá mismunandi gerðum vefstóla, t.d. að því er varðar staðsetningu slöngurifsins. Þekktust tvíbreiðir vefstólar? Segið frá þeim. Segið frá hraðskyttuvefstólum. Áttu flest heimili vefstól? Hvernig fóru menn að að öðrum kosti (fengu vefstól lánaðan, fengu ofið hjá nágrönnum t.d.)?
Segið frá gangverði vefstóla í kaupum og sölum.
Á blöðunum, sem fylgja skránni, eru myndir af vefstólum, tveimur íslenskum (A og B) og einum útlendum hraðskyttuvefstól (C). Hverja gerðina kannist þér helst við? Ef um sérstök frávik er að ræða væri gott að fá þeim lýst.
Ætlast er til, að svarendur skrifi heiti hinna einstöku hluta við tilsvarandi númer á seinna blaðinu og sendi síðan myndablöðin aftur með svörunum. Ef nöfn þekkjast á fleiri hlutum eru menn vinsamlegast beðnir að bæta þeim við.
Skeið.
Segið frá vefjarskeiðum. Nefndust þær annað (ritti t.d.)? Voru vefjarskeiðar heimasmíðaðar? Segið frá smíði og smíðaefni (hvalskíði, eir, látún, harðviður t.d.).
Voru vefjarskeiðar yfirleitt af svipaðri lengd (fimm kvartel)? Við hvað var stærð vefjarskeiðar miðuð (tannafjölda í ákveðinni lengd, kvarteli t.d.)? Voru heiti skeiða miðuð við þá talningu (80 tanna skeið t.d.)?
Vefskytta:
Segið frá vefskyttum, smíðaefni og gerð. Voru þær með sérstökum útbúnaði að neðan til þess, að þær rynnu betur um skilið? Hvað nefndist spóluteinninn í skyttunni (ríll, prími, spóluteinn t.d.)? Voru sérstakar tréspólur (renndar eða tálgaðar) til að spóla á ívafið? Hvaða efni, annað en tré, var notað til að spóla á? Var fiskroð t.d. notað til þess (spóluroð)?
Spólurokkur:
Hvað nefndist áhaldið, sem spólað var á við vefnað (spólurokkur t.d.)? Var spólurokkur smíðaður sérstaklega til þeirra nota? Lýsið honum. Voru gamlir rokkar notaðir í sama tilgangi? Var þá settur í þá sérstakur spóluteinn í stað snælduumbúnings?
Spanstokkur:
Lýsið áhaldinu, sem haft var til að halda út jöðrum á voð, er ofið var. Gerið það t.d. með teikningu. Hvað nefndist það (spanstokkur, spjálk t.d.)?
Að leggja upp:
Hvað nefndist verkið við að reikna út uppistöðuþráð í hverja einstaka voð, er vefa átti (“að leggja upp” eða annað)? Segið frá mismunandi aðferðum við þann útreikning, ef þekktar voru, og þá hver algengust var (t.d. hesputré, sem ákvað lengd þráðar, vigt á hespum eða hnyklum). Var farið um þetta ákveðnum orðum, miðað við þyngd þráðar (t.d. “fimm lóða verk”, “tveggja álna þráður” o.s.frv.)? Hvað var venjulega lagt upp úr þráðarmörk í hnyklum (tvær, þrjár álnir t.d.)? Voru sauðarvölurnar, sem undið var á, dregnar frá þyngd hnyklanna? Hvernig? Segið sem vandlegast frá þessu og öllum orðum, er um það voru notuð.
Að reikna í skeið:
Hvað nefndist verkið við að ákveða fjölda uppistöðuþráða í breidd voðar, er vefa átti (“að reikna í skeið” t.d.)? Hvað nefndist það, ef sá útreikningur stóðst ekki að fullu og uppistaða var gisnari en ætlað var í upphafi (að voðin væri varplítil t.d.)?
Að reikna í vef:
Hvað nefndist verkið við að ákveða efnismagn í uppistöðu og ívaf voðar og þá um leið munstur (“að reikna út í vef” t.d.)? Segið frá, hvernig að því var unnið. Hvaða orð voru notuð um uppistöðu í vef (uppistaða, varp t.d.)? Hvaða orð voru notuð um ívafið (fyrirvaf, ívaf, veftur t.d.)?
Rakningsgrind:
Hvað nefndist áhaldið, sem uppistaða í voð var rakin á (rakgrind, rakningsgrind t.d.)? Voru mismunandi gerðir til af rakningsgrindum? Lýsið því. Hvað nefndist tréð, sem skilhælar voru festir á (hælatré, krísholt, skilkambur t.d.)? Hvernig var rakningsgrind fest upp við notkun? Voru rakningsgrindur til á flestum heimilum, sem áttu vefstóla?
Balbínur, balbínustóll:
Hvað nefndust snældur, sem uppistöðuþráður var rakinn af á rakningsgrindina (balbínur t.d.)? Lýsið þeim. Var sérstakt áhald til að festa balbínusnældur á við notkun (balbínustóll)? Lýsið því. Voru til sérstakir rokkar til að spóla á þráðinn á balbínusnældurnar (balbínurokkur)? Lýsið balbínurokk. Hvað nefndist verkið við að spóla á balbínusnældu (“að balbína” t.d.)?
Rakningsspaði:
Var sérstakt áhald notað til þess að halda uppistöðuþráðum í réttri röð og taka skil á þá, er rakið var á rakningsgrind? Hvað nefndist það (rakspaði, rakningsspaði t.d.)? Lýsið rakningsspaða. Teiknið rakningsspaða, ef hægt er, og greinið frá stærð hans.
Rakningsstokkur:
Voru sérstakir kassar með hnyklahólfum notaðir, er rakið var af hnyklum á rakningsgrind? Hvað nefndust þeir? Lýsið þeim. Hvaða ílát voru að öðrum kosti notuð undir hnyklana?
Rakning á rakningsgrind:
Hvar var rakningsgrindin (rakgrindin) sett upp, er rakið var í vef? Hve margir unnu að því að rekja (rakningskona og aðstoðarmaður t.d.)? Hvernig var lengd voðarinnar mæld, áður en byrjað var að rekja? Var t.d. sett merki á einhvern uppistöðuþráðinn? Hvernig voru uppistöðuþræðirnir þræddir í rakningsspaðann (rakspaðann), ef hann var notaður við verkið? Var þræðingin miðuð við þráðafjölda í hafaldi, er ofið var (tveir þræðir í gati á rakningsspaða, tveir þræðir í hafaldi t.d.)? Voru þráðarvölur látnar leika á uppistöðuþráðunum, er rekið var, til að jafna þá (taka af snurður)?
Hvernig var fyrsta skilið tekið á þræðina, áður en byrjað var að rekja upp á grindina? Hvað nefndist skilið (þráðaskil t.d.)? Hvernig var gengið frá því á efra hælatrénu? Hvernig var gengið frá skilinu á neðra hælatrénu og hvað nefndist það skil (gangaskil t.d.)? Hvað nefndist ein þráðaumferð niður og upp á rakningsgrindinni (gangur t.d.)? Hvað nefndist ein umferð á grindinni (upp eða niður) (feti t.d.)? Hvað nefndist rakning fyrsta fetans á grindina (“að leggja á grind” t.d.)? Hvernig var rekið upp eftir grindinni, þegar búið var að rekja fyrsta fetann? Hvernig var þráðaskilið þá tekið, og hvernig var gengið frá því? Voru sett merki í gangaskilin að neðan við ákveðinn þráðfjölda (hverja 100 þræði)? Var einn bandspotti notaður við það? Nefndist hann eitthvað (varptág, fetaband t.d.)?
Segið frá rakningu án rakningsspaða. Var ákveðin regla í sambandi við áferð feta á grindinni (að rekja ofan eða neðan við fetana, ekki utan á)? Hvað nefndist fullrakin uppistaða á grind (slanga t.d.)? Hvernig var gengið frá skilum á henni, áður en hún var tekin af grindinni? Hvernig var hún tekin af grindinni? Nefndist það nokkuð (“að fika ofan” t.d.)?
Þekktust mismunandi handtök við að rekja á rakningsgrindur? Segið sérstaklega frá, hvernig háttað var rakningu á tví- eða fleirlitri uppistöðu. Var eitthvert almennt álit varðandi mismun á lengd slöngu og voðar, sem átti að vefa úr henni, t.d. að rekja þyrfti þverhönd fram yfir hverja alin í voð? Var þetta nefnt eitthvað, t.d. að voðin skryppi?
Rakið á veggjahæla:
Var algengt að rekja í voðir á veggjahæla? Lýsið hælunum. Hvað var það nefnt (“að rekja á hælum” t.d.)? Nefndust hælarnir nokkuð sérstakt? Voru skilhælar geymdir frá ári til árs? Hvar var rakið (úti eða inni)? Hvernig var gengið frá skilhælum og hælum milli þeirra, er rakið var? Lýsið rakningu.
Rakið á rúmstólpa:
Kom fyrir, að rakið var til vefjar á rúmstólpa í baðstofu? Lýsið því.
Hafaldagrind:
Hvað nefndist áhaldið, sem höföld voru hnýtt á (hafaldagrind t.d.)? Lýsið hafaldagrind, helst með teikningu. Var sérstakt áhald til að rekja á hafaldaefnið eða var það hluti af hafaldagrindinni sjálfri? Hét það nokkuð sérstakt? Lýsið því.
Hafaldaefni og höföld:
Var efni í höföld unnið heima (úr dregnu togi t.d.)? Hvaða aðferðir voru þá til að gera hafaldaþráðinn snöggan og haldgóðan (sjóða hann í tólg, svíða hann t.d.)? Segið frá því. Hvernig var rakið í höföldin? Segið frá hafaldahnýtingu. Lýsið hafaldahnút. Voru mismunandi aðferðir við hafaldahnýtingu ? Hvað nefndist miðhluti hafalds (hafaldaauga t.d.)? Segið frá geymslu hafalda.
Segið frá stálhöföldum. Hvenær var byrjað að nota þau?
Hét bandið eitthvað, sem varnaði höföldum að dragast úr af hafaldasköftunum, er ofið var (vartág, þan t.d.)?
Vefjarkambur:
Lýsið vefjarkambi, smíði hans og gerð. Nefndist hann nokkuð annað?
Að láta í kamb:
Hvað nefndist verkið við að dreifa slöngunni í vefjarkambinn (“að láta í kamb”, “að leggja í kamb” eða annað)? Lýsið því. Hvað nefndist skaftið, sem sett var í gangaskilið og tengt við slöngurifinn (plógskaft, rifskaft t.d.)? Hvað nefndist þráðurinn, sem festur var við skaftið og dreginn í fremra gangaskilið (skilþráður t.d.)? Lýsið, hvernig frá þessu var gengið.
Að festa upp:
Hvað nefndist einu nafni verkið við að vinda slönguna upp á slöngurifinn, draga í höföld og skeið og festa uppistöðu í framrif (að festa upp, setja upp, setja til eða annað)?
Að bóma vef:
Hvað nefndist verkið við að vinda slönguna upp á slöngurifinn (að bóma, að rifja t.d.)? Hvernig var gengið frá festingu fyrir plógskaft (rifskaft) á slöngurifnum?
Voru sérstök áhöld notuð til að halda að jöðrunum á slöngunni, er bómað (rifjað) var (kragar – lausasnúðar – rifklæði)? Lýsið þeim.
Hve margir unnu saman að því að vinda slönguna á rifinn? Lýsið verkinu. Hvers þurfti einkum að gæta í sambandi við áferð slöngunnar á rifnum? Voru rifsköft notuð með jöfnu millibili til stöðvunar? Hvernig var gengið frá þeim? Var slangan látin “ganga að sér” á rifnum smátt og smátt, er bómað var? Hvað var það nefnt (“að hálsa” t.d.)? Hvernig var gengið frá skilsköftum og slönguendanum, er búið var að bóma?
Að draga í höföld:
Hvað nefndist verkið við að draga í höföld? Var hafaldasköftunum haldið stöðugum með einhverjum hætti, meðan dregið var í þau (hafaldakambur)? Hvernig var unnið að því að draga í höföldin? Unnu tveir saman við það verk, og rétti annar þá fram þræðina? Hvernig var gengið frá þráðarendunum, framan við höföldin?
Að draga í skeið:
Hvað nefndist áhaldið, sem var notað við að draga í skeið (krækja, krókur, gikkur t.d.)? Lýsið því. Unnu tveir að því að draga í skeiðina? Hvernig var gengið frá skeiðinni, meðan dregið var í hana? Lýsið verkinu.
Að hnýta fram:
Hvað nefndist skaftið, sem uppistaðan var hnýtt fram á (framhnýtingarskaft t.d.)? Hvað nefndist verkið við að hnýta á skaftið (að binda fram, hnýta fram, hnýta á skaft eða annað? Lýsið framhnýtingu. Hvernig var framhnýtingarskaftið fest við voðmeiðinn (bómuna, rifinn)?
Uppbinding:
Lýsið uppbindingu í vefstól. Segið frá vefstólssnærum. Segið frá hnútum við uppbindingu. Nefndust hnútar eitthvað (verfjarhnútur t.d.)? Voru nokkur ákveðin nöfn notuð um vefstólssnæri, t.d. við upphnýtingu í sambandi við einstakar vefnaðargerðir eða munstur, er vefa átti?
Að draga fyrir:
Hvað var það nefnt, er farið var að skjóta skyttunni um skilið og byrjað var á voðinni (að draga fyrir t.d.)? Lýsið mismunandi aðferðum við að gefa ívaf í voð og segið frá orðum, er því lúta (gefa í, gefa upp í, bandborið, mikið bandað, vel bandað o.s.frv.). Var ívafið gefið fyrir í einum stórum boga eða mörgum smábogum? Lýsið aðslætti slagborðs (skeiðarhalds).
Lýsið notkun spanstokks. Hvað var það nefnt, ef voð hélt ekki fullri breidd í vefnaði (það vefst inn t.d.)? Var voð mæld með mælibandi jafnóðum og hún var ofin? Hvernig?
Segið frá helstu misfellum, er fram komu í vefnaði (skilgöllum, þráðasliti o.s.frv.). Hvernig var úr þeim bætt? Þótti það boða eitthvað, ef uppistöðuþræðir slitnuðu venju fremur, er ofið var (aðsókn t.d.)?
Hvað nefndist hver einstök vinding voðar upp á voðmeið (bómu, framrif) (áfæra t.d.)? Hvað var verkið nefnt (að bóma t.d.)?
Að fella vef:
Hvað nendist það, er vefnaði á voð var lokið og hún ver tekin úr vefstólnum (að fella vef t.d.)? Hvað nefndust þráðarendr, sem gengu af, er vefur var felldur (afvikur, hrafanbuxur, krummabuxur, undanlás t.d.)? Hvað var gert við þá?
Þóf:
Segið frá hitun vatns eða keytu á voð undir þæfingu, og hvernig bleytt var í voðinni. Hvernig og hvar var undið úr voðinni, áður en byrjað var á þófinu? Hverjir önnuðust einkum um þæfingu (heimamenn, afbæjarmenn, karlar, konur)? Hvar voru voðir þæfðar (í fjósi, í baðstofu t.d.)? Voru mismunandi aðferðir notaðar við þóf (þæft undir fótum á palli, hurð, þæft í tunnu, votaþóf t.d.)? Hvernig klæddu menn sig til starfsins? Lýsið þófinu sjálfu. Var voðin oft aðgætt í þófinu og hrist upp? Hvernig var það gert og hvað nefndist verkið? Við hvað var miðað, er voð þótti fullþæfð? Fékk þófarinn einhvern aukaglaðning, meðan á þófinu stóð (þófarabita, þófaraköku)? Lýsið því.
Kunna menn þófaraþulu (Bárður minn á jökli t.d.)? Skrifið hana.
Voru nokkur ákveðin laun fyrir þæfingu á voð? Hvernig var gengið frá voðinni, þegar búið var að þæfa hana? Hvernig var hún pressuð? Voru voðir sendar í verksmiðjur, utanlands eða innan, til lóskurðar eða litunar? Segið frá því.
Vefnaðarsýnishorn:
Þjóðminjasafni Íslands væri hin mesta þökk á að fá send gömul vefnaðarsýnishorn, ásamt greinargerð um aldur, uppruna, vefnaðargerð, litun og vefara, er ofið hefur. Einstakir munir úr íslenskum vefnaði, hverju nafni sem nefnist, eru Þjóðminjasafninu að sjálfsögðu mjög kærkomnir og skiptir útlit þeirra ekki máli, gatslitnir hlutir eru jafnvel þegnir og heilir. Leggur safnið á það áherslu, að vefnaðarsýnishorn séu ekki klippt úr heilum hlutum eða hlutum, er enn haldast saman. Vinir safnsins gerðu því mikinn greiða með því að leita í hirslum sínum og geymslum að gömlum, íslenskum vefnaði og senda safninu hann til varðveislu og ekki síður með því að koma þessari ósk á framfæri við alla, sem líklegir eru til liðveislu.
Ad. Spurningaskrá nr. XV.
Svarendur eru vinsamlega beðnir að skrifa þau heiti, sem þeir þekkja á hlutum vefstólsins, við viðkomandi númer á næsta blaði og senda síðan blöðin aftur til safnsins með svörunum, sbr. það sem segir inni í skránni. Ef nöfn þekkjast á fleiri hlutum en hér er merkt við, skal þeim bætt við.
Spurningar og svör
Nr. 1289
p1
Ull og tóvinna 3.
Ef ofnar voru fleirri en ein voð á bæ, var byrjað um jólaföstukomu
eða fyrr, en væri aðeins ein voð ofin, var ekki byrjað fyrr en eftir áramót.
Víðast var vefnaði lokið fyrir vertíð, í byrjun febrúar. Ofnar voru
flest 4 voðir á bæ, en víðast ein eða tvær. Fyrr var ofið í nærföt
og
p2
rúmfatnað, en síðar
í utanyfirföt. Það var eftir ástæðum heimilisins, hvort vefarinn
sat við allan daginn eða milli mála. Á fámennum heimilum var oftast
aðeins ofið milli mála. Duglegur vefari óf um 10 álnir á dag eða eina alin
á klukkustund af vaðmáli. Ef aðkomumaður óf, var greiðslan miðuð
við alin, og var 10 aurar á alin fram yfir s.l. aldamót (Jörg. Bjarnas.).
p3
Ýmist ófu konur eða
karlmenn, oftar þó karlmenn. Unglingar fóru að læra að vefa skömmu
eftir fermingu. Vefstaður var algengara nafn og eldra , en
vefstóll var líka notað, einkum á síðari árum. Á flestum bæjum mun
vefstaður hafa verið til, og notaður þó þröngt væri, jafnvel svo þröngt
að taka varð upp rúm í baðstofu, til að koma honum fyrir. Þó var
ekki allsstaðar ofið, heldur var efni komið fyrir annarsstaðar. Þrengsli
eða mannleysi hafa valdið því. Breidd vefstaðs leyfði 5 kvartela
breiða voð, en voðir voru sjaldan breiðari en 4 1/2 kvartel. Ritti,
sjaldan kallað skeið, var 5 kvartel með 60-80 tannir á kvarteli. Þó
voru til 100 tanna ritti, notuð þegar ofinn var tvistur, garn í garn. Rittið
gekk inn í gróp í slagborðinu, sem líka var kallað skeiðarslag. Það
hékk venjulega niður úr kjálkanum efst á væng vefstaðsins, og var
p4
fært til á kambinum
ofan á kjálkanum eftir þörfum. Skyttan var úr harðviði, mjó og rennileg.
Endar hennar voru bryddaðir með látúni, og á annarri hlið hennar
var látúnsplata með rifu fyrir veftinn. Neðan á skyttunni voru 2
látúnsfjaðrir, til þess að hún rynni betur um skilið. Spólan lék
á spóluteininum úr járni. Spólurnar voru oftast járnpípa, en stundum
tréspólur renndar með hnúð á báðum endum. Skinn eða roðspólur höfðu þekkst
áður fyrr. Spólurnar þurftu að vera 20-30 á bæ. Spólurokkar
voru oftast gamlir spunarokkar. Látinn teinn með skoruhjóli á, í
stað hnokkatrés, og spólunni stungið upp á teininn framan við brúðuna.
Einnig höfðu verið smíðaðir sérstakir spólurokkar. Þá hafði
borið við, að notaðir væru venjulegir spunarokkar. Var þá spólunni
stungið upp í pípuna á hnokkatrénu.
p5
Spanstokkur var notaður
til þess að spenna út voðina. Hægt var að lengja hann og stytta með
því að færa lítinn tein, sem tengdi saman báða hluta stokksins og einnig
hólk, sem hélt hlutunum í skefjum. Í endum spanstokksins, sem smíðaður
var úr harðviði, voru broddar, sem stungið var í jaðra voðarinnar. Þegar
ákveðin var legnd voðar, var miðað við þyngd þráðarins. Mörk af þræði
átti að gera 2 álnir. Jafnvel var sú nákvæmni viðhöfð, að taka einn
hnykil og mæla nákvæmlega með kvarða, og reikna eftir því. Ef vefjargarn
var notað í uppistöðu, var reiknað með 9 til 10 álnir úr pundi garns í
vaðmál, en 11 álnir í einskeftu. Í uppistöðu var talið hæfilega 1200
þræðir, hvort sem notað var garn eða þráður. Fyrirvafið nefndist veftur,
spunninn úr ull. Tvistur var það kallað, ef garn var notað bæði í
uppistöðu og fyrirvaf. Rakið var á rakningsgrind. Jafnvel
farið á
p6
aðra bæi til þess,
ef ekki var hægt að koma grind við heima. Skilhælar voru fastir í
krísholtum. Rakningsstokkar voru sumsstaðar notaðir með 10 til 12
hólfum. Lykkjur voru á barmi hvers hólfs fyrir þræðina. Annars
voru víða notuð hvers konar ílát undir hnyklana. Alltaf var þráður
og garn undið í hnykla á völur, áður en rakið var. Sumir röktu á
5 þráðum, og fengu þá 10 þræði í feta, einu sinni niður og einu sinni upp
á grindinni. Aðrir röktu á fleirri þráðum, og höfðu fleirri þræði
í feta. Slanga nefndist rakin uppistaða. Hún var lykkjuð
upp af rakningsgrindinni, vo að hún ekki flæktist og hægara væri að meðhöndla
hana. Höföldin voru áður gerð úr vönduðum togþræði, en síðar úr seglgarni.
Beggja vegna augans var hnýtt þverhnút, en aðra hnúta veit ég ekki
um. Höföldin voru tekin af sköftunum. Undið utan um þau, og
geymd uppihangandi.
p7
Að setja til við,
að setja upp, var sumsstaðar talið tveggja daga verk. Talað var um
að leggja í kamb, aðrir að láta í kamb. Tvö skilsköft voru til þess
að halda silunum réttum. Að bóma var það kallað að vinda slönguna
upp á þráðarrifinn. Það var vandasamt og þurfti 3 menn til þess.
Rifskaftið féll inn í gróp í rifnum. Á því voru lykkjurnar
á slönguendanum. Kragar voru á báðum endum slöngurifsins, til að
halda að þráðunum. Á krögunum voru göt fyrir enda rifskaftsins, ennfremur
spengur sem uppistaðan vafðist yfir þegar byrjað var að bóma. Þar
með var all stöðugt. Á vefstað B, voru hliðargrindurnar eða vængirnir
tengdir saman að neðan með slám, en að ofan með bómum. Yfir þá fremri
lá voðin, en yfir þá aftari lá uppistaðan, og svo niður á rifina. Upp
úr vængjunum stóðu kjálkarnir. Yfir þá lá tréð, sem uppihöldin héngu
í
p8
og í þeim hékk slagborðið.
Tvo þurfti til að draga í höföldin. Annar rétti fram þræðina,
en hinn dró þá í gegn með skeiðarkrók,sem aðrir nefna krækju eða krók,
og stjórnaði sá verkinu. Einn dró í rittið, 2-3 þræði í hverja tönn.
Að hnýta fram var að hnýta þræðina á framhnýtingarteininn
eða voðarteininn. Mér skilst, að þeir hlutir, sem kallaðir voru sköft,
ef þeir voru úr tré, væri kallaðir teinar, ef þeir voru úr járni. Þrjú
snæri tengdu svo framhnýtingarskaftið eða teininn yfir frambómuna við voðarrifinn,
framrifinn,. Að draga fyrir var það nefnt að hefja vefnaðinn
með því að skjóta skyttunni í fyrsta sinn gegnum skilið.
Að gefa í hét að færa fyrirvafið með hendinni fram í skilið, í boga um
miðju, áður en það var slegið fram með slagborðinu. Færa: Þegar
bilið milli voðar og hafalda
p9
var of þröngt fyrir
skyttuna, var slakað á þráðarrifnum og undið upp á voðarrifinn. Hét
sá partur voðarinnar, sem færður var færa, og verkið að færa.
Lengd voðar var mæld jafnótt og ofið var með álnarlöngu bandi, sem sett
var við byrjun voðarinnar, og fært þegar alin var ofin. Að
fella voð var að klippa hana frá uppistöðunni. Það sem klipptist
frá hét afvikur. Þær voru notaðar til viðgerða, bæta flíkur og stoppa.
Þóf: Voðin var þvegin svo vel sem hægt var úr góðu
þvæli, og hreinu vatni, og síðan undin. Járnkarl eða önnur sterk
stöng var skorðuð þversum yzt í dyr, bæjardyrnar. Önnur stöng, t.d.
sterkur broddstafur, var tekinn og yfir þessar stangir var voðin lögð og
endarnir hafðir innan í. Sá sem vatt
p10
snéri svo upp á voðina,
með því að snúa lausu stönginni og toga í voðina. Annar var til aðstoðar,
fór höndum um hnúta og snurður. Víðast var þæft í fjósinu. Látin
var slétt hurð á auðan bás. Oft þurfti að taka nautgrip af básnum
og láta út í hesthús. Á hurðinni var voðin þæfð með því að troða
á henni og velta henni til með berum fótum. Menn voru mjög léttklæddir
við að þæfa. Oftar þæfðu karlar en konur. Stundum þæfðu tvær
konur saman. Alltaf fékk þófari, þófarabita og aukakaffi líka væri
það til. Voðin var hrist upp nokkrum sinnum, 3-4 sinnum. Tveir
hrisstu voðina, slógu til svo small í, teygðu og toguðu á alla kanta, lítinn
hluta í einu og færðu til á hurðinni. Farið var eftir útliti voðarinnar
og lónni, þegar ákveðið var hvort voð væri fullþæfð. Einnig urðu
smellirnir lægri og dimmari þegar fullþæfð voð var hrisst. Votaþóf
var þæft undir fótum í íláti með vatni í.
p11
Fullþæfð var voðin
hrisst og teygð vel og vandlega og vafin upp á rúmfjöl, látin á slétta
fjöl eða kistulok, önnur fjöl ofan á, og síðan farg, grjót. Undir
farginu var voðin svo í 2 daga, áður en hún var þurrkuð. Ekki mátti
þurrka nýja voð úti í frosti. Það var talið spilla efninu, ef það
fraus.
p12
Það er mest til að
sýnast, að ég svara ullar og tóvinnuspurningu 3. Ég hef ekki verið til
heimilis neinsstaðar, þar sem ofið var eða vefstaður upp settur, og get
því fáu svarað af eigin þekkingu. Að vísu man ég nokkurn vegin eftir
útliti vefstaðs í aðalatriðum, en þekki fátt af nöfnum, og einstök verksnöfn
eða vinnubrögð þekki ég ekki. Ég tók mig loks saman í andlitinu
og spurði gamla Ölfusinga: Önnu Bjarnadóttur og Jörgen Björnsson,
hjón frá Þurrá, og Sigurberg Jóhannsson frá Grænhól. Þau eru öll
yfir 80 ára, og minni þeirra farið að bila, og Þjóðbjörgu Jóhannsdóttur
frá Sogni, og er mest af þessu frá henni komið. Ég vona að þetta sem hér
er skráð, sé ekki rangt, þó það sé fátt.
Nr. 6302
p1
Ull og tóvinna 3.
Ég skrifa mágkonu mína fyrir þessum svörum. Hún var talsvert
æfð í vefnaðarlistum og lögðum svo saman að svara spurningunum, en verðum
þó að biðjast afsökunar hvað þetta hefur dregist lengi að senda þetta.
Dagrún starfar dálítið enn að ullarvinnu og hannyrðum. Spinnur
úr lopa á rokk og prjónar fín sjöl. Þá er víst ekki meira um þetta
að segja.
p2
Ég undirrituð Dagrún
Pálsdóttir, Stóruvöllum, er fædd þar 15. sept. 1905, og var þar alla æfi
til 1982. Finnst mér ég geti ekki annað en svarað að einhverju leyti
sumu af því sem spurt er um, sem er nokkuð margt. En almennt um vefnað,
og man eftir frá barnsaldri að mikið var um tóvinnu á mínu heimili. Þar
var þá til bæði 15 þráða spunavél og vefstóll, þar sem unnið var til fata
flest það sem heimilisfólkið þurfti til sín úr ull. Pabbi minn Páll
Hermann Jónsson, hreppsstjóri, óf á verjum vetri og bróðir hans líka á
fyrstu árum aldarinnar. Það var til dæmis buxnaefni, venjulega röndótt,
uppistaða frekar gróft, og það var þæft talsvert undir fótum. Það
voru til sérstakir menn, sem það gerðu og ferðuðust jafnvel um í þeim tilgangi.
Það var mikið um að vera er þófið stóð yfir. Þetta var með vaðmálsvendum.
Svo var aftur hvítt vaðmál haft í nærföt frekar fínt. Og síðast svo
þráðardúkur fínn, sem ætlaður var í kjóla og gjarna var sent til Noregs
til litunar og pressunar, og var haft í krakkaföt og betri fatnað. Einnig
var keyptur tvistur bæði hvítur og mislitur, og var ofið úr honum og notað
í milliskyrtur og fleirra því líkt. Á mínum yngri árum voru
það aðallega karlmenn sem ófu, en um 1930 fóru húsmæðraskólar að starfa,
svo sem í Þingeyjarsýslu. Ég var á þannig skóla 1929-30. Var
þar kenndur vefnaður. Næsta áratug óf ég á hverjum vetri
p3
meira og minna. Ef
ég á að telja upp það sem ég gerði yrði það nokkur listi. Fyrst má
segja frá kjóladúk úr ull. Það var mórautt og sauðsvart og það leit
út írótt, en ég man ekki hvað vefnaðurinn hét. Þá var og til hjá
kvenfélaginu í minni sveit tvíbreiður vefstóll, sem farið var með á milli
bæja og setti ég upp í hann fleirri gerðir, og voru þá fleirri um að vefa.
T.d. voru gerðir matardúkar úr tvisti og voru notaðir í tugi ára
og jafnvel til enn í dag. Þar voru líka rúmábreiður úr tvisti, einnig
voru dívanteppi með línuppistöðu, en ullar ívafi. Þau voru með krókbragði,
og eitt enn er hét húsgagnavoð, var það með rósabragsídrætti, bæði úr tvisti
og ull. Það kom út smástykkjótt. Þetta var notað til að yfirdekkja
stóla, og eins í stólsetur og er ekki langt síðan að til var aðeins af
því. En það er varðveitt ögn af þessum gamla vefnaði hér heima í
héraði hjá Kvenfélagasambandinu og er þar til sýnis. Læt
ég svo þessu skrifi lokið og bið velvirðingar á því hvað þetta hefur dregist
lengi.
Nr. 1242
p1
Ull og tóvinna 3.
Um vefnað og það sem honum tilheyrir get ég fátt og lítið sagt,
sem til fræðslu sé. En það litla sem ég man eða kannast við vil ég
gjarna festa á blað. Vefnaður var sjálfsagður heimilisiðnaður á
hverjum bæ. Fleirri eða færri voðir á hverjum vetri. Hvað margar
eða stórar þær voru, fór eftir mannfjölda, efnum og ástæðum. Voðirnar
voru ætlaðar í utanyfirföt, gróf og fín. Milliföt, pils og skyrtur.
Nærföt, rúmföt, rekkjuvoðir, sængurver, koddaver, brekán.
Flest heimili kepptust við að koma upp og ljúka einni voð fyrir jól. Og
helst skyldi efni í þá næstu vera tilbúið, sem fyrst eftir nýjár. En
helst átti vefstaðurinn að vera auður um hátíðarnar, og gjarnan tekinn
upp á meðan, svo rýmra væri. Vefnað önnuðust að langmestu
leyti stúlkur eða konur, einatt húsfreyjan sjálf, heimasæta eða vinnukona.
Hvað lengi setið var í vefstaðnum dag hvern, fór auðvitað mjög eftir
heimilisástæðum. Á stórum heimilum, mannmörgum sat vefarinn við allann
daginn. En þyrfti hann að sinna
p2
öðrum verkum, eins
og víða var, var ofið milli mála og á vökunni. Vefnaður var erfitt verk,
og ekki ætlað öðrum en fullþroska stúlkum. Ekki þekkti ég neinn umferða
vefara, en fyrir kom, að tekinn var vefur af vinkonu, ef á lá. Um
borgun fyrir það var víst ekki nein regla, oftast greiði móti greiða.
Heyrt hef ég um mann í Mýrdal, Þorstein, sem nokkuð stundaði vefnað
fyrir aðra, og fór milli bæja þeirra erinda. Vefstaður var
til á flestum bæjum, annars varð að fá lánaðan vefstað eða fara með vefinn
á annan bæ, og vefa þar. Hvorutveggja kom fyrir.
Ekki þekki ég kljásteinavefstaðinn,
og ekki veit ég hve lengi hann var í notkun austur þar. Í
vefstaði þurfti gott efni, og vefstaðasmíði vandaverk. Menn í Meðallandi,
sem smíðuðu vefstað get ég nefnt Sigurð á Fljótum, Bjarna á Melhól, Runólf
í Nýjabæ, Ingiberg á Melhól og Friðfinn á Skurðbæ.
Vefstaðir voru amk.
með tvennu lagi. Aðallega
p3
var það þráðarbóman
sem skildi "Með háu bómu" afturokar um helmingi hærri en framokar,
og þá þráðarbóman fest efst milli þeirra "með lágu bómu". Jafnháir
aftur og framokar. Vefjarbóma og þráðabóma á jafnháar báðar í efri
hliðfjöl. Skeiðin, rittið, var í slagborði, féll í gróp, sem
var í efri og neðri slá. Efri sláin á slagborðinu var færanleg á
uppihöldum, en á uppihöldunum hékk slagborðið á kambatrénu, sem voru snasir
framundan hafaldatrénu, tennt fremst, svo færa mátti slagborðið aftur og
fram eftir þörfum. Skeiðar voru allar líkar að lengd og gerð, en
misþéttar, 8o tanna ritti, voru víst algeng. Þetta var útlend smíði.
Þó voru til íslensk ritti, sem notuð voru við mjög grófann vefnað,
t.d. hæruvoðir, sekkja-ritti, poka-skeið. Skyttan var smíðuð
úr hörðum góðum viði. Létt og lipur átti hún að vera. Neðan
á henni voru 2-3 látúnsreimar langs eftir miðri skyttunni, við það rann
hún vetur í skilinu. Á báða enda voru festar málmspengur, þeir máttu
ekki trosna.
p4
Í báðum endum spóluopsins
voru þunnar flögur með gati, sem spóluteinninn, príminn, lék í. Við
aðra flöguna var fjöður laus í efri enda, sem varnaði því að príminn dytti
úr. Spólan var undin á spóluroð. Þau voru klippt úr þunnu kindarskinni,
kannske stundum fiskroð. Spólunni var smeygt á prímann og bandendinn
gekk út um rifu á hlið skyttunnar, sem fóðruð var með látuns renning (rifan).
Spólurokkur var einatt uppgjafa, gamall, spunarokkur, óbreyttur
nema að spóluteinn kom í stað snælduumbúnaðar. Til voru þó spólurokkar
af sérstakri gerð. Hjól líkt og rokkhjól, eintrjáningur, með sveif,
lék í grópum milli lóðréttra stuðla. Snúra var af hjólinu á trissu,
sem var föst á spóluteininum, undir honum var oft kassi fyrir spólur og
spóluhnoð. Spanstokkur var till þess að halda út jöðrum voðar, svo
hæfilega strýtt væri. Hann var í 2 hlutum, svo lengja mátti og stytta
eftir þörfum.
p5
Þegar búið var að
þvo og þurrka þráðarhespurnar varð að ákveða hvað mætti leggja upp úr mörkinni.
Gjarna var þetta borið undir grannkonu eða húsmóður, og vefjarkona,
sem raunar var oft sú sama, ákváðu það eftir nokkrar bollaleggingar. Með
þessu var átt við hvað margar álnir vefjarlengdar miðað við þyngd þráðar,
svo voðin hefði hæfilega breidd. Þetta fór eftir því hvað grannur þráðurinn
var, stór eða smár.
Þá er að vinda þráðinn
í hnykla, þéttfast með fallegum jöfnum reikum. Og næst var að rekja. Einn
þráður var mældur og merktur. Það var lengd vefjarins, 10 álna stubbi,
tvítugur, þrítugur vefur, jafnvel fertug voð. Oftast var rakið á hælum.
Einatt þannig að sköft eða prik voru rekin inn í vegg með þeim millibilum,
sem við átti. Sumsstaðar var rýmra um hús og fastir hælar. Skilhælar
munu hafa verið 2. Þráðarhnyklarnir voru einn og einn látnir í einhver
smá ílát, kassa, skálar, jafnvel aska. Endar allra hnyklanna teknir
í hendina, feti brugðið um hælana eftir einhverjum vissum reglum, sem
p6
ég kann ekki að lýsa.
En skilhæla og skilband heyrði ég nefnt. Þegar fullrakið
var, var fikað ofan af hælunum, lykkju brugðið í lykkju, vel gengið frá
endum og slangan var fullgerð. Rakningsgrind sá ég fyrst á Strönd.
Hana átti Einar hreppsn. oddviti Einarsson. Hana mun hafa smíðað
snillingurinn Sveinn Ólafsson, tengdasonur Einars. Þannig var um
búið í skemmu Einars, að fljótlegt var að setja upp grindina og taka niður.
Ýmsum þótti gott að fara að Strönd, og fá að rekja á þessarri grind. Þótti
hægara en að hlaupa á milli hælana. Nú var komið að því að
setja til. Fyrst var að leggja í kambinn. Kamburinn var trérim allþykk,
næstum jafnlöng breidd vefstaðarins. Í þessa rim voru festir sívalir
tindar ca. 3" langir, svo þéttir að tæplega varð komið fingurgóm á
milli. Til beggja enda voru flatar rimar nokkru lengri en tindarnir,
svo var önnur rim, efri kambur, með götum á báðum endum, sem neðri kambrimarnar
gengu í gegnum þegar kambinum
p7
var lokað. Þegar
búið var að leggja í kambinn, og þannig ákveða breidd voðar, var kamburinn
festur framan streyi bómu plógskaftinu, sem var sívallt smeygt í skilið,
gengið frá því í gróp á þráðarbómunni, rifnum, og svo var farið að bóma.
Til þess þurftu helst að vera 3 menn, einn hélt í slönguna, hélt
undir, fram af brjóstbómu, annar snéri þráðarbómuhausnum og þriðji var
við þráðarbómuna, sá um og hafði hendur á, svo að vefðist jafnt á hana,
jaðrar færu vel osfrv. Svo voru höföldin sett upp. Hafaldasköftin
voru venjulega 8, 4 að ofan 4 að neðan, flöt slétt og lipur. Í enda
efri skaftanna var fest snæri, sem svo voru þrædd upp í trissur, Jómfrú,
sem festar voru á hafaldatréð. Þetta voru smátalíur eða blokkir. Haföldin
voru vandlega unninn þráður úr góðu togi. Tvinnaður eða helst þrinnaður,
undinn í hnykla á dálítinn tólgarmola, hespað í mátulega stórar hespur,
þvegið og þurrkað. Skorið út úr hespunni og loks voru höföldin hnýtt
á hafaldagrindinni.
p8
Hafaldagrindin: 2
okar, í neðri okann voru festar rimar, flatar sín í hvorn enda og grönn
sívöl rim í miðju. Efri okinn var laus með götum fyrir rimarnar,
og mátti festa hann á þær á meðan haföldin voru hnýtt. Hafaldaefnið, hespan,
hengd upp. Einn og einn þráður tekinn, lykkjan lögð um rimina,
sem frá manni snýr. Endarnir jafnir, góðir hnútar báðu megin við
mið, sívölu, rimina, og svo hnýtt utaná hinni, venjulegur rembihnútur.
Miðrimin myndaði möskvan, hafaldaaugað. Þegar grindin
var full, var efri okinn tekinn af, spotti dreginn gegnum báða enda hafaldanna,
og þeim smeygt upp af rimunum. Og svo á sínum tíma á hafaldasköftin
í vefstaðnum. Hnútarnir á haföldunum snéru upp og mynduðu eins og
.... ofan á sköftunum. Til þess að haföldin færu ekki útaf neðri
sköftunum, var spotti festur um endana og lá lauslega með þeim. En
niður úr miðjum neðri sköftum voru skammelabonelin niður í skammelin. Stundum
voru járnlykkjur í sköftunum til þess
p9
að festa í skammelabönd
og jómfrúsnærin, en það var ekki alltaf. Að draga í höföldin
þurfti 2, annar, sá sem rétti, einatt unglingur, tók þráðarendana einn
og einn framan við kambinn, hinn, oftast vefarinn sjálfur, var fyrir framan
haföldin. Tók við endanum og þræddi hann gegnum möskvann eftir einhverjum
flóknum reglum, fremsta, fremra mið, aftara mið, aftasta, heyrðist stundum
í hljóðskrafi. Næst var að draga í skeiðina. Skeiðin,
ritti, var skorðuð í slagborðið. Krækjan, oftast klippt úr látúnsrenning,
henni var stungið gegnum skeiðina (byrjað í miðju), annar lét 2-3 enda
á krækjuna, hinn dró hana til sín og tók endann af. Þetta gekk koll
af kolli út til enda og svo hinn helmingurinn á sama hátt. Áður var
ákveðið hvernig reiknað var í skeiðina, hvað margir þræðir í tönn, þar
eftir fór varpið, 2 í tönn, 3 í annarri, þriðju hverri. Skemmtilegast
var að þráðurinn fyllti skeiðina út til enda skeiðarbreidd. Stundum
gekk kannske utanaf smáfeti og stundum varð görnmjótt. Hvorugt var
gott, einhver misreikningur olli.
p10
Nú er að hnýta fram,
3-4 snæri fest um vefjarbómuna, lögð svo upp yfir brjóstbómuna, þar sem
plógskaftið er nú. Þráðunum sem komnir eru í gegnum haföld og skeið,
er nú nokkrum saman hnýtt um plógskaftið, strekkt á og aðgætt að öll uppistaða
væri jöfn og skil hrein, hvergi misslekja né snúið um tönn.
Og svo er að draga fyrir. Fyrirvafið hreint og þurrt í hespum eða
hnyklum og búið að spóla á nokkur voð. Skyttan með spólunni í, er
tekin, skilið opnað með því að stíga á skammelin. Skyttan smýgur
gegnum skilið og þráðurinn, fyrirdrátturinn, sleginn að með slagborðinu.
Sköftin með höföldunum ganga á víxl upp eða niður við hvern fyrirdrátt
um leið og stigið er á skammelin. Gefið er í með því að höndin ýtir
á fyrirvefsþráðinn í boga aftur undir skeiðina, áður en að er slegið. Stikuþráður
álnarlangur bandspotti (fín flétta) með hnút á öðrum enda, er festur í
vefaðið milli þráða. Hann er færður eftir því sem verkið vinnst,
með því er hægt að vita hvað gengur. Ein áfæra er búin þegar dúkurinn
er kominn
p11
það nærri skeiðinni,
að ekki er skilrúm fyrir skyttuna, enda þótt búið sé að færa slagborðið
í öftustu skor á kambatrénu. Það er slakað á þráðarbómu, en hert
á fram-vefjarbómu, greitt vel úr aftan við höföldin, ef einhversstaðar
er flækt eða þræðir snúnir saman. Snærin vefjast um bómuna og loks
eru komin það mörg vöf af voðinni að nú má leysa snærin. Plógskaftið
fellur inní gróp á bómunni, strekkt er á, og vefurinn barinn jafnt og þétt.
Taktfastur samhljómur í skammelum, trissum og slagborði merkir að
lag er á vefnum. Stundum er líka ólag á, hann er flæktur, slitnar
eða misslekja. Að mörgu þurfti að gæta, þráðarbótin varð alltaf að
vera tiltæk, ef þráður slitnaði. Stundum þótti óvenjuleg þráðaslit
boða gestakomu og jafnvel vissir menn boðuðu komu sína með þeim hætti.
Smátt og smátt gildnar vefjarbóman, en hin rýrnar að sama
skapi. Svo fer að grisja í bómuna gegnum þráðinn, og bráðum er mál
að hnýta snærin. 3-4 snæri eru festu um blógskaftið og hinn hendinn
p12
um bómuna, jafnlöng
urðu þau að vera. Ekki þótti gott, ef nótt leið eftir að búið var
að hnýta snærin áður en vefur var felldur, og væri skaftið komið upp að
streyibómu, en ekki fellt niður, skyldi vefjarkona sofa hjá geitnakarlinum,
sem fáar fýsti. Nú er skaftið komið fram undir höföldin. Ekki skil
fyrir skyttuna fyrir framan skeið, verkinu er lokið. Vefurinn er
felldur, klippt frá og afvikurnar dregnar úr höföldunum. Þær mátti
nota í þráðarbót, þræðingar við fatasaum ofl. Voðin er vafin í stranga
ofan af bómunni. Voðir voru ýmislega litar. Uppistaða
stundum með sama lit og fyrirvaf, stundum ekki. Ofið var röndótt
og köflótt, litað fyrirvaf. Ofið var vaðmál, vormeldúkur, tvískefta
og hver veit hvað. Svo kom vefjargarn, útlent, tvistur, til
sögunnar. Það var bæði hvítt og mislitt. Við það minnkaði mjög
þráðarspuni. Oft var garnið haft í uppistöðu, en ullarband í fyrirvaf,
stundum var líka ofið "garn uppí garn". Þetta voru ágætir
og fallegir dúkar með margslags randaflúri.
p13
Fljótlega eftir að
voðin var laus úr vefstaðnum varð að þvo hana og þæfa. Hún var þvæld
í heitri keytublöndu, síðan vel skoluð í köldu vatni og margbarin með tréklappi,
svo var hún gegnbleytt í heitu vatni og vandlega undin. Að
vinda voð var næsta erfitt verk og vandasamt, oftast þannig gert: járnkarl
eða annað slíkt, var skorðað í húsdyr. Þar um var gengið frá báðum
endum eða lykkju og endi voðar. Í hinn enda eða lykkjur var sett
sterkt skaft, sem sterkur maður fór með, svo langt ú sem náði. Svo
var snúið af öllu afli og vatnið hripaði úr. Forðast bar í lengstu
lög að láta "hlaupa í lið", þ.e. að snurða kæmi á þennan vefning.
Þegar búið var að þurrvinda, var vöndullinn borinn inn í baðstofu,
kannske stundum í auðan fjósbás. Þar greitt úr vöndlinum á þófaraborðið,
sem var tilbúið, hreinþvegið. Það var vanalega hleri eða lítil hurð.
Þófarinn oftast karlmaður, berfættu á nærklæðum einum, steig upp
á hrúguna, hnuðlaði hana, og vellti undir fótum
p14
sér af mesta kappi,
tímum saman. Við og við varð að hrista upp. Það gerðu 2, tóku
í jaðrana sinn með hvorri hendi um fjögra álna bút í einu. Hrist
var með snöggum samtaka hreyfingum, svo að small í. Þetta þótti vandaverk
og erfitt var að þæfa stóra voð.
Oftast gerðu þetta
heimamenn, einstaka kvenmaður þæfði fótaþóf, en þótti varla kvennavinna.
Afbæjarmenn eða maður var stundum fenginn til að þæfa vaðmál. Þótt
það góður greiði. Til voru menn sem fengu orð fyrir að vera góður
þófari, og voru eftirsóttir til þeirra hluta. Sjálfsagt þótti að
þófarinn væri vel haldinn, hvað fæði snerti. Það besta sem til var,
var framreitt og ekki skorið við nögl. Hann var kófsveittur og þurfti
því oft að drekka. Stundum þófnaði voðin óvenulega seint, því var
sagt að óþóf væri komið í hana. Orsakir þess kunnu að hafa verið
ýmsar, þófið of þurrt. Þá var reynt að dekkja í því, þ.e. látið drjúpa
vatn hér og þar í viðina, t.d. eftir að
p15
hrisst var upp. Ef
til vill vantaði þófarann snerpu eða hann var ekki nógu þungur á því.
Þegar fullþæft var, en þar kom vanalega úrskurður húsfreyju til,
var voðin vafin upp á slétta jafnbreiða fjöl, oft rúmfjöl, annar hélt í
þéttfast og teygði út jaðra. Fast og jafnt var vafið og hvert vaf
vel strokið út til ystu jaðra. Svo var þetta sett undir farg t.d.
þunga kistu, þar sem það var um tíma. Seinna var þessi voð hlutuð
í sundur, sumt litað og sniðið í flíkur. En það er önnur saga.
p16
Alkunn vísa: Bárður
minn á jökli - leggst þú nú á þófið mitt - ég skal gefa þér lóna - innan
í skóna - og naglabrot í skipið þitt - ef að gengur þótið mitt. Þófaravísur:
Illa gekk að þæfa þá - þegar hann var með hnallinn - brúðurin mælti
og börnin smá - brjótt ekki ofan pallinn. Þungur er á þófinu - þó
þunnur sé á vangann - Ekki skaltu hafa karlinn svangann. Þraut er
að sprikla á þófi hér - í þröngum baulu klefa - en bót er það ef birtist
mér - bráðum jómfrú Eva.
Nr. 1256
p1
Ull og tóvinna 3.
Hvenær vefnaður hófst að hausti, var mjög mismunandi. Á sumum
heimilum voru t.d. 2-3 vinnukonur, auk húsmóður, en á öðrum t.d. aðeins
húsmóðirin ein, og þó sumsstaðar með stóran barnahóp. En vanalegast
var farið að byrja að vinna til vefjar, þ.e. að spinna þráð og fyrirvaf,
þegar mestu haustönnum var lokið, svo sem sláturvinnu og þess háttar. Svo
þegar rokkvinna var búin, þ.e. búið að spinna nóg í voðina, var farið að
undirbúa vefnaðinn. En hvenær vefnaði var lokið að vetri,var ekkert
fast ákveðið. Venja var hér að vefja fyrst þær voðir, sem
áttu að notast í föt á menn, em fóru í útver. Ávallt var keppst við
að klára að vefa og fella vef fyrir jólin, ef verið var að vefa á þeim
tíma, og ekki sett til, sem nefnt var því nafni, þegar þráðurinn var látinn
í vefstólinn, og byrjað á öðrum vef að nýju fyrr en eftir nýjár. Hér
önnuðust konur eingöngu
p2
um vefnað. Oftast
voru það vinnukonur, ef þær voru á heimilinu, en húsmóðirin, ef ekki voru
vinnukonur, og vanalegast var það sama vinnukonan sem óf, þó fleirri væru.
Ekki var neitt ákveðið hvort sú sem óf, sæti við vefnað frá fótaferð
til háttumála. Það fór eftir því hvort flýta þurfti vefnaðinum. Um
afköst í vefnaði daglangt, get ég ekki sagt ákveðið. Það var mjög
breytilegt, t.d. hvort ofin var voð úr fínum þræði og fyrirvafi eða grófu
efni, því ef voðin var gróf, vannst lengri voð á sama tíma, en ef voðin
var fíngerð, og svo voru konur mis fljótar að vefa. Börn eða
unglingar voru aldrei látin vefa, en aðeins fullorðið fólk, en unglingar
voru látnir spóla. Hér voru engir, hvorki karlar né konur, sem höfðu
atvinnu af vefnaði, en á sumum heimilum, t.d. mínu heimili, var tekinn
vefnaður heim, aðallega af fátækum barnafjölskyldum, og aldrei tekin borgun
fyrir vinnuna. Hér var enginn vefnaður notaður í vöruskiftaverslun.
p3
Í mínu ungdæmi gekk
vefstóll, í daglegu tali, undir nafninu vefstaður, en þegar fram liðu stundir
breyttist það smámsaman og var ýmist kallaður vefstaður eða vefstóll.
Ekki er mér kunnugt um neinar sagnir um gamla kljásteinavefstaðinn, og
ekki er mér kunnugt um hvenær notkun hans lagðist niður með öllu. Ekki
eru hér neinir hlutir í geymslu viðvíkjandi honum, og hafa ekki verið
hér til. En hér hefur fyrr á öldum, sennilega verið til kljásteinavefstóll,
því laust eftir aldamót síðustu, var ég að grafa í gömlum húsarústum, er
verið var að endurbyggja bæinn hér, og fann ég þá smásteinahrúgu, og voru
allir steinarnir með gati í gegn, og taldi ég að það væru kljásteinar,
en því miður hirti ég ekki um að halda þeim saman og hirða þá og geyma.
p4
Um smíði á vefstólum
hef ég lítið að segja. Ég sá aldrei vefstól smíðaðann, en faðir minn
smíðaði vefstóla, en það var fyrir mitt minni. Um gerð vefstóla hef ég
einnig lítið að segja. Aðeins sá ég 2 gerðir, að því leyti er varðar
slöngurifinn. Á annarri gerðinni var slöngurifurinn staðsettur aftarlega
í sömu hliðarslá og rifurinn að framan, en á hinni gerðinni, var slöngurifurinn
staðsettur uppi aftast í kverkinni á kambinum sem slagborðið lá á að framan.
Tvíbreiðir vefstólar voru hér ekki. Ekki átti nærri öll heimili
vefstól og urðu því að fá að vefa hjá þeim sem vefstóla áttu. Ekkert
veit ég um gangverð á vefstólum í kaupum og sölu. Um myndirnar sem sýna
vefstólana, og fylgja spurningalistanum, er þetta að segja. Vefstóll
B líkist helst vefstól, sem hér var til. Þó var hann dálítið öðruvísi
að sumu leyti, t.d. voru engin hliðarskammel á honum, og svo voru á honum
2 hafaldatré, sem trissurnar sem
p5
hafaldaskaftasnærin
líku í voru festar í og lágu þau, hafaldatrén, þversum yfir vefstólinn.
Hér var vefjarskeiðin kölluð ýmist skeið eða ritti. Bæði
nöfnin voru fólki jafn töm. Ekki veit ég til að vefjarskeiðar hafi
verið smíðaðar hér heima. En í ungdæmi mínu sá ég heimasmíðaða skeið,
sem notuð var við vefnað á hrosshári, sem spunnið var og ofið og notað
í hærusekki. Var hún lík að gerð og aðrar skeiðar, nema mikið grófari
og tennurnar búnar til úr eirvír. Yfirleitt voru vefjarskeiðar hér
af svipaðri lengd og mjög svipaðar að fínleika, en ekki heyrði ég talað
um ákveðinn tannafjölda í ákveðinni lengd, t.d. kvarteli. Ekki heyrði
ég að heiti skeiða væru miðuð við neina talningu á tönnum.
Vefskytta var hér kölluð vefjarskytta eða skytta. Þær voru dálítið
mismunandi að gerð. Efni í þær var harðviður, svo sem eik, maghoni,
tkk, sem á var kallað hér amerisk eik.
p6
Lengdin á þeim var
12-14 tommur og í miðjunni á þeirri lengd var rauf ca. 5 tommu löng, sem
spólan var höfð í þegar ofið var. Á sumum skyttum var raufin með
botni, en á öðrum opin niður úr. Þær skyttur þóttu léttari. Skytturnar
voru hafðar svolítið bognar, þá runnu þær betur meðfram skeiðinni, gegnum
skilið. Neðan á þeim var gengið frá 2 teinum. Voru þeir úr
eirvír, ef til var. Þeir voru hafðir út við kanta skyttunnar, sitt
hvoru megin, svo þær rynnu betur gegnum skilið á þræðinum, og á framhlið
á þeim, þeirri sem að vefaranum snéri, þegar ofið var, var rauf í gegnum
hliðina á skyttunni, og var fyrirvafið þrætt í gegnum þá rauf, og raktist
þannig af spólunni. Í kringum þá rauf, var skyttan klædd með látúnsþynnu,
til að verja sliti. Teinninn, em spólan lék á, var kallaður prími og féll
hann í gróp í endum holsins á skyttunni, og var í öðrum enda holsins á
p7
skyttunni fjöður
sem príminn féll í. Tréspólur voru ekki hér, hvorki renndar né tálgaðar.
Til að spóla á ívafið, sem vanalegast var kallað fyrirvaf. En spólur
til að spóla á voru búnar til úr skinni, t.d. þykku sauðskinni eða úr útnárum
af hross eða nautsskinni. Fiskroð aldrei notað hér til þess. Áhaldið
sem spólað var á við vefnað hét spólurokkur, og var hann smíðaður sérstaklega
til þeirra nota. Hann var þannig gerður, að smíðaður var kassi ca.
12 tommu langur, en frekar mjór, og voru gaflar nokkuð hærri en hliðarfjalir.
Út frá fjarri enda kassans, þegar setið var við hann, gekk botnfjöl
til hægri var fest þversum yfir kassann að neðan, og í hana voru festir
2 uppstandarar (spýtur), og á milli þeirra kom hjól, og lék hjólásinn,
sem var sveifarás, í rauf í efri nenda uppstandaranna, en yfir kassann
eð endilöngu kom járnteinn, og á hann, móti hjólinu, var festur snúður,
p8
og var svo snúra
á hjólinu og á þeim snúð, sem snérist þegar hjólinu var snúið.
Teininum var stungið í holur í fjarri gaflinum, en á framgaflinum var teininum
smellt í rauf ofan á gaflinum, sem lokað var með smá spýtu, sem fest var
á öðrum enda í galffjölina, og mátti snúa til hliðar þegar opnað var, til
að ganga frá spólunum á teininum eða taka þær af, og svo snúið til baka
þegar lokað var. Spanstokkar voru hér með tvennskonar móti.
Annar var þannig, að 2 spýtur voru búnar til, og voru 2 járnpinnar
reknir í annan endann á hvorri spýtu, og var þeim stungið í jaðrana á voðinni,
sem verið var að vefa, en hinir endarnir voru lagðir á víxl, hlið við hlið
og bundnir saman, og að ofan á þeim var smá spýta, sem snérist á nagla,
sem festur var í aðra langspýtuna, og með henni var spanstokknum lokað,
þannig að hann lyftist ekki þar sem spýturnar lágu á
p9
misvíxl ofan á voðinni.
Hin gerðin var þannig að 2 spýtur voru einnig í þeirri gerð,
og járnpinnar í endum eins og á hinni, og notaðir eins, en samtenging á
spýtunum var með öðrum hætti. Hún var þannig, að á annarri spýtunni
var búinn til rauf í ca. helming af lengd spýtunnar og var fellt af hinni
spýtunni í sömu lengd, þar til hún féll nákvæmlega í raufina á hinni, og
í gegnum báðar spýturnar á köntunum voru boruð nokkur göt, sem stóðust
á, og í eitt þeirra gata var stungið járnnagla í gegnum spýturnar með því
mátti lengja eða stytta spanstokkinn eftir þöfrum. Yfir um spanstokkinn
var hafður hólkur, oftast úr látúni, sem mátti færa til, og hélt hann spanstokknum
niðri um miðjuna þegar ofið var, en þegar færa þurfti spanstokkinn til
í voðinni, var hólkurinn færður út fyrir samsetningu spanstokksins og lyftist
hann þá um miðjuna.
p10
Verkið að finna út
hvað mátulegt var að hafa uppistöðu í vef langa, var nefnt að leggja upp.
Það fundu konur út eftir vigt þráðarins, aðallega hnyklanna, þegar
búið var að vinda þráðinn í hnykla. Ekki heyrði ég farið um það neinum
sérstökum orðum. Ekki get ég sagt um það með neinni vissu, hvað var
venjulegt að leggja mikið uppúr einni mörk af þræði í hnyklum. Það
var mjög mismunandi eftir grófleik þráðarins, og möttu konu það hverju
sinni og þær sem vanar voru í því starfi fóru oftast mjög nærri um það,
hvað mátulegt var að leggja upp úr þræðinum í hvert sinn. Að sjálfsögðu
voru sauðarvölurnar sem þráðurinn var undinn á, dregnar frá þyngd hnyklanna.
Það var gert þannig að jafnmargar sauðarvölur og hnyklarnir voru
margir voru teknar og vigtaðar, því nóg var til hjá unglingunum af þesskonar
dóti, og þannig fannst þyngd þráðarins , svo lítið skeikaði.
p11
Ekki man ég að ég
heyrði neitt orð um það að ákveða fjölda uppistöðuþráða í breidd voðar,
er vefa átti. Við það var ekki hafður neinn útreikningur, heldur
mat. Konurnar möttu það í hvert sinn, eftir sverleika þráðarins,
og oftast stóðst það mat vel, og í sambandi við það, var metið hvernig
dregið var í skeiðina, t.d. hvað margir þræðir voru hafðir í tönn, sem
nefnt var. Srundum voru það 2 eða 2 í annarri hvorri tönn á skeiðinni.
Það var talsvert breytilegt, eftir grófleika þráðarins. Ef
voðin reyndist gisnari, en ætlað var í byrjum, var það kallað að voðin
væri varplítil. Ekki þekktist hér, svo mér sé kunnugt, nein sérstök
aðferð eða verk, við að ákveða efnismagn í voð, aðeins mat þess sem verkið
vann, byggt á fenginni reynslu. Þráðurinn í voðina var nefndur uppistaða,
en þéttleiki voðarinnvar var nefnt varp. En bandið, sem notað var
í ívaf í voð, var kallað fyrirvaf.
p12
Efni í voð, þráður
og fyrirvaf var einu nafni nefnt vefjarefni. Áhaldið sem uppistaða
í voð var rakin á, var nefnd rakningsgrind. Ekki sá ég hér nema eina
gerð af þeim. Trén sem skilhælarnir voru festir í voru nefnd hælatré
eða skilhælatré. Rakningsgrind var þannig fest upp hér, við notkun,
að í miðju bæjardyrahúsi var þverbiti og á hlið hans tréklossi með gati,
og var efri endi grindaröxulsins látinn ganga uppí það gat, en undir neðri
enda grindaröxulsins, var látin hraun eða blágrýtishella, sem grindin hvíldi
á, enda var járngaddur í báðum endum á grindaröxlinum. Ekki voru
rakningsgrindur á öllum bæjum, þar sem til voru vefstólar, og var því farið
þangað, sem þær voru til, og vefurinn rakinn þar. Balbínur eða balbínustóll
var ekki notað hér, þegar rakið var í vef, og var ekki til hér, og hef
ég því ekkert um það að segja.
p13
Ekki var hér heldur
notaður rakningsspaði. Hann var ekki til hér, og sá ég hann aldrei.
Ekki voru hér sérstakir kassar með hnyklahólfum notaðir þegar rakið
var á grind, en notuð voru smá ílát af ýmsu tagi, eftir því sem til var,
og hnyklarnir látnir velta í þeim. Eins og áður er sagt, var rakningsgrindin
sett upp í bæjardyrahúsi. Vanalegast vann ein kona að því að rekja
vefinn, og svo unglingar til að hafa gát á að hnyklar hrykkju ekki upp
úr ílátunum. Áður en byrjað var að rekja, var þráður af einum hnykli
mældur með svonefndum kvarða, sem á nútíðarmáli nefndist tommustokkur,
og mælt af þræðinum eins margar álnir eins og vefjarslangan átti að vera
löng. Það var kallað að leggja upp. Þegar búið var að mæla
mátulega lengd, var sett merki í þráðinn, var hnýtt bandspotta eða ullarhári
þar í þráðinn, dökku ef þráðurinn
p14
var ljósleitur, og
öfugt í dökkan þráð. Rakningsspaði var ekki notaður hér,
og ekkert um hann að segja. Ekki voru þráðarvölur notaðar á þráðinn
þegar rakið var. Fyrst voru þráðarendarnir festir um ytri
hæl, þ.e. skilhælinn, og farið með þráðinn yfir hann, en undir innri skilhælinn,
og þannig myndaðist svonefnt þráðaskil. Ein þráðarumferð niður og
upp rakningsgrind var gangur, en ein umferð upp eða niður nefndist feti.
Rakning fyrsta fetans á grindina var ekki nefnd neinu sérstöku nafni.
Aðeins talað um að byrja að rekja. Þegar búið var að rekja
fyrsta fetann niður, og komið var að innri skilhæl, var fetanum brugðið
undir hann, og yfir ytri skilhæl, og svo til baka, undir ytri og yfir innri
skilhæl, og svo farið eins að á efri skilhælnum, eins og byrjað var. Ekki
var vanalegt að setja merki í gangaskilin við ákveðin þráðafjölda. Þetta
framansagða er um rakningu á rakningsspaða.
p15
Um áferð feta á rakningsgrindinni
var vanalegast þannig, að þegar búið ar að fara nokkrar umferðir upp og
niður, var rakið annaðhvort ofan eða neðan við það, sem komið var en síður
ofan á það. Fullrakin uppistaða á grind nefndist slanga eða vefjarslanga.
Áður en hún var tekin af grindinni, var hnýtt spottum í skilin á
hælunum. Þegar slangan var tekin af grindinni, var hún kappmelluð
jafnóðum, og af grindinni var rakið. Það var kallað að kappmella
slönguna. Ekki veit ég um neina sérstaka aðferð, þá rakin var tví
eða fleirlituð uppistaða. Það kom aðallega fram þegar dregið var
í höföld og skeið, að það væri allt í réttri röð. Ekki er mér kunnugt
um neitt almenningsálit varðandi lengd slöngu og voðar, sem átti að vefa
úr henni, og því ekki kunnugt um neitt nafn á því. Hér var aldrei
rakið á vegghæla né rúmstólpa.
p16
Áhaldið sem höföld
voru hnýtt á var kallað hafaldagrind. Ekki var hér neitt áhald til
að rekja á hafaldaefnið, en mig minnir, að það væri rakið í sambandi við
hafaldagrindina, en man það þó ekki, svo ég geti lýst því. Efni í
höföld var unnið heima. Efni í það var tog, og var það dregið. Til
að gera hafaldaþráðinn snöggan og haldgóðan og stífan, var hann soðinn
í tólg. Í höföldin var rakið þannig að búin var til hespa með eins
mörgum umferðum eins og höföldin áttu að vera mörg, og svo skorið útúr
lykkjunni á hespunni á einum stað, og var því ein lykkja eða ein umferð
á hespunni í eitt hafald. Hafaldahnýting var þannig, að efninu í
hafaldið var brugðið aftur fyrir ysta rimil grindarinnar og farið með endana
sitt hvoru megin við grindina, og hafðir jafnlangir, svo var hnýtt framan
við miðrimil grindarinnar og svo endunum brugðið aftur
p17
fyrir þann rimil,
og hnýtt þar að, og var þar þá komið hafalda eða þráðaraugað, svo farið
með endana fram fyrir fremsta rimilinn á grindinni, og hnýtt þar á endana
og þá var hafaldið tilbúið. Höföld voru geymd á þurrum og
hreinlegum stað. Stálhöföld þekktust hér ekki. Bönd til varnar
því að höföld færu útaf hafaldasköftunum þegar ofið var, hét ekki neinu
sérstöku nafni, enda sjaldan notuð hér, því trissusnærin, sem hnýtt voru
um enda hafaldaskaftanna, vörnuðu því að þau færu útaf efri hafaldasköftunum.
Vefjarkambur nefndist ekki öðru nafni. Lengd hans miðaðist við breidd
vefstólsins. Hann var gerður úr 2 langspýtum, em voru að lengd eins
og vefstóllinn var víður. Í neðri slána var út við enda á henni,
felld í hana þverspýta til beggja enda, og gengu þær spýtur upp gegnum
enda á efri slánni og lokaði þannig kambinum.
p18
Í neðri slána voru
festir trétindar, sem vissu upp eða eins og endaspýturnar, og voru þeir
í röð eftir kambinum að endilöngu með stuttu millibili. Neðan í efri
langspýtuna var búin til rauf, eftir henni endilangri, og þegar kambinum
var lokað féllu tindarnir uppí hana. Verkið við að ganga
frá slöngunni í kambinum, var kallað að leggja í kambinn. Það var
þannig, að slöngunni var dreyft um allan kambinn, og séð svo um, að sem
jafnast væri dreyft í kambinn, en ekki mikið meira í einum stað en öðrum.
Skaftið sem sett var í gangaskilið, og tengt við slöngurifinn,
var kallað rifskaft, en þráðurinn, sem festur var í skaftið og dreginn
í fremra gangaskilið, var kallaður skilþráður. Skaftinu var svo smellt
í rauf, sem var í rifnum og bundið fast við rifinn til endanna. Verkið
að setja vefjarefni í vefstól, þar til það var tilbúið til að byrja að
vefa hét að setja til vefinn.
p19
Verkið að vinda slönguna
uppá slöngurifinn var kallað að bóma vefinn. Eins og áður segir var
rifskaftinu smellt í rauf í slöngurifnum og bundið. Stundum voru
notuð sérstök áhöld til að halda að jöðrunum á slöngurifnum þegar bómað
var. Það voru trésnúðar, sem kallaðir voru kragar. Þeim var
smeygt uppá slöngurifinn og á þeim að innanverðu voru festir skinnsneplar,
dálítið langir, og voru þeir látnir liggja inná slöngurifinn, undir þræðinum
þegar byrjað var að bóma, og þannig héldust þeir stöðugir.
Vanalegast voru 3 við að bóma, þ.e. að vefja slönguna á slöngurifinn, einn
sat í sætinu (setfjölinni), og hélt í slönguna og gaf eftir þegar undið
vr uppá rifinn. Annar snéri slöngurifnum, og sá þriðji annaðist um
að þráðurinn lægi sem jafnast á rifnum. Rifsköft voru ekki notuð
með jöfnu millibili til stöðvunar.
p20
Ef ekki voru notaðir
kragar til að halda að jöðrunum, var slangan látin ganga lítið eitt að
sér á rifnum, smátt og smátt, þegar bómað var. Það var ekki nefnt neinu
sérstöku nafni. Þegar búið var að bóma voru skilsköftin látin
í skilin, og ef ekki var strax farið að draga í höföldin, var bundið um
slönguendana. Að draga í höföld var nefnt því nafni. Ekki var
það venja að festa hafaldasköftin meðan dregið var í höföldin. Þó
munu sumir stundum hafa gert það, að tilla þeim aðeins. 2 unnu að
því að draga í höföldin, annar rétti fram þræðina, en hinn smeygði þeim
í gegnum þráðaraugð á höföldunum, og hafði vanalegast höföldin í greipum
á vinstri hendi, þannig að höföldin á hverju skafti, voru í sitt hverri
greip, þegar um fjórskeftu var að ræða, sem oftast var ofin. Þegar
búið var að draga í nokkur höföld t.d. kvartelsbreidd, var hnýttur hnútur
á það,
p21
og þannig gert áfram.
Þar til verkið var búið. Áhaldið sem notað var til
að draga í skeið var kölluð krækja. Vanalegast var það járn eða tréþynna,
og var hafður haki á þeim endanum,sem stungið var gegnum skeiðina, og þráðurinn
var látinn á og dreginn framan úr skeiðinni. Tveir menn unnu að því
að draga í skeið, annar smeygði krækjunni í skeiðina, tönn fyrir tönn,
og dró þráðinn í gegn, en hinn lét þræðina á krækjuna, eftir því hvernig
ídráttur í skeiðina var hafður, þ.e. hvað margir endar voru í hverri tönn.
Skeiðin var höfð í slagborðinu, þegar dregið var í hana. Ef
það vildi til að hlaupið var óviljandi yfir tönn í skeiðinni, og því enginn
þráður í henni, var það nefnt skeiðarglenna. Skaftið sem uppistaðan
var hnýtt á var vanalegast kallað framskaft eða bara skaftið, og verkið
kallað að hnýta fram. Þegar hnýtt var fram var aðal vandinn sá að
sjá um allir þræðirnir væru nákvæmlega janfstrengdir.
p22
Framskaftið var fest
í rauf á voðrifnum eins og á afturrifnum, og bundið fast til endanna. Um
uppbindingu í vefstól get ég ekki sagt, svo öruggt sé, og því sleppi ég
að reyna það. Vefstólssnæri voru hafaldaskafta og trissusnæri, og
svo skammelasnæri, og snæri þegar byrjað var á vef og endað, og voru þau
snæri nefnd einu nafni vefjarsnæri. Þegar byrjað var að vefa, voru
fyrstu umferðirnar með skyttunni um skilið á uppistöðunni kallað að draga
fyrir. Þegar fyrirvafið var gefið í voðina, var aðferðin
hér sú, að þegar búið var að skjóta skyttunni um skilið og fyrirvafsbandið
þannig komið í skilið, fór vefjarkonan með fingurna á annarri hendi gegnum
uppistöðuna, og færði með þeim fyrirvafsþráðinn aftur, þ.e. nær skeiðinni,
sem jafnast hverju sinni, í hverja voð. Var það kallað að gefa í,
og ef mikið var gefið í, var kallað að voðin væri bandborin.
p23
Ívafið var gefið
fyrir í einum stórum boga, þar næst var slagborðinu skellt fram, og færði
það ívafið að voðinni, sem búið var að vefa. Slegin voru eitt eða
tvö högg með slagborðinu, eftir því hvað þétt, þ.e. fast ofin voðin átti
að vera. Spanstokkur var ávallt notaður þegar ofið var, til
þess að voðin héldi upphaflegri breidd, en herptist ekki saman. Var
hann látinn fylgja fast á eftir, jafnóðum og ofið var, og því hélt voðin
ávallt fullri breidd, og var því ekkert sérstakt orð um það að voðin herptist
saman. Mæliband (alinmál) var ávallt notað þegar ofið var.
Til þess var notað fínt band, t.d. seglgarn, ef til var, og var hnútur
hafður á öðrum enda þess. Það var dregið í gegnum uppistöðuna. Þannig
að hnúturinn var hafður að neðan, en svo lá mælibandið ofaná voðinni, þegar
ofið var, þar til búið var að vefa eina alin, þá var bandið dregið niður
úr voðinni og
p24
bandið fest aftur
með sömu aðferð. Helstu misfellur í vefnaði voru þráðaslit. Að
jafnaði var það ekki annað, og var úr því bætt með því að bæta saman þá
þræði sem slitnuðu. Ekki var almennt talið að það boðaði neitt, þó
þræðir slitnuðu venju fremur. Enda bar frekast á því ef venju fremur
var kalt, þar sem ofið var, og þá allt stirðara. Þó munu einstaka
konur hafa sett það í samband við gestakomu. Einstök vinding
voðar á voðrif eða framrif, sem sumir nefndu, var kölluð áfæra. Var
það nefnt að færa á. Þegar búið var að vefa voðina, og hún var tekin
úr vefstólnum, var það kallað að fella vefinn. Þá var saumað fyrir
enda voðarinnar, svo hún raknaði ekki upp. Þráðarendar sem af gengu
þegar vefur var felldur, voru kallaðir afvikur. Það var notað sem
saumgarn til að bæta utnanyfirföt, sem voru höfð í draslvinnu og í ýmiskonar
óvandað saum.
p25
Þá kemur næst að
segja frá þófinu á voðunum. Um það atriði ætti mér að vera nokkuð
kunnugt, því margar voðir þæfði ég á fyrri árum. Þvottalögurinn var hitaður
að suðumarki, og svo var honum helt í þvottabala, ef til var, annars í
nokkuð stórt ílát og voðin látin ofaní löginn, og þvæld vandlega. Svo
þegar nóg þótti þvælt, var voðin tekin upp úr ílátinu, og undið það mesta
af leginum úr henni. Hér var sett þverslá í bæjardyr, helst sívöl
spýta, og voðinni brugðið margfaldri um þá slá, og úti fyrir dyrum var
sá, sem vinda átti voðina, og hafði sívala spýtu, dálítið langa, og um
hana var voðinni brugðið, líka margfaldri, og séð var um að jaðrar voðarinnar
væur innan í. Því annars var hætta á að þeir rifnuðu. Svo var
snúið á voðina með lausu spýtunni, og kom því snúðurinn á voðina á milli
þessara spýtna, þeirrar sem fest var í dyrunum og þeirrar, sem snúið var
með, og kom því
p26
snúðurinn jafnt á
alla voðina, og var snúið á voðina þar til lögurinn hætti að leka úr henni,
og þá var hún tilbúin undir þófið. Hér önnuðust heimamenn um þæfingu,
og unnu karlmenn alltaf það verk. Voðir voru alltaf þæfðar í baðstofu.
Hér var alltaf notuð ein, sama aðferðin við að þæfa vaðmál, sú, að
þæft var undir fótunum á hurð. Um sérstakan klæðnað var ekki að ræða
við það verk. Yfirleitt voru menn léttklæddir og þæfðu með berum fótum,
því nógur var hitinn, því best þótti að þæft væri af kappi, því þá hélst
voðin frekar volg, og þófnaði þá betur. Þófið var innifalið í því,
að þófarinn væri alltaf á hreyfingu á voðinni, og þrýsti fast á hana með
fótunum, og velti henni til um leið og hún var hreyfð. Þá þófnaði
hún jafnast. Alltaf var, við og við, verið að athuga og hrista voðina
þegar á leið þófið. Það gerðu 2 menn. Þeir héldu
p27
nokkrum kafla voðarinnar
á milli sín, og hristu þeir hana með sérstökum hnykkjum, sem ekki er hægt
að lýsa. Það var kallað að hrista voðina upp. Um það
hvenær voðin var álitin fullþæfð, kom til greina mat þeirra, sem vanir
voru við starfið, og svo annað sem athuga þurfti. Það var þannig
að stundum komu fram í voðinni kaflar, sem þófnuðu meira á einum stað en
öðrum, og þá mynduðust smá pokar sitt hvoru megin við þann blett, sem meira
þófnaði, og ef dálítið fór að bera á þeim, varð að hætta að þæfa voðina,
því þeir stækkuðu því meira, sem voðin var meira þæfð. Þetta var
kallað að voðin væri farin að bryggða. Var talið að það orsakaðist
af misgrófu fyrirvafi, og líka gat það stafað af misgóðri ull, sem fyrirvafið
var spunnið úr. Algengt var að húsmæður létu þófaranum í té, einhver
aukaglaðning meðan á verkinu stóð, því þetta var mjög erfitt verk, ef það
var unnið af kappi, t.d. aukabita eða aukakaffi, ef kaffi var til,
p28
sem vildi oft verða
skortur á, sérstaklega þegar úthallaði vetri.
Þófaraþulur heyrði
ég ekki nema þessa: Bárður minn á jökli - leggstu nú á þófið mitt
- ég skal gefa þér lóna - innan í skóna - naglabrot í skipið þitt - ef
þú leggst á þófið mitt. Ekki er mér kunnugt um launagreiðslur
fyrir þæfingu á voð. Þegar búið var að þæfa voðina, var hún undin
upp á fjöl, t.d. rúmfjöl. Það gerðu 2 menn. Annar hélt fjölinni
og vatt upp á hana og athugaði að engar hrukkur væru á voðinni á fjölinni,
en hinn hélt á móti og toguðust þeir þannig á, svo voðin væri sem best
strengd á fjölinni. Svo var fjölin með voðinni, sett undir farg,
sem nefnt var. Það er, að ofaná voðina var látin fjöl, og eitthvað
þungt ofan á hana. Þannig var hún pressuð. Voðir voru ekki
sendar í verksmiðjur til litunar né lóskurðar, hvorki innanlands né utanlands.
Nr. 1254
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Vefnaður mun að jafnaði ekki hafa byrjað fyrr en
í janúar eða febrúar. Stóð oftast til páska, en þá fóru bændur og
einnig vinnumenn í verið, til sjóróðra. Þó kom fyrir að konur lykju
við voð eftir páska, ef þeim vannst timi til. Þess voru einnig
dæmi að bændur hefðu vefstól með sér í verið og gripu í að vefa í landlegum
eina voð, einkum ef páskar voru snemma. Oftast voru það bændurnir
sem ófu, milli mála, en létu þá liðléttari, einkum unglinga, flýta fyrir
sér við gjafirnar. Afköst voru misfjöfn, en þóttu sæmileg, ef hægt
var að skila alin á klukkustund að meðaltali. Sumir drengir byrjuðu að
vefa 16-17 ára, en flestir eldri. Fáir eða engir höfðu vefnað að
aðal atvinnu, en nokkrir tóku þó eitthvað að til að vefa, því nokkrir bændur
áttu ekki vefstað, og höfðu lítið eða ekkert átt við að vefa. Var
það oftast í einhverskonar vinnuskiftum.
p2
Vefstóll: Bæði
nöfnin vefstaður og vefstóll voru notuð. Vefstaður mun þó hafa verið
öllu algengara. Nokkrir lagtækir menn hér smíðuðu vefstóla. Voru
þeir hafðir sem fyrirferðar minnstir og hægt var, þó var þess jafnan gætt
að breiddin væri fyrir 5 kvartila skeið, en tvíbreiðir sáust ekki. Oftast
var slöngurifurinn niðri, svo sem á B mynd. Hraðskyttu slagborð voru
lítið notuð hér. Meirihluti heimila hér áttu vefstól um og fyrir
síðustu aldamót. Hinir komu vefnaðinum fyrir eða fengu vefstól lánaðann.
Skeið: Vefjarskeiðar
voru jafnan 5 kvartil á lengd. Útlendar tönnur úr járni eða látúni.
Þéttleiki var miðaður við tannafjölda á kvarteli, 60-70-80-90 og
100 á kvarteli, og skeiðin nefnd eftir því. Vefskyttan: Skyttan
var smíðuð úr harðviði, eik eða brenni. Sáust með rúllum eða keflum
niður úr botninum stutt frá endunum, en flestar voru með sléttum botni.
p3
Í skyttunni var spóluteinninn.
Flestir notuðu tréspólur. Þó sáust bæði blikkspólur og roðspólur
(úr steinbítsroði). Spólurokkur: Flestir notuðu gamla rokka
eða hjól úr þeim með spóluteini í stað snældubúnings. Spanstokkur
var hér jafnan nefndur spjálk. (Hér er teikning). Að leggja
upp: Vanar spunakonur fóru nærri um hvað leggja mætti margar álnir
úpp úr pundinu, einnig gamlir vefarar. Oftast mun hafa verið lagðar
upp 4-6 álnir úr hverju pundi af þræði, völur frádregnar.
p4
Að reikna í skeið:
Aður en rakningu lauk, var oftast ákveðið hvaða varp ætti að hafa
á voðinni. Rektist illa var gripið til þess ráðs að varpa minna.
Það er, hafa annaðhvort gisnari skeið, eða færri þræði í tönn, t.d.
2 þræði í annarrihvorri, en 3 í hinni. Talað var bæði um fyrirvaf
og ívaf. Rakningsgrind: Lang oftast nefnd rakgrind. Ekki
voru rakgrindur til nema á fáum bæjum, þó vefstaðir væru á allflestum.
Oftast farið á bæi til að rekja eða fengið rakið, þar sem grind var
til. Efst og neðst á grindina voru festir svo nefndir þollar með
hælum útúr, sem mynduðu skilið milli umferða. Nær alltaf
var rakið af hnyklum. Balbínur voru ekki notaðar hér. Fáir
notuðu rakningsspaða, nema þá helst á seinni árum, og þó fáir. Nokkrir
áttu rakningsstokk með 6 hólum. Aðrir notuðu aska, koppa eða skálar
til að láta hnyklana velta í.
p5
Rakning á rakningsgrind:
Margir rakningsmenn létu ungling líta eftir hnyklunum, að þeir færu
ekki uppúr hólfi eða íláti, og segja til, er þeir voru búnir. Flestir
vanir rakningsmenn vissu hvað hver hringur um grindina skilaði langri voð.
Oft var það 5-5 1/2-6 álnir. Var þá fljótlegt að leggja upp
ákveðinn álnafjölda. Oft var rakið á 6 þráðum, stundum færri. Leiðin
upp eða niður grindina nefndist umferð, en nokkrar umferðir voru í hverjum
feta, og fór það eftir því hvað fetagrindin var þétt tennt. En fetagrindin
var notuð til að halda þræðinum út í hæfilega breidd þegar undið var á
rifinu. Vafið var með bandspotta um hvern feta, svo hægara væri að
fylgjast með þráðafjöldanum, og fljótara að láta í fetagrindina. Oftast
var rakið neðan við síðustu umgerð, og svo ýtt uppað. Þegar búið
var að rekja og taka af grindinni, nefndist uppistaðan slanga. Var
hún með hendinni hekluð niður af grindinni. Alltaf var rakið á grind,
en ekki á vegghæla eða rúmstólpa.
p6
Hafaldagrind: Algengari
var hér hafaldafjöl en grind. Þó áttu sumir hafaldagrind. Oft
var hafaldafjölin höfð það löng, að ummálið, á lengdina, væri hæfileg lengd
fyrir hafaldsefnið. (teikning). Hafaldaefni og höföld: Mest
var notaður togþráður í höföld, þar til á seinni árum, að farið var að
nota grannt netagarn eða tvöfaldan tvist. Á neðri hafaldasköftunum
var band, sem nefnd var snúra eða vartá, svo höföldin færu ekki framaf.
Vefjarkambur: Var hér ávallt nefnd "fetagrind"
og að láta í fetagrindina, áður en undið var á rifinn, rifskaftinu var
þá stungið í skilið eða lykkjuna. Vinda á rifinn, draga í höföld
og skeið, nefnt "að festa upp".
p7
Að vinda á rifinn:
Rifskaftinu var fest við rifinn með skörðum í kringlurnar, sem hafðar
voru á rifnum til að halda við þráðinn. Var kringlunum fest með ýmsu
móti, en gæta varð þess að hafa bilið á milli þeirra jafn mikið og slöngubreiddin
í fetagrindinni, svo jafnhátt væri við þær og annarsstaðar á rifnum.
Tveir eða tvennt vatt á rifinn, annar hélt allfast í, en hinn vatt
uppá, og leit eftir að ekki hækkaði eða væri lægra við kringlurnar en annarsstaðar
á rifnum, svo ekki yrðu misslakir jaðrar. Þurfti vel að vanda það,
einkum á langri voð. Tvennt var jafnan við að draga í höföldin,
annar rétti, oft unglingur, en hinn dró í. Hnýtt var uppá 20-30 þræði,
eftir því hvað hæfilegt þótti í hvern hnút, er hnýtt var á skaftið. Svipað
var dregið í skeiðina. Flestir höfðu krók, bæði við að draga í höföld og
skeið. Jafnan var einn þráður í hafaldi, en 2-4 þræðir, oftast
þó 3, í hverja tönn á skeiðinni.
p8
Að hnýta á skaft:
Hafðar voru 3 snúrur úr fremra skaftinu, sem lágu yfir bómuna, og
undust uppá framrifinn. Voru þær svo teknar frá þegar búið var að vefa
það langt að 1-2 brögð af voðinni næði um rifinn. Uppbinding:
Uppbinding eða uppsnúrun var með ýmsu móti, eftir því hvort ofið
var einskefta, vaðmál (vaðmálsvend), salon eða annað. Að
draga fyrir: Hver einn ívafsþráður var nefndur fyrirdráttur. Hverjum
ívafsþræði var ýtt frá voðinni, nálægt miðju með einum fingri 4-6 þuml.
um leið og skilið var stigið. Var það nefnt "að gefa í".
Hæfilegt og jafnt áhersli varð að vera á ívafinu, svo jaðrar yrðu
jafnir og ígjöf jöfn. Væri ígjöf lítil eða áhersli mikið, vildi fremur
vefast saman. Varð þá að færa spjálkina oftar. Hver einstök vinding
uppá rifinn nefndist "færa" og var nefnt að færa.
p9
Að fella vef: Nefnt
var að fella vefinn eða ljúka við vefinn. Afvikurnar voru notaðar til að
þræða með bætur, stoppa göt, og gera tásauma á roðskó ofl. Þóf:
Voðin var þvegin úr heitu vatni. Síðan færð í bala og farið
með hana út, þar sem hún var undin. Var hún þá jafnan lögð þreföld,
og spýtum eða stöfum stungið í lykkjurnar til endanna, og svo snúið uppá,
þar til hún var talin hæfilega rök. Síðan færð til baðstofu, þar
sem þófararnir tóku við, venjulega heimafólk, karlar og konur. Jafnan
var þæft undir fótum, á baðstofugólfi eða lofti. Tvisvar til þrisvar
var voðin aðgætt og hrist upp, því ekki mátti ofþæfa, þá fór voðin í brygður.
Jafnan munu þófararnir hafa fengið aukakaffi og þá oftast bita með.
Að þófinu loknu var voðin undin uppá fjöl, oft rúmfjöl. Var
hún þá teygð og sléttuð eftir því sem hægt var. Síðan sett undir
farg, t.d. þunga kistu.
p10
Vefnaðarsýnishorn:
Því miður mun nú vera fremur lítið til af gömlum vefnaði hér um slóðir.
Tvær gamlar ábreiður, sem hér voru til, salonsofnar, fékk Ragnar
Ásgeirsson fyrir Byggðasafn Ísafjarðar, fyrir nokkrum árum. En sjái
ég eitthvað af því tagi, mun ég að sjálfsögðu beina því til Þjóðminjasafnsins,
þó síðar verði.
Nr. 1246
p1
Ull og tóvinna 3:
Ég byrja á þessum þætti, þó ég sjái að ég hef aldrei verið fær um
að svara nema litlu af því sem spurt er um, hvað þá nú þegar minnið er
p2
stórum bilað, og
víst er að miklu verður ósvarað. Þátturinn er hinn 15. í
tölunni, og er það falleg tala, ef hann yrði hinn síðasti. Ég hef
einnig dálitla von um að geta lagt eitthvað til, sem betur sé fengið en
ekki. Á bernskuheimili mínu var vefstóll, og ofið var þar
á hverjum vetri, og óf ég sjálfur dálítið á unglingsárum mínum. Er
það, sem ég sá á heimili mínu, nær því það eina, sem ég þekki til vefnaðar,
og verður frásögn mín því miðuð við það, sem ég þar sá og heyrði.
það var aðeins óbrotinn vefnaður, sem þar var ofinn, vaðmál og einskefta
til fatnaðar, en misjafnlega fíngerður, eftir því í hvað það átti að notast.
Ég sá á heimilinu salonteppi með nokkrum breytingum, en þau voru
aldrei ofin þar. Hið sama er að segja um glit. Mér skilst það
eigi að bíða næsta þáttar. Nokkuð var einnig á heimili mínu
um vefnað styttubanda og sokkabanda. Styttuböndin voru ofin með kvaðratmynduðum
spjöldum, nálægt 8 cm. á kant. Göt voru í hornunum, og í þau var uppistaðan
dregin eftir vissum reglum, eftir því sem litir áttu að skiftast, en böndin
voru ávallt í fleirri litum, og jafnvel ofin með rósum og myndum, sem litu
út eins og saumuð með krosssaum. Ekki voru þau bönd ofin á mínu heimili,
en aðeins af einföldustu gerð. Spjöldin voru þunn, smíðuð úr harðviði,
og þau sáust einnig erð úr surtarbrandi, hinum svokallaða viðarbrandi.
Þá voru ofin sokkabönd. Þau voru ofin
p3
á fæti, sem kallað
var. Þar voru engin spjöld, en skilið var gert með útbúnaði úr þræði,
sem settur var á uppistöðuna, og ég skildi ekkert í. Allt þetta tilheyrir
víst næsta þætti. Ég sá aldrei bækur með leiðbeiningum um vefnað.
Vefnaður: Ég held það hafi verið misjafnt, hve snemma vefnaður
byrjaði á heimilum, og svo var það á bernskuheimili mínu. Ég held
að aldrei hafi verið settur upp vefur fyrr en á jólaföstu, og jafnvel ekki
fyrr en eftir nýjár. En oftast mun honum hafa verið lokið fyrir sumarmál.
Ekki var það þó svo, að ofið væri á hverjum degi þann tíma. Ekki
man ég til að neitt sérstakt væri látið ganga fyrir. Held það hafi
farið eftir ástæðum í hvert sinn. Ekki get ég sagt glöggt hvernig
yfirumsjón vefnaðarins var hagað á heimili mínu. Faðir minn mun hafa
haft hana á hendi og ofið sjálfur meðan hann lifði, en ég var 7 ára, þegar
hann dó. Eftir það var það móðir mín, og óf hún einnig, en ávallt
voru fleirri, sem það gerðu. Á mínu heimili hafði vefarinn ávallt
öðrum störfum að gegna, og var því óákveðinn tíma dag hvern við vefstólinn.
Meira einn daginn en annann. Þar sem utanheimilismaður var fenginn
til að vefa, hefur hann ekki haft öðrum störfum að gegna, og þá verið við
vefstólinn ákveðinn vinnutíma, sem ég veit ekki hver var.
Ekki get ég sagt með vissu, hvað góð afköst þóttu á fullum vinnudegi, enda
voru afköstin misjöfn, eftir því hvað var ofið. Væri
p4
ívafið fíngert, munaði
hægar fram, og þá þurfti jafnframt að gæta meiri vandvirkni. Það
var með vefnaðinn eins og önnur verk, að misjafnlega var hann gerður og
misjafn var hvað kröfur heimilin gerðu. Var það húsmóðirin, sem þar
réðu mestu og setti svip sinn á allt innan heimilisins. Þar sem eins
var með húsbóndann utanhúss, þá voru slík heimili skólar þess tíma, skólar
sem að sumu leyti stóðu ekki að baki skólum nútímans. Ekki
veit ég hve gömul börn voru er þau byrjuðu að vefa, en misjafnt mun það
hafa verið. Ég man jafnvel ekki hve gamall ég var þegar ég byrjaði,
en vissulega hafði ég oft áður stolist í vefstólinn, þegar hann var auður,
af hinni barnslegu þrá til að gera það, sem ég sá fullorðna fólið gera,
og gera það eins og ég sá það gera. Það þekktist víst ábyggilega
að afbragðs vefarar fóru milli bæja, en ekki heyrði ég þess getið í minni
sveit. Aftur á móti tóku ýmsir vefnað af mönnum, sem ekki höfðu vefstól.
Var vefnaðarkaupið miðað við álnafjölda, og minnir mig ég heyrði
það væri 20 eða 25 aurar á alin. Um kaup aðfenginna vefara heyrði
ég ekkert. Ekki heyrði ég neitt um sölu vefnaðarvöru í minni sveit,
og víst var að aldrei var neitt þesskonar selt frá mínu heimili.
Vefstóll: Ég heyrði áhaldið kallað vefstað. Heyrði einnig
nafnið vefstóll. Virtist það minna notað, þó mér þætti það fallegra.
Ég heyrði sagnir af kljásteinsvefstaðnum, svo ég fékk nokkra hugmynd
um gerð hans.
p5
Minnist ekki hafa
hitt neinn, sem hafði séð hann. Tvær föðursystur mínar fæddar milli
1830 og 1840 höfðu aldrei séð hann. Kann ég engin skil á, nær hann
lagðist niður, en ég tel víst að í minni tíð voru engar leyfar hans til
í Súgandafirði. Um smíði vefstóla veit ég ekkert. Sá eiginlega
ekki nema þann sem var heima hjá mér, sem ávallt var hinn sami, þó stundum
kunni hafa þurft að gera eitthvað við hann. Ég sá að vísu vefstóla
á öðrum bæjum, og virtist þeir hafa sama svipinn, þó eitthvað kunni hafa
munað í smáatriðum. Ég hef því raunar ekki séð nema eina gerð, og
hún er í mörgum atriðum frábrugðin því, sem sýnt er á teikningunum A og
B. Heildarsvipurinn þó líkari B. Ég hefði þurft að gera teikningu
af honum, en hef aldrei verið góður í þeirri list, og er síst betri. Verð
ég því að gera lýsingu af honum með tilvísun til nefndra teikninga, og
reyni ég að gera það svo að heildarsvipurinn skiljist, þó ég sé í vafa
um ýms smáatriði. Nöfn á ýmsum hlutum vefstólsins þekkti ég fá.
Stuðlar nr. 2 á A, voru 4 og allir jafnháir eins og á B, og var
fram- og afturstuðull tengdir saman að neðan eins og sýnt er á A nr. 23,
en ekki heyrði ég nöfn á þeim. Að ofan var gerður tappi á stuðlana.
Náði hann þvert yfir, sagað fyrir þeim svo eftir var þriðjungur breiddar
á þann veginn. Borð gekk á milli fram- og afturstuðuls hvorrar hliðar,
hákvæmlega á sömu hæð og sýnt er á teikningu A. Ekki man ég hvort
það var jafnbreitt og sýnt er á B, svo báðir rifirnir gengu gegnum það,
eða annar búningur var fyrir
p6
þá, en báðir voru
þeir á sömu hæð. Þegar vefstóllinn var settur upp, voru hliðarnar
tengdar saman að neðan eins og sýnt er á teikningu A nr. 19 og 25, en ekki
heyrði ég nöfn á þeim. Ofan á stuðlana framan og aftan, gengu svo
slár, kallaðar bommur, gengu tappar stuðlanna upp í grópar í endum þeirra.
Endar bommanna náðu lítið eitt lengra. Setubekkur nr. 1 og
útbúningur fyrir hann, var mjög líkur og á teikningu B. Ekki
heyrði ég nafn á efsta stykki vefstólsins, sem ber númerið 10, en það var
nokkuð öðruvísi. Náði minna aftur en ívið meira fram. Mig minnir
að 2 stoðir gengju upp undir það með litlu millibili, og væru höföldin
á því millibili. Stykkið nr. 10 náði nokkuð lengra fram, en fremst
á því var lega, sem slagborðið hékk í, en um miðju þess legur fyrir hafaldarúllurnar
2, sem voru gild kefli með litlum trésnúðum með rauf í fyrir hafaldasnúrurnar
lágu í nærri endunum, en í enda keflanna var rekið sívalt járn, sem lá
í legunum. Mig minnir að stoðir þessar niður í efra borð hliðanna
næðu niður í neðra borð þeirra, amk. vinstra megin, en þar var ábyggilega
2 stuðlar mað ás á milli, sem hliðarsköftin 4 léku á. Þá var neðra
borðið milli afturstuðlanna útbúið með eyrum með ás í gegnum, fyrir fótasköftin
4, en þau náðu svo langt frá, að vefarinn gat náð að stíga á enda þeirra.
Þá voru 2 rifir, báðir undir vefnum, kallaðist afturrifurinn
slöngurifur, en hinn frefri taurifur. Þeir voru nokkuð gildur sívalningur
úr tré, en lítið eitt mjórri til endanna
p7
það sem gekk gegnum
hliðarborð. Gekk gildleikinn fast að borðunum, svo þeir gátu ekki
hreyfst til endanna, er þeir voru í vefstólnum. Sá endi sem rifshausinn
var á, gekk lengra út og var ferkantaður, það sem gekk gegnum hausinn.
Hausinn var nokkuð öðruvísi en á teikningu B, aðeins 2 endar til
að taka á, er undið var á rifinn. Þeir virtust gerðir úr plankabút,
nokkuð breiðir um miðjuna, þar sem rifurinn gekk gegnum þá, en mjókkuðu
til endanna, svo þeir urðu sívalir. Á enda rifsins, undir hausnum
var tannhjól gert úr járnplötu. Var það með stórum tönnum, líkt og
á stórviðarsög, tönnuhliðin með nokkrum halla, en beint inn í hjólið hinsvegar.
Ekki man ég hvernig hjólinu var fest á rifsendann. Stöðvari
úr 1.5 vm. breiðu járni var festur á hliðarborðið, sem rifurinn gekk í
gegnum, lék hann þar á sívölum nagla og lagðist niður á tennur tannhjólsins,
drógst hann upp eftir skáhlið tannarinnar, en féll niður er hann kom yfir
odd hinnar, og veitti mótspyrnu að drægist til baka, þó hætt væri að vinda.
Umbúnaður sá, er skeiðin var í, kallaðist einu nafni slagborð,
en ekki man ég nöfn á sérstökum hlutum hans. Hann var aðallega frábrugðinn
teikningunum, að hann hékk á efstu stokkum vefstólsins, þar sem áður er
getið legu hans. Stokkarnir beggja megin skeiðarinnar voru nær eins
og á teikningu A. Var rauf eftir þeim eindilöngum, sem skeiðin lá
í. Upp úr endum undirstokksins gengu spýtur festar í grópir í endum
hans. Þær voru samsvarandi nr. 6 á teikningu A, en að því leyti frábrugðnar,
að þær voru mun lengri og gengu ekki gegnum gat
p8
í efri stokknum,
heldur grópir í enda hans, sem voru svo djúpar og víðar, að hann varð liðlega
færður upp og niður. Breidd þessarar spýtu varð að vera ívið meiri
en þykkt viða þeirra sem slagborðið hékk á. Efst voru spýtur negldar
á hliðar þessar með sömu þykkt og hún. Náðu þeir armar nokkuð lengra
upp og var járnás settur í gegnum þá efst, og lá hann millum þeirra. Var
slagborðið albúið til að setjast á sinn stað og lögðust ásarnir í örmunum
í legurnar. Gæta þurfti þess að stilla ásana í örmunum þannig, að
þegar slagborðið héngi í legunum væri strekktur vefur í miðri skeið eða
ívið ofar. Var þá nokkuð bil milli skeiðar og hafalda. Mig
minnir að hausar rifanna væru ávallt á vinstri hlið við vefara. Vera má
það sé misminni, en ávallt voru þeir báðir á sömu hlið. Þegar vefstóll
var settur upp mátti hæglega setja þá á hvaða hlið sem var, án nokkurrar
auka fyrirhafnar, nema að færa þurfti stöðvarana á tannhjólunum, ef breytt
var um hlið frá því, sem áður hafði verið. Rendur bómanna
á fram og afturstuðlum vefstólsins voru gerðar ávalar, svo vefur og slanga
skemmdust síður og rynnu léttar yfir þær þegar slanga var undin á rif eða
vefur færður meðan á vefnaði stóð. Ég held ég hafi ekkert
frekar að segja, held mig hafa getið flestra nafna, em ég hef heyrt og
nokkurra hluta sem ég hef ekki heyrt nafn á. Ég vona að með hliðsjón
af teikningunum megi sjá heildar svipinn réttan, þó misfellur eða vafi
sé á ýmsum smáatriðum.
p9
Skeið: Það
áhald heyrði ég ávallt kallað skeið eða vefjarskeið. Aldrei sá ég íslenskar
skeiðar eða heyrði þeirra getið. Þær sem ég sá voru útlendar og nákvæmlega
eins að allri gerð og stærð, en ekki kann ég að greina lengd þeirra eða
breidd. Eini munur á skeiðum var sá einn, að tönnurnar voru misjafnlega
margar á kvartils bili. Voru skeiðarnar aðgreinar með tölu tannanna
á kvartilsbili, en vissi ekki hvað um margar gerðir var að ræða hvað tannir
voru flestar eða fæstar á kvartilsbili. Sá var einnig munur að tönnur
voru gildari þar sem þær voru færri. Á mínu heimili voru 2 skeiðar
með mismunandi mörgum tönnum, en báðar um 5 kvartil að lengd. Virtist
mér ekki mætti vera minna með hverjum vefstól.
Vefjarskytta: Ég
held efni skytturnnar væri vanalega beyki eða birki. Var þó óglöggur á
það. Að mig minnir, var hliðin, sem snéri að skeiðinni nokkuð bogin,
en hin bein um miðjuna, en mjókkaði til endanna. Þeir þynntust bæði
að ofan og neðan. Skyttan var nokkuð breið um miðjuna, og var þar
holað í hana rúm fyrir spóluna. Gert var op fyrir bandið af spólunni
í hliðin, sem að vefnum snéri. Það náði neðri hluta spólunnar, en var mjótt.
Við enda þess var settur messingvír eða klætt með messing, sem bandið
rann eftir, svo það gerði ekki skorur í opið.
p10
Spólurnar voru gerðar
úr tré. Voru þær mjóar um miðjuna en með hnúð til beggja enda. Það
sem hnúðurinn var, voru endarnir mjókkaðir til beggja enda með jöfnum halla.
Lítil hola var í endum gróparinnar í skyttunni fyrir enda spólunnar
og rauf niður í aðra þeirra sem oddurinn á spólunni gat farið um, eftir
að fyrri endanum hafði verið stungið í sína holu. Ég man ekki til
að aðrar spólur væru notaðar á mínu heimili, en farnar voru þó að koma
keflisspólur, og þurfti annar búnaður vera í skyttu fyrir þær.
Spólurokkur: Ekki þekkti ég spólurokka fyrir vefjarspólur, og hjá
mér var ávallt spólað á spunarokka. Gekk annar endi spólunnar inn
í pípuna á snældubúningnum, en við hinn var stutt með spýtu. Oftast
voru notaðir gamlir rokkar, en nýir rokkar skemmdust ekkert við það, og
vel mátti snælda vera í snældubúningnum, en væri garn á henni var betra
að taka af henni snúruna. Spanstokkur: Hann var kallaður
hjá okkur spjálk eða spelkur. Hann var gerður úr 2 jafnlöngum þunnum
borðfjölum, nál. 5 cm. breiðum. Sagað inn í hliðar annarrar fjalarinnar
og mynduð tunga með þriðjungs breidd á þeim enda hennar. Í hina fjölina
voru sagaðir 2 skurðir inn í annan endann og tekin úr miðjan, svo rúm fékkst
fyrir tungu
p11
hinnar fjalarinnar.
Þá voru boruð göt með stuttu millibili gegnum tunguna og álmurnar til beggja
hliða. Urðu götin á álmunum að standast á, svo sami vírinn gæti gengið
gegnum þær báðar, og orðið þolinmóður þegar hann gekk gegnum tungu hinnar
fjalarinnar milli álmanna. Stilla þurfti lengd spelkanna með því
að láta þolinmóðinn í hæfileg göt á tungu og álmum. Tveir vírtittir
voru í hvorum enda. Voru sperrur gerðar úr spelkunum yfir voðinni,
tittunum stungið í jaðra voðarinnar og spelkurnar lagðar slétt á voðina
og jaðrar hennar spenntust hæfilega út. Þá var snari á tungunni hennar
meginn við þolinmóðinn, og mátti hann ekki vera fyrir þolinmóðnum en svo,
að hann héldi álmunum niður er honum var snúið þvert á tungunni.
Að leggja upp og reikna í skeið og vef: Ég held best fari
að ég taki þetta sameiginlega. Það er allt sem ég tók ekki eftir,
sem sérstökum verkum, og heyrði engin nöfn á, en varð þó að gera. Í
bernsku minni var margur sem lítið eða ekkert kunni í reikningi, en gat
þó reiknað ótrúlega mikið í huganum og komist að réttri niðurstöðu. Vissulega
höfðu þeir mismunandi aðferðir. Það þarf meiri þekkingu en mína til
að skýra frá þeim. Ég hygg að ef það ætti að vera vel gert yrði það
mikið mál, hver sem það gerði. Efnið í vefinn kallaðist uppistað
og ívaf, sem einnig nefndist fyrirvaf. Efnið í vefinn þurfti að vera
fyrir hendi þegar byrjað var,
p12
sérstaklega uppistað,
við ívafið var hægt að bæta. Ég sá aldrei neitt til að grennslast
eftir lengd spuna á snældum eða hnyklum, en oft sá ég hnykla vegna, en
lengdin var ærið misjöfn, þó þunginn væri hinn sami. Ég heyrði talað um
vef með vissum lóðafjölda, en þekkti það ekkert. En víst er að spunakonur
fóru mjög nærri um hvort efnið var nægilegt. Við rakningu
var tvennt sem maður þurfti að vita: lengd vefsins og þráðafjöldi. Lengdin
var takmörkuð með undirlagningu á rakgrindina og höfð, að ég held, ívið
lengri en vefurinn. Aldrei sá ég þetta mælt á grindina, en ég hygg
að vanur maður hafi vitað nákvæmlega hve marga hringa á grindina þurfti
í hverja ákveðna lengd. Þó þráðafjöldinn væri ekki talinn,
var hann auðfundinn. Breidd vefsins var ákveðinn og þekktur var tannafjöldi
skeiðarinnar á hverju kvartili, og þá kom fram allur tannafjöldinn. Ákveðinn
var fjöldi þráða í tönn, og það með fundinn þráðafjöldinn. Nú var
vanalega rakið á 10 þráðum, 10 í feta, 20 í gang, upp og niður. Þá
þurfti ekki mikla kunnáttu til að finna hve marga ganga þurfti á rakgrind
og hafa menn hlotið að telja þá. Virðist þá öruggast að skrifa þá,
gera strik hvert sinn sem komið var að þeim skilhæl, sem farið frá í fyrsta.
Ekki man ég til ég sæi það gert, og getur þó hafa verið. Aldrei
vissi ég til að skeikaði í þessu. Einum gangi fleirri eða færri munaði
nokkrum tönnum í skeið. Þegar farið var að nota tvist í uppistöðu
vissi maður nákvæmlega hvað leggja mátti upp úr
p13
hverju pundi. Þetta
var eðlilegt. Tvisturinn var allur jafn að gildleika og sama breidd
á því sem ofið var. Með ívaf þurfti ábyggilega annann reikning
og lengdarmál kom ekki til greina. Ég tel enginn hafi getað svarað
því hve margar ívafsumferðir voru á kvartili, enda var það misjafnt og
kom þar margt til greina. Það var því ekki við annað en þungann að
styðjast og áætlun, sem byggð var á reynslunni, og fór það oft nærri. Þetta
gat þó munað nokkuð, þó ofið væri úr sama garni. Mismunandi ígjöf
hafði nokkra þýðingu í því efni, og þá ekki síður hve vel og jafnt vefurinn
var sleginn. Rakningsgrind: Hjá okkur var þetta áhald
ávallt kallað rakgrind og heyrði aldrei annað. Það var eiginlega
2 samkræktar grindur, nákvæmlega eins. Hvor grind var úr 4 viðum,
sem ég heyrði engin nöfn á, en vil kalla 2 stuðla og 2 þverslár. Þverslárnar
voru tryggilega festar í stuðlana, lítið eitt frá stuðulendunum, bæði að
ofan og neðan. Síðari grindin var gerð á sama hátt, en áður en síðari
þversláin var fest, varð að krækja grindinni inn í hina, en gæta þurfti
þess nákvæmlega að sama mál væri milli þverslánna og á fyrri grindinni.
Göt voru gerð nákvæmlega í miðju þverslánna á báðum grindunum. Þá
var gildur ..... gekk gegnum götin á þvertrjánum, urðu götin á þeirri grindinni,
sem ofar var að vera svo rúm að lyfta mætti grindinni á möndlinum. Hinsvegar
var traustlega umbúið að neðri grindin
p14
og öll grindin gæti
ekki sigið niður, en ekki veit ég hvernig það var gert. Þegar grindin
var reist upp, þá lágu þvertré efri grindarinnar jafnt á þvertrjám hinnar
neðri. Þá voru 2 svokölluð hælatré, sem í voru svonefndir
skilhælar, 2 í öðrum en 1 í hinum. Tré þessi voru sett á rakgrindina
þegar búið var að setja hana upp. Voru þau sett millum stuðla á hliðum
hennar sá með 2 hælunum að ofan en hinn að neðan. Hvernig þeim var
fest man ég ekki. Balbínur, balbínustól og rakningsspaða
sá ég hvorki né heyrði getið. Get því ekkert um það sagt.
Rakningsstokkur: Ég tel víst að á sumum heimilum hafi verið kassar
sundurhólfaðir fyrir hnykla þegar rakið var, þó aldrei sæi ég þá.
Hjá okkur var ávallt
rakið úr smákössum eða smáílátum, eftir því sem fyrir hendi var.
Rakning á rakgrind: Ég tel ekki hægt að benda á ákveðinn stað
hvar rakið var á heimilum. Húsakynni voru ólík og hlaut hver að velja
þann stað er hann taldi hentugastan. Hjá okkur var ávallt rakið á
gólfinu undir baðstofuloftinu, sem hentast þótti og minnst hindraði umgang.
Var þar gerður umbúnaður á loftbita fyrir efri enda mönduls grindarinnar.
Ekki man ég eftir nema einum við að rekja, en aðstoð fékk hann til að
p15
setja upp grindina
og undirbúa byrjunina. Ég þekki ekki aðra mælingu á rakgrind, en
ég hef áður sagt frá, talningu hringa á grindinni. Mig minnir að
skilhælar væru ávallt á hægri hlið manns, er maður stóð framan við grindina.
Þeir gátu eins verið á vinstri, en þeir urðu að vera á sömu hlið
bæði ofan og neðan. Ef þeir voru á sama horni bæði að ofan og neðan,
þá stóð á heilum hring, þegar komið var á enda. En það mátti mæla
1/4, 1/2 og 3/4 hrings með því að færa annanhvorn skilhælinn um 1, 2 eða
3 hliðar. Nánar varð ekki mælt. Þér talið um að setja 2 þræði
í hafald. Þetta var gerlegt, en ekki sé ég þar hafi sömu þræðirnir fylgst
í hafaldið, sem voru í gati spaðans. Ég vissi aldrei 2 þræði dregna
í hafald. Þeir hafa hlotið að vefast sem 1 þráður, sá munur einn
frá tveim þáttum í tvinnuðum þræði að þarna liggja þeir samhliða í stað
þess að vefjast hvor annan. Ég held best sé ég lýsi rakningunni
í heild eins og hún kom mér fyrir sjónir. Fyrst var að setja upp
rakgrindina. Hún var tekin fram og efri enda möndulsins stungið í
umbúnaðinn í loftbitanum. Þá var að búa undir hana og var tíðast
að settur var undir hana hæfilegur kassi, sem á var þykk fjöl með hæfilegri
gróp fyrir neðri enda möndulsins. Var grindin og grindurnar færðar
svo þær mynduðu vinkilhorn hvor við aðra. Þá var aðeins eftir að
festa hælatrjánum á sínum stað, svo grindin væri albúin og traust. Þá
voru rakningsílátin látin á sinn stað, hnyklarnir látnir í þau og maðurinn
tók enda þeirr í greyp sér. Ekki man ég til þess að völur væru hafðar
á þráðunum, en hafi það verið, hljóta það hafa verið nautsvölur.
p16
Ég man ég sá eina
nautsvölu með gati á heimili mínu. Hún var orðin gömul og margur
þráðarspottinn hafði farið gegnum hana. Gatið var allt skorið innan.
Mig minnir hún væri notuð á þráð þegar tvinnað eða þrinnað var, en
minnist hennar ekki við rakningu. Rakningsmaður fer nú að
rekja. Tekur endana í hendi sér, festir þá við eina skilhælinn, sem
er neðan og rekur upp, er það að leggja undir verður að gæta þess að hringatalan
verði rétt. Þegar komið er að skilhælnum sem fjær er endanum, skiftir
engu hvort hann fer fyrir ofan hann eða neðan, en fari hann fyrir ofan
bregður hann fetanum niður fyrir endahælinn og kringum hann niður fyrir
hinn hælinn og niður grindina. Fari hann í fyrst undir hælnum sem
hann kemur fyrr að, þá er þetta allt öfugt, og hann kemur á niðurleið.
Þegar fetinn fer undir hælnum á niðurleið fylgir hann neðri jaðri
slöngunnar eða er nálægt honum, undir hælinn að neðan, kringum hann og
upp með og svo áfram uns lokið er. Það er ófrávíkjanlegt að á uppleið
skal fara með hælunum með þeirri hlið og í fyrstu umferð og eins niður.
Gengur svo eftir sömu reglu uns lokið er. Meðan á rakningu stendur
verður rakningsmaður að líta eftir hnyklunum, að þeir hrökkvi ekki úr ílátunum,
sérstaklega þegar að lítið er orðið á þeim. Hann þarf líka að skifta
um hnykla áður en endinn skreppur af þeim. Þá þarf hann að gæta þess
að þræðirnir leggist sem jafnast og sléttast á grindina.
Þegar rakningu er lokið festir maðurinn fetaendann á hælinn. Þá bregður
hann þætti með hælunum gegnum skilin og bindur um þau beggja megin. Þá
er eftir að taka af grindinni, en hann verður
p17
að fá mann til að
styðja við hana, svo hún snérist ekki sjálfkrafa, svo slangan félli niður
eftir grindinni. Þá er tekið skilið fram af eina hælnum, sem oftast
var neðan, hnútur með lykkju gerður á endann og slangan eins og hekluð
í lykkjum uns komið var að enda. Þá var endanum brugðið gegnum hann
og hert lítið eitt að. Var slangan þá örugg til allrar meðferðar.
Ég hef þegar lýst skilum þeim sem gerð voru á skilhælunum.
Virðast þau ekki geta kallast annað en fetaskil, því þau gera þeð
eitt að þau tryggja að fetarnir verða í vefnum í sömu röð og þeir voru
látnir á grindina. Um þráðarskil finnst mér ekki hafi verið að ræða
fyrr en alsett var upp og farið að gera skil með höföldunum. Ég hef
þegar lýst rakningu á rakningsspaða. Maðurinn hélt þráðunum í greip
annarrar handar, en snéri grindinni með hinni og myndaðist borði á grindinni,
sem breikkaði eftir því sem rakið var. Þunnur til jaðranna, en nokkuð
þykkri í miðju. Að öpru get ég ekki lýst því frekar.
Fullrakinn vef heyrði ég ávallt nefndan slöngu og aldrei annað.
Vera má hann hafi
verið nefndur annað á grindinni meðan rakið var, einkum fyrst, þó ég muni
það ekki. Það má telja víst smáhandtök manna hafa verið nokkuð frábrugðin
hjá einum og öðrum, en ég get ekki lýst því nánar. Ég sá
aldrei rakinn vef úr tví- eða fleirlitu garni og þekki ekkert til útbúnaðar
við það. Ekki þekki ég heldur hlutföll milli lengdar slöngu og vefs.
Líklega hefur hún verið lengri, enda ónýttist ávallt nokkuð af báðum
endum.
p18
Aldrei sá ég rakið
á veggjahælum eða rúmstólpum og heyrði þess ekki getið. Held hvorugt
hafi þekkst hér í sveit. Hafaldagrind: Ég heyrði hana
aldrei nefnda öðru nafni. Hún var einfalt áhald gerð úr 5 spýtum,
sem ég heyrði engin sérnöfn á. Neðst var ferköntuð spýta og frá endum
hennar voru 2 nokkuð flatar spýtur grópaðar. Mörkuðu þær lengd hafaldanna.
Að ofan fjórða spýtan lík þeirri að neðan. Göt voru gerð í enda hennar,
svo hún gat gengið niður á þær sem upp stóðu. Þá var spelur mjór,
sem gekk upp og niður miðja grindina, og sem takmarkaði stærð augans. Ekki
man ég hvort honum var fest að neðan eða var þar í gróp og svo í annarri
að ofan þegar grindinni var lokað. Hafaldaefni og höföld:
Þegar ég man fyrst var hafaldaefnið togþráður. Reynt var að hafa
hann sem sneggstan, en ekkert sá ég gert til að gera hann sneggri, og þekki
enga aðferð til þess. Síðar var notað erlent netagarn. Rakið
var hafaldaefnið þannig, að maður tók endann í vinstri, en um þráðinn með
hægri hendi, brá honum unir il sér til að gera hespu, mátaði lengd hespunnar
svo hver umferð passaði í hafald og rakti svo áfram. Þegar hespan
var fullrakin var skorið upp úr henni þar sem maður hélt vinstri hendinni,
og var settur á heildina lauslegur
p19
hnútur.
Þá var hnýtingin. Maðurinn reisti grindina á hné sér með lausa rammann
upp, brá þræðinum fram fyrir hana og þegar komið var að miðspelanum, var
hnýtt báða vegu við hann og að síðustu hnýtt að grindinni næst manninum.
Myndaðist þar fax á hafaldinu, því endarnir voru ekki skornir frá hnútnum.
Gæta þurti að hnútarnir féllu þétt að, en ekki of fast. Ekki
þekkti ég nöfn á lykkjunum sem fóru upp á hafaldasköftin, en það sem uppistaðan
fór um kallaðist auga. Var áríðandi að þau væru jöfn. Mislöng
augu gerðu óglögg skil. Þegar grindin þótti full, var hún opnuð,
garni hnýtt í enda lykkjunnar og hnýtt að. Höföldin síðan geymd þangað
til þurfti að nota þau. Ég held hnúturinn á höföldunum hafi kallast
seilingarhnútur. Sá hnútur hnýttur lítur út eins og 2 lykkum væri
brugðið gegnum hvora aðra og hert að. Ekki get ég bent á ákveðinn
geymslustað fyrir höföldin. Hann varð að vera þurr svo þau fúnuðu
ekki. Stálhöföld þekki ég ekki.
Ekki vissi ég annað
til að aftra því að höföld færu fram af hafaldasköftunum, en hafaldasnúrunar,
sem hnýttar voru á enda skaftanna. Vefjarkambur: Hjá
okkur fetagrind. Það voru 2 ferkantaðir rammar nálega 2 þuml. á kant
og lengdin lík breidd vefstólsins. Stutt
p20
frá endanum voru
tvær um 2 þuml. breiðar, þunnar borðfjalir festar. Gengu þær gegnum
neðri rammann og náðu upp úr þeim efri þar ávallt var gert fyrir enda hans.
Síðan voru boraðar holur með jöfnu millibili milli fjalanna og keyrði
í þær sívalir trétindar að gildleika við blýant eða vel það, og þeir jafnaðir
að ofan. Síðan voru gerð göt í efri rammann, svo eyrun gætu gengið
upp úr honum, boruð göt á þau fyrir ofan hann og tréslpitti sett í. Þá
var grindin öll. Að festa upp: Svo hét verkið
í heild sinni frá því byrjað var í fyrstu þar til hægt var að fara að vefa.
Fyrsti undirbúningurinn var að koma slöngunni í fetagrindina. Grindin
var bundin á aftari bómuna og lokið. Þá var slangan tekin. Tekinn
endinn úr sem skilið var við og raktar upp nokkar lykkjur, leyst utanaf
fetaskilunum í þau látnar tvær skilfjalir, þunnir renningar nálægt þumlungs
breiðar og rúmlega breidd voðarinnar á legnd. Bundið var milli enda
þeirra svo þær rynnu ekki úr skilunum. Fjalirnar með skilunum voru færðar
nokkuð fram og skilin um leið, en aftara rifskaftið látið í skilið í endann.
Var þá farið að láta fetana í grindina. Það átti að láta sem
jafnast, en til þess þurfti maður helst að vita tölu feta og tinda í breidd
vefsins, svo sjá mætti hve jafnt væri hægt að láta í þá. Væri það
ekki, varð mismunurinn að dreifast sem jafnast. Það reið á, að sem
sléttast yndist á rifinn. Þegar þessu var lokið var grindinni lokað.
Slöngunni var
p21
jafnað sem best eftir
rifskaftinu, og það dregið niður að rifnum. Eftir endilöngum rifnum
var laut gerð með þunnum hefli með boginni tönn, sem passaði fyrir helming
skaftsins og á rifnum til beggja enda voru trékringlur. Götin í þeim
miðjum féllu að rifnum, en tekið var úr þeim á einum stað, var þar kringlótt
op, mátulegt fyrir enda skaftsins. Skaftið með slöngunni var látið
niður í lautina á rifnum og kringlunum smeygt upp á enda, svo það sat fast.
Þær voru stilltar þannig að yztu fetarnir féllu niður með þeim. Svo
var bundið um rifinn með snæri og vafið að kringlunum, svo þær hreyfðust
ekki. Þær voru ætlaðar til að halda að slöngunni á rifnum, og þurftu
að vera svo háar að nóg væri fyrir lengsta vef. Þá var hægt
að vinda á rifinn, en til þess þurfti fleirri menn.
Einn gerði ekki annað
en snúa rifnum, en ég held 2 hafi þurft til að halda í slönguna, svo áherslan
yrði jöfn. Hafa þeir þá skift henni milli sín. Vera má þetta sé misminni
mitt. Þegar verkið var hafið gekk það greiðlega, slangan gekk greiðlega
úr fléttunni og skilfjalirnar færðust eftir því sem undið var, gekk því
allt greitt uns því var lokið. Aldrei heyrði ég þetta verk kallað
annað en að vinda á rif. Hef ég lýst því svo greinilega og ég hef
minni til. Það sem ég tel mest hafi þurft að gæta að vel yndist á
rifinn, slétt og með jöfnum þrýstingi yfir allan vefinn.
Þegar búið var, var tekið úr fetagrindinni, og hún tekin. Skilfjalirnar
voru dregnar aftur að bómunni, þangað sem þær voru meðan ofið var, og endi
slöngunnar lá fram í vefstaðinn. Var hann svo langur að hann náði
fram fyrir skeið.
p22
Að draga í höföld
og skeið: Það var ekki margbreyttur vefnaður, sem ofinn var á þessa
vefstaði, en getur þó hafa verð margbrotnari en ég þekki, en þó svo kunni
að vera, hygg ég það órannsakað, hvort ekki er unnt að vefa í þessum vefstólum
áður óþekktan vefnað eða vefnaðarvend.
Þar sem hér var nær
eingöngu ofið vaðmál, var ídrátturinn ávallt hinn sami og uppbindingu þurfti
ekki að hreyfa. Vaðmál var ofið á 4 sköftum.
Tvo menn þurfti til
að draga í höföld, annar dró í höföldin, sat hann inni í vefstólnum framan
við höföldin. Sá sem rétti var aftan við höföldin, og man ég ekki
glöggt um hann. Hann varð að gæta þess að taka jafnan vissan feta,
en til þess varð hann að ná til skilfjalanna.
Hefur hann eflaust
fært þær eftir því sem honum fannst hagkvæmast. Að því mig minnir
var alltaf vani að byrja hægra megin við þann sem dró í. Vitanlega
mátti líka byrja til vinstri. Mundi það þó hafa haft áhrif á vend
þess sem ofið var. Skárákirnar legið til annarrar hendar, ef sama
röð var á ídrætti hafalda, en vendin orðið óbreytt, ef reglan hefði verið
öfug. Sá sem rétti tók fyrst ysta fetann frá, þó hann héldi fleirrum
í hendi sinni. Þá varð hann að gæta þess að taka þræðina greiða úr
fetanum. Þeir gátu verið flóknir fremst og varð að taka endann þar
sem hann var greiður, og draga hann úr því sem ógreitt var. Að síðustu
varð hann að gæta þess að vera búinn með fetann áður en hann byrjaði á
öðrum.
p23
Verk þess sem dró
í, var að draga þræðina gegnum augu hafaldanna. Hann varð að gera það eftir
ákveðinni reglu og aldrei láta útaf bregða. Reglan var ekki margbrotin,
varð skrifuð með 4 tölustöfum, 1234, nr. hafaldaskaftanna. En raðað
var tölunum eftir þeirri röð sem sköftin áttu að takast. Hann varð
einnig að gæta þess að ekki skytust framhjá auð höföld, en ekki var mikil
hætta á því. Þegar allt var komið í gang gekk þetta greiðlega. Maðurinn
sem dró í, lagði þræðina hægra megin við sig, og þegar nokkuð var komið
brá hann hnút á skúfinn og byrjaði á öðrum. Þá var að draga
í skeiðina, en til þess þurfti 2, annan sem taldi þræðina í hverja tönn
og rétti, hinn sem dró í, sat hann frammi fyrir skeiðinni. Sá sem
rétti var á milli hafalda og skeiðar, en ekki man ég hvernig hann kom sér
fyrir. Til að draga í skeiðina, var notað áhald sem nefndist skeiðarkrókur.
Hann var gerður úr blikki, mjór og nokkuð langur. Breiðari
sá endinn sem haldið var um, en hinn mjórri og fremst á honum var skarð
í þá röndina sem upp snéri. Voru þræðirnir látnir þar í og dregnir
gegnum skeiðina. Það var ákveðinn þráðafjöldi í hverri tönn, og varð
sá er rétti að telja þá og jafnframt gæta þess að taka þræðina í réttri
röð úr höföldunum. Sá sem dró í gat ekki séð hvort rétt var talið,
en hann varð að gæta þess að fara aldrei framhjá tönn. Það hefði
verið óþægilegt að bæta úr því. Eins og við höföldin, var hnýtt fyrir
endana framan við skeiðina, eftir því sem áfram munaði. Það tók ekki
mikinn tíma að draga í skeiðina.
p24
Að hnýta fram: Síðasta
verkið við uppfestinguna var að hnýta endunum á fremra rifskaftið, sem
vafðist upp á rifinn í enda voðarinnar. Ekki minnist ég þess að ég heyrði
á því sérstakt nafn, og man ekki ábyggilega smáatriði, sem vafalaust hafa
oft verið mismunandi og jafnvel hjá sama manninum. Ég geri lýsingu
mína eins og ég hygg hana réttasta, en þó kann þar að skeika í einhverju.
Bundið voru 2 snæri um rifinn, nær endunum, svo fjarri miðju að vefurinn
kæmist millum þeirra. Þau voru lögð upp á bómuna og hnýtt þar um
enda rifskaftsins og stillt svo til að skaftið væri bil frá bómunni og
jafnt til beggja enda. Þá var tekinn skúfur úr báðum jöðrum, og þeim
hnýtt á báða enda skaftsins og hélst það svo á sínum stað. Þá var
aðeins eftir að hnýta það sem eftir var á skaftið og var það fljótgert.
Best var að hnýtt væri á skaftið í sem minnstum lokkum, með því ófst
vefurinn fljótar saman, en hvort þess var ávallt gætt, getur verið annað
mál. Uppbinding: Uppbinding var í því fólgin að sett
voru tengsli frá fótasköftunum upp í hliðarsköftin, og úr þeim upp í miðju
hafaldaskaftanna. Þegar ofið var með 4 sköftum eða fleirri varð þetta
að gerast eftir ákveðnum reglum og því flóknari sem sköftin voru fleirri.
Að framan er lýst ídrætti þar sem 4 hafaldasköft eru, en það
p25
allt annað ef aðeins
var ofið á 2 sköftum, ofin einskefta, sem oft var gert, þó ekki væri á
hverjum vetri. Þar var allt svo einfalt sem það gat verið, við ídráttinn
dregið á sköftin á víxl og þess aðeins að gæta að aldrei færu 2 þræðir
samhliða á sama skaftið. Uppbindingin gat engin kallast. Stigið
var aðeins á 2 sköft. Ídráttur í höföld, uppbinding og stig
eru nátengt hvert öðru. Til að fá ákveðinn vefnað eða ákveðna vefnaðarvend,
verður að hafa ákveðinn ídrátt og honum verður að fylgja tilheyrandi uppbinding
og stig. Algengasti vefnaðurinn hér var vaðmálið og vaðmálsvendin.
Hún hafði þau einkenni, að skárákir lágu yfir vefinn, frá hægri til
vinstri eða frá vinstri til hægri og ég held hægt hafi verið að skifta
um það með því að stíga öfugt við regluna. En ekki hef ég sannanir
fyrir því. Ég varð þess einnig var, að fá mátti einnig vaðmálsvend
með breyttum ídrætti, og jafnframt breyttri uppbindingu og stigi. Á
einhvern hátt komst ég upp á að fá fram óþekkta vend, en vitanlega var
það með breyttum ídrætti, og tilheyrandi breytingum. Þetta var að
því leyti frábrugðið vaðmálinu, að í stað skárákanna voru mjóir teinar
langs eftir voðinni. Þetta þótti lagleg tilbreyting og var nokkuð
af því ofið á heimili mínu, en ég vissi ekki til það bærist út af því.
Þessi vefnaður fékk ábyggilega aldrei sérstakt nafn.
Ekki get ég greint formúlur eða reglur fyrir ídrætti, uppbindingu og stigi
þess vefjar, sem ég þekki. Það er algerlega gleymt.
p26
Vefnaðurinn: Þegar
búið var að binda fram á skaftið var allsstaðar bil á milli hnút og því
meira sem meira var í hverjum hnút. Þau bil teygðu sig fram í vefinn
og þurfti nokkra fyrirdrætti til að vefa þau saman svo jafn yrði. Ekki
man ég eftir sérstöku nafni á því er fyrst var farið að skjóta skyttunni
og yfirleitt man ég fá nöfn. Ekki skal þó tekið fyrir ég hafi heyrt
fleirri, þó ég muni það ekki. Spelkurnar voru látnar á svo fljótt
sem hægt var, og var vefnaðurinn þá fyrst kominn í fullan gang. Spelkurnar
voru stilltar á rétta lengd, tittunum í endunum stungið í naumu jaðrana,
en þó svo þeir höfðu fullt hald. Þá voru þær lagðar niður og snaranum
snúið svo þær hreyfðust ekki. Voru þær færðar eftir því sem ofið
var. Eftir það var vefnaðurinn óbreyttur og voru handtökin þannig,
að ég man best. Væri skyttan til hægri handar ýtti maður slagborðinu
aftur með vinstri hendi, og skaut skyttunni með hægri, greip hana með vinstri
og lét ívafið leggjast að vefnum, en hægri hendi stakk hann gegnum vefinn
og myndað á ívafið boga. Þá var skilið og slegið að með slagborðinu.
Þetta gekk svo eins til baka, en þá gerði vinstri hendin það sem
hægri hendin gerði í hinni fyrri og svo áfram til skiftis. Boginn
sem gerður var á ívafið kallaðist ígjöf og heyrði ég það aldrei nefnt öðru
nafni ásamt sagnorðinu gefa í. Ég sá aldrei gefið í á annan hátt.
Ígjöf með fleirri bogum hlýtur að hafa verið seinlegri og vandasamara
að hafa
p27
hana hafna. Það
hafði mikla þýðingu í að vefnaðurinn yrði góður, að ígjöfin væri jöfn og
hæfileg, en hún var aukin og minnkuð með mismunandi stærð bogans á ívafinu.
Þá reið ekki minna á, að vefurinn væri vel og jafnt sleginn, svo
hvergi grisjaði gegnum vefinn. Þegar búið var að vefa svo langt fram,
að of þröng þætti milli vefs og skeiðar, varð að færa til og vefja voðina
upp á rifinn. Það var kallað að færa, og það sem ofið hafði verið
frá því næst var fært, kallaðist einnig færa, en ekki heyrði ég á því önnur
nöfn. Til þess varð vefarinn að standa upp. Hann tók á höfði
afturrifsins og lyfti upp stöðvaranum og tók hann upp úr tönninni á hjólin,
vatt svo sem hæfilegt þótti upp á framrifinn og herti síðan á þeim aftari.
Þegar undið var á rif, hvort sem var slanga eða vefur, var ávallt
undið ofan á hann. Þegar framrifur gildnaði fjarlægðist voðin hné
vefarans, þar sem hún gekk niður á rifinn. Ekki man ég eftir það
kæmi fyrir að voð væfist saman, og heyrði ekkert nafn á því. Það
átti heldur ekki að eiga sér stað, ef spelkur eða spanstokkur, sem er betra
nafn, var færður nógu oft. Ef allt var í lagi átti ekki að reyna
meira eða öðruvísi á tennur skeiðarinnar í jaðri vefs, en annarsstaðar.
Mæliband var jafnan haft í vefnum meðan ofið var og var það látið
í vefinn þegar svo var komið að hann þótti góður. Það var alin á
lengd úr þætti og var hnútur á öðrum endanum. Var hnútnum brugðið
niður framan við það sem komið var, nærri jaðrinum og ofið að, síðan fylgst
með og hann færður þegar full lengd var komin. Alltaf gátu komið
einhverjar misfellur, og man ég best eftir
p28
sliti á uppistöðu,
sem oftast var eitthvað. Hafði vefarinn jafnan hjá sér hnýti af uppistöðuþræði
til að bæta með. Varð hann að hafa gát á þessu, finna þráðin, greiða
hann og bæta. Mest bar á þessu í einstaka voðum og þá gegnum þær
allar. Verst vissi ég þetta vera í erlendum lituðum tvisti, sérstaklega
svörtum. Aldrei heyrði ég þetta talinn neinn fyrirboða á mínu heimili,
enda var illt að kenna það aðsókn einstaks manns, þegar ófögnuðurinn stóð
yfir allan vefinn. Það var sagt stafa af gallaðri uppistöðu og að
því sem tvistinn snerti, að hann væri skemmdur í lituninni, og kölluðu
hann litbrenndan, en þó einn og einn þráður slitnaði vakti enga eftirtekt,
það var dagleg venja. Að koma slöngu eða voð á rif heyrði
ég aldrei kallað annað en að vinda á rif, og á einstaka brögðum, heyrði
ég aldrei sérstök nöfn. Að fella vef: Ég tel mig aldrei
hafa heyrt annað nafn á þessu verki, var það fljótgert og óbrotið. Haldið
var til að vefa svo langt sem unnt var. Skilfjalrinar færðar sno
nærri skaftinu sem unnt var, og þær síðan færðar það næsta höföldunum,
sem þær máttu vera, svo unnt væri að gera skil. Þá var ofið fram
það sem hægt var og síðan uppistaðan skorin framan við skeiðina, en dálítill
spotti stóð fram úr vefnum. Nöfn á afgangi heyrði ég engin. Þá
var dúkurinn tekinn af rifnum og undinn í rúllu.
p29
Þóf: Mér verður
ábyggilega svarafátt við sumum spurningunum viðvíkjandi þessu. Því
er svo varið, að ég veit eða man ekkert viðvíkjandi undirbúning voðarinnar
undir þófið, hvernig hún var vætt og hituð, og að síðustu undin áður en
byrjað var að þæfa. Ég tel að kvenfólkið á heimilinu hafi annast
það og hafi það verið gert í eldhúsinu. Ekki minnist ég að ég heyrði
nein sérnöfn eða orðtæki í sambandi við það. Aðal umsjónina með þófinu
hafði húsmóðirin. Hún fylgdist með hvað því leið og ákvað nær það
væri orðið gott. Hjá okkur var ávallt þæft á baðstofuloftinu í þeim
enda baðstofunnar sem betur þótti henta. Var gólfið þvegið áður en
byrjað var. Ég tel víst að á hverju heimili hafi verið þæft þar sem
hentast þótti, en það gat verið mismunandi. Ég sá aldrei voð þæfða
nema undir fótum. Ég heyrði talað um að þæfa í tunnu, en sá það aldrei.
Sagt var að þar héldist hitinn betur á þófinu, og þófnaði fljótar.
Votaþóf þekki ég ekki. Menn voru léttklæddir við þófið. Það
var allerfitt verk, tók nokkrun tíma og vinna varð af kappi til að halda
þófinu vel heitu. Þófið var þannig, að þófarinn stóð á voðinni, þar
sem hún var látin í hrúgu á gólfið, trauð hana og þvældi á alla vegu undir
fótunum, en varð jafnan að gæta þess hún héldist saman og dreyfðist ekki
til langframa. Þegar nokkuð var liðið á þófið fór húsmóðirin að athuga
það með stuttu millibili. Ekki man ég til hún gerði annað en athugaði
það á nokkrum stöðum. Ekki get
p30
ég greint ljóslega
hvers var krafist til þess að vel þætti þæft. Það var ábyggilegt
að þófarinn fékk jafnan einhvern aukabita, en ekki minnist ég þess það
væri í neinni ákveðinni mynd og get ekki lýst því. Ég tel mig hafa
heyrt það kallað þófarabita, en getur þó hafa verið með fleirri nöfnum,
eftir því í hvaða mynd það var. Ekki kann ég neina vísu um þóf eða
þæfingu, minnist ekki hafa heyrt neina. Á mínu heimili var það heimilisfólkið,
sem þæfði og vann að þófinu, og fékk það engin aukalaun fyrir. Býst
ég við svo hafi verið víðar. Þegar voðin var fullþæfð var
hún illa útlítandi og ærið krippluð og þörf á að slétta hana. Þetta
var gert með því að hrista hana. Það var gert á þann hátt að 2 konur
stóðu með litlu millibili, tók önnur í enda voðarinnar, en hin tók hana
upp hjá sér. Báðar tóku þær í jaðra voðarinnar, strekktu hana millum
sín, hófu hendurnar upp og héldu þeim saman, þá kipptu þær samtímis báðum
höndum snögglega til beggja hliða, og kvað þá við hár hvellur og laus ló
þaut í allar áttir. Ef vel átti að vera urðu stúlkurnar að vera vel
samtaka, varð hvellurinn þá meiri og var góður hvellur öruggur vottur um
góða hristingu. Brátt fór voðin að sléttast og var haldið áfram með
þessa færu þar til hún þótti góð, þá var tekin sú næsta og svo koll af
kolli, uns lokið var. Þá var eftir að þurrka voðina og minnir mig
það væri gert í hjalli, í lykkjum á snúrum eða rám. Ég heyrði eitthvað
talað um lóskurð, en minnir það væri mest í sambandi við hraðskyttuvefnað,
en ég þori að fullyrða,
p31
að af bæjum hér var
vefnaður aldrei sendur til lóskurðar.
Á liðinni öld hefur
heimavefnaður verið almennur, en þó ávallt nokkrir bæir verið sem ekki
höfðu vefstól. Þess hefur verið getið að svo var í bernsku minni
og virtist mér húsakynni þar víða svo þröngleg, að vefstól varð þar ekki
komið fyrir. Framan af öldinni var fjöldi smákota með ýmsum jörðum
í hreppnum, raunar sjaldan öll í ábúð. Var þar síst um betri húsakynni
að ræða og hafa því enn fleirri bæir verið sem engan vefstól höfðu. Hraðskyttuvefstóll
kom hingað að mig minnir á öðrum tug þessarar aldar. Maður sem flutti
hingað hafði hann með sér. Hann hafði áður ofið töluvert og margbreytt,
en var hættur fyrir nokkru. Hann hóf þó ekki vefnað en stundaði aðra
iðn. Vefstólinn seldi hann, og hafa orðið nokkur eigendaskifti á
honum síðan, og er hann hér víst til enn. Eitthvað hefur verið ofið
á honum, en lítið er það og fábreytt. Ég þekki þetta lítið og það
er víst þessum þætti óviðkomandi. Vefnaðarsýnishorn: Það
hefði verið gaman að geta sent safninu sýnishorn af súgfirskum vefnaði,
en ég hygg til einskis sé að fara að leita hans. Nú er langt síðan ofið
var á þessa vefstóla, og enn lengra er síðan mest var notað erlent enfi
í betri fatnað, sem tíðast
p32
hafði betri endingu
og jafnvel verksmiðju unninn vefnað í flestan fatnað. Ég tel því
engar líkur til að hér finnist flíkur úr heimaunnum vefnaði. Þegar
hætt var að nota þær voru þær teknar í sundur til einhverra notkunar, væri
einhver heil brú í þeim. Annars var þeim kastað. Þá
hef ég farið yfir þennan þátt og gert honum þau skil, sem ég get. Það hefur
gengið fljótar en ég gat búsist við, og það hefur orðið fyrirferðar meira
en mér kom til hugar, er þó mörgu ósvarað, en sjálfsagt margt óþarft sagt,
en það ætti ekki að vera skaðlegt. Hitt er lakara hvernig frágangurinn
er. Það er tvísýnt það verði lesið eða skilið á sumum stöðum. Ég
verð að biðja góðfúsa lesendur að afsaka það, eg get það ekki betur. Verk
mín hafa alltaf gölluð verið, og nú er ég orðinn óhæfur til alls.
Ég sé ekki að sé til neins að ég skrifi á blaðið með teikningunum
þau fáu nöfn sem ég þekki eða man. Teikning A er mikið frábrugðin
mínum vefstól, og ég hef getið allra nafna sem ég man á honum með lýsingunni,
sem ég hef reynt til að gera sem skiljanlegasta. Hvernig sem það
hefur tekist.
Nr. 1446
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Vefnaður hófst eftir hentugleikum, þegar efnið var
tiltækt, oft var þá byrjað á tvisti en sjaldnar var það fyrir jól sem vefstóll
var settur upp, og þá ef var, vefstóll gjarnan tekinn niður um jólin. Heimilispiltar
ófu jafnan, og stundum gerði sá maður ekki að útiverkum, um 1910 óf afi
minn eingöngu til heimilisþarfa og sat þá við allan daginn. Eftir
hans dag 1914 voru fleiri er gripu í verkið. Heyrt hef ég um afköst
á dag 20-25 álnir en það fór mjög eftir efninu. Aldraður bóndi segir mér,
að svo fótastuttur var hann í byrjun þegar hann fór að vefa að hann varð
að standa á skammelinum, gat ekki notað setubekkinn, en áhuginn var mjög
mikill. Til var að tekinn var vefur til vinnslu en smá þóknun tekin
eða örfáir aurar á alin
p2
Vefstóll: Heitið
var vefstóll. Kljásteinsvefstóll alveg óþekktur hér um sveitir. Hraðskyttu
slagborð var til hér, en aldrei notað. Ekki til tvíbreiðir vefstólar.
Þeir sem ekki áttu vefstól en höfðu framtak að koma upp voð, fengu
þá ofið hjá nágrönnum er betur bjuggu. Skeið: Nafnið ætið
skeið. Til var hér heimasmíðuð skeið, pílarnir keyptir. Kjálkarnir
smíðaðir úr góðum viði, bilið á milli pílanna vafið með grófum togþræði,
þar til gerður og unninn. Annars voru skeiðar innfluttar ætið fimm
kvartel og ætíð talað um t.d. 6 tuga 7 tuga og áttræða.
p3
Vefskytta: Efni
gott eftir bestu getu t.d. beyki elstu skyttur voru heilar að neðan með
lítið eitt uppbretta enda, seinna komu skyttur með völtukeflum litlum er
þóttu ganga betur, á þræðinum. Spólurnar rendar eða tálgaðar tréspólur,
ef fleiri litir voru og spóluþörfin meiri, gjarnan þá notuð bréf spil eða
þess háttar.
Spólurokkur: Gekk
ætíð undir því nafni. Gjarnan þá notaðir fyrrum spunarokkar en sett
á þá snældurteinn og færanlegur framstjaki því tveir teinar voru notaðir
til að spóla og balbína.
p4
Spanstokkur: Nafnið
spjálk ætíð notað um áhaldið til að halda út voðinni. Talað
var um spjálkarbrygður ef hún var ekki færð til með hæfilegu millibili
og þótti ekki vefaralegt. (sjá teikningu) Þannig var spjálkin, hægt að
stytta hana og beygja. Að leggja upp: Talað var um að
leggja upp alin úr hespu 12 skreppa er mælt var á hesputré því fljótt eftir
aldamótin var hér í sveit spunavél er mikið var spunnið á. Talað
var um "verk í lóðum" t.d. 6.8.
p5
Að reikna í skeið:
Ákveðið var í byrjun hvað þráðafjóldi skyldi vera var þá talað um
"varp" einnig að voðin væri of "varplítil" ef hún reyndist
þynnri en áætlað var. Að reikna í vef: Þegar efnið var tiltækt
og þá ef til vill fleiri litir, þurfti að ákveða hvað margir þræðir og
þá hespur þurfti til að "leggja upp með". Talað var ætíð
um uppistöðu og ívaf.
p6
Rakgrind:
Það var áhaldið nefnt. Rakgrinduur munu hafa verið af svipaðri gerð, víðast
til ásamt vefstólum. Skilhælar eða hestar var nafnið á hælunum er
skoraðir voru á grindina og bundnir traustlega. Rakgrindin var með
prik stúf að ofan er festur var í ólarsmeyg á baðstofubita en að neðan
var kollóttur haus er látinn var leika í holu á fjalarstúf, í holu þá var
gjarnan látinn tólgarmoli til að liðugt léki í. Balbínustóll: Og
balbínusnældur þar í 6 í röð tvíraða stólinn á sjálfstæðum fæti. Undið
var upp á snældurnar "balbínað" á spólurokkinn en þá notaður
"balbínuteininn".
p7
Rakningsspaði: Þekkti
þetta áhald og nafnið með. Afi minn notaði spaðann æfinlega en seinni
tíma vefarar ekki en sennilega hefur flóknað síður ef slitnaði (sjá mynd)
þannig leit rakningsspaði afa út, var hann með laglegt handfang íslenzk
smíði spaðinn 6 cm á breidd, og 30 cm á lengd allur spaðinn.
p8
Rakning á rakgrind:
Rakgrindin var sett upp þar sem pláss var til oft í baðstofu. Gott
var að tveir voru við verkið t.d. þegar ég var barn var, afi minn æfinlega
sá sem hélt á spaðanum, og aðalmaður, en amma sneri grindinni og leit eftir.
Áætluð lengd voðarinnar var ákveðin með því að undið var ofan af einni
snældunni 1 þuml. hleypt framfyrir hverja alin. Þegar lengdin var
fengin var aftur undið upp á snælduna eftir að fest var merki á þráðinn
bundinn spotti eða þ.h. þá var dregið í rakningspaðann en 1 hafður í gati
og gangurinn hélt sér. Hnýttur hnútur á alla endana, skipt sundur
til helminga og brugðið um skilhlælinn og byrjað að ofan og áætlað
eftir lengd hvað þétt þurfti að "leggja á" grindina. Þegar
komið var að merkinu á þræðinum kom hinn skilhællinn, festur sem að ofan,
gert skil á ganginn með því að komið að ofan á fyrrri hælnum og undir hinn
og krossað við til baka
p9
þannig var snúið
til baka og var þá kominn gangur "feti". Alltaf komið ofan
að og þrýst niður með hendinni um leið og grindinni var snúið. Settur
markspotti við "hundrað" eða "stórt hundrað" ef rakið
var á 12. Fullrakin uppistaða nefnd slanga var ætíð gengið frá skilum
með öruggum skilspottum og slangan tekin niður að sérstökum hætti slangan
lykkjufléttuð, fór það fram með mikilli aðgát og grindinni stilltur hraði
í hóf. Þegar fleirlituð uppistaða var, krafðist það vitanlega margs
konar fyrirhafnar slíta frá rekja litarendur. Nokkuð þurfti að áætla
fyrir styttingu að voðin, "kippti sér" en ekki með fastri reglu.
p10
Hafaldaefni og höföld:
Hafalda efni mun hafa fyrrum verið úr togi en ekki er mér kunnugt
um vinnzlu á því. Miðhluti hafaldsins nefndist hafaldaauga. Geymd
voru höföldin, hangandi á góðum stað helst þar sem mölur og ryð komst lítt
að. Höföld með stálaugum komu frá 1916-'20 og voru slæm, vegna þess
að ekki var hnýtt að augunum er þráðurinn var festur í gegn en efnið mjög
límborið og hart, því var breytt um og hnýtt góðri vefjagarni í staðinn,
en það verk var mikil þolinmæðisvinna en tókst vel.
p11
Hafaldagrind:
Var það áhald nefnt er höföld voru hnýtt á. Ég vann að því sem drengur
að hnýta höföld vorum við tveir við það. Þá var notaðneta garn en
gömul höföld voru áður úr togþræði. Þannig var hafaldagrind (sjá
mynd). Hafaldagrindin var gerð úr 5 hlutum 2 hliðum 2 göflum og
sívölum miðás. Vinnan hófst á því að efnið var skorið niður í hæfilega
lengd, annar endinn lítið eitt lengri, honum var brugðið utan um miðásinn
og hnýtt að með rembihnút þetta var um miðju endans en hinum endanum brugðið
lykkjuna áður og hnýtt að síðan út fyrir hliðarskaptið og hnýtt að með
tveim hnútum og að lokum út fyrir leyniþráðinn og enn þá hnýtt eins. Þá
var fyrsta hafaldið komið.
p12
Vefjarkambur: Nefndist
hann. Og að gerð var hann þannig: (sjá mynd). Á kambinum voru
55 fastir tindar í neðri kjálkanum, efri kjálkinn var laus en með holum
á móti tindunum er í þær féllu þegar búið var að leggja í kambinn og honum
lokað. Að láta í kamb: Verkið nefdist að leggja í kamb.
Ákveðið var eftir gangafjölda hvað oft þurfti að breyta útaf með
skiptingu t.d. 1 1/2, 1, að sem slangan kæmi sem jafnast á. Settust tveir
með kambinn milli sín opinn með tindana upp og deildu síðan í bilin er
við átti. Áður var skilprik og skilþráður settir á sinn stað.
p13
Að festa upp: Að
"setja til vefinn" var það kallað. Að bóma vef: Að
"vinda upp" var það kallað. Skilprikið felt inn í rásina
á slöngurifnum, en lausir snúðar voru á rifnum undir snúðana gengu endarnir
á prikinu, snúðarnir festir með teinum er gengu í gegn um rifinn.
Gott var að þrír störfuðu að uppvindingunni 1 hélt í slönguna 2 snéri rifnum
en á rifhausinn var gjarnar bundinn annar skilhælinn sá þriðri leit eftir
kambinum og færði hann til eftir þörfum, greiða flóka og festingar og sjá
um að slangan breiddist sem jafnast á rifinn. Þegar komið var á
enda voru skilprikunum komið fyrir í neðri skilin.
p14
Að draga í höföld:
Verkið hét það. Höföldin bundin saman svo þau gætu sem minnst
færst til. Tveir störfuðu að því að draga í sátu hver á móti öðrum,
annar sá um þræðina en hinn sá um að höföldin kæmu í þeirri röð er við
átti hnýtt var uppá þegar kominn var töluverður skúfur. Að draga
í skeið: Skeiðar krókur hét verkfærið (sjá mynd). Skeiðin bundin
þannig framan á höföldin að hún hallaðist fram. Tveir unnu að ídrættinum
annar tók fram rétta enda, hinn með skeiðarkrókinn í hendi sá um að í réttan
reir væri farið.
p15
Að hnýta fram: Skaftið
er uppistaðan var hnýtt framá var grannur járnteinn, ferkantaður, var talað
um að "hnýta á skaftið" þrjú snæri voru fest um teininn, fyrir
bómuna og í neðri rifinn í þar til gerð göt. Uppbinding: Við
venjulegan einskeftuvefnað voru snærin með sínum krókum fest í hafaldasköftin
í beinni röð, en breytilegt eftir vefnaðargerð t.d. vaðmál.
p16
Að draga fyrir: Þegar
búið var að hnýta fram og fá nokkurt skil, var byrjað að "draga fyrir".
Gefið var "uppí" með einum stórum boga, og slegið með slagborðinu
en þó var oftast fært að fyrst en síðan gefið snöggt högg.
Þá var fljótt er komin var dálítill bekkur tekin spjálkin og hún spent
á, og þurfti þá aðgát til að ekki kæmu spjálkarbrigður ef hún var ekki
færð nógu oft. Þá var alinspotti hafður, það var seglgarnspotti
alin á lengd með hnút á öðrum enda þeim enda ofið í og siðan dreginn brott
er full lengd var komin og sagan endurtók sig.
p17
Að fella vef: Kallaðist
það þegar kom að lokum. Ekki þótti gott að hætta að kvöldi þegar
grisja fór í rifinn var þá "sofið hjá skallakerlingu" og aðrir
sögðu "geitnakerlingu" og þótti það hneysa. Afgangs
endar nefndust "krummabuxur" og voru til margra hluta nytsamir
að bæta og stoppa á þeim tímum er ull var í meira heiðri höfð en nú.
p18
Þóf: Ætíð var
stór dagur er átti að þæfa. Settur stór pottur á eld, fylltur af
vatni. Þá var þófaratunnan staðsett á hentugum stað og ekki mjög
köldum, búri, eldhúsi. Vatninu heitu helt í tunnuna, og þar með drjúgum
slatta af keytu, vel stækri ofan í þennan lög var vaðmálið sett, því ég
geri ráð fyrir að þetta sé 30 alina langur buxnadúkur, en ég óf og þæfði
margar, Hér var um að gera að velta þófinu til með fótunum, var það
ærin þrekraun að geta velt því til meðan hitinn var sem mestur. Þegar
búið var að þvætta þessu um tíma var undið upp og jafnvel dúkurinn skolaður
í rennandi vatni, til að skola keytu þefinn burt. Nú var sett heitt
vatn á dúkinn og nokkur sápa þá hófst hið verulega vota þóf og þá var nauðsynlegt
að halda hitanum í tunnunni, því kom fyrir að þófarinn varpaði af sér brókum
og klæddist pilsi, breiddi það
p19
yfir tunnu barmana,
síðan var snúist og velt og velt tímum saman. Þegar frá leið og þvælið
kólnaði var skift um vatn, fætur vildu sárna, og voru menn lítt til gangs,
daginn þann. Að lokum þótti nóg að gjört, var þá efnið dregið upp
úr þvælinu lykkjað upp á gott prik síðan látið síga úr því til næsta dags.
Þá var þurra þófið eftir: Þvegið var horn í baðstofu, voðin
sett í bala mjög heitt vatn á, farið út í dyr fundin miðjan á dúknum stungið
þar í sterkum staf og nú fór alt fram með miklum hraða snúið og snúið seinni
endanum fléttu brugðið um annan staf er settur var um þverar dyr, nú var
undið, og strokin bleitan af sem best, sett í hlykki sem jafnasta togað
í og strokið. Þá var eftir að "kippa" til að jafna dúkinn
þótti þá miklu varða að smellirnir voru sem jafnastir og hæðstir, annars
var "lausakrakki" sem fólst í mislukkuðum tilburðum við kippinguna.
p20
Nú var farið með
dúkinn inn á þvegið baðstofuhorn og nú hófst seinni þófara athöfnin.
Efninu velt til og frá hnoðað og troðið stóð þetta yfir dagsstund. Ekki
var að jafnaði höfð yfir þófaraþula en vel hefur verið þeginn þófarabiti,
var það ef vel var, magálssneið all væn, og flatkaka fylgdi með. Nú
var senn talið nóg að gert efnið orðið þétt við hæfi. Þá var eftir
að vinda á fjöl, var hafðar tvær fjalir, undið af annari á hina mjög fast
með stimpingum, strokið og togað endinn saumaður fastur, fjölinni komið
fyrir í pressu, undir kistu eða kommóðu. Eftir pressuna í fleiri daga,
var efnið rakið niður þurrkað, vafið í stranga er síðan beið að skorin
væru úr því klæði. Þessir þófara lýsing á við tímann 1910-20.
Eftir þann tíma mun sápa meira notuð en ekki keyta. Ofnir voru
líka þynnri dúkar í milliskyrtur, kjóla og var þá ef meira var haft við
sent til pressunar og litunar til Gefjunar á Akureyri. Þetta sem
hér er sagt er upprifjun á þeim gömlu tímum sem gengnir eru.
Nr. 1244
p1
ULL OG TÓVINNA
Vefnaður: Vefnaður hófst ekki fyrr en eftir nýár á flestum bæjum.
Vanalega var byrjað á einskeftu, eða nærfatavaðmáli. Algengast var
að karlmenn önnuðust vefnað og þá oftast sami maður . Aldrei var
ofið frá fótaferð til háttumála, því sami maður þurfti oftast líka að annast
einhver útiverk. Um afköst daglangt var það breytilegt eftir því
hvaða teg. af vefnaði unnin. Var það þótti gott ef ofnar voru 20 álnir
af einskeftu á dag og 15 álnir af vormeldúk. Mjög sjalda sá ég unglinga
vefa og aldrei undir 16 ára. Til voru menn og konur sem fóru á milli
og ófu,(t.d. í minni sveit var kona sem tók að sér að vefa rúmábreiður
)(salonsvefnað). Um greiðslu fyrir vefnað veit ég ekki, (líklega
25 aurar á alin). Kljásteinavefstólum er lýst í útdr. úr "Hlín
blað 9. Engir vefstólasmiðir voru í minni sveit. Þeir vefstólar
sem ég sá á Austurlandi voru svo til allir eins og teikning B sýnir "Slöngurifurinn"
var niðri, og aðeins slá uppi fyrir höföldin. Hraðskyttu-vefstólar
voru ekki til. Mörg heimili áttu vefstóla, en þeir sem enga áttu
fengu ofið hjá nágrönnum sínum. Veit ekki um gangverð á vefstólum,
enda var sami vefstóllinn á sama heimilinu áratugum saman. Skeið:
Vefjarskeiðar voru ekki heimasmíðaðar, þær voru úr málmi (járni eða
stáli). Þær voru oftast af sömu lengd, en tannafjöldi misjafn frá
70 til 110 tennur. Mjög algengt var 80 tanna skeið. Vefskyttur:
(vefjarskyttur var algengara) Þær voru oftast smíðaðar í heimahúsum
úr birki eða ösp. Teinninn var kallaður spóluteinn. Neðan á
skyttunum voru settir vírar úr messing svo þær rynnu betur. Tréspólur
voru rendar og notaðar til að spóla á ívafið. Þær voru aldrei nema úr tré.
p2
Spólurokkur: Vanalega
voru gamlir rokkar notaðir til að spóla á og var þá settur sérstakur spólusteinn
í stað snælduumbúnaðarins. Spanstokkur var tilbúinn úr þunnri fjöl,
(harðvið). Sumir kölluðu þennan spanstokk, spjálk, (sjá teikn).
Að leggja upp: Svo nefndist það að reikna út uppistöðuþráð. Ymsar
aðferðir voru hafðar við það. Stundum notað ummál hesputrés, en oftar
var það vigt á hespum, (eða hnyklum) þá voru oftast 8 hespur í pundi.
Að reikna í skeið: Það var kallað að leggja í skeið og var kallað
varp. Ef sá útreikningur stóðst ekki og uppistaðan varð of gisin
þá var sagt að voðin væri varplítil. Að reikna í vef: Ég þekki
ekki mun á því og að "leggja upp" sem áður er komið, nema það
var bæði um uppistöðu og ívaf að ræða. Veit ekki neitt umfram það
sem áður er sagt. Rakningsgrind: Það var ætíð kölluð rakgrind
í minni sveit og sá ég bara eina gerð af rakgrindum. Hælatré var
kallað það sem grindarhælar (skilhælar) voru festir á. Rakgrindin
var fest upp í loftið þannig að járnteinn stóð upp úr rakgrindinni og gekk
upp í holu sem var í tréklossa festum í loftið. Að neðan var sami
útbúnaður nema það var klossinn laus, (bara stíflaður af með fleygum).
Rakgrindur voru til þar sem vefstólar voru til. Ummál grindar
mun hafa verið 4-5 álnir. Balbínur, balbínustóll: Snældur
þær sem uppistaðan var rakin af á rakgrindina hétu balbínur
p3
Balbínur voru úr
holu tréskafti með rendum snúð á hvorum enda. Svo voru balbínustólar
og þar voru balbínurnar festar í og léku á járnteinum sem stungið var gegn
um uppistöðurnar á stólnum. Þessir balbínustólar tóku minnst 6 og
upp í 12 balbínur þótti því betra sem þær voru fleiri. Balbínustóll
var úr tréblökk sem lá við gólf og upp úr henni voru tvær eða þrjár uppistöður
og á milli þessara uppistaða voru balbínurnar settar með járnteinum. Ef
uppistöðurnar voru 3 þá var hægt að hafa tvær balbínur hlið við hlið. Það
voru oft sérstakir rokkar til að spóla bandið á balbínurnar þeim var handsnúið
og hét það að balbína. Balbúnurokkur var með stóru hjóli í rokkgrindinni
og allur frágangur svipaður og á venjulegum rokk, þó með því fráviki að
þarna var enginn snælduumbúnaður ofan við rokkhjólið heldur til hliðar
við það í áföstum kassa þar var balbínan á teini og bak við hana trissa
sem var tengd við rokkhjólið með snúru, (eins og á venjulegum rokk).
Handfangið var áfast við hjólöxulinn þannig að ásinn sem gekk í gegnum
hjólið náði nokkuð fram úr hjólgrindinni og þar var handfangið fest við.
Rakningsspaði: Ég þekki ekki það orð, en það voru kallaðir
rakhælar sem héldu uppistöðuþráðunum í réttri röð, svo það mynduðust skil
á milli. Þeir voru festir í einhverja lykkjur sem voru á hinum 4 uppstöndurum
í grindinni.
p4
Rakning á rakningsgrind:
Rakgrindin var sett upp þar sem nóg rými var til að geta athafnað
sig við vinnuna, og gagnrúm kringum grindina. Undir baðstofulofti
var víðast hvar svefnstofa fyrir gesti og oft önnur fyrir heimafólk. Þar
var rakgrindin sett upp og umbúið eins og áður er umgetið. Vanalega
voru 2 menn sem unnu við að rekja. Lengd voðarinnar var mæld með
merki á einhverjum uppistöðuþræði. Þræðirnir voru hnýttir í göt á
hælinn og svo rakið niður. Þræðingin var miðuð við þráðafjölda í
hafaldi þegar ofið var. Þráðarvölur voru ekki notaðar. Fyrsta skilið
var tekið á þræðina strax og búið var að binda þá fasta í hælgötin. Það
var kallað þráðaskil og var bundið á grindina. Ein umferð með þræðina
niður og upp á rakningsgrind var nefnt "gangur" en ein umferð
niður eftir grindinni hét "feti" og var það kallað "að leggja
á grind". Þegar búið var að rekja fyrsta fetann þá var farið aftur
á bak? Merki voru sett í gangaskilin að neðan við ákveðinn þráðafjölda
t.d.50 eða 100 þræði, þar var bundinn spotti og hét bandspottinn "fetaband".
Ekki var rakið utan á fetana heldur ofan við þá, eða neðan við þá.
Fullrakin uppistaða á grind var kölluð "slanga". Þegar
slangan var tekin af grindinni þá var hún kappmelluð upp.(búin til lykkja
og hendi stungið í gegn og slangan dregin upp og ný lykkja myndast og þannig
koll af kolli) það var kallað "að fika ofan". Þegar fleiri
litir voru í uppistöðu þá var búið til munstur á spjald og svo rakið eftir
því. Það var venja að hafa slönguna eitthvað lengri en voðin átti
að verða var því rakin þverhönd fram yfir á hverja alin. Það var
kallað að voðin "skryppi saman". Þekki ekki að rakið væri
á vegghæla eða rúmstópla
p5
Hafaldagrind, hafaldaefni:
Ekki heyrði ég talað um hafaldagrind, en aðeins um hafaldasköft.
Á þessi sköft voru höföldin sett. Hafaldaefnið var rakið á
hafaldasköftin. Ekki man ég eftir nafni yfir það. Efni í höföld
var unnið heima þar sem gamlar venjur voru í heiðri. En aðallega
man ég eftir útlendu garni sem notað var í höföld. Gamlar konur spunnu
hafaldaþráð og var hann nokkuð snúðharður og snöggur. Höföldin voru
hnýtt á sköftin (sem þá voru fest á grind). Hnýtt var bæði ofan og
neðan á hafaldaskaftinu. Mismunandi aðferðir voru við hafaldahnýtingu
en þeim kann ég ekki að lýsa. Miðhluti hafalds nefndist hafalda auga.
Höföld voru geymd á sköftum á þurrum stað. Það band sem varnaði höföldum
að dragast útaf endum skaftanna var af sumum kallað vartág. Það var
þráður milli hnúta ofan á sköftunum. Svo var hann vafinn yfir endann
á skaftinu og bundið fast öðrumegin en öðrumegin varð að hafa endann lausann
til að smeygja skaftini í að ofan. Vefjakambur, Skilsköft:
Vefjakambur var smíðaður úr tré tvær kinnar og tindar á milli. Tindarnir
voru fastir í annari kinninni en lausir í annari. Kamburinn var hafður
jafnbreiður voðinni. Það var kallað að leggja í kamb þegar slöngunni
var dreift í kambinn. Skaftið sem sett var í gangskilið var kallað
rifskaft,(það var með götum) þráðurinn sem festur var við skaftið og dreginn
í fremra gangskilið var kallaður skilþráður. Á endum skaftsins var
skora og vafið þar í. Þessi skilsköft voru 2 fremra og aftara skilskaft.
Skilsköftin voru aftur við bómutréð og færð til eftir því sem með
þurfti.
p6
Að festa upp vef,
og bóma vef: Það var kallað að festa upp vef þegar slangan var undin
upp á slöngurifinn, dregið í höföld og skeið og fest uppistaðan í
framrif. Verkið við að vinda slönguna upp á slöngurifinn var kallað
að bóma. Rifskaftið var sett í gróp á rifnum. Það var sérstakt
áhald sem hélt að jöðrunum og var kallað "kragar". Þeim
var ýtt upp á skaftendana. Tveir menn unnu saman að því að vinda
slönguna á rifinn. Annar þurfti að gæta vel kambsins og halda honum
beint, en hinn hélt á slöngunni og gaf hana vel fyrir svo þurfti að nota
skilsköft til stöðvunar. Skilsköftin voru þunn með grópi á endum
til að binda þau saman. Slangan var ekki látin ganga saman. Skilsköftin
voru svo höfð neðan við "strekkingarslána" og eins og áður er
sagt voru þau færð til eftir því sem vefurinn gekk áfram. Að rétta
í höföld: Verkið var kallað að rétta í höföld og líka kallað að draga
í höföld. Við það unnu æfinlega 2 saman, annar til að rétta og hinn
til að taka á móti þræðinum. Sá sem dró í gegn tók fyrst part af
höföldunum og hélt þeim í greip sinni uns sá partur var búinn og þannig
koll af kolli. Þræðir voru taldir og þráðarendar svo hnýttir í lykkju
þegar komnir voru 50 eða 100 þræðir. Að rétta í skeið, eða að draga
í skeið: Áhaldið sem notað var við að draga í skeið nefndist "gikkur".
Það var úr tré flatt og breitt með krók á enda. Tveir unnu
við að draga í skeið. Skeiðin var höfð flöt og bundin í báða enda
upp í höföldin. En á eftir var hún sett föst í skeiðarskaftið eða
slagborðið eins og það var kallað. "Framhnýtingarskaft"
var það kallað sem uppistaðan var hnýtt fram í eftir að búið var að draga
í skeiðina. Bundið var í skaft með þremur snærum og voru þau kölluð
"krummaklær".
p7
Uppbinding: Þegar
uppistaðan hafði verið bundin við "framhnýtingarskaftið" þrem
snærum sem eins og áður er sagt voru kallaðar "krummaklær" þá
voru sett önnur snæri í skaftið og þau síðan vafin utanum rifinn á sama
hátt og voðin átti að vefjast, svo var hnýtt að, eða stundum dregið gegnum
göt sem voru í rifnum og þar bundinn hnútur svo snúrurnar ekki snérust
á rifnum. Þegar voðin var svo löng orðin að hún náði alveg yfir um
rifinn þá var losað um snærin og þau fjarlægð en "framhnýtingarskaftið"
fest í gróp á rifnum og svo voðin fest með því að strekkja á henni með
handfangi sem var á rifendanum (algengast var að kalla rifinn bómu).
Að draga fyrir: Byrjun á vefnaði var það að stigið var á fótskammelin
eins og vera bar eftir tegund voðarinnar, og fengið fyrsta skil þá var
skyttunni skotið í gegnum skilið og meðan fyrstu umferðir á ívafinu voru
dregnar í gegn var farið mjög gætilega með hvern þráð og aðeins þrýst að
með slagborðinu. Það var kallað "að draga fyrir". Það
var mismunandi langt "gefið upp í". Ívafið var gefið fyrir
í einum stórum boga. Hald var á slagborðinu sem gripið var í og slegið
nokkuð fast strax og eitthvað var búið af voðinni. Spanstokkur var
eins og áður segir meir kölluð "spjálk" hún var stöðugt færð
til eftir því sem voðin lengdist og helst höfð sem næst skilinu. Ef
voð hélt ekki fullri breidd, var sagt að það væri of lítið "gefið
upp í" og "það vefst inn". Ef dregið hafði verið
vitlaust í hafald þá varð skilið ekki hreint og var það kallað "staurar"
væru í skilinu. Hver einstök vinding voðar upp á bómu var kölluð
"færa" eða "áfæra". Verkið var nefnt "að
bóma".
p8
Að fella vef:
Þegar vefnaði á voð var lokið, og hún tekin úr vefstól þá var það kallað
"að fella vefinn". Þráðarendarnir nefndust "neðanafgangar".
Einstöku kölluðu það "krummafætur". Þessir þráðarendar
voru oft notaðir sem þræðing við fatasaum, viðgerð á sokkum o.fl.
Þóf: Vatn var hitað í stærstu tegund af potti sem til var á heimilinu
og þegar það var snarpheitt, þá var voðin látin í þvottabala og vatninu
hellt þar á hana. Voðin var undin þannig að tveir menn oftast karlar höfðu
sitt prikið hvor vöfðu endunum á voðinni um sitt hvort prik og svo var
snúið upp á eftir því sem þurfa þótti til að ná vatninu úr voðinni. Sjálfsagt
var talið að vinda úr voðinn í fjósi svo vatnið rinni í flórinn. Annars
var það úti ef veður var gott, en æfinlega voru höfð borð undir svo voðin
yrði ekki óhrein. Þæfingu önnuðust karlmenn æfinlega það ég vissi
til. Þeir voru staðsettir í baðstofum helst við rúmgafl öðrumegin
og með borð hinumegin, handa þeim að halda höndunum í. Æfinlega var
þæft undir fótum á palli,(þó sá ég menn hafa hurð undir þófi). Þófarar
voru aðeins í nærbuxum og skyrtu og héldu svo vel áfram að þeir voru æfinlega
kófsveittir. Oftast var voðin aðgætt einu sinni eða tvisvar meðan
á þófinu stóð. þá var voðin strekkt til að slétta út allar brigður sem
höfðu myndast í henni.
Þófarar fengu æfinlega
aukakaffi með lummum, eða öðru kaffibrauði. Þegar þæfingu var lokið var
venja að vinda hana upp á þar til gerða fjöl gerðu það 2 menn, annar hafði
fjölina og vatt en hinn sat á móti honum og hélt voðinni beint fyrir. Þegar
búið var að vinda upp á fjölina var tekin önnur fjöl samsorta, og nú var
undið upp á hana af hinni og haldið verulega fast á móti. Það sem
hér hefur sagt verið gilti mest um einskeftu og efni í nærföt.
p9
Útdráttur úr heimilisiðnaðarþáttum
úr "Hlín" 1925-1945.
1925. Vefnaðarnámskeið
voru haldin á Eiðum, í Vopnafirði og í Mjóanesi 1928. Um það hve
hægt sé að vefa margar álnir á dag í hraðskyttuvefstól er ekki hægt að
gefa sígilt svar, því afkastasemi í vefnaði fer eftir ötulleik og atgerfi
þess sem verkið vinnur, en afburða vefarar munu geta ofið eina alin á 10
mínútum. Vefstólar sem notaðir hafa verið frá því er sögur hófust
og til loka 18.aldar eru kljásteina vefstólar, (kallaðuríslenski vefstólinn).
Með Innréttingum Skúla fógeta koma fullkomnari vefstólar (svokallaður
danskur vefstóll). Til Austurlands komu þeir með Jóni vefara, sem
var einn af 4 Ísl. sem Danakonungur bauð utan til verklegs náms um 1800.
(af Jóni er mikill ættbálkur á Austurlandi "vefaraætt").
Steinavefstóllinn var mjög einfalt verkfæri. Uppistaðan (garnið)
lá lóðrétt, í hvern þráð voru bundnir steinar (kljásteinar) til að halda
þráðunum strengdum. Skilið var myndað með skafti sem var smeygt inn
þannig að annarhvor þráður lá fram fyrir það en hinn aftur fyrir. Hitt
skilið var gert um leið og ofið var með því að draga fram með hendinni
þráð fyrir þráð. Seinna voru notuð ófullkomin höföld, fest á skaft
og aðeins þræddir í þau þeir þræðir sem lágu bak við skilskaftið. Gamli
vefstóllinn er enn notaður við myndvefnað með nokkrum breytingum. Nú
er ívafinu ýtt niður í skilið, en áður var ofið neðan frá og upp. Þessi
vefstóll tekur mjög lítið rúm og hefur þann kost að hægt er að sjá uppdráttinn,
(myndina) á bak við uppistöðuþræðina. Íslenski spjaldvefnaðurinn
er gullfallegur, og að því er virðist frumlegastur og fegurstur af bandvefnaði
Norðurlanda.
p10
Nokkur aftriði um
vefnað og vefstól upptekið úr "Hlín": Vefstólar eru fáanlegir
frá Danmörku með sæmilegu verði kr. 200-250 tvíbreiðir, dável sterkir vandaðir
að efni og smíði. (Það mun verða lagt allt kapp á að fá vefstóla
smíðaða hér á landi svo fljótt sem unnt er). Vefjarskeiðar kosta
um 20 kr. Skyttur norskar ágætar kosta 4-5 kr. Spólurokkar
12-15 krónur. Garnvindur hafa verið fáanlegar fyrir 10-12 kr. Vefstóla
og önnur verfjaráhöld útvegar Heimilisiðnaðarfélag Norðurlands. (Úr
4.árg. Hlínar 1920)
Handklæðadregill:
Krossarnir sýna uppbindingu úr skammelum í höföld. Uppistaðan óbleiktur
tvistur nr.16-20 skeið 70-80 á 10 sm. Einn þráður í hafald tveir
í tönn. Það eru vinsamleg tilmæli Hlínar að góðir vefarar sendi
henni lýsingu á inndrætti í höföld, stigi og uppbindingu á skammelum á
vefnaði sínum. Það þarf að fara að safna drögum til íslenskrar vefnaðarbókar.
(úr Hlín 7.árg. 1923)
Vefnaðarnánskeið:
Félagið fékk lánaða vefstóla af ýmsum bæjum því það sá sér ekki fært
að kaupa nýja sem hefði þó verið ákjósanlegt. En nokkuð var keyft
af nýjum áhöldum svo sem vefjarskeiðar o.fl. Margir létu sér fátt
um finnast þegar þeir sáu þessa vefstólagarma. En þegar menn sáu
vefnaðinn á námskeiðinu þá breyttist skoðun þeirra. Það sem þarna
var ofið stóðst fyllilega samanburð við samskonar erlenda muni. (Úr
Hín 8.árg. 1924. )(vefstólarnir voru 7).
Eftir nýár var vorullin
borin inn og farið að vinna hana í vaðmál. Faðir minn var góður vefari
og óf síðari hluta vetrar fyrir sig og sveitunga sína fram á vor oft um
4-500 álnir yfir tímann. Mitt hlutvertk var að rétta þræði balbína
og spóla. Mjög voru þræðir misjafnir og tafði vefnaðinn ef illa var
spunnið. (Úr Hlín 10.árg.)
Nr. 7645
p1
Ull og tóvinna 3.
Þessari skrá er þið sendið mér nú, er fljótsvarað, því á mínu heimili,
var enginn vefstóll til. Fyrst þegar ég fer að muna, er ég man vel
eftir mér 4 ára, og jafnvel fyrr. En ég man það svo vel að bræður
mínir, sem upp komust voru mikið eldri en ég, áttu buxur úr heimaofnu vaðmáli,sem
móðir mín hafði ofið. En hún hafði kunnað bæði vaðmálsvefnað, einskeftu
og líka klæðisvefnað, og man ég að hún átti peysuföt sem hún hafði ofið
í sjálf, með klæðisvefnaði, og saumaði hún þau líka sjálf að öllu leyti
í höndunum, því þá átti hún enga saumavél. Þóttu þau vera listaverk.
En vefstóllinn lét mamma í burtu þegar hún varð ekkja eða skömmu
eftir að ég fæddist. Því bæði var, að þá hafði hún engan tíma til
að vefa, og svo var þá farið að hætta að vefa heima á flestum heimilum,
og allstaðar þegar ég fór að fara nokkuð á bæi. Ég sá því aldrei
vefstól, og get ekki lýst þeim á nokkurn hátt, hvað þá teiknað. Þegar
ég fer nokkuð að stálpast, fóru að koma prjónavélar mjög víða, bæði hringprjónavélar
(sokkavélar) og líka stærri vélar, sem prjónað var á nærföt og peysur,
en efni í ytri föt, karlmannaföt, var þá allt keypt í búðum. Þá fóru
líka margir að senda ull til norskra verksmiðja, til að fá reglulega fín
efni í spariföt. Þótti það mikið fallegri voðir en þær sem íslenskar
verksmiðjur unnu. Man ég til dæmis að mamma sendi mjög vandaða ull
til Noregs árið áður en ég fermdist og fékk hún úr henni ljósgrænt klæði
afar fallegt sem
p2
var notað í fermingarkjól
á mig. Eftirfermingarkjól, sem kallað var. Var hann mjög fallegur,
mikið útsaumaður og átt ég hann lengi. Þegar ég var krakki, voru
svo miklar vegalengdir í Vopnafirði, að maður ferðaðist svo lítið, fyrr
en ég var farin mikið að stálpast, en þá held ég, að mér sé óhætt að fullyrða,
að hvergi hafi verið ofið heima. Og hafa þá vefstólar, ef einhversstaðar
verið til, verið geymdir í ruslakompum, og ekki verið hafðir á glámbekk.
Ég heyrði talað um aþð að oftast hafi það verið húsbóndinn eða húsfreyjan,
sem ófu fyrir sín heimili, en stundum muni þó vinnukona eða vinnumaður
á heimilinu hafa haft þetta starf með höndum. Líka heyrði ég talað um að
einstöku menn eða konur, þó oftast karlmenn, hafi haft atvinnu af að fara
á milli bæja og vefa fyrir fólk. En ekki man ég að ég heyrði um nokkurn
sérstakan kauptaxta fyrir það verk. Alltaf heyrði ég, að það hefði
verið siður á meðan allt var ofið á heimilunum, að setja upp vef strax
oð afloknum hauststörfum, og lögð áhersla á að ljúka þeim vef sem fyrst.
Var byrjað á fyrir jól, að hausti, fella vefinn fyrir jól, og eins
að ljúka öllum vefnaði fyrir síðasta vetrardag. Það heyrði ég talað
um að vanalegt hefði verið að sá eða sú, sem óf hefði alltaf aðeins setið
við það milli mála. Ekki get ég sagt um hvað þóttu góð afköst í vefnaði,
en að sjálfsögðu fór það víst mikið eftir hvaða gerð vefnaðar var ofin.
Ég heyrði talað um að það hefði verið mikið seinlegra að vefa ..vefnað,
salonsvefnað, t.d., heldur en vaðmálsvefnað eða klæðisvefnað. En
ákveðin greiðsla held ég
p3
að ekki hafi verið
algeng, en aðeins farið eftir rausn og höfðingsskap þess, sem unnið var
fyrir. Þó má vel vera að svo hafi verið sumsstaðar.
Börn byrjuðu víst stundum að vefa strax um fermingaraldur, og jafnvel fyrr
stundum. Þeir sem höfðu atvinnu af því að vefa fóru víst oftast á
milli bæja, en tóku ekki heim til sín nema kannske í örfáum tilfellum.
Vefstað heyrði ég stundum kallaða vefstaði. Þó oftar vefstól. Víst
heyrði ég talað um gömlu vefstólana, kljásteinsvefstólana. En auðvitað
sá ég þá aldrei, en heyrði að mikil framför hefði það verið talin, þegar
hinir vefstólarnir hefðu komið. Ég hef heyrt sagt að kljásteinsvefstólar
hafi verið til á einstaka bæ fram yfir miðja 19. öld. Veit samt engar
sönnur á því, en er þó ekki grunlaus um að svo hafi verið sumsstaðar. Það
voru margir fastheldnir í það gamla fyrr á tímum. Hvort einstakir
hlutar slíkra vefstóla er ennþá til, veit ég ekki, en býst þó ekki við
að svo sé. Ég hygg að hraðskyttuvefstólar hafi verið alsstaðar á
seinni hluta síðustu aldar, og allt þar til heimavefnaður lagðist niður.
Veit það þó ekki með vissu, því eins og ég hef sagt, sá ég aldrei
vefstól.
Vefjarskeiðar heyrði
ég talað um að stundum hefðu verið heimasmíðaðar, vor þær víst aðallega
úr hvalskíðum eða harðviði. Við stærð vefjarskeiða var víst miðuð
tannafjölda í ákveðinni lengd, kvartel. Ég heyrði talað um bæði 80
tanna skeið og 60 tanna. En auðvitað veit ég ekkert um þetta, nema
það sem ég heyrði menn tala um, bæði mömmu mína, og svo aðra.
p4
Það heyrði ég, að
ekki höfðu öll heimili átt vefstól, og hefðu menn þá stundum lánað vefstól
þeim sem engan áttu. Vefjarskeiðar heyrði ég að hefðu vanalega verið
um 5 kvartel. Spóluteinninn í skyttunni heyrði ég að var oftast nefndur
níll. Tréspólur heyrði ég, að hefðu verið vanalega renndar, ef þær
voru úr tré. Fiskroð heyrði ég aldrei talað um að hefði verið notað
til að spóla á, en ég veit svo lítið um allt þetta efni, að það er ekki
að marka. Ég heyrði mömmu stundum tala um, ef eitthvert dálítið vandasamt
verk, að það þyrfti að reikna það út eins og að reikna út í vef. Ég
heyrði oft talað um uppistöður í vef og heyrði það ýmist kallað uppistöðu
eða varp. En ívafið aðeins ívaf eða fyrirvaf. Áhaldið sem uppistaðan
var rakin á heyrði ég kallaða rakgrind. En tréð sem skilhælar voru
festir á var víst kallað hælatré. Og ég býst við að rakningsgrindur
hafi verið til alsstaðar, þar sem vefstólar voru til. Veit það þó
ekki með vissu, því eins og ég hef sagt, þá veit ég svo lítið um þetta
efni. Já, vel á minnst, þið spyrjið hvað börn hafi verið gömul þegar farið
var að láta þau hjálpa til við vefnað. Þau voru víst oft mjög ung,
þegar þau voru látin fara að rétta í höföld, sem kallað var. Til
dæmis man Friðrik, bróðir minn, sem er nærri 5 árum eldri en ég, eftir
því að hann var látinn rétta í höföld, en það er líka allt og sumt, sem
ég veit um það mál.
p5
Rakningsstokka hef
ég heyrt talað um. Voru þeir með hnyklahólfum, hef ég heyrt talað
um, og voru þeir víst til á flestum heimilum. Þeir voru víst víða
kallaðir hólfakassar. Hvaða ílát voru notuð, ef þeir voru ekki til,
veit ég ekki. Ég heyrði talað um að sumsstaðar hafi verið rakið á
rúmstólpum í baðstofum. Þeir voru þá úr renndu tré. .... hugsa
ég að aldrei hafi verið rakið. Eða ég heyrði aldrei talað um það.
Líka heyrði ég að stundum hefði verið rakið á veggjarhæla, en ég
veit ekkert um hvernig þeir voru. Hafaldaefni mun oftast hafa verið
unnið heima. Var það víst oftast unnið úr togi, og var hann soðinn
í tólg, til að gjöra hann snöggan. Ég heyrði aldrei að hann hefði
verð sviðinn, en það má samt vel vera að það hafi stundum verið gjört.
Að draga í höföld og skeið var víst víðast kallað að festa upp vef.
Það var kallað hafaldakambur, áhaldið sem notað var til að halda
höföldunum stöðugum. Þegar voðin var búin, var það kallað að fella
vefinn. Þráðarendar sem af gengu, heyrði ég kallaða afvikur, en þó
oftar hrafnabuxur. En ekki veit ég hvað var gert við þá. Þá
hætti ég, veit hvort sem ekkert um þetta efni. En ef til vill gæti
ég svarað einhverju örðu, ef um væri spurt. En þá er listinn búinn.
Er listann hef ég lokið við - ég löngum best það finn - að ótalmargt ég
ósagt hef - en ekki meira um sinn. Annars á ég afar bágt
með að skrifa, og ætti því ekki að vera að bjóða að skrifa meira. Sigurlaug
Guðmundsd.
Nr. 1252
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Það mun hafa verið nokkuð misjafnt hvenær vefnaður
hófst eða byrjaði að hausti, en á stærri heimilum, þar sem mikið var ofið,
byrjaði hann í nóvember eða desember. Þar sem ég gerði lítið annað
en vefa á veturna, frá því ég var 15-22 ára eða var ekki annað verk ætlað,
sem og
p2
var furðu nóg, mun
ég miða við það starf mitt hér í þessum svörum. Hér á Laugarvatni,
var mannmargt heimili á mínum uppvaxtarárum, 20 manns og þar yfir, og allt
unnið heima í öll föt, bæði yst og utast, þurfti mikið að vefa. Þetta
frá 150-300 álnir og helst vera búin að ljúka öllum vefnaði fyrir vertíðarbyrjun,
seint á þorra eða þorralok. Þótti því nauðsyn vara á því að búið
væri að vefa 1-2 voðir fyrir jól. Vefnaður var sóttur af miklu kappi,
engu minni en um slátt, og var erftt verk
p3
ef ofið var af kappi.
Eins og áður er sagt var byrjað að vefa í nóv. og des. Vanalega
var byrjað á því að setja upp "garnvoð". Fyrir þráð var
hvítt eða mislitt útlent vefjargarn 40-50 álna ..... og oftast þá konur
við að spinna veftinn. Oft var búið að vefa 1 voð fyrir jól og stundum
2. Óðara en voðin var laus úr vefstaðnum, var önnur sett upp, þó
ekki á sjálfan jóladaginn eða annan. Ég hafði þetta verk, hér á Laugarvatni,
sem áður er sagt. Í vestaðinn var maður sestur kl. 6 að morgni og
ofið hvíldarlaust til kl. 10 á kvöldin, nema 1/2 klst. hvíld í rökkri og
matartíma.
Til var það að góðir
vefarar ófu víðar en á einum bæ. Verkkaup var frá 15 aurum til 25
aura á alin, eftir því hvað ofið var. Væri það lausamenn eða lausakonur,
mun það oft hafa tekið í kaup, efni í góða flík.
p4
Vefstóll, vefstaður:
Ég þekki ekki nema 2 tegundir af vefstólum, og sá mismunur á þeim
var aðallega fólginn í rifstæðunum. Önnur tegundin var með báða rifina
að neðan á hliðunum, en á öðrum var afturrifurinn að ofan á hliðinni, og
kunni ég betur við það lag, var hægara að færa fram á þaim. Ég þekkti
ekki tvíbreiða vefstaði, og óf ekki á þeim, þótt til væru á stöku stöðum,
og kljásteinavefstaði sá ég aldrei, nema á safni, að mig minnir. Þeir
sem áttu ekki vefstól, fengu þá lánaða eða fengu að vefa á öðrum bæjum.
Ég keypti 1 vefstól þegar ég fór að búa og kostaði kr. 40.00. Hann
smíðaði Halldór Bjarnason, kenndur við Hagavöll í Grímsnesi, sem var ágætur
smiður. Sá vefstaður var sá minnsti, sem ég sá og ákaflega hægur,
enda hvergi einni tommu ofstór né of lítill. Skeið: Skeið
eða ritti, sen hún var alltaf kölluð
p5
Rittin voru yfirleitt
útlend, þó munu sum ritti hafa verið íslensk smíði. Látúnsritti þóttu
betri, því þau ryðguðu ekki og voru liprari. 3 tegundir voru hér
til, 80, 70 og 60 tanna á 1/5 alin. Var 80 tanna ritti notað á garn,
70 á fínan þráð, en 60 á grófan þráð. Vefskytta, skytta:
Skyttur voru misjafnar að gerð og afar misjafnar að gæðum. Yfirleitt
voru þeir smíðaðir úr eik, brenni, og birki. Látúnsfjaðrir voru á þeim
að neðan og fyrir endum. Sumar skyttur voru bognar til beggja enda,
aðrar beinar. Þær þóttu mér betri, en hver vefari kunni best við
sömu skyttu og sama lag á þeim, líkt og sama orfið eða árina. Það
kom mikið undir vana sem allt fleirra. í skyttunni var spóluteinn,
sem spólunni var smeygt upp á. Ég vandist einungis blikk spólum,
þorskroðum, spóluroðum eða spelaspólum, búið til úr spelum. Tréspólur þekkti
ég ekki.
p6
Spólurokkur: Spólurokkar
voru ýmist gamlir spunarokkar eða þá smíðaðir einungis til þess að spóla
á þá, voru þeir ósköp einfaldir. Í spólurokkum var sérstakur spóluteinn
og trissa í afturstuðli, svo og vanalegt rokkhjól og sveig. En þegar
notaðir voru gamlir rokkar var teinn notaður fyrir snældubúning.
Spanstokkur: Hann var vanalega úr góðviði og settur saman
þannig, að annar helmingur hans var klofinn eftir miðju, en hinn helmingurinn
gekk upp í hann og voru gataðir svo að hægt var að lengja þá og stytta
eftir breidd voðarinnar í hvorum enda voru járngaddar til að stinga í jaðrana.
Að leggja upp: Vanalega var allur þráður og enda allt vefjargarn
undið upp á sauðarvölur. Minnir mig að 16 sauðarvölur væru raktar
p7
úr mörkinni, sem
alltaf voru dregnar frá þegar voðarefnið var vigtað. Allur þráður og garn
var vigtaður. Af garni var lagt upp í vaðmálnir úr pundinu, en af
þræði 2-3 álnir úr mörkinni, eftir því hvað þráðurinn var smár. Stundum
2 1/4 alin 2 1/2 .... osfrv. Vanir vefarar og spunakonur voru afar
glögg á þetta, ef of mikið var lagt upp, þá spunnu konurnar í snatri, það
sem á vantaði. Þetta var kallað 2 álna 2 1/2 álna þráður osfrv. Völurnar
voru alltaf kallaðar þráðarvölur, sem húsmóðirin geymdi alltaf sjálf árum
saman og skiftu hundruðum. Að reikna út í skeið: Vefarar
voru alvanir þessum reikningi og feilaði ekki nema erkiklaufum, sem kallað
var, en það var líka hábölvað, ef vantaði kannske 100 bil að næði út í
skeið eða 100 var afgangs. Þá varð að draga allt út. Ef að
þráðarvoð átti að ná út á skeið 1 1/4 alin á 60 tanna ritti, sem 300 tannir
p8
og 3 áttu að vera
í tönn, t.d. á vormeldúk, þurfti að vera raktir 900 þræðir til þess að
þetta passaði. Og þaðan af minna sem færri áttu að vera í tönn eða
voðin mjórri. Sami var útreikningurinn, ef um vefjargarn var að ræða,
ef 80 tanna ritti var brúkað, sem sjálfsagt var, þurfti 12 hundrað þræði
út í skeið, ef 3 voru í tönn osfrv. Það mátti ekki feila að rétt
væri reiknað. Það var strax að vita hvort voðin átti að vera varplítil
eða ekki. Að reikna út í vef: Uppistaða var þráður
eða vefjargarn ívafið var veftur. Én man ekki eftir öðrum nöfnum
á vanalegum voðum, en svo var salún, sem stundum var haft í ábreiður ofl.
Rakningsgrind: Var fjórörmuð með okum ofan og neðan,
tittar stóðu upp úr henni, sem gekk upp í bita á húsinu, sem rakið var
í og ......
p9
sem gekk ofan í stein
niður í gólf. Krísholt voru 2, annað efst annað neðst, sem gerði
skilið á voðina á krísholtinu voru 2 hælar með 6 tommu millibili. Rakningsgrind
var víðast til, þar sem vefstóll var. Balbínur, balbínustóll:
Þetta áhald þekki ég ekki, nema það sé sama áhaldið og þekkti og
var kölluð rakningskista. Hún var með 10 rakningshólf og var lykkja
um látúnsvír í hverjum barmi, í hverju hólfi var eitt hnoða, og þráðurinn
dreginn í lykkjuna. Þetta var kallað að rekja á 10.
Ég notaði aldrei
rakningssoaða, þurfti hans ekki þegar ég hafði reikningskistu. Þau
gerðu sama gang að maður sá strax, ef endi slitnaði og þurfti að bæta.
Rakningsstokkur: Ef rakningskista var til, sem var
hólfuð í eins mörg hvolf og rakið var á mörgum, þurfti ekki ílát fyrir
hnykla, en annars
p10
notaðar skálar, stokkar,
askar ofl. Rakning á rakningsgrind: Rakningsgrindin
var sett upp í stofu eða baðstofu undir bita sem áður er lýst. Við
rakning unnu aðeins vefarinn og unglingur, sem fylgdist með, ef slitnaði
þráður eða bæta var við nýjum knekki. Lengd voðarinnar var mæld með
alinmáli. Einn þráður 20-50 álnir eftir því sem voðin átti að vera
löng. Var hnýtt á þráðinn eða slaufa sett á hann og réði hann svo
því hvað voðin átti að vera löng. Ef rakið var á t.d. 10, var það
feti sem svo var skift um á krísholtinu og gerði skilip. Í hafaldi
var aldrei meira en 1 þráður. Ef þráður var mjög snar, var höfð hrossvala
á fetanum, til að jafna þráðinn. Á henni var gat. Skilið myndaðist
á krísholtinu, þráðaskil. Þráðaskilin mynduðust jafnt á báðum krísholtum.
Ein umferð á
p11
grindinni var feti
skilið kom á krísholtinu, sem var tvíhælað að fetinn var settur fyrst ofan
á annan hældinn og niður á tönn um leið og grindinni var snúið við, sama
var gert á neðri hælnum. Fyrsti fetinn var kallað að setja upp á
grind. Það var alltaf rakið niður undan fyrsta fetanum og sömuleiðis
upp eftir, en aldrei ..... utan yfir annað. Merki var sett á krísholtin
við hvert 100. Fullrakið í voð nefndist slanga. Þegar búið
var að rekja voðina var bundið í skilið á efri hælum og slangan svo rakin
niður grindina í nokkurskonar fléttu, og svo bundið í skilið eins á neðri
hælum krísholtsins. Þegar rakin var tvílit eða þrílit voð, voru litirnir
allir raktir undireins, aðeins sorterðir úr fetanum þegar rétt var í höföld
og skeið. Ég þekki ekki aðra skilhæla en krísholtin, sem alltaf voru
höfð á rakningsgrind. Aldrei vissi ég til að rakið væri
p12
á rúmstólpa annað
en uppistöðu í sökkabönd eða axlabönd. Hafaldagrind, hún
var vanalega höfð jafnbreið og höföldin áttu að vera löng með einum titt
í smiðjunni nátulega sverum sem hnýtt var beggja vegna að og myndaði augað
á hafaldinu. Hafaldaefni og höföld: Efni í höföld var
annaðhvort úr mjög góðu togi eða seglgarni. Í höföldin var rakið
á hafaldagrindinni, þvert yfir neðri enda hennar eða kjálka, sem var það
lengri en braiddin á grindinni, sem því nam, að fór í hnútana. Síðan
var skorið í sundur á öðrum okanum og myndaðist þá hinn rétti þráður, sem
hafaldið var hnýtt úr. Hafaldinu var jafnað saman að lengd og brugðið
um annan aðalhældinn og svo hnýttir 2 hnútar sitt hvoru megin við miðhælinn,
sem mynduðu augað og svo hnýtt á hinn hælinn.
p13
Stálaugu fengust,
sem hnýtt var í frá báðum endum, en þau notaði ég aldrei. Það voru
göt á endum hafaldaskaftanna, sem dregin var seglgarnsþráður og og bundin
í hinn enda skaftsins, og varnaði því að höföldin gætu farið út af.
Vefjarkambur: Voru 2 kjálkar rúm 5 kvartel í neðri kjálkann
voru boruð allt að 80-100 göt, sem smíðaðir tittar voru reknir í, síðan
var efri kjálkinn settur yfir, hann var vanalega aðeins grópaður að endilöngu.
Þeir voru settir saman til endanna. Þegar voð var svo sett í kambinn,
var efri kjálkinn tekinn af og fetarnir svo settir á milli tittanna í neðri
komin, jafnmargir milli hvers titts og svo efri kjálkinn settur yfir, gekk
vo öll voðin milli þessarra tinda, þar til búið var að bóma upp.
Sköftin sem voru
sett í skilið hétu skilsköft og skilþráður.
p14
Að festa upp: Allt
sem getið er um í þessarri grein var kallað að setja til voð.
Að bóma vef: Að bóma upp voð. Í afturrifnum var gróp eftir
honum endilöngum, sem plógskaftið var fellt ofan í. Við báða enda
þess voru kragar, sem féllu á rifin til beggja enda og vörnuðu þess að
voðin færi útaf. Þegar bómað var, hélt vefarinn jafnt um slönguna
þegar búið var að setja endaskaftið í aftur eða rifinn, en annar maður
vatt upp á rifinn. Ekki þurfti fleirri til að bóma upp. Þegar búið
var að vinda voðina alla upp á rifinn, voru skilsköftin sett í skilið og
þá tilbúið til að draga í höföld. Hafaldakamburinn var hafður á voðinni
meðan bómað var upp á rifinn, en nú var til þess að alltaf færi jafnbreitt
p15
upp á rifinn, þá
var hann tekinn af. Þegar dregið var í höföld, hélt vefarinn æfinlega
í greip sinni 20-30 höföldum af hverju skafti, og tók við 1 þræði í einu
af þeim sem rétti, og byrjaði að telja í huganum þannig: aftasta,fremsta,
fremra mið aftara mið og svo áfram, ef í vaðmál var dregið og gekk þetta
svo áfram uns búið var að draga í höföldin. Vönun vefara fipaðist
þetta aldrei, þótt hann væri alltaf að masa um annað. Að draga
í skeið: Vefarinn dró í skeiðina með "skeiðarkrók". Ég
hafði til þess flatan járnkrók, sem hafði sorfið hak á báðum endum, mjórri
til að draga í höföldin, en breiðari til að draga í skeið. Sá sem
rétti tók fetana eftir röð og rétti 2-3 enda í einu sitt á hvað eftir því
hvað margir áttu að vera í tönn. Framan við skeiðina voru settir
hnútar og eins framan við höföld. Að hnýta fram: Það var hnýtt
fram, það var gert á skaft
p16
eða járntein sterkan.
Þetta var kallað að hnýta fram, framhnýtingarskaftið var bundið fast
með snúrum, sem festar voru vel á framrifinn. Ef voðin átti að vera
vel veftug, var gefið í meir, stærri boginn osfrv. Milli hvers þráðar
var slegið vænt högg með slagborðinu. Spannstokk hef
ég lýst áður, hann var jafnlangur og voðin var breið. Ef ekki hélst
full breidd var talið að oflítið væri gefið í. Álnarmál:
Það var alltaf haft í voðinni og fært til þegar alin var komin.
Allir vildu hafa góð skil, og var vont úr því að bæta. Kom
það helst til ef illa var rétt í höföld. Hver færa var svo út af
fyrir sig, vanalega 1/4 alin. Þegar búið var að vefa voð,
var hún klippt frá. Það sem eftir var voru afvikur, annað nafn þekki
ég ekki. Þær notuðu konur til að stagla í með. Þetta hét að fella
voð. Þóf: Þegar átti að þæfa voð, stóð mikið til. Settur
var á hlóð helvita mikill pottur
p17
fullur af hlandi
og vatni -þvæli-, sem voðin var þvæld og þvegin í, síðan var hún sett og
rakin á járnkarl, sem var settur þversum í bæjardyr og rakin tvöföld þar
til hún var jöfn. Þá var sett sterkt skaft í hinn endann, sem svo
þófarinn eða annar karlmaður stjórnaði, og snéri nú upp á í sífellu, þar
til fóru að koma á voðina hnútar, hver á eftir öðrum, þar til allt vatn
var undið úr henni.
Þar með var hún tekin
af járnkarlinum, og farið með hana glóðvolga út í fjósbás og látin á stóra
hurð, sem var höfð til að þæfa á. Síðan fór þófarinn úr öllum fötum
nema mittisskýlu eða nærbuxum og gilti það um hvort það var karl eða kona
. Svo hamaðist þófarinn á voðinni eins og bandvitlaus væri, allt
til þess að voðin var fullþæfð. Svitinn rann af þófara í boðaföllum.
Var svo hrist upp, það gerði annar maður með þófara.
Allir kunnu vísuna Bárður minn á jökli. Þófari fékk ævinlega
kaffi og lummur í fjós, en helviti stóra þófaraköku og stóra kæfusneið
í aukabita að lokum, og var það síst oflaunað fyrir verkið.
p18
Meira nenni ég nú
ekki að skrifa um þetta, þótt ég viti að það sé í alla staði ófullkomið.
Ég hef ekkert af pjötlum að senda. Svo bið ég ykkur
alla að forláta þetta riss. Býst ekki við að þið getið lesið það.
Með vinarkveðju Böðvar Magnússon.
Nr. 7572
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Það voru víða til vefstaðir, þegar ég man fyrst
eftir, og margir, sem kunnu að vefa. Heima hjá mér var vefstaður,
og mikið notaður. Voð var oft sett upp fyrir jól og þá reynt að vera
búinn að vefa hana fyrir hátíðar. Það tókst ekki alltaf, en oft.
Stundum var ekki byrjað að vefa fyrr en eftir áramót. Hvenær
byrjað var, fór eftir ýmsu. Hve fljótt var búið að spinna í voðina.
Stundum var bæði þráður og veftur spunnið heima, en stundum var garn
notað í uppistöðu. Ég man nú ekki hve margar voðir voru ofnar á hverjum
vetri, en aldrei færri en 2, oft 3 man ég. Pabbi óf oftast, en líka mamma,
og stundum aðrir eftir ástæðum. Sjaldan var setið við frá morgni
til kvölds, en ofið milli mála. Við krakkarnir vorum látin grípa
í að vefa, þegar við vorum komin nær fermingu, þegar einskefta var í vefstaðnum.
Hún var einföldust. Ég óf stundum dálítið og þótti það fyrna
leiðinlegt starf, og lagði mig ósköp lítið eftir vefnaði yfirleitt, svo
líklega verður þessi frásögn mín heldur ræfilsleg, en ég geri hvað ég get.
Ég man eftir einni konu, sem átti heima í nágrenni við heimili mitt.
Hún stundaði vefnað mikið að vetrinum, bæði tók hún voðir heim til
sín, og fór á bæi og óf. Hún var stundum heima að vefa og sat þá
við vefinn daginn út, þar til voðin var búin, en ekkert veit ég hvað hún
fékk í akup. Þessi kona hafði gaman af bókum og
p2
alveg sérstaklega
þótti henni gaman að Mannamun eftir Jón Mýrdal. Hún lét mig lesa
upphátt fyrir sig meðan hún óf. Ég var þá stelpa 11-12 ára. Það
var að lesa nokkuð hátt, svo hún gæti fylgst með. Hún kunni bókina
utan að, en hafði alltaf jafn gaman af henni og hló dátt að heimsku Vigfúsar.
Vefnaður ver ekki notaður til vöruskifta. Vefstóll-vefstaður:
Heima ver verkfærið nefnt vefstaður, og svo hefur verið í Árnessýslu
þegar ég var ung. Um kljásteinavefstaðinn veit ég ekkert. Hef
þó einhverntíma séð steina, sem notaðir voru í slíkan vefstað. Veit
ekkert um smíði vefstaða. Hef aldrei séð tvíbreiðan vefstað. Veit
ekkert um hraðskyttu vefstaði eða um við í vefstöðum. Þeir sem ekki
ófu sjálfir urðu að koma voðum sínum í vefnað annarsstaðar eða ef þeir
áttu vefstað, en ófu ekki sjálfir, urðu þeir að fá mann af bæ til að vefa.
Ég kannast best við vefstað B. Skeið: Skeiðið
hét ritti á mínu máli. Um smíði á ritti veit ég ekkert, en tennurnar
voru úr málmi, annaðhvort látúni eða járni. Rittin sem ég sá voru
af svipaðri stærð, en hver stærðin var veit ég ekki. Um tannafjölda
man ég ekkert.
p3
Vefskytta: Skyttan
var úr tré með koparplötum framan á endunum og slípaðar, hál að neðan.
Ég man ekki eftir öðru nafni á teininum sem spólan lék á en skyttuteinn.
Mig minnir að spólurnar væru úr þunnu blikki, og geymdust ár frá
ári. Aldrei notað fiskroð. Ekki man ég heldur eftir tréspólum,
en þunnur pappi var einstaka sinnum notaður, ef spólur vantaði.
Spólurokkur: Heima var notaður gamall rokkur, afdankaður spunarokkur,
notaður til að spóla á. Já útbúinn teinn í hann til að spóla á.
Spanstokkur: Áhaldið
var nefnt spanstokkur. Mig minnir þetta væri úr flatri spýtu ofulítið
breiðari en borðhnífsblað með þremur eða fjórum járnpinnum í hvorum enda,
til að festa í voðina. Að leggja upp: Mig minnir að
þetta væri kallað að reikna út. Mamma sá um þetta. Miðað var
við hve voðin átti að vera löng. En hvernig þetta var gert, man ég
alls ekkert eftir. Mér leiddist allt í sambandi við vefnað, og lagði
mig því miður ekkert eftir neinu viðkomandi vefnaði. Get þess vegna
lítið sagt af viti um þessi vefnaðarmál.
p4
Að reikna í skeið:
Mig minnir að þetta væri kallað að reikna út breidd voðarinnar, ef
þræðir urðu færri en rittið tók, varð voðin mjórri, og varð þá að ganga
af rittinu beggja megin, en að talað væri um að voðin væri varplítil, hef
ég aldrei heyrt. Ég man aldrei eftir öðru en allir útreikningar stæður,
heyrði aldrei talað um annað. Að reikna í vef: Mig
minnir þetta væri nefnt að reikna út í voð. Ég man nú ekki hvernig
þetta var gert. Uppistaða í voð var nefnd uppistaða, en ívafið nefndist
veftur. Rakningsgrind: Áhaldið, sem uppistaða í voð
var rakin á var nefnt rakningsgrind. Ég man aðeins eftir grindinni,
sem notuð var heima, nokkuð stór. Tréð nefndist krísholt, grindin
stóð á fæti, sem gekk í gegnum tré neðst á grindinni, þegar rakið var,
var grindin spennt í sundur eins og vindutré. Hún snérist svo eins
og hjól á fætinum. Ég held að rakningsgrindur hafi ekki alsstaðar
verið til, þó vefstólar væru á heimilinu. Menn fengu þá lánaðar rakningsgrindur.
Balbínur balbínustóll. Ég man ekki eftir að snældur
nokkurskonar væru
p5
notaðar þegar rakið
var á grind. Balbínunafnið hef ég aldrei heyrt áður. Það var
rakið af hnyklum, sem hafðir voru í aflöngum kassa með loki, en göt á lokinu
fyrir þræðina. Einn þráður dreginn é gegnum hvert gat á lokinu. Mig
minnir að kassinn væri nefndur rakningskassi.
Rakningsspaði: Ég
man ekki eftir neinu áhaldi, sem notað var við að rekja á grind.
Rakningsstokkur: Ég hef áður sagt frá þeim. Hafa líklega
verið hólf í kassanum, þó ég muni það ekki. Rakning á rakningsgrind:
Rakningsgrindin var víðast sett upp í baðstofu, því víða voru engin
önnur herbergi til, sem hægt var að nota. Það unnu alltaf 2 við að rekja
stundum 3. Ég man ekkert hvernig lengd voðarinnar var mæld, en búið
var að ákveða lengdina þegar farið var að spinna þráðinn, uppistöðuna,
man ég var. Veit ekkert um rakningsspaða eins og ég sagði áður. Ég
man ekkert hvernig skilin voru tekin. Mig minnir að ein umferð á
grindinni væri aðeins nefnd umferð. Rakning fyrstu umferðar hét einfaldlega
að byrja að rekja eða fyrsta umferð. Ég man ekkert um hvernig þráðarskil
var tekið eða hvort fetaborð var notað, en orðið varptág hef ég aldrei
heyrt fyrr.
p6
Fullrakin uppistaða
var nefnd slanga. Ég man ekki hvernig gengið var frá skilunum, áður
en hún var tekin af grindinni. Ég man ekki til að neitt væri sagt
annað um að taka uppistöðuna af grindinni, en að taka ofan. Það var
alltaf gert ráð fyrir að uppistaðan þyrfti að vera dálítið lengri en voðin
átti að vera, en hve mikið man ég ekki. Rakið á veggjahæla:
Ég þekki ekkert til þess að rakið væri á veggjahæla, sá það aldrei
og heyrði aldrei um það talað. Rakið á rúmstólpa: Hef
aldrei séð né heyrt að rakið væri á rúmstólpa. Hafaldagrind:
Höföldin voru hnýtt á hafaldasköft, engar spýtur fyrir hliðunum.
Ég sá aldrei eða hef aldrei séð höföld hnýtt eða búin til. Þau
voru til heima þegar ég man fyrst eftir og alltaf notuð þau sömu meðan
vefnaður í heimahúsum var stundaður. Hafaldaefni: Efni
í höföldum þeim, sem ég þekkti, var gróft útlent garn, en ekki hart. Hef
aldrei séð höföld úr innlendu bandi eða þræði. Miðhluti afalda hét hafaldsauga.
Höföldin voru geymd í trékassa, sem látinn vr upp á loft þegar hætt
var að vefa að vorinu.
p7
Höföldin varð að
taka varlega saman. Þau voru vafin upp á annað skaftið, hitt skaftið
féll svo utan á vafninginn. Stálhöföld þekki ég ekki. Ég man
ekki eftir neinu nafni á bandinu, sem varnaði höföldunum að renna út af
sköftunum. Áreiðanlega var það hvorki nefnt vartág eða þan. Gæti
hafa verið nefnt varnarband, ég er þó ekki alveg viss. Vefjarkambur:
Ég man ekkert eftir neinu áhaldi, sem nefndist vefjarkambur. Hafi
það verið notað hefi ég alveg gleymt því. Að láta í kamb:
Skaftið í gangaskilin var nefnt rifskaft. Um annað viðvíkjandi
þessum kafla man ég ekkert. Að festa upp: Verkið við
að koma voðarefni í vefstað hét að setja upp voð eða setja í vefstað.
Að bóma vef: Að vinda upp slönguna á rifinn, hét að bóma.
Ég man ekki hvernig gengið var frá festingu fyrir rifskaftið. Ég
man ekki eftir að neitt væri haft á jöðrunum á slöngunni, þegar bómað var.
Við að bóma minnir mig að alltaf væru 3, 2 sitt hvoru megin við rifinn
og gættu þess að ekki færi of utarlega, annar vatt upp á
p8
bómuna, svo hélt
einn í slönguna og varð að toga mátuleg í, svo ekki kæmu snurður á þræðina.
Rifsköft voru notuð. Ég man ekkert hvernig frá þeim var gengið. Fremur
var slangan látin ganga að sér, heldur en hitt, þegar endað var að bóma,
en ekki var það nefnt að hálsa. Ég man ekki til það væri nefnt nokkuð
annað en að láta það gana að sér. Það var hnýtt á slönguendann með
stórri lykkju þegar búið var að bóma, sem svo var leyst upp þegar dregið
var í. Ég man ekkert um frágang á skilsköftum. Að draga í
höföld: Verkið hét einfaldlega að draga í höföldin. Hafaldasköftin
voru bundin föst. Tveir unnu verkið, annar dró í, hafði smákrók til
þess, hinn rétti þræðina. Þegar búið var að þræða í allmörg höföld,
voru þræðirnir, sem sá er dró í hélt í öðrum lófanum, teknir saman og hnýtt
á með lykkju, eins og á slöngunni,sem svo var leyst upp þegar dregið var
í rittið. Að draga í skeið: Það var svipuð aðferð að
draga í skeiðina eins og höföldin. Tveir við verkið, annar dró í
hinn rétti. Áhaldið var ýmist kallað krókur eða krækja. Skeiðin
bundin föst beggja megin meðan dregið var í. Að hnýta fram:
Mig minnir að skaftið væri kallað hnýtiskaft.
p9
Verkið við að hnýta
á skaftið var bara kallað að hnýta eða hnýta á skaftið. Ég man ekkert
um hvernig hnýting fór fram eða hvernig skaftið var fest.
Uppbinding: Man ekkert um uppbindingu eða vefstóls snærum eða hnútum
þar að lútandi. Að draga fyrir: Jú, það mun hafa verið
kallað að draga fyrir, þegar byrjað var að vefa. Ég skil ekki við
hvað er átt, þegar spurt er um hvort ívafið væri gefið í með einum stórum
boga eða mörgum smábogum. Skyttunni var einfaldlega skotið í gegnum
skilið, slegið að með rittinu og stigið á skilsköftin osfrv. Ég man
ekkert eftir að talað væri um hvort voðin væri vel bönduð eða ekki. En
upphnýtingin réði gerð og að nokkru mynstri vefnaðar. Voðin mátti
ekki ganga saman og til þess var spanstokkurinn, að halda henni út. Stundum
var mælt með tommustokk eða málbandi, til að vera viss um að voðin héldi
fullri breidd. Það kom fyrir bráðarslit, þá var lausi þráðurinn festur
í voðina aftur. Svo gátu komið skilgallar, ef stigið ar vitlaust
á skilsköftin. Það kom stundum fyrir hjá óvaningum, en sjaldan eða
aldrei hjá vönum vefurum. Ekki man ég eftirað talið væri það aðsókn,
þó þræðir slitnuðu meira í eitt skifti en annað.
p10
Hver einstök vinding
upp á bómuna var kallað umferð. Verkið var nefnt að bóma.
Að fella vef: Þegar búið var að vefa alla voðina, og hún tekin
úr vefstaðnum, hét það að fella voð. Þráðarendar, sem af gengu nefndir
afgangur. Ég man ekki til þess að þeir væru notaðir í neitt sérstakt,
eða yfirleitt hvað við þá var gert, en sjálfsagt hefa þeir eitthvað verið
nýttir. Í þá daga var allt nýtt, sem hægt var. Þóf:
Þegar þæfa átti voð, var vatn hitað í stórum pottpotti, sem notaður
var til að sjóða í þvott. Grænsápa hrærð út í vatnið í pottinum þegar
það var orðið mátulega heitt, voðin sett ofan í og hrært í dálitla stund.
Tekið upp úr og undið dálítið, borið út í fjós, alltaf var þæft í
fjósinu. Hitunin fór fram á hlóðunum, sem voru við útgöngudyr á eldhúsinu,
bakdyramegin. Úti í fjósi var hurð, sem áður var þvegin, látin flöt
í auðan bás. Þar ofan á var voðin lögð og karlmaður þæfði með því
að troða voðina undir fótum. Pabbi þæfði oft, en stundum vinnumaðurinn.
Þeir vörpuðu af sér öllum klæðum, sem hægt var velsæmisins vegna. Voru
venjulega í nærfötunum einum saman. Svitinn draup af þeim þrátt fyrir
léttan klæðnað. Manna aðgætti þófið við og við og sagði til um hvenær
búið var að fullþæfa. Svo var öðru hvoru hrist upp, þá var hrist
og togað
p11
líkt og þegar lak
er brotið saman. Tveir um verkið, en ekki var hægt að taka alla voðina
í einu, en haldið áfram þar til öll voðin var toguð og teygð, sem þurfa
þótti. Ég held að venjulega hafi þófarinn fengið aukakaffi og nýbakaðar
pönnukökur með. Ég veit ekkert um laun fyrir að þæfa voð, ef maður
var fenginn af bæ til að þæfa. Þegar búið var að þæfa þurfti að þurrka
voðina. Þegar búið var að þurrka, var voðin vafin upp á rúmfjöl,
síðan pressuð með því að láta farg ofan á allt saman. Ég man ekki
hve lengi þótti hæfilegt að hafa voðina undir pressunni. Ég man ekki
eftir að voð hafi verið send til lóskurðar heima hjá mér.
Vefjarsýnishorn: Því miður á ég ekki neitt af heimaofnu efni eða
nokkra flík úr heimaofnu.
Nr. 1485
p1
Ull og tóvinna 3.
Herra þjóðminjavörður Þór Magnússon. Um leið og ég þakka vinsamlegt
bréf frá yður forðum, og nú nýmóttekna jólakveðju, vildi ég óska yður til
hamingju með Þjóðminjavarðarembættið. Það hefur dregist úr
hömlu hjá mér að senda yður línu. Meðal annars vegna þess, að ég
fann að ég gat ekki gert nein viðunandi skil þessu efni er þér senduð mér
til úrlausnar, um vefnað og vefstóla, (vefstæði), en svo voru þeir oftar
nefndir í æsku minni á Stóra-Kroppi. Þótt vefstóll væri einnig algengt
mál. Ég hefi dálítið reynt að tala við menn, sem líklegastir
eru hér um slóðir til að geta leyst úr spurningum yðar, en hef ekki getað
náð þannig sambandi við þá, að ég hafi getað fest neitt á blað af fróðleik
frá þeim, og sjálfur er ég ekki svo viss í ýmsu af þessu, að ég leggi í
að setja neitt á blöðin. Ég held að það yrði ekki á marga fiska.
Ég vann nokkuð að vefnaði með föður mínu, er ég var unglingur, en
setti aldrei til voð uppá mitt eindæmi, þótt ég gripi oft í að vefa.
Teikningarnar af
vefstólunum eru báðar nokkuð mikið frábrugðnar þeim gerðum,
p2
sem ég hefi séð,
sem hafa verið mjög líkar hver annarri, og munu hafa verið smíðaðir af
þeim Birni Eggertssyni og Gísla Böðvarssyni, sem báður voru kunnir smiðir
á sinni tíð. Björn var faðir Þorbjarnar, sem í Ameríku tók
sér skáldheitið Þorskabítur. En Gísli var frá Skáney, sonur Böðvars
Sigurðssonar smiðs og bónda þar, sem mikill fjöldi fólks er frá kominn.
Báðir þessir vefstólasmiðir höfðu verið stórvirkir smiðir og hraustmenni.
Ég á einn vefstól, sem Björn hafði smíðað, og er nálega sama
gerð og vefstóll, sem faðir minn átti eftir Gísla. Nýlega
hitti ég mann, sem sagði mér, að ég skyldi vísa yður á frænda minn, sem
mun vera búsettur í Reykjavík, og gæti manna best leyst úr hverri spurningu
í sambandi við allt sem að vefnaði lyti. En því miður hef ég ekki
húsnúmer hans. Hann heitir Björn Jónsson, og hefur fegnist við ýmislegt.
Verið kennari við Blindraskólann, í stjórn Blindrafélagsins, í stjórn
Sjúkrasamlags Seltjarnarnesshr. Um skeið var hann ritstjóri Félagsrits
Kron og starfsm. ríkisstofnanna í Reykjavík. Ef unnt er að finna
manninn eftir þessum upplýsingum, er trúlegt að hann gæti veitt góð svör
við spurningunum. Hann er Borgfirðingur, fæddur í Síðumúla 1904.
Ég bið svo afsökunar á öllu þessu klúðri mínu. Með
bestu jóla- og nýjársóskum og kærri kveðju. Einar Kristleifsson.
Nr. 1271
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður hófst sjaldan fyrr en um miðjan vetur, og lokið fyrir sumarmál.
Þótti verra að fást við slíka vinnu í skammdeginu. Að sjálfsögðu
var byrjað á því verkefninu, sem mest lá á. Á flestum bæjum mun einhver
karl eða kona, hafa kunnað að vefa, og annaðist hann um vefnaðinn. Rakti,
setti, upp setti til, var það nú reyndar oftar kallað, og óf að mestu.
Sumsstaðar gripu þó fleirri heimamenn í að vefa, einkum unglingar. Þegar
búið var að setja vefinn til og allt komið í lag. Ekki veit ég hve
gömul börn voru þegar þau fóru að vefa. Man ekki einu sinni hve gamall
ég var, þégar ég byrjaði að fást við vefnað. Hafði svo mikið gaman
af því, og ég veit ekki nema ég hefði það enn. Man það eitt, að ég
var svo stuttur, að ég gat ekki setið í vefarabekknum. Varð að standa
og styðja rassinum við bekkinn, til þess að geta stigið sköftin. Sennilegt
þykir mér að börn hafi ekki verið yngri en 12 ára, er þau byrjuðu að vefa.
Hve lengi ofið var hvern daginn, fór eftir því, hve miklum
öðrum störfum vefarinn hafði að sinna. Væri afbæjarmaður fenginn
til að vefa, óf hann allan daginn, því önnur störf kölluðu ekki á hann.
Að sjálfsögðu voru afköst manna misjöfn við vefnað sem aðra vinnu.
En fleirra kom til greina. T.d. hvernig uppistaðan hélt (slitnaði
mikið eða lítið), hvort fyrirvafið var einlitt eða marglitt, svo og hve
gróf voðin var. Ég held að góð afköst hafi þótt 10-12 áln., við sæmilega
aðstöðu, 5-8 áln. var víst all algengt. Dæmi vissi ég til að stöku
maður komst allt upp í 20 áln., en slík dæmi voru fá. Engan
mann þekkti ég, sem ég get sagt að hefði vefnað beinlínis að atvinnu. Hinsvegar
bar oft við að farið var til nágranna, sem vantaði vefara, og ofið fyrir
hann, eða þá vefnaður tekinn heim, frá
p2
þeim, sem vantaði
vefara, vefstað eða hvorttveggja. Ókunnugt er mér hvað var tekið
fyrir að vefa, t.d. alin eða um verð á vaðmáli eða vefstað, enda ekki um
sölu á slíku að ræða mína minnistíð. Vefstóll: Ýmist
kallaður vefstóll eða vefstaður, þó oftar vefstaður, á uppvaxtarárum mínum.
Vefstaðasmið þekkti ég engan utan að einn maður mér kunnugur, sem
allt lék í höndunum á, smíðaði vefstað handa sjálfum sér. Flestir vefstaðir,
sem ég sá voru orðnir gamlir. Skeið: Einnig of kölluð
ritti. Allar vefjarskeiðar, sem ég sá voru útlendar. Heyrði
aldrei talað um íslenskar skeiðar eða neinn, sem smíðaði þær. 5 kvartil
mun hafa verið venjuleg lengd á skeiðum. Þegar talað var um tannafjölda
skeiðar, var miðað við tannafjölda í kvarteli, 60, 70, 80, 90 tannaskeiðum
man ég eftir. Líka man ég eftir garnrittum, er ekki viss um tannafjölda
í þeim, minnir helst að hann væri 120. Annars voru þessar skeiðar
aldrei kallaðar annað en garnritti. Tannafjöldi ekki nefndur. 60
tanna skeið þótti ágæt á tvöfaldan þráð, 70 og 80 á einfaldan, 90 tanna
þótti helst til þett, nema á fínasta þráð, og vel nothæf á garn, þó garnritti
þættu þar best. Vefjarskytta: Var smíðuð úr harðviði.
Í þá hlið skyttunnar, sem gatið var á, var greypt málm- eða beinplötu,
með gati jafnstóru og eins löguðu og gatið var á skyttunni. Var þetta
gert, til þess að fyrirvafið væri lengur að nudda skorur út frá skyttugatinu.
En þó fyrirvaf væri venjul. snúðlint voru furðu fljótt að koma skorur
undan því í málm og bein, auk heldur mýkra efni. Látúnsþynna var
utan um skytturnar, og neðan á hana var fest mjóum látúnsræmum, svo hún
væri hálli, rynni betur gegnum skilið. Spólur voru úr harðviði. Ekki
veit ég hvort þær voru tálgaðar eða renndar, sá þær
p3
aldrei smíðaðar.
Sumir höfðu álftaleggi fyrir spólur. Spóluteininn heyrði ég
aldrei kallaðan annað en spólutein. Spólurokkur: Hér,
á Álftarósi, og svo mun víðar hafa verið, var gamall rokkur notaður fyrir
spólurokk. Spýta tálguð til, öðrum enda hennar stungið inn í hnokkatréspípuna,
en spólunni smeygt uppá hinn endann. Spanstokkur: Það
orð þekki ég ekki. Spjálk var þetta áhald kallað hér. Spjálk
var smíðuð úr 2 eikar- eða brennirenningum, hvor rúml. þuml. á breidd og
hub. 1/4 þuml. þykkur. Lágu renningarnir á misvíxl, líklega fulla
1/2 alin, rönd við rönd, 3-4 göt voru þvert í gegnum báða. Götin
voru þetta mörg, svo auðvelt væri að stytta og lengja spjálkana. Og
í einu þeirra var járnteinn, er verkaði sem hjara þegar spjálkin var tekin
úr eða látin í voð. Ofan á spjálkinni voru 2 einskonar snerlar, sinn
á hvorum spjálkarhluta, er hvorum um sig var fest með og snúið á skrúfnagla,
og héldu þessir snerlar eða hvað ég á að kalla það, spjálkinni niðri, þegar
voðin var þanin. 2 koparoddar, mjóir, voru í hvorum enda spjálkarinnar,
sem stungið var í gegnum jaðra voðarinnar. Að leggja upp:
Hér um verð ég fáorður, svo óljóst er það í minni mínu. Eins og ég
mun áður hafa vikið að, í svari til Þjóðháttardeildarinnar, var farið eftir
gildleika og vigt þráðarins, þegar ákveða skildi hve margra lóða garn hann
væri, og út frá því hve mikið mætti leggja upp úr t.d. 1 rokksnældu. Væri
mér núna fengin þráðarkippa og spurður hve mikið mætti leggja upp úr þessu,
stæði ég tvímælalaust á gati. Að reikna í skeið: Vefarinn
vissi hve margar tannir voru í skeiðinni, einnig hve margir þræðir voru
í uppistöðunni, var þá auðvelt
p4
að finna út hve varpið
skildi vera mikið, svo voðin fengi hæfilega breidd.
Að reikna í vef:
Hefi engu við að bæta það er ég sagði hér að framan í kaflanum að
leggja upp. Rakgrind: Þar sem portbaðstofur voru, var
rakið í herbergi undir baðstofu, klampi negldur á bitanum, sem alltaf var
þvert undir lofti í miðju slíku herbergi. Boruð var eða tálguð hola
í klampinn og önnur í þykkan kubb, lausan, á gólfinu, fyrir endana á rakgrindarásnum,
en á honum snérist grindin þegar rakið var. Þegar búið var að reisa
grindina, voru hælatrén bundin föst, annað efst, hitt neðarlega eða neðst
á rakgrindina. Ef rekja varð í baðstofu, var skammbiti negldur á sperru,
í hæfilegri hæð. Svo farið eins að og að framan er lýst. Áður
en byrjað var að rekja, var mæld af einum hnyklinum, hér var alltaf rakið
úr hnyklum, sú lengd, sem vera átti á voðinni, og merki sett á þráðinn,
sem svo var aftur undinn upp á hnykilinn. Allir þráðarendarnir á
hnyklunum, sem venjulegast voru 5, teknir saman og settur á þá þverhnútur,
síðan smeygt á annan hælinn á neðra hælatrénu, svo byrjað að rekja. Fært
var til á grindinni, þar til merkið á þræðinum kom á efri hæl, þar sem
snúið var til baka. Hélt vefarinn þráðunum í vinstri hendi, en snéri
grindinni með hinni. Alltaf var fetinn látinn fara á grindina ofan
við næsta feta á undan. Aldrei ofan á það, sem komið var, því þá
var hætta á að mislengjur kæmu fram í uppistöðunni þegar farið var að vefa.
Á voru hælatrénu voru 2 hælar, skilið haft á milli þeirra. Þegar
komnir voru 100 þræðir var skilbandinu brugðið utanum þá, svo um næstu
100 þræði, og þannig koll af kolli, þar til rakningu var lokið. Þá
hnýtt að, og einnig bundið hinum megin við skilið. Þá var og
p5
bundið beggja megin
við skilið á efri hælnum. Með þessu fylgdist vefarinn með tölu þráðanna
meðan á rakningu stóð, og vissi hve margt var á að rakningu lokinni. Hnyklarnir
voru hver um sig hafðir í smádöllu, snældustólum, skálum oþul. Þar til
gerða smáhnúða var þráðurinn látinn renna í gegnum, svo síður kæmu á hann
snurður. Þegar vefarinn ar búinn að ganga frá skilunum, losaði hann
neðra hælatréð, tók skilið fram af hælunum, stakk annarri hendi í gegnum
það, greip utanum slönguna og dró í gegn, þannig myndaðist lykkja er sömu
hendi var smeygt í gegnum, aftur tekið utanum slönguna, og þannig haldið
áfram uns búið var að taka af grindinni. Með hinni hendi hafði vefarinn
stjórn á rakgrindinni. 1 maður, vefarinn, vann þetta verk.
Hafaldatré: Það leit út eitthvað þessu líkt (teikning). Fletirnir
eiga auðvitað að vera beinir, þó á þessarri teikninarnefnu séu þeir hlykkjóttir.
Utan um tippið, sem er á öðrum andanum var hafaldsaugað hnýtt. Þegar
búið var að hnýta hvert hafald, an það var gert með rifhnútum eða rembihnútum,
var það tekið af hafaldatrénu. Rakið var í höföld þannig, að mælt
var eftir hafaldi, hve hespan þurfti að vera stór, svo var hafður rúmstuðull
eða annar fastur hæll, ot vinstri hendin til að rekja á, en rakið með hægri
hendi. Þegar hespan þótti hæfilega stór var skorið út úr henni, og
þar með var hafaldaefnið tilbúið til hnýtingar. Miðhluti hafalds hét hafaldsauga.
Togþráður var hafður í höföld þar til á síðari árum heimavefnaðarins,
að eitthvað var notað netagarn. Vefjarkambur: Hann
mun hafa verið um eða rúmlega 5 kvartel á lengd, 6-7 þuml. breiður, með
sívölum tönnum, er festar voru í neðri
p6
hluta kambsins með
hub. 1/2 þuml. millibili. Eftir endilöngum efri hlutanum var skora,
sem tönnurnar gengu upp í, nema endatönnurnar. Þær gengu upp í gegnum
efri hlutann. Þegar láta átti í kambinn var efri hlutinn tekinn af.
Vitað var um tölu fetanna í slöngunni, tannanna í kambinum, og með
hliðsjón af hvorutveggja ákveðinn fetafjöldi í hverri tönn. Þegar
búið var að láta í kambinn, voru höföld og slagborð tekin úr vefstólnum,
kamburinn bundinn við stólpana, er héldu uppi trjánum, sem slagborðið
hékk á og völtunum er höföldin héngu í. Skaftið tekið úr þráðarrifunum
og smeygt í gegnum enda slöngunnar og þráður (veit ekki nafn á honum) dreginn
í gegnum slönguna og bundinn fastur um báða enda skaftsins þannig að skilið
væri á milli þráðarins og skaftsins. Nú var rakið smátt og smátt
úr slöngunni, skaftið sett yfir þráðarbómuna, látið á sinn stað í þráðarrifnum,
krögunum á rifnum ýtt yfir endana á skaftinu, og þar með var það fast.
Á krögunum voru járn, sem lágu á rifnum og héldu þeim föstum þegar eitthvað
var komið á rifinn. 2 menn unnu þetta verk, annar vatt uppá rifinn,
hinn hélt þétt í slönguna og rakti úr henni jafnóðum og undið var á rifinn.
Þegar búið var að vinda á rifinn, var kamburinn tekinn af, skilsköftin
sett í skilið, og bundin við bómuna og skorið út úr endanum á slöngunni.
Annars voru skilsköftin ekki bundin við bómuna, nema á meðan verið
var að setja til. Næst lá fyrir að draga í höföld. Voru
þau nú hengd upp á sinn stað, voðarbóman tekin af, kassi eða koffort látið
framan höföldin, til að stigja á, þar settist verfarinn, taldi 25 höföld
af fremsta hafaldakambi og hélt þeim á milli þumalfingurs og vísifingurs
vinstri handar, af næsta kambi lét hann höföld á milli vísifingurs og löngutangar,
p7
af þriðja kambi lét
hann höföld á milli löngutangar og baugfingurs, og af fjórða kambi á milli
baugfingurs og litlafigurs. Þegar búin voru þessi 25 höföld af fremsta
kambi, var búið að draga í höföldin 100 þræði. Tekið var dálítið í þessa
100 þræði og hnýtt á þá lykkja. Þá var byrjað á nýjan leik á sama
hátt og lýst er hér að framan, alltaf byrjað á fremsta kambi og endað á
aftasta, þannig haldið áfram uns búið er að draga í höföldin. Annar maður,
oft unglingur, stóð fyrir aftan þráðarbómuna og rétti vefaranum þræðina.
Og þá er komið að því að draga í skeiðina. Var nú bundið
snæri, sinn spottinn um hvorn enda efri hafaldaskaftanna og endarnir á
hvorum um sig hnýttir saman. Lykkjurnar, sem þannig mynduðust látnar
ná ofanundir neðri hafaldasköftin, og í þær var skeiðin látin liggja flöt.
Fyrirfram var ákveðið verpið, sem vera átt ií voðinn. Dregið
var í með krók, er annaðhvort var úr málmþynnu eða tré. Byrjað var
að taka þráð úr fremsta kambi, þá næsta, svo næst næsta og endað á aftasta.
Þá aftur byrjað á fremsta kambi, og svo áfram alltaf í sömu röð.
Með þessu var öruggt að aldrei færi nema einn þráður af sama hafaldakambi
í hverja tönn.
Þegar búið var að
draga í skeiðina var slagborðið látið upp og skeiðin í það, og bóman sett
á sinn stað. 3 snæri bundin bæði á voðarrifinn og voðarskaftið, 1
á miðju hin á endana á rif og skafti. Svo hnýtt fram (uppistaðan
bundin á voðarskaftið), byrjað á miðju skafti, þá á endunum, og svo áfram.
Þegar búið var að hnýta fram, voru sköftin krækt upp. Á litlu
sköftum voru krókar bæði að ofan og neðan. Á stóru sköftum aðeins
að ofan. Keðjubútar, heldur mjórri en nautabönd, voru höfð á milli
stóru skafta og litlu, og frá litlu sköftum upp í höföld. Að þessu
loknu voru snærin undin
p8
upp á rifin þar til
uppistaðan þótti hæfilega strengd. Svo var byrjað að vefa. Það mun
hafa verið kallað að draga fyrir, að fara með fyrsta fyrirdráttinn í gegnum
skilið. Að vinda uppistöðu í rif, láta í kamb, draga í höföld
og skeið, hnýta fram og draga fyrir, var einu nafni kallað, að setja til
vef. Þegar komið var nægilegt pláss fyrir spjálkina, var
hún látin á voðina, og meðan á vefnaðinum stóð, alltaf færð þegar komnir
voru 2-3 þuml. frá henni að uppistöðu. Gæta varð þess, ef þráður
slitnaði, að bæta hann strax, væri ofið með einn eða fleirri slitna þræði
varð voðin gölluð. Þegar svo langt var komið vefnaði voðar, að uppistöðurifurinn
var orðinn ber, voru snæri látin á hann og uppistöðuskaftið á sama hátt
og í upphafi voru sett á voðarrifinn og voðarskaftið. Ofið var þar
til uppistöðuskaftið var komið svo nærri höföldunum, búið að taka skilsköftin
og voðarendinn það nærri slagborðinu, að ekki var lengur hægt að stíga
skil til að skjóts skyttunni, var varpað yfir voðarendann, uppistaðan klippt
sundur, svo sem 1 þuml. frá voðarendanum. Það sem eftir var af uppistöðu,
þegar vefnaði voðar lauk, var kallað, afvikur. Notað sem saumgarn
við bætingu á flíkum. Að varpa fyrir enda voðar og klippa afvikur
frá var kallað að fella af vef. Þvottur og þóf: Blandað
var saman keytu, vatni og þvottarefni. Þessi blanda hituð og hellt
í bala, voðin látin þar ofaní og þvegin. Balinn með öllu sem í honum
var, borinn út fyrir bæjardyrnar, báðir endar voðarinnar teknir uppúr og
vafðir um járnkarl, sem settur var þversum innan við dyrastafina, og haldið
þar. Voðin var svo dregin tvöföld upp úr balanum, og öðrum járnkarli
eða sterku priki smeygt í lykkjuna. Hélt karlmaður þessu járni eða
priki og snéri með því upp
p9
á voðina, og teygði
hana við og við. Þannig var haldið áfram þar til voðin var öll komin
í hnúta., þá voru járnin losuð, voðin borin þangað sem átti að þæfa hana,
og snúningurinn tekinn af henni. Hér var þæft í baðstofunni. Bletturinn
sem þæfa átti á, vandlega þveginn og raðað kringum hann kistlum og koffortum.
Einhver heimamanna (karlmaður) þæfði. Fékk hann að launum þófaraköku,
sem var venjuleg glóðarbökuð kaka, en með, auk smjörs, magál, lundabagga
eða öðru slíku góðgæti ofaná. Þófarinn var á nærklæðunum einum, velti
voðinni fram og aftur, tróð á henni og stappaði. Við og við var voðin
hrist upp meðan á þófi stóð. Gerðu það 2 konur, hvor um sig tók í
jaðra voðarinnar, sinn með hvorri hendi, höfðu 2-3 metra bil á milli sín
og kipptu snöggt út til beggja hliða nokkrum sinnum. Urðu að vera
vel samtaka. Teygðu voðina svo og létu hana falla á þæfingarblettinn
aftur jafnóðum og búið var að hrista hana. Þegar voðin var talin
fullþæfð var hún vafin upp á rúmfjöl, svo fast og slétt, sem tök voru á,
síðari endinn saumaður fastur. Látin svo undir þunga kistu, grjót
látið ofaná kistuna, og þar höfð, ég man ekki hve lengi, þar til hún var
þurrkuð.
Nr. 1322
p1
Ull og tóvinna 3:
Hér á heimilinu var alltaf ofið. Húsmóðirin, sem bjó hér á
Kinnarstöðum, Kristín Björnsdóttir, var fyrirmyndar vefari. Óf allar
vefnaðargeðir sem tíðkuðust. Hún kenndi Guðrúnu systur minni að vefa.
Hér var aldrei, eftir að ég man til, settur upp vefur fyrr en eftir áramót,
þegar daginn var farið að lengja, t.d. á þorra. Var þá búið að vinna
í voðirnar. Ef mögulegt var, var vefstóllinn tekinn niður fyrir sumardaginn
fyrsta. Rýmkaðist þá vel í baðstofunni. Þar var ofið. Það
munaði nú um minna, en stóran vefstól, hvað rýmið snerti.
Ofið var oftast milli mála, en þegar var verið að herða við að ljúka af
vefnum fyrir vissan tíma, þá var haldið til dagsins meðan birtan leyfði
t.d. fyrir sumarmálin. Hér í sveit, man ég ekki eftir því
að vefarar færu milli bæja til að vefa, heldur var vefjarefnið flutt þangað
sem vefstóllinn var og vefarinn. Í mínu ungdæmi voru
p2
ekki vefstólar til
á öllum bæjum. Við munum ekki vel hvað þóttu góð afköst, en það mun
hafa verið yfir 10 álnir. Annars fóru afköstin eftir því hver vefjartegundin
var, og hvað efnið var gróft.
p3
Vefstóll: Vefstóll
og vefstaður. Þessi nöfn voru jöfnum höndum notuð hér. Engar
sagnir þekki ég um gamla kljástólinn, en Kristín Björnsd., sú sem kenndi
systur minni að vefa, hafði kynnst honum og talaði um hvílíkur feikna munur
var á honum og þeim nýja. Kristín var fædd 1837. Ég veit því
miður ekki um neinn örmul, sem eftir er af kljásteinsvefstólnum. Ég
get ekkert sagt um smíði vefstóla eða smíði þeirra. Kristin heitin
smíðaði sjálf vefstólinn hér að einhverju leyti, en fékk líka hjálp. Tvíbreiðir
vefstólar þekktust eða það var talað um þé. Þeir voru bara breiðari
en þeir einbreiðu. Hraðskyttuvefstóla veit ég ekkert um. Vefstólar
voru ekki til á öllum heimilum. Það kom fyrir að heimili fengu lánaðan
vefstól, en hitt var algengara að heimilin, sem ekki áttu vefstól, fengu
ofið hjá nágrannanum.
p4
Ég var að virða fyrir
mér myndina af vefstólnum í bókinni Vefnaður eftir Halldóru Bjarnadóttur.
Vefstóllinn hér var ekki líkur þeim vefstól. Vefstóllinn hér
var líkur vefstól B. En á myndina vantar höföldin og hafaldasköftin.
Hliðarnar á vefstólum hétu einu nafni kjálkar. Svo voru sköftin,
sem stigið var á fest við slána undir sætinu, en Kristín sagði að það mætti
líka snúa þeim eins og á B. Vefstóll B er að því leyti frábrugðinn,
að slagborðið í vefstólnum hér, hékk á snaganum, sem ég merki með 30, þannig
að slagborðskjálkanum var smokkað upp á nr. 30. Nr. 30 var með járntinningum
að ofan. Þversláin efst nr. 32 var engin.
p5
Skeið: Ég veit
ekki um annað nafn en skeið, vefjarskeið. Það kom fyrir að skeiðar
voru smíðaðar eða lagaðar heima, en stálið í tennurnar varð að fá að. Ég
vissi til, að Kristín vafði upp eina skeið. Vefjarskeiðar voru yfirleitt
af sömu lengd. Það var til að þær væru styttri en 5 kvartil. Fínleiki
skeiðanna var miðaður við tannafjölda í kvarteli. Hér var og er til
60 tanna skeið, 80 tanna og 90 tanna. Vefjarksyttan: Harðviður
var hafður í vefjarskyttur. Endarnir á skyttunni oru látúns bryddir,
til þess að þræðirnir festust ekki í henni. Skyttan var vel slípuð neðan.
Teinninn hét hér spóluteinn. Renndar tréspólur voru hér til.
Sömuleiðis beinspólur. Þær voru úr sviðafótaleggjum, og sagað
af báðum endum leggjarins. Svo voru járnspólur. Þunnt járn
beygt í hólk. Spóluvoð þekktist ekki hér í minni tíð.
p6
Soólurokkur: Hér
var notaður gamall rokkur íslenskur, kallaður Trausti. Allir stólpar
voru geysilega sverir. Efalaust frá þeim tíma þegar rokkar voru fyrst
notaðir. Nú er hann, því miður ekki lengur til. En það er seint að
iðrast eftir dauðann. Hann vildi kasta af sér, og var því stundum
í ónáð hjá okkur börnunum. Spóluteinn var settur fyrir snælduumbúning.
Spanstokkur hét hér spjálk. Spjálkin var um 5 cm. breið.
Í báðum endum hennar voru járntittir, sem gengu gegnum jaðra voðarinnar,
2 í hvorum enda. (Hér er teikning). Tanginn féll í raufina.
Göt voru boruð mörg í röð gegnum tangana og stóðust þau á. Í
þeim var einn teinn eða í gegnum þau var einn teinn, og þarna mátti lengja
spjálkina. Teinninn verkaði eins og hjörur. Þegar spjálkin
var notuð, var tökkunum í endum
p7
hennar stungið í
gegnum jaðra voðarinna. Á meðan þetta var gert léku spjálkahlutarnir
um teininn. Svo var hún þvinguð flöt og þandi um leið út voðina.
Spjálkina varð að stilla mátulega. Til þess, að hún héldist
lárétt, var hafður hólkur úr leðri, sem var yfir spjálkina. Hann
var hreyfður til, þegar hún var losuð og sett föst. Hann var utan
um tangana, þegar spjálkin var spennt, en færður til annars endans þegar
spjálkin var færð. Þá fór spjálkin aftur svona (teikning). Stundum
voru líka 2 teinar notaðir en enginn hólkur. Var þá annar tekinn
úr spjálkinni þegar hún var hreyfð.
p8
Að leggja upp: Mér
er ókunnugt um útreikning, en mig minnir að reiknað væri með 2 álnum úr
mörkinni af einföldum þræði, meðalgrófum. Völuþyngdin var dregin frá. Ég
man ekki hvað valan var reiknuð mörg lóð. Að reikna í skeið: Ég man
ekki eftir því nafni. Það hét allt einu nafni, að setja til vefinn.
Það var álitin ómynd, ef útreikningurinn stóðst ekki. Það var
kallað varplítið, ef voðin var gisin. Að reikna í vef: Það
var oft kallað að áætla í vef. Efnið var vigtað og áætlað, t.d. 2
álnir úr mörk. Fyrirvaf var líka vigtað, en annars var ekki eins
glöggt með fyrirvafið. Það var bara bætt við ef vantaði. Ég
man ekki hvað margar álnir fengust úr mörkinni af fyrirvafi. Það
fór líka eftir því hvað fyrirvafið var gróft.
p9
Rakgring hét áhaldið,sem
uppistaðan í voð var rakin á. Ég veit ekki um nema eina gerð af rakgrind.
Hún var mynduð úr 2 ferhyrndum grindum. Þær voru lengri en þær voru
breiðar. Gegnum miðjar þverslárnar eru göt og í gegnum þau eftir
grindinni endilangri gekk ás, að sverleika eins og sver ísastafur. Þegar
rakið var, lék neðri endi þessa áss í spori í gólfinu, en efri endinn í
velgerðri holu í loftbita stofunnar. Þegar rakgrindin var notuð mynduðu
þverslárnar kross. En þegar rakgrindin var ekki í notkun, var hún
lögð saman, svo að minna færi fyrir henni og látin liggja upp við vegg.
Hér var rakgrind til ásamt vefstólnum. Balbínur, balbínustóll:
Snældurnar hétu balbínur. Ég sá einu sinni balbínur og balbínustól.
Þær
p10
voru fengnar að láni.
Þá var ég barn og var ákaflega hrifin. Balbínurnar voru geysistórar
snældur og balbínustóllinn í líkingu við snældustól. Þannig að balbínurnar
léku um tein hver í sínu hólfi. Mig minnir að raðirnar væru 2 og
6 snældur eða balbínur í hvorri röð. Oftast var rakið á 12. Verkið
við að spóla á balbínurnar hét að balbína. Rakningsspaði.
hër var hann oft kallaður gataspýta. Það var flöt spýta eða
fjöl með 2 gataröðum og 6 göt í hvorri röð. Milli gatanna í röðinni
var rúmur þumlungur, til þess að þræðirnir slægjust ekki saman, en milli
raðanna var lengra, á að giska hálf fingurhæð. 12 gata spaði hefur
verið um 35 cm. langur, fyrir utan skaft. Riss af spaðanum á baksíðu.
p11
Rakningsstokkur:
Þeir voru með hólfi fyrir hvern hnykil. Tvær hólfaraðir. Hólfin
voru ferköntuð um 12 cm. á kant nokkuð djúp. Hér voru til 2 rakningsstokkar.
Án þeirra var ekki hægt að rekja á grind. Vefjarþráðinn varð að vinda
upp á völur, annars hoppaði hnykillinn upp úr hólfunum þegar hann fór að
minnka. Rakning á grind: Hún stóð á gólfi og náði til
lofts, lék rakgrindarmöndullinn í holu eða spori hvor endi. Til að
halda rakgrindinni út voru notaðar 2 spýtur, kallaðar hælaspýtur. Önnur
efst á rakgrindinni, en hin neðst. 2 hælar voru í báðum spýtunum
(3 hælar í efri), og á hælaspýtunum var búið til skilið. Það var
alin (eða rúmleg) milli stólpanna í grindinni og hringurinn um grindina
var því rúmar 4 álnir, því stólparnir voru auk bilsins milli þeirra. Vön
kona við að rekja vissi
p12
hvað bilið milli
hringanna þurfti að vera breitt og með því að telja hringana sinnum 4,
fannst lengd voðarefnisins. Umferðirnar urðu auðvitað að liggja dálítið
á ská. Þegar vitað var hvað hátt slönguefnið þurfti að ná upp eftir
grindinni, var hælaspýtan látin þar. Svo byrjaði rakningin. Þræðirnir
voru þræddir í gegnum rakspaðann einn í hvert gat. Rakið oftast á
12. Síðan voru endarnir hnýttir saman og hendinni smeygt milli þráðaraðanna
á spaðanum, og þeir þannig klofnir, 6 hvoru megin, og látið yfir hælinn
nær stólpanum. Hinn hællinn var ekki langt frá þeim fremri. Það
var byrjað efst og rakið niður eftir. Já, þegar búið ar að smokka
yfir fremsta hælinn var skilið tekið niðri við rakspaðann. Hælarnir
á efri spýtunni voru 3. (Athuga riss af spaðanum). Þráðurinn 2 var
tekinn milli þess 1. og þess 3. Þráður 4 milli þess 3. og þess 5.
Þráður 6 milli þess 5. og þess 7. Þráður 8 milli þess 7. og
þess 9. Þráður 10 milli þess 9. og þess 11.
p13
Þráðurinn 12 fyrir
aftan þann 11. Skilið var fært upp eftir og smokkað yfir miðhælinn.
Svo var aftur farið niður að spaðanum og hendinni smokkað milli raðanna
og smeygt yfir aftasta hælinn. Skilið, þráðarskilið, kom á milli
aftari hælanna. Fyrir aftan aftasta hælinn voru þræðirnir allir sameinaðir
og rakið niður eftir. Grindinni snúið réttsælis. Þegar kom
niður að neðri hælaspýtunni var fetaskilið tekið. Þráðunum öllum
í einu brugðið yfir hælana (teikning) Fetaksil. Þá var snúið við
og rakið upp eftir og grindinni snúið rangsælis. Í hverri ferð var
tekið þráðarskil ogst og fetaskil neðst. Ég held að ein umferð upp
og niður hafi heitið feti. Hver umferð varð að liggja þétt að þeirri
fyrri. Haldið var áfram að rekja þar til nógu margir þræðir voru
komnir. Fór þá oft að þrengjast á grindinni, og varð að þjappa hverjum
hring saman. Þegar kom upp að efri hælunum aftur, var farið milli
þráðaraðanna á spaðanum og þeir látnir beggja megin á hælinn, sem
p14
fyrst var komið að
svo var tekið skilið eins og fyrr og smokkað yfir miðhælinn, síðan voru
þræðirnir sameinaðir og brugðið yfir endahælinn eins og á fetaskilinu,
og enn var tekið skil, farið milli raðanna og látið beggja megin á miðh.
og tekið skilið milli aftari hælanna eins og fyrr. Það mun stundum
hafa verið látið merki við vissan þráðafjölda, var það einn þráður. Þegar
slangan var tekin af grindinni var bundið eða smokkað bandi, þar sem fetahælarnir
voru, um leið og smokkað var fram af hælunum (annar í einu). Það
band var úr margföldum skóþræði og hét varptág. Alltaf voru 2 við
að rekkja. Líka var bundið í þráðarskilin. Varptágin þurfti
að vera löng og sterk. Því henni var bundið um báða enda á rifskaftinu.
Þegar vefjarefnið var tekið af grindinni, ar gerð úr því flétta.
Hún var kölluð slanga. Ég veit ekki til að rakið hafi verið
án rakningsspaða. Slangan var tekin þannig af grindinni. Byrjað
p15
efst hnýtt lykkja
af sjálfri slöngunni. Hendinni smokkað í lykkjuna og gripið utan
um slönguna og dregið í gegn. Kom þá önnur lykkja, sem eins var farið
með. Þannig koll af kolli, þar til slangan var á enda. Var
þá komin sver flétta, sem líka var kölluð slanga. Hælsaspýtunum var
fest þannig, að þær voru skorðaðar milli stólpanna, sýlt í báða enda á
spýtunum. (Hér er teikning). Stundum voru stórgripavölur látnar
leika á þráðunum, ef þráðurinn var snúðharður. Ég veit ekki betur
en alltaf væru sömu handtökin við að rekja. Á tví- eða marglitri
uppistöðu, er mér sagt, að hver litur hafi verið rakinn út af fyrir sig,
jafnvel þótt fáir þræðir væru í lit. Hægt var líka að rekja það með,
er mér sagt.
p16
Ég þekkti ekki til
að rakið væri á vegghæla eða rúmstólpa. Á baksíðu er riss af hafaldagrind.
Hafaldaefnið var vafið yfir um grindina lagnsum, og skorið upp úr.
Grindin var lengri en hún var breið. Efnið í höföldin var tvennskonar,
hör og þrinnaður eða fjórfaldur togþráður. Ég veit til að togþráðarhnykillinn
var soðinn í vatni. Hnýting hafalda: Þræðinum í hafaldið var
brugðið undir neðri hlið (1) grindarinnar og hnýttur þverhnútur yfir báða
þræðina fast neðan við rimina (2), sem mátaði hafaldaaugað. Svo voru
þræðirnir sinn hvoru megin utan um rimina og hnýttur þverhnútur fast fyrir
ofan. Síðan var bundinn annar þverhnútur fyrir ofan hliðina sem upp
snéri (3). Þræðirnir auðvitað sinn hvoru megin við efri hliðina.
Endarnir voru hafðir þumlungur að lengd eftir síðasta hnút. Höföldin
voru ýmist hengd upp eða vafin upp og geymd á þurrum og góðum stað.
p17
Stálhöföld heyrði
ég talað um, en þekkti ekki. Veit ekki um nafn á bandinu, sem varnaði
höföldunum að fara út af skaftinu. Vefjarkambur, fetakambur:
Hér var hann alltaf kallaður fetakambur. Hann var allur úr tré. Tennurnar
voru sívalar, grennri eða líkt gildar og blýantur. Lengd tannanna
var um 5 cm. Neðri sláin var föst og endaspelarnir, en efri sláin
var laus, til þess að hægt væri að raða fetlunum milli tannanna í kambinum.
Efri sláin smokkaðist yfir endaspelina, em stóðu upp fyrir slána,
voru göt á þeim, og þar í var látinn splittur, sem hélt efri slánni fastri.
Verkið við að dreifa slöngunni í kambinn hét "að láta
í kamb". Einn feti, 24 þræðir, ef rakið var á 12, var látinn
milli tanna eða í hvert bil. Fetarnir aðskildu sig. Skaftið,
sem tengt var við slöngurifin hét rifskaft. Þráðurinn í
p18
fremra gangskilinu
hét vartág. Henni var bundið utan um skaftendana. Á endum rifskaftsins
voru skorur þvert yfir fyrir vartágnina. Hún var úr margföldum skóþræði.
Að festa upp, hét verkið við að vinda upp á rifinn
eða setja til vef, að koma slöngunni í vefstólinn, draga í höföld og skeið,
og festa uppistöðu í framrif. Ég veit ekki til að verkið við að vinda
slönguna upp á rifinn héti neinu sérstöku nafni. Rifskaftið féll
í skoru, sem var eftir endilöngum rifnum, og svo var kringlum eða krögum
smokkað upp á rifinn beggja megin slöngunnar, og náðu endar rifskaftsins
innundir kringlurnar. Þannig héldust rifsköftin föst, og svo áttu
þær að halda utan að slöngunni. Í gatið á kringlunum voru fest eltiskinnsspeldi
of 4 eða 5. Þau voru um 6 cm. breið og 8-10 cm. löng. Þau lágu
p19
frá kringlunum með
rifnum, og var slangan undin yfir þau um leið og hún vanzt um rifinn. Þetta
festi vel kringlurnar. Kringlurnar voru úr viði þykkum, og var ytri
brún þeirra 6 köntuð. 2 og stundum 3 unnu að því að vinda slönguna
upp á rifinn. Einn hélt fast í slönguna og smokkaði slöngulykkjunni
upp á úlnliðinn, svo að ekki rektist of langt. Svo þurfti öðru hvoru
að rekja niður slönguna. Þegar það sem tekið var fyrir var orðið
svo stutt, að sá sem hélt í slönguna var kominn að frambómunni eða nálægt
henni. Einn vatt upp á rifinn. Þurftu báðir þessir menn að
vera sæmilega sterkir. Sá þriðji færði til fetakambinn og leit eftir,
að slangan færi vel á rifnum. Hún mátti ekki hrúgast ójafnt upp.
Mest ábyrgð hvíldi á þeim,sem þetta starf hafði. Slangan átti
ekki að ganga að sér á rifnum. Skilsköftunum var smokkað í skilið
og héldust þau kyrr, en stundum voru þó endar þeirra
p20
tengdir saman með
spotta. Göt voru á endum skaftanna. Slönguendanum var tyllt
í fremri rifinn. Verkið við að draga í höföldin hét "að
draga í höföld". Snærin, sem héldu höföldunum uppi voru bundin
saman. 2 unnu að því að draga í höföld. Annar dró í, hinn rétti
þræðina. Sá sem dró í, hafði höföldin í 4 núpum vinstri handar. Hafaldaraðirnar
voru 4 og hafði hver röð sína núp. Tekin voru fyrir í núpirnar nokkur
höföld í einu. Að draga í skeið: Áhaldið hét skeiðarkrókur.
2 unnu að því að draga í skeið. Annar rétti, hinn rétti krókinn
í tennurnar og mátti ekki hlaupa yfir. Stundum voru 2 eða 3 þræðir
í tönn, en aldrei nema 1 í hafaldi. Það hét að voðin væri mikið verpt,
ef margir þræðir voru í tönn. Skeiðinni var fest fyrir ofan höföldin meðan
dregið var í skeiðina. Sá sem rétti þræðina sat í setbekknum, en
hinn var fyrir aftan vefstólinn. Svo var bundinn lykkja á þræðina eða þeir
bundnir
p21
saman með lykkju
þegar þeir voru hæfilega margir til að hnýta á skaftið. Skaftið hét
engu sérstöku nafni. Verkið hét, "að hnýta á skaft". Það
var tekið skil um leið og hnýtt var á. Skaftinu var fest á rifinn
með 3 snærum, sem lágu yfir bómuna og niður í rifinn. Það var kallað
"að draga fyrir", þegar skyttunni var skotið. Gefið var
í, í einum stórum boga. Þegar skilið var stigið, var þrifið í slagborðið
og þráðurinn laminn að voðinni. Spjálkin var færð öðru hvoru. Mátti
aldrei vera mjög langt frá mótum voðar og uppistöðu. Styttsta bilið
rúmur þumlungur og þegar spjálkabreiddin hafði vel bætzt við var hún færð
á ný. Álnarlangt band mældi voðina jafnóðum. Þegar alin var
komin, var bandið dregið til baka og endinn með hnútnum var látinn milli
þráðanna við brún voðarinnar. Festist spottinn þegar næsti fyrirvafsþráður
bættist við voðina. Þegar þráður slitnaði þurfti að "bæta"
hann. Hnýtt var við endann og viðbótarspottinn látinn ná fram á voð.
"Að fella vef" hét, þegar voðin var tekin af vefstólnum.
Afgangur af slöngunni hét afvikur. Það var saumað með afvikum.
p22
Þóf: Voðin
var þvegin upp úr heitu keytublönduðu vatni í stórum bala. Undin
þannig að endarnir voru tengdir saman, svo að hún var tvöföld, smokkað
spýtum í báða enda og snúið upp á, og vattst þá voðin vel. Einhver
heima karlmaður þæfði. Stundum var þæft á tréfleka á auðum bás í
fjósinu, stundum í baðstofu. Stundum var þæft undir fótum. Gerði
það einn maður, en stundum var þæft í botnlausri tunnu. Gerðu það
tveir, sem lágu á gólfinu uppí loft á undirsæng með brekán yfir sér. Þeir
spyrntust í iljar og höfðu tunnuna langsum á milli sín. Í tunnunni
var þófið. Svo spörkuðu þeir og þvældu þófinu milli sín. Öðru
hvoru var þófið "hrist upp". Það gerðu 2, hélu hæfilega
löngum hluta milli sín, héldu sinn í hvert horn, lögðu hendur sínar á mis
og með snöggri hreyfinu breiddu þeir úr voðinni, svo skall í. Þegar
fyrsta færa var búin var önnur tekin fyrir, voðina á enda. Full þæfð
var voðin, þegar hún þótti vel þétt og áferðin falleg. Fór það eftir
smekk hvers eins.
p23
Meðan á þófinu stóð
voru menn snöggklæddir, á nærbuxunum og milliskyrtunni. Þófurunum
var gefinn góður matur og aukakaffi með lummum. Ég veit ekki um kaup
fyrir þóf. Að loknu þófi var voðin undin upp á fjöl, t.d. sterka
rúmfjöl. Gerðu það 2 og tóku fast á. Voðarendinn var lagður
sléttur þvert á fjölina og svo vafið áfram og togað vel við hvert bragð,
strokið og sléttað með lófunum. Þegar voðin var uppundin, var endinn
saumaður niður og rúbagginn settur í farg, t.d. undir þunga kistu, látinn
vera þar nokkra sólarhringa. Til var að voðir voru sendar til verksmiðju
til lóskurðar og litunar. Þófaraþulan: Bárður minn á jökli
- leggstu með mér - Ég skal gefa þér lóna - leppana inn í skóna - mórautt
lamb og gimburskel - múra, ef þú þæfir vel - hálfskeifu undir hestinn þinn
- naglabrot í hófinn - gakk þú gakk þú duggarinn - allra mest í framleistinn.
Nr. 7590
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Því miður get ég lítið sem ekkert svarað þessari
spurningaskrá, því ég hef aldrei lært að vefa og vefstóll ekki til á heimili
foreldra minna, en móðir mín sagði mér mikið frá tóvinnu og vefnaði í heimili
foreldra hennar í Meiri-Hallardal í Álftafirði vestra, þegar hún var að
alast upp, eða frá 1885-1900. Þar var alltaf margt fólk í
heimili og þurfti því mikið að vefa og prjóna þegar allir gengu í ullarfötum
yst sem innst, og rekkjuvoðir (lök) í öll rúm, sem voru ofin úr hvítri
einspinnu. Á þeim bæ, var vinnutilhögun þannig, að eftir
sláturtíð á haustin var farið að kemba og spinna. 3 vinnukonur voru
þar, og þær voru látnar skiftast á að vera sína vikuna hver í eldhúsinu,
þá voru 2 að spinna. Gamall maður sem malaði kornið, kembdi þess á milli,
og fleirri liðléttingar. Dæturnar, sem voru 5, urðu hver
að skila einu pari af sjóvettlingum á viku allann veturinn, með sínum barnalærdómi,
því þar var tekinn heimiliskennari, en þá voru sjóvettlingar gjaldmiðill.
Því á vorin var farið með fulla poka af vettlingum í "höndlunina",
og lagðir inn. Það þurfti svo mikið af vettlingum til að róa með.
p2
Afi minn Ólafur Jensson,
sem óf allt fyrir sitt heimili, setti vefinn upp um nýjár, og óf allann
tímann til páska. Þá höfðu vinnukonur 30 kr. í kaup á ári, og vaðmál
í einn fatnað, sem var sítt pils og treyja, en piltar fengu 50 kr. um árið
og tvennan fatnað. Það voru tvennar vaðmálsbuxur og 2 treyjur, en
sokka, vettlinga og skó eftir þörfum urðu allir að fá, og afi sem gerði
út árabát útí Höfnum (gamall útróðrarstaður á Súðavíkurhlíð), varð að sjá
sínum piltum fyrir öllum skinnklæðnaði á sjóinn. Það þótti mikið
gott þegar tvistgarnið fór að koma, þá var ofið tvistefni í milliskyrtur
á karlmennina og í millipils og svuntur á stúlkurnar ofl. Í Hallardal
var sá siður að þæfa voðirnar í tunnu og voru 2 röskir piltar sem það gerðu,
en sagt var að þeir svæfu fast nóttina eftir, svo erfitt var verkið.
Því miður nær mín vitneskja víst ekki lengra í þetta sinn.
Nr. 8170
p1
Ull og tóvinna III.
Þar eð ég er svo afar ófróð um allt er að vefnaði lítur, tel ég
mig ekki geta svarað þessari spurningaskrá. Því þó ég muni aðeins
eftir, þegar móðir mín var að vefa, en ég var þá smá krakki. Og síðan
ekki söguna meir. Aldrei komið nálægt vefstól, því miður. Svo
það er ekki von á góðu. Samt man ég nöfn á nokkrum hlutum vefstólsins.
Hliðartrén á vefstólnum voru nefnd einu nafni kjálkar. Svo
er það: 1. setufjöl, 3 voð, 4. skeið, ritti, 5. slagborð, 7. hafaldaskaft,
8. höföld, 18. skilsköft, 24. rifill, bóma, 26. neðri-hafaldasköft. Spanstokkinn
vantar á myndina.
Með vinsemd og virðingu,
Marta Jónsdóttir, Selfossi.
Nr. 1255
p1
ULL OG TÓVINNA 3
Ef satt skal segja,
jafnast það því sem mest við ullarleit í geitahúsi að leita til mín með
fræðslu um vefnað og eru ástæður fleiri en ein og sú er mestu veldur, að
á mínu æskuheimili var ekki ofið sem talist gat nema
p2
einn vetur, að vinnumaður
sem átti vefstól kom með hann og óf eitthvað, en þann vetur var ég í skóla
og kynntist ekki þeirri atvinnugrein þá. En svo var það löngu
seinna (veturinn 1916-17) að ég var kennari á Húsavík og keypti þennan
gamla vefstól og lærði að nafni til að setja upp vef og vefa einfalda vefnað,
vaðmál og þráðardúk, en kennarar mínir voru Sigurjón Þorgrímsson veitingamaður
og Júlíana Guðmundsdóttir kona hans og þar að auki setti ég upp einn vef
með daglegri vefnaðarkonu Jakobínu að nafni. Óf ég þarna tvo vefi
í hjáverkum um veturinn. Næstu tvo vetur á eftir óf ég dálítið heima
á Laxamýri, en þó ekki svo mikið að verulega tyldi í mér kunnáttan, enda
snéri mér að öðrum verkefnum og nú í dag, þegar ég er spurður um þessa
iðngrein, er flest sem að henni lært fallið svo í gleymsku, að nær ómögulegt
er að rifja það upp,
p3
þannig að treysta
megi á að rétt sé munað, enda munu fleiri komast að sömu raun um það að
illa tollir í minni það sem illa er þar fest og sérstaklega þegar alveg
er skift um verkefni, verksvið og áhugamál. Samt skal það játað að
mér gast vel að vefnaði og hefði kosið að halda honum við mig, en óviðráðanlegar
orsakir gerðu það ókleyft. Tvo vefstóla mun ég hafa smíðað handa
öðrum, en þrátt fyrir það, eru mér gleymd sum heitin á hlutnum sjálfum
og fylgifé hans. Gerð þessara þriggja vefstóla er ég hafði kynni
af, var mjög lík B teikningu. Er þá þarna gerð grein fyrir tveim
megin ástæðum fyrir því að liðsinni mitt á þessu sviði verður í molum og
sennilega einskis virði, þó ég reyni að skrifa eitthvað upp til reynslu.
Árlega var spunnið í 2-3 vefi á mínu heimili og sent á nágrannabæi,
því nokkrir menn í grenndinni tóku vefnað af öðrum og var þá greitt visst
á alin, en ekki man ég hvað það var mikið né heldur þori ég að segja um
afköstin. Var voðinni skilað beint úr vefstólnum og þófið framkvæmt
heima. Tækin sem ofið var í heyrði ég aldrei nefnt annað en
p4
vefstóll og engum
kynntist sem ofið hafði í kljásteinavefstólnum, en heyrði menn lýsa honum,
sem séð höfðu að minsta kosti einhverjar leyfar af honum, en ekki er mér
kunnugt um að neinn hafi geymst hér um slóðir fram á okkar daga.
Vefstólar með slagborðið fest að neðan, munu hafa verið algengari hér og
sennilega verið betri, einkum vegna stöðugleika. Hinir vildu riða
til, einkum ef þeir voru veikbyggðir. Tvíbreiðan vefstól sá ég. Hraðskyttuvefstól
sá ég ekki, en heyrði honum lýst og vissi að hann var til hér um slóðir,
en náði ekki útbreiðslu. Allar skeiðar sem ég sá voru útlendar og
var mér ekki kunnugt um að heimasmíðarðar skeiðar væru notaðar. Fimm
kvartela skeiðar voru algengastar og 80 tanna á kvarteli það grófasta,
en fullt eins mikið notaðar þéttari (fleiri tanna). Ritti hefi ég
aldrei heyrt. Skyttan var mjög þýðingarmikið áhald við vefnaðinn
og reynt að vanda til hennar, en þess má þó geta að allir vefarar voru
ekki jafn ánægðir með einhverja vissa gerð, heldur réði smekkur, hverju
maður vandist mest og svo sérvizka, eins og er á mörgum sviðum. Algengastar
voru heimasmíðaðar skyttur, en
p5
þegar ég fór að vefa
mátti fá danskar skyttur, sem voru öllu liprari en þær sem áður voru algengastar.
Skyttan var smíðuð úr völdu efni oftast beyki eða brenni, eins og
það var kallað og sem var aðalefniviður í hrífuhausa og annað sem vanda
þurfti. Var hún oftast látunsklædd til enda og stundum að neðan svo
að hún væri hálli og rynni betur. Skyttu sá ég einnig með smáhjólum
að neðan (útlenda). Renndar spólur voru eingöngu notaðar það ég til
vissi, enda rennibekkir til hér um slóðir. Spóluroð þekki ég ekki.
Spólurokkur er eina nafnið sem ég þekki á spólutækinu. Algengast
var að breyta uppgjafarokk í spólurokk og voru það oft eymdaráhöld eins
og fram kemur í orðtakinu spólurokkur. Litlu eftir að ég fékk vefstólinn
komu litlir handhægir spólurokkar með prjónavélum Favorit. Voru þeir
skrúfaðir á borð og mjög fljótvirkir og notaði ég þá ekki annað áhald við
spólun. Spanstokkurinn sem við kölluðum spjálk var í líkingu
við meðfylgjandi teikningu. Var hún í tvennu lagi, klof á öðrum hlutanum
en eins og hamarskora á hinum. Nokkur göt boruð gegnum bæði stykkin
sem
p6
nagla var stungið
gegn um og með því að skifta um göt var hægt að stytta og lengja spjálkina
í samræmi við voðarbreiddina. Að leggja upp, reikna í skeið og reikna
í vef, er mér fallið svo úr minni, að ég þori ekki um það að fjalla. Orðið
fyrirvaf þekki ég aðeins, en ívaf meira notað hér og aftur uppistaða.
Rakgrind reyndu flestir vefarar að eignast, en til var þó að fara varð
á aðra bæi til að rekja, enda á sumum bæjum svo lítill húsakostur, þó vefstól
væri troðið í þrönga baðstofu, að rakgrind varð hvergi fyrir komið til
rakningar og naumast til geymslu og var helst reynt að rekja í bæjardyrunum
eða skemmu. Var rakgrindin sett neðan í bita, en trébútur hæfilega
hár á gólfið, en naglar eða teinar í rakgrindarásnum að ofan og neðan látnir
í holu neðan á bitanum og aðra í kubbnum og var þá hægt að hringsnúa grindinni.
Skilhælatrén heyrði ég nefnd grísholt, en má vel vera að hrísholt
sé réttara. Eins og áður er getið var algengast að breyta gömlum
spunarokk í balbínurokk og hann þá notaður bæði til að balbína og spóla
á skyttuspólunar. Balbínusnældurnar vor helst renndar, en þó oft
tálgaðir snúðarnir og þeir helst límdir á gegn um boraðan trélegg og voru
um 25cm.langar á
p7
milli snúða og snúðurinn
(eða hausinn) um 8-10cm.þvert og leggurinn 2-2 1/2cm. gegnum boraður fyrir
vírtein 4-5mm. Balbínustóllinn eða snældustóllin var grind á fæti
svo að hann gæti staðið óstuddur á gólfi og það hár að allt að 5 snældur
kæmust í hæðina og var hann tvöfaldur (fyrir tvær raðir og tók þá 10 snældur).
Hér þrýtur mig kunnáttu og minni. Man að rakin uppistaði hét
slanga og talað var um að fika ofan af grindinni. Þekki aðeins rakningu
á grind þó ég heyrði þess aðeins getið að bjargast mætti við aðra aðferðina.
Hafaldagrind sá ég aðeins, en hnýtti ekki höföld sjálfur fyrr en
stálaugu fóru að fást og hnýtti ég ein höföld með þeim. en svo komu fullkomin
málmhöföld, sem þóttu bera af hinum, en höföld með stálaugu og vaxborið
hafalda garn voru líka ágæt. Fyrst sá ég stálhöföld nálægt 1918 og
munu þau ekki hafa komið öllu fyrr um þessar slóðir. Aðeins
eina gerð af vefjarkambi sá ég sem leit sem næst þannig út (sjá mynd).
Tveir trérenningar ca 1"á kant. Holur boraðar dálítið
inn í þá með jöfnu millibili ca.2cm og sívalar spýtur um 8mm í þvermál
reknar í andstæðar holur. Lengd þeirra ca. 8-10cm.
p8
Talað var um að setja
upp vef eða setja til stundum. Kragar voru á rifnum til varnar því
að slangan færi út af hliðarfjölunum. Tvo þurfti til að vinda slönguna
á rifinu. Tveir þræddu í höföldin, rétti annar og hinn tók við. Voru
unglingar notaðir við að rétta í höföldin, en voru oft latir við það. Þá
var það og unglingavinna að spóla. Þegar búið var að draga í nokkur
höföld minnir mig að hnýtt væri lauslega að nokkrum þráðum, jafnóðum og
þræddist, svo að ekki dragist úr aftur. Við skeiðarídráttinn krók
úr þunnu efni, sem gekk út á milli tannana og lagði hjálparmaður þræðina
í krókinn. Talað var um að hnýta á skaftið. Gæði og útlit
voðar var að sjálfsögðu háð vandvirkni og lagni vefara. Sem jöfnust uppígjöf
og ásláttur skifti miklu máli og jaðrar vor mjög misjafnir. Einnig
voru vefar misjafnlega þolinmóðir við að bæta þegar slitnaði og létu sumir
marga þræði slitna áður en bætt var. Skilgallar vildu og koma fram
hjá óvönum eða hroðvirknum og mæltist allt þetta illa fyrir, enda fengu
vefarar misjafna dóma á verk sín, eigi síður en aðrir. Þráðarspuni var
ekki vandalaust verk og gerði illa spuninn þráður vefurum oft gramt í geði,
enda gerður oft mun á heimilum þegar þeir tóku vefi af öðrum.
p9
Að taka vefinn niður,
hét að fella hann. Man ekkert sérstakt um afgansendana. Tvennskonar
þóf tíðkaðist. Votaþóf í tunnu eða stórum bala og þurraþóf á hreinu
trégólfi og þæft undir fótum í báðum tilfellum það ég til þekkti og af
karlmanni. Til var það, að þófarar færu milli bæja, en oftast varð
heimamaður til þess. Aukaglaðning til þófara. þófarabiti er vel þekkt
venja. Fyrst þegar ég man, var voðin þvætt í hitaðri
keytu í stórum bala eða stampi, en seinna lagðist það niður. Votaþófið
var helst framkvæmt í fjósinu, niðri í stampi eða bala, en þurraþófið á
timburgólfi eða hurð. Var voðin undin áður en þófið byrjaði þannig að hún
var lögð tvöföld saman og annar endinn settur fastur en sterkur göngustaður
settur á hinn endann og snúið uppá af miklum krafti og jafnframt maður
látinn strjúka vatnið úr henni og þetta því gert útivið ef verður leyfði.
Þófari var léttklæddur og berfættur (á brókinni einni). Við
þurraþófið var voðin tekin upp tvisvar til þrisvar og kippt sem kallað
var (dustuð) þannig, að fullgildur kvenmaður (eða karlmaður) tók í voðina
á móti þófaranum 8-10m. frá honum og jafnframt því að toga í voðina, var
hún lögð saman tvöföld og þá rikkt sundur svo snökkt og fast
p10
sem kraftar leyfðu
og reynt að láta smella sem hæst í um leið, en til þess urðu báðir að vera
vel samtaka og þurfti nokkra æfingu til, ef vel átti að smella. Þegar
fullkippt var fyrstu færu, var önnur tekin, þar til lokið var allri voðinni
og gátu það stundum verið nokkrar færur ef voð var löng og húspláss takmarkað.
Húsmóðir dæmdi um hvenær fullþæft var, en á það bar ég lítið skyn.
Að þófi loknum var voðin undin upp í stranga og stundum sett í pressu
og á seinni árum voru voðin sendar til Akureyrar í lóskurð og litun.
Á meðan ég átti vefstól, óf ég fyrir mitt heimili undirlök og koddaver
og notaði tvist í uppistöðu, en ull í fyrirvaf (ívaf) og með vaðmálsvígindum.
Gafst þetta mjög vel svo að heimili bjó að árum saman, en enga pjötlu
á ég þó til að senda safninu. Því miður man ég ekki lengur nöfn
á nærri öllum hlutum vefstólsins, enda aldrei heyrt sum. Var of skamman
tíma samtíða vefstólnum og þá einnig skilmerkilegu fólki, er kunni skil
á hlutum vefstólsins.
Nr. 1262
p1
Ull og tóvinna 3.
Ég verð að segja það, eins og er, að ég er mjög ófróður um allt
sem að vefnaði lýtur. Að vísu var gömul kona á bænum, þar sem ég
var, sem átti vefstað. Hún setti oft upp vef, síðari hluta vetrar,
og greip þá í að vefa stund og stund. Ég var þá svo ungur, að ég
tók lítt eftir slíkum hlutum, og svo er ég víst búinn að gleyma mörgu,
sem viðkemur vefstað og vefnaði. Ég held að það hafi verið á 3 eða
4 heimilum í Laxárdal, sem ofið var fyrir heimilin. Einum manni man
ég eftir, sem tók vefnað af öðrum bæjum, og gerði ekki annað yfir veturinn
en vefa.
p2
Yfirleitt var talað
um vefstað og vefjarskeið og spólutein. Ég man eftir nöfnum eins
og spólurokk og spjálk, en ekki að lýsa þeim hlutum. Mig minnir að talað
væri um að setja upp vefinn. Ég kannast við orðin: rakgrind, fyrirvaf,
balbínur og að balbína. Og þá má nefna höföld og hafaldagrind. Höföldin
í vefstað gömlu konunnar, er ég gat um áður, voru heimaunnin. Svo
voru rif og rifsköft. Ég held að tveir eða tvennt hafi unnið að því
að draga í höföldin. Krækja var höfð þegar dregið var í skeið.
p3
Þóf: Tveir
undu úr voðinni með þeim hætti, að járnkarlar eða kefli voru sett í báða
enda vaðmálsins, og snéri þá annar þeirra upp á voðina, þar til hún þótti
full undin. Á bænum þar sem ég var, þæfðu heimamenn, en ég vissi
til þess að sum heimili fengu mann af öðrum bæjum til þess að þæfa.
Ég held að flestir hafi verið á nærbuxunum og nærskyrtunni við þófið.
Öðru hvoru var voðin svo hrist upp, og gerðu það tveir eða tvennt, með
því að teygja vaðmálið á milli sín og hrista af því lóna. Þegar ekki
sást lengur fyrir vend vaðmálsins var voðin fullþæfð. Að því búnu
var vaðmálið undið upp á rúmfjöl og sett undir farg, þungar kistur eða
koffort. Á þeim árum sendu sumir vaðmál út, til litunar og lóskurðar.
p4
Athugasemd: Ég
hef spurt eldra fólk, sem þekkti vel til vefnaðar og vefstóla, en það mundi
óglöggt nöfn á einstökum hlutum vefstólsins, svo ég tók það ráð að senda
skrá óútfyllta, heldur en að skrifa einhverja vitleysu, því eins og ég
hef ápur tekið fram, man ég sjálfur yfirleitt ekki nöfnin það vel, að ég
treysti mér til þess að skrásetja þau á skrána.
Nr. 1531
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Það sem hér verður sagt miðast að langmestu leyti
við það sem ég þekkti til vefnaðar á æskuheimili mínu Oddgeirshólum í Flóa.
Þegar ég var að alast upp, var ofið meira eða minna á hverjum vetri.
Gott þótti að geta lokið af einni eða tveimur voðum fyrir hátíðir.
Ekki man ég hvenær byrjað var, eða hvort þar gilti einhver sérstök
venja. Þar voru húsakynni lítil en heimilisfólk margt, og stundum
farkennari og börn, sem sóttu skóla frá næstu bæjum, og auk þess stundum
komið til dvalar börnum, sem lengra áttu að sækja. Því get ég þess,
að reynt var að stilla svo til að ekki væri vefstaður uppsettur meðan kennsluvikur
stóðu yfir. Þó mun það stundum hafa farið saman, en þá einkum eftir
að dag tók að lengja. Venja var að byrja vefnað á haustin eða fyrri
hluta vetrar með því að vefa úr garni (tvisti). Venja var að leggja
upp langar voðir úr garni. Minnir
p2
mig það væri alltaf
einskefta. Var þá oft hafður sá háttur á, að hluti voðarinnar var
ofinn með garni í fyrirvaf, venjulega talað um "garn í garn".
Aldrei var það nefnt tvistur, heldur vefjargarn. Það var haft
í lök, sængurver eða milliskyrtur karlmanna. Að sjálfsögðu var uppistaðan
hvít og ívaf líka í lökin. Aftur á móti var mislitt fyrirvaf í sængurver
og skyrtur, hið síðara oft með röndum. Fyrir kom að spunnið var ullarívaf,
(í daglegu tali veftun) í rekkjuvoðir, en líklega hefur verið algengara
að vefa þær þá með vaðmálsvend. Svo kemur nú að aðalskrautinu
í garnvoðinni, en það voru millipilsin, sem þá þótti ómissandi flík fyrir
konur á öllum aldri. Í þau var alltaf spunninn veftun úr góðri ull,
venjulega í ljósum litum, ljósgrátt, ljósmórautt, jafnvel fölgrænt eða
blákembt. Í randir voru hafðir dekkri litir, venjulega sauðalitir
í ýmsum litbrigðum, en oft prýtt
p3
með smáröndum í skærum
litum, venjulega rauðu eða bláu. Ýmist var mynstrið reglulegt eða
svokölluð elting, þ.e. fyrsta röndin í bekknum breiðust, en fóru vo mjókkandi,
síðast kannske aðeins 2 fyrirvöf. Venja var að hafa smárönd mitt
á milli aðalbekkjanna, gjarna "tennta" (þ.e. skyttunni skotið
tvisvar frá sama jaðri) og gerður munur á einskeftutenningu og vaðmálstenningu.
Stundum var randamynstrið vafið á spjald, áður en byrjað var að vefa,
einkum ef óvanir áttu í hlut. Venja var að hafa aðeins eitt pils
af hverri gerð og átti væntanlegur eigandi tillögurétt um mynstur og var
oft farið eftir þeim óskum. Sniðið var úr voðinni þversum, og stóðu
randir þá lóðrétt. Læt nú útrætt um þetta. Nú má gera ráð
fyrir að komið sé nálægt jólum og vefstaðurinn því tekinn upp og geymdur
fram yfir hátíðir. En meðan verið var að vefa garnvoðina, hefur verið
unnið af kappi að því að spinna í næstu voð, sem að öllum líkindum hefur
verið svonefnd buxnavoð, vegna þess að úr henni voru einkum saumaðar buxur
á karlmenn á
p4
öllum aldri. Aldrei
man ég eftir að saumaðir væru jakkar, en fyrir kom að gerðar voru einfaldar
úlpur, jafnt á konur sem karla úr slíkum voðum. Svo lengi sem ég
man eftir voru þessar voðir unnar úr sauðarlitri ull, ég held alltaf sauðsvartri.
Gerðin var klæðavend, öðru nafni "veiba". Alltaf
var spunninn tvöfaldur þráður, harðtvinnaður og undinn jafnt og fast á
sauðarvölur, hnyklarnir kippaðir upp á band og geymdir þannig, þangað til
farið var að rekja í voðina. Veftur var ýmist einfaldur eða tvöfaldur,
oftar þó hið síðarnefnda. Ekki voru þættirnir alltaf tvinnaðir saman,
heldur látinn duga snúður, sá sem kom á þegar undið var saman. Veftinn
skyldi vinda laust og mjúklega, gagnstætt þræðinum (þ.e. uppistöðunni),
enda oft hafður svo snúðlinur að slíkt hefði hann ekki þolað. Ef
veftur varð of snúðharður "gekk hann ekki að" eins og það var
kallað. Svona voðir var erfitt að vefa og þurfti mikinn aðslátt.
p5
Þegar kom fram á
útmánuði var svo röðin komin að salúninu, en það voru rúmteppi eða brekán.
Venja var að hafa ullarþráð í uppistöðu og venjulega var hann litaður
svartur. Ekki þótti bera nauðsyn til að vanda svo sérlega ullarvalið
í þráðinn. Aftur á móti var reynt að hafa góða ull í salúnið og jafnvel
veftinn, ef hægt var.
Venja var að lita
salúnið skærum litum, oftast rautt eða grænt, stundum voru líka hafðar
mjóar randir af öðrum lit, einkum þótti það fara vel að hafa skæra randaliti
með jurtalituðu salúni,sem var á tímabili nokkuð algengt.
Stundum var uppistaða og veftur garn (tvistur) og mun það hafa verið algengara
eftir að farið var að vefa dívanteppi. Að sjálfsögðu varð þá salúnið
að vera fínna, til þess að falla að, og vissi ég dæmi til að slík teppi
væru ofin úr aðkeyptu efni eingöngu (þ.e. fínt ullargarn í salún).
p6
Þá hef ég í stórum
dráttum lýst tilhögun við algengustu gerðir vefnaðar, en að sjálfsögðu
er þetta engin tæmandi lýsing, heldur einskonar rammi, gerður úr óljósum
minningum, seumum allt frá bernskudögum. Næst ætla ég að aðeins að
drepa á nokkur afbrigði frá því sem áður er lýst. Spurt er um hvernig
hagað hafi verið rakningu í tvílitar voðir. Því miður get ég enga
lýsingu gefið á því. Að vísu voru þannig voðir ofnar heima líka,
en mjög sjaldan. Ég minnist þess að til voru sængurver í 2 litum,
köflótt, sum rauð og hvít, en önnur blá og hvít og höfðu þau verið ofin
heima, en það var fyrir mitt minni. Eins og áður segir voru sængurver
ofin einlit í garnvoð t.d. rautt ívaf í hvíta uppistöðu, og varð af bleikt
eða blátt ívaf sem gerði misjafnlega ljósbláa voð eftir því hve litsterkt
fyrirvafið var. Allmiklu seinna (máske kringum 1930), var ofin heima
köflótt alullarvoð, minnir mig að bæði þráður og veftur væri einfalt, dökk
sauðsvart
p7
og mórautt. Kaflarnir
voru smáir, 6-8 þræðir gæti ég trúað. Úr þessari voð voru saumuð
"sport" föt, eins og tíðkuðust í kringum 1930, þ.e. pokabuxur
og blússur með rennilás. Hygg ég, að þessi voð hafi verið unnin þegar
ég var ekki heima, því að ég man aðeins eftir voðinni sjálfri, en ekki
hvernig hún var unnin, en ég dvaldi við nám á Laugarvatni veturinn 30-31.
Þá minnist ég einskeftuvoðar með garn í uppistöðu í mógráum lit,
og ullarívafi, sem einnig var einhvern veginn móleitt, en ýrt í skærum
litum, svo að þannig litlir smáhnökrar komu fram í voðinni. Þessi
voð var höfð í reiðföt kvenna. Síðustu voðirnar, sem ég veit
til að ofnar hafi verið heima, voru dívanteppi, sem faðir minn óf, þau
síðustu 1935 (hann lést 1936). Uppistaða var vefjargarn, mynstur svonefndur
Þelamerkurvefnaður. Fyrirvaf var að sjálfsögðu líka vefjargarn, en
salún var aðkeypt ullargarn. Litur var í sumum voðunum.
p8
Stálgrá uppistaða
og ívaf, og þá salúnið svart. Eitthvað af þeim teppum mun enn vera
til í Oddgeirshólum. Í öðrum voðunum var uppistaða ljósbrún og samlitt
ívaf, salún dökkbrúnt. Á ég ennþá teppi með síðarnefnda litnum. Þessi
teppi þóttu mjög falleg og munu hafa verið söluvara, en ekki man ég gangverð
á þeim. Spurt er hverjir einkum hafi annast vefnað. Heima voru það
fremur karlar en konur, sem það geru. Fyrst man ég eftir að vinnumaður,
sem var hjá foreldrum mínum, sat daglangt í vefstað, og munu honum ekki
hafa verið ætluð önnur verk meðan vefur var uppi. Að vísu fór hann
til sjós, en keppst var við að koma sem mestu frá áður en vertíð byrjaði.
Þessi maður er enn á lífi í Rvk. Faðir minn var ágætur vefari
og óf á tímabili flestar voðir, sem unnar voru heima. Þó man ég eftir
að einu sinni var fenginn gamall maður af næsta bæ, ágætur vefari, en ekki
man ég hvað
p9
hann óf. Síðar
lærði unglingar að vefa. Ég hygg að unglingspiltur, sem heima var
kringum 1920, hafi byrjað að vefa 15-16 ára og bróðir minn, sem einnig
lærði að vefa, mun hafa verið nálægt fermingaraldri þegar hann byrjaði.
Við tvær, þær eldri af þremur, systur, lærðum aðeins léttustu og
einföldustu aðferðir við vefnað. Á næsta bæ við Oddg.h. var húsmóðirin
ágætur vefari, og óf að ég hygg á hverjum vetri. Var hún vön að rekja
í voðirnar heima í Oddgeirshólum, og minnir mig að faðir minn hafi oft
reiknað út í voðina með henni og jafnvel móðir mín líka, sem alltaf fylgdist
með slíkum útreikningi, þótt ekki væri hún sjálf vefari.
Venja var að vigta
hnyklakippuna og sennilega hefur eitthvað verið dregið frá þyngdinni fyrir
völur, þótt ég muni það ekki. Síðan var mælt með alinmáli af einum
hnyklinum, og merkt glögglega við voðarlengdina með stórum hnút eða vilsitu
bandi. Undið aftur uppá hnykilinn og byrjað að rekja.
Rakningsgrind var þannig fest upp að negld var slá (lauslega) á sperrur
þvert yfir herbergið í
p10
mátulegri hæð. Síðan
var safnað saman öllum döllum og kyrnum, sem hægt var að láta hnykil velta
í. Balbínustóll var ekki til. Ekki man ég glöggt hvað "rakið
var á mörgum" eins og það var orðað. Minnir mig þó að 8-10 þræðir
væri algengast. Ekki man ég eftir að notaður væri rakningsspaði heldur
var þráðurinn látinn leika í greipum. Krísholt hétu trén, sem fest voru
í grindina þegar byrjað var að rekja. Hver umferð var kölluð feti. Ekki
mátti rekja utan á slönguna. Minnir mig að venja væri að leggja jafnan
nýja fetann neðan við það sem komið var. Öðru hvoru var talið og
þó gjarna sett merki við en ekki man ég eftir að þau merki væri nefnd sérstöku
nafni. Vel má vera að stundum hafi verið fullgildur aðstoðarmaður
við rakningu, en ekki minnist ég þess að heiman. Aftur á móti vorum
við krakkarnir snemma látin fara að fylgjast með, segja til þegar búið
var af hnykli og rétta nýja, að ógleymdu því ljúfa verkefni að hirða kindur
okkar
p11
upp úr döllunum,
jafnóðum og þær losnuðu úr fjötrunum, og var það oft fagnaðarfundur. Þegar
fór að síga á seinni hlutann var oft venja að jafna á hnyklum, þannig að
rekja dálítinn slatta ofan af heilum hnyklum, svo að mismunur yrði minni
þegar dró að lokum. Þó minnir mig að stundum væri "fellt af",
þ.e. þegar ekki voru til fleirri hnyklar til að bæta við, var rakið á 6-4
eða jafnvel tveimur að síðustu. Ekki man ég eftir að það
héti sérstöku nafni, að taka slönguna af rakningsgrind. Eftir að
búið var að binda tryggilega í skil, var slangan losuð fyrst var gerð á
lykkja, sem var lauslega hnýtt, síðan var hendi stungið gegnum lykkjuna
og þannig mynduð önnur lykkja, og svo koll af kolli eins og þegar hekluð
er fit. Fyrsta atriðið við að bóma var að leggja í kamb.
Síðan var kamburinn staðsettur við bómuna og minnir mig að vefarinn
p12
sjálfur stæði við
kambinn og stjórnaði honum. En það þurfti líka valinn mann til að
halda í slönguna og yfirleitt fannst manni þetta mjög hátíðleg athöfn á
þeim árum. Kragar voru á rifnum, sem héldu að slöngunni báðu megin,
en ekki treysti ég mér til að lýsa frágangi nánar. Dregið
var í höföld með krækju og rétti annar fram. Var það lengi mitt starf
að rétta. Venja var að bregða hnúti á endana, jafnóðum og dregið
var í, sennilega hafðir álíka margir endar í hverjum lokk, þótt ég muni
það ekki. Þegar dregið var í skeið, var skeiðarslagið bundið fast
(við bómuna minnir mig). Kom dálítill skái á rittið, svo að það lá
vel við. Nú rétti vefari sjálfur fram, en sá sem rétti endana í höföld
dró í. Endar í tönn voru oftast 3-4, þó má vel vera að stundum væru 2.
Mig minnir að hnýtt væri á vissan endafjölda og síðan væri lykkjunum
brugðið upp á framhnýtingarskaftið, þó má vera að mig rangminni þetta.
p13
Uppbindingu treysti
ég mér alls ekki til að lýsa, en heima var alltaf talað um að krækja upp.
Í skammelunum voru lykkjur úr galvaniseruðum vír og krókar úr sama
efni í hliðaskammelum (minnir mig). Ég komst aldrei svo langt að
læra uppkrækingu. Það var kallað að draga fyrir, þegar byrjað var
á voð. Gjarna var þá athugað vel hvernig áferð yrði með mismunandi
ígjöf. Það þóttu vandaðri voðir sem voru veftaðar, heldur en ef þráðurinn
hafði betur, voru varpaðar, en að sjálfsögðu gengu þær síðartöldu voðir
betur fram. Gefið var í með einu handtaki stóran eða lítinn boga,
eftir því sem átti við á hverri voð. Betra þótti að færa oft spanstokkinn.
Þá varð voðin sléttari. Venja var að mæla álnarlangan spotta
og bregða honum í vefinn og afköst mæld og talin í álnum. Talað var
um að færa, þegar voðin var undin upp á og þar af dregið no. færa. Ég
er búin með eina færu. Helstu gallar í voð minnir mig vera brigður
(þ.e. verpingur).
p14
Var reynt að jafna
brigðurnar með ígjöf og ennfremur, ef skakkt varð fyrir var gefið meira
í, þar sem minna gekk fram. Fyrirskekkja gat orðið til stórlýta,
einkum ef randir voru í voðinni, því að þá vildi verða lengra á milli í
þann jaðarinn, sem betur gekk fram, og alltaf þótti það galli, ef skakkt
varð fyrir. Ekki man ég nú hvað talin voru venjuleg afköst
við vefnað. Fór það að sjálfsögðu eftir dugnaði og æfingu vefarans,
svo og gerð vefsins. Minnir mig að lagt væri að líku alin af garni-einskeftu
og salúni, þegar greiðsla var tekin fyrir vefnað, og held ég að venja hafi
verið að taka eina krónu fyrir hverja alin af þeim voðum. Fyrir grófari
boðir var að mig minnir tekið frá 50-75 aurar. Það þóttu góð afköst,
að vefa alin á klst. jafnvel þótt voðin væri gróf. Algengt var að
bregða upp á gamni við vefarann og spyrja t.d. "Hvað ertu búinn að
p15
flækja margar í dag"?
Eða þegar kom að því að voðinni væri lokið: "Ertu nú dottin
í sundur"? Venja var að hafa "afuggur (alltaf nefnt svo),
sem styttstar, þó þótti ekki nauðsynlegt að nýta garnvoðir eins og vef
og þráðarvoðir, því að hægt var að hagnýta garn-afuggur til að þræða saman
flíkur, því að allt var saumað heima. Þegar búið var að klippa
frá var voðin undin upp í stranga. Þótti þá tilvalið að bregða sér
í Gilitruttarleik, ef einhver nennti að taka að sér hlutverkið.
Ef þæfa þurfti voðina, var hún tekin til þeirra aðgerða, sem því fylgdu
þegar tækifæri gafst. Vatn var hitað í stórum potti á hlóðum, og
þar í látið þvottasódi og grænsápa, voðin þvæld þar í svo lengi sem þurfa
þótti. Nú minnir mig að potturinn væri borinn út á hlað, voðin rakin
upp úr brugðið í nokkuð langar, margfaldar
p16
lykkjur og sterkum
prikum, jafnvel járnkarli, brugðið í báða enda, annar endinn settur fastur,
en snúið upp á hinn. Þannig var undið þar til voðin þótti hæfilega
undin til að byrja þófið. Betur gekk að þæfa, ef voðin var höfð í
votara lagi, en þá vildu bófarabrigður koma, og þær þóttu ekki prýða. Alltaf
voru voðir þæfðar undir fótum, og oftast var það gert þannig að hleri var
settur í einn fjósbásinn, þar sem hlýjast var, og þæft þar. Konur,
einkum þær eldri töluðu um að láta "stíga upp á voðina", þegar
þær áttu við þæfingu. Á seinni árum voru voðir oft sendar í verksmiðju
(Álafoss) til þæfingar, og þá voru þær einnig pressaðar og lóskornar. Ef
voðir voru pressaðar heima, var það þannig gert, að þær voru vafðar upp
á fjöl (rúmfjöl) strax að þófi loknu, eitthvað sett til hlífðar utan um
þær og síðan var einhver þungur hlutur látinn standa á, jafnvel svo vikum
skifti.
p17
Eftir hæfilegan tíma
var rakið ofan af fjölinni, voðin lögð í stórt brot og "sofið á henni"
í bókstaflegum skilningi, þeas. hún var lögð í rúm, em þá voru venjulega
með þungum sængum. Var þetta þó nokkur pressa, því að allan daginn
var setið á rúmunum við margskonar vinnubrögð. Svo sem áður
segir kom það fyrir að voðir væru sendar til frágangs í verksmiðju. Mun
það einkum hafa verið gert við vandaðri voðir. Mér eru í barnsminni
dökkrauðir kjólar úr fínu vaðmáli, sem við systur áttum. Sömuleiðis dökkgræn
föt, sem bróðir minn átti úr samskonar voð. Þykir mér trúlegt að
það hafi verið litað og lóskorið í verksmiðju, þótt ég geti ekki munað
það. Aftur á móti man ég vel eftir voð, sem ofin var heima, eftir
að ég stálpaðist. Var það hvít alullarvoð, lituð rauð og höfð í kvenkjóla.
Vissi ég til að um það leyti voru slíkar voðir ofnar á fleirri bæjum
í nágrenninu. Það er undarlega margt sem rifjast hefur upp,
síðan ég fór að hugsa um
p18
að svara einhverju
af þessu. Meðal annars skaut því upp í huga mínum að einu sinni voru
ofin í Oddgeirshólum rúmteppi með salún í sauðalitum. Minnist ég þess hversu
falleg litbrigði komu fram frá dökkgráu niður í hvítt, ennilega 3-4 litir.
Mynstrið man ég ekki vel, ég hygg að það hafi verið bekkjagerðin,
sem algengust var. En eitt er það sem mér er ómögulegt að
henda reiður á, og hef þó töluvert hugsað um það. Ég man eftir slitrum
úr aflögðu rúmteppi með mynstri sem kallað var H og Ó. Ég þykist
muna glöggt hvernig það leit úr, en get ómögulega náð því upp.
Óskýr mynd af Þelamerkurmynstri fylgir með, ég er ekki úrkula vonar um
að ég finni kannske smáprufu, sem ég þykist muna eftir og sendi hana þá
seinna. Og mun nú má að linni.
p19
Yfirlit. Vefnaður:
Hef lýst vefnaði svo vel sem ég get, og vísast til þess. Vefstóll:
Get litlu bætt við það, sem myndin sýnir. Ekki vissi ég til
að tvíbreiðir vefstólar þekktust. Venja mun hafa verið að þeir sem
ekki áttu vefstóla kæmu vefnaði fyrir hjá öðrum. Hitt mun einnig
hafa þekkst að 2 bæir væru um einn vefstól. Skeið: Ég
man eftir einu ritti úr látúni, sem vafalaust hafur verið íslenskt, þótt
ég viti ekki hver smíðaði. Það var gróft, mig minnir 40 tanna, miðað
við tennur á kvarteli. Að sjálfögðu var það aðeins notað á grófar
voðir. Algengust voru 60-70-80 tanna rittin. Trúlegt þykir
mér að lengdin hafi verið sú, sem þarna er nefnd.
p20
Vefskytta: Gott
þótti að eiga margar skyttur. Ég get ekki munað úr hverju þær voru,
minnir þó óljóst að faðir minn smíðaði skyttur, ef þurfti. Einhverskonar
"skíði" voru undir sumum skyttum, fjaðrir úr látúni eða jafnvel
sléttum vír. Sumar voru með heilum botni en venjulegra var að spóluholið
væri opið ofan og neðan, spóluteinn beinn og sléttur, féll að lítilli plötu
en fyrir innan plötuna lítil fjöður, sem hélt teininum í réttum skorðum
meðan raknaði af spólunni. Spóluhólkar smíðaðir úr sléttu járni,
stundum líka spólað á aflögð spil, aldrei fiskroð. Spólurokkar:
Venja var að spóla á óvandaðan rokk, tvinningarrokk. Tréteini var
stungið í pípuna og spólunni smokkað þar upp á. Rokkurinn stiginn
eins og þegar spunnið var. Á næsta bæ var til stór handsnúinn spólurokkur,
og var hann stundum fenginn að láni, ef ekki var vefstóll uppi þar, þegar
verið var með vef heima.
p21
Eftir að prjónavél
kom að Oddgeirshólum 1923 eða 1924 var alltaf spólað á spólurokk, sem fylgdi
henni. Spanstokkur: Alltaf nefndur svo, en síðar heyrði
ég talað um spjálk (talið skaftfelskt). Tennur, 3 minnir mig, voru
í endunum, sem vissu út í jaðrana, endarnir sem féllu saman voru annar
með 2 álmum hinn með einni og féll hún í bilið milli þeirra tveggja á þeim
fyrrtalda. Allar voru álmurnar gataðar með jöfnu millibili. Lítill
vírteinn féll í götin og var hægt að lengja eða stytta í eftir þörfum.
Lítill snerill var festur á tvíarma hlutann og með honum var lokið
þegar stokkurinn hafði verið spenntur, svo sem mátulegt var talið.
Að leggja upp: Áður lýst eftir bestu getu. Að reikna
í skeið: Treysti mér ekki til að lýsa því.
p22
Að reikna í vef:
Kannast við öll þau orð sem þarna eru nefnd. Rakningsgring:
Áður lýst. Balbínur: Get ekki lýst þeim.
Rakningsspaði: Þekkti aldrei það áhald. Rakningsstokkur:
Ekki til í Oddgeirshólum. Sá einu sinni slíkan stokk með ferköntuðum
hólfum, man ekki hve mörgum. Rakning á rakningsgrind: Áður
lýst. Rakið á vegghæla: Þekkti það aldrei. Rakið á
rúmstólpa: Sá það aldrei gert. Hafaldagrind: Minnir
að það væri nefnt hafaldatré, sendi lítið sýnishorn.
p23
Hafaldaefni og höföld:
Í höföldin var alltaf notað seglgarn (netagarn). Stálhöföld
hef ég aldrei séð.
Ekki veit ég við
hvað er átt með vartág. Á vefstaðnum í Oddgeirshólum léku hafaldasnúrur
á litlum hjólum, trissum. Mig minnir að yst á hafaldasköftunum hafi
verið festir smánaglar, sem héldu að. Höföldin geymd hjá öðru lauslegu
úr vefstað. Að öðru leyti vísað til sýnishorns. Vefjarkambur:
Tennur úr tré, festar í neðri hluta kambsins, efri hlutinn laus,
svo að hægt var að opna til að láta í kambinn og loka síðan. Að
láta í kamb: Það mun hafa verið algengara "að leggja í kamb",
en hvorttveggja þekktist. Treysti mér ekki til að lýsa þessu nánar
en þarna er gert. Að festa upp: Algengast var "að
setja til".
p24
Að bóma vef: Talað
var um að bóma. Að öðru leyti áður lýst eftir bestu getu.
Að draga í höföld: Áður lýst. Að draga í skeið: Áður
lýst. Að hnýta fram: Þegar losað var um skeiðarslagið
kom slaki á. Minnir mig teini væri stungið í lykkjurnar, snærum brugðið
um þa 3 stöðum og ofið með þeim þar til voðin náði niður á rifinn. Þá
voru snærin tekin, teinninn lagður í gróp í rifnum og undið upp á.
Að fella vef: Mig minnir að það væri nefnt svo. Áður
lýst nánar. Þóf: Að nokkru lýst áður. Venja var
að karlar þæfðu, væru í léttara lagi klæddir. Oft var hrist upp,
þ.e. einhver annar kom og
p25
tók í voðarendann,
stóð svo sem faðmslengd frá þófar og kipptu þeir í, þannig að sléttist
sem best úr hrukkum. Það þótti betra, ef háir smellir komu og voru
þeir nefndir strákar. Þeir óverulegri hétu þá auðvitað stelpur. Síðan
var auðvitað fært til, þar til búið var að hrista upp alla voðina. Þófið
varð fallegra, ef oft var hrist upp. Venja var að bera þófaranum
kaffi eða annan glaðnig, svo oft sem hann óskaði og minnir mig að hann
fengi líka einhvern sérstakan glaðning þegar þófi var lokið eða kannske
að kvöldi sama dags. Það var þófarabiti. Frágangi þæfðrar voðar
áður lýst. Vefjarsýnishorn: Hef nýlega sent smá sýnishorn
og ef ég skyldi finna eitthvað fleirra, skal ég halda því til haga.
p26
Þófaraþula: Bárður
minn á Jökli - leggst þú á þófið mitt - ég skal gefa þér lóna - leppana
innan í skóna - naglabrot í skipið þitt - ef þú þæfir þófið mitt - mórautt
lamb og gimburskel - og meira ef þú þæfir vel. Eftirfarandi
vísu kenndi mér gömul kona í Oddgeirshólum, Sigríður Oddsdóttir: Þófarinn
sat á hörðum stokk - hafði iðju stranga - þegninn var að þæfa sokk - þótti
honum ekki ganga.
Nr. 1321
p1
Ull og tóvinna 3.
Formáli: Þar sem ég var barn á þeim árum, sem svörin miðast
einkum við, get ég ekki lýst öðru um vefnað, en því sem ég sá og veitti
eftirtekt á mínu æskuheimili. Það var þó ýmislegt, sem ég lærði aldrei
er snerti vefnað, eins og t.d. að reikna út í vef ofl. Vefstóll
föður míns var hraðskyttuvefstóll, líkastur að gerð vefstól C og voru 4
hafaldakambar og 4 sköft á þessum vefstól, sem fest voru við 4 skammel,
er vefarinn steig eftir vissum reglum. Vendin á voðinni fór eftir
því hvernig dregið var í höföldin og varð að stíga skammelin eftir því
hvaða vend var á voðinni. Aldrei lærði ég þessar listir, því ekki
var unglingum treyst til að vefa fyrr en þeir voru orðnir nær tvítugir
að aldri. Sama var að segja um að rekja vef. Hjá foreldrum
mínum var oftast ofið vaðmál, en einnig klæði, dúkur og vormeldúkur, en
ekki einskefta, salon eða glit. Dúkur var oftast úr tvisti ofinn.
Mun ég nú svara spurningunum eftir getu. Faðir minn smíðaði
vefstólinn að öllu leyti.
p2
Vefnaður almennt:
Sjaldan var vefur settur upp fyrir jól, nema efnið væri til frá vetrinum
áður eða þá tvistur hafður í vefinn. Ef svo var, var vefurinn settur
upp um veturnætur og lokið við hann fyrir jól. Oftast var vefur settur
upp í þorrabyrjun, og svo annar í miðgóu, ef þorravoðin var ekki svo löng
að það tæki alla útmáðunina að vefa hana, en sjálfsagt þótti að ljúka vefnaði
fyrir sumarmál, því þá hófst útivinna, ef tíð var góð. Heima hjá
mér ófu faðir minn og elsti hálfbróðir minn aðallega, en fyrir kom þó að
móðir mín og næstlesti hálfbróðir minn gripu í vefinn, ef tími gafst til
þess. Aldrei var ofið nema á milli mála á meðan bartast var. Þóttu
góð afköst á þeim tíma að vefa 3-5 álnir milli mála í hraðskyttuvefstól,
en seinlegra var að vefa í handskyttuvefstól, miðað við vðamál. Austan
vatna voru til menn, sem fóru um að vefa, en ekki veit ég hver laun þeir
fengu auk fæðis.
p3
Vefstóll: Hann
nefndist ætíð vefstóll. Ég hygg að til hafi verið á stöku bæ í Skagafirði
gamlir kljásteinsvefstólar fram undir miðja 19. öld. Jón Samsonarson
alþm. í Keldudal í Hegranesi mun hafa átt einn slíkan, en ekki notað hann.
Úr honum voru til nokkrir kljásteinar fram á mína daga í Hróarsdal,
sem var næsti bær. Allir eru þeir löngu týndir. Eins og ég
tók fram á spássíu formálans, smíðaði faðir minn sjálfur sinn hraðskyttuvefstól.
Grind hans var svipuð grindinni á gerð A, nema uppihöldin (10) náðu
lengra fram og hékk slagborðið niður úr þeim eins og á C, en hinar háu
stoðir að framan frá fótstykki til uppihalda (23) vor ekki, heldur voru
hliðarstoðir úr afltré í uppihöld aftan við slagborð. Að öðru leyti líktist
hann mjög C og vefjarslöngurifur á sama stað, en honum var snúið með þar
til gerðum lykli úr járni (sjá bakhlið). Engum smið man ég eftir
er smíðaði vefstóla til sölu. Um verð á
p4
vefstólum heyrði
ég aldrei talað, en dýrir voru þeir. Sigurður Ólafsson á
Hellulandi, smíðaði sinn vefstól einnig. Það var hraðskyttuvefstóll.
Sigurður fann upp og smíðaði svonefnda "skaftavél". Það
var einskonar hraðskyttuvefstóll, en þannig gerður að ekki þurfti annað
en að slá slagborðinu á ívafið, þá gerði vélin sjálf skilið og skaut skyttunni.
Aldrei sá ég þessa vél, en til mikils skaða eyðilagðist hún. Í þessari
vél var auðvelt að vefa 20-25 álnir á milli mála. Nú er þessi uppgötvun
þessa mæta manns með öllu glötuð. Aldrei sá ég né heyrði talað um
tvíbreiðan vefstól. Hraðskyttuvefstólar voru mjög líkir handskyttuvefstólum
að gerð, nema slagborðið. Í slagborði hraðskyttuvefstóls voru bönd
og kólfur, sem var í sambandi við skyttuhulstrið. Í þennan kólf var
kippt ýmist til hægri eða vinstri og rann þá skyttan með miklum hraða gegnum
skilið og í skyttuhulstrið hinu megin og um leið raktist ívafið af spólunni
í skyttunni. (Hér er teikning á bakhlið blaðsins).
p5
Af 16 bæjum í Hegranesi
var vefstóll á 6 bæjum. Á hinum bæjunum fengu sumar konur ofið hjá
nágrönnunum. Aðrar lögðu oft saman í vef við grannkonur sínar, þannig
að þær lögðu t.d. til 1/3 eða helming af uppistöðu og ívafi í vefinn og
fengu svo 1/3 eða helming voðarinnar eftir því sem þær höfðu lagt til frá
sér. Ekki vissi ég hvað tekið var fyrir að vefa hverja alin voðar,
því faðir minn tók aldrei neitt fyrir, þó hann væfi þannig fyrir nágranna
sína, enda voru þeir flestir fátækir. Um verð á vefstólum er mér
ókunnugt, því þeir gengu sjaldan kaupum og sölum, nema þá helst á uppboðum
á dánarbúum og þar var ekki fast verð. Vefjarskeiðar: Tvær
skeiðar notaði faðir minn, aðra fína á venjulegar voðir og hina grófa til
að vefa brekán úr tvinnuðu bandi og annað gróft vefjarverk. Skeiðar
þessar voru úr stáli og
p6
smíðaðar erlendis.
Lengd skeiðanna var um 5 kvartél. Aldrei vissi ég tannafjölda þeirra
á kvarteli. Vefjarskyttur: Þær voru tvennskonar, hraðskyttur
og handskyttur. Hraðskyttan var lengri en handskyttan. Neðan á hraðskyttunni
voru 2 rúllur, sem snérust á ás. Þær voru sín við hvorn enda á spóluraufinni
(sjá teikningu). Á endum hraðskyttunnar voru oddhvassar hettur úr
stáli, sem gengu inn í leðurhólkana neðan á rennilokunum í slagborðinu,
og var skyttunni skotið gegnum skilið með því að kippa snöggt í kólfinn,
ýmist til hægri eða vinstri. Leðurhólkarnir voru trektlaga. Aðalefni
í hraðskyttum og handskyttum var harðviður, brenni eða maghoni. Neðan á
handskyttum voru spennur eða einskonar skíði úr eir eða látúni, til þess
að þær rynnu betur gegnum skilið.
p7
Faðir minn renndi
spólur í skytturnar, oftast úr brenni (beiki), ef það var til. Aldrei
heyrði ég talað um að voð væri notað í stað spólu eða annað efni en tré.
Spólurokkur: Flestir notuðu gamla rokka til að spóla
á. Var þá settur sérstakur spóluteinn í rokkinn í stað snælduumbúnings.
Trissa með skorum var aftan á spóluteininum. Faðir minn notaði
gamlan svonefndan skotrokk til að spóla á, höfðu 2 hjól verið á honum áður.
Pallur þessa rokks var óvenjulega langur. Fjórir stuðlar voru
upp úr pallinum, tveir á hvorum enda pallsins. Þverslár voru á milli
þessarra stuðla, og á þeim voru skörð fyrir hjólteinana. Upp úr miðjum
þverslánum voru afturstandari og framstandari og biti var á milli standaranna
fyrir ofan hjólin. Jómfrú fyrir spóluteininn
p8
var upp úr framenda
bitans. Spjálk: Það, sem hélt jöðrum voðarinnar út, er ofið
var, var æfinlega nefnt spjálk. Spjálkin var ætíð sett rétt fyrir
framan vefarann í voðina. Í spjálkinni voru 3 járnoddar út úr endunum,
sem gengu í gegnum jaðra voðarinnar. Ekki veit ég hvernig lagt var
upp í vef og ekki hvernig reiknað var í skeið eða vef. Ívaf var ætíð
nefndur þráðurinn á vefjarspólunni og var sá þráður snúðlinari en þráður
í uppistöðunni. Rakningargrind: Hún var ætíð nefnd rakgrind.
Það voru raunar 2 grindur. Var önnur ögn minni en hin þ.e.
lægri. Göt voru gegnum þessar grindur að ofan og neðan og gekk sívalur
hæll eða stutt prik í gegnum þessi göt.
p9
Neðri hællinn lék
í holu í gólfinu, en sá efri lék í svift úr leðri, er fest var á bita neðan
í loftinu. Tréð sem skilhælarnir voru festir á var ætíð nefnt grísholt.
Rakgrindur voru til víðast, þar sem vefstólar voru til. En
væru þær ekki til voru þær fengnar að láni. Aldrei heyrði ég talað um að
rakið væri á hælum. Balbínusnældur og balbínustóll. Þær nefndust
ætíð Balbínusnældur, voru lengri en rokksnældur og með stóra einfalda snúða
á báðum endum. Snælduleggurinn var holur innan og var honum smeygt upp
á spóluteininn á spólurokknum, þegar balbínað var á þær. Oft var
balbínað á 10 snældur í vefn, en stundum á 12 snældur. Svo voru þær
settar í balbínustólinn (sjá teikningu) til að rekja af þeim. Þessir
10 eða 12 þræðir nefndust feti.
p10
Þegar balbínað var,
var hespan sett á svonefnda krónu eða garnavindu og snérist þá krónan,
þegar þráðurinn raktist af hespunni. Einfaldasta gerð af garnvindu
var hin svonefnda krosskróna, sem líktist vængjum á hesputré. Faðir
minn bjó til krónur úr mörgum þunnum, löngum tréræmum, er festar voru í
snúða efst eða neðst á krónuleggnum, var sú samsetning allflókin. Efri
snúðurinn var laus og gat færst upp og niður á leggnum, og mátti því leggja
krónuna saman, þegar hún var ekki í notkun, en svo mátti þenja hana út,
eftir stærð hespunnar, þegar balbínað var af henni. Rakningarspaði:
Notkun hans var óþekkt í Hegranesi. Aldrei var þar heldur rakið
úr hnyklum heldur ætíð af snældum, og var því rakningarstokkur aldrei notaður,
enda sá ég það verkfæri aldrei.
p11
Rakning á rakgrind:
Um rakningu á rakgrind get ég lítið sagt, því við krakkarnir máttum
ekki vera inni þar sem rakið var. Sagt var að við trufluðum þann
sem rakti. Venjulega var aðeins einn maður, sem rakti. Rakgrindin
ar sett upp í stofu frammi í bæ. Inn um glugga þar sá ég að rakningsmaður
setti merki í uppistöðuna með mislitu ullarbandi. Ein umferð á grindinni
upp eða niður nefndist feti. Í fetabandið var einn bandspotti settur,
sem merki að neðan í skilin. Ekki var rakið utan á, heldur ofan eða
neðan við fetana. Fullrakin uppistaða nefndist slanga. Jafnan var
rakið ögn umfram hverja alin í voð til að voðin skryppi ekki saman (styttist)
var þetta nefnt yfirvarp. Hvergi í Hegranesi var rakið á veggjahæla
eða rúmstólpa, en vel getur verið að það hafi tíðkast í öðrum sveitum,
þó ég heyrði aldrei talað um það.
p12
Hafaldagrind og hafaldaefni:
Ég kynntist aldrei hafaldahnýtingu, því höföld föður míns voru öll
með stálaugum og voru stálaugun hnýtt í seglgarn, sem hafði verið áður
bleytt í fernisolíu. En þessi höföld höfðu öll verið sett upp fyrir
mitt minni. Hafaldaaugu úr stáli munu fyrst hafa komið í Skagafjörð
laust eftir 1880 með Gunnari Olafssyni í Ási, sem um það leyti fór til
Danmerkur að læra nýtísku vefnað og flutti heim með sér nýjan hraðskyttuvefstól
með öllu tilheyrandi. Vartóg hét bandið, sem varnaði því að höföldin
færu útaf sköftunum. Vefjarkambur: Það nafn heyrði
ég aldrei á þessu verkfæri. Það var ætíð nefnt eknir. Halldóra
Bjarnadóttir nefnir það fetakamb. Nafnið eiknir mun stafa af því
að tækinu var "ekið" hægt fram og aftur þegar bómað var, til
að greiða sundur þræðina. (sjá teikningu).
p13
Það var nefnt að
leggja í ekni, þegar fetarnir voru lagðir í tennur hans. Skaftið
í gangaskilinu nefndist rifskaft. Rifskaftið var sett í rauf í rifnum
og bundið fast á endunum við rifinn eftir að lagt var í ekninn. Ekki
man ég vel hvernig gengið var frá skilþræðinum. Að setja til. Allt
verkið, við að bóma eða vinda slönguna á slöngurif, draga í höföld og skeið
og festa uppistöðuna við voðrif eða framrif, hét einu nafni að setja til
vefinn. Að bóma: Það var kallað að bóma, að vinda lsönguna
á rifinn. Rifnum var snúið með lykli sem gekk upp á enda rifsins.
Á endum rifsins voru lausir snúðar, sem vörnuðu því að slangan færi
út á ystu enda rifsins. Tveir unnu við að bóma. Annar snéri rifnum
hægt. Hinn passaði eknirinn og gætti þess að þræðir slitnuðu ekki
og hnýtti saman, ef svo fór.
p14
Sá þriðji passaði
slönguna. Skilsköftin voru sett rétt framan við bómuna fyrir aftan
höföldin. Að draga í höföld og skeið: Við það unnu
tveir, annar rétti þræðina, en hinn setti krókinn gegnum hafaldaaugað og
dró þráðinn gegnum það. Þegar búið var að draga vissan þráðafjölda
í höföldin, voru endarnir hnýttir í lykkjuhnút framan við höföldin. Tveir
unnu einnig við að draga í skeið. Annar rétti krókinn gegnum tennur skeiðarinnar,
en hinn rétti þræðina á krókinn. Krókurinn var langur og mjór. Skeiðin
var höfð í slagborðinu á meðan dregið var í hana. Venjulega voru
2 eða 4 þræðir í tönn. Með vissum millibilum var hnýtt framan við
skeiðina. Þegar ídrætti var lokið, var hnýtt á skaftið, sem gekk
á voðrifinn. Þetta skaft var fest við voðrifinn með löngum snærum,
sem bundin voru
p15
um báða enda skaftsins
og fest í voðrifinn. Að draga fyrir: Þegar byrjað var að vefa
var ívafið látið í mörgum smábogum í skilið fyrst. Hét það að gefa
fyrir. Þegar komið var nokkur stúfur af vef, oftast eitt kvartil
(6 þuml.), voru spjálkin set í voðina svo að hún vefðist ekki inn. Ef
þráður slitnaði í uppistöðum var bætt í nýjum þræði og var þá endi hans
oftast laus, en hinn endinn hnýttur aftan við skeiðina. Jú, ég heyrði
talað um að fylgjur sumra gesta vildu slíta þræði, en helst var það sagt
í spaugi. Hver einstök vinding á voðrif nefndist færa. Að fella
vef var það nefnt þegar voð var lokið og hún tekin úr vefstólnum. Þráðarendarnir,
sem gengu af þegar vefur var felldur nefndust undanskurður. Ef þeir
voru nógu langir í nálþráð voru þeir notaðir til að stoppa í göt á sokkum.
Annars voru þeir líka oft
p16
snúnir saman á hrosshárssnældu
og notaðir í hnappheldur á hross ofl. Stundum var þetta notað í lambahöft
á meðan fært var frá. Þóf: Vatnið eða keytan var hituð upp
undir suðu í stórum potti. Síðan var voðin lyppuð niður í stóran
stamp og keytunni hellt yfir hana svo að hún varð vel blaut. Væri
keyta ekki til, var notað vatn, sem grænsápa var leyst upp í. Síðan
var stampurinn borinn fram í bæjardyr. Þar var voðin tekin upp úr
stampinum og lögð saman tvöföld. Skaft var sett í lykkjuna á voðinni.
Annar vindingsmaður gett með boðarlykkjuna fram á hlaðið og gætti
þess að voðin snerti ekki jörð. Hinn vindingsmaðurinn setti skaft
fast í báða enda voðarinnar í dyrunum. Sá, sem gekk fram á hlaðið
snéri nú upp á voðina með
p17
skaftinu og vatt
hana þar til ekki lak lengur úr henni. Síðan var snúið ofan af voðinni
aftur og hún borin inn og sett á hurð eða sléttan tréfleka sem settur var
upp í lokarekkjunni í baðstofunni Þófarinn klæddi sig nú úr öllu nema brók
og skyrtu, því verkið var erfitt og hlýtt í baðstofunni. Síðan steig
hann í lokrekkjuna og var þá tjaldað brekáni fyrir opið á lokrekkjunni.
Þófarinn studdi nú höndum á slána yfir lokrekkjudyrunum og tók til
að hoppa og hamast á voðinni og velti henni aðallega undir fótum sér. Á
klukkustundar fresti var svo þófið athugað og "kippt" sem kallað
var til þess að "brigður" kæmu ekki í voðina og svo að þær hyrfu,
ef komnar voru. Tvo þurfti til að "kippa". Var voðin
þá sett fram á gólf og byrjað á öðrum enda hennar að kippa. Annar
maðurinn hélt í hornin á enda voðarinnar en hinn í jaðra voðarinnar um
þrjár álnir frá enda. Sú lengd var nefnd "færa". Síðan
kipptu þeir snöggt og samtímis í voðina út og að sér þannig að small hátt
í. Voru brigður komnar í voðina var togað fast og sígandi í þær til
að slétta úr þeim. Svo tók endamaður í voðina þar sem hinn hélt áður
og dró hana til sín eina færulengd, en hinn tók í jaðra voðarinnar á nýjum
stað og svo kipptu þeir eins og áður og færðu sig eftir voðinni þar til
búið var að "kippa" henni allri. Þeir stóðu alltaf í sömu
sporum á meðan. Svo var voðin aftur sett á hurðina og þófinu haldið
áfram þar til fullþæft þótti, en það held ég að hafi verið smekks atriði
hverju sinni hvenær fullþæft þótti. Þó munu vígindin hafa átt að
hverfa í lónni.
p18
Votaþóf var þæft
í stampi nálagt ofni eða eldavél vegna hitans. Hafði þá þófarinn
stólbak til að styðja höndum á, er hann þæfði. Þegar kippt var þurfti
að fara út með stampinn og kippa úti, vegna bleytu frá þófinu. Hvíldi
þófarinn sig þá inni, á meðan aðrir kipptu úti, þar sem hann var fáklæddur.
Venjulega drakk hann þá kaffi með lummum. Var það nefnt þófarakaffi.
Sama var með þurraþóf, að þófari drakk meðan kippt var. Venjulega
fékk faðir minn afbæjarmann til að þæfa. Var það ætíð í vinnuskiptum
þannig að faðir minn smíðaði eitthvað úr tré eða járni fyrir þófarann í
staðinn. Að loknu þófi var voðin hengd út á snúru í mörgum lykkjum
og látin þorna. Síðan var hún vafin vandlega upp á breiða fjöl og
þess vandlega gætt að ekki voru brigður í henni og teigt vel á henni. Þetta
urðu tveir að gera.
p19
Svo var vefjarstranginn
settur á borð eða flatt kistulok og breið fjöl sett ofan á hann. Ofan
á fjölina var sett þungt farg, venjulega margir steinar og voðin látin
liggja undir því í 2-3 daga. Aldrei vissi ég til að voðir væru sendar
úr minni sveit í verksmiðjur til lóskurðar, og ef litað var, þá var það
gert heima. Þófaraþulu hef ég aldrei heyrt en oft rauluðu þófarar
vísur á meðan á þófinu stóð. Alls staðar mun hafa verið lagt
niður í Skagafirði að þæfa í tunnu um síðustu aldamót, enda var sú aðferð
bæði erfið og svo þurfti tvo menn þar til að vinna verk, sem einn gat unnið.
Þeir urðu að liggja á hryggnum og sparka viðinni á milli sín innan
í botnlausti tunnu.
p20
Eftirmáli: Vegna
fáfræði minnar um ýmis atriði er snerta vefnað hef ég því miður ekki þurft
að nota öll blöðin, sem þið senduð mér til að skrifa á um vefnað. Datt
mér því í hug að senda ykkur nokkrar dulspár sem fólk hér nyrðra hafði
talsverða trú á í mínu ungdæmi. Það má segja að slíkt teljist einnig
til íslenskra þjóðhátta og þetta er nú óðum að hverfa og gleymast, en það
lýsir þó að nokkru sálarlífi og hugsunarhætti þjóðarinnar á liðnum tímum.
1. Væri maður hársár (þ.e. þyldi illa að tekið væri í hár hans) átti
hann að verða hræddur um konu sína, er hann giftist. Sama var um
konur, þær áttu þá að verða hræddar um mann sinn að hann yrði þeim ótrúr.
2. Klæjaði mann í lófann átti hann að fá gjöf. 3. Klæjaði mann
í nefið átti hann að reiðast innan skamms.
p21
4. Ef manni svelgdist
á kaffinu sem hann drakk var sagt að sækti ofan í hann. Átti þá gestur
að koma sem langaði í kaffi. 5. Ef kýr sló afturundan sér á básnum
átti það að boða gestakomu á bæjum eða í fjósið. Ég hef veitt því
eftirtekt að þetta er rétt, hvernig sem kýrin fer að vita þetta. 6.
Ekki mátti brjóta fótlegg úr kind til mergjar. Þá átti kind að fótbrotna,
sem sá átti, er braut legginn. Til að ná mergnum var því borað gat
í afturenda leggsins og annað gat var borað neðan á legginn og mergurinn
soginn ú um þessi göt. 7. Málbein nefndust þunnu hamarlaga beinin
sitt hvoru megin í tungurótum kinda og í nautgriðum. Þetta bein mátti
ekki brjóta. Ef það var gert átti barn þess er braut beinið að verða
mállaust. Beininu átti að stinga í holu í moldarvegg. 8. Maríufiskur
nefndist fyrsti fiskur sem maður dró á færi úr sjó. Þennan fisk
p22
átti sá, sem dró
hann, að merja og sjóða hann er heim kom og éta hann sjálfur. Þá
átti hann að verða mjög fiskinn. 9. Ætíð átti sláttumaður að brýna
ljá sinn áður en hann gekk ú slægju, hvort sem hann hætti slætti styttri
eða lengri tíma. Að öðrum kosti mundi skrattinn þverbrýna fyrir eggina
á ljánum þar til sláttumaður notaði ljáinn næst. Þetta hefur nú líklega
verið fundið upp af einhverjum vinnukergju bónda sem lét sig muna um brýnslustundina,
þegar byrjað var að nýju að slá. 10. Ekki mátti leggja hrífu frá
sér þannig að tindirnar sneru upp, því þá átti að koma rigning. Tilefni
þessa hefur nú líklega verið það að menn gátu stigið á tindana og meitt
sig eða brotið tindana. 11. Jafnan átti að signa krossmark undir
júgur á kúm og ám, þegar mjöltum lauk.
p23
Þá gátu tilberar
ekki sogið þær, svo að þær fengju illt í júgrið. 12. Ef kind
jarmaði upp á þann, sem átti að slátra henni, mátti ekki lóga henni, því
þá átti hann að verða ógæfumaður. Það vissi ég til að kind var aldrei
slátrað þegar þannig vildi til, heldr var hún jafnan látin lifa. Sagt
að hún bæði um líf. 13. Ef hluti af mjógirni kindar, sem slátrað var að
hausti, var tómur átti það að boða harðan vetrarkafla á næsta vetri. Væri
tómi hlutinn næst vinstrinni átti að verða hart til jóla. Væri það
miðjan úr mjógirninu, átti miðhluti næsta vetrar að verða harður. En
væri tómi hlutinn næst langanum varð einmánuður og vorið hart. Þetta
hygg ég mjög gamla trú, komna frá Rómverjum, sem þóttust oft sjá fyrir
óskeða hluti í innyflum fórnardýra. 14. Mikill fífuvöxtur, einkum klófífu
átti að boða harðan vetur.
p24
Þannig mætti lengi
telja dulspár, sem fólk trúði á og sem ýmsir trúa enn, meira og minna,
en hér læt ég nú staðar numið að sinni. Nýlega heyrði ég
í þjóðháttarþætti útvarpsins um merkisdaga og var svonefndur bolludagur
einn þeirra. En sá sem flutti, virtist ekki vita um uppruna þessa
siðar, sem bolludagur er sprottinn af. Dagurinn hét áður hýðingardagur.
Þannig var það nafn til komið að ekki mátti hýða börn eða refsa þeim
á annan hátt fyrir yfirsjónir á meðan langafasta stóð yfir. Var því það
ráð tekið að hýða þau fyrirfram á mánudag í föstuinngang fyrir brek, sem
þau kynnu að gera á föstunni. Fór þá fjöldi vandarhagga eftir því
hvort barn var baldið eða ekki. Líklega hefur nú hýðandinn stundum
verið hlutdrægur í þessu, ef um hreppsbörn var að ræða, því meðferð þeirra
er svartur blettur á menningarsögu Íslendinga.
p25
Þættu vandarhöggin
of fá á hýðingardaginn miðað við yfirsjónir barns yfir föstutímann, þá
mátti bæta nokkrum vandarhöggum við refsinguna á laugardaginn fyrir páska.
En þætti flenging á hýðingardag hafa verið of hörð átti að bæta það
upp með ýmsu góðgæti um páskana. Þessi hýðingasiður mun nú að mestu
hafa verið aflagður fyrir mitt minni. Að minnsta kosti vorum við
krakkarnir aldrei flengd þannig. En bolluvendir nútímans eiga vafalaust
rót sína að rekja til þessa leiðinlega siðar.
Lokaorð: Kæru
vinir. Þetta verður nú ekki lengra að sinni og bið ég ykkur að fyrirgefa
hve lengi hefur dregist hjá mér vegna búsýsluannríkis, að skrifa þetta.
Bið ykkur líka að taka viljann fyrir verkið og vinda á betri veg
það sem áfátt er í þessu skrifi öllu. Vænt þætti mér um ef þið leyfðuð
orðabókarmönnum
p26
Háskólans að líta
yfir þetta, svo þeir gætu tínt þar upp ef þeir yrðu varir við einhver orð
sem þeim þættu merkileg. Þakka ykkur svo jólakort og vinsemd á liðnu ári
og óska ykkur og safninu árs og friðar á nýbyrjuðu ári. Selnesi á
Skaga 3. febrúar 1967 ykkar einlægur Jón Norðmann Jónasson
Hróarsdal.
Poste skriptum: Því
miður á ég ekkert af gömlum vefnaði til að senda ykkur. En ég skal
athuga hjá eldra vinafólki mínu hér nyðra hvort það á nokkuð slíkt og þá
fá það til að senda ykkur. Með bestu kveðju J.N.J.
Nr. 1303
p1
Ull og tóvinna 3.
Ekki er ég nógu kunnugur hér í sveitinni, meira að segja, til að
geta greint frá því með fullri vissu hvenær venja var að byrja vefnað að
hausti, eða öllu heldur fyrripart vetrar, því fyrir veturnætur hygg ég
hafi verið mjög óvenjulegt, að vefur væri upp settur. Heyannir stóðu
tíðast fram að réttum og stundum lengur, og svo kom sláturtíðin. Þar
sem var fjöldi vinnukvenna, má þó vera að ullarvinna hafi byrjað strax
að heyönnum loknum. Ég heyrði talað um gamla konu, sem sennilega
hefir verið uppi um og eftir miðja 19. öld, og var sagt, að hún hefði hagað
sláturgerð þannig, að vinnukonurnar voru með henni í starfi til hádegis,
en þá gaf hún þeim kaffi og sláturbita, og svo fóru þær til baðstofu í
tóvinnuna. Þessi kona hefir sjálfsagt getað látið vinna þráð í voðarstúf
fyrir veturnætur. Ég held, að það hafi verið mjög ótítt að
hægt væri að fella voð fyrir jól, ef hún komst upp fyrir hátíðarnar, enda
var ekki eins mikil áhersla lögð á að gera voð ekki jólafeita, eins og
prjónlesið, en það mátti helst
p2
ekki vera prjónn
í lykkjum yfir jólin, því þá varð flíkin, það sem kallað var jólafeit,
og það mátti engan veginn. Ekki heyrði ég þó talað um viðurlög.
Það þótti æskilegast að þurfa ekki að sinna vefnaði eftir að voryrkjur
hófust fyrir og um Krossmessu eða jafnvel sumarmál, og fór það eftir veðri.
En ósjaldan held ég þó, að vefur hafi staðið uppi nokkuð langt fram
á vorið, amk. eftir að ég man til. Ekki er ég nógu fróður
um það hver voðin var látin ganga fyrir, ef tvær eða fleirri voru upp settar
yfir veturinn, en líklegt þætti mér, að óvandaðri voðinni hafi verið lokið
fyrst, bæði af því, að venjulegast hefir verið nauðsynlegra að koma af
því efninu til heimilsbrúks, og svo var fljótlegra að gimbra upp óvandaðri
þræðinum, heldur en fíngerðara voðarefninu. Þar sem mest
var ofið, eftir að ég man til, var vefnaðurinn aðallega starf húsfreyjanna,
en fleirri gripu þó í það, bæði konur og karlar. Á 2 heimilum hér
í nágrenninu ófu húsbændurnir aðallega. Hér heima óf t.d. elsti bróðir
minn auk mömmu. Ég man ekki eftir nema einu heimili, þar sem vinnukona
var aðal vefarinn.
p3
Af þessu leiddi,
að vefarinn sat yfirleitt ekki við allan vökutímann, því á honum lágu önnur
störf líka. En ég heyrði sagnir um það, að þegar þeir voru ungir,
sem aldnir voru í minni æsku, hafi vinnumaður eða vinnukona setið við vefnað
dögum saman, alveg tafarlaust. Afköst held ég að hafi farið
æði mikið eftir vefnaðargerðinni. Einskefta held ég, að hafi verið talin
fljótofnust, og því mest venjuleg einlit vaðmálsvend. Veipa þótti
t.d. seinofin, því ívafið var af 2 litum, og allmikill setningur við vefnaðinn.
Þetta fór líka mjög eftir fínleik voðarinnar. Smærra fyrirvafið
var skiljanlega seinlegt í vefnaði. Það var mjög seinlegt að vefa
tvist í tvist, sem kallað var, sem sé að bæði uppistaða og fyrirvaf væri
tvistur. En mig minnir, að það hafi þótt úrvalsafköst að vefa tíu
álnir á dag, og þó því aðeins hægt, að voðin væri ekki samofin.
Gamall karl sagði mér eitt sinn, að þá hefði hann skilað mestu dagsverki
á ævi sinni, er hann óf 5 álnir af vaðmáli og risti ofan af 50 ferföðmum
af túnþýfi. Af þessu má ráða, að það |p4 hafi þótt sæmilegt
dagsverk að vefa 5 álnir. Því mér er vel kunnugt um að 50 ferfaðma
ofanafrista var ekki mjög lélegt dagsverk, ef þýfið var erfitt. Úrtökumenn
ristu ofanaf allt að 100 ferföðmum. Á hvaða aldri börn byrjuðu
að vefa veit ég, því miður ekki neitt. Ég man eftir einni konu, sem
sagt var að hefði byrjað að vefa nýfermd. Ég man ekki til
að hafa heyrt getið um neinn, hvorki karl eða konu, sem fór milli bæja
og óf, en það mun hafa borið við, að þeir, sem áttu vefstól og höfðu tíma,
tóku vefnað heim til sín. Eitthvað heyrði ég talað um greiðslu fyrir
vefnað, en man ekki neitt því viðvíkjandi, sem á er byggjandi.
Í bernsku minni, héld ég að venjulegra hafi verið að tala um vefstað, en
vefstóll hefir orðið fólki munntamara síðustu áratugina og nú býst ég við
að þeir, sem annars þekkja til þess verkfæris segi vefstóll.
Í bernsku heyrði ég talað um kljásteinavefstaðinn, og einnig lýst vefnaði
í honum, og ég held að föður
p5
mínum og móður (hann
fæddur 1835, hún 1850) hafi verið kunnug alla aðferð við það starf. Ekki
er ég samt viss um, að þau hafi séð ofið, en tel líklegra, að þau hafi
haft þekkingu sína af frásögn. Veit ég því ekkert hvenær notkun hans
lagðist niður. Ekki veit ég til að neinir hlutar úr kljásteinavefstað hafi
verið til hér í námunda, fram yfir aldamót t.d. Ég minnist þess,
að það var talið mikið labb við að vefa í kljásteinavefstað. Ég held
jafnvel, að það hafi orðið að ganga þingmannaleið til að vefa alinina.
Um smíði vefstóla veit ég mjög lítið, en sjálfsagt hafa margir
smiðir smíðað hann, ef með þurfti. Einn bóndi í Staðarsveit, hér
á Snæfellsnesi vissi ég til að smíðaði vefstóla. Jón Sigurðsson,
Hofgörðum. Hann smíðaði líka hraðskyttuvefstól, en hann sá ég aldrei,
og get því ekki lýst honum. Um gangverð veit ég ekkert.
Ég vissi til að 2 gerðir vorutil af vefstólum hér í sveit, og skifti þar
gerðum staðsetning slöngu, rifsins, ýmist var hann uppá sem kallað var,
sem sé mikið hærri en voðarrifurinn, eða eins og á mynd A
p6
eða að rifirnir voru
jafnhátt eða öllu heldur lágt, eins og á mynd B. Tvíbreiðir vefstólar
voru ekki til hér í sveit, eftir að ég man til, en ég heyrði talað um þá.
Ég held að vefstóll hafi verið til á velflestum heimilum hér í sveit
fyrir um og rétt eftir aldamótin síðustu. Ekki held ég, að þau heimili,
em vefstólslaus voru hafi fengið vefstól lánaðann að neinu ráði, því hann
var vandfluttur, heldur hafi þau fengið ofið hjá nágrönnunum. Eins minnir
mig, að væri vefari til, karl eða kona, á vefstólslausu heimilunum, sem
hafði tíma til, þá dveldi hann á nágrannaheimili, sem vefstól átti, á meðan
hann óf voðina. Ég er alveg frámunalega ófróður um heiti
hinna einstöku hluta vefstólsins. Sjálfsagt hefi ég heyrt einhver
nöfn á þeim, en gleymskan riðið húsum í hausnum á mér. A-gerðin var
til hér heima, einkum hvað snerti slöngurifinn, en slagborðið var hengt
upp, en lék ekki á ramböldum að neðan. Var járnþynna grópuð ofan
í kjálka vefstólsgrindarinnar. Stóð hún svo sem þumlung uppúr, og
voru söguð
p7
í hana hök, líkt
og markið stig á kindareyra og slagborðið hengt þar á. Vefjarskeiðin
var yfirleitt kölluð því nafni, en líka bara skeið. "Hart í
vefstól lamdi skeið", stendur í vísunni. Ég sá aldrei heimasmíðaða
skeið, og held að þær hafi verið fátíðar. Eitthvað rámar mig í að
hafa heyrt talað um hvalskíði í sambandi við vefjarskeiðar, en ekki harðvið,
en aftur eir og látún, einkum látun. Ég held að látúnskeiðar hafi
þótt sérstaklega góðar. Hér heima voru til 2 skeiðar, sem ég man
eftir, og ég held báðar 5 kvartel, önnur 60 tanna, en hin 80, miðað við
tannafjölda á kvartel. Vefskyttur, vefjarskyttur eða skyttur
þurftu að vera úr sérstaklega góðu efni, tekki eða öðrum trjávið, sem var
vel fágunnarhæfur, svo hvergi væri á arða né þurða. Á sumar skyttur
voru festar látúnsþynnur að ofan og neðan, þar sem þær voru þykkastar,
og einnig beygt fyrir báða endana. Ég man nú ekki eftir öðru nafni
en spóluteinn. Spólurnar voru nú af mörgum gerðum. Renndar
og tálgaðar úr tré, járnþynnur beygðar í pípu, og tölur festar á endana
úr tré, beini eða horni,
p8
en um roð heyrði
ég aldrei getið. Áhaldið, sem spólað var á hét spólurokkur,
annað nafn hefi ég ekki heyrt, og var hann smíðaður sérstklega til þeirra
nota. Hann var þannig smíðaður, að tekinn var fjöl 8-10 þuml. breið
og 1-1 1/2 þuml. þykk, söguð skörpustu hornin af öðrum endanum. Þá
voru teknir 2 fjalarbútar um 3ja þuml. breiðir og 7-8 þuml. langir, þykkt
eftir ástæðum eða um þumlungs þykkir. Þessir bútar voru grópaðir
gegnum fjölina þeim megin,sem hornin voru söguð af. Það er að segja
endarnir voru grópaðir í gegn, og stóðu þeir þá um það bil 6 þuml. upp
af fjölinni. Millibilið milli þessarra búta var haft svo sem 1 1/2
þuml. Milli þessarra uppstandara var svo stærra hjólið látið snúast
með venjulegum útbúnaði til þeirra hluta, sem sé ás í gegn og á hann fest
sveif til að snúa með. Hjólið hefir sennilega verið nálega 10 þuml.
í þvermál. Á hinum endanum var svipaður útbúnaður, en uppstandararnir
voru miklu lægri, og hjólið stórum minna í þvermál, eða 3-4 þuml. Í
miðju þessa hjóls var festur spóluteinninn,
p9
en upp á hann var
spólunum rennt. Í hjólarendurnar var grópuð lægð, og lék þar í snúra,
sem snéri litla hjólinu, þegar hinu stóra var snúið með sveifinni, og snérist
það litla miklu hraðar. Jú, gamlir rokkar voru sumsstaðar
notaðir, og ég er ekki viss um að það hafi alltaf verið settur í þá sérstakur
spóluteinn. Annars var ævinlega notaður spólurokkur hér heima.
Áhaldið sem hélt voðinni jafnbreiðri var kallað spjálk. Spanstokk
kannast ég ekki við. Ég er klaufi að teikna, en skal reyna að lýsa
áhaldinu. Teknir voru 2 rimlar eða fjalarbútar, 2-3 þuml. á breidd,
þó líklega aldrei fullir 3, og innan við þuml. þykkir. Þessar fjalir
voru heflaðar og fágaðar, og svo var söguð klauf upp í annan enda annars
bútsins, sem að breidd nam ríflega þriðjung allrar breiddar fjalarinnar.
Á enda hins bútsins var söguð hök á jaðrana, en miðjan látin halda sér
svo breið að hún fyllti útí klaufina á hinni fjölinni. Þegar svo
bút þessum var rennt inní klaufina, gæti ég trúað að samsetningin hafi
numið 1/3 af allri lengd spjálkarinnar.
p10
Þegar spjálkin hafði
verið sett svona saman, voru boruð göt gegnum allt saman, frá jaðri til
jaðars, svo mörg sem þurfa þótti. Tappar voru smíðaðir í götin, og
þegar svo þurfti að þenja voðina, voru tappar færðir til í götunum, þannig
að spjálkin lengdist. Var þá spjálkinni lyft svolítið upp um miðjuna
og tappi látinn þannig í götin að samskeytin gengu í sundur, eftir því
sem mátulegt var talið, og spjálkinni svo þrýst niður og tappa stungið
í annað gat, svo hún gæfi ekki eftir aftur. Líka var notaður hólkur
í þessu skyni, að sjálfögðu aflangur eins og lögun spjálkarinnar heimtaði.
Um uppsetningu vefs, bæði aðferð og orð, er ég því miður,
alltof ófróður. Bæði hefir gleymskan farið fjandalega með mig, og
svo þekkti ég þetta aldrei nógu vel. Hér er heldur til einskis að
leita um fróðleik. Allar vefjarkonur úr heimi horfnar. Ég man vel
eftir orðunum "að leggja upp". Konurnar sögðu sín á milli:
Það er ekki hægt að leggja meira upp úr þessu, en þetta sem þær tiltóku.
Mig minnir endilega, að hér heima segði hesputréð um lengd þráðar,
þannig að taldir væru þræðirnir í hespunni eða snúningar hesputrésins,
p11
þegar hespað var.
Ég kannast vel við orðatiltækin "fimm lóða verk"
og "tveggja álna þráður". Sennilega myndi ég kannast við
miklu fleirri, ef ég væri á það minntur, en ég get ómögulega rifjað neitt
upp. Að sjálfsögðu fór það eftir smæð þráðar eða gildleika,
hve mikið var hægt að leggja upp úr mörkinni, en 2-3 álnir munu hafa verið
talað um. Annars helg ég, að mamma, sem er eina konan, er ég sá setja upp
vef, hafi lítið átt við mælingar eða viktun, heldur séð þetta nokkurnveginn
í hendi sér. Ég gleymdi að geta þess í sambandi við spjálkina, að
oddar voru í endum hennar, sem stungið var í jaðra voðarinnar.
Ég man ekki eftir öðrum orðum en að "reikna í skeið", í sambandi
við það að ákveða fjölda uppistöðuþráða í voðarbreidd, og ég held að önnur
orð hafi ekki verið um það verk höfð. Eins man ég vel eftir að talað
var um, að voð væri varplítil og varpmikil, og þótti hvorugt gott.
Venjulega var það kallað "að reikna út í vef", að ákveða
efnismagn og munstur voðar, en líka var talað
p12
um að setja til voðina
og jafnvel setja niður. En um aðferðina man ég, því miður ekki. Þráðurinn
var held ég, aldrei kallaður annað en uppistaða. Nokkuð algengt
var líka, að tvistur var hafður í uppistöðu. Uppistaðan var t.d.
tvistur, en fyrirvafið þelband. Varð úr því voð, sem kölluð var dúkur.
Dúk-milliskyrtur voru algengar. Ívafið í voðina var lang venjulegast
að nefna fyrirvaf. Ívaf þekktist líka, en var og er meira notað í
öðrum samböndum, t.d. uppistaðan í ræðunni var nú nokkurnveginn heilbrigð
þjóðmálastefna, en ívafið ekkert annað en pólitískur skætingur. Veftur
held ég að hafi verið mjög ótítt í máli fólks í þessu sambandi, og þó man
ég eftir orðinu. Áhaldið sem voðaruppistaðan var rakin á,
hét rakgrind, ekki rakningsgrind. Ég vissi aðeins af 2 gerðum, og
þó mjög svipuðum. Mismunurinn lá í því, að þær voru misháar, og hin lægri
gerðin fest bara að neðan. Hæll gekk gegnum grindina, og ofan í djúpa
holu í kubb, og á þeim hæli snérist grindin. Hin gerðin
p13
var mun hærri eða
um 1,50 m. og slík grind var til hér heima. Henni var þannig fest,
að festur var þykkur kubbur 7-8 þuml. breiður, og um álnar langur í baðstofugólfið.
Í þessum kubb miðjum var hola, svipuð að lögum og eggjabikar,
og þó heldur flárri, og í þessarri holu lék neðri hluti hælsins, sem gekk
upp í gegnum grindurnar. Hak var á hælnum, svo grindin féll ekki
alveg ofaná kubbinn. Þessi kubbur hafði eitthvert heiti, sem ég man
ekki, svo ég þori með að fara. Minnir, að hann væri kallaður sökkholt,
en það er ekki á því að byggja. Komi þetta nafn annarsstaðar frá
líka, mætti búast við að rétt væri minnst. Að ofan var rakgrindinni
fest á líkan hátt, þannig að hæl var stungið niður gegnum miðja endabitana
í römmunum tveim,s em grindin var gerð af, og lék hann í holu, sem var
í borði, er fest var þvert yfir baðstofuna upp undir mæni eða svo til.
Það má kannske geta þess, að upp á þessa fjöl og aðra til jafnháa,
var tveim rokkum smeygt upp undir baðstofumæninn, þegar þeir voru ekki
í notkun. En hæstu menn urðu nú að beygja sig undir
p14
ólukku rokkana.
Skilhælarnir og tréð, sem þeir voru festir í hétu hér grísholt,
ekki krísholt. Hælatré heyrði ég líka nefnt, en aldrei skilkamb.
Rakgrind hygg ég að hafi verið til á flestum heimilum, sem áttu vefstól,
en ekki öllum. Það var ekki ótítt að rakið væri á nágrannabæjum,
þar sem grind var til. Balbínur, balbínustól og tilheyrandi
snældur sá ég ekki í minni bernsku, og heyrði ekki um þessa hluti talað,
svo ég muni. Sama máli gildir með rakningsspaða. Ekki er þó
útilokað, að þessi áhöld hafi verið til einhversstaðar í nándinni.
Kassi var hér til með 4 hólfum, og getur vel verið, að hann hafi
verið kallaður rakningsstokkur eða rakstokkur. En oft voru fleirri
þræðirnir en 4, og voru þá notaðar ýmsar smákyrnur, litlar byttur, vaskaföt
og jafnvel matarskálar. Eins og getið er um að framan var
rakgrindin sett upp í baðstofunni hér heima, og svo hygg ég að verið hafi
víðast. Ég man það enn hve gaman mér þótti að standa inní rakgrindinni
p15
og snúa henni og
snúast með. Annars var þetta bannað, því ef grindin losnaði að ofan, þá
féll hún niður, og gat þá bæði meitt og brotið. Skelfing
finn ég vel, hve margt hefir úr minni fallið, þegar ég fer að lýsa aðferðinni
við rakninguna, en tvo þurfti til, rakningskonu, sem var aðalmaðurinn við
starfið, og svo aðstoðarmann, sem gat verið lítt kunnandi smámaður. Var
það löngum mitt starf í bernsku að sitja þar yfir, passa hnyklana í ílátunum
og segja til, þegar hnykil þraut. Raknings- eða rakspaða vissi ég
aldrei notaðan. Ekki man ég eftir að þráðarvölur væur látnar leika
á uppistöðuþráðunum. Til þess voru notaðar smáir snældusnúðar, beinsnúðar,
flöskustútar, sem brúnirnar höfðu verið sorfnar af, eða eitthvert annað
dót, sem svolítil vikt var í og hægt var að þræða enda í gengum.
Nú get ég ómögulega munað hvernig byrjað var að þræða á hælana í
grísholtinu, en mig minnir að byrjað væri að neðan og rakið upp, þó fullyrði
ég það ekki. Þráðaskil heyrði ég nefnd.
p16
Þegar hafði verið
rakið upp úr á grindinni, voru þræðirnir lagðir ofan á þann hælinn, sem
nær var höndinni, vinstri hællinn,en brugðið undir hinn og upp fyrir, og
svo neðan við þann hælinn, sem áður var lagt ofaná. Því næst snúið við
og rakið niður. Jú, það mun hafa verið kallaður gangur, þegar rakinn
hafði verið ein ferð upp og önnur niður, en ein ferð upp eða niður, feti.
Ég held, að þræðirnir hafi verið lagðir ýmist ofan eða neðan við
það sem áður var rakið, að neðan þegar rakið var niður, en að ofan þegar
upp var rakið. Bandspottinn, sem bundinn var í gagnaskilin, held
ég, að hafi veirð kallaður fetaband. Ég man ekki eftir að hafa heyrt
nefnda varptág. Og þetta merki var að neðan, svo sennilega vefir
verið byrjað efst. Líklega er það eitthvað í sambandi við
þennan feta á rakgrindinni, orðtakið, að vera mikill fyrir fetann, sem
sagt er um þann, sem er umsvifamikill og stórgerður. Fullrakin
uppistaða á grind var alltaf kölluð slanga, og heyrði ég ekki annað nafn.
Ekki
p17
man ég hvernig gengið
var frá skilum, áður en slangan var tekin af grindinni, og heldur ekki
hvernig hún var tekin af, né hvað það verk nefndist. Ég kann
nú ekki að greina frá neinu sérstöku í sambandi við rakningu marglitrar
uppistöðu. En ákveðið var í byrjun, hvað hver rönd uppistöðunnar
átti að vera breið, og fjöldi lituðu þráðanna hafður eftir þeirri ákvörðun.
Var svo öllu raðað niður, þegar lagt var í kambinn, dregið í höföld
og skeið. Það var tvímælalaust ekki algengt að rekja á veggjarhæla
eða rúmstólpa. Þó minnir mig, að ég heyrði þess getið, en í mikilli fjarlægð
að tíma til. Hafaldagrind var til hér, og var það ekki margbrotið
áhald, aðeins 2 hliðarfjalir, svo sem 2 þuml. breiðar. Voru svo 3
smáspýtur tappaðar gegnum þessar fjalir, sívalar til beggja enda, en flöt
um miðjuna. Var svo hafaldaþráðurinn lagður yfir annan enda sívalningsins
og hnýtt beggja megin við miðspýtuna, til að mynda hafaldsaugað, og svo
lokum bundið ofan við sívalninginn á hinum endanum. Þegar svo hnýtt
höfðu verið svo mörg
p18
höföld, sem þurfa
þótti eða þá eins mörg og grindin tók, þá var annarri hliðarfjölinni kippt
af millispýtunum, og höföldin tekin af. Ekki man ég eftir neinu sérstöku
áhaldi til að rekja á hafaldaefnið.
Hafaldaþráðurinn
var, held ég, allstaðar unninn heima, og úr venjulegu togi. Ekki
man ég eftir að hafa heyrt talað um að hann hafi verið soðinn í tólg eða
sviðinn, en hann var seyddur, til þess að fyrirbyggja að hann snurðaði
eða hafaldið snéri upp á sig. Seyðingin minnir mig að færi þannig
fram, að vatn var htiað í potti, en einhver sía eða strigatuska var strengd
yfir pottinn, og hafaldaþráðurinn lagður á hana, svo hann naut gufunnar
upp af vatninu. En passað var að tuskan væri svo strengd, að þráðurinn
færi ekki ofan í það. Ég man ekki eftir neinni sérstakri aðferð við
að rekja í höföldin. Vel má vera að ekki hafi allir farið eins að
við hafaldshnýtingu, en ég hefi hér að framan lýst þeirri aðferð, sem mig
minnir að væri viðhöfð. Mig minnir, að hér væri talað um
p19
hafaldsauga en ekki
hafaldaauga. Það þótti alger nauðsyn að hafaldshnútarnir væru þannig
gerðir, að ekki rynni á þeim. Það er dálítið snúið að lýsa
hafaldahnút, en hann var þannig gerður að eftir að þráðarspottinn hafði
verið lagður yfir annan enda sívalningsins á hafaldagrindinni, var spottanum
til vinstri brugðið yfir þráðinn til hægri, og niður í kring. Var
þá einn snúningur kominn á þráðarendana. Þá var sami þráðarendinn,
sem nú var kominn til vinstri tekinn til baka og með vinstri hönd var honum
brugðið yfir hinn endann, þeim megin, sem að manninum snéri og niður í
kring og hert að. Satt að segja er þetta mjög algengur hnútur, þegar
snæri er saman hnýtt. Þessi hnútur var hnýttur beggja megin við þverrimilinn,
sem takmarkaði hafaldsaugað, og svo ofan við hinn enda sívalninginn. Stálhöföld
vissi ég ekki til, að væru neinsstaðar notuð. Ég er ekki
nógu fróður um geymslu hafalda, en ég man, að þau þóttu vandgeymd. Ég
held að þau hafi ævinlega verið tekin af sköftunum, og mig minnir
p20
að hér væru þau geymd
niðri í rúmi, undir sæng eða yfirleitt þar sem ekki var hætta á slagningi.
Ég kannast við nafnið vartág, og má vel vera að svo hafi heitið bandið,
sem varnaði því að höföldin rinnu útaf hafaldasköftunum.
Vefjarkambur var eina nafnið, sem ég heyrði á þessu vefnaðaráhaldi. Hann
var þannig gerður, að tekin var spýta, sennilega eitthvað kringum 2 þuml.
á kant, og um 6 kvartel á lengd. Í gegnum þessa spýtu, við báða enda,
svo nærri sem óhætt þótti, var grópaður fjalarbútur og minnir mig að þeir
bútar væru sem næst 2 þuml. á breidd og hálfur þuml. á þykkt. Svo
voru boruð göt í sömu rönd og fjalarbútarnir voru grópaðir í, og reknir
í þau göt, trétindar, sívalir, og heldur gildari en venjulegir hrífutindar.
Því miður man ég ekki hve margir tindarnir voru. Svo var tekin önnur
spýta af sömu gerð og sömu lengd og hin fyrri, og meðfarin á sama hátt
og hún, þannig að ástóðust gróp og göt, aðeins heldur rýmra hvorttveggja,,
því þessum kjálka kambsins var kippt af og smellt á eftir
p21
því sem þurfti.
Verkið við að dreyfa slöngunni í vefjarkambinn held ég að hafi alltaf
verið nefnt að láta í kamb, eða láta í kambinn. Þar kom eiginlega
fyrst að því að raða niður litum í uppistöðunni. Þá var lausa kjálkanum
kippt af, og þræðirnir lagðir niður milli tindanna. Ekki man ég hvort
jafnmargir þræðir voru lagðir milli allra tindanna, en hel þó að það hafi
farið eftir litarniðurröðun, og því mismargir þræðirnir í hvern stað. Þetta
minnir mig að væri nefnt að setja til vefinn. Skaftið, sem tengt
var við slöngurifinn heyrði ég kallað rifskaft. Plógskaft kannast
ég ekki við. Þráðurinn, sem dreginn var í gagnaskilið, hét skilþráður,
en því miður kann ég ekki að lýsa hvernig frá þessu var gengið, svo á því
megi byggja, sem réttri lýsingu. Allt verkið við að búa í vefstaðinn,
svo byrja mætti að vefa var, held ég, ábyggilega slmennt kallað að setja
upp, að setja upp vefinn.
Ég heyrði bæði talað
um að bóma og rifja, en
p22
fleirri orð man ég
ekki til, að höfð væru um það verk að vinda upp á slöngurifinn. Það
var rauf eftir slöngurifnum endilöngum, sem rifskaftið féll inn í, en svo
man ég ekki glöggt hvernig það var fest við, held þó að snæri hafi verið
vafið yfir enda rifskaftsins og rifinna, ég man að það var skora allt í
kring við enda skaftsins og getur snærið hafa verið vafið þar yfir. Ég
man ekki eftir neinu áhaldi, nema kambinum í sambandi við að vinda upp
á rifinn. Ég held að það hafi verið æskilegast, að ekki færri en
3 ynnu við að vinda slönguna á rifinu. 2 til að styðja vefjarkambinn
og hagræða slöngunni og 1 til að snúa rifnum. Ekki man ég
til að nein sköft væru notuð, nema þetta eina rifskaft, sem fest var við
slöngurifinn, og ekki get ég munað neitt um það, hvort slangan var látin
ganga að sér, eða hvað það var kallað. Hafaldda ídrátturinn
var almennt kallaður að draga í höföld eða draga í höföldin. Ekki
var þeim haldið stöðugum með neinum hætti hér
p23
heima,og ég held
ekki í nágrenninu heldur, og hafaldakamb kannast ég ekki við.
Tveir unnu við það að draga í höföld, og rétti annar þráðinn, en
hinn þræddi hann gegnum hafaldsaugað. Þegar nógu margir þræðir höfðu
verið dregnir gegnum höföldin, mig minnir að þeir væru 10, voru þeir teknir
saman og knýttur á þá þverhnútur, þannig að dreginn var lykkja í gegn,
en ekki endarnir alveg. Ég held að fjöldi þráðanna hafi líka eitthvað
farið eftir litum. Hér nefndist áhaldið, sem dregið var í
skeiðina með krókur, og líka nefnt krækja, ekki gikkur. Það var látúnsþynna,
nokkuð breið, líklega hálfur þumlungur, og var sagað inn í annan endann
hak eða agnhald til að krækja í þráðinn með. Skeiðin var höfð í slagborðinu.
Verkið fór þannig fram að króknum var smeygt milli tanna skeiðarinnar
og agnhaldið látið snúa upp. Var þráðurinn síðan dreginn í gegn.
Ég held að venjulegast hafi einn unnið við að draga í skeiðina.
p24
Skaftið, sem uppistaðan
var hnýtt framá heyrði ég ekki kallað annað en framhnýtingarskaft, og verkið
að hnýta fram eða hnýta fram á skaft, sjaldnar að binda fram.
Um uppbindingu í vefstól get ég því miður ekkert sagt. Annaðhvort
hefi ég aldrei kunnað það verk, né nein orðatiltæki í sambandi við það,
eða gleymt því svona gersamlega. Ekki er ég nógu viss í hvað
það var nefnt, þegar byrjað var að vefa. Sennilega þó að draga fyrir. Ég
held að ívafið, sem oftar var kallað fyrirvaf, hafi verið gefið fyrir í
einum boga, þar sem ég sá til, þannig að fingrum þeirrar handar, sem ekki
tók við skyttunni í það sinn, var stungið í gegnum uppistöðuna og bandinu,
fyrirvafinu, ýtt fram um miðju. Þetta mun hafa verið kallað að gefa í,
ekki gefa upp í. Var þessi bogi eitthvað misstór eftir því, hvort
átti að vera mikið eða lítið bandað. Ég held að rétthentir vefarar
hafi jafnaðarlegast tekið í slagborðið með hægri hendi. Það voru,
að ég ætla, yfirleitt slegin 2 högg, hið fyrra nokkuð þétt, en hið
p25
síðara léttara.
Spanstokkurinn, sem vanalega var kallaður spjálk, var færður til
eftir því sem vefnaðurinn gekk fram, til þess að voðin héldist jafnbreið.
Var oddunum á endum spjálkarinnar stungið í jaðra voðarinnar, og
spjálkinni hleypt upp um miðjuna á meðan, en síðan þrýst niður svo voðin
teygðist út eftir því, sem mátulegt þótti. Öðru hvoru var voðin mæld
með bandi eða kvarða til öryggis. Jú, það mun hafa verið sagt: voðin
vefst inn, ef hún hélt ekki fullri breidd. Ég er ekki nógu fróður
um misfellur í vefnaði, eða venjuleg viðbrögð við þeim. Ég óf aldrei
sjálfur, en ég held að þráðarendarnir hafi bara verið hnýttir saman þegar
slitnaði. Auðvitað var það talin aðsókn, þegar mikið var um þráðaslit,
og aðrar misfellur í vefnaði, og þótti stundum sannast. Ég held að
hver vinding upp á framrif, hafi frekar verið kölluð færa en áfæra, en
verkið var víst nefnt að bóma. Það var alltaf talað um að fella
vef, þegar lokið var einhverri voðinni. Ég man ekki eftir neinu öðru
nafni á afgöngun, en afvikur. Sumir sögðu reyndar afvökur, hvort
sem það var bara afbökun eða ekki.
p26
Þessir afgangar voru
notaðir í nálþræði, til að stoppa í göt með eða bæta. Vel
má vera að hrafnabuxur eða krummabuxur hafi þekkst, þó ég geti ekki komið
því fyrir mig. En í sambandi við undanlás, er allt annað að vefjast
fyrir mér. Ég held, að grotti undan soði flots, eða öðru slíku hafi
verið nefndur undanlás. Hitað var bæði vatn og keyta á voðina
í stórum potti, þeim stærsta, sem til var. Best var að hægt væri
að bleyta voðina í einu lagi, en væri það ekki hægt, voru endarnir bleyttir
á víxl, helmingur voðarinnar í hvort sinn. Þá var látið síga úr henni
á grind yfir pottinum. Því næst var hún tekin, og helst farið með
hana út á hlað, ef gott var veður. Tóku svo 2 menn sinn í hvorn enda
voðarinnar og strengdu hana á milli sína. Væri voðin of löng til
að halda henni þannig uppi á milli sín, hélt einn undir miðjuna. Síðan
undu mennirnir uppá voðina á milli sín, þannig, að hún vattst upp í hlykki
og hringi, svo tóku þeir í, og reyndu að teygja hana sem allra mest úr
öllum hlykkjum. Þá pressaðist vatnið mjög vel úr. Væri vindingsfólkið
þróttlítið
p27
dugði þetta oft ekki,
til að voðin væri fullundin, og var voðin þá lögð tvöföld, og spýtu rennt
í lykkjuna, en endarnir snúnir utan um aðra spýtu, þannig að ekki raknaði
af. Var svo undið á sama hátt og áður með vogstangarafli spýtnanna.
Ég minnist þess úr sögum og sögnum, að menn ferðuðust um til að þæfa,
en ég held að lítið hafi verið um slíkt hér um slóðir. Þó má vel
vera að einhverjir hafi lagt það lítillega fyrir sig, en hingað að Snorrastöðum
kom aldrei þófari í mínu minni. Ég held að þæfing hafi tvímælalaust
þótt karlmannsverk, en sjálfsagt hafa konur þó þæft stundum. Ekki
er ég nógu fróður um hvernig þæfingu ar hagað almennt, en hér heima var
ævinlega þæft í baðstofunni. Borð, sem var við stafngluggann, var dregið
fram og þæft á gólfinu út við gluggann. Studdi þófari höndum á borðið
til að létt sér verkið. Hann var ber upp að hnjám og velti voðinni
til með fótunum og tróð hana. Ég heyrði talað um tunnuþóf. Var
þá þæft í botnlausri tunnu í báða enda, þæfðu tveir, tvær eða tvennt. Lá
þá
p28
eða sat við hvorn
enda tunnunnar og tróð voðina milli sín með fótunum. Sagt var að
stundum hefðu karl og kona sóst eftir að þæfa saman, og líka að annað sóttist
eftir, en hitt færðist undan. Það mun hafa komið fyrir að þæft væri
í tunnu með botni, og einn maður þæfði niðri í tunnunni, en ég held, að
það hafi verið fátítt. Ég er algerlega ófróður um votaþóf. Voðin
var nokkuð oft aðgætt í þófinu, hrist upp. Það var þannig framkvæmt
að tvær manneskjur, venjulega þófarinn og önnur manneskja til, gjarnan
sú, sem best vit hafði á, hvort þæft var, tóku voðina milli sín í smástúfum,
svona 2 álnir í hvert sinn. Tóku þessar manneskjur höndum sinn í
hvorn jaðar voðarinnar, og lögðu hana saman, á langveginn, svo að hendurnar
snertust. Síðan var höndunum slegið skarpt út til hliðanna. Ef
vel tókst til kom allmikill smellur, þegar jöðrunum var slegið út og teygðist
úr voðinni. Hristist þá lóin af. Þetta var endurtekið nokkrum sinnu,
og því næst tekið fyrir næsta bil, og því veitt sama afgreiðsla.
p29
Það er að brjótast
í mér annað heiti á þessu verki, en að hrista upp voðina, og það var ábyggilega
til, en ég get ómögulega munað það. Hvort það var að slá voðina eða
smella henni. Fjarri fer þó, að ég geti fullyrt nokkuð um þessi heiti.
Ekki kann ég að greina frá neinu, sem fullkomin þæfing var
miðuð við. Ég held jafnvel, að þar hafi ekki verið farið eftir neinu ákveðnu
teikni, heldur eftir heildarútliti voðarinnar. Ég heyrði talað um
þófarabita og þófaraköku, en ekki er ég viss um að þær velgerðir hafi alltaf
verið framreiddar. Þetta hefir kannske tíðkast meir þar sem umferðaþófarar
unnu verkið, og þá ef til vill alkunnir matmenn. Ekki kann ég margar
þulur eða vísur um þóf. Eina vísu lærði ég í bernsku um þóf svohljóðandi:
"Íleppana átti ég að þæfa - Ég nuggaði á þá nokkur göt - því
náttúran var ífrið löt. Þuluna Bárður minn á jökli, heyrði
ég hafða á þessa leið: Bárður minn á jökli - leggst þú á þófið mitt
- Ég skal gefa þér lóna - innan í skóna - Vettlingsspjör á klóna - þegar
ég kann að prjóna - Naglabrot í bátinn þinn - Mórautt lamg og sauði þrjá
- En þú skalt aldrei það fá - þinn aumi drengur - ef illa gengur.
p30
Ekki get ég neitt
sagt um greiðslur fyrir þóf. Þegar voðin var fullþæfð, man ég að
hún var hengd upp á stag, ef þurrt var. Hengd eftir endilöngu á stagið,
og löfðu niður lykkjur beggja vegna, því voðin var oftast lengri en stagið.
Þó held ég að ekki hafi verið talið neitt aðalatriði að gera þetta.
Síðan var voðin tekin og vafin uppá fjöl, t.d. rúmfjöl í breiðara
lagi. Hún var vafin upp eins fast og mögulegt var, og teygð vandlega
út á þverveginn. Því næst var þessi vafningur lagður á slétt gólf
eða pall og
p31
þar ofaná koffort
eða kista með sléttum botni. Þurftu þessi ílát að vera allþung, en
væri ekki völ á nema léttum hirslum, var bætt einhverjum þyngslum þar ofan
á. Stundum var líka slétt fjöl látin ofaná voðarvafninginn, og þunginn
ofan á hana. Þetta var pressunin. Var þetta látið sitja svona
í nokkra daga, allt að viku minnir mig, og síðan, held ég að voðin hafi
verið vafin upp í venjulegan stranga. Ég held að þegar fór að líða
á fyrsta tug þessarar aldar, og á öðrum tugnum, hafi farið að tíðkast dálítið
að senda vaðmál til Reykjavíkur til lóskurðar og jafnvel litunar. Þó
man ég ekki eftir að héðan heimanað væri voð send til litunar.
Þá er nú þessari frásögn lokið, og hefði ég svarið fyrir, þegar ég fór
að leiða hugann að þessu í byrjum, að ég stæði svona hrapalega á gati í
mörgum atriðum. Ég læt hér fylgja 3 vefnaðarsýnishorn. Öll
eru þau úr rúmábreiðum, og eru ofin að ég hygg eftir aldamótin síðustu.
Þó er ég ekki
p32
viss um, nema númer
1 sé ofið fyrir aldamótin. Ég man amk. ekki eftir þegar það ábreiðuefni
ar ofið. Þetta var kallað hringofið. Móðim mín Sólveig Magnúsd.
óf þetta. Númer 2, held ég sé vaðmálsvend, og er ég þó ekki
nógu viss um vendina. Móðir mín óf þetta efni líka, og man ég aðeins eftir
því. Það var allstór strangi af ábreiðuefni. Það voru heimaofnar
ábreiður yfir öllum rúmum hér heima, frá því ég man fyrst eftir, og ég
ætla fram á þriðja tug þessarar aldar. Éf held, að þessi dúkur sé
mikið unninn úr togi, amk. uppistaðan. Númer 3 er að uppistðu til
tvistur, en fyrirvafið er ull. Þetta er því dúkvend. Guðríður
Björnsdóttir húsfreyja í Haukatungu hér í hreppi óf þennan dúk einhverntíma
rétt eftir aldamótin. Hún er nú látin.
Ég held mér þýði
ekkert að vera að reyna að skrifa upp heitin á hinum einstöku hlutum vefstólsins.
Ég er svo grautvitlaus í þeim
p33
efnum, að ég veit
ekki neitt, nema örfá heiti, sem öllum eru kunn. Mig minnir bara,
að þessir armar, sem slagborðið var hengt á væru kallaðir kjálkar. Ég
skrifaði það orð óviljandi í frásögninni hér á undan, en þegar ég fer að
brjóta heilann um það get ég ekki fullvissað mig um að það sé rétt.
Ég verð svo að láta hér við sitja. En viðvíkjandi vefnaðar
sýnishornunum er það að segja, að ég skal reyna að athuga þetta betur í
vor, þegar hreingerning fer fram á bæjum. Hirðusamar konur hafa þann
háttinn á að geyma þessar gömlu tuskur niðri kössum og kyrnum og taka þær
ekki upp til athugunar, nema þegar gert er hreint að vori. Þá láta
þær næst hendinni, það sem þær búast við að þurfa á að halda á næstunni.
En gamall vefnaður er ekki þar á meðal.
Nr. 8128
p1
Ull og tóvinna 3.
Þóf: Ég man eftir að hafa séð þæfða voð þegar ég var unglingur.
Voðin var þæfð í baðstofunni. Það var afmarkað pláss í einu
horninu á baðstofunni með koffortum. Voðin var bleytt í volgu vatni
og látið síga úr henni. Síðan þæfði maðurinn voðina undir fótunum.
Þetta mun hafa verið erfitt verk, því maðurinn var léttklæddur mjög
á nærfötum einum saman. Mjög vel var litið eftir voðinni, hún aðgætt
og hrist upp. Þegar búið var að þæfa, var voðin hrist vel upp og
sléttuð, síðan vafin fast upp á breiða fjöl og sett farg á strangann. Ekki
veit ég hvað þófarinn fékk í laun. Ekki kann ég nein skil á vefstólum.
Vefaraþula: Bárður minn á jökli - leggstu nú á þófið mitt
- ég skal gefa þér lóna - leppana í skóna - vettlinga á klóna - þegar ég
kann að prjóna - naglabrot í bátinn þinn - hálfskeifu undir hestinn þinn
- mórautt lamb og gimurskel - og meira ef þú þæfir vel.
Nr. 1283
p1
Ull og tóvinna 3.
Hér um Þingeyjarsýslur mun það hafa verið siður að setja upp fyrstu
vefi upp úr áramótum. Oftast mun hafa verið byrjað á nærfatavaðmáli
eða rekkjuvoðaefni, venjulega sinn vefurinn f hverju. Síðar var svo
ofið vaðmál í buxur og önnur ytri föt karlmanna. Eftir að kom fram
um síðustu aldamót var farið að vefa dúka úr erlendu efni, tvisti. Tvistdúkarnir
voru allbreytilegir að lit og gerð. Sumir vefarar ófu sexskeftu og
áttskeftu í milliskyrtur og kjóla. Mun ég koma að því er ég rita
svör við næstu spurningaskrá. Ef ofið var í kjóla eða annað mjög
fínt vaðmál, var það sjaldan ofið fyrr en á úthallandi vetri. Lágu
til þess margar orsakir. Það tók langan tíma að undirbúa ullina í
hina fínu dúka og ekkert áhlaupaverk að spinna 3-4 lóða þráð og ívaf. Svo
var eitt mjög afgerandi atriði í þessu máli. Birtan í gömlu baðstofunum
var lítil, og var því gott að bíða
p2
með að vefa fínu
dúkana þar til að hægt var að nota vorbirtuna. Á þeim bæjum
sem vefstóll var til á, var alltaf einhver maður, sem kunni að vefa í það
minnsta algengan vefnað. Oft var það húsbóndinn sem óf. Svo voru
oft á heimilunum fleirri sem gátu ofið, t.d. unglingar sem voru að læra
vefnað eða eldri menn, sem ekki höfðu þol til að sitja við vefnað að staðaldri.
Margir vefarar voru mjög kappsfullir og þaulsætnir við vefnaðinn,
og sátu í vefstólnum frá fyrstu fótaferð til síðasta háttatíma. Þá
voru aðrir sem höfðu vefnaðinn sem ígripavinnu með fjárhirðingu eða öðrum
störfum. Afköst manna við vefnað voru mjög mismunandi og
kom þar margt til greina, svo sem verklægni áhugi og síðast en ekki síst,
hvernig vefjarþráðurinn hélt, en það var til mikillar tafar að þurfa að
bæta mikið. Unglingar fóru að grípa í vefnað 13-14 ára gamlir, en
ekki mun það hafa verið siður að
p3
láta unglinga sitja
við vefnað fyrr en þeir voru 18 ára eða eldri. Lítið var
það að konur ættu við vefnað, þó voru til konur hér í Þingeyjars., sem
kunnu að vefa. Í flestum sveitum var alltaf eitthvað af mönnum, sem
höfðu nokkra atvinnu af vefnaði. Flestir atvinnuvefarar, sem ég þekkti
tóku vefnaðinn heim til sín, og var þeim á greitt vísst gjald á hverja
alin, sem þeir ófu. Gjaldið var all breytilegt eftir því hvort vefnaðurinn
ar fínn eða grófur. Gamall vefari, sem ég hef átt tal við um þetta
efni, sagði mér að hann hefði sett minnst 10 aura á alinina, en mest 20
aura á alin. Venjulegast gald hefði verið 12-15 aurar á alin hverja.
Ekki get ég sagt um það með fullri vissu hvort greitt var
fyrir vefnað í vöru, en mér þykir það mjög líklegt, að svo hafi verið.
Peningar voru sjaldséðir í viðskiftum manna á milli hér áður fyrr.
Ég vissi til þess að fólk borgaði
p4
vefnað með vinnu,
t.d. við voryrkjur og heyskap. Eftir því sem ég best veit
er orðið vefstaður nær óþekkt í mæltu máli hér í Þingeyjarsýslum, og mun
orðið vefstóll eingöngu notað hér um sveitir. Ekki eru til
hér í sveitum sagnir eða minjar um gamla íslenska kljásteinavefstólinn.
Eitt örnefni þekki ég, sem mun benda til kljásteinavefstólsins, er
það Kljáströnd í landi Höfða í Höfðahverfi. Þar er nú samnefnt býli,
sem byggt var fyrir um 70 árum. Ekki get ég sagt neitt verulega
um vefstólasmíði. Það, sem ég heyrði menn eggja mesta áherslu á,
í sambandi við vefstólasmíði, var það að velja nógu góðan trjávið í vefstólana.
Ekki áttu öll heimili vefstóla og mun það oftast hafa verið
ráð þessa fólks, sem ekki gat verið sjálfu sér nóg í þessum efnum, að koma
vefnaðinum niður hjá þeim, sem gerðu sér það að atvinnu að vefa. Það
þekktist hér í Þingeyjarsýslum að tvær eða
p5
fleirri konur lögðu
saman í einn vef og skiftu svo voðinni eftir því sem þær höfðu lagt til
af efni í vefinn. Oftast 1 alin af voð fyrir hverja þráðarhespu,
sem í vefinn var lögð. Ég hef séð allar þær gerðir af vefstólum,
sem sýndar eru á teikningum þeim er skránni fylgja. Algengasta gerðin
var sú gerð, sem merkt er A. Ég sá vefstóla af þessarri gerð, þar sem slöngurif
var komið fyrir undir slá þeirri, sem rifurinn hvílir á eftir teikningu
A. Var þá komið fyrir tréstykkjum í horninu milli afturuppstandara
og sláar 10, og rifurinn látinn koma í gegnum göt, sem voru á stykkjunum.
Hver maður, sem átti vefstól, átti einnig meira eða minna
af vefjarskeiðum. Oftast munu vefjarskeiðarnar hafa verið útlendar
að uppruna. Ég sá þó í æsku minni eina vefjarskeið, sem ég er ekki
viss um hvort var útlend eða íslensk smíði. Vefjarskeið þessi var
mjög gróf, að mig minnir 60 tanna skeið, og voru tennurnar úr látúni.
p6
Allar þær vefjarskeiðar,
em ég hef séð hafa verið af sömu lengd, þ.e. 5 kvartel. Heiti skeiða var
miðað við það hvað margar tennur voru á hverju kvarteli, t.d. 120 tanna
skeið osfrv. Grófustu vefjarskeiðar, sem ég hefi séð voru 60 tanna
skeiðar. Þær voru notaðar á rúmábreiður og ytrifataefni, ef uppistaðan
var tvinnaður þráður. Fínar vefjarskeiðar, sem höfðu 110-120-130
tennur á kvarteli, voru notaðar á fínustu dúka, sem ætlaðir voru í kjóla
og svuntur. Öllum vefstólum fylgdu skyttur, ein eða fleirri.
Ef ofið var köflótt þurfti að hafa skyttu fyrir hvern lit. Skyttur
þær sem ég hef séð voru margar íslenskt smíði, og að því er ég hygg all
misjafnar að gæðum. Oftast var notað beyki í skyttur, jafnt í hraðskyttur
sem handskyttur. Margir lögðu á það mikla áherslu að skyttur væru sem allra
léttastar og nettar. Það þótti alltaf nokkur vandi að smíða skyttur
og voru það því fáir, sem smíðuðu þær. Þegar ég var að alast upp
í Höfðahverfinu, var þar einn maður, sem smíðaði
p7
skyttur. Það
var Steingrímur Þorsteinsson í Höfða. Ég sá nokkrar skyttur, sem
Jóhann Kristjánsson frá Végeirsstöðum í Fnjóskadal, hafði smíðað. Þær
voru mjög eftirsóttar, einkum hraðskytturnar. Til þess að skyttur
rinnu betur í skili, voru hafðir neðan á handskyttunum nokkurskonar meiðar.
Voru þeir úr málmi, oftast stáli. Neðan á hraðskyttunum voru
tvö hjól, nálægt endum og rann skyttan á hjólum þessum eftir skilinu. Það
þótti mikils um vert að hjól þessi væru vel gerð, og nákvæmlega rétt sett
í. Ef svo ólánlega vildi til að kast var á hjólunum, varð skyttan
rangskreið í skilinu, og gat slitið uppistöðuþræðina. Hraðskyttur
voru með enda úr járni. Voru endarnir oddhvassir. Spólurokkar
fylgdu öllum vefstólum. Voru það oft gamlir spunarokkar, og var þá
settur í þá sérstakur (spólurokkur) spóluteinn í stað snælduumbúnings.
Áhald það sem notað var til að halda út jöðrum á voð, nefndist hér
um sveitir spjálk. Orðið spanstokkur
p8
mun ekki þekkjast
hér um sveitir. Þar sem ég þekkti til var oftast lagt upp
ein alin úr hespu, sem var tólf knekk, og varð þá tólf hundruð á voðinni,
og var það nefnt mikið varp. Væri varpað minna, t.d. ekki hfat nema
ellefu hundruð á voðinni, var lagt lengra upp úr hespunni eða um ein alin
og tveir þumlungar. Minna varp mun ekki hafa verið haft, nema þá
á grófa buxnadúka, sem voru ofnir í rófum skeiðum, og á hafðir 2 og 3 þræðir
í tönn. Venjulega var það ákveðið áður en vefur var rakinn, hvað
mikið skyldi varpað og í hvernig skeið vefurinn skyldi vefast. Ég
hef ekki séð rakið úr hnyklum, og mun það hafa lagst af hér í Þingeyjarsýslum
nokkru fyrir aldamótin síðustu. Ég hef átt tal um vefnað við mann, sem
er fæddur 1878 og heitir Halldór Kristjánsson. Halldór þessi var
góður vefari og óf mikið. Hann sá aldrei rakið úr hnyklum, en hann
sá hnyklakistu með 12 hólfum og jafnmörgum götum á framhlið.
p9
Halldór sá einnigrakningsspaða,
sem á voru 18 göt, og var því hægt að rekja með honum af 18 hnyklum.
Þegar reiknað var út í vef, voru röndóttar og köflóttar voðir mynstraðar.
Var það oftast gjört þannig, að teknir voru þræðir af öllum litum,
sem í vefnum áttu að vera og vafðir upp á fjöl eða pappaspjald. Voru hafðir
saman jafnmargir þræðir og saman áttu að vera í vefnum, t.d. 2 hvítir,
4 gráir, 8 svartir osfrv. Þegar margir litir og litaafbrigði voru
í sömu voð og litum raðað þannig að fyrst var hvítt síðan 3-4 misdökkir
litir og síðast svart, var þetta nefnt "sjattering". Orðið
vafalítið útlent eða af erlendum toga spunnið, en þekki ekki annað orð
yfir þetta. Áhald það, sem uppistaða í voð var rakin á nefndist
rakgrind. Voru þær nokkuð misstórar. Þær rakgrindur, sem ég
sá höfðu þá stærð að hægt var að rekja á þær 50-80 álnir. Tréð sem
skilhælarnir voru festir í nefnist krísholt.
p10
Þó nefndu sumir tré
þetta skammholt. Það orð mun eitthvað vera notað í austur sveitum
S-Þing. Sólveig Indriðadóttir að Syðri-Brekkum á Langanesi, sagði
mér að hún hefði heyrt orðið skammholt notað í Aðaldal. Rakgrindur
voru til á flestum heimilum, sem áttu vefstól. Allir sem áttu vefstól,
áttu meira eða minna af balbínusnældum. Oftast fylgdu hverjum vefstól
12 balbínusnældur. Þær voru um 30 cm. langar og voru snældusnúðarnir
stórir. Var hægt að hafa á hverri snældu 5 hespur eða meira. Balbínusnældur
voru renndar, efnið var oftast eik eða annar harðviður. Þar,
sem ég þekkti til, voru spólurokkarnir notaðir til að spóla þráðinn á balbínusnældurnar,
en þá voru notaðir sérstakir teinar í þá, balbínuteinar. Verkið nefndist
að balbína. Rakningsspaða hef ég aldrei séð, en áður nefndur Halldór
Kristjánsson, sá rakningsspaða í sínu ungdæmi
p11
um 1890. Halldór
sagði að rakningsspaði hafði verið notaður, ef rakið var af mörgum snældum
eða hnyklum, þ.e. 15 þræðir eða fleirri. Spaði þessi var um 25 cm. á lengd,
en 10-12 cm. á breidd í breiðari endann, en hinn endinn var mikið mjórri,
og var haldið um þann enda. Götin voru í röðum 6-8 í röð. Raðir venjulega
3. Efnið í spöðunum var eik eða einhver harðviður. Oftast voru
rakgrindur settar upp í baðstofu, þó sá ég uppsettar rakgrindur í framhýsum.
Áður en byrjað var að rekja í vefinn, voru mældar af einum uppistöðuþræðinum
eins margar álnir og vefurinn átti að vera langur, og þar sett í merki.
Ekki þekki ég það að 2 þræðir væru hafðir í sama hafaldi, og ekki
þekkir áðurnefndur Halldór það. Ekki get ég lýst því, hvernig
fyrsta skilið var tekið á þræðina eða hvernig gengið var frá skilum á krísholtum.
Ein umferð upp og niður grindina nefndist feti. Að rekja fyrsta
fetann nefndist
p12
að leggja á grind.
Halldór sagði mér, að sér hefði reynst best að rekja bæði ofan og
neðan við það sem komið var á grindina. Þá taldi hann að slangan
hefði orðið greiðari. Ekki mátti rekja ofan á það sem komið var á
grind. Ég sá menn nota fetaband, þegar þeir röktu vef
í. Notuðu þeir sama fetabandið í alla slönguna, en brugðu að við
vissan þráðafjölda, t.d. 100 þræði. Fullrakin uppistaða á grind nefndist
slanga. Sett voru bönd í skilin áður en slangan var tekin af grindinni.
Bönd þessi nefndust skilbönd. Almennt var talið að voð yrði
lítilsháttar styttri en slangan sem upp var lögð, en ekki var talið að
þar munaði miklu. Ekki þekki ég til þess að voðir væru raktar
á veggjahæla, en ég sá gjarðaefni rakið á veggjahæla og rúmstólpa.
Þegar ég man fyrst eftir um 1903, voru erlend höföld að ryja sér
til rúms. Höföld þessi voru úr olíubornu hörgarni, og voru með stálaugum.
Ég sá hafaldagrindur, en sá þær ekki notaðar.
p13
Halldór Kristjánsson
sagði mér, að hann hefði hnýtt höföld úr togþræði, og þá notað hafaldagrind.
Hafaldaefnið sagði Halldór að hefði á stundum verið rakið á veggjahæla,
en líka undið á fjöl eða pappaspjald, er var mátulega breitt til að fá
nægilega langann þráð í hafaldið.
Meðan höföld voru
unnin heima, var efni þeirra oftast togþráður. MJög var vandð til
þráðarins. Var talið að það væri ekki á allra færi að spinna góðan
hafaldaþráð. Ég hef heyrt um konur sem unnu sérstaklega góðann hafaldaþráð
og vönduðu efni í þráðinn, sem ætíð var vel dregið tog. Miðhluti hafalds
nefndist auga eða hafaldsauga. Höföld voru geymd á vel þurrum stað,
t.d. á lofti í framhýsum. Ekki veit ég með vissu, hvenær var farið
að nota erlend höföld með stálaugum. Eftir því sem ég hef komist
næst hefur það ekki verið fyrr en nokkru eftir 1890. Móðurbróðir
minn Jón Halldórsson, bóndi í Kotgerði í Höfðahverfi, sagðist
p14
hafa keypt höföld
með stálaugum í Húsavík rétt fyrir síðustu aldamót. Þá var ekki hægt
að fá slík höföld á Akureyri. Ég sá íslensk höföld notuð á Langanesi
eftir 1940. Vefjarkambar voru úr tré, oft úr eik. Vefjarkambarnir
voru þannig smíðaðir að önnur hliðin þ.e. sú, sem upp vissi og var laus
og hægt að taka hana af. Endar þessarar hliðar voru með götum og
gengu endar gaflanna upp í gegnum götin. Á endum gaflanna voru lítil
göt, og voru trénaglar reknir í götin, og var þá lausa hliðin vel föst
meðan slangan var undin upp. Verkið við að dreyfa slöngunni
í vefjarkambinn nefndist hér í Þingeyjarsýslum að leggja í kamb, annað
hef ég ekki heyrt. Þráðurinn, sem festur var við skaftið
og dreginn í fremra gangnaskilið, var nefndur skilþráður. Að vinda
slöngu á slöngurif, draga í höföld og skeið nefndist hér um sveitir, "að
setja til", þó hef hég heyrt "að festa upp", en það er sjaldgæft.
p15
Að vinda slönguna
á slöngurifinn nefndist að bóma eða að vinda upp. Eftir slöngurifnum endilöngum
var kílfar, nægilega djúpt til þess að rifskaftið gat fallið ofan í það.
Á slöngurifnum voru kragar úr tré sinn á hvorum enda. Í kragana
voru festar skinnræmur, sem gengu inn á slöngurifinn, og inn yfir endana
á rifskaftinu. Strax og fyrsti vafningurinn kom á slöngurifinn varð
því rifskaftið vel fast. Áður nefndir kragar vörnuðu því að jaðrar
slöngunnar gengu út, þegar bómað var. Venjulega unnu 3 menn að því
að bóma vef. Einn vatt slönguna á slöngurifinn, annar hélt í slönguna,
en sá þríðji gætti þess að slangan færi jafnt á rifinn. Ekki hef
ég séð það að slangan væri látin ganga að sér á slöngurifnum þegar bómað
var. Þar, sem ég þekkti til, var lögð á það mikil áhersla að slangan
væri sem jöfnust á slöngurifnum. Þegar búið var að bóma slönguna
voru skilsköftin bundin við slá 17 á teikningu A aftan á vefstólnum.
p16
Slöngunni var skift
í 10-15 flokka, og þegar dregið var í höföldin, tók sá sem rétti þræðina
einn flokk í vinstri hönd sína, skar fram úr flokknum, og rétti síðan einn
og einn þráð fram í einu. Þegar hver flokkur var búinn, var lauslega
hnýtt að við höföldin, svo þræðirnir drægjust ekki úr höföldunum. Tveir
menn unnu að því að draga í höföld og skeið. Ég hef heyrt
orðin skeiðarkrókur og skeiðarkrækja, en orðið gikkur, hef ég ekki heyrt
hér um sveitir. Skeiðarkrókurinn var alltaf úr málmi, oft úr þunnu
blikki, og var djúp skora í öðrum enda hans, þar var þráðurinn lagður meðan
hann var dreginn í skeiðina. Oftast var skeiðinni komið þannig fyrir
meðan dregið var í hana, að hafaldasköftin voru bundin saman og skeiðin
látin hvíla á hafaldasköftunum meðan dregið var í hana. Skaftið, em uppistaðan
var hnýtt fram á, nefndist hér um sveitir, framhnýtingarskaft. Verkið
við að hnýta á skaftið nefndist ýmsum nöfnum
p17
t.d. að binda fram,
að hnýta fram, að hnýta á skaft. Framhnýtingarskaftið var fest við voðrifinn
með 3 böndum, snærum. Þegar búið var að festa böndin við framhnýtingarskaftið
og voðrifinn, var byrjað að hnýta fram. Sumir vefarar hnýttu fyrst
fram í miðju, síðan á jörðunum. Þegar farið var að skjóta skyttunni
um skilið og byrjað var á voðinni, var það nefnt að draga fyrir. Sumir
vefarar vildu ekki byrja á voð nema þeir gætu ofið áður en þeir gengu til
svefns, það mikið að einn eða fleirri vafningar kæmust á voðrifinn. Var
einhver þjóðtrú í sambandi við þetta, en ekki veit ég hver hún var. Algengast
mun það hafa verið að gefa ívafið fyrir í einum boga. Alltaf var
slegið að við hvert skil, en mjög var það mismunandi, hvað menn slógu fast
að. Þær voðir, sem voru ofnar þannig, að laust var slegið að, voru
alltaf mýkri og þjálli. Spjálkin var notuð til þess að halda voð
sundur, svo hún næði ekki að vefast inn. Ef spjálk var ekki færð
nógu oft var hætta á að voðin væfist inn.
p18
Margir vefarar mældu
voðirnar um leið og þeir ófu. Höfðu þeir til þess mæliband, sem hafði
ákveðna lengd, t.d. ein alin. Mælibandið var oftast úr seglgarni
eða bómullargarni. Hjá vöndum og góðum vefurum var lítið um misfellur
í vefnaði, en hjá óvönum og óprúttnum vefurum vildu oft verða ýmsar misfellur.
Ég sá konur vera að bæta þráðaslit, en skilgalla mun hafa verið nálega
ómögulegt að bæta. Ég hef þæft voðir, sem voru með áberandi skilgöllum.
Ýmsir trúðu því, hér áður fyrr, að ef mikið slitnaði í vef, þá væri
það fylgjum gesta að kenna, en aðrir voru raunsærri, og kenndu um illum
spuna, og fengu þá spunakonur ekki háa einkun hjá vefurunum. Hver
vinding voðar upp á voðrif var hér um sveitir nefnd færa. Þegar
vefnaði var lokið og voðin var tekin úr vefstólnum nefndist það, að fella
vef, fella niður vef, taka vef niður. Þráðarendar þeir, sem af gengu,
er vefur var tekinn niður, var nefndur undanskurður, en endar þeir, sem
hnýttir voru
p19
fram á framhnýtingarskaftið,
voru nefndir krummabuxur. Þegar átti að þæfa voð, var byrjað
á því að hita keytu í ullarþvotta pottinum. Keytan var síðan látin
í stamp eða þvottabala og voðin þvæld í þessum legi um stund. Síðan
var keytulögurinn tekinn af voðinni og nú var keyta blönduð vatni látin
á voðina og voðin þvæld í þessum legi nokkra stund. Þar næst var
voðin skoluð í hreinu volgu vatni 2-3 sinnum. Síðast var farið með
voðina í læk, ef hægt var, og hún skoluð þar. Að þessu öllu
búnu, var farið að ná vatninu úr voðinni, og var það gjört á þann hátt,
að spýta var sett þvert fyrir dyr og voðin lögð þar yfir. Síðan var voðin
lögð yfir aðra spýtu, oft sveran broddstaf. Var farið með spýtuna
eða stafinn það langt frá dyrunum, sem þurfa þótti, til þess að voðin gæti
verið tvöföld, og voru endarnir látnir koma saman sem næst miðju. Var
nú voðin undin í harðan göndul,
p20
og draup þá úr henni
vatnið. Venjulega fór kona með voðinni og strauk hana meðan hún var
undin. Þar sem ég þekkti til, önnuðust heimamenn um þæfingu,
og var þæft í baðstofu, á gólfi eða hurð. Þæft var undir fótum, nema
um mjög stutta voð væri að gjöra, t.d. 3-4 álnir, þá var þæft undir höndum,
oft í trogi. Ég þekki lítið til votaþófs. Það voru
helst grófir dúkar, t.d. buxnadúkar, sem voru þæfðir í votaþófi 1-2 klukkustundir.
Síðan voru voðirnar þæfðar, sem annað vaðmál, undir fótum, þar til
þær voru fullþæfðar. Flestir þófarar voru létt klæddir við þóf, margir
á nærklæðum einum saman. Voðin var oft aðgætt í þófinu og hrist upp.
Það nefndist að kippa. Ýms orð voru notuð um þóf. Þessi
voru helst. Bloti, þegar voðin var að byrja að þófna. Voðin
er fullþæfð, þegar voðin var búin að fá það þóf, sem talið var hóflegt.
Svellþæft, nefndist það, þegar voðir
p21
voru mikið þæfðar.
Voðir töldust fullþæfðar þegar þær höfðu styttst um eitthvað ákveðið.
Þetta var mjög breytilegt og fór eftir fínleik voðanna. Fínar
voðir voru þæfðar mikið minna en grófar voðir.
Þegar ég man eftir
var þófarabiti að mestu eða öllu lagður niður, en ég heyrði aldra fólk
tala um þófarabita og lýsa honum. Þófarabitinn var fyrst og fremst
smurð flatkaka og eitthvert góðmeti með, svo sem reyktur magáll, súr lundabaggi,
reyktur eða súr bringukollur, hangikjöt eða hákarlsbiti. Að vísu
ekki allt þetta, en meira eða minna af þessu. Þegar ég var
unglingur, heyrði ég gamlan mann segja frá því að þegar hann og bræður
hans þæfðu voðir, gaf móðir þeirra þeim þumlungsþykka sneið af stórum blóðmörskepp.
Það var þófarabitinn á því heimili. Ekki hef ég heyrt
talað um ákveðin laun fyrir þóf á voð. Þar mun greiði hafa mætt greiða
eins og oft hefur verið í samskiftum sveitafólks.
p22
Þegar voðin var fullþæfð,
var hún undin upp á fjöl og sett undir farg. Þar var voðin látin
vera 1-2 sólarhringa, síðan var hún breidd út til þerris. Þá var
hún undin aftur upp á fjöl, og látin undir mikið farg. Var hún látin
vera þar í nokkra daga. Síðan ar voðin tekin af fjölinni og undin
upp í stranga. Stranginn síðan geymdur á þurrum stað, þar til sniðnar
voru flíkur úr voðinni. Ég man eftir því að voðir voru sendar
í verksmiðjur til litunar og lóskurðar, en ekki var mikið gjört að því.
Helst munu það hafa verið fínir dúkar, svo sem peysufata- og kjóladúkar
og dúkar í betri föt karlmanna.
Ritað í nóvember
1966. Halldór Ólason.
Nr. 6908
p1
Ull og tóvinna 3: Vefnaður hófst vanalega í byrjun þorra. Framan af vetri var unnið í vefinn, kembt og spunnið. Reynt var að ljúka vefnaði fyrir páska. Oftast var byrjað á tvisti í tvist. Þá var bæði uppistaða og fyrirvaf tvistur, og var hann notaður í millipils, kjóla, skyrtur ofl. Síðan voru vaðmálin ofin. Þau voru höfð t.d. í buxur, úlpur ofl. Síðast var ofið í ábreiður. Það kunnu ekki allir að vefa. Oftast 1-2 menn á bæ. Oft var talað um góða og duglega vefara, fóru þeir stundum á aðra bæi til að vefa eða tóku vefnað heim. Það var yfirleitt ofið milli mála, sem kallað var, nema ofið var á öðrum bæjum, þá var ofið allan daginn. Það þótti góð afköst að vefa 6-7 álnir á dag. Það þótti góð borgun að fá 0.25 kr. á 1 alin. Líka voru verkaskifti algeng. Börn og unglingar hjálpuðu oft til, réttu í höföld og skeið og einnig við að spóla. Yfirleitt var talað um vefstól. Þó var stundum talað um vefstað, t.d. ef þröng var í baðstpfu. Kljásteinsvefstað þekki ég ekki, aðeins heyrt hans getið. Vefstólar voru ekki til á hverjum bæ. Í Haukadal voru aðeins 4-5 til.
p2
Vefjarskeiðar voru ekki heimasmíðaðar. Þær voru að svipaðri lengd. Það var talað um 80 tanna skeið, einnig 90, 100 og 120 tanna skeið. Spólurnar voru bæði úr tré og járni, stundum úr kindaleggjum og spólan látin í skyttuna á spóluteininn. Áhaldið sem spólað var á nefndist spólurokkur, stundum voru notaðir gamlir rokkar, og þá var notaður spóluteinn. Áhaldið sem haft var til að halda út jöðrum á voð, var kallað spjálk. Það var spýta með nöglum til endanna, og mátti bæði lengja hana og stytta eftir því sem voðin var breið. Ég heyrði talað um að setja til vef, sömuleiðis heyrði ég talað um fimm lóða verk, og einnig tveggja lóða verk. Það var talað um að reikna út í höföld, og einnig í skeið. Kann ég ekki að lýsa því nánar. Ef útreikningur stóðst ekki var voðin varplítil, eða þá væri of mikið varp.
p3
Það voru ekki allstaðar til rakgrindur, þó vefstóll væri til. Þá var fengið að rekja á þeim bæjum, sem þær voru til á. Ég treysti mér ekki til að lýsa balbínustól, þó hann væri til á Skarði í Haukadal, þar sem ég ólst upp. Það var kallað að balbína. Fengu krakkar helst ekki að koma þar nálægt, sömuleiðis þegar var verið að rekja. Fullrakin uppistaða á grind nefndist slanga. Efni í höföldin voru unnin heima. Það var álitið vandasamt verk, því þráðurinn þurfti að vera seigur. Var hann gufuseyddur. Þegar reka mátti bandprjón í gegnum hnykilinn, var hann orðinn fullseyddur. Þá voru hnyklarnir teknir og ..... þar til þeir voru orðnir kaldir. Að draga í höföld unnu oftast 2 við, annar rétti en hinn dró í. Þófið fór vanalega þannig fram, að þæft var undir fótunum í baðstofunni, og voðin stoppuð af. Oft var voðin hrist upp,sem kallað var, svo ekki kæmu brigður í hana. Síðan vafinn upp á fjöl og látin þorna þannig. Einnig heyrði ég talað um að þæft væri í tunnu. Þá var tvennt við það. Þótti það vont verk.
Nr. 8030
p1
Ull og tóvinna 3. Vefnaður: Vefstóllinn
var aldrei settur inn í baðstofu fyrr en á góu eða í byrjun einmánaðar.
Það var ekki búið að spinna og vinna ullina fyrr en þá. Það
var ekki byrjað að vefa fyrr en allt var tilbúið, því eftir að vefnaður
byrjaði var ekki hugsað um annað. Öll sængurver og skyrtur
voru ofin úr tvisti. Lökin voru úr ullarbandi. Sængurnar voru
harðari. Það var alveg furða hvað fljótlegt var að vefa. það var
misjafnt eftir bæjum hver óf. Það var ekki vinnufólk heima, þannig
að mamma óf mest allt. Pabbi óf stundum þegar hann hafði tíma. Það
var ofið á milli mála. Frá því morgunverkin voru búin, og þar til
orðið var dimmt. Þegar við systkinin vorum orðin dálítið stálpuð,
fórum við að geta farið í fjósið ein og þá gat mamma byrjað fyrr að vefa.
Og eldri systir mín gat séð um eldhúsverkin. Einn eldri bróðir
minn lærði að vefa þegar hann var kominn yfir fermingu, og greip í það
líka.
Vinnukona á næsta bæ, Svalbarða,
kom stundum og óf fyrir mömmu. Hún fékk kaup fyrir, sem gekk til
húsbónda hennar. Ég man að hún óf óskaplega fallega dúka. Það
voru ekki fleirri sem komu til okkar til að vefa, en það getur verið að
það hafi komið fólk á hina bæina till þeirra hluta.
p2
Vefstóll: Það var alltaf
talað um vefstól. Kljásteinavefstól hef ég ekki heyrt talað um. Ég
veit ekki hver smíðaði vefstólinn heima.
Vefstóllinn heima hjá okkur var
eins og sést á mynd B. Tvíbreiða vefstóla eða hraðskyttuvefstóla
hef ég ekki heyrt talað um. Það var vefstóll til á næsta bæ og á
flestum öðrum bæjum. Þó ekki öllum. Það kom aldrei fólk að
vefa hjá okkur, né heldur lánuðum við stólinn. Það var óskaplega
milil smíði á vefstólnum og mikill viður sem fór í þá.
Skeið: Ég veit ekki hvort
vefjarskeiðar voru heimasmíðaðar. Þær voru úr einhverjum málmi. Ábyggilega
voru þær miðaðar við einhverja ákveðna lengd. Það voru rimlar á þeim,
þar sem maður setti bandið í gegn. Vefskytta: Skytturnar
voru úr tré. Spóluteinninn var ekki kallaður neitt annað. Spólurnar
voru úr járni. Spólurnar voru settar á skyttuna. Spólurokkur:
Það var alltaf spólað á spólur við vefnað. Spólurnar voru bara
járnhólkar. Ég sá aldrei gamla rokka notaða til að spóla á fyrir
vefnað. Spanstokkur: Hann er til þess að vefurinn dragist
ekki saman. Það var svona spýta um þumlungs breið, með oddi á endanum,
og hún var sett á dúkinn, svo að hann drægist ekki saman og væri alltaf
jafnbreiður. Á endanum á fjölinni voru fínir gaddar, aðeins sverari
en títuprjónar og var þaim stungið í jaðarinn.
p3
Að leggja upp: Það var töluvert
verk að leggja upp í voð. Ég man að pabbi var oft að hjálpa mömmu
við að reikna það út. Það var kallað að reikna út. Það var
farið eftir því hvað voðin átti að vera löng og breið. Það var giskað
á hvað mikið væri í hverjum hnykli. Það var ekki svo erfitt að sjá
það. Fólk var svo vant að sjá það. Að reikna í skeið
og vef: Að reikna í skeið er að ákveða fjölda uppistöðuþráða í breidd
voðar. Verkið við að reikna út efnismagn í uppistöðu og ívaf voðar,
og þá um leið munstur, var kallað að reikna út í vef. Það var alveg
ákveðið hvernig litirnir voru lagðir á milli. Mamma talaði um uppistöðu
og ívaf. Rakningsgrind: Það var engin rakningsgrind
til heima. Hún var fengin lánuð á næsta bæ. Hún var um mannhæðar
há og bundin upp í baðstofuna. Við vorum alltaf 2 krakkar sendir eftir
henni. Sá sem gekk á undan, fór inní hana og hélt á henni þannig.
Hún var ekki mjög þung. Samt urðu alltaf 2 að aækja hana. Hælar
voru utan á grindinni, sem var sett á. Það var ekkert mál að fá rakningsgrindina.
Við pöntuðum hana bara, og svo gerðum við þetta á einum degi.
Balbínur: Ég man ekki eftir balbínum eða balbínustólum.
Rakningsspaði og rakningsstokkur: Ég man ekki eftir neinum
rakningsspaða eða rakningsstokk.
p4
Rakning á rakningsgrind: Þegar
við settum í uppistöðuna á rakningsgrindina vorum við með allt í hnyklum.
Það var mikið verk að gera þetta. Hver hnykill varð að vera
í séríláti til að ekki færi allt í flækju. Það voru vaskaföt og öll
önnur ílát útum allt gólf. Svo þegar einn hnykill var búinn, varð
að binda annan við. Mamma mældi lengd voðarinnar. Hún setti
merki á þráðinn og mældi út frá þráðafjölda í hafaldi. Það var alltaf
sett eins í hafaldið. Það var enginn rakningsspaði notaður heldur
voru puttarnir notaðir. Hafaldagrind: Hún var ekki
til heima hjá mér, en ég heyrði talað um hana. Hún var líka fengin
lánuð af næstu bæjum. Það var mjó spýta til að rekja á hafaldagrindina,
einna líkust skeið. Hafaldaefni og höföld. Höföld voru
úr togi. Það varð að vera slétt og jafnt. Ég hef ekki heyrt
talað um að það væri soðið upp úr tólg til að mykja það. Það var
mikil kúnst að hnýta á höföldin hafaldahnút. Ég gerði það aldrei.
Ég man ekki eftir hvað bandið hét sem varnaði höföldunum að dragast
út af sköftunum. Vefjarkambur: Það má vera að skeiðin
hafi líka verið kölluð vefjarkambur.
p5
Að festa upp: Það var kallað
að setja upp, þegar verið var að vinda slönguna upp á slöngurifin.
Að bóma vef: Það var kallað að bóma, þegar verið var að vefja
upp bandið. Bandið sjálft var kallað slanga. Það gat verið
óskaplega langt. Það var ekki hægt að bóma vef einn. Það varð að
passa vel að bandið dreifðist alveg jafnt um bómuna. Það hlýtur að
hafa verið eitthvað sérstakt áhald til að gera þetta, en ég man ekki eftir
því. Að draga í höföld: Hafaldasköftin voru bundin
föst á meðan verið var að draga í höföldin. Það var setið við þða.
Konan sem dró í höföldin, sag á bekk og svo var annar hinum megin
og rétti einn og einn þráð til hennar. Ég man ekki hvernig gengið var frá
þráðarendum, enda sá ég það ekki því ég var aldrei þeim megin. Ég
bara rétti mömmu þráðinn, og vissi ekkert hvað hún var að gera hinum megin.
Að draga í skeið. Það var notaður krókur til að draga
í skeiðina. Að draga fyrir: Það var kallað að draga
fyrir, þegar farið var að skjóta skyttunni um skilið og byrjað á voðinni.
Einnig var talað um að gefa í. Spanstokkur var áhald, sem sett
var á vefinn til að halda honum jafnbreiðum. Ef vefurinn mjókkaði
var sagt að hann væfist inn. Voðin var mæld af og til með tommustokk
eða rauðmáluðum álnakvarða, sem mamma átti. Sá kvarði var ein alin á legnd.
Á honum handfang og hann var mjög gamall. Ef þráðurinn slitnaði
í vef var strax bætt í. Það var aldrei neitt talað um
p6
trú og hjátrú heima hjá mér, en
ég er viss um að þar sem var margt vinnufólk, þar var mikið rætt um svona.
Þar sem er fleirra fólk er meira talað. Að fella vef:
Vefurinn var felldur þegar voðin var orðin nógu löng. Þráðarendarnir
sem gengu af voru kallaðir afvikur. Þeir voru til ýmissa hluta nytsamlegir,
t.d. til að sauma með. Þóf: Það var all þæft með fótunum.
Sett á gólfið og stigið á því. Það var þvegið gólfið mörgum
sinnum, svo það væri örugglega táhreint. Svo var voðin þvegin úr
volgu vatni á hlóðunum, látið leka úr því í meis uppi á pottinum. Áður
en eldavélin kom var notað gólfið í húsinu, og þegar vel var lekið úr voðinni
var farið með hana þangað, sett á gólfið og gengið á henni. Eftir
að eldavélin kom, var sett kommóða framan við á gólfið í baðstofunni, og
þeir sem gengu á þessu gátu stutt sig við hana.
Það var alltaf þeir sömu sem þæfðu.
Maður úr næstu sveit, kom oftast il að þæfa með pabba. Þá höfðu
hann og pabbi vinnuskifti. Pabbi fór um vorið til að smíða hjá honum
í staðinn. Það hlýtur að hafa verið erfitt verk að þæfa, því þó þeir
væru á nærbrókunum og skyrtunni við það, voru þeir alltaf kófsveittir.
Svo varð að taka voðina öðru hvoru og hrista hana og teygja, til
að hún þófnaði jafnt. Mamma réði því alveg hvenær hætt var að þæfa.
Á meðan þæft var, fengu karlarnir kökubita, sem var alltaf
kölluð þófarakaka. Það var ekki alltaf sama kakan, en oft flatkaka
eða eitthvað sem til var. Allt prjónadót var þæft í höndunum, jafnóðum
og það varð til. Þegar búið var að þæfa var voðunum komið fyrir í
rúmunu, og svo var legið og sofið á þeim. Lóin var aldrei skorin
af. Það var ekki fyrr en á síðustu árum, sem ég heyrði talað um það.
Voðin var miklu mýkri, ef lóin var á.
Nr. 1292
p1
Ull og tóvinna 3.
Fram um 1935-40 var að jafnaði ofinn einn eða fleirri vefir á flestum
heimilum hér í sveit, en meira var það þó áður, þegar bæði var ofið í nærföt,
sem farið var að prjóna á þessum tíma, og öll utanyfirföt, milliskyrtudúka
ofl., sem farið var þá að fá úr kaupstað. Mun ég reyna að
gera grein fyrir hvernig þessu var háttað hér, milli síðustu aldamóta og
1920. Tóvinna hófst þegar haustverkum lauk og stóð óslitið til sumarmála,
en það tók langan tíma að spinna allt vefjarband, og var því algengt að
ekki væri farið að vefa fyrr en með góu (seint í feb.). En eftir
það var unnið stanslaust þangað til öllum vefjum var lokið, sem oftast
var um sumarmál. Vefjarband var kallað þráður. Þó kom fyrir
að farið var með stuttan vef fyrir jólin, ef eitthvað vantaði sérstaklega,
svo sem í jólaföt handa börnum. Annars fór það algerlega eftir því
hvernig á stóð, á hverju var byrjað. Oftast voru það húsmæðurnar,
sem sáu um
p2
vefina, amk. þangað
til heimasæturnar gátu tekið við því, enda var góð kunnátta í vefnaði talin
nauðsynleg hverri húsmóður. Heimasæturnar fór því oft fljótt að læra
vefnað og munu stúlkur oft hafa farið að taka í vefnað eftir fermingu.
Dæmi veit ég til (þó ekki úr Öræfum), að stúlkur færu í aðra sveit til
að læra vefnað. Stundum önnuðust þó vinnukonur vefina, en varla nema
þær sem voru svo árum skifti í sömu vist, og dæmi voru til að húsbændur
gerðu það. Oftast var það aðeins einn í heimili, sem óf hvern vef,
og hefði hann ástæður til, sat hann við allan daginn. Góð afköst
þóttu ef ofið var á dag 10-12 álnir, en mjög gott, ef það var 16-18 álnir,
en það veit ég að ein kona óf stundum. Vitanlega voru afköstin misjöfn,
eftir því hvað ofið var. Fljótlegast var að vefa einskeftu, og þar
næst vaðmál, en vandari vefnaður var seinlegri. Ekki get ég sagt
hvað menn voru lengi með einstakar vefnaðartegundir.
p3
Hér í sveit bjargaðist
hvert heimili fyrir sig með vefnað, en einstaka fengu þó lánaðan vefstól.
Ekkert veit ég um notkun kljásteinsvefstóla hér í sveit, nema það
að Ólöf Árnadóttir í Svínafelli óf síðust manna, svo vitað sé, hér í sveit
í slíkum vefstað. Í manntali 1816 er hún talin 62 ára. Hún
varð háöldruð, en hvenær hún hætti að vefa er nú óvíst, en það hefir varla
verið langt fram yfir 1820. Sigríður Ísleifsdóttir, langömmumóðir mín mundi
Ólöfu, enda alin upp í sama heimili, og er sögn þessi frá henni komin,
þannig að hún sagði dóttur sinni, sem sagði föðursystur minni, en hún sagði
mér. Í öðru heimili við sama hlað ólst upp Guðrún Bjarnadóttir
frá Skaftafelli, og var 16 ára 1816, en ekki er ég viss um að það sé sama
konan sem skrifað var upp eftir aðferðin við að vefa í gamla vefstaðnum,
en svo var kljásteinavefstóllinn nefndur amk. oftast hér í sveit.
p4
Ekki er ég alveg
viss um að það hafi átt við vefstaðina að góður vefari gengi þingmannaleið
á hverjum degi meðan verið væri að vefa. Það gæti eins átt við þegar
rakið var á hæla. Hafaldavefstólar voru alltaf nefndir vefstólar,
en þeir útrýmdu hinum svo gersamlega, að nú mun ekkert vera hér til úr
þeim. Þó eru ekki mörg ár síðan til var hvalbeinsskeið úr slíkum
vefstað, og er hún nú hjá Andrési Valberg. Hér í sveit hafa
flest heimili bjargast fyrir sig með smíði búsáhalda, en varla hefir það
verið svo með vefstóla, amk. munu það einkum hafa verið 3 menn, sem smíðuðu
vefstóla eftir að kom að aldamótum 1900. Voru það Jón Einarsson bóndi
í Skaftafelli, Ari Hálfdánarson, hreppstjóri á Fagurhólsmýri og Björn Pálsson,
bóndi á Kvískerjum. Ekki veit ég til að smíði vefstóla væri metið
til verðs, amk. var ekki fast verð á þeim. Allir voru vefstólarnir í höfuðatriðum
af
p5
B gerð, en á þeim
seinni voru þó gerðar umbætur á skeiðarslaginu (skeiðarumbúnaðinum), þannig
að það var fest að neðan. Var þá fremri bóman ekki höfð lengri en
svo, að endar hennar komu jafnlangt út og hliðarfjalir vefstólsins, og
var hringur með tönnum hafður á henni innan við hliðina og greip stilli
úr járni í tennurnar, svo hægt væri að herða á voðinni. Innan við
hringinn var 2 eikarspýtum stungið í kross í gegnum bómuna til að geta
haft afl á henni. Skeiðarslagskjálkarnir voru járnbryddir að neðan, til
að verja þá sliti, en þeir léku á tönnum, sem oft voru sorfnar í koparlön,
þannig að hægt var að færa skeiðarslagið að sér að frá, eftir vild, en
léttara þótti að vefa þegar skeiðarslagið var fest að neðan en ofan. Aftari
bóman var fest eins og á gerð B. Skeiðar voru fengnar úr kaupstað
(nema hrosshársskeiðar, sem voru smíðaðar úr vír), og voru alltaf kallaðar
skeiðar eða vefjarskeiðar. Alltaf voru þær jafnlangar, en misþéttar og
var
p6
talað um svo og svo
margra tanna skeið. Í skyttunum var jafnan valinn viður,
og átti að vera harður, léttur og ekki kleifinn. Undir skyttunni
var hafður eir eða látúnsvír, til að þær rynnu betur um skilið, og var
ekki vandalaust að ganga rétt frá þeim. Teinninn, sem spólan var á, var
nefndur skyttuteinn, en spólurnar voru alltaf úr sauðskinni. Til
að spóla, var notaður rokkur, oftast gamall, og var hafður sérstakur teinn
í staðinn fyriri snældubú. Var hann úr sverum vír, en hjól á honum
fyrir strengina. Spanstokkur var hafður til að halda voðinni sundur.
Hann var með smátindum í endunum, til að festa í voðinni, en var
í tvennu lagi. Gekk ein spækja úr öðru stykkinu milli tveggj, sem
komu úr hinu, og voru mörg göt á öllum spækjunum og teinn í gegn, sem hægt
var að færa til eftir vild, en á spækjunni, sem á milli kom var haft tippi,
sem hægt var að snúa, til að gera stokkinn stífann, en til þess varð að
hafa spöng milli samföstu
p7
spækjanna eða að
2 tippi voru höfð á hinni. Efnið var vegið þegar lagt var upp og
reiknað út eftir vigt, og var talið hæfilegt að mörkin úr hnyklum gerði
1 3/4 alin, en þá var miðað við bandið eitt, en ekki með völunum í hnyklunum.
Ekki hef ég heyrt neitt nafn á verkinu að reikna út, hvað margir
þræðir ættu að koma í tönn í skeiðinni, en það var talið auðvelt verk þegar
búið var að reikna út í höföldin, enda veit ég ekki til að þessir útreikningar
stæðust ekki. Ég treysti mér ekki til að segja nákvæmlega
frá hvernig reiknað var út í einstök munstur, en efnið þegar í vefstólinn
var komið, var kallað uppistaða og veftur. Fram eftir síðustu
öld, held ég að almennt hafi verð rakið á hælum (vegghælum), og var það
jafnvel til fram á þessa öld. Fór það oftast fram í framhúsi og kostaði
mikla göngu. Sömu hælarnir voru notaðir ár eftir ár.
p8
En eftir að kom fram
að aldamótum, var yfirleitt rakið á rakningsgrindur, en algengt var að
menn færu með vefjarefnið af bæ til að rekja það. Rakningsgrindur
voru misstórar, og mun hæðin oftast hafa farið eftir húsinu, sem rakið
var í, því frístandandi grindur þekktust hér ekki, fyrr en Vefnaðarbókin,
leiðbeiningar Halldóru Bjarnadóttur, kom.
Rakningsgrindur þær
sem ég man eftir voru rúmlega mannhæðar háar og voru gerðar úr 2 römmum
með styrktum hornum, og var annar ramminn það stærri að hann féll utanyfir
hinn. Að ofan voru þeir festir saman með all sverum bolta og gekk
hann upp í bita í húsinu. Að neðan var grindin fest saman með þvingu,
sem smíðuð var úr 1" járni og gekk oddur niður úr henni. Hann
lék í holu í steini, sem fastur var í gólfinu. Skilhælarnir voru
festir á fjöl, sem bundin var á grindina, en ekki hef ég heyrt neitt nafn
á henni.
p9
Balbínur þekktust
hér ekki, en rakinskassar voru notaðir. Voru það aflangir kassar
með 2 eða fleirri hólfaröðum fyrir hnykla, o var ekki hafður nema einn
hnykill í hólfi. Ekki mun þó rakinskassi hafa verið til allstaðar,
þar sem rakið var, og voru þá notuð þau ílát sem hendi voru næst.
Rakningsspaði var notaður til að halda uppistöðuþráðunum í réttri
röð, og taka skil á þá. Rakningsspaðinn var úr góðum viði og mig
minnir með 4 gataröðum að endilöngu og handfangi á endanum. Ekki
er ég viss um að muna stærð spaðans, en minnir hann vera um 30 cm. fyrir
utan handfangið. Rakningsgrindur voru oftast settar upp í
bæjardyrum og rakningskona og aðstoðarmaður röktu. Aðstoðarmaðurinn
var oftast unglingur. Lengd voðarinnar var mæld með því að setja
merki á uppistöðuþráð. Til að taka snurður af þræðinum var höfð lykkja
í hverju hólfi rakinskassans, sem þráðurinn
p10
var þræddur gegnum.
Skilin voru tekin þannig að farið var með þráðinn undir annan skilhælinn,
yfir hinn og í hálfhring umhverfis hann, og svo yfir hinn hælinn. Væru
endar fleirri en einn og ekki rakið í spaða var skilið nefnt gangaskil,
en annars þráðaskil. Gangur nefndist ein þráðarumferð upp og niður,
og nefndist lagning fyrsta gagnsins að leggja á grind. Merki voru
sett við hverja 100 þræði og var notaður við það einn bandspotti, en ekki
hafði hann neitt nafn hér. Alltaf var rakið við ganginn (neðan við
eða ofan), en ekki utan á. Fullrakin nefndist uppistaðan slanga,
og var tekin af grindinni, svipað og þegar haldið var, en þó var snúið
á hverja lykkju. Alltaf var byrjað að reka á grindina að neðan. Ekki
hef ég heyrt neitt ákveðið um hvað
p11
voðin yrði styttri
en slangan. Til að útbúa höföldin, var höfð sérstök grind,
hafaldagrind, og var hún gerð úr 5 spýtum úr góðum við. Hliðarspýturnar
voru þunnar (rúmur cm.), en nokkuð breiðar (4-5 cm.), og voru festar vel
í þverstykki, gegngrópað, og var gengið á sama hátt frá efra þverstykkinu,
nema hvað grópið var haft svo rúmt, að auðvelt var að kippa því upp af.
Mitt á milli hliðarspýtanna, var sívalur tréteinn, og var hann festur
á sama hátt. Efnið í höföldin var unnið heima og var notað dregið tog.
Þráðurinn var rakinn á smá tólgarmola og síðan soðinn. Síðan
var bandið rakið á nagla sem voru hafðir með hæfilega löngu millibili,
og síðan skorið á þetta allt í einu. Hafaldagrindin var oftast höfð
á hnjánum, þegar hún var notuð, neðri þverspýtan látin liggja á hnjánum.
Þráðurinn var jafnaður á grindinni, þannig að miðja hans kom á þá
hliðarfjölina, sem nær manni var, en síðan
p12
var endunum brugðið
um miðteininn og hnýtt vel að. Oftast einir 6 hnútar og hert vel
að hverjum hnút. Hafaldsaugað var svo búið til á þann hátt að endunum
var aftur brugðið um teininn og hnýtt þar á sama hátt. Að lokum var
svo bandið hnýtt um hina hliðarspýtuna. Þegar grindin var full, var
þverspýtunni kippt af, og allt dregið af. Hér voru aldrei notuð stálhöföld,
heldur úr góðu tré. Voru hafðar vírlykkju á endunum og snúið utanum
endann, sem hafaldasnúrurnar voru festar í, og vörnuðu þær höföldunum að
fara út af sköftunum. Höföld voru geymd með ýmsum hætti, en oftast
munu þau þó hafa verið hengd upp á vel þurru lofti. Vefjarkamburinn var
bundinn framan við höföldin, stundum á skeiðarslagið, meðan lagt var í
hann, en oftar mun hann þó hafa verið bundinn þvert yfir vefstólinn eða
á hafaldauppihöldin. Vefjarkamburinn var ekki frekar úr völdum
p13
viði. Sá sem
hér var notaður var úr ljósviði og bambustindar ofan á, en heyrt hef ég
að sumsstaðar hafi verið notaðir naglar. Oftast var hafður hálfur
annar gangur milli tinda, þegar lagt ver í kambinn. Plógskaftið var sett
í endann á slöngunni og bundið við aftari bóluna með 3 böndum. Plógskaftið
var amk. stundum járnteinn. Við enda hans var skilþráðurinn festur,
en hann var dreginn gegnum fremra gangaskilið. Yfirleitt
var verkið að koma vefnum í vefstólinn í heild kallað að festa upp vefinn.
En líka var sagt, að setja upp og stundum jafnvel að setja til vef.
Hér þekktist ekki nafnið slöngurifur. Það var alltaf talað
um aftari bómuna. Hún var úr tré, oftast um 12 cm. sver og lægð tekin
eftir henni endilangri, sem plógskaftið var látið falla í. Lausir
trékragar voru hafðir sitt hvoru megin
p14
á bómunni, og gerðu
þeir hvorttveggja, að halda plógskaftinu, og halda slöngunni. Stundum
var naglapinnum stungið í bómuna utan við kragana, til að stöðva þá. Á
enda bómunnar, hægra megin þegar setið var í vefstólnum, voru festir 4
armar til að snúa henni með, en undir þeim var höfð járngjörð, og var hún
nokkru sverari en bóman. Í gegnum göt, sem voru á þessari gjörð með
ca. 2" millibili, voru reknir sverir naglar, eða því um líkir teinar,
en á hlið vefstólsins var ca. 12" löng spýta með járnlykkju í endanum,
sem féll á þessa pinna, og var það til að stöðva bómuna, en spýtan var
höfð það löng, að til hennar næðist úr sætinu þegar þurfti að slaka á bómunni.
Þegar slangan var bómuð urðu 3 að hjálpast að. Einn að snúa
bómunni, annar að jafna slönguna á hana og þriðji að halda við slönguna.
Reynt var að rekja sem jafnast á bómuna og voru kragarnir látnir
halda að þræðinum sitt hvoru megin.
p15
Þegar búið var að
bóma voru grönn sköft (skilsköft) sett í skilin, og endar þeirra tengdir
saman með bandi, en hafðar ca. 2-3" á milli þeirra. Þegar
dregið var í höföldin, voru hafaldasköftin bundin saman á 2 stöðum til
að halda þeim stöðugum. Oftast rétti unglingur endann, en sú sem
annaðist uppsetninguna taldi í höföldin og tók á móti. Við hverja
100 enda var hnýtt framan við höföldin, svo ekki drægist úr og ólagaðist.
Einnig unnu 2 að því að draga í skeiðina, og var til þess notuð krækja,
sem oftast var klippt út úr girði eða öðru þunnu járni. Oftast mun
skeiðin hafa verið bundin ofan á skeiðarslagið meðan dregið var í hana.
Við fremri bómuna var bundinn járnteinn, og voru höfð í honum 3 snæri (vefstólasnæri),
svo löng að teinninn kom rétt að skeiðinni. Var tekinn jafn feti
af efra og neðra skili
p16
og hnýtt um teininn,
og var það kallað að hnýta fram. Þegar búið var að hnýta fram, var
tilbúið að vefa eða að fara að draga fyrir. Þurfti þá að gefa mátulega,
og var það gert með því að láta bandið mynda mátulega mikinn boga. Vefturinn
var svo sleginn að með því að kippa að sér skeiðarslaginu tvisvar til þrisvar.
Þegar búið var að vefa lítið eitt, var álnar langur spotti dreginn gegnum
voðina, og var hann færður í hvort skifti sem búið var að vefa jafnt honum.
Þegar búið var að vefa lítið eitt var spanstokkurinn settur í og
síðan færður eftir þörfum. Fljótlega þurfti að færa á. Var
þá losað skilið á aftari bómunni, og undið upp á hina og var talað um að
búið væri að vefa eina eða fleirri áfærur. Þegar búið var að vefa
var vefurinn felldur, þ.e. afvikur klipptar af, og vefurinn undinn ofan
af bómunni.
p17
Afvikur voru notaðar
í allt sem henta þótti. Þegar búið var að fella vefinn, var voðin
undin upp úr heitu vatni, þ.e. hún var látin í bala með vel heitu vatni
og bleytt vel og var það oft gert í bæjardyrum. Síðan var endanum brugðið
um sterkan staf og endanum snúið nokkrum sinnum um voðina. Svo var
farið með stafinn hæfilega langt frá dyrunum, en annar stafur hafður þar
og voðinni brugðið um hann, og síðan um stafina á víxl, þangað til búið
var að rekja alla voðina á þá. Stafinn, sem í dyrunum var, settu
menn þversum í dyrnar, en hinum var snúið á endum og togað í voðina um
leið. Þegar búið var að snúa eins og hægt var, var strokið um voðina
með lófunum. Að því búnu var voðin tekin saman og lögð á hreinan
hlera, sem hafður var á baðstofugólfi. Oftast mun húsbóndi hafa þæft,
en þó veit ég um einn mann, sem
p18
þæfði fyrir mörg
heimili. Alltaf var þæft undir fótum, og voru menn oftast á nærklæðum
við það verk.
Þegar búið var að
þæfa voðina nokkuð, var hún teygð. Tóku þá 2 menn hana á milli sín,
tóku í jaðrana og toguðu þannig ca. faðms bút á milli sín og gekk það svo
koll af kolli, þar til voðin var búin. Hvað mikið voðin var þæfð
fór eftir því í hvað hún var ætluð, og var matsatriði í hvert skifti. Að
sjálfsögðu könnuðust menn við þuluna um Bárð í jökli, en ekki veit ég til
að hún væri nokkurn tíma kveðin við þóf. Ekki veit ég neitt um hvernig
greitt var fyrir þóf. Þegar búið var að þæfa, var voðin undin upp
á fjöl, oftast rúmfjöl og látin liggja undir fargi nokkra daga til að pressa
hana. Síðan var hún lituð, ef þurfa þótti.
p19
Rétt er að taka fram,
að hér var aldrei undið upp úr keytu þegar þæft var, en voðir munu stundum
hafa verið þvegnar upp úr keytu áður, en alltaf skolaðar vandlega úr vatni
á eftir. Nokkrar eftirhreytur: Unglingar lærðu að vefa
með því að ljúka við vefi, endinn varð oftast verri en aðalvoðin, hvort
sem var. Hér í sveit var ofið auk einskeftu og vaðmáls, hringavefnaður,
nankinsvend. Sá vefnaður barst hingað frá Jóni Hálfdánarsyni í Flatey
á Mýrum, eftir aldamót. Einnig voru ofnar ábreiður og teppi, en sjaldan
og mun lítið hafa verið gert að því eftir aldamót. En til var hér
í sveit, og held ég að víst sé, að það hafi verið heimaunnið, glitofnar
ábreiður, salon, brekán og vel má vera að fleirri tegundir hafi verið til.
Etv. hef ég tekið of djúpt í árinni, að segja að Ólöf Árnadóttir
hafi síðust manna ofið í gamla vefstaðnum hér í sveit, en víst er að
p20
hún óf síðust á innbæjum
í slíkum vefstól. Ég hef engar heimildir um hvenær síðast var ofið
í vefstaðnum, sem til var á Hnappavöllum, en hann var sendur á Forngripasafnið
og ætla ég það hafi verið gert allöngu fyrir síðustu aldamót. Eflaust
eru einhver gögn um þetta í Þjóðminjasafninu, og er líklegt að í þeim sé
getið hvenær hann var síðast notaður. Eins og áður er sagt,
var gerð vefstóla hér líkust þeirri sem merkt er B á myndablaðinu. Þó
var sætið öðruvísi. Það var aðeins breið 1 1/4" fjöl, sem fest
var með alllöngum (6-7") krókum í uppstandarana sitt hvoru meginn.
Til að halda uppi höföldunum voru uppstandarar festir hvor á sína
hlið vefstólsins, og var hvor um sig festur við hliðarfjalirnar með 2 skrúfnöglum,
en grópaðir í að neðan. Stundum var slá yfir þessar fjalir
til styrktar, en efst á milli þeirra, undir þverslánni, voru völtrusköftin
sem hafaldasnúrurnar
p21
léku á. Það
voru sívöl sköft, tæpar 2" í þvermál með skorum nærri endunum fyrir
hafaldasnúruna, en í hvorum enda var teinn, sem gekk í gegnum gat í uppstöndurunum.
Einnig var hann öðruvísi að því leyti, að skammelin voru fest að
framan (sætismegin). Ekki vil ég fullyrða að gerð A hafi ekki þekkst
hér um slóðir, en ég hef ekki séð hana.
Sigurður Björnsson
sagði mér, er hann skilaði skránni að til hefði verið svonefnt bringuþóf,
sem var haft er þæfa átti fína hluti vel og mjúklega. Veltu menn þá þófinu
undir bringu sér á borði. Sigurður kveðst ekki hafa séð þetta, heldur
aðeins heyrt sagt frá því. Hann gleymdi að setja þetta með á skrána.
Þ.M.
Nr. 1305
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Vefnaður byrjaði mjög missnemma á heimilum, eftir
því hve snemma var lokið við að undirbúa í stólinn. Frekar
var reynt að fella vef fyrir jól, ef að vefnaður var þá hafinn, að segja,
annars mun það oft ekki hafa verð fyrr en eftir jól eða þegar kom fram
á mánuði. Oft hafði ákveðinn maður vefnaðinn með höndum, oft í ígripum.
Stundum sat hann við. Venjulegast var að einhver á heimilinu
sæi um vefnaðinn, sem sagt hver fyrir sig. Þó var hitt til, tíma
og tíma, að maður færi milli bæja að vefa. Vefstóll: Vefstóll
var venjulegt að kalla tækið, sem ofið var í. Tvíbreiðir vefstólar þekktust
ekki. Ef einhver átti ekki vefstól, reyndi hann að koma sínum vefnaði
fyrir annarsstaðar.
p2
Skeið: Vefjarskeiðar
voru hafðar misgrófar, eftir því hvað vefa átti, fínt eða gróft. Ekki
man ég eftir öðru nafni á þeim. Vaðmál var venjulega ekki nema alin
á breidd, eftir að búið var að þæfa. Vefskytta. Vefjarskyttur
voru úr harðviði. Annaðhvort eik eða brenni. Ekki man ég eftir að
neitt væri sett á þær, svo að þær rynnu betur. Sérstakar tréspólur voru
notaðar til að spóla á, og ekki mátti spóla út á enda, því þá gat allt
flækst. Borið var við að nota blikk, en þótti ekki gott, svo hætt
var við það. Þótti vilja slíta. Spólurokkur: Venjulegast
var að spóla á gamla rokka, sem hætt var að nota til spuna, en ekki hafður
sérstakur spólurokkur.
p3
Spanstokkur: Áhaldið,
sem notað var til að halda út voðinni þegar ofið var, nefndist spjálk.
Hún var með tönnum til endanna, sem stungið var í jaðrana. Svo
voru nokkurskonar hjörur í miðjunni, og þar var hægt að muntra til breidd
hennar eftir því hvað voðin var breið. (teikning). Að leggja upp:
Ekki veit ég gjörla hvernig það var. Þó munu sauðarvölurnar
hafa verið vigtaðar frá, eða giskað á þyngd þeirra. Stundum var líka undið
á gimburskeljar. Svo var til balbínurokkur, sem balbínað var á, og
af þessum balbínum var rakið á rakgrindina. Þessar balbínur voru
nokkurskonar spólur með stóran hnúð á báðum endum.
p4
Að reikna í vef.
Ívafið var oft kallað fyrirvaf og uppistaðan þráður.
Rakningsgrind: Hún var oft kölluð rakgrind. Annar endinn var
látinn standa í gólfi, ef torfgólf var, var oft höfð spýta undir, þó með
holu í. Hinn hendinn var oft settur í smugu upp í bita. Balbínur:
Þær hef ég minnst á áður. Betra þótti að rekja af balbínum
en af hnyklum. Rakningsspaði: Hæll mun hafa verið á
grindum,sem skilið var gert um.
p5
Rakningsstokkar:
Sérstakir kassar með litlum hólfum voru hafðir ef rakið var af hnyklum
á grind. Sinn hnykillinn í hvert hólf. Ef þeir hoppuðu upp
úr, varð að passa, að hver færi í sitt hólf. Rakning á rakgrind:
Til var að rakgrindin var höfð út í skemmu. Oftast voru 2 við
að rekja. Venjulega var sett merki á einn uppistöðuþráðinn, ef mæla
átti. Þá var allt mælt í álnum en ekki metrum. Ekki man ég
eftir að þráðarvölur væru látnar leika á uppistöðuþráðunum til að jafna
snuðrur. Fullrakin uppistaða nefndist slanga. Venjulega var gerð
lykkja á slönguna og hún tekin niður á þann veg, að aftur var dregið í
þá lykkju, svo önnur lykkja. Kom líkt og þegar heklaðar eru keðjulykkjur.
Þetta var bara gert með höndum og gat því slangan litið út eins og
sver keðja. Ef að rendur áttu að vera, voru taldir jafnmargir þræðir
og röndin átti að vera breið.
p6
Ekki get égt ímyndað
mér að hægt hafi verið að rekja á rúmstólpa. Hafaldagrind:
Áhaldið, sem höföldin voru hnýtt á hét hafaldagrind. Hafaldaaugað
mun hafa verið hnýtt yfir til þess mátulega svera spýtu.
Hafaldaefni og höföld: Þrinnaður togþráður var venjulega hafður í
höföld. Miðhluti hafalds nefndist hafaldsauga. Stundum voru
þau bara látin vara á sköftunum til geymslu. Að festa upp.
Verkið nefndist einu nafni að setja upp vef. Að bóma
vef: Þegar vúið var að láta slönguna á rifinn,var hún látin á afturbómuna,
svo í
p7
höföldin, og svo
í skeiðina, síðan lagðist vefurinn yfir frambómuna, og ofan á rifið, þegar
búið var að hnýta á skaftið. Venjulega voru 2 við verkið.
Að draga í höföld: Það verk var bara kallað að draga í höföld. 2
unnu venjulega það verk, annar rétti þræðina fram, hinn tók við hinu megin,
og hnýtti lykkjuhnút, sem var auðleystur, svo ekki rynni í gegn aftur.
Að draga í skeið: Áhaldið, sem haft var til þess hét
krókur. Oftast unnu 2 að því að draga í skeiðina. Skeiðinni
var tillt nálægt hafaldasköftunum. Annar setti krókinn í gegn og
dró hann til baka aftur, þegar inn hafði smokkað þræðinum á
p8
Að hnýta fram: Það
sem uppistaðan var hnýtt á, var venjulega nefnt skaft. Verkið nefndist
að hnýta á skaft. Skaftið var hnýtt á 3 stöðum yfir frambómuna ofanyfir
rifinn, til beggja enda og um miðjuna.
Að draga fyrir: Venjulega
voru stigin 1 eða 2 skil áður en farið var að skjóta skyttunni. Venjulega
var ívafið gefið fyrir í einum stórum boga. Slagborðið var slegið bæði
misfast og misoft, eftir því hvað verið var að vefa. Talað var um
að voð gengi saman, ef hún mjókkaði, því átti spjálkin að varna. Voðin
var mæld jafnóðum með álnarlöngum kvarða. Jafnóðum og þráður
p9
slitnaði var bætt
úr því. Þráðurinn leitaður uppi og hnýtt saman með eins litlum hnút
og hægt var. Ef þráður slitnaði venju fremur var frekar talið að
hann væri of linur, heldur en að um aðsókn væri að ræða.
Að fella vef: Að loka vef úr vefstól, var oft nefnt að fella vef,
líka að hann eða hún (sem ófu), voru orðin léttari. Þráðarendar sem
af gengu voru kallaðir afvikur, og voru þeir oft notaðir til að stoppa
eða bæta með. Þóf: Áður en sóti kom, var haft mjög
heitt vatn eða keyta til að þæfa. Venjulega var undið úr voðinni, þannig
að 2 undu á milli sín hver á móti öðrum. Ef hún var löng var hún
brotin tvöföld áður. Ýmsir á heimilunum
p10
unnu að þæfingu.
Ýmist á baðstofugólfi, stundum í tunnu, þannig að hún ar botnlaus
og einhverjir 2 spörkuðu hver á móti öðrum, og vildi það ganga misjafnlega
eftir því hverjir áttu að vinna verkið. Voðin var oft aðgætt og hrist
upp, og fólkið klætt eftir því hvað heitt var í baðstofuloftunum. Voð
var bara þæfð þangað til húsbændum þótti nóg og hefur það eðlilega verið
mismikið eftir því hvað hver vildi þæfa.
Bárður minn á jökli,
er þula, sem er þekkt hér. Eftir þæfingu voru voðir undnar
upp á rúmfjöl og strammaðar fast og vel og strokið svo hvergi
p11
væri hrukka. Svo
var saumað utan um voðina stykki. Stundum bara tyllt saman endum
með nál, síðan stungið undir þungt farg, og látið vera þar í nokkra daga.
Ekki tíðkaðist að senda voðir í erlendar verksmiðjur.
Nr. 7768
p1
Ull og tóvinna III.
Vefnaður: Ég vil nú biðjast afsökunar á þeim drætti sem hefur
orðið á því að svara spurningaskrá nr. 15, og fjallar eingöngu um vefnað
og mér var send fyrir jólin í vetur, og ber aðallega tvennt til þess að
ég hefi ekki getað svarað henni. Fyrst og fremst varð ég fyrir veikindum
upp úr áramótum, og varð því að dveljast á sjúkrahúsi í 9 vikur, og í öðru
lagi verð ég að segja eins og er, að því miður get ég engu svarað sem spurt
er um, því ég hefi aldrei kynnst vefnaði eða neinu sem að þeim vinnubrögðum
lítur. Get tæplega sagt að ég hafi séð vefstól, nema hafi það verið
á einhverjum byggðarsöfnum. Ég held í daglegu tali hafi verið
talað um vefstól, einnig hefi ég heyrt nefndan vefstað. Mágkona mín,
sem fékkst dálítið við vefnað á sínum yngri árum, hefir sagt mér að vefjarskeiðin
var kölluð ritti, eitt slíkt stykki á hún í fórum sínum, sem minjagrip
frá æskuheimili sínu, og er það úr einhverjum málmi. Einnig á hún
skyttu og spólur, og er það hvorttveggja smíðað úr tré. Áhaldið sem
spólað var á segir hún, var nefndur spólurokkur og spóluteinninn í skyttunni
var nefndur á hennar heimili spóluteinn. Ég kannast við nokkur orð
sem tengjast vefnaði, eins og uppistöðu, fyrirvaf, höföld og að fella vefinn.
Ekki er mér kunnugt um hvort fólk
p2
gekk á milli bæja
til vefnaðar eða hafði það að atvinnugrein, en mér er þó nær að halda að
svo hafi verið, sérstaklega karlmenn. Styðst ég aðallega við þá heimild,
að uppúr 1930 vissi ég deili á gömlum manni hér í Reykjavík, sem Gunnar
hét, og var í daglegu tali kallaður Gunnar vefari. Ekki man ég föðurnafn
hans, en þessa starfsgrein mun hann að einhverju leyti hafa stundað, en
hann var síðustu æviár sín á Elliheimilinu Grund, og dó þar, og er hann
fyrsti maður, sem jarðaður er í Fossvogskirkjugarði, og var kirkjugarðurinn
vígður með greftrun hans. Hvernig að vaðmál voru þæfð veit ég ekki, nema
hvað sumir höfðu notað fæturnar til þeirra hluta.
Því miður verð ég
nú að slá botninn í þetta, þar sem mín viska nær ekki lengra, og biðjast
innilega afsökunar á þessari frammistöðu minni. Með bestu kveðju
og þakklæti fyrir jólakortið í vetur, ef þið sendið mér spurningaskrá áfram,
mun ég gera eins og ég get að svara.
Nr. 1347
p1
ULL OG TÓVINNA 3
Vefnaður: Á fyrsta og öðrum tug þessarar aldar var enn mest
af fatnaði fólks unnið á heimilunum, og að langmestu leyti úr ull.
Aðallega var unnið vaðmál úr ullinni, en þó einnig nokkuð af prjónlesi,
sem einkum voru sokkar, bæði til heimilisnoktunar og sölu, (smáband). Smábandið
var fyrst og fremst unnið fyrir jólin og þá selt í verslanir til
útflutnings. Það var því sjaldgæft að vefstóll væri "borinn
inn" fyrr en eftir nýár, þó kom það fyrir ef efni í föt, eða rekkjuvoðir,
vatnaði. Misjafnt var hvenær vefnaði var lokið á vorin. Á
heimilum, sem tóku í vefnað frá öðrum bæjum, gat það dregist fram um sumarmál
að vefstóll væri "borinn fram". En á öðrum heimilum var
það oftast nærri góulokum. Venjulega mun hafa verið byrjað að vefa
hinar grófari voðir t.d. í hversdagsföt.
p2
Karlmenn ófu, og
venjulega sami maðurinn á hverjum bæ, allt, sem vefa þurfti hvern vetur.
Unglingar hjálpuðu til við að "setja til" vefinn.
Eftir 1900 munu flestir vefarar hafa, jafnframt vefnaðinum, haft einhverja
fjárgæslu, eða annað, með höndum, og því ekki setið í vefstólnum frá morgni
til kvölds. Það þóttu góð afköst að vefa 10-12 álnir á dag þó einstaka
maður kunni að hafa afkastað eitthvað meiru. Af fínum vef gat þetta
orðið allt að heilmingi minna, einkum ef þáðurinn "hélt illa"
þ.e. slitnaði mikið. Þar sem ég þekkti til fóru unglinar
ekki að vefa fyrr en eftir fermingu, 15-16 ára. Ekki þekkti ég að
vefarar færu á milli bæja, en eins og áður segir tóku sum heimili efni
í vefnað fyrir aðra. Lítið mun hafa verið um vöruskiptaverslun með
vefnað eftir 1900, en stöku sinnum
p3
var vaðmálsbút stungið
að þeim, sem vitað var að þurftu þess með. Kom þá stundum greiði
í einhverri mynd á móti. Nafnið vefstóll var eina nafnið, sem ég
þekkti á þessu verkfæri. Um vefstólasmiði og smíði vefstóla get ég
lítið sagt. Vefstólar í minni sveit, voru lítið eða ekki frábrugðnir
hvor öðrum. Til voru heimili, sem ekki áttu vefstóla. Þau heimili
komu efni í vefnað til nágranna eða kunningja. Þegar ég var að alast
upp, á árunum 1901-1916, voru þar sem ég þekkti til, gamlir vefstólar,
og voru þeir notaðir þar til heimavefnaði var hætt um 1920, eða litlu síðar.
Um kaup og sölu vefstóla vissi ég ekki annað en að um 1930 keypti
ég gamlan vefstól á kr. 50,00. Þennan vefstól á ég enn. Af
vefstólum þeim, sem myndirnar eru af, þær er fylgja spurningaskránni, er
vefstóll A líkastur þeim vefstólum, sem ég þekkti. Þó er hann í nokkrum
smáatriðum öðruvísi. Þessi eru helst.
p4
Slöngurifurinn lék
í götum aftast á kjálkanum sem merktur er (10) á mynd A. Slagborðið
hékk á járnteini framarlega á kjálkanum (10). Á uppistöðufjalir slagborðsins,
(sem á listanum Heiti á vefstól A. er nefnt slagborðskjálki) voru teknar
raufar fyrir vefstólskjálkann, og fyrir þær lá áðurnefndur járnteinn, sem
festur var í uppistöðufjalirnar nálægt efri enda þeirra. Járnteininn
lék svo í skoru á þar til gerðu járni ofan á vefstólskjálkanum. Setubekkurinn
var kræktur á framstuðlana (stólpana) (2) en í þeim voru járnkengir. Járnkrókar,
um 15cm. langir voru festir í kengi á seturbekksfjölinni. Þurfti
þá ekki að losa nema annan krókinn þegar farið var í vefstólinn, eða úr
honum. Skammelin (22)(20) voru aðeins að framverðu. Spjálk
hét fjöl,(reyndar voru það tvær smáfjalir, er festar voru saman með selgargni)
til þess ætluð að þverstrengja með voðina. Henni verður nánar lýst
síðar. Vefjarskeiðar, sem ég þekkti voru úr stáli, útlendar. Kaupfélögin
fluttu þær inn eftir pöntunum manna. Greinarmunur var gerður á vefjarskeiðunum,(sem
reyndar voru oftast aðeins
p5
nefndar skeiðar)
eftir því hversu þær voru þétttenntar. Talað var um 80-100 eða 120 reira
skeið, en rifurnar á skeiðinni voru kallaðar reirar. Með þessu var
átt við að á hverju kvarteli skeiðarinnar væru svona margir reirar, en
þær voru 5 kvartel. Vefjarskyttan, í daglegu tali aðeins nefnd skyttan,
var úr tré.
Á báða enda hennar
var festur vír, sem að nokkru féll inn í smáskoru á trénu. Þessir vírar
voru til þess að þræðirnir í vefjarskilinu festust síður á skyttuendanum
þegar henni var skotið í gegnum skilið. Að vísu var skyttan þannig
smíðuð að endar hennar vísuðu lítið eitt upp á við svo minni hætta væri
á því að þeir snertu þræðina í skilinu að neðanverðu. Neðan á skyttunni
miðri, eða yfir neðra opi spóluhússins, voru festir 2-3 vírar, af sama
efni og á enda hennar, þeir voru til þess að skyttan rynni betur í gegnum
skilið. Teinninn fyrir spóluna, í spóluhúsinu, var einnig úr vír,
kræktur fastur í annan endann, en
p6
small inn í gat á
smá blikkplötu, sem var fest hinumegin í spóluhúsinu. Teinninn hafði
ekki annað nafn. Tréspólur bæði renndar og tálgaðar,- aðallega þó tálgaðar
- voru notaðar til þess að spóla ívafið á. Víðast hvar voru sérstakir
rokkar, spólurokkar, notaðir til að spóla á, og smíðaðir sérstaklega til
þeirra nota, svo og til að balbína á þá. Sumstaðar voru þó notaðir
gamlir spunarokkar við þetta verk, og þá settur í þá teinn til þeirra nota.
Spólurokkar voru mjög óvandaðir að smíði, "uppistandari"
úr fjöl eða kubb, sem lauslega hefur verið heflað slétt. Á sumum
rokkum var þó renndur húnn. Hola var ofarlega að framan í "uppistandaranum"
fyrir aftari enda spólu og balbínuteinsins. Að framverðu voru teinarnir
festir í holu á standi, eða hæl, sem lék laus í gati á fjöl, er stóð framúr
"uppistandaranum". Götin á fjölinni voru reyndar tvö, annað
fyrir spóluteininn hitt fyrir balbínuteininn. Hælnum mátti snúa til
að vild, þegar spólurnar voru látnar á hann,
p7
eða teknar af honum.
Annar útbúnaður á spólurokknum var, að mestu, eins og á spunarokkum,
fótaskör, og hjól með snúru. Snúran var þó aðeins einföld.
Áhaldið, sem notað var til þess að halda út jöðrunum á voðinni með þegar
ofið var, hét spjálk, og hefi ég lauslega lýst henni áður, á bls 4, og
geri það betur síðar. Áður en farið var að "rekja"
vef var reiknað út hvað langt mætti "leggja upp". Var sá
útreikningur venjulega byggður á hespufjölda þráðarins, en í hverri hespu
var ákveðin lengd, 12 "knekk" eða "skreppur". En
þessi orð voru notuð nokkuð að jöfnu. Hvert "knekk" var
um 50 hringir á litla hesputréð, en það var algengast. Hver hringur
var rúml. 2 álnir svo hespan var 13-14 hundruð álnir, lék þá nærri að leggja
mætti eina alin upp úr hespunni. Á sumum bæjum var notað mikið stærra
hesputré, og mun hver hringur á því hafa verið allt að helmingi lengri
heldur en á því litla. Oft heyrði ég talað um svo eða svo marga
lóða verk, en ekki veit ég hvort lengd vefjarslöngu var reiknuð út eftir
þyngdinni, sennilega mun það þó hafa verið gert á meðan bandið var undið
í hnykla,
p8
en ekki hespað. Sjálfur
man ég ekki eftir nema hespuðum þræði í "uppistöðu". Oft
var ofið mikið úr tvisti, hann var pantaður í gegnum kaupfélögin. Margir
pöntuðu 2 til 3 liti af tvistunum, og ófu úr honum ýmsar gerðir af bekkjóttu
eð rúðróttu tvisttaui. Þessar tvisthespur voru mikið stærri en íslenskar
ullarbandshespur af litla hesputrénu. Jafnframt því
að reikna út hvað "leggja ætli upp", þ.e. hvað vefjarslangan
skyldi vera löng, þurfti að ákveða hvað voðin ætti að vera varpmikil. En
voð var því varpmeiri þess fleiri þræðir sem voru í uppistöðunni. Eftir
reirafjölda skeiðarinnar var svo reiknað út hve margir þræðir ættu að koma
í hvern reir. Það fór dálítið eftir grófleika uppistöðuþráðarins
hvað margt var "haft á" slöngunni. En að hafa á "merkti"
hvað margir þræðir voru í slöngunni, venjulega munu þeir hafa verið 12-14
hundruð, komu þá um 3 þræðir í hver reir. En þetta fór þó eftir reirafjölda
skeiðarinnar,
p9
þannig að frávik
frá því gátu verið á marga vegu, t.d. að 4 þræðir voru í þriðja hvern reir,
eða á hina hliðina að 2 væru í fjórða hvern o.s.fr.v.
Orðin uppistaða og
ívaf voru nálega undantekningarlaust notuð í minni sveit. Þó heyrði
ég stöku sinnum orðið fyrirvaf haft um ívafið. Áhaldið, sem
uppistaða í vef var rakin á hét rakgrind. Ekki þekkti ég nema eina
gerð af þeim. Rakgrindin var þannig. Aðalhlutar hennar voru
tveir ferhyrningar, uppistöðustólpar um tveggja metra háir, með þverslám
að ofan og neðan um það bil 8-10 cm. frá enda. Uppistöðustólparnir
voru heflaðir vel sléttir, og á milli þeirra tveggja hliða, er út snúa,
er hornið heflað af, svo hliðarnar koma saman í ávölum boga. Á miðjar
þverslárnar var tekið fals, og í miðju þess gat um 2 cm. í þvermál. Þegar
rakgrindin var í notkun, voru grindarhlutarnir feldir saman í fölsunum
og tréhæl stungið í götin bæði að ofan og neðan. Efri hællinn gekk upp
í gat á trébita rétt ofan við
p10
grindina, en neðri
hællinn féll í holu á kubb sem hafður var á gólfinu undir grindinni, miðaðist
þykkt kubbsins við að efri endar rakgrindarinnar væru vel lausir við að
rekast upp í bitann. Þegar búið er að setja upp rakgrindar á þann
hátt, sem lýst er hér að framan, eru næst settar 2 lausar krossslár á milli
uppistöðustólpanna, um miðju þeirra. Þessar slár festast strax vel
þegar farið er að rekja á grindina. Loks eru sett svonefnd "grísholt"
á raqkgrindina. Þau er 2. það efra er sett á áður en byrjað er að
rekja á grindina. "Grisholt" er slá með 2 hælum nærri öðrum
enda, og sýlingum í báða enda. Sýlingarnar falla á horn tveggja uppistöpustólpanna,
og stöðvast við efri þverslá grindarinnar. Síðar verður sagt frá
neðra "grísholtinu". Áður en ég lýsi sjálfri rakningunni
ætla ég að lýsa þeim áhöldum, sem notuð voru við undirbúning hennar, en
þau voru, auk spólurokksins (balbínurokksins) svonefnd króna og snældustóll,
p11
og svo snældurnar,
sem balbínað var á. Snældurnar voru um 20 cm. langar, með breiðum
snúðum á endunum. Snúðarnir voru þunnir, sérstaklega út við raðirnar.
Króna hét áhald það sem hespurnar voru hafðar á þegar balbínað
var, hún var þannig: Neðst var planki ca 4-5 cm. á þykkt og 25-30
cm. á lengd og breidd. Þetta stykki hét krónufótur. Í miðju
þess var spor, í það var uppistöðustandurinn festur, hann var úr tré, en
efst á hann var festur járnhringur. Ofan í tréstandinn var svo rekinn
dálitill járnteinn, sem sjálf krónan snérist á, en hún var úr tveimur trérenningum
sem negldir voru í kross, og gat á, það sem renningarnir mættust. Yfir
þetta gat var negldur bogi úr blikkræmu með gati á. Efsti endi járnteinsins
sem áður getur, en hann var mjórri en aðalteinninn, gekk upp í gatið á
blikkræmunni, og á þessu snérist krónan. Krosstréð (krónan) var með
2-3 götum nærri hverjum enda, í þessi göt var stundið hælum ca 20-25 cm.
háum. Með því að færa hælana til í götunum
p12
var hægt að hafa
hvort sem var stórar eða litlar hespur á krónunni. Snældustóllinn
var trégrind um 150 cm. á hæð og 70 cm. á breidd. Á grindinni miðri,
eftir lengd hennar, var þunn fjöl með götum á, og samsvarandi göt voru
á hliðum grindarinnar. Þegar balbínusnældurnar voru settar í snældustólinn
var grannur járnteinn settur í götin og í gegnum snældurnar, þannig að
tvær og tvær snældur komu samhliða í stólinn, en þó sín hvorum megin við
miðfjölina. Snældustólarnir tóku venjulega 12-16 snældur.
Eins og sagt er hér á undar var spólurokkur notaður til að balbína á. Var
þá settur í hann balbínuteinn, en hann var bæði lengri og sverari heldur
en spóluteinninn, og er því lýst á bls.6 hvernig hann var festur.
Það sem ég þekkti til var rakgrindin sett upp í framhýsi, stofu eða skála.
(Í stofu á mínu heimili, Leifshúsum). Ég hefi áður lýst því hvernig
hún var sett upp. Ekki þekkti ég rakningsspaða eða rakningsstokk.
p13
Einn maður vann að
því að rekja vefinn. Áður en rakning hófst, var einn þráður, af einhverri
snældunni, mældur með alinmáli í þá lengd, sem reiknað hafi verið út að
leggja mætti upp. Þegar lengdin var fengin var tekinn ullarhnoðri,
bréfsnepill eða smádula, og þræðinum fest með línubragði utanum, síðan
var þráðurinn undinn upp á snælduna aftur. Síðan var byrjað að rekja.
Sá sem rakti hélt þráðunum í greipum vinstri handar, þremur eða
fjórum í hverri eftir því hvað rakið var af mörgum snældum. Með
hægri hönd snéri hann rakgrindinni. Það þurfti að halda þráðunum
þéttings fast milli fingranna, til þess að snurðurnar, sem oft voru á þráðinum,
röknuðu. Hjá þeim sem lagnir voru að rekja, og röktu með jöfnum hraða,
helst nokkuð miklum, gekk þetta vel. Faðir minn rakti alltaf hratt.
Rakningin hófst með því að þráðarendunum af öllum snældunum, sem
áður verið hnýtt
p14
saman með þverhnút,
var skipt sem jafnast, og brugðið þannig upp á efra grísholtið, þann hælinn,
sem nær var uppistöðutré grindarinnar. Síðar var öllum þráðunum brugðið
undir aftari hælinn á grísholtinu. Sumir kölluðu grísholtið öðru
nafni hælatré. Nú var rakið niður rakgrindina þar til kom að merkinu
á þræðinum, sem áður er getið, þá var neðra grísholtið sett á grindina,
og bundið fast, því sýlingarnar í enda þess nægðu ekki einar til að halda
því nægilega föstu. Öllum þráðunum var nú brugðið undir annan
hælinn á grísholtinu en yfir hinn og þannig snúið við upp grindina aftur.
Ein ferð niður og upp grindina aftur hét umferð, en gangur aðra leiðina.
Umferðin var því tveir gangar. Opin, sem mynduðust við að
þráðurinn var ýmist brugðið undir eða yfir hælana á grísholtunum nefndist
þráðaskil. Rakið var ýmist ofan á þær umferðir, sem komnar voru
á grindina, eða lítið eitt til hliðar
p15
við þær, þannig að
slangan bæði smábreikkaði og þykknaði. Þegar raktir voru langir vefir,
þurfti að hafa þétta hringina á rakgrindinni, og þá um leið að rekja meira
ofan á þá en annars, svo þeir næðu ekki saman. Ekki vissi ég til
að merki voru setti við ákveðinn þráðafjölda. Fullrakin uppistaða
nefndist slanga, bæði á meðan hún var á grindinni, og eftir að hún var
tekin niður. Áður en slangan var tekin niður var gengið frá skilunum
á henni á þann veg að snærisspottar voru þræddir meðfram báðum hælunum
á grísholtunum og bundið að. Síðan var slangan rakin niður
af grindinni. Byrjað var að losa af efra grísholtinu, eða það tekið
burt, síðan var tekið um slönguna, 25-30 cm. frá enda hennar, með vinstri
hendi og vafinn einn hringur utan um hægri handlegg, þá gripið með hægri
hönd um slönguna og lykkja úr henni dregin í gegn um hringinn og honum
um leið steypt fram af handleggnum.
p16
Síðan var hægri hönd
brugðið aftur í gegnum þá lykkju og slangan dregin í geng á samahátt og
áður, og þannig haldið áfram þar til búið var af grindinni.
Þegar tvílit,-eða marglit- uppistaða var rakin þurfti að vera búið að ákveða,
hvað margir þræðir ættu að vera í hverri rönd. Reyndar þurfti að
ákveða þetta áður en farið var að balbína, því þá ver oftast hægt að rekja
alla litina í einu. Það var vitað að lengd uppistöðu þurfti að vera
nokkru meiri, en voðin sem niður úr vefstólnum kom átti að vera. Þetta
gat þó verið dálítið mismunandi, og fór einkum eftir því hve gróft ívaf
var notað. En ekki er fjarri lagi að meðaltalið hafi verið um þverhönd
(10cm.) á alin. Þetta var kallað að voðin skryppi. Ekki þekkti
ég að rakið væri á veggjahæla eða rúmstólpa, nema reipi, en á fyrstu tveimur
áratugum 20.aldarinnar, var mikið unnið af þeim
p17
úr ullarbandi, einkum
togbandi. Þau voru að sjálfsögðu fléttuð í höndunum. Á sama
tímabili var líka mikið unnið af gjörðum úr ullarbandi. Á mínu heimili
voru þær ofnar í vefstól, og svo mun víða hafa verið gert. Aðrir
brugðu gjarðirnar í höndunum eða stímuðu þær, bæði úr ullarbandi og hrosshári.
Ekki þekkti ég neitt áhald til að rekja í höföld á, en sennilega
hafa heinhverjir í sveitinni átt þau. Höföld voru hnýtt á svonefnda
hafaldagrind, hún var gerð úr, um það bil, 1 1/2x3 cm. trérenningum. Lengd
grindarinnar var um, 60 cm. og breidd 50 cm. Í miðja styttri hliðina
var festur vírteinn, sem smelt var í fals á gagnstæðri hlið. Á þennan
vírtein voru hafaldaaugun sett, áður en byrjað var að hnýta höföldin. Þessi
grind var því við það miðuð að hnýtt væri á stálaugu, en frá því um, eða
fyrir, 1900 voru notuð hafaldaaugu úr stáli. Ekki var ull (tog)
notað sem hafaldaþráður, svo ég vissi til,eftir að farið var að hnýta á
stálaugu, heldur seglgarn. Þegar búið var að hnýta öll
p18
höföldin var seglgarnið
fernisolíuborið, og varð það þá stinnt og glansandi. Hafalda
hnýtingin fór þannig fram: Byrjað var við annan enda vírsins, seglgarninu,
sem búið var að skera í hæfilegar lengdir, smeygt í gegnum gatið, sem var
á enda hafaldaaugans og hnýttur það einn hnútur, síðan var garninu brugðið
út yfir grindina, og þar hnýttur línuhnútur, Þess var vandlega gætt
að garnið væri ekki slakt. Síðan var hnýtt smáauga utan um seglgarnsspotta
sem strengdur hafði verið utan á langhlið hafaldagrindarinnar. Þegar
þessu var lokið var þrætt í gatið á hinum enda hafaldaaugans og farið eins
að þar, að öðru leyti en því að nú var strengt dálítið á garninu. Svona
var haldið áfram þar til lokið var við það sem sett var á hafaldagrindina
í einu, en það voru venjulega hátt á fjórða hundrað augu. Þetta var
svo flutt á hafaldasköftin. Vefjakambar voru fyrst allir úr tré,
en um 1900 fóru sumir að setja í þá járntinda.
p19
Vefjakambar sem ég
þekkti voru mjög óvandaðir að gerð. Neðri hluti hans var trérenningur 3-4
cm. á hvorn veg, í eina hlið hans var gerð smálægð þar sem borað var fyrir
tindunum og þeir reknir í þær holur. Á báðum endum þessa undirtrés
voru hök, eða uppistandarar, sem voru nokkru hærri en tindarnir. Efra
tréð var svipað hinu neðra, nema hvað öllu meira var hvolft upp úr því,
og að á endum þess voru göt sem hökin á neðra trénu gengu upp í gegnum
þegar kambinum var lokað. Féllu þá tindarnir upp í áðurnefnt gróp
á efra trénu. Kambshlutarnir voru svo festir saman með splittum,
eða bundnir saman með snærum þegar bambur var í notkun. Verkið við
að láta í slönguna í kambinum hét einfaldlega "að láta í kambinn".
Það var gert þannig að slangan var fyrst lögð yfir kambinn, t.d.
nálægt miðju hans, síðan voru ákveðið margar umferðir af rakgrindinni lagðar
á milli hverra tveggja tinda, en áður þurfti að vera búið að reikna það
út svo slangan væri sem jöfnust um kambinn.
p20
Skaftið, sem þarna
var sett í enda slöngunnar, í gangaskilið, hét rifskaft. Verkið
við að koma slöngunni á rifinn í vefstólnum, var kallað að vinda upp vefinn.
Allur annar undirbúningur, áður en hægt var að byrja að vefa,hét
"að setja til vef" Allt verkið, sem talað er um í tveim
síðustu málsgreinunum hér á undan, var þó stundum kallað að "setja
upp vef". Þegar byrjað var að koma slönguinni á rifinn, var
fyrsta verkið að koma rifskaftinu fyrir. Það var þannig gert að því
var þrýst inn í þar til gerða skoru á rifunum, og kragarnir á rifunum síðan
dregnir sinn inn á hvorn enda þess. Kragarnir, sem voru tvær trékringlur
voru til þess ætlaðir að halda að slöngunni þegar hún var undin upp á rifinu.
Til þess að halda krögunum föstum á rifunum, voru negldir á hvorn
þeirra 3 skinnræmur, að utanverðu. Ræmurnar voru svo dregnar innfyrir
kragana, meðfram rifunum og sléttað úr þeim þar. þegar svo slangan byrjaði
p21
að koma á rifinn
þrýsti hún skinnræmunum að honum, og sátu þá kragarnir fastir. Þrír
menn unnu við að, vinda upp vefinn. Einn hélt í slönguna, annar
var með vefjarkambinn og stjórnaði sá því að slangan legðist slétt og jafnt
á rifinn, og þriðji "vatt upp" þ.e. snéri rifnum, en á enda hans,
-utan á vefstólnum- var þykkur og allbreiður kragi með tréhælum í hliðinni,
þetta hét hausinn á rifnum. Með hælum þessum fékk sá, sem "vatt
upp" gott átak til að snúa rifnum, en ef fast var haldið í slönguna
gat þurft að taka töluvert á til þess að snúa rifnu. Sá sem hélt
í var framan við vefstólinn, en þaðan lá slangan aftur í gegnum vefstólinn
og undir slá, afturbómuna, á honum. Þessi slá, bóman, var um það
bil í miðri hæð vefstólsins,og hélt saman aðaluppistöðuhlutum hans. Fyrir
ofan þessa slá var kamburinn hafður. Betra þótti að halda nokkuð fast í
slönguna hún lagðist þá þéttar og betur á rifinn. Ekki voru notuð
rifsköft nema á enda slöngunnar.
p22
Á þeim vefstólum
það sem kragar voru á slöngurifnum -en það var ekki allstaðar- var slangan
ekki látin dragast að sér á rifnum, heldur var hún látin falla sem jafnast
að krögunum. Þegar búið var að "vinda upp" vefinn var
skilsköftunum komið fyrir, á sínum stað, og hengd í spotta, sem festir
voru á afturbómuna. Á hvorum spotta voru höfð tvö op þar sem skilsköflunum
var stingið í. Slönguendanum var nú skipt í svonefnda "feta".
En í hverju, "feta" voru venjulega 80-120 þræðir. Ætíð
var þó skipt í fetana af handahófi. Að draga í höföldin var
kallað að þræða. Hafaldasköftin voru bundin saman með snæri
á meðan þrætt var. Tveir menn unnu við það, annar "rétti",
sá sat á kjaftastól, eða öðru, á milli afturbómu og hafalda, hélt með vinstri
hendi um fetann,-einn í einu- en með þeirri hægri greiddi hann gangana
í honum og rétti þræðina til þess, sem þræddi þá í höföldin. Þetta
verk, að rétta, þurfti að vanda því þá komu síður flækjur í skilin þegar
farið var að vefa.
p23
Venjulega voru börn,
eða unglingar, látin "rétta". Þegar búið var að "fella
af" vef var frambóman tekin af vefstólnum, -en hún var fest með skrúfboltum-
til þess að rýmra væri í honum á meðan þrætt var í höföld og skeið.
Sá sem þræddi í höföldin sat framan við þau. Hann byrjaði á því að
taka handfylli sína af höföldum með vinstri hendi, af þeim tók hann svo
eitt og eitt í réttri röð og þræddi í hafaldaaugað með hægri hendi.
Þegar lokið var við að þræða hvern "feta", hnýtti sá, sem þræddi
hnút á alla þræðina framan við höföldin. Við að draga í skeiðina
var notað áhald sem nefndist krókur, hann var úr járni eða blikki beygður
í hálfhring, -til stuðnings- í þann enda, sem haldið var um. Úr fremri
enda króksins var tekið þannig að í hann myndaðist bugur. Í þennan
bug var þræðinum brugðið þegar búið var að reka krókinn í gegnum reirinn
á skeiðinni. Síðan var hann dregin í gegnum skeiðina.
p24
Tveir unnu við að
draga í skeiðina, eða þræða í hana eins og það var kallað hjá okkur. Á
meðan verið var að þræða í skeiðina var hún látin hanga í 2 snærum, sem
fest voru á vefstólskjálkana. Sá sem rétti þræðina sat á milli hafalda
og skeiðar, en hinn, sem rétti krókinn í gegnum skeiðina san að sjálfsögðu
framan við hana. Þegar búið var að draga í t.d. 25 til 40 reira á
skeiðinni, var brugðið hnút á þræðina til þess þeir drægjust síður úr skeiðinni
aftur. Ekki þekkti ég að skaftið, sem hnýtt var á héti öðru nafni
en skaftið. Verkið við að festa þráðarendana utan um skaftið hét að hnýta
á skaftið. Skaftið var fest með þremur snærum við neðri rifinn.
Byrjað var að hnýta þræðina á miðju skaftsins, næst var hnýtt á enda
þess, og síðan frá þeim, -eða miðju skaftinu- sitt á hvað, þar til lokið
var. Flestir vefarar tóku frekar fáa þræði í hvern hnút á skaftið,
með því móti fór styttri spotti af uppistöðunni í hnútinn, því mikið var
lagt upp úr því að uppistöðu þráðurinn notaðist sem best.
p25
Lítið get ég sagt
um vefstólssnæri. Áður er sagt frá snærunum á milli neðri rifs og
skaftsins, sem hnýtt var á. Þegar vef var svo langt komið að rifurinn
var "orðinn ber" þ.e. uppistaðan var búin af honum, þá var rifskaftið
losað með því að draga kragana út af endunum þess. Síðan voru 3 snæri
fest á rifinn og undin utan um hann með jöfnu millibili og endinn þeirra
hnýtt á rifskaftið. Lengd þessara snæra var við það miðuð að þau
gætu fylgt rifskaftinu eftir alveg að höföldunum. Önnur snæri voru
þau, sem héldu milli skammela og skefla, og skefla og hafalda, og þekkti
ekki sérstök nöfn á þeim. Þegar byrjað var að vefa var það kallað
að "draga fyrir" þegar fyrsti ívafsþráðurinn var festur.
Þar sem ég þekkti til var oftastnær "gefið upp í" í einum
stórum boga, um leið var næsta skil stigið og ívafið síðan slegið að voðinni
með slagborðinu, með einu snöggu höggi. Þegar verið var að ljúka
vef og skilið var orðið lítið, þurti þó
p26
að slá 2-3 högg með
slagborðinu. Eins og áður er sagt var spjálkin í tvennu lagi og
voru helmingarnir bundnir saman með selgarni. Þeir endar sem bundnir
voru saman, voru um hálfu mjórri heldur en hinir, og víslögðust töluvert
þannig að spjálkin varð öll nokkuð jafnbreið þegar hún lá flöt. Á
mjórri endum hennar voru 2-4 göt, og mátti lengja og stytta spjálkina með
því að færa seglgarnið á milli gata. Snið var á neðri hlið útendanna
á spjálkinni og var það komið fyrir oddhvössum vírum, þrem í hvorum enda.
Oddum þessum var stungið í jaðra voðarinnar, myndaði þá spjálkin
einskonar burst yfir miðju voðarinnar. Þegar burstinni var þrýst niður
þandist voðin út. Spjálkarhelmingarnir voru að því búnu festir saman
með trésnerli, sem hreyfðist á þolimæði (þolinmóður var trénagli sem snérist
í gati á spjálkarhelmingnum.) á öðrum spjálkarhelmingnum. Þegar
lítið, eða ekkert var "gefið upp í" vildi voðin "ganga saman"
þ.e. mjókka. Það þótti ekki vel ofið. Venjulega var voð mæld
með spotta um leið og ofið var. Spottinn var ein alin, frá hnút
p27
sem hnýttur var á
annan enda hans, síðan var honum stungið á milli uppistöðuþráða, við voðina.
Þegar alinn var búin var spottinn færður á ný, og svo koll af kolli.
Þráðaslit var mjög misjafnt í vefjum, fór það eftir tvennu. Fyrst
og fremst þó því hvernig uppistöðuþráðurinn var unninn, en það var eins
og nærri má geta mjög misjafnt. Bæði gat þráðurinn verið svo snúðharður
að hann hrykki í sundur, einkum ef að snurður voru á honum. Á hinn
bóginn gat hann líka verið of snúðlinur svo að hann drafnaði í sundur,
þetta var þó sjaldgæft nema um fáa þræði í hverjum vef. Svo hætti
eðlilega fínum þræði frekar til að slitna heldur en grófum, að öðru jöfnu.
Enn gátu þráðaskil stafað af því að skilin voru ógerð, en ástæðan
til þess gat verið sú að illa hefði verið "rétt " í höföldin,
það er að segja að þræðirnir í feta "göngunum" voru ekki réttir
fram í eðlilegri röð. Ef skil voru ógerð vildi það frekar koma fyrir
að skyttan sliti þræði. Þegar slitinn þráður var hnýttur saman var
það kallað "að bæta", þá þurfti
p28
að bæta smáspotta
í uppistöðuþráðinn. Lítill hnykill af uppistöðuþræði var ávalt hafður
við höndina til þess að "bæta" með, hann var gjarna geymdur í
spólukassanum. Það þótti ekki góður vefari sem ekki "bætti"
strax og hann varð var við þráð -eða þræði- slitna, því slitinn þráður
vildi flækjast í skilinu og valda með því hættu á enn frekara þráðasliti.
Ef mikil þráðaslit voru, reyndi það oft mjög á þolinmæði vefarans.
Til var sú trú að þráðarslit stafaði frá aðsókn, en ég hald að hennar hafi
þó lítið gætt eftir 1900. Þegar losuð var festingin á efri
rifnum og losað hæfilega mikið af honum, var það kallað "að hleypa
niður". En ein vinding upp á neðri rifinu hét "færa"
eða strenging. Þegar verið var að ljúka við vef hét það "að
fella af" eða "að fella af vefinn". Þetta orðalag
náði bæði yfir vefnaðinn á 5-10 cm. af vefnum og að klippa sundur þræðina
framan við skeiðina. Æfinlega var gengið mjög nærri uppistöðuþræðinum,
eða svo, að síðustu umferðirnar var skyttunni troðið í
p29
gegnum skilið og
bar voðarendinn þess venjulega nokkur merki, varð misþráða. Þráðarendarnir,
sem af gengu þegar vefur var felldur af, voru nefndir afgangar. Þó
heyrði ég þá einnig kallaða hrafnabuxur eða krummabuxur. Ég held
að afgangarnir hafi oftast verið látnir samanvið ullarfætlinga og aðra
ullarsnepla, ásamt ónýtum prjóna og vaðmálstuskum. En þessi samtínungur
var seldur og fluttur út, til vinnslu í ullarverksmiðju. Þó mun ullarverksmíðjan
Gefjun á Akureyri hafa keypt þenna úrgang eftir að hún tók til starfa.
Vatn til að "þvætta" voðir í, sem venja var að blanda
með keytu, var hitað í ullarþvottapottinum á hlóðum í eldhúsi. Þegar
þessi lögur var orðinn snarpheitur var honum ausið í tréstamp, í honum
var voðinni þvælt fram og aftur nokkra stund. Síðan voru endar hennar
teknir og hún lögð saman tvöföld og látið síga það mesta úr henni.
Næsta verk var að vinda voðina, var hún þá borin fram í bæjardyr, þar var
endum hennar vafið utanum staur, eða járnkall, sem síðan var settur þversum
í bæjardyrnar. Í lykkjuna á voðinni var nú sett sívalt trékefli,
og með því snúið upp á hana, og lögurinn þannig undinn úr henni.
p30
Snúið var þangað
til voðin var orðin harður göndull. Við að toga í trékeflið tognaði
ögn á göndlinum, og þannig náðist það síðasta af leginum, sem hægt var
að ná úr voðinni. En talið var að betra þóf fengist ef voðin var
ekki mjög blaut. Síðustu tvo áratugina, sem heimavefnaður var stundaður,
að nokkru ráði á Svalbarðströnd, þæfði hvert heimili fyrir sig, þó sumir
hefðu fengið ofið utan heimilis. Allra síðustu árin kom það þó fyrir
að voðir, sem nota átti í spariföt, voru sendir í þóf í verksmiðjuna Gefjum
á Akureyri. Á heimilunum þæfðu karlmenn. Frá því ég man eftir
mér, 1906, var þæft í baðstofu. Þæft var undir fótum, og á gólfinu,
enda var þá komið timburgólf í allar baðstofur hér í sveit. Á síðari
hluta 19.aldar, mun víða hafa verið þæft í fjósi, á tréfleka, eða í stampi.(Votaþóf)
Sagnir heyrði ég líka um að stundum hefður tveir menn þæft, með fótum,
á milli sín í tunnuskokk. Sú aðferð við þóf, sem ég þekkti var á
þessa leið. Útbúinu var, í einu horni baðstofunnar -eða í baðstofuhúsi-
krókur, með því að borð og kommóða voru sett fyrir hornið þannig að ferhyrningur
myndaðist, var hann um 1.metri á hvern veg. Yfir borðið og kommóðuna
voru breiddar rúmábreiður, til varnar því að kuldi komist á þófinu.
p31
Í þessum krók var
vaðmálið þæft. Fyrir þann, sem þæfði gat það orðið nokkur léttir
að styðja höndunum á borðið eða kommóðuna. Á þessum árum klæddust
menn vaðmálsnærfötum, og voru þófarar venjulega í þeim einum fata við þófið.
Með 30-40 mínútna millibili var voðin tekin upp og hrist það
hægt að "kippa". Það gerðu tveir menn. Þeir tóku
sem svaraði 3 álnum af voðinni í einu, héldu í jaðra hennar, lögðu saman
hendur svo voðin varð tvöföld, kipptu síðan snöggt sundur höndunum, báðir
í senn, og kom þá oft hár smellur. Þótti það góð skemmtun, og var
reynt að hafa smellina sem hæsta. Við þetta sléttist voðin vel í
bili og þæfðist jafnara á eftir. Það var matsatriði hvenær voðin
var talin fullþæfð, en venjulega létu húsmæður smellþæfa flest eð öll vaðmál.
En svellþæfð var sú voð kölluð, sem orðin var stinn átöku. Það
þótti sjálfsagt að gefa þófara aukaleiða. "þófarleiða" oftast
lummukaffi á meðan á þófi stóð. Ekki vissi ég um greiðslur fyrir
þóf. Þegar þófi var lokið og búið að "kippa" vel og rækilega,
var voðin undin upp á fjöl 15-20 cm. breiða. Tveir unnu að því verki, annar
p32
"hélt í"
þ.e. hélt voðinni strengdri og sléttri, en hinn hafði fjölina og vatt upp
á hana. Fjölin var svo löng að góð handarbreidd var hvorumegin utan
við voðina. Við hvern hring -eða annanhvorn- var togast á um voðina
til þess að slétta hana sem best. Þegar lokið var að vinda upp voðina,
var hún sett undir farg til pressunar. Oftast var fergt með kistu,
og þá stundum látið eitthvað ofan á hana til þess að auka þungann.
Vandaðar voðir, sem ætlaðar voru í spariföt, voru stundum sendar í verksmiðju,
til litinar og lóskurðar, aðallega eftir að verksmiðjan Gefjun á Akureyri
tók til starfa.
ÞÓFARAÞULA.
Bárður minn á jökli
leggstu nú á þófið mitt.
Ég skal gefa þér
lóna innan í skóna.
Mjöl á disk, borinn
fisk.
Skeifur undir hestinn
þinn
og naglabrot í hófinu.
Og láttu nú ganga
þófið mitt.
Ýmis afbrigði voru
af þessari þulu, eða einstakar orðabreytingar, en mestur af því er ég búinn
að gleyma.
p33
Hér er svo gáta,
sem ég lærði ungur um vefinn:
"Tugginn er
ég og teygður
tekinn og gerði úr
væta.
Bundinn á burðarlétti
brugðið í ormafelur.
Stungið í stálaglóru.
Strengdur á hrygg
melrakka.
Troðinn og títt um
farinn
af troðfullum dýrabana."
Nr. 1274
p1
Ull og tóvinna 3.
Ullarvinna hófst ekki fyrir alvöru fyrr en um veturnætur, svo nokkur
dráttur varð á því að vefnaður hæfist, en keppst var við að vinna í buxnavoð,
vaðmál eða vormeldúk svo fljótt sem kostur var á, til þess að þeim vefnaði
yrði lokið nokkru fyrir jól. Svo einnig yrði unnt að sauma úr því
fyrir hátíðar hana vermönnum. Öllum vefnaði skildi lokið fyrir sumardaginn
fyrsta. Ekki var sett til í nýja voð fyrr en eftir hátíðar. Hverjir
önnuðust vefnað á heimilum, fór nú eftir atvikum og heimilisástæðum. Það
þótti nauðsynlegt að þar færi saman, að vefari væri vandvirkur og duglegur.
Ég held að það hafi verið bara einn heimilismaúr sem annaðist það
verk, en ekki einn þessa voðina og annar hina. Þannig var það allsstaðar
þar sem ég þekkti til. Þar sem húsmóðirin annaðist vefnaðinn, settist
hún í vefstólinn eftir morgunmat (frúkost, sem kallaður var), þegar hún
var búin að koma frá mjöltum og
p2
málnytu, en væri
það annar heimilismaður, var ætlast til þess að setið væri í vefstólnum
frá fótaferð til háttumála. Ekki veit ég á hvaða aldri unglingar
lærðu yfirleitt að vefa, en þegar ég var 16 ára, ákvað mamma að kenna mér
að vefa, en þann tiltekna dag, sem námið átti að hefjast, tókst svo illa
til að ég var orðin veik af innflúensu með talsverðan hita, en ekki vildi
ég gefast upp, því það sem ég átti að vefa var efni í pils handa mér. Uppistaðan
var rautt vefjargarn, ég held að það sé núna kallaður tvistur, en ívafið
var svart litað einfalt band (eingirni). Vefnaðurinn var veipa. Ég
lauk við að vefa í pilsið, en aldrei entist ég til þess að slíta því. En
um þetta leyti fór það að vera ófínt að ganga í heimaofnu. Þetta
er það fyrsta og síðasta, sem ég hefi ofið, enda er ég í meira lagi ófróð
um vefnað. Í daglegu tali var vefstóllinn kallaður
p3
vefstaður, en þó
held ég að allir hefðu skrifað vefstóll, ef þeir hefðu þurft að minnast
á hann skriflega. Flest heimili áttu vefstól, en bæði þekktist það
að vefstóll væri fenginn að láni og einnig var það til að menn fengju ofið
hjá öðrum gegn greiðslu. Gott þótti ef hægt var að losa snærin úr
á fyrsta degi. Veifskeiðar voru einnig kallaðar ritti. Það
var alltaf talað um að draga í skeiðina, en í öðru sambandi var sagt: "réttu
mér rittið eða hvar er rittið". Ritti var misjafnlega gisið
eftir því hvað átti að vefa, og var þá talað um 70-80-90 tanna miðað við
kvartel. Ritti var venjulega 5 kvartel. Þau ritti, sem ég sá
voru úr járni að ég held, ósköp dökk á að líta. Vefskytta
var í daglegu tali kölluð skytta. Vefskyttur voru venjulega úr harðviði,
ljósum eða dökkum eftir atvikum. Skytturinar voru látúnsbryddar á
endum, og einnig látinn greypt neðan á þær til
p4
þess að þær rynnu
betur um skilið. Látún var einnig í grópinu, þar sem príminn var.
Á sumum skyttum var grópað ofaní fyrir spóluna, en botninn heill,
aðrar og algengasta var að grópið væri opið niður úr skyttunni. Ég
vandist því að spóluteinn væri kallaður prími. Í spóluhólkana voru
notuð gömul spil. Eitthvað man ég eftir spóluhólkum úr málmi.
Spólurokkurinn var gamall spunarokkur eða tvinningarrokkur. Tálgaður
var teinn úr tré og honum stungið í rokkpípuna. Þessi teinn var látinn
mjókka dálítið fram, til þess að auðveldara væri að ná spólunni af. Með
vinstri hendi var bandinu stýrt um spóluna, en með hægri hendi var stutt
við endann á spóluteininum með sauðarvölu. Spanstokkur, á
honum þekkti ég ekki annað nafn. Sá spanstokkur, sem mamma átti og
ég þekkti best, var úr mjög dökkum harðviði, látúnsbryddur á endum, með
4 eða 5 gadda á hvorum enda, nokkuð
p5
breiður fyrir endann.
Ég hef séð spanstokka brydda með járni eða blikki, og aðeins með
2 gadda á hvorum enda, aðra með 3 gadda á enda. Sumir spanstokkar
voru úr tvennskonar viði, var þá sá endinn sem gekk utanyfir úr betri við.
Að leggja upp var það kallað þegar reiknað var út í uppistöðuþráð.
Algengast eða það sem ég þekkti best, var að þráðurinn væri vigtaður og
sauðarvölurnar, sem undið var á dregnar frá þyngd þráðarins. Sumar
konur reiknuðu út eftir lengd þráðar í hespum, þar sem hesputré var notað,
sem mældi þráðinn í skreppur. Ég heyrði talað um að ein hespa væri
11 skreppur, 44 þræðir. Að reikna í skeið, var það kallað
þegar reiknað var út hvað margir þráðarendar voru látnir í tönn. Aldrei
var látin nema einn þráðarendi í hvert hafald. Betra þótti
að láta þéttara í skeiðina til endanna, til þess að það slitnaði síður.
Það er að segja uppistöðuþráðurinn þegar ofið var.
p6
Ef voðin var varplítil
slitnaði frekar. Það var talað um að voðin væri varplítil og varpmikil.
Algengast var að tala um uppistöðu og ívaf og fyrirvaf. Rakningskassi:
Margir áttu kassa með hæfilega stórum og mörgum hólfum fyrir hnyklana.
Kassinn var nokkuð kjúpur til þess að hnyklarnir hoppuðu síður uppúr.
Kassinn var hólfaður sundur með þunnum hefluðum fjölum, hvert hólf
ferhyrnt. En þar sem svona kassi var ekki til, voru öll möguleg ílát
týnd saman og losuð, til þess að láta hnyklana velta í, bæði mjólkurskjólur,
vatnsskjólur, kirnur og kassar, pottar og skálar. Aðeins voru það
kopparnir (náttpottarnir), sem ekki þóttu þess verðir að nota þá til þess
arna. Grindin, sem rakið var á kallaðist rakningsgrind. Grindin
var í kross, þegar hún var í notkun, en í geymslu var hún lögð saman. Hún
var fest saman með sívölu skafti, sem náði upp úr og niður úr henni. Á
neðri enda skaftsins var járngaddur.
p7
Þegar hún var í notkun,
var henni haldið sundur með krísholtinu, sem var bundið í báða enda fast
með snærum. Rakningsgrind var til á flestum bæjum, þó ekki
alveg eins algeng og vefstóllinn. Rakningsgrindin var þannig
fest upp við notkun, að leðurhólkur var negldur utaná bita, sem var neðaná
stofuloftinu, miða ég þá við heimili foreldra minna, og þessu líkt var
það þar sém ég þekkti til. Efri enda skaftsins, sem hélt grindinni
saman var smeygt þar í. Járngaddinum, sem var á neðri enda skaftsins
var stungið ofaní gat sem var á járni á kvarnarsteini. Hann var hafður
undir grindinni. Undir kvarnarteininum var hellublað, þykkt eða þunnt,
eftir því í hvaða hæð passaði fyrir grindina. Þegar mamma
rakti í vef var hún ein um það verk, nema ég var til aðstoðar við það frá
því ég man eftir mér og æ síðan meðan hún óf. Það verk var í því
fólgið að fylgjast með þegar hnykill var að rekjast upp, þá
p8
gerði ég aðvart,
hægði hún þá á, og ég hnýtti nýjum hnykli við. Einnig passaði ég uppá það
hvort hnykill hoppaði uppúr og kom honum aftur á sinn stað.
Þegar búið var að vigta þráðinn og ákveða lengd voðarinnar, var einn þráðarendinn
mældur með kvarða og þar hnýtt á þráðinn mislitt tuskusnudda, síðan var
þessu aftur vafið uppá hnykilinn. Svo þegar rakið var og kom að þessu
merki, var ekki rakið lengra niður eftir grindinni, en þráðunum brugðið
um skilhælana og aftur rakið til baka. Ekki man ég eftir að rakningsspaði
væri notaður þegar rakið var, heldur lét rakningskona þræðina renna milli
fingra sér í öllum greipum annarar handar. Ef illa var rakið var
talað um að slekja væri á þræðinum, og kom það fram þegar ofið var. Það
var talað um að það þyrfti að rekja þverhönd á hverja alin í stillingar.
Rakningskona rækti aldrei ofaná, heldur ofanvið og neðanvið. Þegar
henni þótti
p9
rekjast of dreyft
á grindina ýtti hún fetunum saman eldsnöggt öðru hvoru. Það þurfti
að leggja ofaná fyrir framhnýtingu. Litlum nagla var neglt utan við
ysta hafaldið, í hafaldaskaftið, til þess að varna því að höföldin færu
útaf. Aðrir höfðu til þess band utan við höföldin.
Ef mikið var gefið í vef, kannast ég við eftirfarandi orð um það. Mikið
bandað, bandborið, og svo þessar ýktu lýsingar: bandinu hakkað í, bandinu
mokað í, bandinu hlaðið í. Ef voð ófst inn, þá var sagt, hún gengur
saman. Það er missa í henni. Ef bandið var allt of smátt í
samanburði við þráðinn, þá var sagt, bandið fyrirverður sig, og ef þráðurinn
féll illa í voðinni var sagt, þráðurinn ríður uppi. Voðin
var þannig mæld jafnóðum og hún var ofin, að bandspotta, sem áður hafði
verið nældur nákvæmlega 1 alin, var stungið niður á milli þráðanna
p10
framan við vefinn.
Hnútur var á enda spottans, svo hann drægist ekki uppúr. Með
þessum spotta var svo mælt. Þegar ein alin var ofin, var hann aftur
færður, og koll af kolli. Vefjarkambur, sem oftast var í
daglegu tali bara kallaður kambur, var eingöngu smíðaður úr tré. Báðar
hliðar kambsins voru nokkuð breiðar fjalir, en mjóri sívalir trétittar
þar á milli. Þeir voru grópaðir fastir á endunum í neðri fjölina,
en þá efri var auðvelt að taka upp. Til endanna var þunn fjöl, sem
skorðaðist í hliðarfjalirnar eins og tittarnir, en trénagli var settur
í gat, sem var efst á endafjölunum, og til endanna á efri fjöl kambsins.
Tittarnir eða tindarnir í kambinum voru á að giska grannir sem blýantur.
Verkið við að dreyfa slöngunni í kambinn nefndist að láta í kamb.
Þræðirnir voru látnir sem jafnast, en ekki taldir í kambinn. Skaftið
sem var tengt við afturrifinn, var kallað plógskaft. Þráðurinn, sem dreginn
var í fremra
p11
gangskilið kallaðist
skilþráður. Honum var hnýtt yfir slönguna og bundinn við báða enda plógskaftsins
í gróp, sem var á endanum. Þannig gróp var einnig á endunum á skilsköftunum.
Að setja til nefndist verkið einu nafni frá því byrjað var
að festa slönguna við rifinn, þar til hægt var að byrja að vefa. En
einnig var komist svona að orði: "Ég var að festa upp voð í gær".
Að bóma vef nefndist verkið við að vinda slönguna uppá rifinn. Gróp
var á rifnum eftir endilöngu. Þar var plógskaftið með slöngunni á
lagt í, áður voru kragarnir dregnir uppá rifinn, en þeir voru kringlóttir
trésnúðar með gati í miðið, en meðfram gatinu var skinn neglt á kragann,
og gekk það inn á rifinn, og vafðist slangan ofaná það, og urðu kragarnir
þá fastir. Verkið við að bóma fór þannig fram, að karlmaður snéri
rifhausnum, en kona sat á setufjölinni, og hélt um slönguna, og gaf eftir,
hægt og hægt. Hún hélt það fast við, að það var talsverð átakavinna
að vefja
p12
upp á rifinn, en
mikið lá við að fast og vel færi á rifnum. Það mátti ekki hlaðast upp öðrumegin
en svelta við hinn kragann. Til aðstoðar var svo ein kona, sem passaði
kambinn og færði hann til lítillega eftir þörfum. Á Stokkalæk hvalvikaði
hún honum til, en í Miðkrika hnikaði hún honum til. Það var líka
talað um að hnóhnika, ef t.d. börn voru sí og æ að hreyfa sig, þegar þau
áttu að vera kyrr. Að draga í höföld og draga í skeið var
einu nafni kallað að draga inn. Að rétta í höföld var það verk kallað,
sem aðstoðarmaður annaðist, sem rétti þráðarendana fram. Og einnig
að rétta í skeið og draga í skeið. Þegar búið var að draga í 100 þræði
var þeim hnýtt saman. Það unnu 2 við að draga í höföld og skeið.
konan sem dró í sat á setufjölinni, en aðstoðarmaður sat á stól eða
kassa, sem komið var fyrir inni í vefstólnum, aftan við höföldin. En
slagborð með skeiðinni í og höföld, var áður búið að færa fram undir bómuna
til hagræðis fyrir þá sem unnu
p13
að inndrætti. Að
rétta í höföld og skeið hét einu nafni að rétta fram. Krækja
var notið við að draga í skeið. Hún var smíðuð úr þunnu látúni, lengd
hennar mun hafa verið svo sem 2 1/2" og var lítill krókur á öðrum
enda hennar. Að hnýta fram nefndist verkið við að hnýta í framhnýtingarskaft.
Þegar hnýtt var fram, voru skilendunum hnýtt saman. Byrjað
var á miðju skaftinu, og síðan til endanna og gæta varð þess að allt væri
jafnt og beint fyrir. Þetta var kallað að hnýta fram, og talað var
um framhnýtingu. Um mitt skaftið var hnýtt snæri og sitt um hvorn
enda. Þessum snærum var svo hnýtt um framrifinn. Þegar fyrst var
stigið á skammelin, til þess að fá skil, var talað um hreint skil eða óhreint
skil. Vefstólssnærin fylgdu alltaf vefstólnum. Það var kallað
að draga fyrir þegar fyrst var farið að skjóta skyttunni um skilið. Ég
held að það hafi verið algengast að gefa ívaf í einum boga.
p14
Það fór eftir því
hvort voðin átti að vera fast ofin eða laust, hvað vefurinn var mikið sleginn.
Voðinni var haldið út með spanstokk. Broddunum á endum hans var stungið
í jaðra voðarinnar og þvinguð út il þess að hún héldi jafnri breidd. Ef
þráðurinn slitnaði var samlitum þráðarspotta bætt þar í, það var kallað
að bæta. Hver einstök vinding voðar upp á framrifinn kallaðist
ein færa, en verkið að færa. Ef voðin var slök var tekið svona til
orða:"Hertu á einni tönn". Er voð var tekin úr vefstól,
var það kallað að fella af.
Þráðarvikur voru
notaðar sem saumgarn til þess að bæta, stoppa og staga með ullarfatnað,
ofinn og prjónaðann. Afvikur úr vefjargarni voru notaðar í þræðingu.
p15
Um höföld og þóf
var ég áður búin að skrifa í fyrri skrá, og vísa ég til þess. En
því miður hefi ég lítil skil getað gert þessu, og hefir þetta legið svona
lengi hjá mér, því mér hefir varla fundist taka því að senda þetta.
Nr. 1348
p1
Ull og tóvinna 3:
Að gefnu tilefni vil ég taka það þegar fram, að það sem ég segi
um vefnað og annað honum viðkomandi, er fyrir þann tíma er áhrifa fór að
gæta frá húsmæðraskólunum og prentuðum vefnaðarbókum. Þegar haustverkum
var lokið, sem venjulega var um veturnætur, var á flestum heimilum þar
í héraðinu, byrjað á ullarvinnu, sem sé að taka ofanaf ull, kemba hana
og spinna síðan í band, til þess að prjóna á hendur og fætur allra á heimilinu,
til þess að vera viðbúinn vetrinum. Á stöku bæjum var byrjað
um veturnætur að vinna ull í við eða voðir, og vefa þær þegar svo hægt
væri að sauma ytri fatnað úr henni á einhvern heimamanna, sem átti þegar
að fara til sjóróðra (í verið). Yfirleitt var ekki byrjað að vinna
í voðir nema á stöku bæjum fyrr en eftir nýjár. Þá er birtan var
farin að skýrast að mun, en þá var líka tekið til óspilltra málanna og
unnið af kappi fram á sumamál við að spinna þráð og fyrirvaf í voðir, sem
vefa átti fyrir sumarmál. Hér gat oft verið um að ræða margar voðir,
sem sauma átti úr fatnað, rekkjuvoðir ofl.
p2
Í byrjun 20. aldar
voru fáir karlmenn þar um slóðir, sem kunnu að vefa og sem unnu eitthvað
við það starf. Stöku bændur önnuðust sjálfir um allan vefnað
á heimili sínu með skepnuhirðingu og unnu þá aðallega að kvöldinu. Á
sumum bæjum var tekinn vefari, ef hann var til staðar á næstu bæjum, til
þess að vefa. Eftir því sem ég man best, sat vefarinn ekki lengur
í vefstólnum en 7-8 stundir á dag. Eins og gengur og gerist
voru afköst þeirra, sem við vefnað unnu, dálítið misjöfn, og fór það nokkuð
eftir aðstæðum. Ofið var að meðaltali 3-4 álnir á dag. Unglingar
sem lærðu að vefa voru mjög fáir. Þeir byrjuðu ekki að læra fyrr
en þeir voru á aldrinum 16-18 ára. Sjaldgæft var það, þar um slóðir
að menn hefðu atvinnu við vefnað. Eftir því sem ég veit best, var
lítið um það að vefnaður væri notaður í vöruverslun.
p3
Ég sá aldrei kljásteinsvefstól
þar um slóðir. Heyrði aðeins talað um þá. Hvergi varð ég var
við hluta úr honum þar. Hafi þeir einhverntíman verið til, þá hafa
þeir verið horfnir með öllu úr byggðarlaginu fyrir löngu. Hraðskyttuvefstóll
og eins tvíbreiðan vefstól sá ég ekki eða heyrði talað um þá, sem nokkuð
var að byggja á. Vefstóllinn B, var sú eina gerð vefstóla, sem ég
sá og ofið var á þær, eftir síðustu aldamót og framundir 1920. Það
mátti heita að allur vefnaður hyrfi með öllu, þar í héraðinu, þá er ullarverksmiðjur
tóku til starfa hér. Fataefni sem þær framleiddu þóttu áferðafallegri
og léttari búningur en vaðmálsfötin voru. Eftir því sem ég heyrði
í æsku aldrað fólk tala um, voru vefstólar aldrei til á hverjum bæ í austur
hluta Barðastrandasýslu, en þó á nokkrum bæjum. Um 1925 voru vefstólar
orðnir mjög fáir og lítið notaðir.
p4
Yfirleitt gekk vefstóll
undir því eina nafni vefstóll, en þó minnist ég þess, að hafa heyrt stöku
sinnum þar notað orðið vefstaður um vefstól. Ég man ekki eftir því að hafa
heyrt talað um vefstólasmið eða mann sem hefði atvinnu við að smíða vefstóla.
Kæmi það fyrir að einhver hluti vefstóls bilaði, var strax fenginn
einhver laghentur maður til þess að laga það sem bilað var, svo vefstóllinn
yrði nothæfur. Þau heimili, sem áttu ekki vefstól, leituðu þá til
náunga síns, sem átti vefstól og fengu ofið hjá honum. Ýmist var
það að eigandi efnisins óf sjálfur eða eigandi vefstólsins tók að sér að
vefa voðina. Greiðsla fyrir svona starf fór alveg eftir samkomulagi
beggja aðila. Sjaldgæft var það að vefstólar gengju þar kaupum
og sölum. Heyrði aldrei talað um verð á vefstólum. Þeir vefstólar,
sem ég sá notaða laust eftir aldamótin 1900, voru allir gamlir að sjá.
Nýr vefstóll sást hvergi.
p5
Vefjarskeiðar gengu
undir því eina nafni vefjarskeið. Vefjarskeiðar voru úr málmi, eir
eða látúni. Þær voru sumpart smíðaðar hér heima og fluttar inn frá
útlöndum. Heyrði aldrei talað um að vefjarskeiðar væru smíðaðar úr
hvalskíði eða harðviði. Lengd þeirra var dálítið misjöfn og fór það
eftir tannafjölda skeiðarinnar. Lengd skeiðanna var miðað við tannafjölda
þeirra. Talað var um 60, 80 og 90 tanna skeið. Vefjarskeiðar
voru um 5 kvartil á lengd. Þegar ofið var úr grófu efni, var 60 tanna
skeið notuð. Væri ofið úr fínu efni, fínum þræði eða tvist, var notuð
80 eða 90 tanna skeiðar. Skeiðarnar voru nefndar sextíutannaskeið,
áttatíutannaskeið og níutíutannaskeið. Vefskyttur voru smíðaðar
úr hörðum og þéttum við, eik eða brenni. Þær voru flatar að lögun,
um það bil ein tomma á þykkt um miðjuna og þynnri til beggja enda og oddlaga,
svo þær runnu liðlega í gegnum skilið,
p6
þá ofið var. Oft
var settur mjór vír neðan á skyttuna, svo hún yrði hálli að neðan.
Á miðri skyttunni var aflangt gat í gegnum, þar sem spólan lék á mjóum
tein, þegar skyttunni var rennt í gegnum skilið. Teinn sá er spólan
lék á var nefndur spóluteinn. Ég sá aldrei spólur sem voru renndar
eða tálgaðar úr tré. Ég man ekki eftir því, að hafa heyrt
að fiskroð hafi verið notað til þess að spóla á það ívafið. Spólur
sem notaðar voru þar um slóðir um og eftir aldamótin 1900, til að spóla
á ívafið voru gerðar úr þunnri málmplötu. Ég man eftir því
að hafa séð spólurokk, sem laghentur maður smíðaði. Hann var að mörgu leyti
svipaður spunarokk, en þó einfaldari að gerð. Teinn sá er spólan lék á
þá er spólað var, var festur svipað og snælduteinn í rokk. Margir
notuðu líka gamla rokka sem lítt voru nothæfir til að spinna á band.
p7
Þegar gamall spunarokkur
var notaður sem spólurokkur, var spólan sett á tein úr járni, stundum úr
tré og öðrum enda hans stungið inn í gatið á hnokkavængnum, og var hinn
endi teinsins látinn snúast í sauðarvölu, sem sá er spólaði hélt á í vinstri
hendinni. Áhaldið sem notað var til að halda út jöðrum á voð er ofið
var, var ávallt kallað spjálk eða spanstokkur. Áhald það sem hér
er um að ræða var smíðað úr tré. Breidd hans var um 3 þumlungar.
Hægt var að hafa hann mislangan, eftir því sem á þurfti að halda
með því að draga hann sundur og saman. (Sjá uppdrátt, ef uppdrátt
mætti kalla). 2 eða 3 smánaglar voru hafðir í hvorum enda
hans, svo hægt væri að festa enda hans í voðinni.
p8
Verkið við að reikna
út uppistöðuþráð í hvera einstaka voð er vefa átti, hafi verið nefnt "að
leggja upp". Eftir því sem ég heyrði talað um (fyrir 50 árum),
var algengast það að hefa hesputré, sem ákvað lengd þráða og vigt á hnyklum
eða hespum. Iðulega var miðað við þyng, t.d. fimm lóða. Venjulega
var lagt uppúr þráðarmörk í hnyklum 2-3 álnir eða þar um bil. Sauðarvölur,
sem þráður var undinn á voru yfirleitt dregnar frá þyngd hnyklanna. Sumir
létu vigta sauðarvölurnar áður en þráðurinn var undinn á þær. Verkið
við að ákveða fjölda uppistöðuþráða í breidd voðar er vefa átti, var ávallt
kallað að reikna í skeið. Gæta varð þess vandlega að uppistaðan yrði
ekki gisnari en til var ætlast í upphafi. Voðin mátti ekki vera of
varplítil. Ég heyrði talað um það að rekja skildi þverhönd fyrir
hverja alin, sem koma áttu ofan úr vefstól,
p9
og var þá líka gert
ráð fyrir endunum síðast. Ég sá aldrei balbínurokk né balbínusnældur,
sem notaðar voru þegar rakið var efni í voð. Verkið við að spóla
á balbínurokk var kallað að balbína. Eftir því sem mig minnir voru balbínusnældur
svipaðar að lögum og venjulegar rokksnældur, en miklu stærri. Því
miður get ég ekkert sagt um rakningaspaðann, nema ef vera mætti, að það
væru.................... Rakningsstokkar voru allvíða til á bæjum,
sem notaðir voru er rakið var af hnyklum. Stokkar þessir voru ferkantaðir
að lögun, með mörgum hólfum (hólf fyrir hvern hnykil). Stokkar þessir
voru mjög einfaldir að gerð. Hafaldagrind, sem notuð var er höföld voru
hnýtt var mjög einföld grind um 1 alin á lengd, og um 15 þuml. á breidd,
og eftir henni miðri var þunn fjöl. Hafaldagrindin var fest upp á
vegg þegar hún var notuð við hafaldagerð. Efnið í höföld
var unnið heima úr togi, vandað var til þeirra. Þráðurinn var hafður snúðharður
og sléttur.
p10
Ég heyrði aldrei
talað um stálhöföld. Band það sem varnaði höföldum að dragast út
af hafaldasköftunum, er ofið var, var ávallt kallað öryggisband, er varna
átti því að höföld drægjust útaf enda hafaldaskaftanna. Ég
sá eitt sinn, endur fyrir löngu, tveggja álna langa trégrind, sem mér var
sagt að notuð hefði verið í sambandi við rakningu. Áhald þetta var
með allmörgum sívölum járnteinum, með um það bil eins þumlungs millibili.
Teinar þessir náðu í gegnum listana. Vefjarskeiðar voru úr málmi.
Tennur þeirra voru þunnar (flatar), og snéru rendur þeirra fram og
aftur í skeiðinni. Verkið við að dreifa slöngunni í skeiðina,
nefndist einu nafni að draga í skeið. Til þess að draga í skeiðina
þurfti 2. Þunnur krókur var hafður til þess að draga þráðinn í gegn
eða milli tanna skeiðanna. Skaftið sem sett var í skilið og tengt
við slöngurifin nefnd rifskaft. Þráður sem festur var við skaftið
og dreginn í fremra skilið, nefndist skilþráður. Sama var og að segja um
verkið við að draga þræðina í höföldin. Að draga í höföld, var ávalt
sagt.
p11
Verkið við að vinda
slönguna upp á slöngurifinn, draga í höföld og skeið og festa uppistöðu
í fram rif, nefndist ávallt að setja upp eða setja til vef. Verkið
við að vinda slöngunnnna upp á slöngurifinu nefndist að bóma. Plógskaftið
var fest á þann hátt, að það var sett fast í fals á slöngurifnum undir
kraga. Venjulega unnu 3 saman að því að vinda slönguna á rifinu.
Gæta þurfti þess vandlega að slangan væri ekki flækt. Slangan var
látin ganga að sér á rifnum, smátt og smátt. Þegar búið var að bóma
voru skilsköftin að aftan bundin föst við þverslá vefstólsins að aftan.
Hve margir unnu við að vinda slönguna á rifinu, fór eftir ástæðum.
Þegar dregið var í höföld var þess gætt vel, að halda höföldunum
kyrrum, svo ekki yrðu mistök í verki. Tveir unnu saman við að draga
í höföld. Annar rétti fram þráðinn, en hinn dró hann í gegnum hafaldagatið.
Þegar búið var að draga nokkra þræði í gegn, voru þeir hnýttir saman,
svo þeir rynnu ekki ýr hafaldaauganu. Áhaldið sem notað var
við að draga í skeið nefndist krókur. Krókurinn var ávallt smíðaður
úr þunnri málmplötu. Skeiðin var bundin upp rétt fyrir ofan höföldin
á
p12
meða dregið var í
hana. Tveir unnu við að draga í skeiðina, annar rétti þráðinn, en
hinn dró hann í gegnum skeiðina. Þegar búið var að draga nokkra þræði
í gegnum skeiðina, hnýtti hann á enda (nokkra í einu), svo þeir drægjust
ekki til baka aftur, þar til þeir yrðu settir fastir. Höföldin
voru fest upp á vefstólinn á þann hátt, að sett var snæri á báða enda hafaldaskaftanna
og síðan var snærið látið yfir rá sem snérist þá er vefstóllinn var stiginn.
Í neðri enda hafaldanna gekk hafalkask. sem svo var kallað í gegnum
höföldin að neðan. Stigfjalirnar voru festar við höföldin með allsterkum
vír, á að giska 12 þuml. löngum. Sumir kölluðu þær skilfjalir. Vefstóla
.... voru misjafnlega sver, fór það dálítið eftir því hvaða hlutverki þau
áttu að gegna. Þegar talað var um að hnýta fram, var átt við verkið
að ganga frá endunum á voðinni. Skaftið sem oft var nefnt framhnýtingarskaft,
og sem uppistaðan var hnýtt fram á, var fest með snærum við frambómuna,
rifinu.
p13
Þegar farið var að
skjóta skyttunni um skilið og byrjað var að vefa voðina, var ávallt sagt,
að skjóta skyttunni eða að renna henni um skilið. Sjaldgæft var þar
um slóðir, að tala um að draga fyrir. Ég man aðeins eftir einni aðferð
við að gefa ívaf í voð. Ívafið var gefið fyrir í einum stórum boga.
Venjulega var slegið einu sinni, en þétt með slagborði, en sumir
slógu tvisvar eða jafnvel þrisvar sinnum. Spanstokkur var hafður
til þess að halda jöðrum voðarinnar sem jöfnustum. Það þótti ljótt,
ef voð hélt ekki fullri breidd í vefnaði. Helstu misfellur, sem komu
fyrir í vefnaði þegar ofið var, voru þær, ef þráður slitnaði. Vefarinn
fylgdist ávallt með því og bætti það þegar, með því að hnýta við þráðinn
smáspotta. Sumir vildu kenna það aðsókn, ef mikil brögð voru að því
að þræðir slitnuðu þegar ofið var. Hver einstök vinding voðar upp
á framrif, nefndist umferð (áfæra). Verkið við að vinda upp á rifinn,
nefndist að bóma.
p14
Þegar vefnaði á voð
var lokið, og hún var tekin ofan úr vefstólnum, var ávallt kallað að fella
af vef. Þráðarendar sem gengu af er vefur var felldur voru nefndir
afvikur. Afvikur voru notaðar þá er konur unnu við að bæta ýmsan
ytri fatnað, í staðinn fyrir tvinna. Þegar lokið var við að vefa
voð, var hún þegar tekin ofan úr vefstólnum, og gengið frá báðum endum
hennar. Jafnhliða var venja, þar um slóðir, að setja stærsta pottinn
á heimilinu á hlóðina og hita í honum þvælið. Potturinn var hafður
rúmlega hálfur af vatni, blönduðu með keytu. Lögur þessi var hitaður
allt að suðumarki, og var voðin þá sett í pottinn. Þvælið var haft
það mikið í pottinum að vel flyti yfir vaðmálið. Síðan var hrært
með priki í pottinum þar talið var að vaðmálið væri orðið hreint. Síðan
var vaðmálið fært upp úr pottinum og sett í stóran bala, trébala, hálffullan
af vatni og skolað þar um stund. Þegar því var lokið
p15
var það undið upp
á þann hátt, að tvennt eða þrennt annaðist það verk, sem alltaf var gert
úti, að þeir eða þau höfðu tvö sívöl prik, allsterk. Var öðru þeirra
fest í bæjardyrunum eða öðrum dyrum, og gætti annað þeirra þess að það
losnaði ekki, en hinn hafði hönd á því sem var fjær bæjardyrunum.
Þegar hér var komið
starfi, hjálpuðust þau eða þeir um að draga vaðmálið upp úr balanum og
festa endum þess á prikið, sem fest var í bæjardyrastafina og á þann hátt
var vaðmálið síðan dregið tvöfalt upp úr balanum. Sá sem var fjær
bæjardyrum, smeygði sínu priki í gegnum tvöfalda voðina. Þegar hér
var komið, byrjaði sá er stóð fjær dyrunum að snúa uppá vaðmálið, sem var
tvöfallt, en sá er við dyrnar stóð, gætti þess vel að allt væri í lagi.
Svo óhætt væri að snúa allmikið upp á tvöfalda voðina og á þann hátt
ná úr henni vatninu. Þegar lokið var að vinda voðina, var hún borin
inn í bæ, og á þann stað í bænum sem heppilegastur
p16
var fyrir þófarann
að vera við starfið, t.d. í baðstofu eða stofu, þar sem einhver hlýja var,
og helst eitthvað afsíðis, ef unnt var að fá það. Ávallt var þæft
á trégólfi, undir fótum. Tunnuþóf þekktist ekki þar. Heimamenn önnuðust
þófið. Við þófið voru menn ávallt léttklæddir og alltaf berfættir.
Á meðan á þófinu stóð var vaðmálið hrist upp tvisvar til
fjórum sinnum, til þess að losna við lóna, sem myndast hafði við þófið.
Við að hrista upp vaðmál unnu tveir eða tvennt. Þegar
þófinu var lokið var vaðmálið undið upp á rúmfjöl, gætt var þess vel að
engar hrukkur eða fellingar mynduðust á því um leið og það var undið upp
á rúmfjölina. Fargið, sem notað var á vaðmál, var ávallt þung kista,
þannig var pressað vaðmál, laust eftir aldamótin 1900, og gafst iðulega.
Reynt var að fá vaðmálið eins áferðafallegt og unnt var, þótt áhöldin
væru ekki margbrotin. Húsmóðirin fylgdist ávallt vel með öllu sem
unnið var á heimilinu, enda veitti henni ekki af því, þar sem allur fatnaður
var unninn heima.
Nr. 1251
p1
Ull og tóvinna.
Vefnaður var ein af mestu nauðsynjum íslenzkra sveitaheimila hér áður fyrr,
því mest allur ígangsfatnaður var spunninn og ofinn heima, að viðbættum
rekkjuvoðum og ábreiðum. Víða voru vefstólar til á heimilum, en víða
voru menn sem tóku vefnað af öðrum, og sömuleiðis voru til vefarar, sem
ferðuðust á milli bæja að vefa. Rakgrindur voru ekki eins algengar,
og var þá farið með vefjarefnið þangað sem hægt var að fá það rakið. Var
síðan þráðurinn undinn á þessa grind, þegar búið var að átta sig á því
eftir föngum hvað mátti leggja í langann og breiðan vef úr efninu. Var
gott að finna það út, ef uppistaðan var í hespum með knekkum og vissum
þráðafjölda, en væri þráðurinn í hnyklum varð allt meiri ágiskum, en reynsla
og hyggjuvit gerði mönnum fært að fara nærri um það. Rakgrindin var
venjulega höfð í einhverju framhýsi. Þegar búið var að rekja í vefinn,
sem ég kann ekki að lýsa nánar, var slangan tekin af grindinni og vafin
á
p2
kefli það í vefstólnum,
sem geyma átti þráðinn og skila honum jafnóðum og ofið var. Þar næst
var að draga í höföldin og varð að vanda til þess eins og alls undirbúnings
undir vefnaðinn. Var annar aftan við og rétti í gegn, en hinn tók
við og hnýtti endana saman í smáskúfa, til að tapa þeim ekki aftur í gegn,
þangað til dregið var í skeiðina. Höföldin munu oft hafa verið úr
togþræði, en vandinn var mikill að fá þau nógu snögg, svo efalaust hefir
verið keypt seglgarn til þeirra hluta þegar hægt var. Ekki veit
ég hvort vefjarskeiðar sem ég sá voru innlend eða erlend smíði, en þær
voru úr járn eða stálþynnu á brúnum og einskonar vír á milli, sem kallað
var tennur. Munu hafa verið algengasta 80-90 tanna skeiðar. Var
þráðunum jafnað í þessar tennur með áhaldi sem nefndist gikkur. Var
það látunsþynna með krók á öðrum endanum, sem stungið var á milli tannanna
og þráðurinn
p3
kræktur í gegn. Síðan
voru endarnir festir við þar til gerð skaft, og úr því skafti lágu spottar
með jöfnu millibili sem festir voru við voðmeiðinn. Þá var að opna
skil á vefinn með því að stíga á skammelin, festa enda á ívafinu og skjóta
skyttunni í gegn, síðan var stigið á skammelin eftir því hvaða áferð átti
að vera á vefnum, einskefta, vaðmálsvenda. Skytturnar voru úr tré
með einhverjum hálum renningum neðan á svo skyttan rinni betur eftir þráðunum.
Spólurnar voru úr málmi að minnsta kosti snúðarnir. Oftast
munu gamlir rokkar hafa verið notaðir til að spóla ívafið, annaðhvort fest
á snælduteininn eða tein sem skorðaður var í bandpípuna. Mikið þurfti
að vanda spólunina, því það gat illa tafið vefarann ef ekki rann greitt
af spólunni. Það mun hafa verið erfitt verk að vefa, væri unnið af
kappi, svo altaf væru látlaus högg, en á smærri heimilum mun þetta oftast
hafa verið ígripavinna með
p4
öðrum verkum. Unglingar
þurftu að vera vel vaxnir úr grasi til að geta ofið, bæði náð niður á skammelin
og í skeiðargrindina. Smásaman þurfti að gefa eftir á slönguvefnum
og vinda uppá voðvefinn eftir því sem á gekk voðina, að síðustu var svo
lítið eftir að ekki var hægt að vefa lengra. Þá var vefurinn tekinn
niður og kastað lauslega í endann svo ekki losnaði um ívafið, og síðustu
endarnir klipptir frá. Þessi afgangur var nefndur neðangangur
og var eftirsóttur til að nota sem þarfaspotta, bæði til að bæta með og
þræða. Þá voru öll föt og plögg bætt, svo nóg var við spotta að gera.
Það var ekki fyrr en eftir síðustu aldamót að það fór að tíðkast
að stoppa í sokka, og öll föt voru bætt á meðan þau héldu bótum.
Þá var komið að því að þæfa voðina. Var þá hitað vatn í stórum potti
fram í eldhúsi, síðan var vatnið látið í stamp
p5
og bætt í það stæku
hlandi eftir þörfum, var það venjulega notað á ull og ullarföt, og leysti
óhreinindin mikið betur en sápa og sódi, síðan var voðinni troðið ofan
í stampinn og þvæld aftur og fram þar til óhreinindin voru laus. Þá
var náð í endann og voðin vafin um 2 prik þannig að bil var á milli, síðan
tóku tveir menn sitt prikið hvor og undu þannig voðina á milli sín, með
því að halda í endana á prikunum og snú þeim þangað til ekki var hægt að
vinda betur. Ef þurfa þótti var skolað á eftir úr hreinu vatni og
þá undið á sama hátt. Nú var næst að útbúa stað fyrir þófið, var
það venjulega eitthvert horn í baðstofunni sem hægt var að girða af með
einhverjum húsgögnum. Ef laus botn var í einhverju rúmstæði, sérstaklega
ef það stóð autt, var fjarðlægður helmingurinn af botninum. Væri
gólfið svo gott að hægt væri að þvo það nógu vel, var ef til vill notast
við það,
p6
en annars fleka eða
hurð. Þarna var vaðmálið látið í eins fyrirferðarlitla hrúgu sem
hægt var. Því næst kom þófarinn, sem var búinn að kasta af sér ytri
klæðum og stóð það sokkalaus á nærbrók og skyrtu einni saman. Húsmóðirin
aðgætti hvort fæturnir væru vel hreinir og þá var allt tilbúið að fara
að þæfa. Hann studdi höndum fram á borð eða annað hæfilega hátt og
tróð síðan og stappaði með fótunum og passaði umleið að ekki dreifðist
of mikið úr þófinu. Ekki þótti það gott eða skemmtilegt verk að þæfa
fótaþóf og var oft vikið að þeim bita og sopa framyfir aðra, þófarabita,
og oft munu þeir hafa haft yfir einhver kvæði eða þulur sér til afþregingar.
Ein þeirra var á þessa leið: "Bárður minn á Jökli- Þrándur minn
í Götu - leggstu á þófið mitt.- Ég skal gefa þér lóna - innan í skóna
(illeppa í skóna) - hálfskeifu og nagla þrjá - og láttu ganga þófið þá.
p7
Á meðan á þófinu
stóð þurfti annað slagið að "toga upp voðina, tóku tveir hana þá á
milli og toguðu hana og teygðu á milli sín eins og þegar brotinn er saman
rúmfatnaður, og færðu sig smásaman til þar til voðin var á enda. Þótti
hún verða áferðarfallegri ef það var gert. Svo kom að því að nóg þótti
þæft, eftir að búið var að toga hana í síðasta skifti, var komið með rúmfjöl
og vefurinn vafinn um hana. Var hún látin liggja á borði og vefurinn
vafinn um hana og strokinn og teygður sem kostur var á um leið. Þar næst
var þurru stykki vafið utan um og gengið frá henni neðarlega í höfðalagi
einhvers rúmsins. Höfðalög rúmanna voru venjulega geymslustaðir fyrir
samanbrotin föt og nú var fjölinni með vefnum komið þarna fyrir og látinn
pressast í nokkrar nætur. Þar næst var hann tekinn og vafinn ofan
af fjölinni og breiddur til þerris, út á þvottastagi ef veður leyfði
p8
annars einhverstaðar
innanbæjar. Þegar vefurinn var orðinn vel þurr, var hann tekinn og
vafinn fast og vel upp á skaft eða kefli og geymdur á því þangað til farið
var að sauma úr efninu. Vandaðir dúkar voru sendir til lóskurðar
og pressunar, en á því kann ég ekki frekari skil.
Nr. 1472
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Misjafnt var hvenær vefnaður hófst haust hvert.
Oft var ekki byrjað fyrr en liðið var á nóvember, stundum þó fyrr,
t.d. ef efni í voð var til frá fyrra vetri. Gott þótti, ef hægt var
að fella voð fyrir jól. Ekki þótti gott að eiga voð í vefstól langt fram
yfir sumarmál. Væri voð felld fyrir jól, var önnur aldrei sett til
fyrr en eftir nýjár.
Mjög misjafnt var
á hverju byrjað var á haustin. Fór það að sjálfsögðu eftir því, á
hverju lá mest. Væri til efni í voð að hausti, var að sjálfsögðu
oft byrjað á henni. Að öðru jöfnu var þó helst byrjað á vaðmáli og
öðru efni í hversdags utanyfirföt. Fínni voðir voru fremur látnar
bíða þar til á útmánuðum. Lá oft minna á þeim og einnig æskilegt
að fá dagsbirtu við þær. Leiðinlegt þótti, að voð stæði uppi
um jólin, nema þá helst, ef sérstakt herbergi var fyrir vefstól, en það
var ekki mjög víða. Eingöngu óf fulltíða fólk, börn og unglingar
ekki nema þá stund og stund til að læra. Sumir sögðu að karlmenn
hefðu ekki ofið í gamla vefstaðnum og ekki fyrr en vefstóllinn kom, þar
sem mátti sitja.
p2
Venjulega var það
aðeins einn heimilismaður, sem óf hverju sinni. Sjaldgæft var að einn væri
að grípa í vef hjá öðrum. Sumir gerðu ekkert annað en að
vefa að vetrinum. Stundum var fenginn maður á heimili til að vefa,
og gerði sá ekki annað. Mörg heimili voru þó ekki betur mennt en
svo, að vefarinn varð að láta sér nægja að annast vefinn milli mála eða
í ígripum. Mjög var misjafnt hversu mikið góður vefari óf
á dag. Fór það mjög eftir, hve fínt efni var í voðinni. Vaðmál
var fremur fljótofið, og ófu vanir vefarar af því 12-15 álnir á dag. Einna
best gekk fram klæðavefnaður. Salúnsvefnaður var að sjálfsögðu seinlegur,
sömuleiðis sængurver, sem voru ofin úr vefjargarni. Einnig var mjög
seinlegt að vefa veftarvormeldúk. Vefturinn hlóðst í hann og gekk
seint fram. Efni í milliskyrtur var einnig seinofið eða í svuntur,
millipils og annað slíkt. Börn byrjuðu stundum mjög ung að taka í vefstól,
jafnvel yngri en 10 ára. Ég man það um sjálfan mig, að þegar ég byrjaði,
var ég ekki stærri en svo, að ég gat ekki setið í setubekknum, en hallaði
bakinu aftur að honum. Náði ég því varla að skjóta skyttunni eða slá, en
handtökin lærði ég. Unglingar hafa varla
p3
ofið neitt að ráði,
fyrr en þeir voru komnir nokkuð yfir fermingu. Sumir höfðu
það að atvinnu að vefa. Þannig var t.d. um hinn fræga vefara Gunnar
Hinriksson, sem var löngum hér eystra. Hann var fyrir mitt minni,
en ég man eftir einum manni öðrum, sem gerði ekki annað að vetrinum en
vefa. Hann tók einkum vefnað heim til sín, en fór einnig á aðra bæi
að vefa. Ekki þekki ég til að sérstakt verðlag hafi verið
í gildi um vefnað né neinn ákveðinn texti. Vefstóll: Bæði
var notað vefstaður og vefstóll. Hygg ég að einkum hafi fullorðið
fólk notað vefstaður, en notkun orðsins vefstóll farið vaxandi. Ekki þekki
ég neinar sagnir um gamla kljásteinavefstaðinn, nema heyrt hef ég að talið
hafi verið fullkomið dagsverk að vefa í honum eina alin. Tveir menn hafi
þó getað hjálpast að við vefnaðinn, og hafi þá mátt vefa hálfa aðra alin
á dag. Ekki þekki ég hvenær hann lagðist niður, en hygg að það sé
mjög langt. Enga hluta þekki ég úr honum nema kljásteina.
Um vefstólasmíði þekki ég ekkert sérstakt.
p4
Ég þekkti ekki margar
gerðir vefstóla. Helsti munur var, hvar slöngurif var komið fyrir.
Stundum var hann niðri, þ.e. báðir rifir voru í sömu hæð. En
í þeim vefstól, sem til var á mínu heimili, var hann að ofan. Í kverkinni,
þar sem kjálkinn kom í afturokann, var þykk og sterk spýta sett til styrktar,
svipuð rúmbrík, og þannig var auðvitað báðum megin. Gegnum þessar
spýtur var gat, og þar var rifurinn, sbr. merkingu á vefstólsteikningunni.
Tvíbreiða vefstóla þekkti ég ekki fyrr en seint. Einn
var smíðaður fyrir heimili foreldra minna, en það var ekki fyrr en 1940.
Hraðskyttuvefstól þekkti ég ekki. Mörg heimili áttu vefstól,
þó ekki nærri öll. Menn fengu vefstól lánaðan eða komu vefnaði fyrir
hjá nágrönnum. Ég þekki ekkert um gangverð vefstóla. þó
minnir mig að tvíbreiði vefstóllinn, em smíðaður var fyrir heimili foreldra
minna 1940, hafi kostað 600 krónur, mjög vandaður að allri gerð.
Vefstóll sá er ég vandist, var um ýmislegt frábrugðinn vefstól á
teikningu A. Frávik voru þessi:
p5
Uppistöður þær sem
sýndar eru á teikningunni aftan við slagborðið, og ná upp í kjálkann (merkt
a) voru engar, en þess í stað voru, sem fyrr segir, sterkar bríkur, þar
sem kjálkinn kemur í afturokann, en göt á, og þar í var efri rifurinn.
Sláin nr. 14 var ekki, en afturbóman, 17 náði í gegnum okana og var
fest með fleygum eins og 13, og hélt hún hliðarstykkjunum saman að aftanverðu.
Þversláin að framan, sem voðin liggur á, hét frambóma. Var hún fest
þannig, að efri endi framokanna var stallaður inn í miðju (sbr. teikningu
A), en endar bómunnar stallaðir á móti, en gat í gegnum hvort tveggja.
Gegnum það gekk skrúfnagli og hélt vefstólnum saman að framanverðu. Róin
var að aftanverðu, en í þeim enda naglanna, sem fram vissi var hringur.
Í þessum hringum voru hankar úr íslensku nautsleðri. Var lykkjunni
brugðið niður fyrir kjálkana, sem ég hef merkt xx. Á þessum kjálkum
lá setubekkurinn. Út frá hvorum enda setubekksins miðjum gekk spaði,
um þriggja fingra breiður, en skora gerð fyrir þá í hvorn kjálka. Setubekkurinn
var klæddur gæruskinni. Uppbindingin var allt öðruvísi, en
sýnt er á teikningu A. Ofan á kjálkunun, nálægt þar sem merkt er
11, lá tré þvert yfir.
p6
Það var hafaldatréð.
Það lá þar laust, en lítill klampi var neðan á því hvorum megin.
Námu þeir út við kjálkana, og færðist hafaldatréð þannig ekki úr
stað. Tvær öflugar trétrissur héngu í sterkum snærislykkjum, hvor
um sig rétt fyrir innan hvorn kjálka. Á trissuhjólinu lá snæri, hvor
endi um spannar langur frá hjólinu, og var lítil trissa bundin í hvorn
enda, en snæri lék á hjólum þeirra og lykkja á endum. Þannig hanga
vorum megin tvær litlar trissur í einni stórri, en samtals fjórar snærislykkjur
hvorum megin niður úr litlu trissunum. Í þessum lykkjum voru hafaldasköftin,
en þau voru fjögur. Þverskammelin voru einnig fjögur, fest innan
á vefstólinn vinstra megin. Í þeim voru kengir úr járni og einnig
neðan í sköftunum, en tengt með grannri járnfesti. Skammelin voru
auðvitað líka fjögur, fest á skammelatréð (nr 19 á teikningu a). Voru
engir járnkengir í þeim og þau tengd mað grannri járnfesti. Þess
má að vísu geta, að þessar festar voru orðnar margar ónýtar, og voru notuð
bönd í staðinn. Engin skammel voru fest í fótatréð (nr 25 á teikningu).
Svona var alltaf bundið upp og aldrei breytt, þótt breyta ætti um
gerð vefnaðar. Gerð vefnaðar var einungis ákveðin með ídrættinum
p7
og hvernig stigið
var. Slagborðið var ekki fest að neðan, svo sem sýnt er á teikningunni.
Þrjár skorur voru gerðar ofan í kjálkana dálítið fyrir hafaldatréð.
Þar hékk slagborðið. Þegar búið var að færa, var það auðvitað
haft í fremstu skorunni, en fært aftar eftir því sem vefnaðurinn gekk fram,
en fært að nýju í fremstu skoru, þegar ný færa byrjaði. Þess
má geta, að hausinn á rifnum var mjög rammbyggilegur, enda reyndi mikið
á hann. Kross var á endanum, og var haldið um þær álmur þegar undið
var á rifinn. Innan við krosstréð var jarngjörð utan um hausinn,
en út úr gjörðinni stóðu gildir naglaendar með litlu millibili, en á hliðfjöl
vefstólsins var stilli úr járni og nam það við einn naglann og hélt þannig
rifnum föstum, þegar hert hafði verið á. Skeið: Skeið
var einnig nefnd ritti. Voru bæði nöfnin notuð, þó ekki jöfnum höndum.
T.d. var venjulega sagt að draga í skeið (ekki ritti), en aftur á
móti talað um svo og svo margra tanna ritti. Aldrei þekkti ég að
skeiðar væru heimasmíðaðar. Þær voru
p8
ætíð aðkeyptar úr
stáli. Fínleiki tanna var miðaður við hvað margar væru á kvarteli.
60 tanna ritti var það grófasta sem notað var, helst á tvöfaldan
þráð. Ekki man ég eftir fínna ritti en 120 tanna, og var það ekki
haft nema uppistaða væri vefjargarn. Val á skeið fór að sjálfsögðu
mest eftir því, hvernig uppistaðan var. Áferð var gróf, væri uppistaða
fín, en ritti gróft. Væri ritti fínt, en uppistaða gróf, t.d. tvinnaður
þráður, vildi rittið skafa ló úr uppistöðu. Við það veiktust þræðirnir
og vildu slitna. Fyrir kom, að slík ló vildi safnast á vefinn. Varð
þá að tína hana burt, annars gat jafnvel svo farið að lóarhólkar mynduðust
utan um þræðina, og gátu þeir átt þátt í því, að þræðirnir slitnuðu. Skeiðar
voru ætíð 5 kvartela langar. Skyttur: Skyttur voru
venjulega úr eik. Voru þær eir- eða látúnsslegnar á endum, einnig
eir- eða látúnsþynnur neðan á þeim um miðju, nokkru lengri en spólan, svo
að þær rynnu betur. Að sjálfsögðu var aflangt gat á miðju, þar sem
spólan var, en á stöku skyttum var þó botn þar í. Spóluteinninn hafði
ekkert nafn nema
p9
spóluteinn. Hann
var venjulega úr eir eða látuni. Tréspólur þekkti ég aldrei. Venjulega
voru spóluhólkar úr þunnri járnplötu. Eftir að aluminíumplötur fengust,
þóttu þær tilvaldar í spóluhólka. Stundum var spólað á spil. Ekki
þekkti ég að fiskroð væri notað. Spólurokkur: Ekki
var smíðaður sérstakur spólurokkur, heldur var spólað á spunarokk. Var
þá smíðaður sérstakur spólutittur. Var hann úr tré. Gekk annar endi
hans inn í rokkpípuna, en spóluhólknum smeygt upp á hinn. Var síðan rokkurinn
stiginn, og var bandinu stýrt á spóluna með annarri hendi, en í hinni hendinni
var höfð vala og stutt með henni framan við spóluendann, svo að spólutitturinn
dytti ekki fram úr pípunni. Vefturinn átti helst ekki að vera mjög
laus á spólunni. Venja var að spóla þannig að byrja fyrst að spóla
hnúða nálægt spóluendum og síðan á miðjuna, annars vildi hlaupa af spólunni,
en það mátti ekki koma fyrir.
p10
Spanstokkur: Áhaldið
sem haft var til að halda út jöðrum á voð, nefndist ætíð spanstokkur. Sjá
teikningu, sem fylgir með. Að leggja upp: Að ákveða
lengd voðar miðað við þráð var kallað að leggja upp. Venjulegasta
aðferðin var sú, að vigta þráðinn og ákveða síðan lengd voðar með tilliti
til þess, hve smár hann var. Völur voru að sjálfsögðu reiknaðar frá.
Var giskað á þyngd þreirra, en ekki man ég eftir, að nein ákveðin
tala valna væri í mörk. Að sjálfsögðu var mjög misjafnt, hversu mikið
mátti leggja upp úr mörk þráðar. Fór það bæði eftir stærð þráðar
og varpi voðar. Væri venjulegt vaðmál og uppistaða einfaldur þráður,
var oft miðað við mörk í alin. þó var talað um tveggja álna þráð,
væri varp ekki mikið og þráður fínn. Oft var hafður tvinnaður þráður
í utanyfirföt, er karlmenn gengu í að vetri til, þá dugði ekki mörk í alin,
og sama var að segja væri voð mjög vörpuð, t.d. þráðarvormeldúkur.
p11
Venjulega var höfð
sama aðferð við að leggja upp úr hespum sem hnyklum, þ.e. að vigta þráðinn.
Þó man ég einu sinni eftir hesputré sem mældi þráðinn. Ég hygg
þó, að slík hesputré hafi verið sjaldgæf sunnan lands, var þetta hið eina
er ég þekkti, var það norðlenskt að uppruna. Kona úr Ljósavatnshreppi var
eitt sinn á heimili foreldra minna, einkum til að spinna. Hún var
mjög fíntætt eins og hún sagði, að sumir norðlendingar nefndu að sem sunnlendingar
kalla að vera vel vinnandi, þ.e. hög á ullarvinnu. Hún þekkti slík
hesputré úr sinni heimbyggð og útvegaði foreldrum mínum eitt slíkt. Hesputréð
stóð á þremur fótum, sem báru uppi blökk, svipað og rokkur væri. Á
blökkinni stóð uppstandari, sem bar hesputréð. Er hesputrénu var
snúið, hreyfði það áfram tannhjól um eina tönn við hvern snúning. Í
tannhjólinu var 51 tönn, og er hjólið hafði snúist einn hring, hreyfði
það við litlu stilli. Var þá komin ein skreppa, þ.e. 51 umferð í
hverri skreppu, og var hver skreppa merkt með því að bregða bandi um. Hesputréð
var 2 álnir ummáls. Mátti þá vita með vissu, hversu langt var í hverri
hespu. Þurfti ekki annað en telja skreppur og margfalda með 51x2,
kom þá álnafjöldinn út. Þessi hesputré
p12
voru kölluð skrepputré.
En eins og fyrr var fram tekið voru slík hesputré ekki tíðkanleg,
var þetta hið eina sem ég vissi af í mínu byggðarlagi. Að
reikna í skeið: Venjulega var miðað við að draga í skeiðina alla,
það var út úr ritti, eins og það var kallað. Á gömlum skeiðum voru
2-3 ystu tennurnar þó stundum beyglaðar og voru þá, ef til vill hafðar
auðar. Þegar lokið var að rekja, var að sjálfsögðu þekkt hvað margt var
á. Síðan var deilt með tannafjölda skeiðar í þráðafjölda voðar, og
kom þá fram hvað margt skyldi vera í tönn. Að sjálfsögðu gekk ekki
alltaf upp í þeirri deilingu, og var það þá jafnað með því að hafa ekki
janmargt í öllum tönnum, t.d. 2 í annarri hverri tönn og 3 í hinni. Til
frekari jöfnunar mátti t.d. sleppa nokkrum ystu tönnunum, ef með þurfti.
Komið gat fyrir, að ekki yrði jafnmikið á voðinni allri og gert hafði
verið ráð fyrir, ef illa raktist úr eins og það var kallað. Gat það
orðið til þess, að þræðir yrði að vera gisnari en gert hafði
p13
verið ráð fyrir í
upphafi, voðin var varpminni en ráð hafði verið fyrir gert. Þó var
reynt að láta það ekki breytast mikið frá því sem ætlað hafði verið, og
þá stundum tekið til þess ráðs að hafa voðina heldur mjórri.
Að reikna í vef: Það var kallað að reikna í vef að ákveða efnismagn
í uppistöðu og fyrirvaf. Það var gert með vigtum, svo sem fyrr segir,
einkum þó uppistaðan. Auðveldara var að eiga við ívafið, þar mátti
spinna viðbót, er leið á vefinn, ef þörf gerðist. Varp var
haft um það hversu þéttir þræðir voru í voð. Væri þeir þéttir, var
kallað að voðin væri vörpuð eða varpmikil eða að varpið væri mikið. Væri
þræðir gisnir, hlóðst veftur meira í vefina. Þá var voðin veftuð.
Ívafið var venjulega kallað veftur, stundum fyrirvaf, sjaldnast ívaf. Helst
skiptist á um nöfn á ívafinu í vefnum sjálfum. En væri talað um það
áður en það kom í vefinn, var ætíð notað veftur. T.d. var alltaf
talað um að spinna veft, aldrei spinna fyrirvaf eða ívaf.
p14
Rakningsgrind hét
það sem uppistaðan var rakin á. Talað heyrði ég um rakningsgrind sem lá
á hliðinni, borin uppi af stólpum, sem til þess voru gerðir, en aldrei
sá ég þann útbúnað. Þær rakningsgrindur sem ég sá, stóðu upp á endann
er rakið var, gerðar af tré, tveir ferhyrningar sem mynduðu kross, en mátti
leggja saman. Trén sem skilhælarnir voru festir á, nefndust krísholt.
Voru tveir hælar í hvoru krísholti, ekki á miðju, heldur úr þeim
enda sem að enda uppistöðu vissi. Ætíð var þó bætt þriðja hæl í efra
krísholt hvert skifti er rakið var, svo að hælar voru þar raunverulega
þrír. Rakningsgrind var fest þannig upp: Þverslá var
sett upp milli stoða í baðstofu í um það bil seilingarhæð. Á miðju
hennar var lykkja úr leðri. Út úr miðju hvors enda rakningsgrindar gekk
stuttur tréás, hvor tæplega fets langur út úr grind. Gekk annar gegnum
leðurlykkjuna. Á gólfið var venjulega hvolft tóbaksfjöl, en á hana
var lögð hella. Neðri ásinn, sem hafði nagla í enda, lék á hellunni.
Rakningsgrind var til á flestum bæjum sem áttu vefstóla.
Væri rakningsgrind ekki til, fóru menn á aðra bæi til að fá að rekja.
p15
Balbínur: Balbínur
voru snældur, sem garn var spólað á, og var síðan rakið af þeim. Þær
voru ætíð 10 saman. Leggurinn var fyllilega þverhandar langur, báðir
snúðar jafnstórir og talsvert stærri en aftari snúður á rokksnældu. Þegar
rakið var af balbínum, var notaður rakningsstokkur. Það var langur
og grunnur kassi, hólfaður sundur, 5 hólfa langur, en 2 hólfa breiður,
en göt á milligerðum. Mátti stinga þar í járnteini, og runnu spólurnar
á honum. Að spóla garn á balbínur nefndist að balbína. Var
til þess notaður venjulegur spunarokkur, hnokkatréð tekið af teininum,
en balbínan sett í staðinn og rokkurinn síðan stiginn eins og við venjulegan
spuna. Aldrei var balbínað annað en vefjargarn. Þráður
var ætíð undinn í hnykla og þeir látnir velta í hólfunum 10 í rakningsstokknum.
Áður en balbínur komu, varð að vinda vefjargarnið í hnykla. Það
þótti seinlegt verk. Rakningsspaði: Sumir notuðu rakningsspaða,
en ég sá það aldrei gert. Hann var með handfangi, en göt á, jafnmörg og
þræðir í feta, þ.e. venjulega
p16
10. Hann mun
hafa verið um 25-30 cm. langur. Var hann hafður til að þræðir flæktust
ekki saman. Rakningsstokkur. Rakningsstokk hef ég áður
lýst. Var hann venjulega notaður þegar rakið var. Að öðrum
kosti varð að nota fötur og dalla til að láta hnykla velta í. Auðvitað
mátti ekki nema einn hnykill vera í hverju íláti. Rakning
á rakningsgrind: Áður hef ég lýst hvernig rakningsgrind var sett
upp. Einn vann að því að rekja. Börnum þótti rakning merkisviðburður.
Ef börn voru á heimilinu, voru þau jafnan nærstödd er rakið var og
fús að rétt hjálparhönd. Lengd voðar var mæld með því að marka fyrst
alin á borðsbrún, og síðan mælt það við. Þumalfingursbreidd lögð
fram yfir hverja alin. Síðan var merkt með því að binda í þráðinn
bandi af öðrum lit. Væri rakningsspaði notaður, var hafður aðeins
einn þráður
p17
í hverju gati og
aldrei var nema einn þráður i hverju hafaldi. Gott þótti að festa krók
upp í baðstofusperru og láta þræðina fyrst fara þangað til að allir yrðu
jafnstríðir og engar snurður. Ekki var þetta þó nærri alltaf gert.
Þegar rakning hófst, var byrjað á því að binda efra krísholt
fast, síðan bundinn einn þverhnútur á alla þræði fetans. Staðið var
þannig, að rakningsstokkur var til vinstri, en rakningsgrind til hægri.
Var því haldið vinstri hendi um þræðina, en grindinni ýtt áfram með
hinni hægri. Þannig var rakið utan á grindina niður á við hring eftir hring,
uns komið var að markinu í þræðinum. Þá var neðra krísholt sett í
og bundið fast. Brugðið var um hælana þannig, að fyrst var brugðið fyrir
neðan þann sem fyrr var komið að og síðan út fyrir hinn. Þ.e. fyrst
fyrir ofan hann og síðan niður fyrir, síðan fyrir ofan fyrri hælinn. Á
sama hátt var brugðið um hælana á efra krísholti. Band var haft á
neðra krísholti og brugðið milli eins og skreppu, er hundrað var komið.
Var venjulega notað sokkaband. Rakið var þannig, að fetinn
var látinn leggjast fyrir neðan það sem komið var, en ýtt upp að með þeirri
hendi sem var á grindinni (hægri hendi). Bandið
p18
sem bundið var til
að telja hundruðin, nefndist hundraðsband. Að lokum var bundið í
skilið að neðan og einnig ofan og skorið sundur utan á ysta hæl efra krísholts.
Fullrakin uppistaða nefndist slanga. Ekki nefndist
það neinu nafni að rekja slönguna niður, aðeins sagt að taka af grindinni.
Rakið var af grindinni ofan frá og niður eftir. Gengið var
þannig frá slöngunni, að fyrst var búin til lykkja, síðan brugðið hendi
gengum hana, tekið um slönguna og hún dregin tvöföld í gegn, og myndaðist
þá önnur lykkja, síðan dregið gegnum hana og þannig koll af kolli.
Ef voð átti að vera langröndótt (teinótt), var reynt að rekja teinana
með. Þó var þess varla kostur, ef voð átti að vera stórbekkjótt.
Þá varð að slíta frá og rekja hinn litinn sérstaklega. En ef
voru tiltölulega mjóir teinar, var þeim bætt við og voru þá fleirri þræðir
í þeim fetanum. Tveir fetar nefndust gangur. Oft var lagt
fram yfir í hverri voð um hálf alin, nokkuð þó misjafnt eftir því hve löng
voðin var. Rakið á veggjarhæla: Þá voru reknir hælar
í veggjarholur úti. Ekki voru hælarnir
p19
hafðir í beinni línu,
heldur alltaf annar ofar og annar neðar. Síðan varð að hlaupa með
hnykilinn, þ.e. það var rakið á einum, og varð því rakningsmaður að hlaupa
næstum sömu vegalengd og nam lengd alls þráðar í voðinni. Þetta varið
niður lagt löngu fyrir mína tíð, og ég hygg að þetta hafi naumast verið
gert í minni foreldra minna, en móðir mín þekkti, er hún var ung, gamlan
mann, sem hafði gert þetta. Sagði hann að rakið hefði verið úti og
kvaðst aldrei hafa rakið í svo köldu veðri, að ekki hefði hann verið sveittur
við rakninguna. Heyrt hef ég talað um, að rakið hafi verið
á rúmstólpa, en þekki ekki til, að það hafi verið gert. Hafaldagrind:
Höföld voru hnýtt með tvennum hætti. Stundum var hvert hafald
hnýtt út af fyrir sig. Slík höföld sá ég í vefstól, en aldrei sá
ég þau hnýtt, en ég held að þau hafi verið hnýtt á þessa leið: Notuð
var sérstök fjöl, hafaldafjöl sbr. teikningu. Var lengd hennar eins
og hálf hafaldslengd, dálítill naddur út úr hlið hennar rétt við annan
endann. Var hafaldagarninu brugðið á þann
p20
endann sem fjær var
naddinum, síðan hnýtt um naddin, þ.e. báðum megin við hann, og þannig myndað
augað. Síðan var farið sömu leið til baka með garnið og hnýtt saman
á þeim enda fjalarinnar, em byrjað var á, þ.e. þeim sem fjær var naddinum,
og síðan skorið frá. Var þá komið eitt hafald. Því var smeygt
fram af og síðan hnýtt hið næsta. Þannig var hvert hafald laust frá
öðru. Í vefstól voru allir hnútar á því skafti sem upp snéri. Hnúturinn
sem notaður var, var rifhnútur eða rembihnútur. Ég vandist
ekki svona hafaldahnýtingu, heldur að notuð væri hafaldagrind, sbr. teikningu.
Það var trégrind, að breidd eins og hafaldslengd skyldi vera, en
sívalur tréás eftir henni endilangri um miðju. Þá var ætíð notuð netnál.
Var hafaldagarnið rakið í hana. Síðan var endi garnsins festur
um aðra hliðarálmuna t.d. a., út við enda. Síðan var garninu brugðið
um hina álmuna b, og allt að miðspýtunni c. Síðan var settur hnútur
báðum megin við miðspýtuna, fyrst b megin, síðan c megin, þ.e. settur hesta
hnútur um þann teyming, sem fyrst hafði verið rakinn á leið frá a til b.
Með þessum hnútum, hvorum sínu megin við sívölu spýtuna, var hafaldsaguað
myndað. Síðan var netnálinni brugðið fyrir álmuna og síðan næsta
hafald hnýtt á sömu lund. Með þessum hætti voru
p21
öll höföld samföst.
Taka mátti þverspýtuna d úr og ná þannig höföldunum fram af.
Hafaldaþráður var unninn úr togi. Stundum var honum ekkert
gert nema vinda hann fast í hnykil. Stundum var hann undinn gegnum
ljós.
Stálhöföld þekkti
ég aldrei, en grannt netagarn var oft haft í höföld, er það fór að fást.
Það var sterkt, en hnútar harðir og óþjálir.
Ekkert nafn þekkti
ég á bandi því, sem haft var neðan á neðra skafti til að höföld færi ekki
út af. Þegar vefnaði var lokið vor hvert, var bundið um sköftin
efri og neðri og allt saman hengt upp á einhverjum góðum stað, þar sem
öruggt var, að ekki væri saggi, t.d. upp á loft. Þá voru höföldin
tilbúin á sínum sköftum næsta haust. Vefjarkambur: Kamburinn
var úr tré með tré tönnum að gildleika svipað og venjulegur blýantur, en
bil á milli þeirra rúmlega fingursbreidd. Lengdin var að sjálfsögðu miðuð
við lengd skeiðar, þ.e. 5 kvartel.
p22
Á kambinum var lok
og gróp eftir því endilöngu, sem tennurnar féllu í. Upp úr endum
kambsins, skammt fyrir utan tennur, gengu flatir tréfleinar og upp í gegnum
göt sem voru á lokinu, og mátti loka þar með fleygum, em reknir voru gegnum
fleinana. Þar að auki var bundið yfir kambinn áður en farið var að
bóma. Að láta í kamb: Verkið var kallað að láta í kambinn.
Það var unnið þannig, að kamburinn var opnaður og lagður þannig,
að tennur snéru upp, en slangan lögð yfir kambinn og reiknað út, hvað mikið
þyrfti að vera í hverri tönn. Aldrei var feta skift milli tveggja
tanna. Ekki var alltaf hægt að hafa jafnmikið í öllum tönnum, en
aldrei munaði það svo miklu að kæmi að sök. Skaftið sem sett var
í skilið (venjulega járnteinn), var ekki nefnt neinu nafni. Það féll
ofan í rauf sem var eftir rifnum endilöngum. Að festa upp:
Að setja til var það kallað að koma uppistöðu í vefstól og undirbúa
vefnaðinn sjálfann.
p23
Að bóma vef: Að
vinda slöngu upp á rif nefndist að bóma. Skaftið var sett ofan í
rauf, sem var á rifnum. Kragarnir voru settir á rifinn, og gengu
þeir upp á enda skaftsins. Kragarnir voru úr tré, en hólkur úr sléttu
járni utan um rifinn, um 10 cm. langur, og vafðist uppistaðan ofan á hann.
Til að bóma þurfti amk. 3 menn. Einn vatt upp á amk.
einn hélt í slönguna. Lá hún niður fyrir afturbómuna, síðan undir
vefstólinn og fram fyrir hann. Sá sem hélt í, sat þá á gólfinu flötum
beinum fyrir framan vefstólinn og spyrnti í fótatréð. Sá þriðji leit
eftir, að rétt yndist upp á, þræðir flæktust ekki í kambinum og verkið
væri yfirleitt rétt unnið. Þetta gerði venjulega vefarinn sjálfur.
Talað heyrði ég um, að sumir hefði ekki kraga, en léti sköft utan
á rifinn með nokkru millibili, en aldrei sá ég það gert. Sumir létu
uppistöðuna ganga að sér smátt og smátt. Það var kallað að hálsa.
Skilskaft var bundið við afturbómuna. Þegar búið var
að bóma, var slönguendinn látinn lafa niður, en skift í nokkra lokka, sem
snéru þá upp á sig hver um sig.
p24
Að draga í höföld:
Verkið var kallað að draga í höföld. Voru þá hafaldasköftin
bundin saman að neðan, þannig að snærið var krosslagt milli hverra skafta,
og lágu þau þess vegna ekki alveg fast saman. Venjulega unnu tveir
að því, annar rétti, en hinn dró í. Þó kom fyrir, ef mann vantaði,
að aðeins einn maður vann verkið. Alltaf var byrjað hægra megin í
vefstólnum (miðað við að sitja í setubekk). Var þá venja að telja
25 höföld á fremsta skafti, en taka ótalið af hinum og halda öllu í greip
vinstri handar. Þá var hægt að fylgjast með, hvenær 100 var komið.
Sumir notuðu krækju og stungu henni gegnum auga hafaldsins, en aðrir
brugðu með fingrunum. Ef enginn rétti, varð ekki notuð krækja. Ég
man, að ég dró eitt sinn dálítið í einn, af því að mann vantaði til að
rétta. Vann ég verkið þannig, að auk þess sem ég hélt höföldunum
í vinstri hendi, hélt ég fetanum milli löngutangar og baugfingurs. Gat
ég það notað þumalfingur og vísifingur beggja handa til að bregða þræðinum
gegnum hafaldsaugað. En þetta var auðvitað ekki fljótlegt. Ef
salún var eða bekki, var hver bekkur hnýttur fyrir sig, annars 100. Hnýttur
var einn þverhnútur (lykkjuhnútur).
p25
Að draga í skeið:
Notuð var krækja. Oft var notuð eir- eða járnplata sem krókur
hafði verið gerður á. Stundum var þó hafður járnkrókur úr mjóum vír
og skeftur. Tveir unnu að því að draga í skeið. Vanan mann þurti
til að rétta, en óvanur maður gat dregið í. Slagborðið var á bundið
við frambómuna, en sá sem dró í, sat í setubekknum. Helsti vandinn
var að hlaupa ekki yfir tönn, en á því var varla hætt, nema skeið væri
mjög smátennt. Þegar dálítið var komið, var því skift í tvennt og
hnýttur lykkjuhnútur. Að hnýta fram: Járnteinn var
notaður, framhnýtingarteinn. Verkið kallaðist að hnýta fram. Fjöldi
þráða í hnút var ekki fast ákveðinn, en betra þótti að hafa hnútana ekki
mjög stóra. Eitt hundrað var því í þó nokkra hnúta. Þremur
sterkum snærum var vafið um rifinn og þau bundin í framhnýtingarteininn.
Var ekki hægt að taka þau burt fyrr en svo mikið hafði verið ofið,
að komið var meira en eitt vaf á rifinn. Gróp var eftir endilöngum
rifnum, og skyldi teinninn liggja í því.
p26
Mig minnir að stundum
hafi það verið gert, er nokkur vöf af voðinni voru kominn á rifinn, að
framhnýtingarteinninn var tekinn úr. Hnútarnir klipptir burt og síðan
undið upp á rifinn aftur. Var þá endinn á voðinni látinn leggjast
ofan í raufina á rifnum og teinninn lagður þar ofan á. Þetta var gert til
þess að hnútarnir skemmdu ekki voðina, en það hefði getað komið fyrir,
ef hnútarnir voru harðir og harðstrengt á vefnum. Uppbinding:
Keðjur grannar voru upphaflega notaðar í vefstól þeim er ég vandist
við. Þær gengu síðar úr sér, og voru sett snæri í staðinn. Járnkengir
voru í skammelum, og var bundið í þá upp í þverskammelin, sem voru fest
í hliðarfjöl vefstólsins vinstra megin. Úr þeim gengu önnur bönd
upp í hafaldasköftin. Tengt var þannig að það skammel, sem var lengst
til hægri, var í sambandi við fremsta skaft og síðan áfram í röð. Uppbindingu
ar aldrei breytt, hvernig sem ofið var. Það var allt ákveðið með
því að draga í og stíga á mismunandi hátt.
p27
Að draga fyrir: Byrjað
var að vefa í skörðin, þ.e. glufurnar í uppistöðu vegna hnútanna. Til
þess var oft notað grófara band. Að skjóta skyttunni um skilið var
helst kallað að draga fyrir. Ein umferð, t.d. einu sinni frá hægri
til vinstri,var kölluð einn fyrirdráttur. Alltaf var byrjað að skjóta
skyttu frá hægri, og þar var endað hvert skifti sem hætt var. Skaftvaf
var það sem ofið var frá því að staðið var á ákveðnum skammelum, og þar
til staðið var á þeim aftur. Í einskeftu voru t.d. aðeins tveir fyrirdrættir,
eitt skaftvaf. Þegar hófst að vefa það, var staðið hægra fæti á 2
hægri skammelum og 2 fremri sköftin voru niðri. Síðan var skotið hægri
hendi til vinstri, og 2 vinstri skammelin, og þar með aftari sköftin voru
stigin niður. Þegar skyttunni hafði aftur verið skotið til baka,
stigið og slegið, var aftur staðið hægra fæti á hægri skammelunum tveimur.
Var þá skaftvafinu lokið. Væri ofið vaðmál, voru 4 fyrirdrættir
í skaftvafi, þ.e. frá því að staðið var á ystu sköftunum, og þar til staðið
var á þeim aftur. Föst regla var, að þegar vinstri hönd tók á móti
skyttunni, skyldi stigið vinstra fæti og gagnstætt.
p28
Gefið var þannig
í, að þegar skyttu hafði verið skotið, var fingrum þeirrar handar, sem
þá var laus, smeygt niður milli þráðanna um miðju og fyrirvafinu ýtt fram,
mikið eða lítið eftir því hversu mikið skyldi gefa í. Ef vefnaður
var sérstaklega vandaður var gefið í á 2 stöðum. Ef mikið var gefið
í, var kallað að væri veftað. Sláttur var mjög misjafn, eftir
því hversu mikið skyldi slá. Oft dugði eitt högg. Þá þótti
betra að leggja veftinn að, áður en lokið var að stíga. Síðan var
lausu hendinni gripið um mitt slagborðið og slegið létt högg eða fast eftir
því hvað skyldi slá. Stundum voru slegin 2 högg. Sumir tóku jafnvel
báðum höndum um slagborðið og héldu þá skyttunni í annarri.
Spanstokkur var hafður til að halda út voðinni, ef hún vildi ganga saman.
Spanstokk skyldi færa oft, þó aldrei alveg á fremstu brún voðar.
Einkum átti að færa spanstokk oft, ef voð vildi ganga saman.
Margt gat komið fram í vefnaði sem lagfæra þurfti. Mjög gat verið
tafsamt ef þræðir í uppistöðu vildu slitna. Var ætíð hafður við hendina
lítill hnykill af samskonar efni og var í uppistöðu
p29
til að bæta. Þessi
hnykill var kallaður þráðarbót. Stundum var skil ekki hreint. Komið
gat fyrir að þræðir beggja hafalda gengu ekki jafnlangt niður. Mynduðust
þá 2 skil. Gat þá komið fyrir, að skytta lenti í röngu skili. Kom
þá rangvefja. Hún kom að sjálfsögðu einnig væri rangt stigið. Þótti
það mikill galli í voð. Mjög þótti illt, ef voðin gekk meira fram
öðru megin, skekktist fyrir, eins og það var kallað. Helsta ráðið
var að hafa spanstokkinn skakkann, þ.e. framar þeim megin, sem meir gekk
fram, og gefa skakkt í, þ.e. meira þeim megin sem meir gekk fram.
Þá kom fyrir, að hafaldasköftin gengu ekki jafnmikið niður í báða
enda, er þau voru stigin niður. þá var sagt sköftunum steypir. Þá
varð skilið auðvitað lítið þeim megin,sem minna gekk niður. Helsta
ráðið var að taka í sköftin og rétta þau við. Þetta var tafsamt,
en oft mátti laga gallann á þann hátt. Ef voð var ljós og fín, breiddu
menn oft klút á frambómu eða höfðu sérstaka hlífðarsvuntu.
Sjálfsagt þótti að hafa mæliþráð álnar langan til að fylgjast með hvað
ofið væri. Var hann látinn vera í voðinni, venjulega ekki allfjarri
jaðri hægra megin.
p30
Færa nefndist það
sem voð var færð áfram í einu, og það var kallað færa. Hér
má nefna eitt orð, sem stundum var notað, en sumum þótti orðleysa. Það
er orðið vefaður, (nafnorð, karlkyns). Það þýddi svipað og vefur.
Helst man ég eftir að þetta væri notað, ef segja þurfti, að einhver hlutur
lægi á vefnum. Dæmi: Vettlingarnir liggja á vefaðinum. Voru
þeir þá á vefnum einhversstaðar milli frambómu og afturbómu.
Að fella vef: Að ljúka vef var kallað að fella vef eða fella voð.
Þráðarendar, sem gengu af, nefndust afvikur og voru notaðar í nálþráð.
Auðvitað varð síðast að setja snæri um afturrifinn (vefjarsnærin) og binda
í teininn. Þau voru þrjú. Það var kallað að setja snærin í
eða að snæra. Að sjálfsögðu varð skilið illt þegar teinninn var kominn
fram undir höföld og voðin afur undir höföld. Bæta mátti úr í bili
með því að hafa slakt á, en ekki þótti hyggilegt að nýta svo vel út, að
afvikurnar yrðu mjög stuttar, þá voru þær ónýtar, annars þótti gott að
sauma með þeim eða bæta.
p31
Mjög var misjafnt
hve gott var að stíga niður. Var sagt að það stigist vel eða illa.
Væri mjög strítt á, steigst verr. Þóf: Þvælið
var hitað í stórum potti upp undir suðu. Síðan var hellt á voðina
í bala. Síðan var hún undin. Það var gert þannig, að hún var
lögð tvöföld, sköftum brugðið í lykkjurnar á báðum endum og síðan snúið
á. Aðeins karlmenn þæfðu, stundum heimamenn, en stundum voru fengnir
menn til þess. Tunnuþóf þekkti ég ekki, var alltaf þæft undir fótunum,
á hurð, úti í fjósbás. Ætíð voru menn á nærklæðum einum. Þangað
var mönnum færður matur og drykkur, því að ekki mátti víkja af þæfunni.
Voð í þófi var kölluð þæfa. Voðin var höfð í hrúgu, og svo
veltu menn henni undir fótum sér og spörkuðu á henni. Þó hef ég heyrt
getið um eitt dæmi, þar sem þæft var þannig, að voðin var brotin margföld
og síðan hoppað á henni. Hafði þófnað þannig ótrúlega vel. Voðin
var hrist upp einu sinni eða tvisar. Tóku 2 hana milli sín, höfðu
nokkra faðma milli sín í einu, héldu í brúnirnar
p32
og kipptu síðan snögg
í, auðvitað báðir í senn. Þá þæfðist betur. Þetta var líka
kallað að kippa. Ætíð var gefinn þófarabiti. Var það
oft smurð kaka með vænni kæfusneið eða eitthvert annað slíkt góðgæti. Svipaðan
bita fékk vefarinn oft, er hann hafði fellt voð, og nefndist hann vefjarbiti.
Oftast var voðin að loknu þófi undin upp á rúmfjöl og látin þorna
þar. Nauðslynleg þótti að vinda hana fast. Var það gert þannig,
að fyrst var voðin undin upp á rúmfjöl stundarfast, eftir því sem unnt
var. Síðan var undið upp á aðra fjöl ofan af henni. Gerðu það
2 menn. Hélt hvor á sinni fjöl og toguðust á. Með þessum hætti
tókst að vinda voðina fast. Þekkt er þófaraþulan. Ég
lærði hana þannig: Bárður minn á Jökli - leggstu á þófið mitt - ég
skal gefa þér lóna - leppana í skóna - þegar ég kann að prjóna - naglabrot
í bátinn þinn - hálfskeifu undir hestinn þinn -
p33
mórautt lamb og gimburskel
- og meira ef þú þæfir vel. Þegar voðin var þornuð í stranganum,
var hún undin niður og brotin saman í rúmslengd, og látin undir undirsæng
í rúmi og dúkur eða eitthvert stykki lagt undir og ofan á. Þar pressaðist
hún. Ekki man ég eftir því, að voðir væri sendar til lóskurðar
og litunar, en stöku sinnum til þæfingar og pressunar. Þetta gat
verið gott, en gafst þó ekki ætíð vel. Einu sinni man ég að voð sem
þannig var send, var þæfð allt of mikið, varð svo mikill bálkur, að varð
að eyðileggja hana.
p34
Um spanstokk og skyttu:
Um eða skömmu eftir 1920 fór Loftur Bjarnason, móðurbróðir minn,
í skóg ásamt Sigurði Bjarnasyni, og voru þeir báðir heimilismenn hjá foreldrum
mínum, sem bjuggu þá að Skarði í Eystrihreppi. Fóru þeir í Ásólfsstaðaskóg
og voru þar um kveld langt inni í skógi að skógarhöggi og klyfjabandi.
Komu að þeim nautgripir, og meðal þeirra var bolatappur einn, er
lét allófriðlega. Fór Loftur að reka hann burt og rak hann alllangt
inn úr. Fór tuddi þar fram af bakka og niður moldar- og vikurskriðu.
Sér Loftur þá, að eitthvað liggur í skriðunni. Fór hann að gæta að.
Var það þá spanstokkur úr maghony, látúnsbúinn, vel smíðaður, en
sýnilega dálítið notaður. Þetta var langt frá öllum mannavegum, en
þó virtist spanstokkurinn vera þar nýkominn. Var hann óveðraður og
lítt eða ekki fallið á látúnið. Hvernig hann var þanbað kominn virðist
lítt skýranlegt. Hann var síðan notaður á heimili foreldra minna.
Hann er af þeirri gerð, sem sýnd er á teikningu þeirri er fylgir
skýrslunni, neðri teikningin. Fyrir allmörgum árum átti nágranni
minn einn, Jón Einarsson leið um svonefndan Gyldurhaga (í Landnámu heitir
hann Gyldarhagi). Gyldurhaginn er gilgljufur, sumsstaðar vítt með
fallegum grasbrekkum og hvömmum, en sumsstaðar þröngt og á einum stað svo,
að lítið er meira en vegarbreidd. Skammt þar fyrir innan liggur vegurinn
undir kletti, svo nálægt að maður á hestbaki getur næstum tekið hendi í
klettinn. Eitt sinn er Jón fór um Gyldurhagann og reið undir klettinum,
sá hann, að þar lá á syllu einni vefjarskytta, dálítið slitin, en vel smíðuð.
Jón hafði skyttuna með sér. Enginn kannaðist við hana. Var
hún síðan notuð við vefnað og er sennilega til enn.
Nr. 1238
p1
Ull og tóvinna 3.
Það hefur í rauninni enga þýðingu fyrir mig að fara að fást við
þessa skrá, því um vefnað veit ég ekkert. Lengi var regla
á sveitaheimilum að vinna ull eingöngu heima, það sem heimilisfólkið þurfti
til fata og rúmfatnaðar. Var þetta lengi nær allt úr ull. Þetta
var þá ofið þar til prjónles er uppfundið og ryður sér til rúms. Eftir
það tíðkast þetta tvennt jöfnum höndum. Eftir að ég fer að muna,
er oft hafður tvistur í uppistöðu, en það þær stutt. Vefnaður
mun hafa hafist svo fljótt sem haustannir minnkuðu, svo að það væru tiltök.
Allataf mun það, hvað fyrir var látið sitja að hverju sinni, verið háð
þörfum og getu hvers einstaklings um sig, eða öllu heldur heimilis.
Karlmenn ófu sem oftast, en til mun einnig hafa verið að konur ófu.
Væri enginn vanur maður til, var einhver sá sem líklegastur þótti látinn
byrja á því. Til var að einstaklingar ófu heima hjá sér fyrir aðra,
en ekki títt. Hversu lengi maðurinn var að, mun mest hafa verið því
háð, hvort ann þurfti að sinna öðrum störfum eða ekki. Þar sem ég þekkti
var það oftast húsbóndinn sem óf, en ekki var það nein undantekningarlaus
regla. Til var að heimamenn skiftust einhvern veginn á um það, eftir
því sem hvor eða hver hafði tóm til frá öðrum störfum.
p2
Ræður því af líkum
að engin regla gat orðið undantekningarlaus um tímalengd og tilhögum í
vefstólinn. Sæti maður í vefstól allan daginn, heyrðist mér
það þykja lítið, ef hann náði ekki að vefa 20 álnir, en oft mun hafa verið
ofið miklu meira á dag, líka minna. Á meðan vefstólar voru
stórir og þungir, og allt miðað við alm. voðir, segir sig sjálft, að til
hefur þurft fullorðið fólka að vefa. Unglingar tóku áður mun síðar
út þroska, en nú gjörist, og yfirleitt var heldur sú stefna ríkjandi að
láta ekki unglinga fara að glingra við vandasöm störf, fyrr en þeir höfðu
þroska til að leysa þau vel af hendi með sómasamlegum afköstum.
Ekki er mér kunnugt um ákveðið greiðsluform fyrir vefnað, en hygg
að beinar greiðslur hafi miðast við álnatal. Svo er alkunnugt frá
eldri tíð, að greiðslur voru óákveðnar, en hver gjörði öðrum greiða, eftir
því sem efni og föng stóðu til, og varð það furðu sjaldan að misklíð, svo
skiftin jöfnuðust furðu þægilega. Aðeins heyrði ég í daglegu
máli nefndan vefstól. Kljásteinavefstóllin var í minni tíð ekki nefndur
nema sem fornaldar fyrirbæri, og engar sagnir heyrði ég um hans tilveru
öðruvísi en það. Aldrei sá ág eða
p3
hafði spurn af neinu
sem honum var tengt. Hygg ég hinn "nýja" gafa rutt
sér ört til rúms eftir að Skúli kom með hann, og þó hann hefði ekkert annað
gjört fyrir þjóð sína, en það, ætti það að hafa dugað nafni hans til langlífis.
Um smíði vefstóla veit ég lítið. Á Bóndastöðum, en
þar var ég í 7 ár, var þá þar nýlega smíðaður vefstóll, eftir Karl Magnússon,
sem var bróðir húsbóndans, nýlega lærður trésmíður af Akureyri. Þessi
vefstóll var sá fyrirferðarminnsti og hagkvæmasti sem ég sá, þar til vefstóllin
sem Björn Helgason útvegaði ÞJMS nú í ársbyrjun 1966. Allir aðrir
voru mun fyrirferðameiri að ofan, en hagrænt var, og líka stærri um sig.
Þessi stóll var notaður árlega fram um 1920 eða svo lengi sem ég
fylgdist þar með. Hvorki þekkti ég tvíbreiðan vefstól eða önnur slík
afbrigði. Ég veit ekki í hverju hraðskyttuútbúnaður var fólginn.
Mörg heimili áttu vefstól, en þau sem ekki áttu þá, urðu
auðvitað að bjargast á góðu samkomulagi við náungann og hjálpsemi hans.
Bæði gat komið til greina að fá vefstól að láni, en allra hluta vegna
held ég fremur hafi vefnum verið komið fyrir hjá einhverjum,sem gat og
vildi vefa hann. Vefstólar voru örðurgir í flutningi, fyrirhöfn
p4
ærin að taka þá sundur
og setja upp aftur. Rúmfrekir þar sem þröngt var. Bóndastaðavefstóllinn
líktist mest B, en þó með frávikum. Þeirra mest var að skeiðarhaldið
hreyfðist á þolinmóði að neðan í hliðarstykkjunum. Setubekkurinn hékk í
krókum, ofl. smávegis bar þeim á milli. Vefjarskeið þekkti
ég aðeins með því nafni, heyrði aðeins nefnt ritti. Þær sem ég sá voru
aðeins með stáltönnum, og ógjörlegt að vita fyrir víst, hvort þær voru
smíðaðar hérlendis. Hygg þær þó fremur útlendar verið hafa. Ekki
sá ég þær nema af einni lengd, grófleiki þeirra var talinn tölum, en við
hvaða lengdarmál þær miðust, veit ég ógjörla (60 tanna skeið, 80 tanna,
og mig minnir að heyra nefndar bæði 40 og 100 tanna skeiðar, en sá aðeins
það algengasta, sem mig minnir aðværi um 70). Ekkert veit ég um skeiða
smíði. Af efni í tennur kæmi einkum til greina hvalskíði og látun,
en harðviður í kjálka. Þær skyttur sem ég sá, voru helst
úr birki, sem er létt og slétt og þægilegt að vinna. Neðan í þeim
voru látúnsteinar, sem slegnir voru flatir, þunnir og fjaðurmagnaðir (skíðin),
svo þær rinnu léttar. Spóluteinninn var úr
p5
járni, stundum látúnsvír,
fyrir endana voru lagðar hlífar umhverfis oddana úr látúni eða eir, og
slípaðar vandlega, svo hvergi væri arða sem festist í þræði. Í auga
skyttunnar var oftast hafður hringur, sem sagaður var af stút á meðalaglasi,
því glerið var varanlegasta efni til þess að þráðurinn skæri það ekki,
en ella festist hann í skorum. Spólur voru oftast renndar
eða tálgaðar úr tré, þó sá ég spólur með málmlegg, en snúðum úr horni.
Ég þekkti ekki annað en spólur til þessarra nota, en hólkar úr öðru
efni hefðu getað komið í þeirra stað. Áríðandi þótti svo vel rektist
af spólunni, að spóla rétt á hana, þ.e. að spóla fyrst hnúða yst við snúðana,
en fylla síðan á milli og mátti þá spólan verða nokkuð full, án þess að
sakaði. Spólurokkur nefndist það sem spólað var á, oftast
var það aflagður spunarokkur, sem notaður var til þess, með sérstökum teini
í stað snældukerfis. Jafnvel var þá til að sami rokkur gæti gilt
líka fyrir balbínurokk, en þá þurfti teinninn að vera langur. Líka
var til, að nota venjulegan rokk til að spóla á, var þá rekin spýta í pípuna
að framan, löguð vel fram, og spólunni smeygt þar á, og haldið með vísifingurs
gómi við enda spólunnar á meðan spólað var. Börn og unglinar voru
látin spóla.
p6
Til þess að halda
voðinni í sundur framan við skilið var notað áhald, sem stundum var kallað
"sprauða" en oftar spanstokkur. (sjá kort á bakhlið). Spanstokkurinn
var 2 stykki, klauf var í annað stykkið, sem myndaðist við það að söguð
var úr því miðjan, nema stuttum spaða til endans, sem þynnstur var í endann
út í egg, og þar voru reknir upp í hann látúnsoddur nokkur. Af hinu
stykkinu voru sagaðir jaðarnir, nema í endann, þar sem skilinn var eftir
annar spaði jafnlangur hinum, og bryddur á sama hátt. Tindurinn í
öðrum hlutanum gekk svo eftir miðhlutanum í hinum (klaufinni). Boruð
voru göt þvert í gegnum báða hlutana með jöfnu millibili, og þar var rennt
í gegnum einum nagla, sem lengdi eða stytti spanstokkinn, eftir því sem
stykkin voru dregin sundur eða saman. Loks var ofan á miðtindinum
lítill snerill, sem hélt niðri kjálkunum á hinu stykkinu. Ég held
að þetta stykki hafi stundum verið nefnt þana eða þön. Kallað var
að setja upp vef, en útreikningur á þráðafjölda og lengd slöngu, að leggja
upp. Þá var stuðst við tölu hespanna, en þær voru með vissri tölu
knekka (skreppa), og þar höfðu þær vissa lengd.
p7
Væri lagt upp eftir
vef, voru völurnar auðvitað dregnar frá, en þar sem ég þekkti var lagt
upp eftir lengd. Lóðaverk heyrði ég nefnt, en kann ekkert að segja
frá því. Næst var lagt í kamb. Hliðin var tekin úr
kambinum, hann bundinn með tindana upp á vefstólinn fyrir framan höföldin
og slöngunni dreyft þar á milli tannanna, eftir vissri tölu. Síðan
var endi slöngunnar svo dreyfður, festur við rifinn, og tekið að vinda
upp á hann, eftir að kambinum hafði verið lokað, hélt hann þá eðlilega
áfram að greiða slönguna í ákveðinni dreyf á rifinn. Þá þurfti að
halda í slönguna á meðan undið var og sá ég oft gjöra það eldri konur.
Var slangan þá leyst úr lykkju brögðunum, sem hún hafði verið hnýtt
í, þegar búið var að rekja, jafnótt og undið var á rifinn.
Næst var komið fyrir skilsköftum tveim, rétt framan við afturslána á stólnum
(bakbómuna), endi slöngunnar greiddur, deildur og talinn vandlega niður
á sköftin í "göngum", minnir mig að væru 5 þræðir í gangi. Hver
gangur var svo lagður ofan á annað skaftið, en neðan á hitt, næsti neðan
á aftara skaftið, en ofan á hitt,
p8
og þannig myndað
skil á sköftunum. Næst voru höföldin sett upp, og þá kom að því að draga
í þau Settist þá vefarinn fyrir framan þau í vefstólinn, en
einhver meðhjálpari aftan við þau. Vefarinn hafði í hendi lítinn
vírkrók, sem hann renndi í gegnum hvert auga, en sá sem átti að rétta í
höföldin lagði ákveðinn þráð í krókinn, sem þá var kippt í gegn. Aðstoðin
hélt hverjum gangi í vinstri hendi, en rétti með hinni þræðina eftir vissri
röð, og var því ekki þakksamlega tekið, ef röðin ruglaðist eitthvað, því
það sem ekki var alveg rétt, varð að draga úr og leiðrétta. Veit
ég að mörgum unglingi þótti fátt leiðinlegra en "rétta í höföld".
Þegar búið var að draga í höföldin, en á hvert hundrað var hnýtt
fyrir framan þau, kom að því að draga í skeiðina, en þá þurfti enn að reikna
hve marga þræði ætti að draga í hverja tönn. Til þess var notaður krókur
sem kallaðist gikkur. Hann var næfurþunnur að framan, til þess að
ganga á milli tanna í skeiðinni, oft úr hvalskíði eða góðri spýtu. Að
þessu loknu var tekið sívallt skaft út úr rauf á voðar rifnum og tengt
í enda slöngunnar, en það síðan tengt við rifinn með einum 5 snærispottum,
sem
p9
undnir voru á rifinn.
Þá kom loksins sú stóra stund að vefarinn gat sest í vefstólinn,
tekið fyrsta skilið og sent eftir því skyttuna með fyrsta þráðinn (dregið
fyrir). Snærin voru undin upp á rifinn, þar til skaftið kom að honum,
þá voru snærin leyst úr, skaftinu rennt í sína rauf, og brugðið rúmum vafningi
af voðinni yfir það, og þá loksins var búið að "setja upp vefinn".
Ég þekkti ekki annað nafn á uppistöðu en ívaf og fyrirvaf algengt,
þó hið fyrra tíðara. Rakgrind hét það áhald, sem vefur var
rakinn á. Sá ég aðeins eina gerð þeirra, sem í miðju var smellt saman
í gróp, svo leggja mátti grindina saman, flata í flutningi. Mig minnir
að eftir henni miðri og endilangri gengi sívallt skaft, sem þá myndaði
um leið þá endastúfa, sem hún snérist á og um. Klossi með hæfilegri
holu fylgdi henni laus, til að festast í loftið þar sem rekja skyldi, og
annar í gólfið, sem gat þurft að hlaða undir, vo bilið yrði mátulegt. Rakgrindur
voru ekki nærri jafnmargar vefstólum, sem eðlilegt er, því það tók aðeins
stund úr degi að rekja. Þegar rakgrindin var komin á staðinn, voru balbínurnar
settar í sinn stól og byrjað að rekja.
p10
Um rakgrindina er
til þessi gáta: Í sporinu snýst hún svo lipurt og létt - litfögrum
böndum hún vefur sig þétt - hún er svo afbragðsvel útlimagrönn - átthyrnd,
höfuðlaus, bein eins og hvönn. Balbínustóllinn var grind, sem balínurnar
voru festar í, í 2 röðum, þannig að teini var rennt í gegnum hverja, í
rauninni aðeins stór snældustóll. Grindin var svo reist upp og skorðuð
þar sem haganlegast lá fyrir rakrindinni. Tala balbínanna mun hafa
verið eitthvað misjöfn. Fyrsta umferðin á rakgrindinni ákvað lengd slöngunnar,
en svo var haldið áfram, umferð eftir umferð af öllum balbínunum, þar til
slangan hafði fengið þá þykkt (þráðafjölda), sem ætlað var. Balbínurokkur
líktist nokkuð skotrokk, nema að hann varð auðvitað að hafa langan tein
með trissu á, í stað snældukerfis. Verkið nefnist að balbína.
Rakningsspaða veit ég ekkert um, og sá aldrei. Sá aldrei rakið
nema af balbínum. Sennilegt þykir mér að fyrsti þráður hafi
verið mældur og merktur að lengd, á rakgrindina, en veit það ekki. Skilið
held ég aðeins hafi verið myndað í
p11
vefstólnum, eins
og ég þegar hef lýst. Skil á grindinni man ég engin, nema að hnýtt
væri á milli umferða á einum stað, líkt og knekk í hespu, og er þetta þó
óljóst. Vafalaust hefur verið rakið aðeins annarsvegar við fetann.
Annað hefði orsakað mislengd í slöngunni. Fullrakin uppistaða á grind,
nefndist slanga, þegar hún var rakin ofan af grindinni, þá var henni brugðið
í hálf hnýttar lykkjur, svo minna færi fyrir henni. Reynt fólk hefur
farið nærri um hvað slangan styttist við það að vefast í voð.
Hafaldagrind nefnist það sem höföld voru búin til á, hnýtt. Efnið
var rakið á spjald, sem gaf í hverjum hring mátulega langan spotta í eitt
hafald, en þegar búið var að vefja á það, var skorið sundur á annari röðinni.
Þó munu spottarnir stundum hafa verið tveir (í hálft hvor), og minnir
mig það vera svo, það eina skifti sem ég hnýtt höföld. Tveir
menn sátu hvor á móti öðrum og hnýtti sína hliðina hvor, en grindina höfðu
þeir á milli sín. Miðju beggja enda var brugðið saman, annar hnýtti
þá augað um sívalninginn með réttum hnút, síðan annan réttan utan við hliðarskaftið,
og mig minnir þrælahnút utan við spottann. Hinn hnýtti aðeins tvo
p12
hnúta á sama hátt.
Réttur hnútur er sá, sem kemur út eins og reipahnútur, gagnstætt
rembihnút, þar sem yfirbragðið er hnýtt til annarrar handar, heldur ver,
en herðist meira. Til voru á síðari tímum stálaugu í höföld, þau
sá ég aldrei. Ég þekki ekki til að unninn væri hafaldaþráður, en
vafalaust mun hann hafa verið úr togi. Vefjarkambur er einfalt
áhald að smíði. Hann var nógu langur til þess að ná yfir vefstólinn,
svo hægt væri að binda hann í hliðarstykkin á meðan verið var að vinda
upp á slöngurifinn. Í aðra hlið hans voru settir fastir, með vissu
millibili, tindar úr góðum viði t.d. brúnspæni. Í enda þeirrar liðar
voru settir fastir endabútarnir, sem mynduðu gaflana, en á hinum enda voru
þeir stallaðir við hina hliðina, og þar gengu eyrum á þeim í gegnum, sem
svo var einum trénagla smeygt í gegnum hvort, þegar kamburinnv ar lokaður.
Lausa hliðin var svo tekin úr þegar lagt var í kambinn. Í henni
var aftur nót, sem fól vel oddana á tindunum. Þegar það var búið,
var kambinum lokað aftur, og undið í gegnum hann lokaðan, þar til slangan
var komin á rifinn og þjónustu hans lokið að því sinni.
p13
Vefarinn sendi skyttuna
með einu snöggu bragði í gegnum skilið, en tók við henni með hinni hendi,
greip þá einum fingri í gegnum uppistöðuna undir ívafið, og ýtti því frá
sér í boga (gaf uppí), til þess að voðin herptist minna saman. Steig
hann þá í sama vetfangi skilið á, og sló skeiðinni að, fleygði skeiðarhaldinni
frá sér og sendi skyttuna aftur osfrv. Festi varla augu á þessm hreyfingum
góðra vefara. Spanstokkurinn var dreginn sundur í þá lengd, sem breidd
voðar átti að vera, stilltur eftir götum og naglanum rennt í þau, svo lengdin
var föst. Þegar svo var búið að vefa dálitla pjötlu var spanstokkurinn
settur í, oddunum var þrýst ofan í jaðra dúksins, en þá bognaði áhaldið
um naglann, síðan var þrýst ofan á kryppuna þar til stokkurinn var beinn,
snerlinum snúið út yfir jaðrana, og sat þá þönfin föst í réttri breidd.
Þegar lokið var að vefa, var voðin felld. Endarnir sem
af gengu nefndust "krummabrækur". Undir þóf var vaðmálið
þvegið og þvælt í stóru íláti, úr heitu þvæli með nógu þvottaefni í, sem
oftast mun, lengi fram eftir hafa verið að mestu keyta. Helst var
undið úr voðinni í útidyrum með því að bregða þar í voðina
p14
sterku kefli, t.d.
broddstaf, og setja hann fastan innan við stafina, en bregða öðrum slíkum
í voðina fleirfalda, og vinda með því spankefli úti á hlaðinu. Þetta
var kröftug vinding. Var svo þetta fært eftir þörfum, en hinn undni
endi lagður ofan í bala og tekið þegar að þæfa, þegar lokið var að þvæla
og vinda. Venjulega var voðin þæfð í baðstofu, eftir að ég
man, en getið heyrði ég þess, að þæft hefði verið í fjósi. Þá heyrði
ég að stundum hefði verið byrjað að þæfa í bala, áður en undið var (nefnt
votaþóf), en undið síðan og þæft að venju undir fótum. Venja
mun verið hafa lengi, að menn klæddu sig úr ytri buxum og þæfðu berfættir,
enda svo ósleyti hreyft sig, að menn héldu á sér hita. Tróð maður
þar af allri orku í erg og gríð, færði með fótunum inn það sem tróðst út
úr hrúgunni og reyndi að velta vaðmálinu svo vel til sem hægt var, svo
jafn þófnaði. Hjá vönum mönnum var þófið ekki oft skoðað, nema til
að fylgjast eð hvenær nóg væri þæft. Hyllst var til að þófarinn hefði
handfestu, helst í fleirri en eina átt, t.d. í skoti aftan við rúmsenda.
Tíðkast mun hafa lengi að þófarinn fengi auka hressingu, eftir að ég man,
var
p15
það kaffi, en vel
skyldi vera með því. Og út í það ef til var, og þófarinn kunni að
meta slíkt. Þófaraþulu heyrði ég aðeins eina, og hygg að hún sé þar
varla öll, svo hljóðandi: Bárður minn á jökli - leggstu nú á þófið
mitt - ég skal gefa þér lóna - innan í skóna - nýja skeifu og nagla þrjá
- en láttu ganga þófið þá. Þegar þófi var lokið, var voðin
hrist og kippt. Gjörðu það 2 á milli sín, oft karl og kona. Gekk
þá á stórum brestum, og þótti því betra, sem meira small í voðinni, og
varð oft að glensi. Síðan var hún lykkjuð upp á þvottasnúrur og þurrkuð,
en líklega hefur hún pressast betur ekki mjög þurr. Það tíðkaðist
áður, að sérstakir menn fóru um og þæfðu, en einkum munu það hafa verið
hálfgjörðir umrenningar, sem hlutu stundum af því auknefni eða nafnbót.
Þetta getur hver sæmilega laginn og atorkusamur maður, en mjög fór
mönnum fram í því sem öðru, með nógri æfingu.
Nr. 1328
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Á árunum um og eftir 1900, var vefnaður stundaður
á 3 bæjum í Mjóafirði, Reykjafjarðarhreppi. Það voru bæirnir Skálavík,
Botn og Látur. Ekki er nú unnt að hafa spurnir af fólki því er þá
var til heimilis á 2 hinum fyrrnefndu bæjum, né heldur eru til leyfar af
vefstól eða vefnaði þess. Á þessum tíma var margbýli á Látrum, eins
og jafnan áður. þar voru 52 manneskjur til húsa. Þar hokraði
Jón Sigurðsson á sjö hundruðum. Hann dó 1933, 77 ára að aldri. Var
kona hans Guðrún Jónsdóttir, og áttu þau 2 dætur, og hún eina. Svo
ólu þau upp 1 fósturdóttur. Var Jón hinn hagasti til munns og handa,
og var vefnaður jafnan stundaður á heimili hans. Hann óf mikið sjálfur,
en auk þess Halldóra dóttir hans, og síðar Marsibil fósturdóttir hans.
Þá voru kljásteinavefstólar horfnir, en eldra fólk mundi þá. Þessar
stúlkur báðar voru farnar að vefa um fermingaraldur.
p2
Það var settur upp
vefstóll á haustin, þegar önnur verk voru búin. Var gripið í vefnaðinn
eftir því sem tóm gafst til milli verka, framan af vetri, en vejulega var
ekki nein sérstök aðvera við það fyrir hátíðar, nema ef tekinn var vefnaður
að, þá var setið við allann daginn. Þó var það nú tíðast, að það
var ekki mikið um vefnað fyrir aðra, fyrr en eftir hátíðar, því sjaldnast
var fólk búið að spinna í vefnað að ráði, fyrr en um það leyti.
Baðstofan á Látrum var palllaus, og var vefstóllinn settur upp í
einu rúmstæðinu. Rúmið var þá tekið upp og sett fyrir gafl á meðan.
Þegar tekinn var vefnaður að, fékk Jón oft slægjur í staðinn, eða
þá að það var ekkert tekið fyrir. En ef greitt var í peningum þá
var vanaleg greiðsla 10 aurar fyrir hverja alin. Það þóttu góð afköst
að vefa 6-7 álnir á dag, en afköstin fóru auðvitað eftir því, hvort ofið
var gróft
p3
eða fínt. Það var
fljótlegra að vefa úr grófu. Einstaka hamhleypa komst í 10 álnir
á dag. Ekki er nú vitað um neina menn hér í sveit, sem smíðuðu
vefstóla og sennilega hafa vefstólar þeir er síðast voru við lýði, verið
gamlir. Einn vefstóll er til nú, á Eyri í Mjóafirði, og er hann fyrir
víst, meira en aldar gamall. Þess var getið að ofið var á
3 bæjum í Mjóafirði. Yfir á sveitinni, eins og kallað er, voru víða
til vefstólar, en ekki allsstaðar ofið að staðaldri, nema í Reykjarfirði.
Þar var Ólafur Jónsson bóndi, og hafði flutt frá Lágadal 1890. Hann
óf mikið, en annars þekktist, að menn væru fengnir að til að vefa. Voru
það aðallega menn sunnan yfir heiði, því nokkrar samgöngur voru milli bænda
í innri hluta Reykjarfjarðarhrepps (Ísafirði) og bænda í Gufudals- og Múlahreppum,
í sambandi við fjallskil ofl.
p4
Skeiðar voru misjafnlega
grófar, eftir því hvað verið var að vefa. Þær voru allar jafnlangar. Sennilega
algengast 5 kvartil á lengd og stærðin miðuð við tannafjölda í kvarteli.
Allt frá 50 tanna, uppí 90 og 100 tanna. Þær skeiðar sem ég
hef heyrt um og séð, eru úr járni og/eða látuni og taldar keyptar og innfluttar.
Skyttan var hinsvegar heimasmíðuð úr hörðum og sleipum viði.
Sumar voru koparslegnar á röðunum, og á nefinu, svo þær rynnu betur.
Teinninn í skyttunni var kallaður spóluteinn. Spólurnar voru
sumar úr tré, en heimagerðar spólur úr blikki voru fullt svo algengar.
Það voru oftast notaðir venjulegir rokkar til að spóla á.
Þá var rekinn teinn upp í snældubúninginn, og spólan sett þar upp
á og skel eða öðru smálegu haldið fyrir framan spóluna, svo að hún rynni
ekki fram af.
p5
Áhald það, sem hélt
út jörðum voðarinnar, hét spjálk. (það er algengt ærheiti á glannhyrndum
ám). Það var tréstykki, sem hægt var að lengja og stytta og var nagli
í götunum til að festa. 3 naglar voru í hvorum enda og stóðu þeir
í jaðrana. (Hér er teikning). Stærðarhlutföll í ofanteiknuðu
rissi eru ekki alveg rétt. Spjálkin er lengri og mjórri.
Það var kallað að leggja upp, að reikna út uppistöðuþráð í voð. Bandið
var vigtað. Reiknað var með að það væri alin af snældunni í rakningu.
Það var talað um uppistöðu og svo bæði ívaf og fyrirvaf, sem táknaði það
sama. Uppistaðan var rakin á rakgrind. Þær munu hafa verið
til þar sem vefstólar voru. Þetta er nokkuð fyrirferðarmikið áhald
og vitað að hún var fest upp í gat
p6
sem gert var í bita
neðan í bæjardyralofti. Þetta voru eiginlega 2 ferhyrndar grindur,
hvor innan í annarri, og hægt að leggja þær út eða saman, því þær leika
á ás, sem tengir þær saman. Þollar eru festir á grindina og rakið
á þá. Tveir voru við rakninguna. Venjulega var rakið
úr hnyklum, sem látnir voru liggja í rakstokk, en það var stokkur með er
hólfum, hvert hólf ca. spönn á hvern veg. Hnyklarnir voru í hólfunum
og fetakambur lagður ofaná til að hafa það greitt. Sagt er, að áður
fyrr hafi verið rakið af balbínum sem svo eru nefndar. Gömul kona,
sem dó í Skálavík um 1940, þá fjörgömul, talaði um þetta. Við rakninguna
mun ekki hafa verið notaður neinn rakspaði. Ef átti að vefa eitthvað
smálegt, svo sem styttubönd, mittisbönd, var ekki notuð rakgrindin, en
rakið við fót sér eða á rúmstuðli. Gamalt fólk hefur heyrt sagt frá
því, að rakið væri á veggjarhæla.
p7
Uppistaðan á rakgrindinni
hét slanga. Þegar hún var tekin ofan, var það gert á sérstakan hátt,
svo að hún flæktist ekki. Það var gert bragð á slönguna, og hún dregin
í gengum það bragð, svo að lykkja myndaðist, sem slangan var aftur dregin
í gengum, og svo koll af kolli. Slangan dregin tvöföld í gegnum hverja
lykkjuna af annarri. Tveir unnu einnig að því að vinda upp á rifinn,
annar snéri en hinn hélt við slönguna. Höföld voru úr þreföldum
togþræði. Þau voru hnýtt á hafaldagrind. Það er veigalítil
ferköntuð grind, með spýtu í miðjunni, og var hún til að merkja, hvar hnýta
skyldi hafaldaraugun. Hnútarnir voru hnýttir sitt hvoru megin við
þessa spýtu. (Hér er teikning).
p8
Hafaldakambur var
notaður við að draga í höföld. Tveir unnu við það, annar rétti fram
þræðina. Haki var notaður við að draga í skeið. Var algengt
að nota greiðubrot. Oftari voru einnig tveir við það, annar rétti
höföldin, hinn dró í. Þá var talað um að hnýta á skaft og
framhnýtingarskaftið fest við rifinn með löngum snærum vöfðum á rifinn.
Vefjarhnútur er eins og hafaldahnútur (sýnishorn fylgir). Hann
raknar ekki, og var notaður ef uppistöðuþráður slitnaði, en það var algengt.
Það var kallað að gefa í (fyrirvafið) og ígjöf. Ef voðin hélt
ekki fullri breidd, vantaði ígjöfina eða það voru ekki nógu margir í tönn
í höföldunum. Voðin mæld með alinmáli. Það var þráður, sem
stungið var ofan í jaðarinn, og dreginn úr þegar komin var alin, og látinn
í aftur. Ef illa var undið upp á rifinn, varð boðin skökk (lausari
öðru megin).
p9
Það var kallað að
fella voðina, þegar hún var tekin úr vefstólnum. Spottarnir, sem af gengu,
hétu afvikur. Var þeim haldið saman og notaðir til að sauma með.
Þæfð var voðin undir berum fótum á gólfi. Það geru
karlmenn oftast, en einnig konur. Voðin þvegin fyrst, áður úr keytu,
en síðar úr sápu. Þegar notkun hennar varð almennari. Voðin
rennblaut, þvegin var undin uppúr bala úti. Húnvar undin tvöföld
á keflum, og undin alveg í snargarð, göndul. Annað slagið var voðin
aðgætt meðan á þófi stóð, slegin og hrist úr henni lóin. Seinast
var hún undin uppá rúmfjöl og pressuð.
Nr. 1260
p1
Ull og tóvinna 3.
p2
Vefnaður: Stór
þáttur í hinni umfangsmiklu ullarvinnu heimilanna var vefnaðurinn. Þar
sem vefstóll var tekinn niður að vorinu, var hann ekki settur saman og
búinn til vefnaðar, fyrr en lokið var haustverkum svo og spuna og prjóni
til handa og fóta, eins og það var orðað. Þá var farið að spinna
þráðinn í uppistöðuna í fyrstu voðina og síðan að huga að vefstólnum. Mun
það hafa þótt gott ef fyrsta voðin var felld fyrir hátíðar. Það gat
líka borið við að byrsta voðin væri tvistur, þ.e, uppistaðan úr vefjagarni
sem keypt hafði verið í kaustaðnum um sumarið og flýtti það skiljanlega
fyrir. Líka bar það við að þráður hafði verið geymdur frá fyrra ári,
sem ekki hafði unnist tími til að koma í voð. Á stærri heimilum mun
p3
það hafa verið siður
að einn maður eða kona hefði vefnaðinn á hendi með aðstoð og ígripum heimamanna,
og yfirumsjón húsfreyju. Þó munu karlar hafa gengt t.d. einu fjárhúsi
með vefnaði og konur vikið sér frá til mjalta. Ef vefarinn
átti að fara til vers, var lagt mikið kapp á að vefnaðinum væri lokið áður
en hann færi, þ.e. fyrir þorralok, og jafnvel þó konur væfu gafst minni
tími til tóvinnunnar, þegar vermenn voru farnir.
Um afköst vefarans
er það að segja, að þau voru mjög misjöfn, bæði fór það eftir leikni vefarans,
grófleika voðarinnar og hvort mikið slitnaði. Mig minnir að sæmilegur vefari
afkastaði 3-5 álnum á dag, en ég heyrði talað um miklu meiri afköst, t.d.
efni í hærupoka gæti farið upp í 15 álnir, ef ofið var af kappi. En
ekki er þessum tölum að treysta, þótt fram sé slegið til samanburðar við
önnur svör.
p4
Um atvinnu við vefnað
var stundum að ræða, en heldur mun það hafa verið fágætt. Hitt mun
hafa verið tíðara, að heimili sem höfðu tæki til vefnaðar og rífann vinnukraft,
tóku að sér að vefa voðir af þeim, sem höfðu lakari aðstöðu í þeim efnum.
Um gjald fyrir slíka vinnu þori ég ekki að segja, en sjálfsagt hefur
það farið eftir lengd og grófleika voðarinnar. Vefstóll:
Í daglegu tali var vefstóllinn oftast nefndur vefstaður. Um
kljásteinavefstaði heyrði ég talað um, sem forngripi og frumstæð vinnutæki,
og hef ekkert af þeim séð, nema þann á Þjóðminjasafninu. Vefstóla þá, sem
teikningarnar sýna, kannast ég trauðla við, og ekki þann sem tölusettur
er, og er því dálítið erfitt að átta sig á einstökum hlutum þeirra. Þó
um flesta sé enginn vafi, ef stuðst
p5
er við B og C. Nökkrum
nöfnum má bæta við, svo sem rifhaus, stoppari (járnkrókur) og handföng
(á rifhaus). Hraðskyttu- eða tvíbreiða vefstóla þekkti ég ekki.
Að smíða vefstól var mikið vandaverk, og mér býr í grun að slíkt hafi verið
fremur fágætt, og þá sennilega eftir útlendum vefstólum. Ég man eftir
að Jón Loftsson bóndi á Geldingalæk á Rangárvöllum, smíðaði vefstól heima
hjá okkur, en mig grunar að það hafi verið aðgerð eða endursmíði, þótt
ég muni það ekki gjörla. Á sumum bæjum var til lítt eða óinnréttað
herbergi undir baðstofu, sem kallað var vefstaðarhús, og stóð þá vefstaður
þar árið um kring, og þar var ofið, og þurfti þá ekki að taka hann sundur.
Síðar var smíði hans þannig hagað, að taka mátti hann í sundur og
var það mikið hagræði, því ef hann var í baðstofu, tók hann mikið pláss.
En milli voða var honum þó ýtt til
p6
hliðar (vefstaðarskot).
Skeið: Skeiðin eða rittið var vandsmíðað, en þó líklega stundum
heimasmíði. Lengd hennar ýmist miðuð við lengd 5 kvartela skeið eða
70-80 tanna ritti. Þær skeiðar, sem ég umgekkst voru smíðaðar úr
látúni. Vefjarskytta: Þær voru mjög misjafnlega gerðar, oftast
munu þær hafa verið smíðaðar úr harðviði. Stundum voru þær nokkuð
klúrar og þungar með botni, aðrar voru liprar og léttar botnlausar, og
jafnvel látúnsslegnar á endum, og þá hið nettasta smíði. Líklega
hafa þær verið verk innlendra hagleiksmanna, þótt ég viti það ekki gjörla.
Spóluteinn var úr járni. Lítt var vandað til þess, sem spólað var
á.
p7
Renndar tréspólur
hefi ég ekki séð, en spólur beygðar úr þunnu blikki voru algengar, en höfðu
þann galla að ívafið gat fest í þeim og valdið töfum, ef það slitnaði.
Síðar var þunnur pappi notaður í spólur, t.d. spil og var þá hægt um hönd
að bæta í skörðin, ef þær týndu tölunni. Spólurokkur: Uppgjafa
rokkar voru notaðir sem spólurokkar, þar sem ég þekkti til. Þeir
rokkar voru minnst metnir af öllum rokkum heimilisins. Þeir féllu ekki
í þá stöðu fyrr en þeir höfðu misst flest það sem sæmilegan rokk mátti
prýða, sem sæmilegir tvinninga og spólurokkar. Í ..... var stungið
tegldri spýtu, sem spólunni var vafið eða stungið upp á og þurfti hún að
vera hæfilega gild, svo spólan léki létt um spóluteininn. Börn voru
gjarnan látin spóla og einkum áminnt um að láta ekki
p8
"hlaupa á spóluna",
en það skeði, ef ekki vafðist jafnt á hana. Þótt það komi
ekki þessu máli við, má geta þess, að skillitlir, marklitlir menn voru
oft nefndir spólurokar. Hann er hálfgerður spólurokkur, en þótti
ekki hrós, en þótti segja furðu mikið í stuttu máli. Eftir að prjónavélar
urðu algengar, fylgdu þeim litlir spólurokkar úr járni, sem festir voru
í borð, og þóttu einkar hentugir sem spólurokkar er spunnið var til vefja.
Spanstokkur, sem hafður var til að halda út jöðrum voðarinnar,
var vanalega smíðaður úr góðum við og oft snotur smíði. (Teikning).
p9
Að leggja upp var
það kallað, þegar ákveðin var lengd og breidd og varp voðarinnar. En
þar rek ég heldur betur í vörðurnar, því ekkert kann ég í þeim útreikningi.
Ég held að eftir gildleika þráðarins hafi verið ákveðið hvað leggja
mætti upp úr mörkinni, og þráðarhnyklarnir svo vigtaðir og völurnar svo
dregnar frá vigtinni. Að reikna í skeið: Þegar ávkeðin
hafði verið breidd og varp voðarinnar, var reiknað út í skeiðina t.d. 2
í tönn, 3 í tönn, ef tala þráðanna gekk ekki upp, var því sem af gekk jafnað
niður eða dreyft um voðina, t.d. 2 á tönn og 3 á annarri, þriðju eða fjórðu
hverri osfrv. Að reikna í vef. Þegar þráðurinn í verkefnið,
hafði verið vigtaður, var ákveðið hvað leggja mætti upp úr mörkinni, og
lengd voðarinnar
p10
ákveðin eftir því.
Um alla þessa útreikninga skortir mig þekkingu. En nöfnin voru
uppistaða eða þráður og fyrirvaf eða ívaf. Rakningsgrind:
Ég þekkti ekki, að rakið væri á annan veg, en á rakningsgrind. Hún
var all fyrirferða mikil, allt að 2 m. á hæð og .... milli lofti og gólfi,
og var sett undir hana koffort eða kista og bjálki, sem standur grindarinnar
gat leikið í, og spýtur í kross ofan og neðan, og þannig gert að leggja
mátti saman, þegar ofan var tekin. Slár með skilhælum voru skorðaðar
milli uppistöðu stólpanna á grindinni. Þegar byrjað var að rekja
var nákvæmlega mæld lengd voðarinnar og merkt á þráðum, og átti það að
passa að merkið lenti á neðri skilhælnum, og mátti það engu muna, svo lengd
voðarinnar yrði, svo sem ákveðið hafði verið.
p11
Balbínur og balbínustóll.
Ef rakið var af spólum voru þær kallaðar balbínur og grindin, sem
þeim var raðað í balbínustóll. Ég kynntist þeim ekki, því heima var
alltaf rakið af hnyklum. Rakningsstokkur var grunnur stokkur
með mörgum hólfum það stórum að gott rúm gæfist í hólfinu fyrir þráðarhnykilinn.
Varð vel að gæta þess að hnykillinn hoppaði ekki úr sínu hólfi, og
varð fljótt að koma því í lag, ef svo bar við. Ef hólfin voru of
fá fyrir hnyklana var bætt við litlu íláti, svo sem potti, skál eða þess
háttar. Rakning á rakningsgrind: Ekki treysti ég mér
að lýsa rakningu á grind svo í lagi sé. Man aðeins að skilin voru
mynduð á hælunum og þar var talið á grindina, t.d. ef rakið
p12
á 10 feta var fetabandinu
brugðið yfir við hverjar 10 umferðir, og gerði það þá 100 þræði. Þegar
rakningu var lokið var uppistaðan tekin af grindinni í einskonar fléttu
og nefndist hún þá slanga. Ef voðin var tvílit varð að gæta þess
að hafa mátulega marga feta með hvorum lit. Heima var grindin jafnan
nefnd rakninsgrind. Ég held að ein kona hafi vanalega staðið að rakningu,
og barn eða unglingur aðstoðaði, einkum til að gæta þess að hnyklarnir
hoppuðu ekki úr sínu hólfi í stokknum, og að ekki slitnaði þráður.
Hafaldagrind var til á flestum bæjum, því jafnan þurfti að endurnýja
höföldin. (teikning).
p13
Spýtan að neðan var
höfð til að vefja á efnið í höföldin í mátulega lengd, og var svo skorið
í sundur á öðrum enda. Síðan voru höföldin hnýtt á grindina, og þurfti
við það nokkra nákvæmni, því þau þurftu að vera nákvæmlega jafnlöng, einkum
augun, ef ekki átti að hljótast að óhreint skil. Höföld og hafaldaefni:
Höföldin voru lengi frameftir úr snöggum og vel unnum togþræði, en
ekki veit ég neitt um vinnslu hans eða meðhöndlun. Neðsti hluti hafaldagrindarinnar
var all gild spýta (sjá teikningu). Á þessa spýtu var efnið í höföldin
rakið, og þegar dældin í spýtunni var orðin full, var skorið í sundur á
öðrum enda spýtunnar, síðan bundið laglega um knippið og var þá hafaldaefnið
tilbúið til hnýtingar. Sá sem það verk vann setti grindina
p14
fasta milli fóta
sér, síðan dró hann einn þráð úr knippinu og brá honum um grindina, hnýtti
svo nákvæmlega við spýtuna, sem átti að mynda augað, og síðan var augað
myndað með öðrum hnút, og var þá augað komið, síðan var svo hnýtt á hinn
enda grindarinnar með þriðja hnútnum. Ekki man ég eftir að sérstakur
hnútur væri þar notaður, aðeins þverhnútur. Þegar höföldin
voru tekin af grindinni eða síðar af sköftunum, var bundið um þau og síðan
geymd á þurrum stað. Það var vandaverk að hnýta höföld, því
mikið reið á því að augun væru jafnstór. Höföldin voru síðar hnýtt
úr seglgarni, og þótti það mun betra en þráðarhöföld. Vefjarkambur
var langur kambur með allþéttum tönnum
p15
og lokaður, svo að
tindarnir gengu inn í gróp í lokinu, og síðan var kambinum lokað með fleygum.
Ekki veit ég hvaða reglur voru hafðar við að láta í kambinn. Sá
aðeins að raðað var í hann og leitast var við að hafa jafnmarga feta í
hverri tönn. Eins og sjálfsagt var, varð að halda skilinu hreinu,
og var til þess notað skilsköft og skilþráður og þekkti ég ekki önnur nöfn
á því. Að festa upp, var þetta verk kallað, líka var það kallað
að setja til vef eða setja upp vef. Að bóma: Við að bóma þurftu
3 að vera að verki, einn að vinda upp á rifinn, annar að halda kambinum,
og var það mesta vandaverkið, því gæta þurfti
p16
þess að jafnt renndist
á hann. Á slöngurifnum voru hafðir svonefndir kragar. Það voru
fjalir með gati, sem slöngurifnum var stungið í gegnum og skinnræmur negldar
innan í þær sem síðan festist við vyrsta vafið. Þurfti maðurinn með
kambinn að gæta þess vel, að kraginn settist rétt og slétt á rifinn, og
átti kraginn svo að setja honum takmörk á rifnum. Sá þriðji hélt
svo í slönguna, en maðurinn með kambinn sagði til hversu fast skyldi halda
og hart vinda. Að draga í höföld: Þar skal tvo til,
annar að rétta en hinn sem í dró hafði veg og vanda af verkinu. Ég
komst aldrei hærra en að rétta, og veit því ekki um leyndardóma hinna ýmsu
tegunda dúkanna, sem ofnir voru. Sá sem rétti tók knippi sér í
p17
vinstri hönd, dró
þráðinn úr knippinu, og rétti þeim, sem í dró, sem dró hann svo í auga
hafaldsins. Báðir sátu við verkið. Þegar komið var gott knippi,
var því skift í tvennt og síðan bandið saman framan við höföldin. Meðan
dregið var í höföldin voru hafaldasköftin bundin saman svo ekki smeygðust
þau fram af sköftunum. Að draga í skeið. Sá sem, það
gerði vann sitjandi. Hann hafði krækju, sem stungið var gegnum skeiðina
og þræðirnir taldir. Skeiðin var tekin úr slagborðinu og lögð á 2
rúmfjalir fyrir framan þann sem í dró. Einn af leyndardómum vefnaðar
var varpið, 2 í tönn, 3 í þriðja hverri eða fjórðu hverri osfrv.
p18
Að hnýta fram: Þegar
gengið hafði verið frá snærum og framhnýtingarskafti, var hnýtt fram. Það
var ýmist nefnt að hnýta eða binda fram. Aðalvandinn við að hnýta
fram, var að gæta þess að allir fetarnir væru jafnlangir, svo að ekki væri
skakkt fyrir. Vefjarsnærin voru 3, og þegar hnýtt hafði verið fram
voru þau undin upp á rifinn, svo strítt væri á þeim. Voru þau svo
höfð á, þar til ofið hafði svo mikið að voðin náði rifnum, voru þá snærin
tekin af og skaftið lagt í falsið á framrifnum, svo voðin stöðvaðist og
vefðist jafnt og þétt á rifnum. Uppbinding: Uppbindinginvar
í því fólgin að tengja skammelin við hafaldasköftin. En þeirri aðferð
að binda það með snærum hefi ég aldrei kynnst. Sú aðferð sem ég kynntist
var því nefnd
p19
að krækja upp, því
til þess voru ..... krókar og stuttar keðjur, og var það mun hentugra,
því á keðjunum gat ekki tognað, þá tengt var við skammelin. Ekki
kann ég að lýsa uppkrækingu með tilliti til sérstaks vefnaðar eða mynsturs.
Að draga fyrir: Þegar
búið var að krækja upp og þar með lokið að setja til, var stigið á skammelin
og myndaðist þá skilið. Vefarinn skaut skyttunni og dró fyrir sem
kallað var. Við fyrirdráttinn grunar mig að vefarinn hafi gefið ríflega
í. Það var gert með þeim hætti að vefarinn brá fingri í fyrirvafsþráðinn
og færði hann nær skeiðinni áður en slegið var að með slagborðinu. Þegar
búið var að vefa nokkra þumlunga var spanstokkurinn settur á til að halda
jöðrunum mátulega út.
p20
Var vefnaðurinn þar
með hafinn, og ef tilsetningin hafði verið gerð með vandvirkni og nákvæmni
mátti treysta því að allt gengi misfellulaust. En allar misfellur
í því margbrotna verki, sem tilsetningin var, var svarað með óskýru skili,
sliti og öðrum töfum, en afsakað með því að einhver sækti í vefinn eða
annað yfirnátturulegt væri þar að verki. Ekki veit ég nákvæmlega
hvað færan var löng, en lílega hefur verið hægt að taka af snærin eftir
3-4 færur. Þegar strengt hafði verið í voðinni, mátti segja að vefnaðurinn
væri kominn í fullan gang. Misjafnlega mun hafa verið gefið í og
ákvað vefarinn það. Mæliþráður var festur í voðina. Var hann
ein alin á lengd og þegar alin hafði verið ofin, var hann færður.
Ef þráður slitnaði,
varð að bæta hann
p21
sem fyrst, og þótti
það tefja verkið, ef mikil brögð voru að því. Sama var um hafaldaslit.
Að fella voð: Við endir voðar var leitast við að vefa svo
lengi sem hægt var, svo að afvikur yðri sem styttstar, en svo var nafnið
á þeim afgöngum, sem eftir urðu í höföldunum og skeiðinni, þegar ekki var
lengur hæft að skjóta skyttunni. Þessar afvikur voru notaðar sem
nálþráður við aðgerð á fötum. Þóf: Þega rþæfa átti
við þótti nauðsynlegt að hún væri vel hrein. Var hún fyrst þvæld
úr sjóðandi keytu og losnaði þá við fitu og óhreinindi, síðan var voðin
skoluð úr köldu vatni, helst í miklu rennandi vatni. Þegar svo vatnið var
sigið úr voðinni og þófið átti að hefjast var byrjað á því að hita á voðina.
Fullur pottur af vatni settur á eld
p22
og sjóðhitaður. Í
hann var svo voðin sett og endaði þar með þvottur hennar. En þá var eftir
að vinda hana, því mikið reið á að voðin væri mátulega rök og vörm þegar
þófið hófst. Bás hafði verið losaður í fjósinu, því þar fór þófið
fram. Stór hurð eða hlemmur hafði verið lagður í básinn og fötum
raðað kringum hurðina til að varna því að óhreinindi færi í voðina, ef
hún færi út af hurðinni. Skaft hafði verið bundið í stoðina framan
við básinn í mátulegri hæð til stuðnings fyrir þófarann. Við vindingu
voðarinnar var höfð sú aðferð að járnkarl var skorðaður í skemmudyr og
voðin sett þar á, en kvísl eða sterk spýta sett í hinn endann á vöðlinum.
Þrír þurftu að vera við þetta verk, einn að styðja járnkarlinn, kona
að sjá um að rétt legðist í vöndulinn, og sá þriðji vanalega þófarinn sjálfur
p23
hafði höndur á kvíslinni,
og vatt voðina. Þegar nóg þótti undið, en þá ákvað konan, sem með
var í verkinu, var snúðurinn tekinn varlega af voðinni, og voðin losuð
af spýtu og járnkarli. Síðan var haldið rakleitt í fjósið
og fyrir þófarann hófst erfiður og langur vinnudagur. Han afklæddist
og var við verkið á nærklæðum einum. Verkið stóð hvíldarlaust frá morgni
til kvölds. Þófaranum færður matur og drykkur á þófið, sem hann neytti
sitjandi á þófinu. Tvisvar eða þrisvar fékk þófarinn heimsókn húsfreyju
eða annarrar konu, til að hrista lóna úr voðinni og teygja hana til að
varna þess að hún hlypi ekki í brigður. Vandað var til matar þófarans og
til var orðið þófarakaka, sem oft var gefin við smærra þóf á plöggum. Eftir
þófið var voðin undin upp á rúmfjöl, teygð og strengd svo
p24
hvergi væri hrukka
og síðan sett undir farg, t.d. þunga kistu. Þar með var þófinu lokið
og þófarinn feginn hvíldinni. Kýrin fékk sinn bás og hafði hún hvorki
legið né jótrað í þessarri útlegð, og var fegin að fá kvöldgjöfina á sínum
eigin bás. Vanalega var það húsfreyja, sem ákvað hvenær voðin
var fullþæfð, en ekki veit ég til að voðum væri komið í þóf eða hvað þófara
var borgað, ef hann var fenginn af bæ. Þóf var talið með karlmannsverkum,
en þó bar það oft við að þrekmiklar konur unnu þetta verk.
Síðar þegar þófaraverksmiðjur komu til sögunnar, tíðkaðist það mjög að
voðum var komið í þóf, lóskurð og litun. En ekki veit ég hvernig
það var unnið eða fyrir það var borgað.
p25
Hins er ég fullviss
að margur þófarinn hefur fagnað því að losna við þetta erfiða og hvimleiða
verk.
Nr. 1784
p1
Ull og tóvinna 3.
p2
Vefnaður: Mjög
var það misjafnt, hvenær vefnaður hófst á bæjum. Á sumum bæjum var
siður að hætta heyskap viku fyrir réttir, og var þá byrjað að vinna prjónaband
þegar á réttum. Að vinna í sokkaplögg held ég að allsstaðar hafi
verið það fyrsta, sem byrjað var á, hvað ullarvinnu snerti. Þegar
búið var að vinna prjónabandið var byrjað að vinna vefjarefni. Á
þeim bæjum, er þessi siður var á, var áreiðanlega búið að vefa eina voð
fyrir jól. Þar sem seinna var byrjað á ullarvinnu, var einnig seinna
farið að vefa. Víðast mun einhver einn hafa annast vefnaðinn,
amk. held ég að verra hafi þótt að margir væru að vefa sömu voðina. Hve
lengi hver vefari sat að vef, fór eftir ástæðum, tam. hvort hann hafaði
vefnaðinn í hjáverkum, eða var ekki ætlað annað verk. Sumsstaðar
óf húsmóðirin, en sinnti þó sínum húsmóðurstörfum. Eins var þó um
vinnufólk væri að ræða eða húsbóndann. Það hafði oft einhver föst
skylduverk auk vefnaðarins. Þó sátu sumir allan daginn í vefstólnum,
og voru það helst húsmenn, er voru í kaupavinnu (við heyskap) á sumrin,
en höfðu atvinnu
p3
við vefnað að vetrinum,
og sinntu þá ekki öðrum störfum, og man ég eftir fáeinum vefurum, er það
gjörðu. Ágæt afköst þóttu það, ef vefari óf 12 álnir á dag
af meðalgrófu vaðmáli. Afköst vefarans fóru talsvert eftir því hve
vel var spunninn þráðurinn "uppistaðan". Einnig eftir því
hve fyrirvafið var fínt. Fáir held ég að hafi lært að vefa langt
fyrir innan 14 ára aldur. Eftir einum man ég, er farinn var að vefa
11 ára. Þessi drengur var þá orðinn það góður vefari, að hann var
léður á annan bæ til þess að vefa. Ekki var það almennt, að menn
færu á milli bæja að vefa, þó kom það fyrir, en almennara var að þeir tækju
vefjarefnið heim til sín. Mig minnir að um aldamót væru goldnir
20 aurar fyrir að vefa alin. Ekki man ég eftir að vaðmál væri notað
í vöruskiftum. Aldrei heyrði ég vefjarskeiðar kallaðar öðru
nafni en "skeið" eða "vefjarskeið". Aldrei vissi
ég til, að þær væru smíðaðar hérlendis. Stærð þeirra, eða þéttleiki, var
miðaður við tannafjölda á kvarteli, t.d. 70-80-90 tanna skeið. Flestir
vefarar áttu fleirri mismunandi grófar skeiðar.
p4
Vefstóll: Bæði
nöfnin, vefstóll og vefstaður, voru algeng hér um slóðir í mínu ungdæmi,
og eru raunar enn. Um gamla kljásteinavefstaðinn, veit ég ekkert,
en ég heyrði sagt, að sá vefstaður hefði lagst niður, er Skúli fógeti stofnaði
"Innréttingar" sínar. Einnig hefði spunasnældan þá vikið
fyrir rokknum. Ekki hef ég séð neina hluti úr kljásteina vefstól,
nema einn kljástein, er ég sá sem barn. Um smíði vefstóla
get ég lítið sagt. Þó mun það hafa verið nokkuð algengt, að hagir
menn smíðuðu vefstóla, og víða voru vefstólar til, þó ekki á hverjum bæ,
en fleirri munu þeir bæir hafa verið er vefstóll var á. Á öllum þeim
vefstólum, er ég hef séð hafa rifirnir verið á sömu hæð.
Á meðan söðuláklæði voru almennt ofin, voru víst flestir vefstólar tvíbreiðir,
en er hætt var að vefa þau, sem hér um slóðir, mun hafa verið eftir 1870-80
létu sumir minnka vefstólana. Þóttu þeir léttari og meðfærilegri
einbreiðir. Þeir, er ekki áttu vefstað sjálfir fengu flestir ofið
hjá grönnum sínum, einkum þeim er atvinnu höfðu af vefnaði.
p5
Vefjarskytta: Flestar
vefskyttur, held ég, hafi verið með látúnsdragi að neðan, til þess, að
þær rynnu betur um skilið. Aldrei heyrði ég annað nafn á teini þeim
er spólan lék á en "spóluteinn". Sá aldrei, eða vissi notað,
annað en renndar tréspólur. Spólurokkar: Ekki held
ég að sérstakir rokkar hafi verið smíðaðir til þess að spóla á, heldur
voru gamlir rokkar notaðir, og var þá settur í þá þar til gerður teinn
í stað snælduumbúnings. Spanstokkur: Hér um slóðir var þetta
háhald venjulega nefnt spjálk. Spjálkin var smíðuð úr 2 fjölum, hub. 3ja
cm. breiðum og nálægt 50 cm. löngum. Hún var þannig, að það mátti
lengja hana og stytta, eftir þörfum, og var það þannig gjört, að allt að
helmingur annarrar fjalarinnar var mjókkaður um 2/3 þannig, að 1/3 var
þverstýfður af og klofinn frá báðum meginn. En á hinni fjölinni var
gerð nákvæmlega jafnlöng og breið rauf í miðjuna, svo að mjórri endi féll
nákvæmlega í rauf hinnar. Síðan voru nokkuð mörg göt
p6
boruð í gegnum hliðar
skertu endanna. Lítill teinn úr vír með hring á öðrum enda var svo
rekinn gegnum götin, sem voru látin standast vel á. Sitt á hvorum
enda spjálkarinnar voru 2 mjög litlir en hvassir stáloddar, er stungið
var sitt í hvern jaðar voðarinnar.
Að leggja upp. Það
verk að reikna út uppistöðuþráð í voð heyrði ég ætíð nefnt "að leggja
upp". Eftir að ég man eftir, og það fólk er ég hef fengið upplýsingar
hjá, var ætíð lagt upp úr hespum. Hespurnar voru vigtaðar, og var
svo talað um voðina eftir þyngd þráðarins, t.d. 8 lóða, 5 og 3ja lóða verk.
Oft held ég, að hafi verið lagðar 2 álnir upp úr mörk af þræði. Sama
segja mér 2 gamlar konur er ég nýlega hef hitt. Önnur úr A-Skaftafellssýslu.
Þær muna báðar eftir því að hafa séð rakið úr hnyklum. Þær
minnir að þyngd valanna væri dregin frá þyngd þráðarins.
p7
Balbínustóll og snældur:
Balbínustóllinn var smíðaður úr tré, líkt og mjög grunnur botnlaus
kassi, hólfaður sundur í 2 hólf eftir endilöngu. Í gegnum allar langfjalirnar
voru boruð 6 göt í hverja fjöl, og var 6 gildum vírteinum stungið í gegnum
þessi göt, sem auðvitað þurftu að standast vel á. Á þessum teinum
léku svo balbínusnældurnar. Balbínusnældurnar voru smíðaðar
líkt og gríðarstórar rokksnældur, nema á þeim voru báðir snúðar eins. Hver
snælda var hub. 25 cm. á lengd og hver snúður víst 10 cm. í þvermál eða
meira. Ekki held ég að sérstakir rokkar hafi verið smíðaðir
til að balbína á. Þeir balbínurokkar, er ég sá, voru gamlir spunarokkar,
er breytt hafði verið þannig að þessar löngu snældur komust fyrir á snælduteininum,
og auðvitað var ekkert hnokkatré né þráðarop á teininum, heldur haldið
um þráðinn eins og þegar fyrirvaf var spólað.
p8
Rakstokkur: Rakstokka
heyrði ég þau ílát kölluð er höfð voru til þess að rekja vef úr hnyklum.
Ég hef séð 2 rakstokka. Voru þeir báðir af sömu gerð, nema
hvað annar var stærri og vandaðri. Báðir voru fyrir 12 hnykla.
Sá stærri var um meter á lengd og tæpur hálfur meter á breidd og
um 15-17 cm. á hæð. Honum var skift eftir endilöngu í 2 jöfn hólf
og þeim svo aftur skift í 6 hólf hvoru, svo rúm var fyrir 12 hnykla. Á
allar langfjalirnar var felldur hub. 5 cm. breiður listi með ávölum brúnum.
Átti víst að varna því, að hnyklarnir hrykkju upp úr hólfunum, er þeir
fóru að léttast. Rakningsspaða hef ég aldrei séð, né getað
fengið lýsingu á honum.
p9
Að reikna í skeið:
Aldrei heyrði ég annað nafn á vefjarskeiðum, en skeið eða vefjarskeið,
þó oftar aðeins skeið. Hve margir þræðir voru hafðir í tönn, sem
kallað var, fór eftir því, hve voðin átti að vera varpmikil. Varpmikil
var voðin kölluð, ef margir þræðir voru hafðir í tönn. Voðin var
þykkri og þéttari, ef þræðir voru t.d. 3 í tönn, en þynnri og gisnari væri
t.d. 1 eða 2 í tönn varplítil, sem kallað var. Stundum voru hafðir 2 og
3 þræðir í tönn á víxl, og þótti það víst meðalvarp.
p10
Rakgrind: Grind
þá er voðarefnið var rakið á, heyrði ég ætíð kallaða rakgrind. Ég
sá aldrei nema eina gerð áhalds þessa. Rakgrindin samanstóð
af 2 ferhyrndum trégrindum, jafnbreiðum, en önnur grindin var þeim mun
styttri, að hún féll aðeins liðlega innan í hina. Grindurnar voru allt
að 2 metrar á hæð, en nokkru minni á þverveginn. Efst í hælum, sem þráðurinn
eða uppistaðan var rakin á. Ekki vissi ég önnur nöfn á þeim, en efri
og neðri hæll eða skilhæll. Oftast munu þeir, er áttu vefstóla,
einnig átt rakgrind, þó vissi ég til, að rakinn var vefur á öðrum bæ, en
ofinn var.
p11
Að rekja í vef, var
það kallað, er rakið var af balbínusnældunum á rakgrindina. Rakgrindin
var sett upp, ýmist í íbúðarherbergjum eða framhýsum eða hvar sem rúm var
fyrir hana, og hentug hæð undir bita. Á bitanum var útbúnaður til
þess að festa grindina og var það ýmist úr tré eða leðri. Á miðjum
þverrimum grindanna, voru göt er stóðust á, er grindurnar voru settar saman.
Undir grindinni var hafður þungur og þykkur trébútur, sléttur að
neðan, en ávalur ofan. Upp úr honum miðjum stóð sterkur járngaddur,
er gekk upp í gegnum neðri götin á grindinni. Annar gaddur var settur
í að ofan, gekk hann í gegnum slíðrið á bitanum og efri götin á grindinni.
Á þessum göddum lék grindin, þegar rakið var.
Þegar byrjað var
að rekja var fyrst mældur 1 þráður jafnlangur og voðin átti að vera, og
honum vafið um grindina hæla á milli, og honum fylgt er rakið ar. Síðan
voru hnýttir saman svo margir þræðir, er vera skyldu í hverjum feta. Settur
síðan upp á efri hælinn, og grindinni síðan snúið og fetanum brugðið um
neðri hælinn. Farið með fetann sömu leið til baka og brugðið yfir
efri skilhælinn. Gætt var þess að bregða fetanum yfir hælana, sitt
til hvorrar handar, svo skil myndaðist.
p12
Fullrakin uppistaða
nefndist "slanga". Um leið og rakið var, voru sett nokkurskonar
skreppubönd á slönguna, bæði ofan og neðan við skilið, sem myndaðist við
það að brugðið var sitt til hvorrar hendar yfir hælana. Böndin voru sett
við hælana, oft um hverja 100 þræði. Ekki hef ég heyrt um mismunandi
aðferðir við að rekja. Ef um mislita uppistöðu var að ræða,
var vafið upp á spjald, mynstrið er átti að vera á voðinni, og sent vefaranum.
Hann raðaði þá þráðunum eftir því og festi saman jafnmörgum þráðum
og í mynstrinu voru og festi svo upp á hælinn. Þegar mælt var í voðina
var tekið tillit til þess, að voðin styttist. Gjört ráð fyrir hnútum
og afvikum, og dálítilli styttingu á voðinni.
p13
Höföld: Þau
fyrstu höföld, er ég man eftir, voru úr togþræði, tvinnuðum og mjög vel
spunnum og snöggum. Tel ég víst að hann hafi verið soðinn, því að
það var oft gjört við það garn, er sérlega var vandað t.d. í fín sjöl og
trefla. Aldrei vissi ég þó til, að vefjarefni væri soðið. Ekki vissi
ég heldur til þess, að feiti væri látin í vatnið, þegar soðið var band,
en gömul kona úr Hornafirði segir mér, að hún hafi vitað tólgarmola látinn
í vatn, er sjóða átti í hafaldaþráð. Skömmu fyrir síðustu
aldamót fóru að flytjast í verslanir, hafaldaaugu úr stáli, og urðu þau,
held ég, fljótt algeng. Eftir að farið var að nota "stálaugu"
voru höföldin hnýtt úr seglgarni. Þráðarhöföld voru hnýtt á þar til
gjörða grind er kölluð var "hafaldagrind". Hafaldagrind
sá ég ekki, en hef heyrt henni lýst. Hún mun hafa verið ferhyrnd
grind með miðrim, er myndaði augað. Auðvitað varð önnur endarimin
að vera laus, svo hægt væri að smeygja höföldunum fram af, er búið var
að hnýta. Kona, er kann að hnýta höföld, segir mér að fyrst hafi
verið mælt hve langur sá þráðarspotti þurfti að vera, er fæor í eitt hafald,
síðan var þráðurinn rakinn á eitthvað er mátulega lengd gaf, síðan skorið
af og einn og einn
p14
þráður hnýttur á
hafaldagrindina. Ekki sagðist þessi kona muna eftir neinum sérstökum
hnút er notaður hefði verið. Sagði, að sinn rembihnúturinn hefði
verið hnýttur hvoru megin við augað, en þar sem þræðirnir voru hnýttir
saman, ofan á skaftinu, hefðu oft verið hnýttir margir rembihnútar. Ekki
mundi hún eftir neinu sérstöku nafni á þræðinum, er bundinn var um sköftin
til þess að höföldin rynnu ekki út af. Þó minnir okkur að við höfum
heyrt orðið "varaþráður" haft um þennan þráð.
p15
Fetakambur: Fetakambur
var aflöng ferhyrnd grind. Lengdin var um það bil jöfn lengd rifsins,
en breiddin rúmir 15 cm. eða þar um bil. Umgjörðin var smíðuð úr góðum
og kvistalausum við, um 5 cm. breiðum og vel 2ja cm. þykk, í aðra langrimina
voru festar tennur, einsog, eða líkt og tennur úr hárkambi. Rimarnar
voru grópaðar saman og neðri rimin, sem tennurnar voru í negld föst. Hin
hliðarrimin var grópuð, en ekki negld. Hún var tekin frá þegar lagt var
í kambinn, en fest aftur, er farið var að bóma vefinn. Tennurnar
voru annaðhvort úr harðviði eða málmi. Í þeim fetakambi, er ég man
eftir, minnir mig að væru vírtennur. Bilið milli tannanna í kambinum,
mun hafa verið rúmur cm. Þegar farið var að setja í kambinn,
var rifskaftið sett í slönguna, og því fest. Síðan látinn einn feti
í hvert tannbil, síðan voru skilsköftin sett í slönguna. Skilsköftin
voru 2 mjó ávöl, en þó flöt. Skorur eða göt voru í báða enda skaftanna,
um 1 cm. frá enda. Í skorurnar eða götin, var festur þráður, er þau
voru fest saman með.
p16
Að festa upp vef:
Ég heyrði öll nöfnin: að festa upp, setja upp og setja til vef, og
veit ég varla, hvert algengast var. Að bóma vef: Verkið
að vinda slönguna upp á rifinn, heyrði ég oftast kallað "að bóma"
eða "vinda upp á rifinn. Hef aldrei heyrt orðið "að rifja"
haft um það verk. Rifskaftið var sett í þar til gjört far í rifinu,
og fest undir snúða á endum rifsins. Ég man ekki nafnið á þeim snúðum,
en kona úr Skaftafellssýslu (Hornafirði), segist hafa heyrt þá nefnda "kraga".
Oftast voru aðeins 2 að verki við það að bóma. Annar hélt
í slönguna, en hinn vatt á rifinn. Aldrei heyrði ég eða sá, að vefurinn
ætti að ganga að sér á rifnum. Væri fetakambi vel fest við bómuna,
þurfti ekki nema 2. Annar hélt íslönguna, en hinn vatt upp á rifinn.
p17
Að draga í höföld:
Ekki heyrði ég annað nafn á því verki. Að því unnu oftast 2,
annar rétti en hinn "dró í" eða smeygði þræðinum í hafaldsaugað
með fingrunum, ef höföldin voru úr þræði, en með litlum krók, líkum heklunál,
ef stálaugu voru á þeim. Þegar viss þráðafjöldi var kominn, mig minnir
um það bil 2-3 fetar, var gjörð lykkja á og byrjað á næsta skúf. Ekki
man ég til að höföldunum væri neitt fest og hafaldakamb hef ég aldrei heyrt
nefndan. Að draga í skeið: Ég heyrði ekki annað nafn á því
en krókur. Krókurinn var úr járnþynnu eða mjög fínum vír, oftast
úr járnþynnu. Sá krókur, er ég man eftir var úr stálþynnu, hub. 10
cm. á lengd og um 1 cm. í breiðari endann, en mjór í hinn og sorfið þar
í hann far, til þess að halda þráðunum, líkt og á heklunál. Ég man
ekki annað en að skeiðin væri í slagborðinu, er dregið var í hana.
p18
Að hnýta fram: Það
skaft minnir mig að væri kallað framskaft eða fremra rifskaft, en þó held
ég að stundum hafi það verið kallað framhnýtingarskaft. Verkið að
hnýta á skaftið, var ekki kallað annað en það eða hnýta á framskaftið.
Framskaftinu var fest við rifinn með snærum, er bundin voru um enda
skaftsins, og lágu svo yfir frambómuna, og ofan á rifinn.
Að draga fyrir: Að skjóta skyttunni þegar byrjað var að vefa var
oft nefnt að draga fyrir eða bara að vefa. Þegar búið var að skjóta
skyttunni og vefarinn hafði gripið hana með hinni lausu hendi, setti vefarinn
fingur þeirrar handar, er þá var laus ofan á milli uppistöðuþráðanna, sín
megin við fyrirvafsþráðinn og ýtti honum í einum stórum boga í áttina að
skeiðinni. Þetta var kallað "að gefa í". Greip svo
í miðju slagborðsins og sló því einu sinni eða tvisvar að vefnum. Sá
ekki aðra aðferð við ígjöf.
p19
Spanstokk er lýst
á 5. og 6. blaði. Skilgalla þekki ég ekki. Þegar oft slitnaði
uppustöðuþráður var það vanalega kennt spunakonum. Þráðurinn illa
spunninn. Að fella vef: Heyrði varla annað nafn á því
verki. Einstaka mann heyrði ég segja, að taka ofan vef, en að fella
vef, var víst miklu algengara. Þráðarendar þeir er af gengu er vefur
var felldur voru kallaðir afvikur. Helst voru afvikur notaðar til
þess að þræða með, t.d. þegar verið var að sauma föt. Einkum voru
það tvistafvikur er þannig voru notaðar. Þóf: Er voð
var þvegin áður en hún var þæfð, var ætíð sá þvottur nefndur "að þvæla",
og þvottalögurinn nefndur þvæli. Vatn var hitað í stórum potti allt
að suðu, síðan var bætt í það þvottaefninu, sem oftast var keyta, sódi
og sápa. Fyrir 1890 var það víst oftast keyta.
p20
Um eða litlu fyrir
aldamót, var farið að nota fleirri efni, sérstaklega sóda og sápu. Oft
var þetta notað allt saman. Voðin var svo þvæld upp úr þessu eins
og þurfa þótti. Þvegin svo vel, helst í rennandi vatni. Ef
lækur eða á var ekki við bæinn, var oft farið til næsta bæjar, eða 2-3
km. til þes að komast að rennandi vatni, því áríðandi var að voðin væri
vel þvegin. Væri ekki um neitt straumvatn að gjöra, var ausið uppá,
sem kallað var, en það var seinlegt. Voðin var undin þannig: Þegar
búið var að fullþvo voðina, var stampurinn eða balinn borinn að einhverjum
dyrum, oftast bæjar- eða skemmudyrum, þar sem góðar og stórar hjarir og
lokukengur var. Þá voru teknir 2 sterkir tréstafir, t.d. sterkir
broddstafir. Annar skorðaður við efri hjarakeng og loku þvert fyrir
dyrnar. Hinn stafinn hafði sá í höndum, er vinda skyldi. Fjarlægðist
hann nú dyrnar, síðan var sínum endanum brugðið um hvorn stafinn, en einn
eða fleirri gættu þess, að ekki drægjust sundur endarnir á voðinni er vixllagðir
voru mitt á milli stafanna. Væri voðin löng og þung, þurftu oft fleirri
að halda undir voðina á meðan hún var blautust. Oft var hellt yfir
hana vel
p21
vel heitu vatni,
áður en farið var að vinda. Þótti vindast betur væri hún heit. Þegar
allt var tilbúið, fór sá er úti var að snúa upp á voðina með stafnum, snéri
alltaf til sömu handar, þar til voðin var þurrundin. Voru þá oftast
farnar að myndast snurðuliðir á voðinni. Sá þurfti að vera vel sterkur,
er voðina vatt, ef hún var löng og þung. Fínt vaðmál var vanalega fastara
undið en gróft, því það þótti fínni áferð á þurrundnu þófi en blautu.
Hvar þæft var og hverjir það gjörðu, fór eftir heimilisástæðum.
Væri gott rúm í íveruhúsum, var þæft inni. Ef ekki, þá var
venjulega þæft í fjósi, vegna hlýinda, því betra var að þæfa í hlýju húsi.
Vanalega var þæft á hlera eða hurð. Væri þæft í fjósi var hlerinn
lagður í básinn og þófarinn, em ætíð var snöggklæddur og berfættur studdi
sig við milligjörð básanna, en væru þær of lágar var reiptagli bundið milli
stoða og stuðst við það. Þófarinn hnoðaði svo vaðmálið undir fótunum
af kappi. Þegar hann hafði þæft nokkra stund, var farið að hrist
upp eða "kippa", sem kallað var. Það var þannig gjört,
að 2 tóku í annan enda voðarinnar, annar tók hornin á voðinni sitt í hvora
hendi, en hinn tók í jaðra voðarinnar um það bil hálfan annan meter frá
endanum
p22
því næst breiddu
þeir út endanum, eins og hæft var. Þar næst færðu þeir sínar eigin
hendur alveg saman en linuðu þó ekki á takinu, kipptu svo örsnöggt í sundur
höndum sínum svo snöggt, að oft heyrðist hvellur. Þetta var endurtekið
2-3 eftir því er þurfa þótti. Síðan færðu þeir til hendurnar. Sá
er endann hafði tók í jaðrana þar sem hinn hafði áður, en þófarinn tók
við endanum og lagði voðina á hlerann og gætti hans. Þetta var endurtekið
voðina á enda. Hvenær voð var fullþæfð fór eftir ástæðum, t.d. var
ekki svellþæft vaðmál er átti að hafa í rekkjuvoðir og þynnri föt. Aftur
á móti var mikið þæft slitfatavaðmál. Voðin var hrist "kippt",
hub. á klukkutíma fresti. Ekki þekkti ég þófarabita, en venjulega
var eitthvað haft við í mat, og þófara gefið aukakaffi, oft með brauði
t.d. lummum. Þegar búið var að þæfa var voðin undin mjög
fast og slétt upp á fjöl og sett undir þungt farg og pressuð fleirri daga.
Ég held að farið var að pressa og lóskera hér, var oft sent fínt
vaðmál t.d. í peysu og jakkaföt til pressunar.
p23
Þó nokkuð var gjört
að því að hafa taglhár í leppa. Oftast held ég að karlmenn hafi unnið
þá. Hrosshárið var spunnið eins og í reipi, líklega þó heldur fínna.
Síðan voru prjónaðir úr því venjulegir leppar, og hafðir í skónum,
annaðhvort einir eða undir ullarleppum. Sumir höfðu óspunnið hrosshár
undir skóleppunum. Þetta þótti gott ráð við fótakulda. Tátiljur:
Hér um slóðir hafa líklega verið lítið notaðar tátiljur, en ég heyrði
föður minn segja frá þeim og einn mann sá ég nota þær. Það voru skór.
p24
Þessa þulu lærði
ég sem barn. Aldrei heyrði ég fullorðna þófara fara með hana, en
börn kváðu hana oft, er þau þóttust vera að þæfa. Bárður minn á jökli -
leggstu á þófið með mér - ég skal gefa þér lóna - í leppana innan í skóna
- naglabrot í bátinn þinn - og hálfskeifu undir hestinn þinn - ég skal
gefa þér gull í skel - og meira, ef þú þæfir vel.
Nr. 7709
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Því miður kann ég fátt frá vefnaði að segja. Sjálf
hef ég aldrei ofið, en fyrst þegar ég fer að muna, var til vefstóll á heimilinu.
Ég var mjög ung þegar hætt var að vefa að staðaldri á Smáhömrum og treysti
mér engan veginn til að greina frá heiti á hinum ýmsu hlutum vefstólsins.
En þess skal getið að mynd C kemur mér kunnuglegast fyrir sjónir. Ekki
mun hafa verið byrjað að vefa fyrr en eftir áramót, því sjóróðar voru stundaðir
frá réttum til jóla. Hjónin á Smáhömrum, sem þá voru Matthildur Benediktsd.
og seinni maður hennar Björn Halldórsson, hjálpuðust að við að setja upp
vefinn, en hann óf. Það man ég ekki eftir að hún gerði, en hún var
frábær spunakona fram á elliár. Úr tvisti var ofið efni í lök (hvítt),
einnig í milliskyrtur karla, ýmist röndótt eða rúðótt. Úr ull voru
ofnar rúmábreiður og vaðmál í ytri föt, einkum karlmannsbuxur. Þar
sem ég þekkti til, var hætt að vinna vaðmál í rekkjuvoðir og nærföt. Þá
voru prjónavélar komar til sögunnar og prjónaföt tekin við af vaðmálsnærfötum.
Hringprjónavélar komu fljótt á flest heimili. Þó hægt færi
urðu breytingar á klæðnaði fólks. Þegar komnar voru fasta verslanir
á Hólmavík, fór að fást ýms vefnaðarvara, sem áður var sjaldséð, t.d. klæði
í peysuföt, sem þá voru spariföt kvenna, cheviot ofl. ensk ullarefni í
karlmannaföt. Þá voru einnig komin á markað innlend verksmiðjutau.
Ekki man ég hvenær hætt var að nota vefstól á Smáhömrum,
eitthvað mun hafa verið gripið til hans á fyrri stríðsárunum, svo man
p2
ég að farið var að
lána á aðra bæi, vefjarskeiðar, skyttur ofl., ef eitthvað bilaði. Upphaflega
var allt til, sem tilheyrði vefstól og vefnaði, t.d. voru til spólurokkur
og balbínurokkur, sem ekki voru notaðir til annars.
Tvistur sem afgangs
var frá þessum tíma, var árum saman notaður í þræðingar (við fatasaum).
Kannast einnig við "afvikur", notaðar til hins sama. Vefstólar
munu ekki hafa verið til á hverjum bæ, en ég þekkti dæmi þess að vefarar
tóku vefnað heim til sín, og man ég að nefna 2 menn, sem það gerðu í Tungusveit.
Það var Eggert Einarsson, bóndi á Tindi og Guðmundur Björnsson, Miðdalsgróf.
Oftast voru það karlmenn, sem ófu. Þó voru undantekningar
á því. Soffía á Sandnesi, var orðlögð vefnaðarkona, og munu dætur hennar
og etv. fleirri afkomendur hennar hafa tekið það í arf. Um
eða fyrir síðustu aldamót óf Anna Eymundsdóttir, Bæ á Selströnd, vaðmál
í peysuföt handa sér, og saumaði þau sjálf, en móðir hennar Guðbjörg Torfad.
frá Kleifum spann þráð og fyrirvaf. Mér hefur áskotnast smá
vaðmálsbót úr þessu peysupilsi. Annað er ekki eftir af því, og þennan
bút sendi ég nú Þjóðminjasafni til varðveislu. Engan annan gamlan vefnað
hef ég undir höndum. Mér er sagt að Anna hafi ekki átt vefstól,
en henni þótti mjög gaman að vefa og greip í það, ef tækifæri gafst. Um
árabil var hún búsett á Hólmavík. Þá óf hún gólfrenninga og mottur,
svokölluð "tuskuteppi". Uppistaðan var netagarn, fyrirvafið niðurklipptar
tauræmur eða prjón.
p3
Þessi tuskuteppi
voru víða notuð á þeim árum. Þau voru stöðug á gólfi, hlýleg og endingar
góð, af því hafði ég reynslu. Þeir renningar sem ég sá voru með einskeftuvefnaði,
fast ofnir og endarnir bryddaðir en ekki faldaðir. Þeir voru þverröndóttir.
Aths: Eins og vaðmálspjatlan, sem ég sendi ber með
sér, er hún ekki tekin af ónotuðum stranga. Fyrst var saumað peysupils
og notað árum saman, uppúr því var saumað kjólpils og að síðustu síðbuxur
á dótturson vefarans, og úr þeim er þessi bót klippt. Þetta sýnir
endingu íslenska vaðmálsins, og því get ég þess hér.
Nr. 1715
p1
Ull og tóvinna 3.
Eins og ráða má af titilblaði eru kynni mín af vefnaði með hinum
eldri aðferðum, og þeim tilgangi að fullnægja þörfum heimila fyrir fataefnum
og öðrum ofnum vörum bundin við stutt tímabil. Aðallega árin 1914-28.
Á þeim árum var heimilisiðnaður almennt, og þó einkum vefnaður, á
undanhaldi. Með tilkomu prjónavéla var fljótlega hætt að nota heimaofin
efni í nærfatnað, og útlendar vefnaðarvörur leystu einnig heimavefnaðinn
smátt og smátt af hólmi, sem efni í ytri fatnað og rúmfatnað.
Svör mín eru, að því er eigin reynslu varðar, byggða á því sem gerðist
á þessu upplausnartímabili. Þar sem vikið er að vinnubrögðum frá
því fyrir og um aldamót, er byggt á frásögnum foreldra minna, og nokkurra
annarra mér eldri manna, er náin kynni höfðu af heimilisiðnaði, frá því
um 1880 og fram yfir aldamót. Fram yfir aldamót var árlega
"unnið til vefja" á því nær hverju heimili, nema sérstök forföll
hömluðu. Innri sem ytri fatnaður var að mestu leyti heimatilbúinn
og úr ull. Meirihlutinn ofinn, en nokkuð prjónað. Þar sem karlmenn
sóttu sjóróðra á vertíð, var reynt að ljúka vefnaði, sem mest áður en þeir
fóru í verið. Var þá jólafasta og tíminn frá nýjári til vertíðar
annatími við vefnað. Oft var það bóndi sjálfur, en stundum aðrir,
svo sem vinnumaður, sonur bónda, eða húsfreyja, en algengara var að karlmenn
önnuðust vefnað.
p2
Á þessu tímabili
(1880-1900) var það algengt á stærri heimilum, að vefari sæti allann daginn
í vefstólnum, og honum væru ekki ætluð önnur verk. En á fámennum
heimilum, var það algengt að ofið var aðeins milli mála, eða aðeins fáa
klukkutíma um miðjan daginn. Á síðara tímabilinu (1914-1928) var
aðallega ofið síðari hluta vetrar, frá því á þorra og fram um sumarmál.
Ástæða til þessarar seinkunnar var meðal annars sú, að vegna fólksfæðar
voru voðarefni ekki tilbúin frá hendi spunakvenna fyrr en langt var liðið
á vetur. Afköst við vefnað voru misjöfn eins of við aðra vinnu, og
margt getur tafið vefarann. Voðir ganga misjafnlega vel fram, eftir
því hvort voðarefnið er fínt eða gróft. Einnig var ofið misjafnlega
fast, og hefur það líka áhrif að þessu leyti. Þá ganga voðir mishratt
fram, eftir því hvaða vend er ofin. Einskefta vefst t.d. hraðar fram
en vaðmál. Þá er mikilvægt að uppistaða sé svo sterk, að hún slitni
ekki neitt að ráði. Enn tefur það vefara, ef ofið er þverröndótt
eða með tvennskonar fyrirvafi (salún). Helst voru afköst vefara miðuð
við vaðmálsvefnað, og þá miðlungsgrófar voðir, svo sem efni í rekkjuvoðir.
Þótti það allgóður gangur, ef ofin var að meðaltali 3/4-1 alin á
klukkutíma, og væri þá spólað fyrir vefarann. Æfðir og duglegir vefarar
ófu meira en þetta í skorpum. Mest afköst við vefnað, sem mér er
kunnugt um, eru það að vefari óf 30 álna vaðmálsvoð á einum
p3
degi, en líklega
hefur vinnutíminn verið nokkuð langur þennan dag. Ef til vill allt
að 20 klst. Ekki var að ræða um vefnaðarkennslu, er því nafni
gæti heitið, nema um væri að ræða skraut eða listvefnað (salún, glit).
Heimilismenn, sem höfðu tækifæri til að fylgjast með öllu starfi
vefarans, lærðu nær ósjálfrátt allar helstu aðferðir, sem notaðar voru
og gátu undirbúningslaust sest í vefstólinn, og ofið með sæmilegum árangri,
ef nauðsyn krafði. Það var því mest komið undir heimilisástæðum,
og því hvernig hagkvæmt þótti að skifta verkum, hvenær menn byrjuðu að
vefa. Sumir hófu því vefnað ungir, um og upp úr fermingu, en aðrir
síðar á ævinni, þegar þörf kallaði. Vandasamar vefnaðargerðir, svo
sem salún, glitvefnaður og jafnvel vormeldúkur, þóttu þó ekki meðfæri annarra
en reyndra vefara, sem kynnt höfðu sér þessar vefnaðargerðir sérstaklega.
Glitvefnaður hafði sérstöðu, sem nokkurskonar listvefnaður og ófu
það konur nær eingöngu. Lítið mun hafa verið um glitvefnað í uppsveitum
Mýrarsýslu eftir aldamót. Vefarar tóku stundum verkefni af öðrum
heimilum og ófu gegn borgun, ýmist í peningum eða vinnuskiftum. Tekjur
af þessu voru þó svo litlar að fremur mátti telja aukagetu en atvinnuveg.
Gjald fyrir vefnað var miðað við álnatal voðar, og gat verið dálítið
mismunandi eftir tegund.
p4
Vefstóllinn hét í
daglegu tali "vefstaður". Um kljásteinavefstól þekki ég
engar sagnir, aðrar en þá, að afköst sæmilegrar vefjarkonur við hann, hafi
verið ein alin voðar á dag, og til þess að ljúka því dagsverki, hafi hún
þurft að ganga eina þingmannaleið. Ekki var mikið smíðað af vefstólum
eftir síðustu aldamót, þar sem notkun þeirra fór minnkandi. Foreldrar mínir
létu smíða vefstól nálægt aldamótunum. Smiður var Sigurður Einarsson,
bóndi í Bakkakoti í Stafholtstungum. Vefstóll þessi er enn til, en
hefur ekki verið notaður síðastliðin 20-25 ár, og er nokkuð farinn að láta
á sjá, vegna lélegrar geymslu. Hann er í aðalatriðum af þeirri gerð,
sem mynd B sýnir, en þó með nokkrum frávikum. Í stað fótstykkis eru
langbönd til hliðanna að neðan og þverslá að framan eins og á mynd A. Setubekk
er krækt með löngum krókum í járnlykkjur framan í framstólpum og framan
á stólpana eru negldir sérstaklega tilsniðnir trékubbar, sem halda setubekknum
í hæfilegri fjarlægð frá bómu. Slagborð er hengt upp á þann hátt,
að uppihöldin mynda tvíarma gafla að ofan, og er þeim smeygt upp á kjálkana.
Járnteinar ganga gegnum gaflana ofan við kjálkana og leika þar í
raufum á járnum,sem fest eru ofan á kjálkana. Tvö sívöl trékefli
liggja þvert yfir vefstólinn milli kjálkanna aftanverða, en yfir þau liggja
hafaldasnærin, er halda uppi hafaldakömbunum. Að neðan er bundið
upp (krækt upp) með grönnum hlekkjafestum í stað snæra.
p5
Slöngurifur (aftari
rifur) eru niðri, ens og á mynd B, en margir eldri vefstólar höfðu rifinn
uppi. Tvíbreiðir vefstólar þekktust, en voru ekki algengir og hraðskyttuvefstólar
voru mjög fágætir. Vefstólar voru allvíða til (1914-1928),
en þau heimili voru þó mörg, sem ekki áttu nothæfan vefstól. Voðarefnum
frá þeim heimilum var ýmist komið fyrir til einhvers nágranna, eða vefstóll
var fenginn að láni. Oftar en hitt með þeim hætti, að fegið var leyfi
vefstólseiganda, til að vefa heima hjá honum, en vefstóllinn ekki fluttur
milli bæja. Vefjarskeiðar nefndust "ritti". Þær
voru yfirleitt útlendar að uppruna, en fyrir aldamót mun þó nokkuð hafa
verið smíðað af þeim innanlands. Vefjarskeiðar voru flestar 5 kvartil (30
þumlungar) að lengd og voru nefndar eftir tannafjölda á kvartili. Algengastar
voru 60-72-90 tanna vefjarskeiðar, þó að fleirri gerðir væru til. Á
útlendu vefjarskeiðunum var tannafjöldi á kvartili grafinn í aðra endatönnina,
sem gerð var úr gildari stálteini en hinar tennurnar. Vefjarskyttur
voru smíðaðar úr þéttum viði, íslensku birki, og þótti nokkur vandi að
fá á þær gott lag. Endarnir dragast saman þvínær í odd, en sveygjan frá
belgnum er önnur að framan (þeim megin sem veit að skeiðinni), en að aftan
og sama gildir um samdráttinn til endanna að ofan og neðan. Oddar
skytturnnar eru varðir með málmhlíf, oft úr látúni. Undir vönduðum
skyttum voru
p6
svokölluð skíða,
mjóar látunsþynnur undir bríkunum sitt hvoru megin við belginn. Þráðargatið
á skyttunni var einnig vandað að frágangi. Það varð að vera hóflega
langt, ef vel átti að rekjast af spólunni. Til að koma í veg fyrir
að fyrirvafið myndaði skorur út frá endunum á gatinu, voru þunnar glerplötur
felldar inn í tréð að utanverðu og klætt þar utanyfir í kringum gatið með
málmþynnu. Spóluteinninn var nefndur "skyttuteinn" eða
aðeins "teinn". Hann var með litlum snúð nálægt öðrum enda,
sem hélt við spóluna, þegar húnvar látin í skyttuna eða tekin úr henni.
Spólur voru úr blikki, pípan ekki kveikt að öðru leyti en því að
snúðar voru kveiktir á báða enda. Spólurokkar voru oft gamlri spunarokkar,sem
hnokkatréð hafði verið tekiðð af, en járnteinn rekinn upp í pípuna. Fyrr
(1880-1900) var nokkuð um handsnúna spólurokka, sérstaklega smíðaða til
þeirra nota. Spanstokkur (spannstokkur), var notaður til að halda voðinni
út á breiddina meðan ofið var. Hann var smíðaður úr góðum viði (eik),
og voru amk. 2 gerðir algengar, en ekki kann ég fyllilega að lýsa nema
annarri, sem sýnd er á teikningu. Það hét að "leggja
upp" að ákveða lengd voðar úr tilteknu magni af vefjarþræði eða vefjargarni.
Hesputré (skrepputré), sem mældu lengd þráðar, vor allvíða til, og
væru þau notuð mátti reikna þráðinn út, svo að ekki skeikaði. Algengara
var þó að vigta
p7
þráðinn í hnyklum,
og ákveða lengd voðarinnar út frá þyngd. Eftir gerð þráðarins og
eiginleikum, var ákveðið hve mikið mætti leggja upp úr mörkinni (250 gr.).
Ekki var þyngd sauðarvalanna, sem undið var á dregin frá. Fyrst
athugaði vefari hversu grófur þráðurinn var og hve mikið þyrfti að "varpa"
voðina, en með varpi var átt við þráðafjölda uppistöðu á hvern þumlung
breiddar. Sem dæmi um þessi vinnubrögð má setja varp í meðalgrófa
vaðmálsvoð (t.d. efni í rekkjuvoðir). Breidd voðarinnar í skeið skyldi
vera 27 þumlungar, varp 40 þræðir á þumlung og þráðafjöldi als 1080. Litist
vefara þráður í slíka voð, fínn og vel spunninn og úr vel þveginni vorull
að mestu eða öllu leyti, taldi hann hóflegt að leggja upp þrjár álnir úr
mörk, en minna ef þráðurinn var í grófara lagi eða að verulegu leyti úr
óhreinni ull. Vanir vefarar fóru furðu oft nærri um það, hve mikið
mátti leggja upp, en út af því gat þó brugðið. Var þá sagt að þráðurinn
rekist betur eða verr, en við ar búist. Oftar var það að á skorti,
svo að ekki fékkst fyrirhugaður þráðafjöldi í vefinn. Oftast mátti
sjá þetta fyrir alllöngu áður en rakningu ar lokið, og varð þá að taka
ákvörðum um hvað gera skyldi. Vinda mátti upp, það sem búið var að
rekja, en til þess þurfti jafnmarga menn og þræðirnir voru, sem raktir
voru í einni ferð. Til athugunar kom að minnka varpið, en ef þráður
raktist vonum
p8
verr, benti það til
þess að hann væri þybbnari en búist var við, og fyllti betur upp. Ef
ekki var nema um litla vöntum að ræða, gat komið til mála að mjókka voðina,
sem því nam. Stundum var unnt að fá spunninn þráð til viðbótar. Loks
kom til álita að breyta til um vend frá upphaflegri áætlum. Væri
t.d. upphaflega gert ráð fyrir vaðmálsvend, mátti ef til vill vefa klæðavend
eða einskeftu í staðinn, en þær vendir þurfa minna varp. Vaðmál þótti
hæfilega varpað, ef þyngd þráðar og fyrirvafs var ámóta, en fyrirvafs þó
heldur meiri. Varplitlar voðir kröfðust meira fyrirvafs og þóttu lakari
að áferð og endingu. Væru voðir aftur á móti mjög mikið varpaðar
(stríðvarpaðar), gátu þær orðið harðar og óþjálar. Heimaunnið efni
í uppistöðu í vef nefndist "þráður" eða "vefjarþráður",
ef styttra orðið gat misskilist. En "veftur" var heiti
fyrirvafsins, þó að orð eins og fyrirvaf og ívaf væru stundum notuð og
öllum auðskilin. Vefur var rakinn á "rakgrind".
Ekki þekki ég nema eina gerð rakgrinda, frá þeim tíma sem hér er
átt við, en vel má vera að fleirri hafi verið til. Rakgrindur þessar
stóðu lóðréttar og snérust á ás í miðju, er náði bæði niður úr grindinni,
og upp úr henni. Lék neðri endinn í þar til gerðri holu í trékumm,
sem grindin stóð á, en efri endi í hólk eða leðurlykkju, sem fest var við
loftbita eða á annan hátt yfir grindinni. Nokkur brögð voru að því
p9
rakgrind vantaði
á bæjum, þó að vefstóll væri til. Var þá farið með voðarefni til
nágranna, sem betur bjó að þessu leyti, og fengin aðstaða til rakningar
hjá honum. "Hælar" hétu trén,sem tóku við endum slöngunnar,
og tók það nafn yfir hvorttveggja, þvertréð á milli arma grindarinnar og
tréteinanna, sem mynduðu skilin á slöngunni. Talað var um efri hæl og neðri
hæl, þegar verið var að rekja. Heyrt hef ég vefara úr Árnessýslu
nefna hælatré þetta "krísholt". Áhöld til að "balbína"
voru ekki algeng, en þekktust þó. Snældurnar, sem spólað var á hétu
balbínur, og þær voru settar í balbínustól á meðan rakið ar af þeim, en
verkið (að spóla snældurnar), að balbína.
Þráðarhnyklar voru
látnir velta í ílátum af ýmsu tagi, sem týnd voru saman til þeirra nota,
á meðan rakið var. Oft voru það matarskálar, svonefndar spilkonur,
þvottaskálar, snældustokkar og jafnvel næturgögn. Til þess að varna því
að hnyklarnir skoppuðu upp úr ílátunum var vefjakamburinn lagður flatur
ofan á ílátaröðina og þráðarendarnir þræddir í gegnum hann yfir miðju hvers
íláts, en rakningsspaði var ekki notaður. Lengd uppistöðu
var mæld þannig, að einn þráður var stikaður og undinn jafnóðum upp á annan
þráðarhnykil. Þegar fyrirfram ákveðin lengd hafði verið mæld, var
brugðið kappmellu á hinn mælda þráð og látinn í hana bandspotti með öðrum
lit en þræðinum. Mældi
p10
þráðurinn var aftur
undinn á sinn upphaflega hnykil. Byrjað var að rekja efri hæl og
þegar rakið var niður eftir grindinni, sagði misliti bandspottinn til um
það hvar neðri hæl skyldi setja. Ekki var föst regla fyrir því hve
margir þræðir voru raktir í einu. Fyrsti "fetinn" var settur
á efri hæl með þeim hætti að endarnir voru jafnaðir og hnýttur á þá þverhnútur.
Þráðunum skift sem næst til helminga og lykkjunni smeygt upp á þann
tein hælsins, sem tók við endaskilinu. Ekki var neitt sérstakt heiti
á þessu skili. Þegar snúið var við í hælunum, var fetinn lagður yfir
þann hæltein, sem fyrr var komið að og síðan brugðið undir hinn, og yfir
aftur til baka, og þá undir fyrri teininn. Lágu fetarnir þannig á
misvíxl milli teinanna. Þráðaumferð frá efri hæl niður á neðri hæl,
og aftur upp á efri hæl, hét "umferð", en þræðirnir, semsamferða
urðu milli hælateina, "feti". Rakið var neðan að slöngunni
á rakgrindinni. Umferðir voru taldar á neðri hæl öðru hvoru, eftir
því sem rakningu miðaði fram og brugðið bandi utanum þá, sem búið var að
telja til aðgreiningar frá þeim, er við bættust síðar. Ekki þurfti
nema einn mann til að rekja vef, en algengt var að stálpað barn eða unglingur
væri vefara til aðstoðar við það verk. Fullrakin uppistaða í vef
hét "slanga". Áður en hún var tekin af rakgrindinni þurfti
að "hnýta í skilin". Sterkt band (seglgarn), var dregið
í skilin á hælunum og hnýtt vandlega ofan á slöngunni. Að því búnu
var efri hæll leystur
p11
og látinn siga dálítið
niður. Slaknaði þá á slöngunni, svo að taka mátti hana fram af hælnum.
Vefari tók nú um slönguna, svo sem 1/2 alin frá enda, gerði þar á
hana lykkjuhnút, og herti dálítið að. Með vinstri hendi hélt vefari
við slönguna um hnútinn, en fór með hægri hendi í lykkjuna og dró nýja
lykkju af slöngunni í gegn, og þannig koll af kolli, þangað til slangan
var á enda. Halda þurfti við rakgrindina meðan tekið var af, svo
að slangan slaknaði ekki um of og hryndi niður. Var það verk aðstoðarmanns,
ef viðlátinn var, en annars gerði vefari það með fætinum. Aðferð við að
rekja langröndóttar voðir var í aðalatriðum sú sama, og gat hvorttveggja
verið að litum væri blandað í feta, eða hver litur væri rakinn fyrir sig
í sjálfstæðum fetum. Ekki þekktist nein algild regla um það, hve
mikið voðir styttast í vefnaði meiðað við lengd slöngu. Er það nokkuð
mismunandi eftir efni uppistöðu. Ullarþráður tognar nokkuð við áreynslu
í vefstól, og vegur það nokkuð á móti styttingu vegna vefjarbindingarinnar.
En að sjálfsögðu fara bútar af báðum endum slöngunnar í afföll vegna
framhnýtingar og afvekna, en þetta eru fastir frádráttarliðir, sem standa
ekki í hlutfalli við lengd voðar. Höföld voru hnýtt á "hafaldatré"
eða "hafaldagrind". Hafaldatréðvar mjór borðrenningur,
rúmlega alin að lengd. Niður í renninginn voru tappaðir 2 tréstandar,
annar rétt við enda, en hinn nálægt miðju, og var fjarlægðin milli ytri
brúna þeirr hafaldslengd. Mitt á milli
p12
þessara standa var
grennri og lægri trétittur, en utan um hann var hafaldsaugað myndað. "Hafaldastóll"
var annað áhald, er notað var til að rekja á efnið í höföldin, og geyma
á nýhnýtt höföld þangað til komið var nóg í hæfilega kippu. Lengd
hafaldastólsins (fótstykki), var höfð slík, að rekja mátti á honum efnið
í höföldin. Upp úr fótstykkinu stóðu tréteinar, sinn við hvorn enda,
og á þá var höföldunum raðað, þegar losa þurfti af hafaldatrénu. Hafaldaefni
var sterkt seglgarn, en þráðarhöföld munu hafa verið algeng fram undir
aldamót. Höföld með stálaugum þekktust, en voru ekki talin hafa verulega
kosti umfram önnur. Rakið var í höföldin á þann einfalda hátt, að
seglgarninu var vafið um fótstykki hafaldastólsins enda á milli og umferðirnar
taldar um leið. Þegar komin var hófleg tala t.d. 50 umferðir var
seglgarnið skorið sundur á öðrum endanum og hafaldahnýting gat hafist.
Endarnir á hafaldaefni voru jafnaðir, lykkjunni brugðið á endastand
hafaldatrésins, sem fjár var hnýtingamanni, en hann sat á enda hafaldatrésins,
og hafði það milli fóta sér. Nú voru hnýttir tvöfaldir hnútar (rifhnútur)
beggja megin við miðtitt, og þar með var augað myndað og loks var hnýttur
þverhnútur á hafaldsendann við standinn, sem nær var hnýtingamanni. Hafaldið
var nú fullgert, augað losað af miðtitti og hafaldið látið renna á endastöndum
niður að fótstykkinu. "Vefjarkamur" eða aðeins kambur,
hét áhaldið, sem notað ar til að dreifa slöngunni í hæfilega breidd, þegar
bómað var upp. Kamburinn sjálfur
p13
var nokkurskonar
greiða, búin til á þann einfalda hátt að járnnaglar (hauslausir), voru
reknir með jöfnu millibili í trérenning. Yfir kambinum var lok, er
taka mátti af, og var rauf í því miðju að endilöngu og stóðu endar naglanna
lítið eitt upp í hana þegar kamburinn var lokaður. Við endana voru
trétengi milli kambs og loks. Það hét að "þræða kamb" að
dreifa slöngunni í kambinn. Reiknað var út fyrirfram, hve marga feta
skyldi láta í hverja tönn á kambinum.
"Að setja til"
var samheiti yfir verkið að þræða í kamb "bóma upp" draga í höföld
og skeið, hnýta eða krækja upp og hnýta fram. Verkið hófst á því,
að vefari tók slönguna, rakti upp eina eða tvær lykkjur af henni, fór með
fingur með seglgarninum, sem hnýtt var í endaskilið, og smeygði í það "rifskaftinu".
Því næst opnaði hann aftara skilið á sama hátt og dró í það skilþráðinn.
Skilþráðurinn var sterkur seglgarnsþráður. Við enda rifskaftsins
voru á því göt og skilþráðurinn dreginn þar í gegn og bundinn fastur í
annan endann, en sá endinn, sem dreginn var gegnum skilið, var svo dreginn
í gatið á hinum enda skaftsins og hnýtt þar með hnút og lykkju, sem auðveldlega
mátti leysa. Fetarnir lágu nú í kross milli skafts og skilþráðar,
og var nú dreift reglulega í kambinn frá öðrum jaðri til hins. Að
því loknu var kamburinn settur í þar til gerð slíður á vefstólnum. Tvo
menn, hið minnsta, þurfti til að bóma upp. Hélt annar í slönguna,
en hinn vatt upp á rifinu. Áður en vinding hófst var rifskaftið með
slönguendanum dregið aftur
p14
yfir afturbómu og
niður að rif. Rauf var í rifinu að endilöngu, og féll skaftið ofan
í hana, en trésnúðar "kragar" voru sinn til hvorrar hliðar á
rifnum, og var þeim ýtt inn á enda skaftsins, og héldu þeir því þá föstu.
Kragarnir höfðu ennfremur það hlutverk að styðja að jöðrum slöngunnar,
og þurfti talsverða nákvæmni til að stilla þá, svo að jaðrar yrðu jafnstríðir
og aðrir hlutar slöngunnar. Þegar vefari var búinn að stilla kragana, hófst
vinding upp á rifinu. Sá er hélt í slönguna stóð sem lengst frá vefstólnum,
svo að minna gætti samdráttarins frá kambi. Meðan fyrsti vafningur
var undinn upp á rifinu, var slangan ekki höfð mikið strengt, til að forðast
of mikla áreynslu á rifskaftið, en eftir það var haldið allfast í slönguna.
Undið var upp á rifinu, þangað til síðari endi slöngu var komin aftur
fyrir fremri bómu, en þá var rifurinn settur fastur. Fremri bóma
var nú tekin burt og vefjarkambur sömuleiðis. Vefari tók slönguendann
fór með fingri með seglgarninu, sem hnýtt var í aftara skilið og greiddi
það aftur á bómu. Annað skilskaftið var nú sett í þetta skil, og því ýtt
svo langt aftur að það sæti aftarlega á bómunni. Fremra skilið greitt
á sama hátt og síðara skilskaftið sett í það. Seglgarn var nú dregið
í gegnum göt á endum skilskaftanna, og þau bundin niður á bómuna. Hafaldakambarnir
með hafaldasnærum og keflum voru teknir úr vefstólnum á meðan bómað var
upp, en nú voru þeir aftur
p15
settir á sinn stað.
Hafaldasnærin, sem halda uppi hafaldakömbunum, voru bundin saman
skammt fyrir ofan hafaldasköftin á meðan dregið var í höföld. Hófst
nú ídráttur í höföld, eftir að skorið hafði verið út úr lykkjunni á slöngunni.
Venjulega unnu 2 saman það verk, vefari hagræddi höföldunum
og dró þræðina fram úr þeim, en aðstoðarmaður, oft unglingur, rétti fram
þræðina eftir vissri röð. Með vissu millibili (á 40 þráða fresti),
var athugað hvort "rétt stæði á", þeas. athugað var samkvæmt
fetafjölda á skilsköftum, hve margir þræðir hefðu verið réttir fram, og
hvort sú tala kæmi heim við þann hafaldafjölda, sem búið var að draga í.
Væri þarna misvísun á milli, var leitað að skekkjunni, og hún leiðrétt,
en að því búnu, voru endarnir í áfanganum teknir saman fyrir framan höföldin
og brugðið á þá lykkjuhnút. Krækja var notuð við ídrátt í höföld, og skeið
(sumir vefarar drógu þó í höföld með fingrunum einum). Þetta var
lítill vírkrókur, rekinn inn í stutt tréskaft. Þegar lokið var ídrætti
í höföld, lá næst fyrir að draga í skeið. Ef vefari dró einn í skeiðina,
tók hann 2 "vefjarsnæri", gerði lykkjur á enda þeirra og smeygði
upp á enda skeiðarinnar, og batt snærunum upp um kjálka vefstólsins þannig,
að skeiðin hékk fyrir framan höföldin nokkru neðar en hafaldaaugun. Skeiðin
lá flöt í snærislykkjunum og hallaði lítið eitt fram frá höföldunum. Vefari
tók nú krækjuna, stakk henni upp um þá tönn skeiðarinnar, sem þræða
p16
skyldi í jaðri, snéri
krækjunni þvert á tannir skeiðarinnar og lét hana hanga þar á meðan hann
leysti fyrsta hnútinn á uppistöðunni. Tók frá þann endafjölda, sem
fara átti í tönn á skeiðinni, brá þeim á krækjuna og dró niður úr skeiðinni.
Að því búnu færði hann krækjuna í næstu tönn, og svo koll af kolli. Þegar
heill hnútur var kominn í skeiðina var endunum skift nálægt miðju og brugðið
á einföldum hnút undir skeiðinni. Ef 2 unnu saman að ídrætti í skeið,
var skeiðin sett í slagborðið áður en byrjað var, og það bundið fram að
bómu. Vefari fór þá inn í vefstólinn milli hafalda og slagborðs og
rétti fram þræðina, en aðstoðarmaður var yfir framan vefstólinn og dró
endana fram með krækjunni. Þegar búið var að draga í skeið, var "hnýtt
upp" (krækt upp) að neðan, "fótskammelin" tengd við
hafaldakamba með hjálp "hliðarskammela", eftir vissum reglum,
eftir því hvaða "vend" skyldi vefa. Þá var "framhnýtingarskaftið"
tengt við framrifinn með vefjarsnærunum, en þau voru 3, gerð úr harðsnúnu
snæri. Á öðrum enda hvers snæris var stutt lykkja, sem hinn endi
snærisins var dreginn gegnum eftir að því hafði verið brugðið utan um rifinn.
Þegar þannig hafði verið gengið frá snærunum á rifnum, vorulausu
endarnir teknir fram yfir bómuna og framhnýtingarskaftið hnýtt í snærisenda
milli bómu og slagbors. Skilsköftin voru nú leyst frá bómunni, en seglgarnið,
p17
sem dregið var í
göt á endum þeirra, hnýtt saman á endum svo að skilsköftin gátu ekki dregist
úr skilinu. Þá voru böndin af hafaldasnærunum einnig leyst. Vefari
kom nú setubekknum fyrir á sínum stað, settist í hann og "framhnýting"
hófst. Byrjað var í miðju og hnýttur þar einn hnútur, en þar næst
voru hnýttir hnútar sinn við hvorn jaðar, svo að skaftið fengi fast jafnvægi.
Stigið var skil áður en framhnýting hófst, og það greitt fram áður
en hnýtt var yfir skaftið. Reynt var að eyða sem stytstum endum í
hnútana, en þó höfð örstutt lykkja á hnútunum, svo að leysa mátti þá upp,
en fyrstu hnútarnir vildu slakna á meðan á hnýtingu stóð og þurfti þá að
herða þá upp í lokin. Þegar hnýtt hafði verið fram, var "dregið
fyrir". Stigið var annað skil á vefinn og skyttunni skotið í
gegnum það "gefið í", stigið aftur, nýtt skil og fyrirvafsþræðinum
ýtt varlega fram að skaftinu mað slagborði og skeið. Vefa þurfti
nokkra fyrirdrætti með varúð á meðan þráðahóparnir, sem voru saman í hnútum
voru að fá jafna dreifingu í voðinni, en brátt mátti herða slögin, og þegar
búið var að vefa 1-2 þumlunga var spannstokkurinn settur á sinn stað og
vefnaður hófst af fullum krafti. Þegar voðin var búin að vefjast
rúma umferð um framrif, voru vefjarsnærin tekin burt. Gefið var í
með einum fingri í miðju voðar með þeirri hendi sem skaut skyttu, um leið
var stigið skil og slegið, þ.e.
p18
slagborðinu kippt
snöggt fram að voðinni, með sömu hendi.
Voð var mæld jafnóðum
og ofið var með "mæliþræði" snúnum saman úr grönnu seglgarni
(skógarni), er mældi eina alin. Áður er á það minnst að þráðaslit
tefði vefara. Það var talið lítið slit, "þráðurinn hélt vel",
ef ekki slitnuðu nema 4-5 þræðir á alin. Væri slit mjög mikið, var
sagt að þráðurinn "hryndi niður". Vefari hafði í spólustokknum
afgang af þráðarhnykli "þráðarbót" til að bæta með. Tveir
hnútar voru algengastir á vefjarþræði, "reipahnútur" og "rembihnútur"
(rifhnútur), en "þverhnút" mátti ekki nota á vefjarefni, því
að hann er fyrirferðarmikill og harður, veitir mikið viðnám í höföldum,
og skeið fer illa í voð (slithætta). Skilgallar eru sjaldan alvarlegir,
ef höföld eru samstæð og uppbinding í lagi. Helst er það að einn
og einn feti hafi fengið á sig snúning í rakningu og þurfi hagræðingar
við fyrir aftan höföld. Það hét "færa", sem ofin var í
einu á milli þess að undið var ofan af afturrif og tilsvarandi upp á framrif
og verið að færa slönguna og voðina þannig til í vefstólnum hét líka "að
færa". Þegar búið var að gefa eftir á aftari rif, og vinda voðina
hæfilega langt fram, með því að snúa framrif, var afturrifur settur fastur
og "hert á" með framrif, eins og hæfilegt þótti að strengja vefinn.
Sagt var að voð "gengi saman", ef hún var til muna mjórri
ofin en slangan í skeið. Vefjargallar gátu stundum komið fyrir og
áttu ýmsar orsakr. Ef tilsetning var ekki í góðu
p19
lagi, gátu jaðrar
orðið skörðóttir og misstríðir. Mjög mikið slit og hnútamergð, sem
því fylgir er líka óprýði á voð. "Brigður" komu stundum
fram í voðum, og orsakast annaðhvort af misjafnri ígjöf eða misgrófu fyrirvafi.
Það hét "að fella vefinn" eða "taka ofanúr vefstólnum"
að ljúka vefnaði á voð. Klippt var á uppistöðuna, svo sem 1/2 þumlung
frá voðinni, afvikurnar dregnar aftur úr skeið og höföldum, skilþráðurinn
leystur af rifskaftinu og afvikurnar teknar fram af skaftinu. Afvikur
voru notaðar við saumaskap, helst til þræðinga, en voru þó ekki hentugar
til þeirra nota, því að þær eru stuttur nálþráður. Um leið og vefur
var felldur, var uppbinding leyst. Vefjarnsæri tekin af aftari rif, hafaldasnæri
bundin saman og voðin undin af framrif í stranga. Voðir úr
ull voru þvegnar úr blöndu af keytu og vatni áður en þær voru þæfðar. Þvælið
var hitað í stórum potti yfir hlóðareldi, þangað til það var orðið snarpheitt,
líklega 70-80 gráður. Þá var því hellt í stóran bala, voðin rakin
niður í þvælið og hreyfð fram og aftur með priki, þvæld góða stund. Að
því búnu var farið með voðina í nokkru af þvælinu að rennandi vatni, og
hún skoluð vandlega. Þess skyldi gætt að voðin kólnaði sem minnst
fyrr en hún kom í skolvatnið, og væri þá rennvot af þvæli. Eftir skolun
var voðin oft látin bíða næsta dags og lausu vatni leyft að síga úr henni.
Þá var enn hitað vatn og hrært út í það lítið eitt af grænsápu.
p20
Voðin var látin ofan
í sápuvatn þetta, og hreyfð til, svo að hún gegnhitnaði jafnt af vatninu.
Þá hófst vinding. Oft var undið fyrir framan bæjardyr eða fjósdyr.
Í dyrunum var skorðað gilt skaft eða járnkarl, og endum voðarinnar
brugðið um hann á misvíxl. Maður stóð við þennan umbúnað og gætti
þess að eigi færi úr skorðum. Sá er vatt var einnig með tréstaut,
gildan göngustaf eða annað álíka. Brá hann því í lykkjuna á voðinni
og gekk frá dyrunum, en þá raktist voðin tvöföld upp úr balanum. Þriðji
maður var við balann, og gætti þess að voðin flæktist ekki ýt fyrir balann
og óhreinkaðist. Langar voðir voru stundum hafðar þrefaldar í vindingu,
og var þá annar endinn á priki vindingamanns. Þegar voðin hafði verið
rakin öll upp úr bala, hófst vinding. Vindingamaður snéri priki sínu
í ákafa, svo að snúður kom á voðina, og vatnið pressaðist úr henni. Þegar
á leið vindingu, fór voðin að hlaupa í snúða, og var ekki hætt fyrr en
hún var öll komin í snúða. Þegar fullundið þótti var snúið ofan af
voðinni til endann, svo að sköftin næðust úr, en að því loknu var voðin
borin inn til þófarans, látin snúa þar af sér og rakin niður fyrir fætur
hans. Best þótti að byrja þófið strax á meðan voðin var enn
volg. Þæft var ýmist í baðstofu eða fjósi. Væri þæft í baðstofu,
var þæft á gólfinu, en í fjóli var þæft í auðum bási og oftast á hurð.
Þæft var undir fótum, og var þófari venjulega á nærklæðum einum
p21
við verkið. Þófari
tróð voðina undir fótum sér og hreyfði til á ýmsa vegu. Voðin var
aðgætt á 1-2 tíma fresti meðan á þófi stóð og hrist upp. Var það
gjarnan hlutverk húsfreyju að annast það verk ásamt þófara eða öðrum heimilismanni,sem
til þess þótti hæfur. Hristarar höfðu 4-5 álna bút af voðinni á milli
sín og héldu í jaðrana, kipptu svo í og frá sér um leið, öllum höndum í
takt. Kom þá snögg sveifla upp á við á voðina og heyrðist hár kvellur,
ef vel var hrist. Við þetta fauk laus ló úr voðinni, og réttist úr
hrukkum. Mjög var það misjafnt hve mönnum sóttist þófið. Góðir þófarar
voru eftirsóttir og oft fengnir á aðra bæi til að þæfa. Venjulega
mun þófari hafa fengið einhvern aukaglaðning í mat á meðan á verkinu stóð
(þófarakaka, aukakaffi). Ekki kann ég þófaraþulur nema eitthvað hrafl
úr þulunni "Bárður minn á jökli - leggstu á þófið mitt - ég skal gefa
þér lóna - innan í skóna - vettlinginn á klóna - þegar ég kann að prjóna
- naglabrot í bátinn þinn - hálfskeifu undir hestinn þinn - mórautt lamb
og gimurskel - og meira ef þú þæfir vel. Ekki veit ég um
neitt sérstakt, sem miðað væri við þegar voð var talin fullþæfð. Réði
þar mat voðareiganda (húsfreyju), sem tók tillit til þess í hvað voðin
var ætluð. Að þófi loknu var voðin enn hrist upp og síðan undin upp
á rúmfjöl. Tveir unnu verkið. Annar vafði upp á fjölina og
strauk voðina
p22
út til jaðranna,
en hinn greiddi voðina fram, og hélt við, svo að hún vefðist þétt. Þegar
voðin var öll undin upp á fjölina var önnur rúmfjöl tekin og vafið að nýju
upp á hana ofanaf hinni fyrri. Voðin lá nú sléttari fyrir og var
strokin sem vandlegast á hina seinni fjöl og vafin sem fastast. Þegar
voðin var öll komin á síðari fjölina, var endinn saumaður niður, svo að
ekki slakaði á. Fjölin með voðinni sett undir farg og látin liggja
undir því, þangað til hún var tekin og þurrkuð. Nokkuð var gert að
því að senda voðir, sem ætlaðar voru í betri fatnað, til þófs, litunar
og lóskurðar í verksmiðjur (Klæðaverksmiðjuna Iðunn, Reykjavík). Til var
það að voðir voru nefndar eftir því til hvers átti að nota efnið, svo sem
buxnavoð, svuntudúkur, hæruvoð. Í rúmábreiður (brekán) þurfti rúmar
6 álnir af einbreiðu, og var lengd slíkra voða ávallt miðuð við að álnatal
voðar yrði margfeldi af þeirri tölu. Einskefta er nafn á
vefnaðarvend, og orðið notað án tillits til efnisins, sem ofið var úr.
Þó var orðið tvistur stundum notað um einskeftuvoðir, ofnar að öllu
leyti úr útlendu bómullargarni, en einnig var sagt að slíkar voðir væru
"garn í garn", og að ofið væri garn í garn þegar bæði uppistaða
of fyrirvaf var "vefjargarn", en slíkar voðir voru oftast með
einskeftuvend. Einskeftuvoðir voru notaðar í margskonar föt og rúmfatnað,
og er ekki á mínu færi að lýsa einstökum gerðum nákvæmlega. Þó skal
lítillega lýst skyrsíuefni,
p23
en ég veit ekki til
að það hafi verið ofið síðan laust eftir 1920. Efnið var tvöfaldur
togþráður, spunninn svo snöggur sem kostur var og helst úr grófu togi.
Þráðurinn var undinn í hnykla á litla tólgarmola, hnyklarnir síðan
soðnir í vatni í 3-4 klst., og hét það að seyða þráðinn. Eftir seyðingu
varð að hespa þráðinn upp og þurrka. Skyrsíuefni var mjög varplítið,
einn í tönn á 72 tanna ritti. Fyrirvaf var samskonar þráður og í
uppistöðu. Vefurinn var ekki sleginn, en fyrirvafinu aðeins ýtt fram
með skeiðinni, og þurfti aðgæslu við að efnið yrði mátulega þétt.
"Vaðmálsvend" var önnur algengasta vefnaðarvendin og raunar
mun hafa verið ofið mun meira með vaðmálsvend en einskeftuvend. Vaðmál
var notað í nærfatnað, rúmfatnað og margskonar ytri föt. Nærfataefni
voru ýmist hvít eða blanda af hvítu og litaðri ull (blágrátt, indigólitur).
Rekkjuvoðavaðmál voru hvít og efni í spariföt voru einnig hvít, en lituð
áður en saumað var úr þeim. Í dagleg ígangsföt var svart og hvítt,
útkoman varð grár litur, ljós eða dökkur, eftir blöndunahlutföllum litanna.
Þráður var mun snúðmeiri en fyrirvar, en að öðru leyti spunnin úr
sama efni. Í nærfatnað og önnur efni,sem ekki máttu vera mjög þykk,
var þráður hafður einfaldur, en í ytri fatnað var hann stundum tvöfaldur
og fyrirvaf jafnvel líka. Þó að það væri sjaldgæfara. "Ormeldúkur"
eða "vormeldúkur"
p24
var ekki algengur.
Vendin var sérstæð og þurfti aukatrissur í vefstólinn þegar hann
var ofinn. Gerðir voru tvær, þráðarormeldúkur og veftarormeldúkur.
Þráðarormeldúkur þótti áferðarfallegri og hrinda betur frá sér vætu
og óhreinindum. Aftur á móti krafðist hann meiri vandvirkni við þráðarspuna
og aðgæslu við vefnað, þar sem þráðafjöldi uppistöðunnar var meir en í
öðrum vendum. Ormeldúkur var notaður í yfirhafnir á ferðalögum, spariföt,
karlmannsbuxur, og fyrir aldamót mun það hafa þekkst að ormeldúkur væri
hafður í sængurver, en hann hélt fiðri flestum vefnaði betur.
"Salún" var nokkurskonar skrautvefnaður og eingöngu notað í rúmábreiður.
Vefjarefnið var ullarþráður, oftast tvöfaldur, stundum var þó notað
svart vefjargarn í uppistöðu, og tvennskonar fyrirvaf, venjulegt fyrirvaf
eins og í einskeftu, einfalt eða tvöfalt og með sama lit og uppistaðan,
og yfirfyrirvaf eða salúnfyrirvaf, amk. tvöfalt og stundum þrefalt. Salúnsfyrirvafið
var með öðrum lit eða litum, en grunnvoðin. Salúnsmunstur voru fram
undir 1920 byggð upp úr ferhyrndum reitum, sem skipað var í bekki þvert
yfir voðina, en síðar kom fram ný gerð, þar sem hringlaga munstur skipaði
sér á bekk með ferhyrningunum,s em enn gengdu mikilvægu hlutverki (daladregill).
Grunndúkurinn í saluni var einskefta, en salúnsfyrirvafinu er skotið
í skil, sem fást við sérstakan ídrátt í höföld og uppbindingu, sem er einkennandi
fyrir salún. Venjulega mun hafa farið eftir
p25
fyrirmyndum þegar
sett voru upp salúnsmunstur. Aðrar rúmábreiður voru daglega
nefndar rúmteppi eða aðeins teppi. Þær voru úr fremur grófu vaðmáli,
þráður venjulega tvöfaldur og fyrirvaf stundum einnig. Algengar voru
stórköflóttar rúmábreiður með mjóum teinum utan með köflunum. Litir
nokkuð dökkir, ýmist sauðarlitir, jurtalitir (litunarmosi ofl.) eða litir
af útlendum uppruna. Hlutar úr aflóga rúmteppum voru auk þess að
vera notaðir í bætur á önnur gatslitin teppi. Stundum notaðir utanum reiðingsdýnur
(klyfberadýnur). Sokkabönd kvenna voru ofin á fæti. Hvort
band var nokkuð á þriðju alin á lengd og þurfti slangan að vera rúmar 5
álnir. Efni var fínn tvöfaldur þelþráður. Rakið var á rúmstólpum.
Sokkabönd voru langröndótt, oft með tenntum bekk í miðju. Bundið
var í skil á báðum endum slöngunnar, og hún síðan undin upp í hönk. Þegar
eftir var hæfilegur spotti, var brugðið tvöföldu bragði utan um hönkina,
skilið greitt frá endanum aftur að hönkinni og tánni á vinsti fæti brugðið
í það. Næst var hafaldað. Til þess var notað sterkt band. Haldið
var í endaskilið með vinstri hendi, en með þeirri hægri var hafaldaefnið
þrætt gegnum slönguna, brugðið yfir alla þræðina í efri skilhelmingi, en
lykkjur dregnar niður á milli þráðanna í þeim neðri í réttri röð. Þegar
þannig var búið að koma bandi á alla þræðina í efra skili, voru lykkjur
að neðan jafnaðar sem best og síðan bundna saman svo að ekki rynni til.
Þegar ofið var,
p26
voru höföldin toguð
niður, þegar annað skilið var ofið, svo að þeir skilþræðir, sem áður voru
að ofan, urðu nú að neðan, og skift var aftur um skil, með því að fara
með hendi í skilið við fótinn, og það greitt fram að höföldum. Fyrirvaf
í sokkabönd var samskonar þráður og í uppistöðu, og af sama lit og jaðarþræðir.
Það var undið upp á flata spýtu, sem jafnframt var notuð til að fara
í skilið og þrýsta fyrirvafinu fram að vefnu. Ekki hef ég
séð gjarðir ofnar í vefstól, heldur aðeins brugðnar reiðgjarðir oddabrugðnar,
en klyfbergjarðir brguðnar þannig, að skilið var tekið þvert yfir gjörðina
í einu. Vandað var til litasamsetningar á reiðgjörðum, svo að fram
kæmu falleg oddamunstur, en við klyfberagjarðir var minna haft að þessu
leyti. Gjarðaefni var spunnið úr hrosshári (faxhári).
Nr. 1250
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefstólar og vefnaður: Því miður verð ég strax að taka fram,
að það sem ég kann að skrifa hér, verður lítils virði í fræðilegu tilliti.
Sjálfur lærði ég aldrei að vefa, og skeytti ekki um að kynna mér
neitt þar að lútandi, meðan tækifæri hefði verið til. Enda þá ætluð
önnur verk. Nöfnin sem ég hef sett á hina einstöku hluta á teikningunni
af vefstólnum, eru nálega öll fengin hjá Árna Jóhannessyni á Vatnsenda,
Þverárhr. V-Hún. En faðir hans var mikill vefari, og Árni nokkuð, einnig
á yngri árum. Vefnaðaraýnishorn sem ég sendi munu bera með sér hvaðan þau
eru upprunnin. Eitt þeirra sýnir venjulega breidd á voð í vefstól.
Frú Fríða Sigurbjörnsd. Sporði, Víðidal hefur sýnt mér ca. 50 ára
gamla flík úr fínu vaðmáli, gallalausa. Það er kvenflík, þá nefnd
"stokkapeysa" með flaueli á börmun og framan á ermum. Ef
Þjóðminjasafninu léki hugur á að eignast þessa flík, væri ráð, að snúa
sér beint til eigandans, áðurnefndrar Fríðu Sigurbjörnsd.
p2
Vefstólar þeir sem
ég hefi séð eru nú allir af sömu eða svipaðri gerð. Og að einu leyti
frábrugðir teikningu þeirri með uppsettri voð er hér fylgir, en það er
að armar þeir er héldu skeiðarslaginu, voru festir að ofan og voru hreyfanlegir
nokkuð fram og aftur, eftir bríkum þeim er skaga fram úr efri hliðum vefstólsins.
En á teikningunni virðist þeim fest neðan frá. Vera má að fagmaður
sæi fleirra útafbrugðið. Hvergi veit ég um nokkrar leifar eða menjar
hins gamla kljásteinavefstóls. Á þessu fyrrnefnda árabili hygg ég
ekki ofmælt að vefstóll hafi verið á öðrum hvorum bæ, og líklega vel það.
Einstöku menn gerðu sér að atvinnu að ferðast milli bæja og vefa.
Oftast mun þó bóndinn sjálfur hafa ofið eða einhver fjölskyldumeðlimur,
tengdafaðir osfrv. Væri tekinn vefnaður, var greitt visst gjald á
hverja alin í voðinni. Það var ofurlítið misjafnt eftir því hver
tegund vefnaðar var. Það var t.d. seinlegra að vefa vormeldúk og
hringavefnað, en blátt áfram vaðmál.
p3
Skeiðin: Stærðin
miðaðist við tölu tanna á einu kvarteli. Var held ég, aldrei heimasmíðuð
eða sá tími hefur þá verið löngu liðinn. Lengd skeiðar í þuml. eða
cm. get ég ekki sagt. En í vefnaðinum var miðað við tannafjölda,
er gat verið 70-80 tanna skeið, upptil 120, og þar yfir. Því fínni
sem þráðurinn var, því tannafleirri var skeiðin sem notuð var, en fínustu
gerðirnar voru óvíða til, og voru fengnar að láni, ef svo stóð á, en flestir
munu þó hafa átt 3 mismunandi gerðir. Skyttan var jafnan
úr harðviði, oddmjó til endanna, er risu nokkuð. Þeir klæddir látúni, ennfremur
voru flatir látúnsteinar venjulega 2 neðan á, svo skyttan rynni liðugar
eftir skilinu. Teinninn sem spólan snérist á, heyrði ég ekki nefndan
sérnafni. Opið á hlið skyttunnar, sem fyrirvafið var tekið út um,
var mjög oft klætt með tölustút af litlu meðalaglasi, því allur málmur
afhvaða taki sem var skarst mjög fljótt í sundur, þar sem bandið í fyrirvafinu
rann um, alltaf á sama stað.
p4
Spólurokkur var oftast
aflóga spunarokkur, en breytt þannig að snælduumbúnaður var tekinn burt.
Skift um brúðutréð, sett lengra og sterkara og þannig frágengið að
brúðan varð hreyfanleg fram og aftur, á þann hátt að hægt væri, bæði að
spóla og balbína á sama rokkinn.
Spjálk, og ekki annað,
hét það áhald, sem notað var til að spenna út voðina, sem næst því er skeiðarslagið
barði fyrirvafið inní uppistöðuna. Spjálkin var í tvennu lagi úr þunnri
fjöl. Breidd til endanna ca. 3 cm. og í þeim 3 járnoddar er var stungið
í jaðarinn í voðinni, sitt hvoru megin. Hún fest saman um miðju á
sérstakan hátt, og gat lengst eða styttst ofurlítið og risið upp um miðju
á meðan hún var færð. Þegar hún var lögð niður, spennti hún voðina
sundur, og var þá lokað með 2 smásnerlum. Ekki man ég svo glöggt
eftir henni, að ég treysti mér til að teikna hana, svo í lagi yðri. Gamlir
vefstólar af þessarri gerð munu vera til á stöku stað. Þannig hef
ég séð einn uppsettan og að því virtist með öllu tilheyrandi í Laufási
við Eyjafjörð.
p5
Að leggja upp: Get
blátt áfram ekkert sagt um og mun vera týnt úr minni flestra, og hefi ég
engan fyrirhitt, sem það kann. Þó til kunni að vera. Hespan
hafði breytilega þyngd, en sömu lengd, ef rétt var unnið. En hespa
var talin 11 skreppur. En gróf- eða fínleiki bandsins var miðaður
við þyngd hennar eða lang oftast 6-5-4 lóða verk, þ.e. hespan var þetta
að þyngd. En hvað umferðin á hesputrénu var löng, man ég ekki. En
eitt lóð var sem næst 5 grömm. Sama er að segja um að reikna í skeiðina.
Um það er ég alls ófróður. Vefjarefnið hét uppistaða, það sem sett
var uppí vefinn og haft snúðharðara en ívafið eða fyrirvafið.
Rakgrind var allstórt verkfæri, 4 álmur eða 2 krossar, ofan og neðan, nákvæmt
mál er mér því miður ómögulegt að segja, en ætla má að breiddin hafi verið
um 2 álnir eða 120-130 cm., eða álman 60-65 cm. Hæðin á grindinni
170-190 cm. Hún var staðsett á miðju gólfi, t.d. í stofuhúsi og fest
þannig ofan og neðan, að auðveldlega snérust. Balbínustóll
fyrir 10 snældur, fylgdi að jafnaði grindinni.
p6
Því miður verð ég
að segja eins og er með það. Allt sem snertir undirbúning undir vefnaðinn,
er mér ókunnugt eða gleymt. Mér er því ekki unnt að skýra frá neinu
sem að því lýtur. Höföld voru búin til úr garni, tvist, eftir
að ég fór að muna til mín. Stálaugu í höföld sá ég. En þau
voru lítið notuð. Þau skáru úr sér bandið eða garnið sem þeim var
fest með á hafaldasköftin, einnig slá á þau ryði við geymsluna yfir sumarið,
og ryðbrann þá garnið algjörlega úr þeim. En hvernig höföld
voru búin til, sá ég ekki. Við að draga í höföld og skeið voru jafnan
2, er sátu sinn hvoru meginn. Hafði annar krók er hann stakk í gegnum
hafaldið, en hinn tók enda úr uppistöðunni og brá á krókinn, er svo var
dreginn í gegn. Hét það að "rétta". Þegar viss þráðatala
var komin í gegn, var brugðið lauslega hnút uppá, og svo haldið áfram uns
lokið var. Eins var farið að þegar dregið var í skeiðina. Nema
stundum eða oftast þurfti að hafa fleirri en einn þráð í hverju bili á
skeiðinni. Tvíbreiðan vefstól sá ég aldrei.
p7
Sýnishorn þau af
vefnaði, er ég sendi þurfa ekki fleirri skýringa við frá minni hálfu, en
við þau standa. En um gerðir vefnaðarins eða nöfn, gat ég ekki fengið
upplýst. T.d. hvað er vaðmálsvend eða klæðavend. Vormeldúkur er ekki
í þessum sýnishornum, né hringvefnaður. Eftir að tvistur
fór að flytjast, var allmikið ofið af tvisttaui í ýmsum litum. Var
mest notað í hversdags svuntur kvenna, í milliskyrtur karla, og jafnvel
í sængurver. Þá einnig ofið þannig að uppistaðan var tvistur, en
ívafið ull. Flíkur úr þessu efni þóttu léttari við vinnu, en úr einu
saman vaðmáli. Tvisturinn var í mörgum litum, og því hægt að koma
við all fjölbreytilegu litavali. Frú Fríða Sigurbjörnsd. mun góðfúslega
láta safninu í té áðurnefnda kvenpeysu (treyju), ennfremur skotthúfu með
hólk og skúf, ennfremur ábreiðu og máske fleirra. Hefi ég í huga
að annast sjálfur um að gripir þessir komist til safnsins, einhvern tíma
á komandi hausti. Þá hlýt ég að beiðast afsökunar á því hve ófullkomlega
þessi mynjagripa og starfslýsing er af hendi leyst.
p8
Þóf á ullarvoð þurfti
allmikinn undirbúning. Fyrst var voðin þvegin og þvæld úr gamalli
keytu, líkt og þegar ull var þvegin. Þurfti stóran pott, enda voru
til á öllum bæjum afar stórir pottar, er notaðir voru aðeins við ullarþvott
á vorin og slátursuðu á haustum. Þegar voðin var þvegin og
þvædd, eins og þurfa þótti, var hitað hreint vatn í pottinum og voðin undin
upp úr því. Fór það fram á þann hátt: Voðin lögð saman tvöföld, öðrum
enda fest örugglega, t.d. við þvottastaur eða jafnvel dyrastaf væri ekki
annað fyrir hendi. Þá brugðið lykkjum á hinum enda voðarinnar sterkri
stöng, t.d. gildum göngustaf. Síðan var teygt úr tvöfaldri voðinni
eins og hæft var. Stafnum síðan snúið. Vattst þá upp á voðina
við snúninginn. Með þessu var vatnið undið úr voðinni, með því að
herða á snúningnum. Var þessu haldið áfram, þar til voðin þótti hæfilega
undin og vatnslítil og hæf undir þófið, sen nú lá næst fyrir.
p9
Undir þófið var fyrirbúinn
staður, oftast á baðstofugólfi, þveginn blettur á gólfinu, helst í horni.
Hlaðið í kring kistum og koffortum og jafnvel tjaldað ábreiðum. Þarna
tók þófarinn við voðinni, berfættur og á nærklæðum einum. Byrjaði
nú þófið, sem var innifalið því að þófarinn tróð voðina undir fótum af
öllum kröftum og vellti fram og aftur á alla vegu. Eftir
nokkra stund, þurfti að taka voðina upp og "kippa". Var
það innifalið í því að 2 menn tóku sinn í hvern jaðar á litlum hluta af
voðinni, og kipptu á milli sín. Heyrðust þá oft háir smellir. Rauk
þá af henni ló osfrv. Þannig var farið yfir alla voðina. Var
þetta gert til þess að þófið jafnaðist. En aðal hættan við þetta
þóf, að í það kæmu "brigður", en það voru einskonar hrukkur,
sem ekki fóru úr og skemmdu voðina til notkunar. Það þurfti að kippa
oft, 3-4 sinnum meðan á þófinu stóð. Þófarinn fékk ætíð einhvern
aukaglaðning, t.d. kaffi með lummum og jafnvel brennivíni, ef karl átti
í hlut, en væri körlum ekki á að skipa, þæfðu stúlkur.
p10
Þegar þófinu var
lokið, var voðin vafin upp á fjöl, t.d. rúmfjöl og síðan komið undir þunga
pressu, sem verið á margan hátt útbúin, t.d. skotið undir þunga kistu.
Misjafnan tíma mun voðin hafa legið í pressunni, en eftir það var
hún tilbúin til þeirrar notkunar, sem hún hafði verið ætluð.
Nr. 1280
p1
Ull og tóvinna 3.
Víða byrjaði ekki vefnaður fyrr en eftir hátíðar. Þó voru
það sum heimili, sem reyndu að koma af einni voð fyrir hátíðar. Sérstaklega
þar sem sendir voru menn til sjós, og máske varð að fá nýja flík áður.
En flestir vildu ekki hafa voð í vefstól yfir hátíðarnar.
Það var víst víða, sem maður óf á hverju heimili, ýmist karl eða
kona, og var þá reynt að haga því svo, að hann eða hún þyrftu sem minnstar
frátafir að hafa, og var þá byrjað strax á morgnanna og verið að til vökuloka.
Þó gat hent sig, að á vökunni væri hætt um tíma, ef skemmtileg sögubók
var lesin. Afköst voru mjög misjöfn, bæði eftir því hvað ofið var,
og svo voru menn mjög misfljótir að vefa. Ég held að börn eða unglingar
hafi lítið ofið. Þau urðu að vera sem sagt fullvaxin, til að ná vel
á skammel og slagbroð. Fáir held ég, að hafi gengið milli
bæja og stundið vefnað. Hef þó heyrt getið um einn karlmann, sem
fór um og óf. En sum heimili tóku vefnað heim til sín, þá helst af
greiðasemi.
p2
Vefstóll, vefstaður:
Ég hef aðeins kynnst einni gerð vefstóla, og hef þó séð þá nokkuð
marga. Sömuleiðis þekkti ég einn mann, sem smíðaði nokkuð marga vefstóla.
Jón Loftsson á Geldingalæk, Rangárvs. Það voru mörg heimili,
sem áttu vefstóla, fengu ýmist lánaða vefstóla eða komu voðum til annarra.
Vefstólar þeir er ég kannast helst við eru mjög líkir vefstól B og
þann vefstól á ég enn með flestu tilheyrandi og rakningsgrind.
Skeið: Ég heyrði aðallega nefnt ritti. Ekki hef ég séð heimasmíðað
ritti, nema eitt, sem notað var við hæruvefnað. Það er þegar hærupokar
voru ofnir úr hrosshári. Ég held að rittin hafi verið lík á lengd,
en með misþéttar tannir miðað við kvartil. Vefskytta: Skyttur
voru smíðaðar úr ýmsum við, svo sem eik, brenni, greni og máske úr fleirri
efnum. Neðan á þeim var járn eða málmþinna um miðjuna, svo þær rynnu
betur í skilinu.
p3
Renndar tréspólur
voru til á einstaka bæ, en annars var notað stinnt bréf og fiskroð lika.
Var notað þunnur nári úr ær eða lambsbjór í spóluroð.
Spólurokkur: Spólurokkur nefndist áhald það, sem notað var til að
spóla, sem ýmist notaðir gamlir spunarokkar eða þá rokkar, sem smíðaðir
voru bara til að spóla á. Þeir voru þannig smíðaðir: Dálítið
stór fjöl, sem hægt var að skrúfa á borð. Upp úr öðrum endanum kom
nokkuð þykk spýta eða járn og í gengum það var fest dálítið hjól, sem lék
á ás, og á rönd hjólsins var gróp er hélt snúru er lík líka um spóluteininn,
er var nokkru ofar, svo var smá sveif á hjólinu til að snúa því. Spólurokka
þessa er ég sá smíðaði Einar nokkur kallaður Einar kléns. Fékkst
nokkuð við járnsmíði, og var á sveit í Rangárvallahr. Annar þegar
venjulegir rokkar voru notaðir, var víða tálguð til sívöl mjó spýta er
stungið var uppí pípuna á rokknum, og á hana látið
p4
spóluroðið og haldið
við afturendann, oft með sauðarvölu og var þá spóluspýtan látin snúast
í holunni á völunni. Líka tóku sumir hnokkatréð af rokknum og notuðu
aðeins ásinn með trissunni og létu spóluroðin á hann eða notaður var sérstakur
teinn með trissu á endanum. Spanstokkur: Spanstokkurinn
var í tvennu lagi og gekk önnur álman inn í rauf á hinni álmunni, svo voru
boruð þétt göt í gegnum allt og stungið í gegnum það 2 nöglum eða smá teinum.
Sumir höfðu líka einn tein (nagla) og einn hólk, sem var smeygt uppá
báðar álmurnar. Og í báðum endum voru broddar, er stungið var í jaðranna
á voðinni, og þegar þurfti að færa spanstokkinn, þá var dreginn eða færður
............................. þá lyftist hann um miðjuna, og var þá færður
í jöðrunum og naglanum stungið í aftur eða ef það var annar hólkur, á var
hann færður til.
p5
Að leggja upp: Þegar
leggja átti upp í voð, þá var bandið eða þráðurinn, sem hafður var í uppistöðu,
vigtaður og dregnar frá völur, sem yfirleitt var undið á, síðan var ákveðið
hvað skyldi lagt upp úr mörkinni, hvað margar álnir, sem fór eftir því,
hvað þráðurinn eða bandið var svert. Þeir sem voru vanir þessu voru
mjög nákvæmir að fá mátulega lengd og breidd með þessu fyrirkomulagi.
Svo var mælt með tommustokk á einum hnykli eins margar álnir og
ákveðið var að leggja upp úr þræðinum, og sett glöggt merki hnýtt í þráðinn
þegar álnafjöldinn var kominn og síðan undið á hnykilinn aftur.
Að reikna í skeið: Ef ekki stóðst að fullu útreikningur og
uppistaða var gisnari, var sagt að voðin væri varplítil. Verkið að
ákveða efnismagn í uppistöðu og ívaf voðar nefndist að reikna í vef. Orð
notuð um ívafið: fyrirvaf, ívaf, veftur. Annars er ég farin að gleyma
þessu, og þá sumir er ég hef verið að leita til.
p6
Rakningsgrind: Mér
er ekki kunnugt um nema eina sort af rakningsgrindum. En ég hef heyrt
talað um að rakið væri á hælum. Hælatréð er myndaði skilið var kallað,
þar er ég veit, krísholt. Þegar farið var að rekja í við var rakningsgrindin
sett upp í útihúsi t.d. skemmu, og í bita, sem var í mátulegri hæð við
grindina var negldur leðurhólkur, sem efri endi grindarinnar lék í, en
undir neðri endann, ásinn, var látið hellublað eða slétt járn, er neðri
ásinn lék á. Ekki voru rakningsgrindur til allsstaðar, þar sem vefstóll
var til, og var þá farið á aðra bæi til að rekja. Balbínur:
Balbínur þar sem þær voru til, voru tréleggur, sívalur, holur í gegn
með snúðum á báðum endum. Margir höfðu dálítið langan kassa með 2
hólfum , mátulegum fyrir lengd balbínunnar, og boruð göt með mátulegu millibili
p7
að balbínurnar næðu
ekki saman þegar þær snérust. Þegar spólar var á balbínurnar var
víða notaður sami rokkur og spólað var á með járntein fyrir hnokkatré,
og trissa á aftari enda fyrir snúrurnar. Verkið við að spóla á balbínusnældu
nefndist að balbína. Rakningsspaða man ég ekki eftir, en
í krísholtunum voru 2 teinar, þar sem byrjað var á og eins endað og á þeim
voru skilin mynduð. Rakningsstokkur: Rakningsstokkar
voru sumsstaðar til. Það voru nokkuð stórir kassar, ekki djúpir,
með 10 hólfum, og hvert hólf mátulegt fyrir fullstóran hnykil. Annars
voru ýms ílát notuð, smákassar, og fötur osfrv. Rakning á grind:
Hún var sett upp í útihúsi, skemmu. 2 voru oftast við rakning,
oft annað unglingur að fyljgast með, ef þráður slitnaði eða þegar búið
var að verða á hnykli eða balbínu.
p8
Lengd voðarinnvar
var þannig ákveðin. Þráðurinn var vigtaður og ákveðið hvað leggja
skyldi margar álnir uppúr mörkinni. Þá var tekin einn hnykill og
mælt og rakið ofanaf honum, uns ákveðin lengd er komin. Þá hnýtt
þar öðruvísi litu bandi í markið, svo undið á hnykilinn aftur, eins og
fyrr segir. Þá voru allir þræðirnir af t.d. 10 hnyklum hnýttir saman
og svo skift í helming við hnútinn og lykkjan þá smeygð uppá annan teininn
á krísholtinu, og grindinni að svo búnu snúið og þráðurinn færðist niður
grindina með jöfnu millibili, uns komið var að lengdarmarkinu, þá var hnýtt
krísholtið, bundið þar á grindina og þráðurinn hafður yfir annann teininn,
en undir hinn, og grindinni þá snúið öfugt, svo þráðurinn færður nú upp
grindina. Skil myndaðist þá á hælum krísholtsins, og var þá brugðið
bandi oft sokkabandi um krísholtið, og brugið yfir þráðinn við hvert hundarð
(fetaband). Reynt var að láta fetana koma sem jafnast á grindina.
Þráðarskilin voru svo tekin, þegar búið var að rekja, með því að
band var rennt í gegnum þræðina
p9
við báða kríshælana.
Þegar svo slangan var tekin af grindinni, var hún eiginlega
fléttuð. Mynduð var lykkja og hendinni stungið í gegn og dregin öll slangan
í gegn, sem myndaði þá aftur lykkju, og svo koll af kolli, uns allt var
upp fléttað, þá var síðasti spottinn dreginn í gegn. Rakningur
á vegghæla eða rúmstólpa er mér algerlega ókunnugt um. Hafaldagrind:
Áhald það, sem höföld voru hnýtt á hét hafaldagrind. Hafaldagrind,
sem ég þekkti til var eins og teikningin sínir. Efri þvertréð var
smeygt lauslega upp á spýturnar 3, og tekin af þegar búið var að hnýta
grindina fulla, og þá var hægt að draga höföldin uppaf. Mig minnir
að rakið hafi verið á grindinni, það hærri en höföldin þurfti að vera sem
fór í hnúta. Hafaldaefni og höföld: Efnið í höföldum
var lengi vel unnið heima, uns farið var að nota garn. Áður unnin
úr dregnu togi, og hafður vel snar, og oft soðinn í tólg. Þegar höföld
voru hnýtt, þá voru hnýttir 2 rembihnútar, sitt hvoru megin
p10
við miðspýtuna, hafaldaauga,
og aftur við enda spýtunnar. Stálhöföld kannast ég ekkert við.
Vefjarkambur: Vefjarkambur var þannig smíðaður, að búinn
var til trégrind álíka löng og breidd vefstólsins, svo voru reknir í neðri
grindinni, nokkuð þéttir 3" naglar dúkkaðir, og þegar búið var að
jafna þráðinn í kambinn, þá var efri hluti grindarinnar settur á, sem gekk
niður á enda snpýtunnar og trétappa stungið í göt sem voru í gegnum hliðar
spýtunnar og svo þvertréð. Að láta í kamb: Verkið við
að dreifa slöngunni í vefjarkambinn nefndist að láta í kamb eða að leggja
í kamb. Ég hef aðallega séð að notuð voru 2 rifsköft, en ekki þráð.
Að festa upp: Ég minnist helst að sagt væri um þessi
verk, að setja upp voð eða að festa upp voð. Að bóma: Þar
sem mér er kunnugt, var sagt að bóma vef eða vinda á bómu. Á afturrifnum
var gróp, er plógskaftið féll í
p11
sem voru kallaðir
kragar, er settir voru upp á rifinn sitt hvoru megin, og þeim svo smeygt
upp á endana á plógskaftinu. Á þessum krögum voru 2 þunn skinn, sem
gengu inn á rifinn, og voðin vannst á. Þessir kragar héldu að þræðinum
beggja megin. Það voru vanalega 2 menn við að bóma í vef, annar hélt
nokkuð fast í slönguna, en hinn vatt uppá rifinn. Gæta þurfti þessa
að jafnfast yndist uppá rifinn, haldið þá fastara í miðjuna eða jaðar,
eftir því sem þurfa þótti. Þegar búið var að bóma, voru skilsköftin
sett í gegn, þar sem bundin var þráðurinn í skilin þegar rakið var á grindinni.
Að draga í höföld:
Hafaldasköftin voru bundin saman í báða enda þegar dregið var í höföld.
Þegar búið var að bóma, var þráðarlykkjan klippt í sundur, svo rétti
einn endana og annar dró í höföldin. Sá sem dró í höföldin taldi
upp á fingur sér nokkur höföld, máske 25 af hverju hafaldi, og heldur þeim
á fingrum sér uns búið var að draga í þau. Þegar búið var að draga
nokkuð mikið í höföldin, 100 endar, var settur þverhnútur á endann.
p12
Að draga í skeið:
Tveir unnu við að draga í skeið, annar var með krækjuna í rittinu,
en hinn setti endann á krækjuna. Að hnýta fram: Ekki
man ég eftir að hafa heyrt nafn á teini þeim sem hnýtt var í þegar verið
var að hnýta fram voð. Það voru höfð 3 snæri úr rifnum fram yfir
bómu, og hnýtt svo í tein þann er þráðurinn var hnýttur í. Uppbinding:
Man ekki eftir neinu um þennan kafla sérstaklega.
Að draga fyrir:
Að draga fyrir var það almennt kallað þegar byrjað var að skjóta
skyttunni í gegnum rifinn. Það var mjög misjafnt hvað mikið var gefið
í (eða vel veftað). Þegar búið var að skjóta skyttunni í gegn, voru
fingurnir á vinstri hendi reknir niður nálægt miðri voð og ívafinu ýtt
upp að slagborðinu mis mikið, eftir því hvað mikið átti að gefa í í einum
boga, og þá var tekið með hægri hendi í slagboriðið og kippt að sér,
p13
mismikið eftir því
hvað föst voðin átti að vera. Þegar búið var að vefa það mikið að
spanstokkurinn kæmist vel fyrir, þá var hann settur á voðina. Helstu
misfellur voru, ef þráðurinn slitnaði mikið. Það var hnýtt í þráðinn,
er hann slitnaði og endinn festur í spanstokkinn. Einstök vinding
voðar upp á voðarmeið nefndist áfæra. Að fella vef: Þegar
búið var að vefa voðina, þá var kallað að fella vef eða fella voð. Afklippti
þráðurinn var nefndur afvikur, og notaður við að bæta bætur á fat og ýmisleg
smálegt. Þóf: Vatnið og keytan, þegar hún var notuð,
var sjóðhitað, svo var voðin er þæfa átti, látin í bala og þvælinu hellt
á voðina og þjappað í þessu nokkra stund með kvísl. Þá var látin
járnkarl eða eitthvað skaft, sem var sterkt í dyr, svo var sett skaft í
hinn endann, oft orf eða broddstafur og vaðmálinu jafnað á þetta með nokkuð
löngu millibili. Þá var skaftinu í ytri endanum snúið og togað
p14
þar til þófið var
sem sagt þurrundið. Heimamenn sáu um þófið, ef hægt var, annars fenginn
þófari. Voðir voru oftast þæfðar í fjósi á hurð. Sumir þæfðu í tunnu,
og þá oftast í fjósi. Þófararnir voru á nærklæðum einum. Voðin
var nokkrum sinnum hrist upp á meðan á þófinu stóð. Það geru 2 menn
eða konur, og lykkjaði þá annar vaðmálið um háls sér, áður en farið var
að hrista upp, tóku svo sitt í hvern jaðar með nokkru millibili og hristu
svo að small í vaðmálinu, og nú lykkjaði hinn því um háls sér jafnóðum
og búið var að hrista hvern spotta. Þegar voðin var fullþæfð, var
hún orðin nokkuð þukk, og máske farið að sjást brygður í henni, sem kallað
var. Það voru smáhrukku gárar hér og þar. Oftast held ég að
þófarinn hafi fengið einhverja glaðningu á meðan á þófinu stóð, svo sem
kaffi og pönnukökur og máske þófaraköku. Þófaravísa: Bárður
minn á jökli - leggstu nú á þófið mitt - ég skal gefa þér lóna - innan
í skóna - naglabrot í bátinn þinn - hálfskeifu undir hestinn þinn -
p15
mórautt lamb og gimbraskel
- og meira ef þú þæfir vel. Mér er ekki kunnugt um ákveðin laun fyrir
þóf, þó það hafi máske verið til. Þegar búið var að þæfa
var voðin undin upp á fjöl, oftast á rúmfjöl, við það voru 2 menn, fullgildir,
annar með fjölina, en hinn hélt í vaðmálið, og toguðu þeir svo heilmikið
í, og svo voru aðrir 2, oft liðléttingar, er héldu sitt í hvorn jaðar
og toguðu þeir í jaðrana eftir getu. Þegar svo búið var að vinda
voðina á fjöl var endinn ...... í vaðmálið, síðan var vafið einhverri tusku
utan yfir allt og látið í pressu, oft undir kistu, sem var þung. Á
síðustu árum, var farið að senda voðir í verksmiðjur innanlands til litunar
og lóskera, og jafnvel til þófs.
p16
Að endingu vildi
ég biðja um að mér yrði ekki sendar fleirri spurningaskrár. Ég er
orðin það fullorðin og farin að gleyma, og hef aldrei verið lipur skrifari.
Hér með sendi ég smábót af vefnaði. Ég held þetta sé
kölluð veipa. Þetta hefur ofið Freygerður Guðmundsd. fyrrum húsfreyja á
Kaldbak á Rang. líklega árið 1928. Hún er nú dáin.
Ennfremur vil ég geta þess, að ég á heila ábreiðu, ofna um 1920, sem mér
væri sama þó þið fengjuð, ef þið vilduð.
Nr. 6551
p1
Ull og tóvinna 3.
Þegar haustannir voru búnar, upptaka garðávaxta og sláturgerð, var
strax komið með kamba og rokka úr sumargeymslu inní baðstofu, og byrjað
að tæta ullina, spinna í það vef, sem átti að vefa fyrir jól, einnig var
ofið úr tvisti í milliskyrtur og svuntur. Vefur var alltaf felldur
nokkru fyrir jól og vefstóll tekinn niður og fluttur út í skemmu, og ekki
settur upp aftur fyrr en eftir hátíðar. Auðvitað þurfti að
sauma fyrir jólin úr því efni, sem ofið var, sumt var vaðmál og annað í
skyrtur og svuntur, og var litum fallega raðað saman. Konur unnu
mest að vefnaði, þó var einstaka karlmaður, sem kunni að vefa, misjafnt
hvað vel var ofið. Tvær systur þekkti ég, sem voru mestu hamhleypur.
Hjá þeim var aldrei neitt fát. Því hjá öðrum var ekki alltaf
gefið jafnt uppí eða spanstokkur færður hæfilega oft. Sama konan
sat alla daga í vefstólnum og óf af kappi. Matmálstímar og kaffi
var eina hvíldin. Aldrei sá ég börn vefn, en stúlkur komnar yfir
fermingu, ófu vaðmálsvend og einskeftu, það var svo auðvelt. Ekki
heyrði ég talað um borgun fyrir að vefa fyrir nágrannann. Oft var
það fátækt fólk, sem átti ekki vefstól, kom á stundum greiði á móti, t.d.
að spinna fyrir húsmóðurina. Engin vefnaður til verslunar, þar sem
ég þekkti, ef voru 16-18 menn í heimili. Þurfti svo mikið vaðmál bæði í
nærföt og utanyfirföt.
p2
Vefstóll: Þar
sem ég þekkti til var aðeins eitt nafn á vefstól, vefstóll. Gamla
kljásteinsvefstólinn sá ég aldrei. Helst væri að leita að honum á
Byggðasöfnum. Því miður var of mörgu af gömlu dóti fleygt heima hjá
mínum fósturforeldrum. Voru synir hjónanna smiðir. Einn þeirra
smíðaði vefstólinn fyrir heimilið og mörg önnur heimili var ofið fyrir.
Systurnar voru svo duglegar að vefa. Ekki var vefstóll lánaður af
bæ. Ekki hægt um að flytja hann yfir djúp vatnsföll, heldur var ofið fyrir
þau heimili, sem engan átti vefstólinn og enginn kunni að vefa. Ég
kannast við vefstól A. Sjón mín er svo léleg, að ég treysti mér ekki
í þá lýsingu. Ég er blind á öðru auga og léleg sjón á hinu.
p3
Skeið: Sú skeið,
sem ég man eftir var gljáandi eins og væri tennurnar úr stáli, og var ekki
smíðuð heima. Var keypt, ég veit ekki hvaðan. Skeiðin var miðuð
við tannafjölda, svo þegar dregið var í skeiðina var þráðurinn settur á
gikkinn. Talað var um að hafa 2 í tönn osfrv. Vefskytta:
Alltaf var valið gott efni í skyttur á þeim, sem ég sá var vönduð
smíði, mjög vel yfirfarnar fyrst með grófum sandpappír, síðan fínum sandpappír,
sumar með þunnum látúnsrenningum, til þess þær rynnu betur í skilið. Teinninn
nefndist spóluteinn. Spólurnar voru renndar í rennibekk, gerðar vel
sléttar og hálar, svo bandið festist ekki í ójöfnur. Sá aldrei spólur
nema úr tré. Spólurokkur: Spólurokkur var gamall
rokkur, sem hætt var að spinna á, en hægt að nota til að spóla á. Var
þá settur sérstakur spóluteinn og lagður þannig að spólan passaði á teininn.
p4
Spanstokkur: Aldrei
heyrði ég annað nafn á honum. (Teikning). Í endum voru fínar klær,
sem settar voru í voðina til hliðar, og héldu henni þaninni, svo ekki kæmi
skekkja á jaðrana. Að leggja upp: Talað var um að leggja
upp í vefinn. Elstu konurnar á bænum sáu alltaf um að setja upp vefinn
og reiknuðu allt rétt út. Þær voru svo vanar að festa upp vef. Hvíldi
öll vegsemd á þeim. Ég held þær hafi reiknað allt út í huganum, eftir
þyngd þráðarins. Ekki sá ég sauðarvölur vigtaðar, en þá giskað á
þyngd þeirra eftir fyrstu vigtun. Að reikna í skeið: Alltaf
var reiknað út hvað margir þræðir voru í tönn, áður en byrjað var að draga
í hana, t.d. 2 í tönn, eftir því hvernig fólk hafði þráðinn fínann eða
grófan. Þar var aldrei neitt feil. Tvær konur unnu við að draga
í skeiðina, önnur rétti þræðina á gikkinn, hin dró hann gegnum skeiðina.
Ég vissi aldrei um annað en að allur útreikningur stæðist.
p5
Að reikna í vef:
Það var venjulega ein kona, sem reiknaði það, ef vefurinn var þetta
meiri vandi. Ég held að engin hafi sett up vef, nema sú eða sá væri
alltaf viss. Svo það komu aldrei nein mistök, þar sem ég þekkti til.
Orðið var uppistaða um uppistöðu í vef, svo ívaf, sem var spólað
og látið í skyttuna. Rakningsgrind: Rakningsgrind var
ekki til heima. Allir vefir raktir á hæla, em stungnir voru í veggi,
og aldrei var neitt feil. Balbínur: Ég sá sérstakan
balbínurokk eða balbínustól. Rokkurinn var eins í lögun og spunarokkur,
nema í hjóli, sem smíðað var og fest í afturstjaka, small alltaf í eftir
svo og svo margar umferðir, og eftir því var reiknað. Verkið var
kallað að balbína. Rakningsspaði: Ég sá aldrei rakningsspaða.
Vissi að þeir voru til þar sem rakningsgrind var á bæ.
p6
Rakningsstokkur:
Ég sá þá ekki. Þeir hafa kannske verið til á betri bæjum. Hnyklarnir
voru látnir í alllanga kassa og djúp ílát, svo þeir skyldu ekki hoppa upp
úr. Rakning á rakningsgrind: Ég get lítið sagt um þetta,
þar sem heima var ekki þessi grind, en þó rakið væri á hæla, var ef þráðurinn
var hvítur, sett rautt band til leiðbeiningar. Alltaf tekin skil
og alltaf sett merki við gangaskilin. Þó allt væri rakið á hæla.
Bandspottinn var nefndur fetaband. Fullrakinn uppistaða var
nefnd slanga. Rakið á veggjahæla: Það var kallað að
rekja á hæla. Ekki man ég að þeir nefndust neitt sérstakt, nema skilhælarnir
og munu þeir hafa verið geymdir. Annars voru alltaf valdar vel sléttar
spýtur svo bandið festist ekki við þá. Oftast var rakið í stórri
og bjartri hlöðu þegar komið var pláss, búið að gefa nokkuð úr henni.
Rakið á rúmstólpa: Vissi aldrei til að rakið væri á rúmstólpa,
enda ekki handhægt þar sem margt fólk var í baðstofum og lítil börn.
p7
Hafaldagrind: Ég
man aðeins eftir hafaldagrind, sem var til heima, svo þegar hætt var að
vefa, hefur henni verið fleygt eins og fleirru þegar nýjar kynslóðir taka
við. Hún var ekki mjög stór. Ég treysti mér ekki að teikna
hana. Ekki man ég eftir neinu áhaldi til hjálpar, aðeins hendurnar,
sem kunnu verkið. Hafaldaefni og höföld: Efni í höföld
var spunnið úr togi, samkembt grátt og hvítt. Bandið varð að vera
snuðrulaust þó nokkuð harðsnúið líkt og þráður, nema mikið grófara. Það
mun hafa verið í hespum, sem soðnar voru í vatni, og svo þegar þær voru
þurrar, voru þær undnar fast í hnykla, síðan hnýtt á hafaldagrind með hnútum,
sem við áttu. Miðhluti var hafaldaaugað. Sá aldrei stálhöföld.
Bandið sem varnaði því að höföld drægist út af hét vartág.
Vefjarkambur: Ég man vel hvernig hann var þó ég treysti mér
ekki að teikna ann. Það varð að vanda smíði hans eins og allt tilheyrandi
vefstólnum.
p8
Að láta í kamb: Oftast
var sagt að láta í kamb. Skaftið sem sett var í gangaskilið var af
sumum nefnt plógskaft og öðrum rifskaft. Allt var sama meiningin.
Þráðurinn var alltaf nefndur skilþráður. Að festa upp:
Að festa upp vef, eða setja upp vef var nokkuð sama.
Að bóma vef: Alltaf sagt að bóma, ég held til endanna hafi verið
kragar á rifinu, svo enginn hætta var að slangan lenti útaf. Það
kom aldrei fyrir. Þegar slangan var sett á rifinn, sem hún var undin
upp á varð að halda jafnt á móti, því ein snéri rif og annar gaf eftir
jafnt og vel af slöngunni. Tveir unnu alltaf við að koma slöngunni
á rifinn, oftast karlmaður, sem snéri bómunni, kona sá um að enginn slaki
yrði á.
Að draga í höföld:
Það var gróp, sem hafaldaskiptin voru fest í. Alltaf unnu tveir við
að draga í höföldin, einn setti, annar sat framan við höföldin og dró í
gegn. Það var viss tala af þráðum sem hnýtt var á, ekki losað nema
eitt knippi í einu, og aftur hnýtt að. Þegar búið var gegnum augun
á höföldunum.
p9
Að draga í skeið:
Áhaldið sem notað var til að draga í skeiðina hét gikkur. Skeiðin
var sett í sömu hæð og höföldin áður. Kona stóð aftan við skeiðina,
önnur sat framan við og rétti gikkinn inn á milli tanna skeiðarinnar, og
hin lét þráðinn upp á gikkinn, sem var dreginn í gegn. Að
hnýta fram: Ekki man ég eftir neinu nafni á því, bara talaðum að
hnýta fram, og svo fest við fremri bómuna, sem vaðmálið kom svo á þegar
byrjað var að vefa. Alltaf sagt að hnýta fram. Uppbinding:
Ekki veit ég um nöfn á vefstólssnærum, veit bara að skaftið var bundið
við fremri bómu. Að draga fyrir: Þegar skyttunni var
fyrst skotið í skilið, var það kallað að draga fyrir. Þá var byrjað
að vefa. Gefið var upp í með vinstri hendi og gefið í einum boga,
misjafnlega langa í hvern vef, svo var slegið að með skeiðarhaldi. Spanstokkur
var festur eftir reglu vefjarkonunnar, svo aldrei var látið vefast inn
alltaf sama breidd. Aldrei skilgallar, en ef þráður var linspunninn þá
var hnýtt saman aftur með þannig hnút að hann gengi greiðlega gegnum skeiðina.
Engin hjátrú. Vinding upp á bómu nefndist áfæra.
p10
Að fella vef: Það
var alltaf nefnt að fella vefinn. Þræðir voru stundum nefndir afvikur
eða hrafnabuxur. Veit ekki hvað við þá var gert. Þóf: Bárður
minn á jökli - leggstu nú á þófið mitt - ég skal gefa þér lóna - innan
í skóna - naglabrot í bátinn þinn - ef þú leggst á þófið mitt.
Ekki voru allir þófarar eins. Sumir þóttu mjög góðir og þæfðu vel
og voru þeir fengnir á bæi til að þæfa. Voðin var þvegin úr snarp
heitu vatni, sem hitað var í stórum potti úti í hlóðareldhúsi, síðan var
hún lögð saman í miðju og endar látnir mætast, svo var tekin stór og sterk
stöng og smeygt í endann, sem lokaður var. Stöngin skorðuð við dyrastafi
bæjardyra, í hinn endann var lítil stöng eða stafur. Karlmaður stóð
við þann endann og snéri stafnum í sífellu. Nú varð snúðurinn að
vera jafn. Haldið áfram þar til ekkert vatn lak úr vaðmálinu, og gekk sá
er á snéri og spyrnti við fótum, svo ekki kæmi snuðra á voðina. Húsmóðirin
eða vefjarkonar voru viðstaddar og sögðu körlunum til, síðan var vaðmálið
látið á þann stað sem átti að þæfa helst í baðstofuhorni og settar kistur
og koffort fyrir svo vaðmálið var alltaf á sama stað, og kólnaði ekki.
Þófari var snöggklæddur í skyrtu og nærbuxum, var þó oftast of heitt.
p11
Aldrei máttu koma
brigður á voðina. Var hún af og til hrist upp af tveimur konum, sem
hristu það með samtaka átaki í báða jaðra og létu smella hátt í, hrökk
þá lóin af því, svo var haldið áfram þófinu, sem konur dæmdu um hvenær
var búið. Þá var voðin undin upp á breiða rúmfjöl. Það varð líka
að vanda, svo endar væru jafnir, síðan var fjölin sett undir þunga kistu
til að pressa vaðmálið sem best. Eftir hæfilegan tíma var vaðmálið
tekið af fjölinni, og var þá slétt og fallegt. Þegar átti að sauma
fín föt, jafnvel peysuföt, var vaðmálið sent til lóskurðar og litunar.
Aukabitar handa þófara voru alltaf heima, sykraðar pönnukökur og
gott kaffi. Einn góðan þófara þekkti ég, sem var lánaður til að þæfa
á bæ sem var víst nóg til af hangikjöti. Þegar heimafólk fór fram
í eldhús að borða var þófaranum færður matur þangað sem hann var að þæfa.
Að lokinni máltíð kom einhver heimamanna upp á pallinn, og sér að
þófarinn er búinn að borða, og segir við hann: "Já, þú ert búinn að
borða". Þá svarar þófarinn: "Það er ekki lengi gert að
borða kartöflur og graut". Var öðru vanur frá sínu heimili.
Vefnaðarsýnishorn: Hef ekki getað útvegað það, því ég er í
Hveragerði á hælinu. Vefkonan semur - vaðmálin ný - með sköftum
þremur - og skilfjöl í - en þegar krókur kemur - kvöl er að því.
Vefarinn hefur vanda þann - sem veiga-skorðin mörg kann - að festa upp
í hleinar hann - hver ein ekki nemur - þegar hann krókur kemur - athuga
hlýtur um það mann - svo allt sé skorðum í - annars kemur krókur - og kvöl
er að því. Vaðmálsdans: Svo vefum við mjúka - og dýrindis
dúka - Vefum mjúka - dýra dúka - skjótum skyttu í skil - vefum mjúka dýra
dúka - skjótum skyttu í skil.
Nr. 1317
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Vefnaður hófst, norður í Sléttuhreppi, aldrei fyrr
en eftir áramót, og það sama gilti um næstu hreppa. Það var svo margt
annað að starfa til jóla, að ekki vannst tími til að setja upp vef fyrir
jól og vefa að nokkrum mun. Eftir sláturstíð, á haustin, var venjulega
byrjað á að spinna og prjóna sokka, vettlinga og þau föt sem prjónuð voru,
og að öllu jöfnu var spunnið fyrir jól í verkið, sem sett var upp í vefstólinn
eftir áramót. Lítil ljós og léleg, munu einnig hafa verið ástæða
fyrir því, að ekki var sett upp í vefstól fyrir jól. Ljós voru ekki
önnur en lýsislampi og týra, og lítill olíulampi til hátíðabrigða (ef til
var olía á hann). Tvær manneskjur settu vefinn upp, en svo
var ofið oftast af einum, að jafnaði, sem sat í vefstólnum frá fótaferð
til háttumála. Börn eða unglingar
p2
byrjuðu að hjálpa
til um 13-14 ára. Ekki tíðkaðist það þar sem ég ólst upp, að menn
færu á milli bæja til að vefa, an það mun hafa átt sér stað annarsstaðar,
svo sem í Víkursveit í Strandasýslu, að menn gerðu það, og tóku 1.50 kr.
fyrir að vefa 1 alin. Vefstóll: Enginn af þeim sem
ég hefi talað við, kannast við kljásteinsvefstaðinn, og vita ekki hvenær
hann lagðist niður. Vefstólar voru smíðaðir norður í hreppunum. Í
Grunnavíkurhreppi, smíðaði Jakob Hagalinsson allt tréverkið í vefstólinn,
en Benedikt Hermannsson, Reykjarfirði, smíðaði öll járn í hann. Þessir
menn lærðu báðir hjá Stíg Stígssyni á Horni, en hann var jafnvígur á tré
og járn, og smíðaði vefstóla að öllu leyti fyrir Sléttuhrepp. Og
víðar um landið munu hans vefstólar hafa farið. Hann var
p3
einnig skipasmiður
með afbrigðum og smíðaði allan saum í skipið og einnig ræðin.
Skeið: Vefjarskeiðar nefndust þær. Þær voru ekki heimasmíðaðar.
Stærð þeirra var miðuð við tannafjölda, 60 tanna skeið.
Vefskytta: Efni í vefskyttu var oftast blikk. Spóluteinninn
í skyttunni nefndist rill eða spóluteinn. Spólurnar voru renndar.
Efnið svellharður rauðaviður.
p4
Spólurokkur: Áhaldið
sem spólað var á nefndist spólurokkur. Venjulega voru notaðir gamlir rokkar.
Það var settur í þá sérstakur spóluteinn í stað snælduumbúnings.
Að leggja upp: Verkið við að reikna út uppistöðuþráð
í voð, er vefa átti, nefndist að leggja upp. Efnið í voðina var undið
í hnykla. Sauðarvölur voru alltaf notaðar til að vinda á, en þær voru alltaf
dregnar frá þyngd hnyklanna. Venjulega voru 2 1/2 alin lögð uppúr
þráðarmörk í hnyklum.
p5
Að reikna í skeið:
Verkið við að ákveða fjölda uppistöðuþráða í breidd voðar, er vefa
átti, nefndist að reikna í skeið. Ef uppistaðan varð gisnari en ætlað
var, var það kölluð "vefjargleypa". Að reikna í vef: Verkið
nefndist "að reikna út í vef", og uppistaða í vef "uppistaða",
en ívafið "fyrirvaf". Rakningsgrind: Áhaldið sem
uppistaða í voð var rakin á, var kölluð rakningsgrind. Tréð, sem
skilhælar voru festir á hét "skilkambur. Rakningsgrindur voru til
á öllum heimilum sem áttu vefstóla.
p6
Rakningsstokkur:
Ílátið sem hnyklarnir voru látnir velta í, er rakið var á rakningsgrind,
var venjulega tréfata. Rakning á Rakningsgrind: Rakningsgrindin
var venjulega sett upp í útihúsi eða bæjardyrum, ef rúmgóðar voru. 2
unnu að því að rekja. Vefarinn og unglingur eða kvenmaður. Lengd
voðarinnar var mæld með því að setja rauðan bandspotta, sem merki á uppistöðþráðinn.
1 þráður var hafður í hafaldi, gat var borað á stórgripavölu, og
hún látin leika á uppustöðuþráðunum til þess að jafna þá.
p7
Hafaldagrind: Áhaldið
sem höföld voru hnýtt á hét hafaldagrind. (Hér er teikning af hafaldagrind).
Hafaldaefni og höföld: Efni í höföld var unnið heima úr dregnu
togi. Þráðurinn var spunninn jafn og hnökralaus, hafður dálítið snúðharður,
svo þrinnaður, og þá varð hann snöggur eins og garn, og haldgóður. Elstu
menn muna ekki eftir öðru en þráðarhöföldum.
p8
Verkið við að dreyfa
slöndunni í vefjarkambinn var nefnt "að láta í kamb". Skaftið,
sem sett var í gangaskilið og tengt við slöngurifinn hét plógskaft.
Að festa upp: Verkið við að vinda slönguna upp á slöngurifinn, draga
í höföld og skeið og festa uppistöðu í framrif nefndist "að festa
upp". Að draga í skeið: Áhaldið sem notað var við að
draga í skeið nefndist "krókur eða gikkur". Tveir unnu
að því að draga í skeiðina, annar þeirra rétti.
p10
Að hnýta fram: Skaftið
sem uppistaðan var hnýtt fram á, nefndist "framhnýtingarskaft"
og verkið við að hnýta á skaftið "að hnýta á skaft". Að
fella vef: Er vefnaði á voð var lokið og hún var tekin úr vefstólnum,
það var nefnt "að fella vef". Þráðarendar sem gengu af,
er vefur var felldur voru nefndir "afvikur". Þeir voru
notaðir til að bæta með vaðmálsföt. Engu var kastað.
Þóf: Átta fjórðunga pottur var settur á stærstu hlóðirnar í eldhúsinu,
bornar í hann 2 fjórðungsfötur af vatni
p11
og 4 fötur af keytu,
hitað snarpheitt, svo var voðin látin smátt og smátt ofaní pottin. Byrjað
á öðrum endanum, þangað til voðin var öll komin niður í pottinn. Ef
voðin var þunn, þá fór minna fyrir henni, og var þá hægara að hreyfa til
í pottinum, en það var gjört með þar til gerðum spaða, sem einnig var notaður
til þess að kreysta voðina að barminum og botni pottsins. Voðin var
fest saman á báðum endum, og því tvöföld. Hún var því undin þannig,
að 2 göngustafir voru látnir sitt í hvorn enda á voðinni og svo var hún
undin með því að snúa stöfunum öfugt, hver á móti öðrum. Með því
snérist voðin í vöndul, og um leið úr henni allt vatn. 2 karlmenn
undu venjulega voðina. Það var venjulega þæft á baðstofulofti, því
þar var mestur ylur frá fólkinu, sem vann í baðstofunum. Um annan
hita var ekki að ræða.
p12
Heimamenn önnuðust
oftast þóf, annaðhvort karl eða kona. Þæft var á hurð. Fólk
var oftast léttklætt við þóf, því úr þófi fékkst nógur hiti. Karlmenn voru
á einni skyrtu og nærbuxum, og auðvitað berfættir, en konan í skyrtu og
millipilsi. Svo var stappað á þófinu lengi dags, og passað var að
þófið færðist ekki út af hurðinni. Tvisvar til þrisvar var voðin
hrist, en til þess þurfti 2 menn. "Þófarabitinn" var rúgmjöls
flatkaka og hnoðað ofaná hana íslensku smjöri, og svo kæfu þar ofaná, en
þófarabitinn fór nú algjörlega eftir því hve húsmóðirin var rausnarleg.
Eftir þófið var voðin hrist vandlega, svo var hún vafin upp á fjöl
og slétt úr henni mjög vandlega. Svo var látið stykki utan um hana,
og lögð undir farg, kistu eða koffort með þungavöru. Voðir voru aldrei
sendar héðan úr þessum nyrstu hreppum til útlanda til litunnar.
p13
Hér kemur svo þófaraþulan:
Bárður minn á jökli - leggst þú á með mér - ég skal gefa þér lóna
- leppana inní skóna - mórautt lamb og gimburskel - og meira ef þú þæfir
vel - hálfskó undir hestinn þinn - og þá gengur þófið. Vefnaðarsýnishorn:
Ég sendi hér með sýnishorn af vaðmáli. Bótin er 51 árs gömul,
og er úr karlmannajakka. Spunnið í vaðmálið og ofið af Ketilríði
Jóhannesdóttur í Reykjarfirði á Ströndum, með hjálp Jakobs Kristjánssonar,
sem þá var ungur, giftur Matthildi Benediktsd. Vaðmálið var ofið
1915.
Nr. 1333
p1
Ull og tóvinna 3.
Sjaldgæft mun hafa verið að vefstóll væri settur niður fyrir jól,
en væri það gjört var það venjulega sökum þess að ekki hafði unnist tími
til að ljúka vefnaði veturinn áður, annað hvort fyrir heimilið eða og ekki
síður ef lofað hafði verið að gefa fyrir einhvern sem þurfti að koma í
vefnað, en ekki varð framkvæmt. Þá var sjálfsagt að byrja á því og
efna þannig loforð sitt. En fyrri hluta vetrar var unnið að ullarofanaf-tekt-plagga-tóskap
og smá-bandi, sem var sérstök iðnaðartegund sem var lagt kapp á að koma
til innleggs í verslunina fyrir áramótin. Eftir að tvistur fór að flytjast
var oft byrjað að vefa eftir nýár t.d. í milliskyrtur handa karlmönnum
sem var all títt, ofl. Næst var svo ýmis konar ullartóskapur t.d.
í rekkjuvoðir og utanyfirfatnað. En fínni dúkar einkum ef voru með
fleiri litum voru ekki ofnir fyrr en á útmánuðum, þegar daginn lengdi og
birtan betri. Oftar var það að einn maður annaðist um vefnaðinn eða
hafði yfirumsjón með honum, því fleiri gátu ofið en hann og þá oftar húsbóndinn,
en hafði þá jafnframt útiverk á höndum, t.d. hesta- eða lambahirðingu,tók
kúahey o.þ.l. Fátíðara var að menn ferðuðust um til að vefa fyrir
heimilin eða fengnir til þess þó það væri til.
p2
Tóku frekar vefinn
heim til sín, þótti það hentugra. Atvinna gat það ekki kallast því
það voru þá oftast þeir sem höfðu þrengstan skó hvað aðstöðu og afkomu
snerti sem báðust eftir þessu. Karlmenn stunduðu vefnað aðallega.
Engin ákvæði eða regla mun hafa verið um greiðslu t.d. fyrir alinn
mun það hafa farið eftir geðþótta hvers og eins svo og hvaða tegund var
ofin, fínt, gróft, dúkur, tvistur og ekki síst hvernig tóið hélt. Vefstóll,
ætíð nefndur svo, tvær gerðir. Eldri gerðin, hærri kinnar og slöngurifur
uppi, þeir yngri, slöngurifur undir afturbómu og allur lengri, eða einstakir
hlutir þeirra. Lifa aðeins þessi heiti, tvíbreiðir sömuleiðis. Flest
heimili áttu vefstól, tveir á sumum bæjum þar sem var fleirbýli. Hér
í þessum hreppi er ekki kunnugt nema um tvo vefstóla sem hafi verið smíðaðir
hér og eins á verkstæði á Húsavík, hét sá maður Páll Kristjánsson sem sá
um smíði hans, ættaður úr Mývatnssveit, nú fullra 90 ára til heimilis að
Álftamýri 7, Reykjavík. Heimildarmenn mínir sem eru tvær systur 60
og 70 ára og hafa stundað vefnað (ásamt annari vinnu) fram á þennan dag
og fylgjast vel með vefnaðai og breytingum á seinni árum, telja að teikningin
af vefstól B sé líkust þeim vefstólum íslenskum sem þær hafi mest kynnst
og vildu vísa algjörlega um heiti og annað til vefjarbókar Sigrúnar Blöndal.
p3
Vefjarskeiðar, annað
heiti ekki kunnugt, ekki heimasmíðaðar, allar af sömu lengd, fínum kvartel,
og heiti þeirra eftir því hve margt var á kvarteli t.d. áttaíu reyra skeið,
100 reyra o.s.frv. Mjög sjaldan talam um 80 tanna skeið. Og
þegar dregið var í skeiðina var alltaf talað um hve margir mættu vera í
reyra. Þessar konur höfðu séð gamlar skeiðar úr timbri og látuni.
Orðið vefskytta var ekki þekkt hér, heldur vefjarskytta. Talið
er að þar hafi aðallega verið útlendar. Eitt dæmi mun vera til þess
að maður sem smíðaði skyttu gjörði sér það til gamans að hafa hana á hjólum
eftir erlendri fyrirmynd en þótti lítil bót að. Aldrei annað en spóluteinn
í skyttunni eða aðeins teinn. Renndar tréspólur til þess að
spóla ívafið á. Dæmi voru til þess að hveitilím var borið á pappírsblað,
vafið þétt utan um spóluteininn tekið ofan af honum og látið harðna, varð
það þá harður stingull og ágætt að spóla á það. Spólurokkur ætíð
nefndur svo fylgdu honum spóluteinn og balbínuteinn, mislangir, báðir með
snælduútbúnaði, stjakinn færður til í götunum eftir því hvert verkið átti
að framkvæma. Oftast notaðir uppgjafa spunarokkar. Sérstakir
spólurokkar munu hafa verið til en mér ókunnir. Spjálk aldrei nefnt annað
svo mér sé kunnugt. Teikningin í vefnaðarbók frú Sigrúnar Blöndal
er nákvæmlega eins og hér var notað.
p4
Talað var um að leggja
upp í vef, (einnig að reikna upp í vef) og almennt notað hesputré við fram
útreikning. Skreppurnar á hesputrénu samsvöruðu handraða í vefnum
í uppistöðunni. 50 þræðir í skreppunni, en skreppufjöldi hespunnar
fór eftir því hve mörg hundruð átti að vera á vefnum. Talað var um
fjögra lóða verk, fimm lóða verk o.s.frv. Hér þekkist varla að vinda
vefjartó á völur en þó var það til, þar sem ekki var til hesputré og þóttu
þær konur fara undranærri um hvað eða hvernig mátti leggja upp úr því.
Að reikna í skeiðina var eingöngu viðhaft um þram þátt vefsins. Stóðst
það ekki var talað um að voðin væri of lítið verpt og þá dregið úr skeiðinni
og reiknað upp aftur. Uppistaða og ívaf voru algeng heiti.
Rakgrind eingöngu notað um það vefkfæri, fleiri tegundir ekki þekktar,
þær voru ekki til á öllum bæjum en fengu að rekja hjá grönnum sínum. Miðað
var við að rekja (alltaf talað um að rekja vef) undirbita eða þverslá,
sem grindin næði upp að, var klossi negldur á bitann sem hvolft hafði verið
úr, svo gat myndaðist, var enda á priki stungið niður um það og gegnum
göt sem voru á miðjum þverslám grindarinnar að aftan, gekk prikið þar niður
í gegn. Ekki þó svo að það gengi ofan úr. Stundum var negld
leðurpjatla á bilin svo þröng að prikið hélst í henni en þó grynnra í neðri
endann. Á milli þess sem grindin var notuð var hún lögð saman og
geymd upp á bita.
p5
Balbínur, balbínustóll:
Ætíð nefndar balbínusnældur misstórar holar innan með snúðum á báðum endum
því stærri sem snældurnar voru styttri. Balbínustóll, nauðsynlegt áhald
við vefnaðinn, venjulegast grind með þremur uppi stöndurum með götum sem
vírteinar með lykkju á öðrum enda lágu í gegnum sem snældan snérist á,
6-7 hvoru megin við mið-uppistandarann. Þessir balbínustólar urðu að hallast
að þili eða vegg, en aðrir voru sjálfstæðir, hölluðust lítið eitt aftur
og studdust við bakuppistöður. Þekkti ekki sérstaka balbínurokka, þó kunni
að hafa verið til, ávallt notaðir uppgjafarokkar, breytt til þessa og kallaðist
"að balbína" á þá. Rakningsspaði: og umspurt áhald
þekktist ekki fyrr en með erlendum vefstólum. Rakningsstokkur:
ekki þekktur, en væri rakið af hnyklum voru notaðir koppar og kassar, þvottaföt
o.fl. til þess að láta hnyklana velta í. Rakgrind: var sett upp
í einhverju því húsi í bænum, þar sem var aðstaða (pláss) og umfram allt
birta, hvort var í baðstofu, stóarhúsi eða framhýsi var fólki stundum kalt
við að rekja. Áður en fest var á grindina efra hælatréð tók rakningsmaðurinn
alinmál og mældi með því einn þráð janfmargar álnir og vefurinn átti að
gefa og klippti fram yfir því sem þurfa þótti til að samsvara því, sem
vefurinn myndi styttast við vefnaðinn og lét vinda þennan þráð upp á hnykil
þegar mæld var sú lengd batt hann merki þar í þráðinn og vatt svo því sem
mælt var upp á snælduna aftur með hendinni. Um vafningsspaða þarf
ekki að ræða því þeir voru ekki til og ekki þráðarvölur.
p6
Venjulega voru tveir
við að rekja og var full þörf, ekki síst ef um fleiri liti var að ræða
t.d. dúka sem rekja var í flokkum. Ein umferð á grindina (upp og
niður) nefndist "gengur" en ein ferð upp eða niður "feti"
kallaðist "að leggja á grind" fyrsta fetann. Föst regla
var ekki um hvernig rakið var að ofan eða niður, en sá sem þetta ritar
sá aðeins rakið að neðan. Til þess að fylgjast með þráðarfjöldanum
var settur sterkur spotti í skilið þegar handraðið var unnið, stórt eða
lítið og bundið af. Var því svo fram haldið, brugðið um hvert handrað
sérstaklega þar til rakningu lauk. Vefjarslanga: Dregnir voru spottar
í öll skil áður en hún var látin niður. Heyrt höfum aðeins getið
um að rakið hefði verið á hæla en kunnum engin skil þar á.
Hafaldagrindur: voru til og virðast hafa verið algjörlega eins og teikning
af þeim í vefnaðarbók frú Sigrúnar Blöndal. Ekki er kunnugt um sérstakt
áhald til að rekja hafaldarefnið á, en í sumum tilfellum a.m.k. var það
sniðið þannig til að undið var upp á bók sem hafði það ummál að jafngilti
því sem þurfti til að hnýta 1/2 hafald, því tveir sátu hver á móti öðrum
við að hnýta hafaldið. Vindingurinn var svo skorinn utan af bókinni
og var þá komið tilsniðið efnið. Heyrt hefi líka að undið hefði verið
upp á fjöl o.s.frv. frumstæð vinnubrögð. Efni í haföld var unnið
úr dregnu togi og var mjög vandað til þess.
p7
Til þess að gjöra
þráðinn snöggan og haldgóðan var hann undinn upp á tólgarmola og soðinn
í vatni þar til bandprjónn gekk í gegnum hann. Hafaldsauga
eða aðeins auga: Haföld voru geymd á þurrum stað, stundum hengd upp á skemmuloftum
(gömlum). Stál-höföld fluttust fyrst laust eftir síðustu aldamót.
Vefjakabmur: Talað um að láta í kamb, eða leggja í kamb. Var
þá losað um skilþráðinn og rifskaftið sett í. Skilþráður - almennast
var talað um að "setja til vef" og "vinda upp vef".
Á slöngurifnum venjulega kallaður aðeins "rifur" voru kragar
á báðum endum - stungið spítum í gegnum rifin til að stöðva þá svo vindingurinn
yrði jafn út við. Helst þurfti 4 menn að hjálpast að við að vinda
upp vef. Einn vatt á rifinn, annar hélt í slönguna, þriðji sat í
setbekk að framan, gætti kambsins o.fl. og fjórði gætti rifsins og bómunnar
að aftan, að ekki færi út af eða mikið út að flækjum og slitnum þráðum
ef til fælust. Slöngu-endar greindir sundur og hnýtt á lykkja 1-2
hundruð í hverri. Draga í höföld: Bundið um hafalda sköftin
að ofan. Tveir unnu saman að því að draga í höföld, annar rétti fram
þræðina, sat aftan við eða inní eftir gerð vefstólanna. Ef um toghöföld
var að ræða tók sá sem dró í með fingrunum þráðinn í gegnum augað. En
með vírkrók "hafaldakrókur" eftir það að stálhöföld komu til
notkunar. Þræðina (lagði) sveigði hann til hægri handar út á höföldin
og hnytti saman með lykkju þegar ástæða þótti til.
p8
Skeiðarkrókur: flöt
blikk-þynna ca þumlungs breið og 6-7 þuml. löng, ávöl að framan með gogg
myndað nef, sem var krækt fyrir þræðina. Við það starf voru ýmist
einn eða tveir, eftir því sem hver og einn hafði vanið sig á. Ef
tveir voru við það, var skeiðinni smeygt á milli hafaldasnæranna og lá
langs eftir þeim, voru þau bundin saman svo skeiðin gekk ekki ofan á milli
þeirra. Stóð þá sá sem dró í skeiðina framan við höföldin með hægri
hendlegg yfir og aftanvert við höföldin og krækti með skeiðarkróknum fyrir
þræðina, sem vefarinn tók til að ættu í hvern reyra, en hann sat framan
við höföldin, með vefjarendana í vinstri hendi, en tók þræðina til með
þeirri hægri. Þurfti sá að hafa góða sjón, sem dró í skeiðina, því
gæta þurfti þess vandlega að skilja ekki eftir reyr. En væri einn
við ídráttinn hafði hann skeiðina í "slagborðina" lá það fyrir
fram hann og dró þræðina með hægri hendi, þræðina niður um skeiðina, en
hjálpaðist með báðum höndum að taka þá til. Hnýta á skaftið: aldrei
heyrt talað um "framhnýtingu" eða "framhnýtingarskaft".
Uppbinding ekki heldur, þar voru aðeins viðhöfð vefstólssnæri. Þrjú
fest um rifinn, þrædd í gegn um göt á rifnum sem snærishnútarnir féllu
ofan í, en rás var eftir rifnum sem prikið (skaftið) féll í, þegar það
bar að. Þegar ofnar höfðu verið nokkrar álnir var "tekið undan"
sem kallað var, rekið ofanaf rifnum það sem búið var að vefa og snærin
tekin burt, því annars hlaðaðist óeðlilega mikið á þau og myndaðist þá
"gúlpur" eða miskengja í voðina.
p9
Svo voru snærin notuð
aftur þegar vefnum var að ljúka, þá voru þau hnýtt í skilprikið að aftan
og farið eins að og að framan. Oftast var talað um að fella niður
vef eða fella af. Þegar vefur hafði verið "felldur af"
voru þeir endar sam þá gengu af nefndir "neðangangur" notaður
við botaskaga á fötum. En hinir endarnir frá byrjun vefsins "krummaklær"
lítt nothæft. Að draga fyrir: það var eingöngu nefnt að draga
fyrir þegar farið var að vefa einkum ef það var ekki nema lítið í fyrstu.
"Ég dró aðeins fyrir í gærkveldi". Ekki þekkist nema
eitt orðtak um að gefa upp í, og ein aðferð við það, að gefa upp í einum
boga - á öllum venjulegum vefnaði. Ef um grófan vefnað var að ræða
voru oftast slegin tvö högg og þau þéttingsföst. Var fínni vefnaður
einkum dúkar - var ívafið lagt hægt að með einu höggi og áréttað með öðru
þéttara. "Spjálk": Spanstokkur ekki þekkt heiti.
Teikning af henni er í Vefnaðarbók frú Sigrúnar Blöndal - mjög lík því
sem hér tíðkaðist, ætluð til þess að halda voðinni í jafnri breidd - endunum
stungið í báða jaðra - naglaoddum í endanum og haldið þannig af kross flögu
eða snerli sem hélt þeim niðri svo voðin varð þéttari og útlits betri,
einkum í jaðarinn. Vefarinn hafði alinarlangan seglgarnsspotta sem
hann færði til við lok hverrar álnar með hnút á enda, óf það í voðina við
hver skifti.
p10
"Tæra"
nefndist að hleypa af afturrif og vinda upp á framrif nefndist bæði að
færa og öll athöfnin tæra (nafnorð). Oftast talað um að fella niður
vefinn. Fella af "þóf" var tvenns konar: þurraþóf og votaþóf.
Skal fyrst lýst lítillega þurraþófi: heitu vatni var hellt í stóran
bala og sett í það "blauta-sápa" og sódi og þar næst lítils háttar
af "keytu" mun ekki hafa verið ákveðið mál þar á. Þá var
voðin sett í þetta, stappað á henni með prikum og henni velt til. Að
þessu loknu var þessum legi hellt af og hellt á hana volgu vatni oftar
en einu sinni til þess að ná skólpinu úr, og upp úr því var voðin undin
úti á hlaði, voru við það 3-4 menn. Fór sú athöfn þannig fram, að
fest var sterkt prik eða spíta í dyr sem ekki mátti láta undan, endanum
á voðinni vafið þar um eða faldir í voðinni sem var svo dregin upp úr balanum
og jafnframt snúið upp á hana og sett sterkt prik í lykkjuendann, svo auðveldara
væri að snúa upp á voðina. Var teygt á henni af og til. Þegar
þótti full undið voru prikin losuð úr endanum og voðinni hleypt saman í
harðan hnút sem hún gjörði sjálfkrafa. Þá var hún borin inn og losuð
í sundur og þófarinn tók til starfa sem fór fram í tunnu, eða þó oftar
á palli afmörkuðum í baðstofuhorni, því það þurfti að vera í hlýindum.
Þófarinn, sem var venjulega létt klæddur í skyrtu og einum buxum,
því þetta var hita-starf, fór að þæfa
p11
sem aðallega var
fólgið í því að velta þófinu til og frá með fótunum og sparka á því. Með
ca 30 mín millibili var þófinu kipp. Var það framkvæmt af teimur (venjulega)
konum sem höfðu á milli sín 3-4 al. lengju af voðinni, héldu í jaðrana
og kipptu þeim til hliðar með snöggu handtaki, nokkrum sinnum í hvert sinn
sem kippt var. Voðin jafnaðist og varð áferðarfallegri við þessar
aðgjörðir. Þegar voðin dæmdist full þæfð, sem húsmóðirin réði venjulega
um, var hún vafið lauslega upp á fjöl, en síðan af henni og á aðra og vandað
til þess - sátu þá tveir hver á móti öðrum og strengdu sem best. Þeir
gátu voðina á milli sín, var sú áreynsla svo mikil að konur fengu stundum
strengi í handleggi af átökunum. Síðan var vafið eða saumað utan
um fjölina, hún sett undir kistu og jafnvel farg þar ofan á, mjölsekkir
ef til voru, eða grjót. Votaþóf fór fram með líkum hætti. Fór
alið s.a.s. fram í tunnuskrokk og í fjósi. Var það undið upp úr þvælinu
þegar haft var vatnaskipti en fullnaðar vinding eins og áður er lýst. Venjulega
var það jafnað á eftir votaþófinu með þurru þófi, einni eða tveimur skorpum,
en svo nefndist tíminn á milli þess sem kippt var. Undantekningar
lítið þæfðu karlmenn, oftast heimamenn, en í sumum tilfellum voru eldri
menn fengnir til þess sem voru þá á lausum kili, en atvinna gat það ekki
kallast þó þeim væri eitthvað þægt fyrir. Talað var um "þófarabita"
og "þófaralummur"
p12
og var það föst regla
að baka þær handa þófaranum, því þær tilheyrðu því sem nefnt var tilhald
á þeim árum. Ekki er kunnugt að voðir væru sendar í verksmiðjur
í öðrum löndum til litunar eða lóskurðar né þófs, en þegar Gefjun tók til
starfa á Akureyri var sá háttur tekinn upp að senda þangað voðir einkum
fínni dúka til pressu og lógskurðar, en grófari dúka til þófs.
Skráð í febrúarmánuði
1966 Jónas Helgason
Nr. 1261
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Vefnaður var ekki hafinn að hausti, nema ef svo
stóð á, að tóskapur frá síðasta vetri hafði ekki komist í voð einhverra
orsaka vegna. Hausttíminn fór mestur í að hirða um búgripina, lóga
til vetrarins, sjóða og ganga frá vetrarforðanum til geymslu í salti og
sýru. Einng fór mikill tími í það að hirða um eldivið er allur var heimaframleiðsla
og starfsfrekur. Oftast mun hafa verið byrjað á því að spinna
prjónaband og þráð er hafður var til aðgerðar á ullarfatnaði. Ekki
man ég til þess að höfð væri föst venja á því á hvaða vefjarefni byrjað
var, heldur mun brýnust þörf hafa ráðið þar mestu. Oft var byrjað
á að tæta í þráðardúksvoðina, var mjög vönduð vinna og ull til hennar.
Uppistaða og ívaf var spunnið mjög grannt, og varð voðin þessvegna
varpminni en úr gildari þræði. Þessi voð var aðallega notuð í nærfatnað
og rekkjuvoðir. Lítið var um það að vefstóll væri settur saman fyrir
jól. Þótti óhentugt að stunda vefnað í skammdeginu. Um þorrakomu
var tíðast byrjað. Þá fór dag að lengja og birta að skýrast, og aðstaða
öll að batna í misjafnlega björtum húsakynnum. Ef vefari var á heimilinu
var venjan
p2
að hliðra þannig
til með útiverk að hann gæti stundað vefnaðinn frátafa lítið. Voru
þessar aðstæður ekki, var fenginn vefari, og var það alltítt að góðir vefarar
stunduðu vefnarvinnu á vetrum, ýmist hjá öðrum eða tóku voðarefnið heim.
Afköst í vefnaði fóru aðallega eftir tvennu: hversu vefarinn var slyngur
í starfi og hinu hvort uppistaðan slitnaði mikið eða lítið. Væri
þráðurinn grannur og snúðlinur þótti það þolraun að koma voðinni fram,
og vildu fáir við það fást. En metnaðarmál var það flestum að ljúka
góðu dagsverki. Aðfengnum vefurum var ýmist goldið dagkaup eða vist auratal
á alin. Hvert gjaldið var man ég ekki, en dagkaupið var 1 til 1 1/2
króna. Hvað setið var lengi í vefstólnum fór mjög eftir aðstæðum
og kappi vefarnas, ef um ígripavefnað var að ræða. 10 til 20 álnir
ofnar á dag þótti gott dagsverk, og átti hald slöngunnar sinn þátt í því.
Þroskamiklir unglingar 14 ára og eldri fóru að fást við vefnað, ef
aðstæður leyfðu, þá búið var að festa upp vefinn. Ekki varð ég þess
var að vefnaður væri hafður til vöruskifta, enda var það metnaður allra
betri heimila að framleiða flestar nauðsynjar sínar.
p3
Vefstóll: Vefstóll
var hann oftast kallaður, þó heyrði ég stöku sinnum nefndan vefstað. Kljásteinsvefnaðinn
heyrði ég oft talað um, en ekki get ég fullyrt um það hvenær hann lagðist
alveg niður, en hinsvegar heyrði ég oft talað um harm, og hið mikla erfiði
er honum fylgdi. Það var talið með bestu afrekum í því starfi, ef
ofin var ein alin á dag. Engar menjar sá ég frá þeim vefnaði nema
steina er kallaðir voru kljásteinar. Voru þeir sjáanlega höggnir til og
þynntir í eina brúnina og gat gert í gegnum hana. Kljásteinar þessir
voru notaðir í hengsli á hurðir, sem áttu að falla aftur, er um dyrnar
var gengið. Tvennum vefstólsgerðum kynntist ég, er að mestu
leyti voru eins og myndirnar á A og B á spurningaskrá nr 15. Foreldrar
mínir áttu vefstól af A gerðinni fram um 1890, þá var smiður fenginn til
þess að breyta honum í B gerðina, þótt ekki væri hún að öllu eins. Smiðurinn
er breytinguna framdi ar vel hagur bæði á tré og málma og fórst starfið
vel úr hendi, og var sá vefstóll lengi notaður. Þá er að
greina frá mismun myndarinnar A og þess vefstóls, sem ég þekkti. Vefjarrifurinn
(stangarrifurinn)
p4
var staðsettur í
þríhyrningi, er felldur var í kverkina, sem myndaði vinkilhorn milli afturstöpla
og efstu hliðarrima vefstólsins. Armar skeiðhaldsins voru þannig
að efri hluti þeirra var mun breiðari en þar, sem þeir gengu gegnum þverspýturnar,
er héldu að skeiðinni, en í breiðari hlutann voru gerðar raufir, hæfilega
breiðar fyrir þykkt efstu hliðarrimanna. Sívalur járnteinn lá þvert
yfir raufarnar, og héldu þeir uppi skeiðarhaldinu, er því var smeygt á
rimarnar. Ofan á rimunum var gengið frá járni upp á röð með 3 skorum
í röndinni. Í þeim skorum hvíldu járnteinar skeiðarhaldsins, og var
þar hægt að færa það fram eða aftur, eftir því er henda þótti. Þá
var skammelarimin staðsett milli framstöplanna neðan við setubekkin. Frá
setubekknum var þannig gengið, að sverar járnlykkjur voru reknar framan
í framstöplana, og aðrar 2 til endanna, gegnum setubekkinn. Í þeim
voru festir járnkrókar, er var krækt í lykkjurnar framan í stöplunum. Þetta
var öruggur útbúnaður á sætinu. Annan útbúnað sá ég á setubekk við
vefstól, en hann var svo svikull að vefarinn lá í pallinum er síst skyldi.
Þá er að geta um uppihöld hafalda. Hafaldssláin, sem lá á milli
og ofan á efstu rimunum, hélt uppi höföldunum,
p5
á þann hátt, að bundið
var upp um slána 2 trissum yfir báðum endum hafaldaskaftanna. Á hjóli
trissarma eru bönd með krókum á báðum endum, sem krækt er í lykkjur á hafaldasköftunum.
Milli hafalds og hliðarskafta eru bönd með króka á báðum endum er
tengja saman sköftin og samskonar bönd tengja saman hliðarsköftin og skammelin.
Krækingar milli skafta og skammela voru breytilegar eftir því hvaða vend
átti að vera á voðinni. Þegar A vefstól var breytt í B, var
byrjað á því að saga afturstöplana sundur ofan við bómurimina, skift var
um áður kallaðar miðhliðarrimar, en látið í þeirra stað breitt og viðamikið
borð, þar var vefjarrifurinn staðsettur afturundir afturstöplunum. Rifshausinn
var utan á vefstólsgrindinni vefaranum til hægri handar framan á hausinn
var negldar krossspýtur er notaðar voru þegar slangan var undin á rifinn.
Járngaddar voru reknir í hausinn með jöfnu millibili og var stillir
á þeim til þess að takmarka áfæruna. Um miðju vefstólsins voru uppstandarar
felldir utan í hliðarborðin og treyst með skrúfnagla gegnum hvorttveggja.
p6
Slá var felld ofan
á uppstandarana sem var nefnd hafaldaslá og gengdi sama hlutverki og á
mynd A. Skeiðarhald var staðsett á sama hátt og á A myndinni. Þverrimar
breiðar voru milli hliðarrimanna öllu framar en armar skeiðarhaldsins í
þær var voðarrifurinn settur og var hausinn á honum innan við rimina til
hægri handar vefarans. Á hausinn var negldur járnhringur fremur smátenntur
á efri brúnina og var hann það stærri en ummál haussins að tennurnar stóðu
út af brúnum hans. Járnloka var þar staðsett þannig, að hún gekk
eftir tönnunum er rifnum var snúið áfram, en hindraði að hann gæti gengið
til baka. Á þennan hátt var vefurinn spanaður. Gat var borað
gegnum hinn enda rifsins við innanverða þverrimina, í það var settur nagli
er stóð út af rifnum beggja vega og hindraði að hann gæti gengi til. Ofan
í spor á hliðarrimum var felld þverspýta, er var nefnd hnéslá, stækkaði
hún rými vefarans er hann sat að starfi. Allflest heimili munu hafa
átt vefstól, en þar sem þeir voru ekki var vefnaðinum komið fyrir á öðrum
bæjum. Ekki man ég til þess að vefstólar væru til sölu, hitt mun
hafa verið tíðara, að þeir væru smíðaðir heima. Hraðskyttu
og tvíbreiða vefstóla heyrði ég nefnda, en ekki varð ég þeirra var hér
um slóðir.
p7
Skeið: Vefjarskeiðar
voru 5 kvartel á lengd, og voru nefndar eftir tannatölu á kvarteli. Flestar
þeirra voru 80 til 100 tanna, en fátíðar voru 70 og 120 . Allar voru
þær útlendar og engar sá ég né heyrði talaða um er smíðaðar voru hérlendis.
Ekki heyrði ég önnur nöfn á skeiðunun. Vefjarskyttur: Allar
voru þær smíðaðar úr harðviði, eik, brenni og aski. Breiðastar voru
þær um miðjuna. Þar gjört hús fyrir spóluna. Í öðrum enda þess
var gengið frá járnteini er kallaður var ýmist spólu eða skyttuteinn. Í
hinum enda hússins var gengið frá málmplötu með holu í miðju, en lítil
rák var ofan að holunni, eftir henni var hinum enda teinsins þrýst ofan
í holuna, og sat þá teinninn fastur í miðju spóluhúsinu. Spóluhúsið
var oftast tæpur þriðjungur að lengd skyttunnar. Endar skyttunnar voru
miklum mun grennri en miðjan, skorið var sveigmyndað úr þeirri hliðinni
er að vefaranum snéri, en af hinni hliðinni, er frá vissi, var tekið af
endanum þannig að endarnir voru út af miðju skyttunnar. Einnig voru
endarnir mjög þynntir fram. Þá var eir eða látúnshlíf sett á endana
er var mjög grönn fremst. Neðan á skyttuna voru settir 2 látúnsvírar
og voru vinkilkrókar á endum þeirra reknir neðan í skyttuna, en þannig
var að þeim
p8
þrengt, að þeir gátu
ekki lagst alveg að skyttunni, og voru undir 2/3 hlutum hennar. Þetta
minnkaði svigrúm skyttunnar er henni var skotið gegnum skilið. Á
hlið spóluhússins er að vefaranum snéri, var gat, sem tryggt var á ýmsun
hátt gegn því, að ívafið af spólunni, er gegnum það gekk, mætti þar engri
hindrum. Þær spólur er ég kynntist voru allar úr trávið. Þær
elstu voru með beinhnúðum er voru felldir á enda leggsins, en illa þótti
rekjast af þeim til endanna. Renndu spólurnar voru þannig að endar þeirra
voru hæstir og jafn halli ofan á legginn. Þá sá ég notaða fyrir spólur,
hólka, er beygðir voru saman úr þykktu pjátri, hnúðalausir. Þóttu
þeir neyðarúrræði. Roðspólur sá ég ekki. Spólurokkur: Spólurokknum
gjörði ég skil í svari mínu við spurningaskrá 14 og vísa til þess.
Spanstokkur: Spanstokkur er einnig var kallaður sprauta, var
hafður til þess að halda út jörðum voðarinnar, svo að hún héldi sömu breidd
og hún hafði í skeiðinni. Varð þessvegna að gæta þess að færa sprautuna
er voðin gekk fram. Tvennar gerðir sá ég af sprautum. Endar
sprautunnar voru röskir 2 þumlungar á breidd.
p9
Grannir málmoddar
voru í endunum, er stungið ar í voðarjaðarinn. Skammt frá endum var
þverskora gerð inn að miðju spýtunnar frá báðum hliðum. Síðan var
....... rennt í sundur milli skoruendanna, og voru 2 helmingar jafnir.
Þá voru göt gegnum báða helmingana og nokkur fleirri á öðrum. Band
var þrætt í götin og helmingarnir bundnir saman. Með því að færa
til bandið í götunum, var hægt að stytta eða lengja sprautuna eftir þörfum.
Klúrur voru á báðum helmingunum til þess að halda andstæðingnum niðri.
Hin gerðin var þannig að þverskorur voru gerðar gegn hvor annarri
í renndur spýtunnar skammt frá enda hennar, en miðhlutinn skorinn úr hinum
hluta hennar og tekinn þar í sundur skammt frá enda hennar. Þá voru
boruð göt þvert í gegnum þessa 3 arma og sívalur málmás rekinn í gegnum
á einum stað, og var þolinmóður sprautunnar. Málmgjörð var smeygt
upp á tvíarmaða hlutann, og var hún færð yfir á neðri hlutann, er sprautan
var spönuð. Hægt var að lengja og stytta eð því að færa þolinmóðinn.
Að leggja upp vef: Um það hefi ég fátt að segja annað
en það að farið var eftir lengd þráðarins er í vefjarslönguna átti að fara.
Breidd voðarinnvar var ákveðin, og varð að hafa ákveðinn þráðafjölda.
p10
Efnið ákvað því lengd
slöngunnar. Gangurinn var þannig: þráðurinn var hespaður af rokksnældunni.
Ummál hespuhjólsarmanna 3 álnir. 50 umferðir voru kölluð knekk
og spotti hafður til þess að greina þau hvert frá öðru. Þar sem lengd
hespunnar var kunn, var auðvelt að reikna hvað slangan mátti vera löng.
Ekki er mér kunnugt um hvaða aðferð var notuð við að reikna út slöngustærð
eftir þunga þráðarins. Sá aðeins einu sinni komið með hnykla í vefjarslöngu,
og er sennilegt að þar hafi verið miðað við þunga þráðarins, en vafasamari
hefir sá grunnur verið á að byggja en lengdarmálið. Sauðvölur voru
almennt notaðar til að vinda á hnykla, en aðallega var það prjónaband og
saumþráður. Að reikna í skeið: Að reikna í skeið vissi
ég ekki til að ylli vandræðum. Gerð allra voða var miðuð við breidd
og varp. Væri efnið af skornum skammti, var það látið koma fram á
breiddinni, en auðvitað var varp voðanna miðað við í hvaða klæðnað þær
áttu að fara. Að reikna í vef: Þegar reikna átti út
vef í 80 tanna skeið, var fyrst athugað að skeiðin var með 400 tennur.
Væri gjört ráð fyrir
p11
að hafa 2 þræði í
annarri tönn, en þrjá í hinni, og til að fylla út í skeiðina þurfti slangan
að hafa 1000 þræði. Þá var vitað hvað slönguefnið var margar álnir
og var þá reiknað hvað voðin mátti vera löng. Í spurningunni er talað
um munstur, er ég býst við að sé hið sama og við hér eystra köllum vígindi,
t.d. vaðmálsvígendi, einskeftu vígind osfrv., en munstur var það kallað,
er slanga og ívaf var mislitt eða annað tveggja. Ekki sagt um hvaða
reglum var fylgt þegar þungi þráðarins var hafður að undirstöðu, var sú
aðferð gengin um garð, er ég var að alast upp, en hinu man ég eftir að
spunakonur voru að vigta hespur, sem þær vissu hvað höfðu langan þráð og
töluðu um hvað margra lóða garn það væri. Að reikna í skeið:
Þegar uppfestingu vefs var það langt komin að búið var að draga í
höföldin, var vitað um þráðafjölda slöngunnar, og var hann venjulega sá
er ráð var fyrir gert, en ystu þræðirnir færri, var það látið koma fram
á voðarbreiddinni, en ekki á varpinu, og jafnmargar tennur á báðum endum
skeiðarinnar ekki notaðar. Hins vegar var varp voðanna mjög misjafnt
eftir því í hvaða fatnað þær áttu að fara.
p12
Að reikna í vef:
Þessu tel ég að mestu svarað við að leggja upp í vef. Uppistaða
í vef var slönguefnið kallað, en slanga eftir að það kom af rakgrindinni.
Fyrirvaf og ívaf nefndist sá hluti vefsins er skyttan flutti gegnum
skilin. Veft heyrði ég nefndan á síðustu árum hins almenna vefnaðar
iðnaðar hér á Fljótsdalshéraði, og mun það orð hafa verið aðflutt.
Rakningsgrind: Rakgrind var það áhald kallað er vefjarslanga
var rakin á, og var hún þannig gjörð að 2 spýtur jafnlangar voru lagðar
saman í kross og tengdar saman á þann hátt, að spor var tekið í flatveg
beggja, og voru gerð nákverna fyrir breidd spýtanna. Þegar spýturnar
voru felldar saman í sporin, gátu þær ekki gengið til í krossinum. Þannig
voru báðir endar rakgrindarinnar gerðir. Hliðar grindarinnar, er
voru mun lengri en krossarmarnir, voru felldar inn í enda krossanna og
mynduðu vinkilhorn við þá. Krappar voru settir í hornin til styrktar.
Eina rakgrind þekkti ég, er hafði þriðja krossinn í miðjunni. Hún
þoldi vel þungar slöngur án þess að skekkjast. Víð göt voru gerð
í miðja krossana. Gegnum þau var langur timburás og stóðu endar hans
bæði uppúr og niðurúr krossinum. Þegar farið var að rekja vef, var
rakgrindin venjulega höfð undir lofti í portbyggðu húsi, baðstofu
p13
eða framhýsi. Neðri
endi ássins var hafður í holu er gerð var í spýtu er höfð var undir enda
hans á gólfinu, en efri endinn var hafður í hanka úr tré eða leðri, sem
negldur var utan á bita er loftið hvíldi á. Milli tveggja hliðarálma
grindarinnar voru settir 2 hælar er nefndir voru rakgrindarhælar, en utan
í þá voru festir 2 hælar í annan en 3 í hinn og voru þeir kallaðir skilhælar.
Rakgrindur munu hafa verið færri en vefstólar. Balbínur, balbínustóll:
Balbínum og balbínurokk hefi ég lýst í svari við spurningaskrá 14,
og vísa til þess. Balbínustóll var þannig gerður að 3 uppstandarar
voru festir í borðstúf að neðan, og spýta var felld ofan á endana til þess
að halda þeim saman. Milli uppstandaranna var myndað rúm fyrir 2
balbínur samhliða. Göt með jöfnu millibili voru boruð á uppstandarana
og sívalir járnteinar í þeim, sem balbínurnar ultu á er rakið var. Neðan
á borstúfinn voru þverspýtur negldar, til þess að gjöra hann stöðugri,
er af honum var undið. Misjafnir voru þeir á hæð, fyrir 12 eða 16
balbínur. Kallað var það að balbína, að fylla þær.
Rakningsspaði: Rakningsspaða sá ég engan né heyrði talað um, en völur
heyrði ég talað um, að hafðar hefðu verið á vefjarþráðum, þá rakið var.
p14
Rakningsstokkur:
Eins og ég mun hafa getið um, sá ég aðeins einu sinni rakið úr hnyklum.
Var það nágrannakona er kom með vefsefnið og fékk það rakið. Smá
ílát voru tínd saman undir hnyklana. Rakning á rakningsgrind:
Uppsetningu rakgrindar sagði ég frá, er ég lýsti henni. Áður
en byrjað var að leggja á grindina, var álnað ofan af einni balbínunni
jafnlangur þráður og slangan átti að hafa, var þar hnýtt merki á þráðinn,
síðan var hann undinn upp á balbínuna aftur. Þá voru endar allra
þráðanna bundnir saman, en fyrir ofan hnútinn var þræðinum skift í 2 jafna
hluta og smeygt upp á fremsta hælinn af 3 er festir voru utan í rakgrindarhælinn
efst á grindinni. Síðan var tekið þéttingsfast utan um þræðina með
vinstri hendi og fyrsti fetinn lagður á grindina á þann hátt, að hann var
lagður ofan á annan skilhælinn en undir hinn, en grindinni snúið með hægri
hendi þar til að komið var að markinu á merkta þræðinum. Þá var neðri
grindarhællinn settur í grindina og bundinn og stillt svo til að markið
á þræðinum kæmi framan á fjarri skilhælinn. Var fetinn lagður undir
hinn hælinn, en ofan á þann fremri og brugðið um hann og farið til baka,
og var þá fetinn lagður ofan á hinn skilhælinn og til baka upp grindina
neðan við fyrri fetann.
p15
Þegar komið var að
efri skilhælunum, var fetinn lagður ofan á skilhælinn, sem fyrri fetinn
var undir, en undir hinn hælinn, og síðan framyfir fremsta hælinn, án þess
að mynda skil þar. Tveir fetar fram og aftur um grindina voru nefndir
gangur. Utan um fyrsta ganginn var bundinn spotti, og var honum brugðið
um og milli þeirra er á eftir komu. Er búið var að rekja vefinn,
voru spottar dregnir í skilin og bundið að, bæði að ofan og neðan, og gátu
gangaskil ekki raskast. Spottar þessir voru nefndir skilspottar.
Venjulega voru 2 við að leggja fyrsta ganginn á grindina. Var þess
vel gætt að halda þétt og stöðugt um fetann, og leggja hann ávallt á bera
grindina, en ekki utan á það sem komið var, og fyrir neðan fetana. Þegar
lokið var að rekja, nefnist uppistaðan á grindinni slanga. Þá var
slangan tekin af grindinni þannig, að byrjað var á efri enda og brugðin
lykkja á hann. Gegnum hana var hendi rétt fram á slönguna, og hún
dregin í gegn. Myndaðist þá lykkja er var hnýtt á sama hátt og hin fyrri,
og svo koll af kolli, þar til hinn endi slöngunnar var dreginn gegnum síðustu
lykkjuna. Þetta var kallað að lykkja niður af grindinni. Væri um
mislita uppistöðu að ræða voru litaskiftin höfð á fyrjunarhælunum. Ekki
kynntist ég því að framyfir skot væru viðhöfð er uppistaða var mæld. Fyrir
henni var gjört ráð í upphafi.
p16
Að rekja á veggjahæla
og rúmstöpla: Þeirri aðferð kynntist ég ekki, hinsvegar heyrði ég
talað um þá aðferð í svipaðri fjarlægð og kljásteinavefnað.
Hafaldagrind og höföld: (hér er mynd af hafaldagrind). Þá hef
ég gert tilraun til að teikna hafaldagrind, þótt ekki tækist fimlega. Hafaldaefnið
ar rakið þannig að þræðinum var brugðið um efri enda augteinsins er upphaf
stendur, og mælt hvað hann þurfti að vera langur, var þar gjörð lykkja
og vísifingri brugðið í enda hennar. Síðan var þráðurinn hespaður
milli teinsins og fingursins. Þegar nóg þótti komið í svip, var hespan
skorin sundur við fingurinn og var fenginn annar helmingur í hafaldið.
Hinn var fenginn á sama hátt, en hafður mun lengri sökum þess að
með honum var myndað auga hafaldsins og hnýtt að teininum, en hinum þræðinum
brugðið í lykkjuna áður en hnýtt var að.
p17
Venjulega voru 2
að hnýta og höfðu grindina á milli sín. Hnýta varð hnúta sem ekki
rann á. Heyrði ég hann nefndan bæði spöruhnút og línuhnút. Útaf
hliðum grindarinnar stóðu endar gaflanna, milli þeirra var bundinn sterkur
spotti er kallaður var leyniþráður. Þegar búið var að hnýta að hliðunum,
var endunum einnig brugðið um þræðina og hnýtt að. Þegar búið var
að hnýta hafaldið var neðri gafl grindarinnar tekinn af henni og hafaldasköftunum
smeygt með hliðunum og leyniþræðirnir bundnir um enda þeirra og fast strengdir,
svo höföldin gátu ekki gengið af sköftunum. Augateinninn var lítið
grennri niður en hafaldið hnýtt efst um hann, og fært niður er því var
lokið. Er vefnaði var lokið var höföldunum vafið um önnur sköftin,
bundið utan um þau og hengd upp á þurrumstað. Stálhöföld heyrði ég
ekki nefnd, en höföld með stálaugum heyrði ég talað um, en sá ekki. Þau
fengu misjafna dóma of voru mjög fátíð. Vinnslu hafaldaþráðar hef
ég getið í fyrri svörum mínum. Vefjarkambur: Hann var
gjörður af 2 spýtum jafnlöngum. Á annarri voru hælar út við hvorn
enda. Á hinni voru spor, sem hælarnir gengu gegnum. MIlli hælanna
var áþekk lengd og hafalda og skeiðar og í það bil boraðar 50 holur, og
þær reknir sívalir tindar
p18
úr brúnspæni. Rás
var gjörð á milli sporanna á hinni spýtunni og síðan færð á hælana, og
gengu þá tindaendarnir inn í skoruna. Þá var loka sett í hælana og
vefurinn lokaður í kambinum. Að láta í kamb: Það var
kallað að leggja í kamb, er slöngunni var dreyft á milli tindanna í vefjarkambinum.
Fór það eftir breidd slöngunnar, hvort lagt var í hann allan eða
ekki, en hins var gætt að hafa jafn breitt í kambinum og átti að verða
í skeiðinni. Fetunum var síðan skift jafnt eftir því er hægt var,
milli tinda þeirra er notaðir voru, en aldrei var feti klolfinn til þess
að jafna þráðafjölda. Rifskaft var það skaft kallað sem fest var
í rifinn og gekk gegnum afturskilið, og var sterkur þráður bundinn um enda
þess, og var hann síðan dreginn gegnum fremra skilið og bundinn um hinn
enda skaftsins. Hann var vel strengdur. Að festa upp: Það
var kallað jöfnum höndum að festa upp, og að setja upp vef.
Að bóma vef: Að vinda slöngu á slöngurif var kallað að bóma vefinn.
Rifurinn var þannig gjörður, að djúp skora var í honum endilöngum, ofan
í hana var rifskaftið látið. Tveir kragar voru
p19
utan um rifinn og
3 göt voru boruð gegnum báða enda hans. Í þeim voru járnteinar sem
kragarnir voru felldir að með því að færa til járnteinana í götunum var
hægt að lengja eða stytta bilið á milli kraganna eftir þörfum. Þá
voru kragarnir færðir upp á skaftsendana í skorunni og héldu því föstu.
Venjulega voru 4 menn við að bóma vefinn. Tveir undu
á rifinn, einn gætti kambsins, og þess að slangan legðist slétt á rifinn
og þétt að krögunum og greiddi úr flækju, ef fyrir kom. Sá fjórði
hélt í slönguna og þótti það mestu skifta að það tækist vel. Frá
slöngurif var slöngunni brugðið upp yfir bómu og fram yfir efri framrim,
og þaðan fyrir voðarrifinn. Aldrei sá ég bómaðan vef án þess að kragar
væru á rifnum, en um það heyrði ég talað. Þegar búið var að bóma,
var komið með 2 sköft, sem nefnd voru skilsköft. Voru endar þeirra
bundnir saman með stuttu millibili, er búið var að smeygja þeim í skilin.
Þá voru öll bönd leyst af slöngunni, og breitt úr henni á sköftunum,
og enda skift í mörg smá hnýti, til undirbúnings við hafaldadrátt.
Að draga í höföld: Tveir menn voru jafnan við það að draga
í höföld, sat annar framan við höföldin. Byrjaði hann á því að telja
25
p20
höföld á fremsta
hafaldi, brá hann þeim í greipina milli þumal- og vísifingurs vinstri handar.
Þá tók hann áþekkan fjölda af næsta hafaldi milli vísifingurs og
löngutangar. Eins fór hann með aftari höföldin, og tók þau í greiparnar
er eftir voru. Hinn sat aftan við vefstólinn og rétti fram þræðina.
Byrjaði hann að leysa lykkjuna á jaðarhnýtinu með skilgreiningu og
rétti hafaldamanni er risti fram úr lykkjunni, og rétti til baka. Þá
var réttur jaðarþráðurinn, og var hann dreginn gegnum augað á aftasta hafaldinu.
Þeir næstu í þau næstu og sá fjórði í fremsta hafaldið. Þetta
var svo endurtekið þar til höföldin í þumalgreipinni voru þrotin, og 100
þræðir komnir í hafaldaaugun. Þráðarendarnir sem lagðir voru til
hægri fram á höföldin voru teknir í tvennt og hnýttir saman og lykkja gjörð
á seinna hnútsbragðið. Sama aðferð var endurtekin þar til slangan
var búin. Sá er rétti fram, varð að gæta þess að þræðir hvers feta
kæmu rétt fram. Að draga í skeið: Áður en byrjað var
að draga í skeiðina voru bönd bundin milli efri og neðri hafaldaskaftanna,
og voru þau höfð það slök að skeiðinni var smeygt inn fyrir þau, og var
hún látin halla lítið að manninum í henginu. Til þess að draga þræðina
gegnum skeiðina var notað áhald er kallað var gikkur.
p21
Þetta var venjulega
lítil spýta, sem var mjög þynntur fram og krókur á endanum. Sá er
dró í skeiðina tók þráðarknippið í vinstri hendi, rak gikkinn upp á milli
tannanna þar sem hann sat fastur, tók síðan þræðina með hægri hendi og
lagði þá á skeiðina þvert fyrir gikkinn, og dró þá í gegn. Ekki kynntist
ég því að 2 væru við að draga í skeiðina. Þegar 100 þræðir voru komnir
í gegn, var þeim skift í tvennt og hnýtt að. Að hnýta fram:
Þegar búið var að draga í skeiðina var skeiðarhaldið látið á vefstólinn,
og skeiðin í það. Þá var komið með skaft er uppistaðan var hnýtt
fram á, og nefnt var framhnýtingarskaft og vefstólssnærið. Það hlaut
það nafn, af því að það var ekki notað til annars en við uppsetningu og
fellingu vefa. Miðju snærinu var bundið um mitt skaftið og endarnir
dregnir í gegnum göt á voðarrifnum, er voru náið endum hans, og síðan var
þeim bundið um enda framhnýtingarskaftsins. Þá var byrjað á framhnýtingu
á þann hátt, að 100 þráða hnútur var leystur um miðja skeið og helmingur
hans hnýttur fram yfir skaftið. Síðan voru jaðrahnýtingar teknir
og gjörð sömu skil, og síðan koll af kolli, þar til slangan var öll komin
fram. Þetta verk varð að vinna af mikilli vandvirkni svo vel færi.
Þræðir allir jafnt strengdir.
p22
Uppbinding:
Henni hef ég að nokkru lýst, er ég lýsti vefstól, og er þar litlu við að
bæta. Útlit voða tók breytingum eftir því hvernig krækt var frá höföldum
niður í skammel. Aðallega voru 3 vefnaðartegundir framleiddar: vaðmál,
einskefta og vormeldúkur. Afbrigði frá þeim voru klæðisvefnaður og
brekáns. Áferð vefnaðarins var kölluð vígindi, og var hún breytileg
eftir því sem krækt var upp og stigið. En hver krækjuaðferð tilheyrði
hverri vefnaðartegund er ég búinn að gleyma. Vefjarhnúta heyrði ég
ekki nefnda, en línuhnútur var notaður við vefnað vegna þess að hann var
fyrirferðar minnstur, og aldrei rann á hann. Að draga fyrir:
Þegar vefarinn settist í stólinn, og steig í skammelin, kom skilið
í ljós, og skyttunni var skotið í gegnum það. Oftast var gefið upp
í, sem kallað var, og var það framkvæmt þannig, að vefarinn brá fingri
eða fleirrum, niður um miðja slönguna og ýtti ívafinu í boga upp að skeiðinni,
og hún lögð að áður en annað skil var stigið. Voð var kölluð vel
vörpuð þess efnismeiri sem hún var, og var það gjört með því að gefa upp
í og með því að hafa 3 þræði í tönn. Þeirri hendinni er skyttunni
skaut var gripið ofan í skilið, og gefið upp í og síðan um skeiðar og ívafið
slegið að. Voru þá oft framkvæmd snör handtök.
p23
Strax þá búið var
að vefa það breiða mön, að spanstokkurinn hafði þar sæti, var hann lagður
á og stilltur þannig að hann hafði sömu lengd og breidd slöngunnar í skeiðinni.
Engin hætta var á því að voðin gengi að sér, ef spanstokkurinn var
þétt færður. Þegar búið var að skjóta fyrstu fyrirdrögunum, var tekinn
sterkur og toglaus spotti, rekinn hnútur á enda hans. Þá var mæld
alin frá hnútnum á spottaendanum, og hann látinn ofan á milli þráðarma
og ofið að. Hnúturinn varnaði því að spottinn drægist úr voðinni.
Er búið var að vefa alin var spottin tekinn og notaður aftur. Þetta
var kallað alinmál. Lítið var um misfellur í vel röktum og vel uppsettum
vef, nema ef slönguþráðurinn var grannur og snúðlinur, og var þá ekki annað
fyrir en bæta og hnýta, en þolraun þótti það vera. Ekki vantaði það,
að talið væri um aðsókn á fyrri dögum, en fáum hygg ég að hafi verið alvörumál,
en sjálfsagt var að nota tækifærið, ef tilefni var til, er góðkunningja
bar að garði. Áfæra var það nefnt að losa af slöngurif og vinda á
voðarrif. Að fella vef: Að ljúka vefnaði og taka hann úr vefstól,
var kallað að fella ef. Neðanafgangur voru þeir endar kallaðir, sem
af gengu, og voru notaðir til aðgjörða. Krummabrækur af framhnýtingarskafti.
p24
Þóf: Mig rekur
minni til þess að okkur krökkunum þótti mikið til koma þegar fara átti
á svokallað fótaþóf. Nýofin voð hafði verið tekin niður úr vefstólnum.
Ef hún var löng, var henni skift í stykki, er hæfileg þóttu að hafa
undir fótum í einu. Þá var settur pottur á hlóðir og hitað mikið
vatn. Þegar sauð, var því hellt í stóran bala, og þvottaefni sett
saman við. Upp úr þessu var voðin þvæld og þvegin. Síðan tóku
2 menn balann með voðinni og báru fram í bæjardyr. Höfðu þeir sinn
stafinn hvor meðferðis. Annar þeirra greip hendi ofan í voðina og
frá stafnum í lykkju þá er myndaðist og gekk frá dyrunum, þar til dyramaður
var búinn að rekja voðina upp úr balanum, og brá endum hennar utan um sinn
staf, er hann hafði þversum í dyrunum. Síðan tók útimaðurinn að snúa
upp á voðina og gjörði hann ýmist að snúna á eða toga í voðina, eftir mætti
og rann þá vatnið úr henni, og ekki hætti hann fyrr en hún var komin í
einn hnút upp við hendur dyramanns. Þá var voðin borin til baðstofu,
og rakin sundur ofan á sterkan hlera, sem lagður var ofan á pallinn. Fór
þá þófarinn að fækka fötum, og var oftast á nærfötum einum. Betra
þótti að hafa eftirlit með þófaranum,er honum hljóp kapp í kinn. Þegar
þóf fór að koma í voðina, tóku 2 hana milli sín og teygðu, héldu um jaðrabrúnir
og lögðu nærri saman
p25
og kipptu síðan snöggt
og fast í jaðrana, og ef að þeir urðu vel samtaka kom hár smellur, og var
það kallaður búmanna smellur. Þetta var kallað að kippa, og var endurtekið
svo oft sem þurfa þótti. Oftast voru karlmenn á heimilinu er þæfðu.
Þófið var miðað við í hvaða fatnað voðin átti að fara. Þófaralaun
var sjálfsagt að gjalda, og var það oftast í mat eða drykk og öðru því
er þófaranum þótti til koma. Alkunn ar hér vísan til Bárðar á jökli, og
kváðu unglingar hana hárri röddu, er þeim þótti seint ganga þófið. Vísan
var höfð svona: Bárður min á jökli, leggst þú á þófið mitt - Eg skal gefa
þér lóna innan í skóna - hálfa skeifu og nagla þrjá - mórautt lamb þegar
ég á - og láttu ganga þófið þá. Ekki var ég þess var að borgun
væri tekin fyrir að þæfa voð, var það talinn sjálfsagður nágrannagreiði.
Þegar þófi var lokið, tóku 2 menn voðina og undu hana upp á fjöl,
teygðu hana á lengd og breidd. Þá var tekin önnur fjöl og undið af
þeirri fyrri á hana og vandað vel, og látin undir far. Lítið var
um það að voðir væru sendar í verksmiðjur til lóskurðar eða litunar. Votaþóf
var oftast þæft í stampi úti í fjósi.
p26
Þurubragur ortur
af séra Ólafi Indriðasyni á Dvergasteini. Lofsyng ég Þuru sem þörfust var
hér - þakklæti henni og virðingin ber - hennar frá Silstöðum frægðin út
fer - fúna því ekki, hún skyldi hjá mér. Eina hér nýlega bjó hún til brók
- bandið hún rétt fyrir mánuði tók - höfuð, mund, læri og handleggi skók
- handagang mikinn og skrum jók. Af hennar vörum fékk orð ekki neinn
- öllum hún dögunum þagði sem steinn - hver hennar talaði hrund eða sveinn
- hann varð að skrafa það allt einn. Svitinn í dropum af drósinni rann
- dansinn að neðan í setinu brann - andlit af raununum umhverfast vann
- um hana mokkaði gufan.
Nr. 6276
p1
Ull og tóvinna 3.
Ég þakka fyrir vinsamlegt bréf frá 14. febrúar. Gott ef eitthvað
nýtilegt finnst í þeim molum, sem maður er að reyna að sópa saman.
Því miður kom þetta síðasta verkefni að tómum kofunum hjá mér, eða
svo má heita. Þetta er orðið það fjarlægt. Foreldrar mínir
áttu ekki vefstól. Við vorum á leigujörð, Hægindi í Reykholtsdal,
1926-36. Eigandi jarðarinnar, Helgi Þorbergsson, f. 22-11-1859, d.
7-10-1947, átti heima þar. Hann átti vefstól, og óf fyrir heimilið
fyrstu árin. Hel, að ég hafi verið 8 ára, þegar hann síðast
"setti til vef" heima. Hann gat þá notað mig til að rétta í höföld,
og eitthvað spólaði ég líka. Ég man þetta óljóst, enda meir en hálf öld
síðan, en spólurokkurinn var apparat með titti sem spólunni var smeygt
uppá, og handsnúið. En ég veit líka að gömlum rokkum var breytt í
spólurokka. Vefstóll var aðalnafnið, en ég heyrði þó nefndan vefstað.
Ég hef aðeins heyrt um kljásteinavefnað. Laufey Hannesd.,
man að móðir hennar Ólöf Sveinsd. í Brekkukoti, ættuð úr Fljótshlíð hafi
heyrt í æsku, að gott hefði þótt, eða góð afköst, að vefa alin á dag í
kljásteinavefstól.
p2
Ég man nöfnin skeið
og ritti. Efni kopar og járn. Bestar voru harðviðarskyttur.
Sumar voru látúnsklæddar að neðan. Spólusteinninn kallaður
prími, en Laufey Hannesd., sem ég hef meiri hluta af þessum svörum frá,
segir að faðir sinn hafi slegið til spólur úr járni.
Laufey rissaði upp
mynd af spanstokk, sem fylgir þessu. Orð notuð um uppistöðu voru
ívaf og uppistaða. Rakningsgrind hef ég áreiðanlega heyrt,
en Laufey segir rakgrind. Hún nefnir ás, grind og grísholt. Grísholt
efst og neðst, sem rakið var uppá af rakgrindinni. Uppistaðan var
nefnd slanga. Við Laufey munum bara aðkeypt hafaldagarn. Ég
man eftir brúnni, nokkuð stórri hnotu. Höföld voru geymd í kommóðuskúffu,
og reynt að verja þau fyrir slaga. Þráðurinn í fremra gangskilinu
- skilþráður. Tveir unnu saman við að draga í höföld. Annar
rétti fram þræðina.
p3
Þráðarendar frá voð
voru kallaðar afvikur, og var notað sem þræðigarn (að þræða sauma), en
mig rámar í að hafa heyrt krummabuxur líka. Faðir minn þæfði í baðstofuhorni,
og var hlaðið í kringum hann. Þar þæfði hann undir fótum, léttklæddur
og kófsveittur. Ég man þegar móðir mín og amma voru að hrista það
upp. Þær létu smella hátt. Það var talað um þófarabita, en
ekki man ég hvað pabbi fékk, en hann þurfti mikið að drekka. Það
sem ég kann úr vísu: Bárður minn á jökli - leggstu nú á þófið mitt.
Lengra nær ekki minn lærdómur í því. Voðin var undin
upp á fjöl, og sett undir farg, til pressunar.
Ég sendi nokkur vefnaðarsýnishorn
fyrir ári síðan, flest frá Brekkukoti í Reykholtsdal. Hef fengið
lofun fyrir bót á einum bæ, og þarf að kanna á öðrum bæ, en hef ekki tök
á því núna. Þetta er aumt, en ég get ekki betur. Ég
veit ekki hvort ég á að endursenda verkefnablöðin, ef svo er, þá látið
mig vita. Ég held að ég sendi þetta síðasta, svo eitthvað verði í
umslaginu.
Nr. 6986
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Um áferð vefnaðar voru notuð 3 orð, eftir því, hve
mikið var gefið upp í og því hvernig dregið var í skeið, jafnþræði, varpað
og varplítið. Jafnþræði var það kallað, er farið var bil beggja.
Varpað var það kallað, er margir þræðir voru dregnir í tönn. Bar
þá meira á þræðinum í voðinni. Varplítið var það kallað, þegar fáir
þræðir voru dregnir í tönn. Voðin tók þá við meira bandi, varð þykkari
og stórgerðari. Einkum voru brekán ofin með þeim hætti. Víindi
hét áferð vefnaðar, uppistaða og ívaf. Prjónn í vefstkyttu kallaðist
ýmist ríll eða prími, undir Eyjafjöllum. Guðfinna Árnadóttir í Efri
Kvíhólma, 20-12-66.
p2
Vefnaður, sokkabandalindi:
Algengt var að vefa sokkabönd í vefstól, röndótt eða einlit. Byrjað
var á því að rekja á hælum í vegg, langsum eftir veggnum. Syðst í
vegginn voru reknir 2 hælar, hvor upp af öðrum, fyrir skilin. Inn
í vegginn var rekinn einn hæll og rakið á hann í einu lagi. Dregið
var í höföld, þó þetta væru ekki nema fáir þræðir, en ekki í skeið. Í
stað hennar og slagborðs var notuð spýta, sérstaklega gerð til þess, tálguð
þunn í aðra brúnina og löguð til endanna. Upp á annan endann var
fyrirvafið undið, hinn var notaður sem handfang. Spýtan var dregin
gegnum skilið og slegið að með henni. Sama aðferð var notuð við vefnað
á gjörðum. Helga Þorbergsdóttir frá Krossi í Landeyjum.
p3
Hælastoðir, skilhælar:
Á stoðum í frambæ voru oft skilhælar til að rekja á uppistöðu í vef.
Rakið var á einni stoð, ef stutt átti að vefa, voru skilhælar þá
fjórir á sömu stoðinni, tveir að ofan og tveir að neðan. Rakið var
milli stoða, ef um langa uppistöðu var að ræða. Til skamms tíma hafa
verið til stoðir með hælagötum. Mýrdalur, Einar Einarsson á skammadalshól
og foreldrar hans 17-04-66.
p4
Rakningsspaði: Sumar
konur notuðu rakningsspaða, er þær röktu í vef. Hann var smíðaður
úr þunnri fjöl, spaðinn sjálfur um 25 cm. á lengd, um 12 á breidd. Handfang
var aftur úr honum um 12 cm. á lengd, um 4 cm. á breidd. Það var
teglt svo það fór vel í hendi. Sneiðingar voru á aftari hornum spaðans.
Með jöðrum spaðans voru kringlótt göt, 4-5 hvoru megin. Rakningskista
og rakningsspaði gengu sama hlutverki, því að þræðirnir lóðguðu ekki saman,
sem kallað var. Heimild um sögnina að lóðga hef ég úr Landeyjum,
mun dregin af no. ló.
Þorbjörg Bjarnadóttir
í Efri-Holtum undir Eyjafjöllum segir eftirfarandi: Ef þráður í uppistöðu
var ekki nógu snar, þá lóðgaði aftan við höföldin. Varð að klippa
lóðhnappana, svo ekki lóðgaði saman. Sama kona segir um rakning með
spaða: Þegar rakið var með spaða, var skilið tekið ofan við spaðann,
upp úr spaðanum, þræðirnir teknir á misvíxl og farið með skilið upp á hælana
á rakningsgrindinni. Þræðirnir komu þá réttir upp á hælana og engin
hætta á snúningum, sem töfðu mjög fyrir við vefnaðinn, þurfti oft að greiða
úr þeim, ef ekki átti að slitna. Betra var að rekja ekki á mörgum,
helst ekki fleirri en 5, sumar konur röktu á 10. Stundum var slithætt,
að ekki stóð spannarlangur spotti, stöðugt var verið að bæta. Rakningsspaðar
voru helst notaðir með fyrrsögðum hætti, er rakið var í garnvoðir. Snúningar
voru allra verstir í þeim. 10-01-62.
p5
Að rekja á hælum:
Rakningsgrindur voru hvergi nærri allsstaðar til. Fóru konur því
ýmist á aðra bæi til að rekja í vefinn eða röktu á hælum. Hælar voru reknir
í veggi, utanbæjar eða inna, tveir skaft- og skilhælar til beggja enda
og nokkrir þar á milli, beinlínis eða í krákustígum, til stöðvunar fyrir
slönguna. Mjög þurfti að vanda verkið, er rakið var á hælum, að jafnstrítt
væri á öllum umferðum, misslaki gerði galla í voðinni.
p6
Að leggja upp: Stikaður
var þráður í hnykli, svo margar álnir, sem voðin átti að vera löng. Í
hvern vef voru þá lagðar upp svo og svo margar álnir. Talað var um
tvítugar og þrítugar voðir að álnatali. Bundið var merki á þráðinn
ull eða bandspotti, er ákveðin voðarlegnd var komin. Við merkið var
neðri hæll á rakningsgrindinni (rakgrindinni) færður til, ef þörf krafði
og rakið til baka, þannig, að merkið var á hælnum. Rakningskonan reiknaði
út hvenær hæfilegt var að hætta að rekja í slönguna með því að telja umferðirnar
og margfalda þær með þráðatölunni. Oftast var rakið á þetta 6-8,
þ.e. af 6-8 þráðarhnyklum. Visst álnatal í voð fékkst úr hverri þráðarmörk,
en fór auðvitað eftir því, hvort þráðurinn var grófur eða smár. Gömlu
konurnar vissu þetta nákvæmlega, höfðu það á tilfinningunni.
p7
Fyrirgernig = inndráttur
í höföld og skeið í vefstól. Guðleif Ísleifsd. frá Teigingalæk notaði
um þetta orðin "að gera fyrir" og "fyrirgerning", í
sambandi við salúnsvefnað. Í Rangárvallasýslu var talað um að draga
inn.
Nr. 1275
p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Meðan tóvinna og vefnaður var stundaður af kappi
á heimilum var venjulega byrjað að vefa í nóvember. Ég heyrði
áhugasamar húsmæður segja: "Það er ekki álitleg með tóskapinn, ef
ekki er búið að fella vef fyrir jól". Ef lá fyrir að vefa í
utanyfirföt var það látið ganga fyrir. Oftast ófu karlmenn.
Fengu sumir auknefnið vefari, t.d. Gísli vefari á Héraði. Til
voru og konur, sem urðu afkastamiklar við vefnað og stunduðu hann fram
á efri ár. Ef ég man rétt hef ég áður nefnt Margréti Ólafsd. á Héraði.
Hér í Vopafirði var Aðalbjörg Þorsteinsd, lengi húsfreyja á Rauðhólum,
kunn fyrir lægni og duganð við vefnað. Oddný Metúsalemsd.,
húsfreyja í Ytri-Hlíð, hefur ofið fram á síðustu ár. Áður fyrr heimilinu
til hagsbóta, á seinni árum sér til ánægju, þrátt fyrir annasöm heimilisstörf.
p2
Um það hve lengi
var setið í vefstólnum á dag vil ég segja þetta. Ég veit dæmi um
það, að menn byrjuðu að vefa kl. 7-8 að morgni og hættu ekki fyrr en kl.
10 að kvöldi. Alltaf mun hafa verið ætluð ein stund til miðdegisverðar,
vanalega kl. 2-3 og 2 önnur hlé, samtals aðra klukkustund. Var þá
setan í vefstólnum fullar 12 stundir á dag. Sjaldan held ég að þetta
áframhald hafi staðið margar vikur í einu. Bestu afköst í
vefnaði voru 18-20 álnir á dag, og voru sjaldgæf. Varla munu þau
hafa náðst nema vefurinn væri frekar grófur, ofið vaðmál eða einskefta
og vefarinn kappsamur. Annars þóttu 10-12 álnir á dag góð afköst,
þó ofið væri vaðmál, ef bandið var fínt, og ofið dag eftir dag.
Aðrar vefnaðargerðir var seinlegra að vefa og eins ef vefa átti
röndótt eða köflótt. Varla held ég að unglingar hafi byrjað
að
p3
vefa fyrr en 16-17
ára, svo heitið gæti. Ekki vissi ég til þess að neinir lifðu á því
eingöngu að vefa. Hvorttveggja var að vísu til, að menn ferðuðust
um og ófu og að menn tóku vefnað heim, en það var tímabundið. Sjaldan
meira en 2-3 mánuði á vetri, því oft voru fleirri en einn í sveit, sem
þetta gátu gert. Greiðsla var 20 aurar á alin fyrst þegar ég man eftir.
Var líklega komið í 40-50 aura fyrir fyrra stríð, 1914-18. Síðar
hækkaði þetta upp í kr. 1,5o-2.oo kr. á alin.
p4
Vefstóll: Orðið
vefstóll hefur eingöngu verið notað um þetta áhald, þar sem ég þekki til.
Ég hef ekki kynnst neinum mönnum, sem hafa séð kljásteinavefstól.
Nágrannar mínir Gísli og Þorsteinn, sem ég hef áður nefnt segjast
ekki muna eftir neinu honum tilheyrandi frá sínum uppvaxtarárum í Suðursveit.
Ég sá nokkuð marga vefstóla á uppvaxtarárum mínum á Héraði.
Ég get þó ekki nefnt nokkurn vefstólasmið. Þó hef ég fyrir
satt að Þórarinn Sölvason á Ormarsstöðum hafi smíðað sinn vefstól. Hef
ég nefnt Þórarinn áður, ef ég man rétt. Ekki minnist ég þess
að ég sæi nema einn vefstól, einsog og mynd A sýnir, að því leyti að bóman
væri svona hátt uppi. Var mér sagt að það væri eldri gerð. Sama
segja og vinir mínur úr Suðursveitinni. Þetta virðist manni einkennilegt.
Þeir hafa þó verið plássfrekir og ekki nentað vel í lágreystu
p5
baðstofunum áður
fyrr. Eitt var frábrugðið á þeim vefstól, sem ég sá og mynd
A sýnir. Skeiðarhaldið var þar fest á slá nr. 10 og að sjálfsögðu slána
á móti. Þar snéri upp, það sem niður snýr á skeiðarhaldinu á mynd A. Umbúnaður
um skeiðina var eins og með því að ýta höföldunum lítið eitt aftur, gætum
við hugsað okkur að skeiðin kæmi á sama stað, slá nr.5 yrði að neðan og
hin sláin ofar. Mætti hún vera aðeins grennri. Þá yrði að búa
svo um slá nr. 5, að hún gæti ekki dottið niður. Sé ég þá ekki betur
en sú tegund af vefstól sé komin, sem ég sá áður fyrr. Ég þykist
muna það alveg greinilega að umbúnaður á skeiðarhaldinu var svona. Þarna
var það hangandi en ekki standandi. Ég nota hér orðið skeiðarhald
hvk., en hef þó á tilfinningunni að það hafi meira verið notað í kk. skeiðarhaldari,
á mínum uppvaxtarárum.
p6
Ég kannast ekki við
að orðin fram-rifur og aftur-rifur væru notað á Héraði fyrst þegar ég man
eftir. Þau komu síðar. Ásinn sem vefjarslangan var
undin á kallaðist bóma, en ásinn, vem voðin vattst á var kallaður rifur.
Á öllum vefstólum, sem ég man eftir frá þeim tíma voru bóma og rifur
á sömu hæð, eins og sýnt er á mynd B og skeiðarhaldið fest eins og mynd
A sýnir. Aðeinn einn var af annarri gerð, þ.e. bæði bóma og skeiðarhald
fest að ofan eins og áður segir.
Bræðurnir Gísli og
Þorsteinn segja, að mörgum gömlum vefstólunum hafi verið breytt þannig,
að bóman var færð niður. Ef ég skil mynd B rétt, er skeiðarhaldið
þar fest að ofan. Ef til vill hefur að verið stundum. Hitt
var áreiðanlega algengara að frágangurinn væri eins og mynd A sýnir. Þegar
vefurinn fór að nálgast skeiðina þurfti "að færa". Þá var
lyft upp hleypiloku og slakað á bómunni um 3-4 þuml., gæti ég trúað.
p7
Á enda rifsins var
tenntur kragi dálítið stærri en gildleiki rifsins. Á vefstólinn,
nálægt kraganum var komið fyrir litlu bognu járni, sem kallaðist stillir.
Annar endi hans var þunnur með gati í gegn. Hinn endinn var
meitillaga og gat fallið niður milli tanna kragans, þegar vefurinn var
strengdur eftir hverja færu. Með nagla, sem gekk í gegnum gat stillisins
var hann festur við vefstólinn, en hinn endinn nam við kragann. Hakar
voru á enda rifsins, svo hægt væri að vinda upp á hann, þegar slakað hafði
verið á bómunni. Þessi umbúnaður og kraginn var kallaður rifshaus.
Á enda bómunnar voru samskonar hakar, en í stað tennta kragans voru
standar með jöfnu bili, sem ásamt hleypilokunni, tempruðu lengd hverrar
færu.
p8
Vefjarkeið: Ekki
hef ég heyrt annað nafn á þessum hlut. Í daglegu tali var þó sagt
skeið. Ég veit ekki til að þær vefjarskeiðar, sem ég sá, væru heimasmíðaðar.
Ég held að þær hafi allar verið úr járni eða stáli. Þær voru allar
af svipaðri lengd, ekki þó alveg jafnlangar, ef ég man rétt. Nágrannar
mínir, Gísli og Þorsteinn segja að þær hafi allar verið jafnlangar. Ég
man ekki hvort ég heyrði talað um 60 tanna skeið, en ég heyrði áreiðanlega
nefnda 70,80,90 og 100 tanna skeið. Gísli og Þorsteinn segjast muna
eftir 60 og jafnvel 50 tanna skeið. Allir, sem ég hef talað við segja,
að þessi tala sé miðuð við ákveðna lengd á skeiðinni, þ.e. eitt kvartel
= 1/4 úr alin. Með öðrum orðum: Með þessum tölum var
það táknað hve grófar eða fínar skeiðarnar voru. Algengastar voru
70 og 80 tanna skeiðar, einnig voru 90 og 100 tanna skeiðar allmikið notaðar.
Ég þykist og muna eftir 120 tanna skeið.
p9
Vefjarskytta - vefskytta:
Í æsku minni heyrði ég bæði þessi orð, oftar það fyrra. Oftast
var þó í daglegu tali sagt skytta. Vefarar lögðu sig fram um að eignast
góðar skyttur, ekki síður en smiðir að eignast góð verkfæri. Allar
skyttur, sem ég sá, voru úr tré og líkar að lögum, en handbragð og trjátegundir
gat verið misjafnt. Flestar voru úr harðviði, ask eða eik. Áttu
þær að vera léttar, vel fágaðar og þær áttu að smjúga gegnum skilið eins
og silungur gegnum vatnið. Flestar voru úr látúns- eða koparvír,
sem barinn var sléttur og síðan sorfinn og fágaður. Þegar lengdin
var fundin voru endarnir beygðir og síðan negldir upp í botn skyttunnar.
Spóluteinninn var venjulega úr samskonar vír. Oft var og felldur
vír á báða enda skytturnnar. Fremur var það gert til prýðis en gagns,
held ég.
p10
Spólurokkur: Ég
sá spólurokk, heimagerðan, einfaldan og ekkert listasmíði, en var þó notaður
árum saman. Hugsum okkur 2 borð hlið við hlið. Lengd
1 1/2-2 álnir, breidd 5-6 þuml., þykkt 2/3-1 þuml. tengd saman með 3-4
listum. Undir hvorn enda eru settir 2 fætur álíka og á rokk. Ofan
á þetta skammel voru greyptir eða festir vel 4 uppstandarar, tveir og tveir
hvorum megin, segjum 4-5 þuml. frá endum. Hjólinu var komið fyrir
á uppstandarana hægra megin. Var hæð og bilin milli þeirra við það
miðuð. Við uppstandarana hinum megin var festur grunnur kassi.
Í honum var útbúnaður fyrir spóluteininn með áfastri trissu. Hjólið
og trissan var tengt saman með snúru. Sá rokkur, sem ég hef sérstaklega
í huga var handsnúinn. Litla breytingu þurfti að gera til þess að
hægt væri að stíga hann.
p11
Spanstokkur: Ekki
þekki ég annað nafn á áhaldi því, er haft var til að strengja jaðra voðarinnar
þegar ofið var. Var hann í 2 hlutum, eins og reynt er að sýna. Smánaglar
voru í hvorum enda, sem stungið var í jaðrana. Hlutar hans voru tengdir
saman með nagla, sem gekk í gegnum göt á báðum álmum hans. Samanlögð
lengd beggja arma átti að vera jöfn breidd slöngunnar í skeiðinni hverju
sinni.
p12
Balbínur: Það
voru snældur, sem uppistöðuþráðurinn var undinn á, áður en rakið var. Þær
voru lengri og gildari en rokksnældur og snúðarnir stærri og báðir eins.
Það var hægt að balbína á spólurokk, ef fenginn var tilheyrandi teinn
og trissa. Líka sá ég gamlan spunarokk,sem breytt hafði verið í balbínurokk.
Verkið kallaðist að balbína, hliðstætt því að spóla. Balbínustóll:
Þegar átti að vinda af rokksnældu voru þær venjulega látnar í snældustól.
Eins var gert við balbínurnar, þegar átti að fara að rekja í vefinn.
Þær voru látnar í balbínustól. Hann var mjög einfaldur að gerð.
Hugsum okkur gluggakarm, dálítið lengri en hann er breiður, með póst
í miðju á lengri veginn. Boruð voru göt með jöfnu bili, bæði á hliðar
og miðslá. Í þau voru látnir hæfilega langir járnteinar. Voru
2 balbínur látnar á hvern, t.d. 6-8 hvorum megin.
p13
Rakgrind - rakningsgrind.
Fyrra orðið var nær eingöngu notað á Héraði um þetta áhald,
þegar ég var að alast þar upp. Ekki man ég eftir nema einni gerð
af þeim. Líklegt er þó að þær hafi verið fleirri. Reyni
ég þá að lýsa rakgrind. Hugsum okkur 2 krosstré, jafnarma með gati
í miðju, sem grópuð hafa verið saman vinkilrétt. Súla var sett í
gegnum gatið á krosstrjánum. Var hún ofurlítið hærri en grindin átti
að vera. Þá hugsum við okkur 4 renglur (slár) jafn langar. Á
hvorn enda þeirra voru endar krosstrjánna greyptir þannig, að lengd þeirra
takmarkaði hæð rakgrindarinnar. Venjulega var rakið í húsi eða stofu
undir baðstofulofti. Stundum í gestastofu í frammihúsi. Að
ofan var rakgrindin fest í loftsbita eða í borð eða blankabút, sem þá var
negldur neðan í loftið. En hún stóð á gólfinu á plankastúf eða skammeli
lágu eða háu eftir ástæðum. Rakgrindur voru færri en vefstólar.
p14
Rakningsspaði: Þetta
áhald sá ég aldrei meðan ég var á Héraði og ekki heldur síðan ég kom hingað
í Vopnafjörð. Vinir mínir úr Suðursveitinni segja að hann hafi ekki
þekkst þar. Aftur segist ung kona Oddný P Jóhannsd., sem fyrir 12-14
árum var á húsmæðraskólanum á Hallormsstað, kannast við rakningsspaða.
Hann hefði verið notaður þar, þegar vefir voru raktir. Þetta
er dálítið spjald með götum, 4-5 cm. á lengd og með skafti. Eru þræðirnir
þræddir í götin og haldið um skaftið með annarri hendinni, og síðan rakið
á grindina á venjulegan hátt. Rakningsstokkur: Ég man
ekki eftir þessu orði frá æskuárum mínum. Ég sá rakið af hnyklum.
Þurfti að hólfa þá sundur, til þess að ekki færi allt í flækju. Man
ég eftir einum slíkum kassa með allmörgum hólfum. Þó þurfti a bæta
við plaggakassa og kembulár, man ég eftir. Gaman þótti
p15
okkur krökkunum að
passa hnyklana, að þeir hoppuðu ekki upp úr hólfunum meðan rakið var. Gaman
var og að sjá að endingu á hvað þessi eða hinn hnykilinn hafði verið undinn
eða hvort undinn hafði verið hönk til að byrja með. Rakning
á grind: Alltaf voru amk. 2 við að rekja vefinn, gjarnan karlmaður
og kvenmaður, venjulega sá eða sú, sem ætlaði að vefa og einhver annar.
Lengd voðarinnar var mæld þannig að mældur var einn þráður af einhverri
balbínunni, t.d. 30, 40 eða 50 álnir, eða hvað sem vefurinn átti að vera.
Þar var hnýttur ullarlagður eða léreftspjatla á þráðinn. Síðan
var þráðurinn undinn á balbínuna aftur. Þá tók rakningsmaðurinn alla
þræðina, jafnaði endana og hnýtti á hnút. Nú skipti hann þráðunum
í jafna hluta og setti lykkjuna á þann hæl, sem næst var enda hæltrésins.
Var nú byrjað að rekja, þ.e. leggja á grindina. Farið var ofan
við miðhælinn
p16
neðan við hinn og
fetað áfram niður grindina, þangað til kom að merkinu. Þar var neðra
hæltréð fest, og var þá snúið við, brugðið ofan og neðan við hælana á víxl
og myndaðist þannig skil. Ég þykist muna að spotta væri brugðið um
ákveðinn þráðafjölda í neðra skilinu, líkt og gert var um knekk á hespu.
Minnir mig að það væri miðað við 5 eða 6 umferðir á rakgrindinni.
Þræðirnir í hverri umferð voru kallaður "feti", hvort sem
farið var niður eða upp grindina þegar rakið var. Eins var talað
um feta, t.d. þegar farið var að leggja í kamb. Þess var
gætt, þegar rakið var, að hver feti kæmi þétt ofan við þann næsta. Þannig
myndaðist samfellt belti, sem lá í bugðum niður alla grindina og breikkaði
sífellt meðan haldið var áfram að rekja.
Fullrakin uppistaða
á grind kallaðist vefjarslanga eða bara slanga. Bundinn var
p17
spotti í skilið við
hvern hæl bæði að ofan og neðan og vel gengið frá öllu. Einnig var
bundið á 2 stöðum, utanum slönguna við hvern hring á grindinni, til þess
að hún flóknaði ekki. Síðan var slangan losuð af efri hælnum og fléttuð
niður grindina í svokallaða möskva. Þurfti að styðja vel við grindina á
meðan, svo að slangan hrapaði ekki. Sömu handtök voru alltaf notuð við
að taka slöngu af grind. Ekki vissi ég dæmi til að slanga flóknaði,
jafnvel þó hún væri sett í poka og borin milli bæja.
p18
Hafaldagrind: Þetta
áhald sá ég í æsku minni. Var það afskaplega fábrotið. Fjórar
renglur voru greyptar saman hornrétt. Mun hafa verið 32-33 vm. bil
milli hliðarfjala. Lengd líklega 45-50 cm. gæti ég trúað. Mitt á
milli hliðarfjala lá grönn slá, kúpt eða sívöl. Takmarkaði hún stærð
augans, sem líklega hefur verið 1 1/2 cm. eða svo. Áður voru höföld
unnin úr togþræði. Ekki sá ég það gert. Þau höföld, sem ég
man eftir og sá hnýtt, voru úr samskonar garni og silunganet, virtist mér.
Að rekja hafaldaefnið var að vinda það upp á fjöl, sem var
nokkuð lengri en breidd hafaldagrindarinnar. Tveir unnu saman að
því að hnýta höföldin. Nú skáru þeir efnið af fjölinni þannig að
hver umferð varð tveir spottar. Tóku þeir sinn endann hvor, tengdu
þá saman og hnýttu síðan hafaldið þannig: Þeir jöfnuðu endana, tengdu
þá saman í miðju og um leið batt annar sínum spotta um miðslána með 2 hnútum,
þ.e. "hnýtti augað".
p19
Síðan batt hvor um
sig um hliðarslána sín megin með 2 hnútum og tengdu að lokum endana saman
með einum hnút. Á þennan hátt sá ég höföld hnýtt. Augað fylgdi
efri hlutanum. Á honum voru 5 hnútar. Hinn hlutinn var tengdur
í augað, hnýttur um gangstæða hlið hafaldagrindarinnar, hnútar þrír. Síðar
settur á neðra hafaldaskaftið. Ofurlítið bil átti að vera milli hnútanna
tveggja, sem mynduðu hafaldið og endahnútanna. Í þetta bil var dreginn
þráður. Voru endar hans vandlega bundnir um enda hafaldaskaftanna.
Voru þar oft tálgaðar skorur í sköftin, til þess að stöðva bandið.
Stundum voru festar lykkjur á sköftin í sama tilgangi. Bandið, sem
ég hér tala um, kallaðist leyniband eða leyniþráður.
Ég hygg að stálhöföld
hafi lítið verið notuð hér um slóðir. Það var aðeins augað, sem var
úr stáli. Ég man að þau voru talin dýr, entust lítið, af því að þau
vildu ryðga og uppistaðan slitnaði meira í þeim.
p20
Vefjarkambur: Ég
hygg að það hafi varla brugðist að þar sem vefstóll var á heimili, þar
var líka vefjarkambur. Var hann notaður þegar bómað var, þ.e. slangan
undin á afurrifinn, bómuna. Ég man ekki, að ég heyrði annað nafn
á þessu áhaldi. Margbrotið var það ekki, líktist nokkuð hrífuhaus
með lindum. Var hann nokkuð lengri og gildari en venjulegur hrífuhaus
og alveg beinn. Borað var fyrir tönnum kambsins, eins og tindum í
hrífuhaus. Voru þær álíka gildar og lítið eitt lengri en venjulegir
hrífutindar úr tré. Efni og smíði var vandað eins og föng voru á.
Því miður get ég ekki sagt hve langur kamburinn var, né hve langar
og þéttar tennurnar voru. Ég þykist muna eftir kambi, sem í voru
35 tennur. Aðalhluti kambsins, sem tennurnar voru negldar í náði 3-4 cm.
út fyrir endatennurnar beggja megin. Þar á voru greyptir kubbar,
sem voru allt að helmingi lengri en tennurnar. Á þessu endakubba
voru gerðir stallar jafnir hæð tindanna, en þunnir
p21
geirar stóðu upp
úr þeim miðjum. Ofan á þetta var sett passandi fellilok. Var
gat eða skora á endum þess. Féll það slétt og nákvæmlega á tindana
og áðurnefnda stalla. Gat var borað á hvorn geira ofan við lokið,
og það síðan fest með splitti. Brúnirnar á hliðum loksins féllu lítið
eitt niður á tindana. Að láta í kamb: Verkið að dreifa
slöngunni í vefjarkambinn var hér um slóðir kallað "að leggja í kamb".
Var það fast orðtak um það verk. Vefarinn vissi alltaf
hve margir þræðir voru í slöngunni, og þá líka hver breiddin yrði þegar
búið væri að draga í höföldin. Breiddin í kambinum átti að vera sú
sama og í höföldunum. Með þetta í huga var auðvelt að reikna út þráðafjölda
í tönn á kambinum.
p22
Að festa upp: Það
var í stuttu máli þetta: Að vinda slönguna á bómuna, afturrifinn,
draga í höföld og skeið og festa uppistöðu í framrif, þ.e. festa slönguna
í vefstólinns, svo að hægt væri að byrja að vefa. Að bóma
vef: Ásinn, sem slangan var undin á kallaðist bóma, síðar afturrifur,
sem er ljótt orð. Að bóma var að vinda slönguna á bómuna. Eftir endilangri
bómunni, frá rifshaus og aftur var heflað plógfar, íhvolf lægð. Í
það var rifskaftið sett. Á bómunni voru svokallaðir kragar. Voru
það 2 tréplötur á stærð við nokkuð stóran disk með gati í miðju. Áttu þeir
að falla nokkurn veginn á bómuna, en vera þó hreyfanlegir. Gegnum bómuna
voru boruð göt, 6-8 hvorum megin. Utan á kragana voru negldar 2 litlar
lykkjur hvor á móti annarri. Nú voru kragarnir færðir til á bómunni
þannig að þeir kæmu yfir enda plógsskaftsins og bilið milli væri jafnt
og breidd slöngunnar í kambinum. Mátti setja þá
p23
fasta með vír, sem
þræddur var í götin á bómunni og lykkjurnar á krögunum.
Gerð voru vik upp
í kragana, af því að plógskaftið féll ekki alveg niður í farið. Var
það líka bundið við bómuna á 2-3 stöðum. Venjulega voru 3
við að bóma. Einn vatt upp á rifinn, annar hafði auga á kambinum
og þriðji sá um áferð á bómunni. Það átti að vinda jafnt og rólega,
enda runnu þræðirnir venjulega viðstöðulaust gegnum kambinn. En stundum
sást þó slitinn þráður, snurða eða slaki, sem þurfti að laga. Oft
var það kvenmaður, sem sá um bómuna. Þurfti hún að vera aðgæti og
handfljót. Áferðin átti að vera sem jöfnust og sléttust, en það vildu
myndast garðar og lægðir og þó sérstaklega út við kragana. Höfðu
þær ekki við að jafna á bómunni, þó hægt vær undið. Ekki man ég eftir
að nein áhöld væru notuð við að slétta á vómunni. Að verki loknu
vor slönguendinn bundinn við brjóstbómuna (sjá mynd B).
p24
Að draga í höföld:
Þetta var fast orðtak um að þræða slönguþræðina í höföldin. Tveir
hjálpuðust að við það verk. Annar var framan við höföldin og dró
í. Hinn var aftan við þau og rétti þræðina. Efri hafaldasköftin
voru bundin saman meðan verkið stóð yfir. Að öðru leyti voru þau
laus. Ef áætlað var að ekki þurfti að nota öll höföldin, þótti lögulegra
að skilja þau ónotuðu eftir beggja megin. Var byrjað á að binda utanum
þessi auka höföld. Nú taldi maðurinn, sem ætlaði að draga í, 25 höföld
á fremsta skafti og setti þau milli þumalfingurs og vísifingurs vinstri
handar, þá tók hann af næsta skafti álíka mörg höföld, án þess að telja
og setti þau milli vísifingurs og löngutangar, sama gerði hann við þriðja
skaftið og setti þau höföld milli löngutangar og græðifingurs, og loks
tók hann höföld af fjórða skafti og setti milli græðifingurs og litlafingurs.
Nú hafði hann gott vald á höföldunum. Hann byrjaði á aftasta
skafti hægra megin, og áfram röðina fram. Byrjaði svo aftur og endurtók
p25
röðina í sífellu.
Þegar hann dró í síðasta hafaldið á fyrsta skaftinu, þá vissi hann
að fyrstu 100 þræðirnir voru komnir í höföld. Þá tók hann endana,
jafnaði slaka og hnýtti á þá lykkju framan við höföldin. Var þetta
endurtekið þangað til verkinu var lokið. Gengið var frá skilsköftunum
og kamburinn fjarlægður, áður en farið var að draga í höföldin. Hjálparmaðurinn
átti alltaf að vera viðbúinn með þráð og gæta þess, eftir því sem hægt
var, að þeir kæmu í réttri röð. Að draga í skeið: Þetta
verk vann aðeins einn maður þar sem ég þekkti til. Áhaldið, sem hann
notaði, kallaðist venjulega krækja. Gikkur þekktist einnig. Báðir
endar skeiðarinnar voru festir við höföldin, gjarnan aukahöföldin. Átti
hún að vera lárétt og önnur brún hennar að falla að fremsta hafaldinu,
neðan við þráðahnútana. Verkið byrjaði og maðurinn leysti fyrstu
100 þræðina, tók 3 þá ystu og setti með krækjunni gegnum skeiðina þar sem
p26
hann ákvað að byrja.
Dálítið var breytilegt hve margir þræðir voru hafðir í tönn, ýmist
2 eða 3. Þegar hundraðið var búið var hnýtt að því neðan við skeiðina.
Að hnýta fram: Þetta var fast orðtak hér um verkið
að hnýta slönguþráðunum á skaft, sem svo var tengt við framrifinn. Því
miður man ég ekkert hvað þetta skaft var kallað, en það var tengt við rifinn
með 3-4 jafnlöngum snærum. Var nú búið að draga í skeiðina og setja
hana í skeiðarhaldarann. Voru endarnir leystir, hvort hundrað, og
hnýttir við skaftið í 4 knippum, minnir mig, hvert. Uppbinding:
Hér mun vera átt við að tengja saman skammel, hliðarskammel og hafaldasköftin.
Þetta var venjulega kallað "að krækja upp" í vefstólnum.
Þetta var mismunandi eftir því hvað ofið var og treyti ég mér ekki
að fara út í það. Lykkjur voru í skammelunum. Í neðri hafaldasköftunum
snæri með krókum, sem tengdust í lykkjurnar.
p27
Að draga fyrir: Þetta
var fast orðtak um að byrja að vefa. Oft var skilið óhreint til að
byrja með. Varð að greiða skyttunni leið fyrstu ferðirnar. Venjulega
lagaðist þetta fljótt. Það tilheyrði sumum vefnaði, t.d. vaðmáli
"að gefa upp í". Það var að grípa með hendi gegnum uppistöðuna
framan við ívafsþráðinn um leið og hann raktist af spólunni, og ýta honum
nær skeiðinni. Lá þráðurinn í boga þegar stigið var, og slegið með
skeiðarhaldinu, sem hvorttveggja gerðist í einu. Þetta gerði voðina
þéttari. Ef uppistöðuþræðir slitnuðu var talað um að bæta vefinn,
þegar það var lagfært. Þegar voðin nálgaðist skeiðina þurfti "að
færa", þ.e. lyfta hleypilokunni, slaka á bómunni og vinda upp á framrifinn.
p28
Þóf: Það var
talið vandaverk að þæfa og voru oft fengnir til þess æfðir þófarar. Vandinn
var að voðin þófnaði öll jafnt. Fyrst þurfti að bleyta vel og rækilega
í þófinu, þ.e. þvo voðina vandlega. Var það gert á líkan hátt og
þegar ullin var þvegin, nema að voðin var þvegin inni og bæði þvottaefnið
og verkið sjálft vandað enn betur. Voðin var undin úti. Hjálpuðust
2 að við það, og þó helst 3. Undu 2 voðina líkt og þegar snúið var
upp á hespu, en sá þriðji sá um að hún óhreinkaðist ekki. Oft var
voðin brotin saman fjórföld og sköft látin í lykkjurnar, til þess að hægt
væri að vinda betur. Ég sá þæft í fjósi, á hurð eða hlera.
Oftast var þó þæft í baðstofu, uppi eða niðri, t.d. í skoti við rúmgafl
og var þá gjarnan stóll himum megin. Þótti þófaranum gott að geta
stutt niður höndum. Oftast var hann aðeins klæddur nærbuxum og einni
skyrtu meðan á verkinu stóð, en hann vildi helst vera þar sem hlýtt var.
Oft stóð verkið 4-6 klukkutíma, minnir mig, og ef til vill lengur.
p29
Venjulega vann þófarinn
kappsamlega meðan á verkinu stóð, stjáklaði, þjarkaði og snéri þófinu alla
vega undir fótum sér, enda varð hann oft sveittur. Þér talið
um hvort þófið hafi verið hrist. Það var vanalega gert tvisvar og
hvíldi þófarinn sig á meðan. Annars var það oftar kallað "að
kippa" þófið. Það gerðu 2 menn. Þeir byrjuðu á öðrum enda
voðarinnar, tóku fyrir 1-1 1/2 alin í einu. Tóku þeir nú sinn jaðarinn
í hvora hönd sína og létu þær mætast um leið. Síðan kipptu þeir höndunum
til hliðar hart og títt, eins og breidd voðarinnar leyfði. Á þennan
hátt áttu þeir á svipstundu að hreinsa öll óhreinindi af þófinu.
Það var regla að þófarinn fengi aukaglaðningu, þegar hann var að
þæfa. Vanalega var það kaffi og pönnukökur, stundum súkkulaði eða annað
góðgæti. Ekki minnist ég þess, að ég hafi heyrt hvaða reglur giltu
um kaup þófara. Ekki mátti dragast lengi að ganga frá voðinni, þegar búið
var að þæfa. Var hún vafin upp á fjöl. Átti hún að vera dálítið lengri
en vefurinn vr breiður og 5-6 þuml.
p30
mun hafa þótt æskileg
breidd. Ekki þótti nóg að vinda einu sinni. Þurfti alltaf að
vinda voðina upp tvisvar. Þurftu 2 að vinna þetta verk. Sátu
þeir hvor á móti öðrum, oft annar á rúmi, hinn á stól og hafði annar fjölina.
Endi voðarinnar var lagður slétt á fjölina og 2 fyrstu vafningar
vafðir þétt og varlega. Eftir það var athugað við hvern vafning að
hann lægi sléttur á fjölinni, sérstaklega jaðrarnir. Var það áréttað
með því að annar hélt við fjölina, en hinn togaði þéttingsfast í voðina.
Þannig var haldið áfram þangað til allur vefurinn var kominn á fjölina.
Ekki var látið sitja við svo búið. Áður en margir dagar liður,
var voðin undin á aðra fjöl. Var nú byrjað þar, sem áður var endað
og mjög á sama hátt. Verkið var vandað, engu síður en áður, enda
var dúkurinn að jafnaði fastar og betur undinn í síðara skiftið. Var
síðan látið brigði utan um voðina og hún látin undir farg, t.d. þungt koffort
eða kistu. Var hún talsvert ólík, þegar hún síðar var rakin af fjölinni,
og ún hafði áður verið, þegar hún lá á gólfinu og átti að fara að þæfa.
p31
Ekki vissi ég til
þess að þeir, sem þæfðu fótaþóf, færu með vísur eða þulur sér til flýtis
eða fulltingis. En móðir mín kenndi okkur krökkunum þulu, sem hún
sagði að ágætt væri að hafa yfir og helst að syngja þegar við ættum að
þæfa sokka eða vettlinga. Minnir mig að hún segja að hún héti þófaraþula.
Sagði hún að, ef við færum með þuluna 10-12 sinnum og kepptumst jafnfram
við að þæfa, þá mundi þófið verða langt komið. Og ef það yrði ekki
alveg búið, þá skyldum við bara byrja á þulunni aftur. Þetta sagði
hún. Hér kemur þulan. Ég veit ekki hvort ég man hana alla.
Bárður minn á Jökli - komdu og leggstu á þófið mitt - ég skal gefa
þér lóna - innan í skóna - og vettling á klóna - þegar ég kann að prjóna
- naglabrot í bátinn þinn - hálfskeifu undir hestinn þinn - mórautt lamb
og gimburskel - og meira til ef þú þæfir vel. Meira man ég
ekki, enda komin tími til að hætta.
Nr. 1249
p1
ULL OG TÓVINNA 3.
Faðir minn var vefari og óf fyrir heimilið en tók ekki vefnað. Ég
lærði vefnað af föður mínum og óf töluvert á tímabili æfinnar fyrir heimilið.
Á tímabilinu í kringum 1890 tók faðir minn oft vefara. Hér í dalnum var
afbragðs vefari Guðmundur Jónsson frá Strjúkastöðum síðar bóndi á
Auðólfsst. hér í dal. Hann byrjaði að vefa innan við fermingu, og á 14.ári
fékk faðir minn hann eitt sinn til að klára vef fyrir sig, og óf hann þá
yfir 10 al á dag, af nokkuð fínu vaðmáli. Eftir að hann varð fullorðinn
óf hann oft 10-15 al. af vaðmáli á dag. Rakti stundum og setti upp vef
á dag. Hann var afburða vefari, og fór hér víða um og óf. Stundum tók hann
vefnað heim. Víða var það að ákveðnir menn á heimilinu ófu,og höfðu þá
lítinn annan starfa. Fyrir jól var oft lítið ofið. þó var stundum
settur upp tvistvefur fyrir jól, var það haft í milliskyrtur millipils,
þau þá oft með bekkjum að neðan, en annars röndótt. Milliskyrtur
p2
voru venjulega langröndóttar.
Þá voru ofnar stundum úr tvisti (þ.e. bómullargarn) þær voru oft rúðóttar.
Æfinlega var sjáfsagt að klára vef fyrir jól. Hér var vefstóllinn hafður
í baðstofu, og þótti taka mikið pláss. Sumstaðar þar sem vefstóll var ekki
í baðstofu var minna hirt um að klára vef fyrir jól, og til var að sumir
vefarar höfðu uppi vef allt sumarið og gripu í að vefa í rigningu eða vondu
veðri jafnvel um sláttinn. Misjafnt var það hvað menn sátu lengi
við vefnað, en þeir sem ekki sinntu öðru sátu oft við allan daginn. Það
var ákaflega breytilegt hvað menn ófu, enda ákaflega misjafnt hvað þráðurinn
hélt vel, ef mikið slitnaði gekk oft seint að vefa. Oft var ekki ofið nema
6-7 al af fínu verki 4-5 lóða verki, en stundum upp í 10 al og það þótti
ágætt. Einu sinni man ég að ég óf um 16-18 alnir að meðaltali á dag, það
var svo góður þráður að 10 eð 12 þræðir slitnuðu allan vefinn. Þann þráð
spann Margrét Eiríksdóttir, er lengi bjó á Sækambi
p3
í Víðidal var hún
þá orðinn gömul kona. Af tvisti var oft hægt að vefa 10-12 al á dag miðað
við 12 klst. Sumir sátu miklu lengur við vefnað, en ófu oft ekki meira
fanst mér enda er vefnaður erfiður. Hér ófu nær eingöngu karlmenn og byrjuðu
oft um 14 ára aldur. Ákveðin greiðsla var fyrir vefnað var tekið á alin,
og var misjafnt eftir því hvort verkið var fínt eða gróft. Um aldamótin
var algengt 15-16 og upp í 20 aura á alin. Eitthvað voru vaðmál seld í
kaupstaði fyrir fisk, en miklu meira var selt af smjöri og tólg fyrir fiskmeti.
Eins fengu hjá oft vaðmál upp í kaup. Strax eftir nýár voru vefir settir
upp, og þá látið stija fyrir að vefa í nærföt. Fyrir og um aldamót voru
flestir í vaðmálsskyrtum næst sér og vaðmálsbuxum. Prjónaföt komu seinna.
Var það fínt vaðmál sérstaklega í skyrtum 4-5 lóða verk oftast grófara
í buxum 6-7 lóða verk. 32 lóð eru í pundi eða 1/2 kg. og er miðað við að
hespan sé svona og svona mörg lóð (t.d. 5-6 lóð)
p4
Hér var alltaf talað
um vefstól. Ég heyrði talað um kljásteinavefnað, en hann var lagður niður
löngu fyrir mitt minni, og mig minnir að hvorki faðir minn (f.1844) eða
móðir mín (f.1847) sæu aldrei ofið í honum en þau vissu nokkurn veginn
hvernig það var gert. Helsti vefstólasmiðir þegar ég man fyrsti var
Friðfinnur Jónsson bróðir Guðm. Jónss.er getið er hér að framan og Þorlákur
Þorlákss. í vesturhópshólum V.Hún. Ég þekkti bæði vefstóla með slöngurifinu
uppi (okkar vefstóll var þannig) og með rifinn fyrir neðan bómuna. Þóttu
þeir vefstólar taka minna pláss, var frekar hægt að hafa þá undir súð.
Annað var líka breytilegt, að skammelin sem stigið var á voru stundum á
aftur slánni, og var þá stigið á þau fremst. Stundum voru stíg skammelin
neðan á fram slánni og gengu aftur af henni. Það gjörði stigið léttara.
Laga þá skammelin á gólfinu oftast eða um það bil, en
p5
bogið járn lá þá
aftur fyrir slána, og það ás í gegnum skammelin, Svo var á okkar vefstól.
Annars lágu skammelin ofan á slánni og teinn þar í gegnum þau. Tvíbreiðir
vefstólar þekktust hér ekki fyrr en seinna, en ég man ekki hvenær að kom
tvíbreiður vefstóll hér í Svartárdalnum, og þá um leið hraðskytta. Tvíbreiðir
vefstólar voru að gerð svipaðir hinum nema miklu breiðari ég held að þeir
hafi tekið tveggja aln. breiðan vef. Annars áttu vaðmál að vera 1 al og
3 þuml á breidd, og við það var jafnan miðað. Flest heimili hér áttu vefstól,
þau sem ekki áttu vefstól komu þá vefnaði fyrir. Ég man nnú ekki hvað nýjir
vefstólar kostuðu en líklega hefur það verið 60-80 kr. Hvorugur vefstóllinn
íslenski B eða C er líkur þeim vefstólum er hér voru smíðaðir. Skammelin
voru venjulega gert á slána undir setubekknum og sú slá var niðurundir
gólfi. Setubekkurinn var oft kræktur, en engin slá undir setubeknum, honum
krækt beint
p6
í stólpann að framan.
Aftur á móti eru vefshausarnir á B eins og var á okkar vefstól. Á
sumum vefstólum voru svo kallaðar vippur (bogin tré) yfir höföldunum á
okkar vefstól voru það hjól, sem höföldunum var krækt í eða sem snærin
láu yfir, ofan í höföldin var það miklu liðugra, en þessar vippur. Skeiðarslagið
var klofið að ofan og teinn á milli armanna, sem lá í járntnnum sem var
ofan á barðinu er skeiðar slagið hékk á, mátti færa skeiðarslagið nær og
fjær þar uppi, því tannirnar eða fölsin uppi voru 4-5. Hliðarstykkin á
vefstólmun voru fast samsett, á milli þeirra var svo skammelasláin að framan
og önnur slá eins að aftan, gengur þær í gegnum fram og aftur stólpana,
og fleygar reknir niður til þess að halda vefstólnum saman (sjá nr.23)á
vefstól(). Að aftan var svo þráðarbóman grópuð útfyrir afturstólpann, og
trétappi rekinn gegnum hana inn í afturstólpann. Að ofan hélt saman hafalda
sláin eða hafalda bóman (sem sumir kölluðu). Hún hafði hök út fyrir grindina,
svo að hliðar
p7
stykkin gátu ekki
gengið sundur, Brjóstbóman að framan var sett ofan í framstólpan og hök
á henni að utan og innan veitti það mikinn stuðning. Rifunum var svo bara
smeygt í. Mátti því taka allan vefstólinn sundur, mjög fljótlega, og geyma
hann þannig. Hér var jafnan talað um vefjarskeiðar eða bara skeiðar.
Ég heyrði ekki ritti nefnt fyrr en hér á húsmæðraskólanum á Blönduósi.
Eitthvað af vefjarskeiðum þær grófustu voru heima smíðaðar. Ég átti eina
heimasmíðaða skeið úr látúni eða úr eir tannirnar. Hún hafði 48 tannir
á kvarteli. Svo voru skeiðar með 60 tönnum á kvarteli (=6þuml.) fínar skeiðar
voru ekki notaðar á ullar verk. Á tvisti voru notaðar 100-120 140 og 150
tanna á kvarteli. Skeiðar voru yfirleitt 5 kvartel á lengd. Skeiðar voru
svo kallaðar 60 eða 80 tanna osfrv. Vefjar skyttur voru venjulega
úr beyki eða öðrum góðum viði. Ég sá skyttu úr rauðaviði, ágæta.
p8
Neðan á skyttunum
voru látnar þynnur eða látúns eir sleginn flatur, svo þar rynni betur um
skilið, svo var venjulega látuns brydding sett á hvorum enda svo að viðurinn
trosnaði ekki upp. Í skyttunni var svo teinn til þess að láta spóluna á.
Var hann ýmist laus eða fastur á öðrum enda í lykkju, var svo látuns fjöður
að framan, eða þeim megin sem teinninn var laus, og honum þrýst niður í
gat á fjöðrinni, þegar spólan var komin á. Væri teininn laus, var
þeim megin sem fjöðrin var ekki, látúns plata með gróp um í fyrir spóluteininum.
Ef teininn hefði leikið í tré mundi hann fljótlega hafa slitið því og dottið
úr. Spólurnar voru venjulega rendar úr tré. Faðir minn átti (og ég
síðar) spólur úr látuni með snúðum á endunum. þar voru dálítið þungar en
að öðru ágætar. Þar voru smíðaðar af Þorsteini Hjálmarsyni er bjó í Hvarfi
í Víðidal. Hann var afbragðs
p9
smiður. Smíðaði ágæta
rokka hesputré ofl. Fiskroð vissi ég aldrei notað fyrir spólur.
Spólurokkurinn var venjulegur rokkur, fremur sterkur, en í stað snældu
umbúning var einn með einni trissu, sem spólunni var smeygt á, og að framan
var ekki vanalegur uppstandari eða brúða heldur uppstandari með rauf framan
í til þess að láta teininn leika í (sjá mynd). Var þessu tré sem oftast
var vinkil beygt stungið ofan í gatið, sem brúðan var í. Að hafa þetta
tré þannig en ekki beint, var til þess að teininum væri lengri og tæki
líka balbúnu snældur. Því á þennan sama rokk var balbínað (sjá síðar)
Spanstokk heyrði ég aldrei nefndan heldur spjálk sem haft var til
þess að halda úr jöðrunum á voðinni (sjá mynd). Spjálkir voru með tvennu
móti (sjá mynd). Á annari gekk spýtan inn í klofna fjöl og 2 naglar í gegn
sem mátti færa til í götunum og lengja þannig spjálkina. Hún
p10
var tvær fjalir mjóar
með skornum inn í að utan, var svo snæri í gegnum gat á annari fjölinni
sem mátti færa til í skorunum á hinni fjölinni og þannig lengja spjálkina.
Voru svo tvö typpi sem snérust á nagla, sem héldu spjálkinni, svo
að hún hlypi ekki upp, þegar voðin strengdi á henni. Þannig er spjálkin
á mínum vefstól. Að setja upp vef. (Leggja upp). Ef
um ullar verk var að ræða var byrjað á því að vigta hespurnar, því hér
var aldrei lagt upp úr hnyklum. Voru nú hespurnar t.d. að meðaltali 8 lóð,
og ullin í verkinu væri sæmilega hrein og ekki mikil haustull í því (hún
var þyngri) þá var algengt að leggja upp úr hespunni 1 al og 6 þml eða
6.5 þml. eða úr 20 hespum 25 al 10 þml. Var þá varpið á slöngunni 999 þræðir
á 27 þml.(1al 3þml) sem var algeng breidd á vaðmáli. Þetta var hægt að
reikna úr því að hver hespa hafði ákveðna lengd. Hespan var 11 skreppur
p11
og hver skreppa 44
þræðir og hverr þráður (umferðir á hesputrénu) var 2 al og 15 þml. Var
hver hespa því 1270 alin. Annars höfðu allir vefarar töflur yfir þetta,
hve hæfilegt var að leggja upp úr hverri hespu eftir þyngd, og hvar margir
þræðir komu þá á þumlung. Ég á svona töflur. Hér var æfinlega talað að
um 5,6 eða 8 lóða verk og var þá miðað við að hespan væri 5-6 eða
8 lóð að þyngd að meðaltali. því sjaldan voru 2 hespur nákvæmlega jafn
þungar, en mjög litlu munaði það hjá góðum spunakonum. Um leið og lagt
var upp var athugað hvað hentugt var að fá marga þræði á slöngurnar eða
hvað skyldi varpa mikið með hliðsjón af skeiðinni. T.d. ef hespan
var að meðaltali 5 1/4-6 lóð og skeiðin hafði 90 tannir á kvarteli eða
360 á alin og þá 405 tannir á 27 þml-sem var vanal.breidd þá var hæfilegt
að fá á slönguna 1215 þræði, það voru 3 þræðir í tönn og var það talið
vel varpað á 6 lóða verk, og þá
p12
mátti leggja upp
1al og 1.1 þml úr hespu eða 20 al og 22 þml úr 20 hespum, en vont var að
rekja svo alveg upp og mundi því varla vera lagt upp meira 20al og 20þml.
úr 20 hespum, og átti þá að fást 1215 þræðir á slöngu og voru þá 3 þræðir
í tönn á 90 tanna skeið eða sem hafði 405 tannir á 27þml. Ef ekki
voru til hentugar skeiðar varð stundum að hafa 3 þræði í annari tönn og
4 þræði í hinni eða jafnvel 4 þræði í þriðju hverri tönn, en það þótti
alltaf slæmt, best var að hafa jafnl. í öllum tönnum. Stundum var því varpað
meira eða minna, ef illa stóð á tanna fjölda í skeið. Venjuleg tvist
hespa (bómullargarn) var 10 skippur og 10 þræðir, og er sú hespa 1181 1/4al
og við það mátti miða, en vanalega var ekki lagt eins nákvæmt upp úr tvisti,
minna gerði þá að þar yrði afgangur. Hér er miðað við ívaf sé jafn
gróft og þráðurinn, ef ívaf var grófara mátti varpa minna
p13
Að reikna í skeið.
Skeiðar þær sem ég þekkti voru 45 tn. á kvarteli, á ábreiðu verk.
60 tanna á nokkuð gróft ullarverk. 70 og 80 tanna og jafnast 90 tanna á
fínt ullarverk. 120-140 og 150 tanna á tvists. Voru oft tveir þræðir í
tönn á þessum fínustu skeiðinni. Stundum var ull höfð í ívafi í tvist,
mátti þá varpa meira. Í næsta kafla á undan er talað um að reikna
í skeið, því það var jafnan gjört um leið og lagt var upp. Að reikna í
vef. Var vanalega kallað að leggja upp, eða að setja upp vefi átti
þó frekar við allt þar til farið var að vefa. Að reikna út munstur í vef
átti frekast við tvist vef, því þá var munstur oft margbrotið. Að öðru
leyti er frá þessu sagt í kafla 7 hér á undan Hér var jöfnum höndum
talað um ívaf eða fyrirvafi. Vöflur hefi ég ekki heyrt
p14
Vanalegast var talað
um uppistöðu og ívaf. Ef talað var um varp þá var átt við þráða fjölda
á slöngunni. Rakgrind (ekki talað um rakningargrind) Alltaf
kölluð rakgrind. Rakgrindur voru allar svipaðar, þó voru misháar, og ef
til vill misbreiðar. Rakgrindur voru oft smíðaðar úr 1 1/4"x4"
borðum. Var það ferköntuð grind eða (sjá mynd) grindur um 2 1/2x2al. Gekk
grindin utan yfir að ofan, en var innaní að neðan og voru það grópaðar
saman um miðjuna og var járn stungið á gegnum samskeitin að ofan og neðan
og snérist grindin á þessum járnum. Var þá oft höfð fjöl undir járninu
að neðan, og járnið þar með holu sem járnið í grindinn snerist í. Einnig
var járnplata í grindinni svo að járnið snerist ekki, var það bæði að ofan
og neðan. Járnið að ofan lék oftast í tré, þó sá það leiki í gjarðajárni
og stundum í leðri. Voru bæði járnin að ofan og neðan ferköntuð í grindina,
en sívöl að ofan og neðan. Einhver þverslá var höfð yfir
p15
grindinni sem efra
járnið lék í. Tvær mjóar slár (1"x1") lágu þvert yfir um miðja
grindina, og var rennt það í fals. Þetta var til þess að grindin svignaði
ekki inn um miðjuna, þegar rakið var á hana. Ég sá líka rakgrindur smíðaðar
úr 2"x4" battingu og þá þurftu ekki þessar milli slár.
Skilhælarnir voru festir í 4"x 1 1/4" slá sem var með
skornum á endunum, og var þessi slá klemmd á milli langslánna í rakgrindinni.
Hælarnir voru oft 3 að ofan en 2 að neðan. Fáir notuðu nema tvo hæla að
ofan oft 1 að neðan, en höfðu vartág að neðan til að aðgreina fetana. Vartág
var band sem brugðið var um hvern feta, og svo bundið um endana á skafti
því er sett var á rifinn, þegar slangan var sett upp í vefstólinn. Skilhælaslárnar
voru eins að ofan og neðan. Voru slár þessar oft bundnar til þess að vera
viss um að þær högguðust ekki. Rakgrindur voru ekki til á öllum bæjum,
sem
p16
sem áttu vefstóla.
Fóru þeir þá á aðra bæi til að rekja. Balbínustóll og balbínusnældur.
Balbínustóll var vanalega úr 1 1/4x4" borðum. Var það aflöng
grind með slá upp og ofan í miðjunni, svo að tvær snældur voru hver við
endan á annari. Hér tók balbínu stóllinn 12 snældur, eða 6 hvoru megin
í stólnum. Þessar snældur voru með stórum snúðum, svo að á þær komust fleiri
hespur. Þær voru um 8 þml. langar. Teinar lágu í gegnum stólinn og snældurna.
Voru þeir fyrst er ég man úr tré, en seinna úr járni eða eir, skröltu þær
meira eftir að hætt var að nota tréteina. Sami rokkur var notaður
til þess að balbína á og spóla. Var þá rekið tré með teininum þegar balbínað
var til þess að festa snældurnar. Að vinda þráðinn á balbínu snældurnar
var kallar að balbína.
p17
Rakningsspaði:
Rakningsspaða sá ég aldrei, en heyrði getið um hann. Gét því ekki lýst
honum. Rakningsstokkur: Hér var aldrei rakið nema af snældum,
ef margir voru litir eins og stundum var í tvistdúk svo að balbínu snældurnar
dugðu ekki, þá voru notaðar rokksnældur sem hafðar voru í snældustól.
Rakning á rakgrind: Rakgrindin var ýmist sett upp í baðstofu (og
svo var hér) eða skemmu eða skála. Oft hafði vefari krakka eð stúlku til
þess að sjá ef slitnaði, og til að bæta saman. Sumir röktu allt af einir.
Lengd voðarinnar var mæld á kvarða eða alin mál, og sett merki við á uppistöðu
þráðinn, sem mældur var. Rakningsspaða var aldrei nataður eins og ég hefi
áður sagt.
p18
Aldrei voru hafðir
tveir þræðir í hafaldi þegar byrjað var að rekja voru allir þræðirnir hnýttir
saman og smeygt upp á efri hælinn. Var svo farið t.d. ofan á hinum hælunum
þá farið var niður og neðan á honum þá farið var upp. Var þetta kölluð
feta skil og ef til vill stundum þráðaskil. Ég hefi áður sagt hvernig gengið
var frá hælunum. Frá skilinu að neðan var gengið eins og að ofan en þar
var höfð vartá (það er band) sem brugðið var um hvern feta. Gangaskil hefi
ég ekki heyrt. Umferð á grindinni var bara kölluð umferð eða feti. Var
talað um fyrstu umferð á grindinni. Var oft strengd dálítið á fyrstu fetunum
til að forðast slaka í jaðri. Því fyrstu fetarnir vildu verða slakir af,
því snældurnar runnu létt meðan þær voru fullar. Varptág heyrði ég ekki
heldur vartá. Fetaband heyrði ég en fátítt. Vel má vera að varptá sé réttara
en vartá. Stundum var merkt við 20 feta ef þurfti að ýta saman á skilhælunnnum
að neðan.
p19
Það þótti sjálfsagt
að rekja á auða grind en ekki utan á fyrri umferðir því þá varð fetinn
lengri. Flestir röktu aðra umferðina ofan við, en hina neðan við. Þó sá
ég afbragðs vefara, sem alltaf rakti ofan við, hvort sem hann fór upp eða
ofan. Fullrakin uppistaða hét slanga. Bundið var spotti í skilin
bæði að ofan og neðan áður slangan var tekin niður. Byrjað var að taka
slönguna af efri hæl og svo var slangan fléttuð niður, það er hægri hendi
brugðið gegnum lykkju og slangan tekin þar í geng. Var slangan niður tekin
eins og stór fléttingur. Var það kalla að taka af grindinni eða taka ofan
slönguna, hélt þá sá sem tók ofan við grindina með fætinum svo að hún snerist
ekki of hratt. Ef átti að setja upp fleirlita uppistöður var algengt
að vefja upp á spil eða eldspýtustokk litina í þeirri röð sem þeir áttu
að vera, mátti þá glöggt sjá munstrið, var svo rakið samkvæmt því.
p20
Ég tek til dæmið,
röndótt milliskyrtu efni með 32 þráðum hvítum 4 brúnum 2 bláum. Þá hefi
ég á 8 snældum hvítt, það verða tvær umferðir upp og tvær ofan. Svo hefi
ég á 2 snældum brúnt. það er 1 umferð niður og 1 upp. Svo hefi ég annaðhvort
á 1 snældu blátt og fer upp og niður, eða ég hefi á 2 snældum og fer eina
umferð niður og slít frá. Byrja svo aftur á brúnu og fæ 4 þræði og þá hvítt.
Allir vita að voðin skreppur saman eða hleypur úr vefstólnum, en
ég heyrði aldrei neitt um það hvað mikið það væri. Enda voru allar ullarvoðir
þæfðar og þá styttust þær mikið og hlypu líka á breiddina. Rakið
á vegghæla:. Sá ég aldrei. Rakið á rúmstólpum sá ég ekki heldur.
Hafalda grind: Hafalda grind aflangur ferhyrningur með mjóum
(sjá mynd) trétein í miðju sem var hæfilega sver fyrir hafaldaaugað.
p21
Var svo hafaldið
lagt yfir annan arm grindarinnar hnýtt að fast við mið teininn og
lagt yfir hann (til að mynda augað) og hnýtt að hinu megin og svo hnýtt
að hinum arminum. Svona var haldið áfram þar til grindin var nær full.
Þá var efri sláin tekin upp af hún var feld ofan á hliðarstuðlana, og fest
með trétöppunum í geng og höföldin tekin upp af. Ekki höfðum við neitt
áhald til þess að rekja höföldin á. Það voru bara reknir tveir 3 eða 4
þml. naglar í fjöl og haflada garninu undið inn þá, og svo skorið á við
annan endann og sú fjöl var alls ekki geymd, þvi höföld voru ekki hnýtt
nema með ára millibili. Margir áttu ekki afalda grind en fengu hana lánaða.
Hafalda efni og höföld: Þau höföld sem ég fyrst man voru
úr heimaunnum þræði -togþræði. Hafði amma mín Kristin Kristmundsd. í Miðhófi
spunnið hann. Var hann afar jafn og snöggur, líkastur fínu seglgarni. Var
mér sagt að hann væri soðin en í hverju
p22
man ég ekki, en sviðinn
var hann ekki. Hafalda hnýtingu hefi ég áður lýst (17). Hafalda hnútar
voru réttir rembihnútar, sumir kölluðu það rifhnúta, seinast voru oftast
hnýttir 3 eða 4 hnútar. Ég held að sama aðferð hafi verið höfð við alla
hafalda hnýtingar. Miðhluti hafaldsins var augað eða hafaldsaugað. Ef höföld
voru geymd (sem oft var) var hnýtt að þeim að ofan og neðan svo að hægt
væri að smeygja hafalda sköftunum í þau, síðan voru þau hengd upp á rakalausum
stað. Um 1890-1900 fóru að koma stálaugu, þau voru pöntuð í gegnum pöntunarfélögin,
og voru ódýr. Þau voru með dálítið stóru auga í miðju og svo smágötum á
endunum til þess að hnýta í. Þau voru svo hnýtt á hafaldagrind, en þá tekinn
burtu teininn í miðjunni en settur nagli hæfilegur fyrir stálaugað í neðri
slána á hafaldagrindinni, og auganu smeygt þar á, og bundið svo frá báðum
hliðum. Var oft notaður saman snúinn
p23
tvistur í þessi stálaugu
og dugði vel. Eins og áður segir hét band það sem brugðið var um fetana
að neðan þá rakið var vartág, hún var svo bundin út fyrir endana á sívölu
skafti sem felt var inn í rauf eða kýlingu á efri eða aftari rifunni (Rifskaftinu).
Bandið sem var haft til þess að halda höföldunum á hafaldasköftunum vissi
ég ekki til að hefði neitt nafn. Var sagað upp á endana á sköftunum, og
bandið sett þar í og svo bundið utan um endana á sköftunum. (Hafaldasköftunum).
Vefjakambur: Það er sennilega nafnið á því sem var hér jafnan
kallaður Eknir. Eknirinn var um það bil 1 al og 6 þml á lengd og um 6þml
á breidd. Voru það 2 sterkir listar til hliðanna og eins til endanna. Var
annar hliðarlistinn festur með töppum við enda listana og mátti taka hann
burtu þegar látið var í eknirinn. Hann var með 6o tindum úr tré.
p24
Að láta í Kamb:
Hér var jafnan sagt að láta í eknirinn. Var fetum inn í slöngunni dreift
jafnt um eknirinn og jafn breitt og vefurinn átti að vera (á 27þml). Sívalaskaftið
sem ég hefi áður getið hét rifskaft. Þráðurinn sem festur var við skaftið
(fetaþráðurinn) hét eins og ég hafi aður sagt vartá. Var sagað upp í endana
á því og vartáin strengd þar í og svo bundið utan um skaftendana. Aftur
á móti var kallaður skilþráður sem bundinn var í skilin áður en tekið var
ofan af rakgrindinni. Að festa upp: Var aldrei sagt hér.
heldur að setja upp vef eða setja til. Að bóna vef: Hér nefndist
það að vinda slönguna upp á rifinn. Að vinda upp á rifinn aldrei annað.
Hér voru jafnan hafðir kragar til þess að halda við jaðra slöngunnar á
rifnum. Voru þeir
p25
venjulega 8 kantaðir
eða 6 kantaðir og féllu fast að rifnum, sumir voru bara borð 8 köntuð með
gati fyrir rifinu og oftast rauf fyrir rifskaftið. Var svo járni stungið
í gegnum rifinn fast utan við kragana svo að þeir gengju ekki út. Sumir
kragar voru í tvennu lagi og festir saman með gjarða járni (venjulega)
öðru megin, en hinu megin voru vinkilbeygð járn með götum sem nagli gekk
í gegnum með ró á endanum (mottering) og mátti þá skrúfa kragann svo að
hann sat blýfstur. Var þetta sérstaklega gert ef voðir var eitthvað
misbreiðar. Þrír unnu við að setja upp slönguna eða að vinda
upp rifinn. Einn hélt í slönguna annar vatt upp á rifinn og sá þriðji hélt
við eknirinn. Það þurfti að halda fast og jafnt í slönguna og aldrei slaka
á. Sá sem hélt við eknirinn varð að gæta þess að jafnt var undið að krögunum.
Hér voru aldrei notuð rifsköft, en slangan var látin ganga jafnt
p26
úti að krögunum allan
tímann aldrei látin dragast að sér. Þegar búðið var að vinda upp á rifinu
voru skilsköflin sett í skilin og skilþráðurinn leystur. Þau voru bundin
saman. Gat voru á endunum á þeim í því skini, og þau svo bundin við aftur
bómuna. Að draga í höföld: Vanalegast drógu tveir í höföld.
Annar rétti en hinn dróg í gegnum augun. Margir höfðu vírkrók við að draga
í höföld, og allir eftir að stálaugu fóru að tiðkast. Lék þá sá sem rétti
þráðinn á krókinn og sleppti honum ekki fyrr en han var kominn í gengnum
augað. Þá sá ég að maður dró einn í höföld, og var furðu fljótur, enda
snillingur við allt er að vefnaði lauk. Þegar búið var að draga í 50-100
þræði þá var hnýtt á endana svo að ekki dragist úraftur. Maðurinn sem dróg
í höföldin, tók einhvern slátt af höföldinu í greiparnar á hverju skafti
í vinstri
p27
höndina, tók svo
eitt og eitt hafald af hverju skafti, sem hann dróg í, og færði það svo
frá þegar búið var að draga í. Einstaka vefarar drógu alltaf
í, í röð t.d. fremsta næst fremsta, næst aftasta og aftasta eða 1,2,3,4.
Aðrir drógu í í króka t.d. fremsta næst aftasta, næst fremsta og
aftasta. Þannig drógu við hér venjulega í á vaðmáli en í röð á dúk. Hvernig
dregið var í höföldin réði munstrinu. Að draga í skeið: Þegar
dregið var í skeiðina var hún venjulega sett upp á höföldin. Rétti annar
skeiðina, en hinn dróg í. Var til þess notaðar nokkuð breiður krókur úr
blikki eða látúnsþynnu, vírkrók var varla hægt að nota því að hann snerist
í skeiðinni. Þegar komnir voru 50-100 þræðir var hnýtt að, eins og þegar
dregið var í höföldin. Að hnýta fram, og uppbindingu:
Það var vanalega kallað að hnýta á skaftið. Ég man ekki að það skaft
væri kallað neitt.
p28
Skaftið var fest
við rifinu með þremur snærum. Voru alltaf höfð sömu snærin til þess, og
geymd í spólustokknum. Sérstakur stokkur var hafður fyrir spólurnar. Voru
þessi snæri kappmelluð utan um rifinn og undnir minnst tveir snúningar
upp á hann, svo lágu snærin yfir frambómuna og þar hnýtt utan um skaftið.
Byrjað var að hnýta, svo sem tvo hnúta á milli skaftið, svo var byrjað
á jöðrunum, og hnýtt alltaf á víxl. Varð að gæta þess að jafn stíft væri
á öllum þráðum. Hnýttir voru venjulegir réttir rembihnútar eða rifhnútar,
teknir t.d. 50 þræðir (eða færri) þeim skift, sem næst í tvennt, og hnýttir
fram fyrir skaftið. Snærin voru kölluð vefjarsnæri. Munstrið var komið
í skeið og höföldinu, þurfti ekki um það að hugsa við hnýtingu. Snærin
voru svo tekin þegar búið var að vefa um 2 álnir. Að draga fyrir:
Ég man nú ekki til að ég heyrði talað um að draga fyrir. Það var
bara talað um að
p29
byrja að vefa. Hér
var aldrei talað um annað en að gefa í eða gefa fyrir. Ívafið var
þannig gefið fyrir, að vefarinn færði ívafið í stærri eða minni boga með
einu eða tveimur fingrum fram undir skeiðina, og hélt því þannig þar til
að hann hafði stigið niður skammelið eða skammelin ef fleiri voru stígin.
Þá sleppti hann ívafinu og tók í skeiðarslagið og sló því fram. Stundum
voru slegin tvö slög, ef fast skyldi vefa. Mismikið var gefið í, var það
undir ýmsu komið t.d. hvað mikið var varpað, þá þurfti minna að gefa í,
eða ef fyrir vafið var grófar en þráðurinn ofl. Spálkin (hér var
alltaf notuð íslenskan) var til þess að teygja voðina á breiddina svo að
minna reyndi á jarðarþræðina, og tennur skeiðarinnar. Ef lítið var varpað
þá gekk voðin saman sem kallað var. Vefarar höfðu alltaf mæliþráð til þess
að vita hvað þeir ófu daglega. Var það álnaband með hnút á enda var það
svo fært við hverja alin.
p30
Ýmsar voru misfellur
í vefnaði sem oft stafaði af uppsetningu. Algengast var slaki í jörðum
(jaðrar voru misslakir). Stafaði það ýmist af því að fyrstu fetarnir á
rakgrindinni voru of lausir, því að snældurnar gengu liðugar meðan mikið
var á þeim, en tóku meira í þegar minnkaði á þeim. Stundum var slak í jöðrum
af því að klaufalega var undið upp á rifinn, slangan lagðist ekki jafnt
að krögunum. Var töluverður vandi að vinda upp á rifinn. Sumir reyndu að
strengja á jaðri með því að setja eitthvað undir voðina á neðri rifinu,
Sagt var að einn vefari hefði þurft að setja það stórtreyju á neðri rifinu
til þess að taka af slaka á jaðri. Þráðaslit var algengt bæði af
því að þráður var ekki snúðmikill eða var ójafnt spunninum þá gengu hólarnir
illa í gegnum höföldin. Skilgöllum man ég ekki eftir nema skil voru minni
þar sem jaðar var stirður. Við þráðaslit var ekki annað að gera en að bæta.
p31
Aldrei man ég eftir
því að það væri kennt aðsókn þó slitnaði í vefi. Hér var hver vindingur
upp á framrif kölluð færa. Verkmótið heyrði ég aldrei talað um, og ekki
áfæru. Að bóma var heldur ekki sagt. Að fella vefi: Vanalega
var sagt að fella vef, eða taka niður voðina. Þráðar endarnir voru vanalega
kallaðir undarlás, þó heyrði ég nefndar afvikur (það var sunnlenska), en
aldrei önnur nöfn á þessum endum. Þessir endar voru oft brúkaðir til þess
að bæta með ullarföt, þegar um ullar undanlás var að ræða. Tvistur var
brúkaður sem saumagarn í stað tvinna bæði til þess að þræða með ofl. Voðin
var undin upp af framrifnum, og var kallaður vefjarstrangi. Þóf:
Oft voru voðirnar þvegnar fyrst úr heitri keytu
p32
og síðan úr heitu
vatni undir þæfingu. Síðan var voðin undin, og þurfti helst til þess þrjá
menn. Voru það gjarna 1 karlmaður og 2 konur. Vanalega var settur járnkarl
eða sterk spýta þversum í dyr (ofan bæjardyrnar) og voðinni brugðið það
um, svo var karlmaðurinn með sterkum staf helst um 2 1/2-3al á lengd, það
var voðinni líka brugðið um, og svo endarnir lagðir saman, svo að voðin
var tvöföld. Karlmaðurinn með stafinn vatt svo uppá voðina, og stakk þá
gjarnan stafnum í jörðin til þess að halda við þegar mikið fór að vindast.
Kona hélt svo undir voðina svo að hún færi ekki niður í hlaðið, hún strauk
líka vatnið af voðinni jafnóðum og hún var undin. Þegar voðin var orðin
mjög undin, setti konan sem hélt undir voðina lit á hana, og byrjaði þá
upp við járnkallinn í dyrunum og hélt áfram þar til liðir voru komnir á
alla voðina, og togaði þá karlmaðurinn fast. Vattst þá voðin
p33
ágætlega. Hin stúlkan
sem var við voðina hafði ekki annað að gjöra en halda við járnkarlinn í
dyrunum. Hér voru það oftast heimamenn sem þæfðu, en stundum fóru sérstakir
menn um sem þæfðu. Hér vissi ég aldrei að kvenmenn þæfðu vaðmál. Vanalega
þæfðu menn hér í baðstofu. Var þá rækilega þveginn bletturinn sem þæfa
átti á, og koffortum eða öðru raðað í kringum blettinn, og fært að borð
eða annað sem þófarinn gæti stutt sig við. Sumir vildu þæfa í fjósbás,
ég held að þeim hafi þótt það hlýrra. Var þá hurð sett í básinn undir þófið.
Einstaka þæfðu fyrst í tunnu og þá í vatni eða keytu, ég held að það hafi
aðallega verið gert til þess að þurfa ekki að þvo eða þvæla vaðmálið áður
en þæft var. Þetta var kallað að þæfa vota þóf. Svo var vaðmálið undið
eins og áður er sagt og þæft þura þóf. Vanalega voru menn í nærfötum einum
við
p34
þóf (einni skyrtu
og nærbuxum) og brettu þá nærbuxurnar upp undir hné. Voðin var svo troðin
með fótunum, og velt fram og aftur, svo að öll voðin stigist sem jafnast.
Þegar voðin fó.r að þæfast var hún hrist upp. til þess að hrista af henni
lóna. Stundum var voðin kippt. Það er tveir menn tóku ákveðna lengd af
voðinni og kipptu og hristu hana á milli sín, og átti þá helst að smella
í. Var þannig öll voðin hristi og teygð. Þegar voðin fór að fara í birgður,
var þófi vanalega hætt. Annars var misjafnt hvað vaðmál var þæft
mikið, eftir því hvað það átti að vera ofl. Æfinlega var þófara gefin einhver
glaðning. Hann fékk gott að borða, oft baunir og ket, og svo kaffi og lummur.
Aldrei heyrði ég neina þófara þulu. Ekki man ég eftir að nein ákveðin laun
voru fyrir það að þæfa voð. Hæfilegt þótti -eða það fyllsta- að þæfa 20
álnir. Væri voð mikið lengri var henni skift venjulega. Voðir voru
venjulega pressaðar í rúmi undir undirsæng. Ég man ekki til að þær
p35
voru neitt þurkaðar
eftir þófið. Voðin þornaði mikið í þófinni. Voðin var lögð margföld undir
sængina. Fyrir aldamótin, komu Ási í Hegranesi Ska. Vélar til þess
að lógskera og pressa og ég held að lita, voru voðir í utanyfirföt stundum
sendar þangað, og var mikill munur á hvað þær voru fallegar á eftir.
Vefnaðarsýnishorn: Því miður eru víst engin vefnaðarsýnishorn til
hér. Ég óf á yngri árum millipils úr tvisti, voru þau langröndótt með bekkjum
neðan til. Einnig óf ég salons ábreiður yfir rúm og ábreiður með hringavefnaði,
en það er allt orðið ónýtt. Söðuláklæði var líka hér til fyrst þá ég man
eftir. Var það merkilegt og mun amma mín Kristín Kristmundsdóttir í Miðhópi
hafa átt það. Ég held að Halldóra Bjarnadóttir hafi nú tekið upp
munstrið úr því á klæði. Annars var helst ofið vaðmál og dúkur og vormeldúkur.
p36
Ég læt fylgja hér
með tvo hnúta reipahnút og algengan eða réttan rembi hnút en sem sumir
kalla rifhnút. Voru þessir hnútar algengir þá bætt var í vefstól,
og réttur rembihnútur var brúkaður þá hnýtt voru höföld. Ef þið
vilduð fá uppskrift af vefjartöflu þeirri en ég brúkaði við að setja upp
ullarvef, þá get ég gefið ykkur uppskrift af henni, en sennilega hafið
þið nóg af slíku.
Nr. 1971
p1
Ull og tóvinna 3. Vefnaður:
Hér, eftir að ég man, var ekki ofið fyrir jól. Þó mun það hafa
verið gert, þar sem var maður sem ekki gerði annað. Þá mun hafa verið
hillst til að voðin yrði búin fyrir jól. Það þótti ekki gott að láta
vinnuna verða jólafeita. Svo var það myrkrið. Það var svo víða
dimmt. Pabbi minn lærði vefnað nokkru eftir fermingu. 2 Vetur
var hann eingöngu við vefnað, annars ekki nema ígrip frá gegnum.
Vefstóll: Hans vefstóll var smíðaður fyrir hann. Ég
veit ekki hver það gerði, sem kemur ekki upp á neitt að nefna. Þessi
vefstóll var líkastur B gerðinni. Vefjarskeiðar voru úr járni, útlendar,
að ég held. Skeiðin var talin 80 tanna skeið 120 og 140 tanna skeið,
víst miðað við tönnur á þumlungi. Skyttan var úr hvalbeini, önnur
úr svörtum viði, hörðum, og þriðja úr brenni, allar járnvarðar til endanna
og járnvarðar að neðan, þar sem þær runnu á eftir skilinu um augað, sem
p2
fyrirvafið frá spólunni rann um.
Þá var ..... járnfjöður, sem hélt spóluteininum. Spólan var
þunnt járn, sem var beygð um heldur stærri tein en hún átti að renna á.
Spólurokkur eða balbínurokkur var sá sami hér aðeins færður
til fram uppstandarinn, eða brúðan, sem líka er kölluð á spunarokkunum.
Spanstokkur, alltaf kölluð spjálk. Að leggja upp,
að setja til verk (vefjarverkið). Ef ekki var hespað á skreppurtré,
sem vera átti rétt, sem ég man ekki hvað var lagnur hringur, hvort var
2 al 3 kvartel 4 þuml. 44 þræðir í skreppunni og hespan 11 skreppur. Það
var kölluð löghespa. Annars varð að hespa 1 eða 2 hnykla og vigta
hespuna og vita hvað hún var þung, hvað mörg lóð. Svo að telja hnyklana
og vigta eða áætla þyngd þeirra og það sem undið var á, dregið frá. Og
þá var betra að láta ekki verða sveltu við rakninguna. Þegar þetta
var þyngd hespunnar og þettað margar hespur, þá var farið að sjá hvað uppsetning
mátti verða löng (slangan).
p3
Balbínur: Þá voru hespurnar
balbínaðar. Þær voru úr tré með tveimur snúðum, holum legg, sem teinn
gegg í gegnum. Hann var með fastri trissu, sem var með einni skoru,
bara eins snúra. Það var dálítið misjafnt, sem á þær komst, eftir
því hvað þráðurinn var grófur. Þær máttu ekki vera mjög þungar, svo
þráðurinn slitnaði ekki. Þá var til tafla, sem upp var gefin, hvað
voðin mætti verða löng af þessum hespufjölda og hespan mörg lóð.
Að reikna í skeiðina fór eftir þráðafjölda og hver skeiðin var.
Sem fór eftir grófleika þráðar, eins kannske eftir því hvað vendin
átti að vera. Ég lærði aldrei að setja upp vef, en hjálpaði til að setja
upp ritti í höföld og svoleiðis. Eftir því hver vendin var, þurfti
að draga í höföldin og eins skeiðina. Rakgrind var hún nefnd
hér. Hún var notuð sem hesputré. Það var sívalingur, sem gekk
í gegnum krossinn. Hann var það lengri en greinar stuðlarnir að efri
endinn var festur við
p4
bita undir loftinu, og svo var
slá með holu í sem var látin undir hinn endann, og fest svo ekki gengi
til. Þá var látið slá sem stoð heima á einn kantinn. Það var
með ..... randanna og var skorðað þar sem krossin kom í upp í standana.
2 hælar útúr öðrum til að gera skilið, hinn að neðan var með einum
hæl, þar sem endinn á slöngunni afmarkaði lengdina. Svo verður að
snúa grindinni. Það verða færri fetar, ef rakið er á mörgum. Þar
þurfti að passa að jafnt rektist, svo ekki yrði mislengja, eins að ekki
slitnaði. Eins var stundum rakið úr hnyklum. Hnyklastokkurinn
var fyrir 24 hnykla, og þeir vildu hoppa upp úr. Það áttum við að
passa, sem hjálpuðum til. Eins ef að slitnaði eða voru að vera búnir.
Mig minnir að balbínurnar væru 18 sem smíðaðar voru með vefstólum.
Svo voru til aðrar minni. Balbínugrindin var svokölluð sem
þær léku í nokkurskonar snældustól. Þegar skilið var gert
á skilhælinn, þar var dreginn hampspotti með snúningi til að þeir færu
p5
ekki saman. Svo var það sem
hér var kallaður fetakambur. Þá var hver feti látinn á milli hverra
tinda. Svo var honum lokað þegar búið var að láta skaftið, sem fest
var á afurrifinu. Þegar undið var upp slangan eða vefurinn, þá var
haldið í slönguna svo fast sem sá gat, snúið rifnum. Það var að svo
vera, svo fast sem hægt varð, til þess að það gæfi ekki eftir þegar farið
var að vefa, sem sagt að strengja þræðinum. Öðruvísi var hér ekki
rakið, nema í sokkabönd eða styttubönd og beislistaum,sem ofin voru í vefstól.
Þó sá ég ofin sokkabönd á fæti, og líka gjarðir í vefstól.
Hafaldaefni var þráður, þar til að tvistur kom, svo stálaugun þau
voru hnýtt með tvisti. Hafaldagrindin var 3 rimar í stuðlum. Þá
var hnýtt augað um miðslána og annar stuðullinn var laus, svo hægt var
að taka hann frá og smokka höföldunum úr. Svo var látið í höföldin
en dregið í skeiðina.
p6
Til að halda slöngunni út var notaður
fetakamburinn. Það voru 2 við að vinda upp vefinn. Það voru
eins 2 við að láta í höföldin og draga í skeiðina. Fetasköftin voru
látin í áður en fetakamburinn tekinn úr. Þá var slönguendinn bundinn
við slána, sem var á milli uppstandaranna fyrir ofan hafaldasköftin. Yfir
uppistöðin var sett band í endann á fetasköftin, svo þau drægjust ekki
úr.
p7
Ull og tóvinna 4.
Eftir því hvað ætlast var til að
ætti að nota vefjarefnið. Til vinnufata vaðmæal, t.d. karlmannafata,
með vaðmálsvend klæðisvend eða hálf hringofið og svo vormeldúrkur (ormel
þekki ég ekki). Í önnur efni t.d. svuntur, millipils, milliskyrtur,
oftast dúkvend. Rekkjuvoðir dúk- eða vaðmálsvend. Peysuföt
klæðisvend. Og í betri föt karlmanna, ég man aðeins eftir jakkafötum
úr mórauðri ull með klæðisvend. Þau voru sem talið var 5 lóða verki,
þung, höfðu verið sérstaklega vélunninn. Ofin af eigandanum og systir
hans vann þráð og fyrirvaf og sneið og saumaði allt í höndum með saumþræði.
Stærð voðar var ekki neitt víst, að ég held, en þó var reynt
að hafa það sem haganlegast, því af stuttri voð fór tiltölulega meira í
afvikur., því sem ekki var hægt að nota, bæði þegar byrjað var og endað.
Þær sameinuðust í voð, eftir umtali, 2 eða fleirri konur um voðina.
p8
Svo .... svuntudúk, millipils,
ábreiður og því um líkt. Eins var með fleirra. Þá var lagt
til eftir því hvað það þurfti að vera margar álnir. Vefarinn sagði til,
eftir þyngd hespunnar, hvað úr henni fékkst í uppistöðuna. Í ein
peysuföt þurfti að mig minnir 9 álnir, 3 í peysuna og 6 í pilsið.
Heiti uppsetningu: 1. einskefta eða pokavend. 2. Vaðmálsvend.
3. Klæðisvend. 4. Hringofið eða hálfhringofið. 5. Vormeldúkur (ormel heyrði
ég aldrei nefnt). 6. Salún. Hefi séð sessuáklæði og ofaná rúm. Brekán
sá ég aldri, en ábreiður, sem þá eldra fólk kallaði stundum brekán. Þau
voru með vaðmálsvend og einskefta, stykkjótt, hringofin og hálfhringofin
eða bara röndótt, ýmist með sauðalitum eða lituð.
p9
Glitvefnað, krossvefnað, flosvefnað
og spjaldvefnað heyrði ég talað um, en hann var aldrei ofinn hér. Fótvefnaður
var ekki ofinn nema sokkabönd, styttubönd og beislistaumur.
Hundshár hefi ég aldrei heyrt talað um til nota. En þegar ull var
vond, stuttu í henni, var sagt það væri eins og að spinna úr hundshári.
Nr. 3061
p1
Ull og tóvinna 3:
Meðfylgjandi þjóðháttarskrá mun ég hafa fengið í hendur vorið 1966,
frá Þór Magnússyni. Það er því orðinn ansi langur ómagahálsinn á
svörum mínum. En í bætiflákann er það helst að bera, að ég hefi stundum,
sem síðan þá ekki verið vel frískur. Þó að mestu valdi hitt, að ég
mun áður hafa verið búinn að svara öllu, sem ég vissi og kunni full skil
á, um svipað efni. Ennfremur minnir mig fastleg, að ég hefði nokkuð
lengi í huga, að leita fræðslu hjá gamalli kunningjakonu minni, viðvíkjandi
þessarri skrá.
p2
En af mun aldrei
hafa orðið, og nú er það of seint. Að ég skrifa þetta núna er mest til
þess að hafa það ekki lengur á samviskunni, að hjá mér liggi svarlausar
þjóðháttarskrár, en í raun og veru komst ég aldrei í verulega snertingu
við þessa hluti, og auk þess búinn að gleyma því litla sem ég vissi ungur.
Það sem ég enn man með fullri vissu er, að faðir minn átti vefstól,
ýmist nefndur vefstóll eða vefstaður, og óf eitthvað á hverjum vetri, þar
til hann seldi eða gaf bróður sínum vefstólinn, veturinn 1911-12, að ég
ætla. Ég hygg að faðir minn hafi ekki verið sérlega mikill eða listrænn
vefari, þó man ég eftir
p3
að hann óf stór verk,
margra álna löng, og að þau voru þvegin uppúr hlandþvæli og síðan farið
með þau út á hlað og skoluð í bæjarlæknum, endarnir síðan festir í hjall-
eða skemmuþil, en digru priki, sem kallað var "snarvölur" stungið
í lykkjuna og síðan snúið upp á af öllu afli til þess að vinda þvælið og
vatnið úr voðinni, uns snurður hlupu á hana, svo að hún mátti heita þurrundin,
þá hengd upp á snúrur og þurrkuð til fulls. Ég man líka eftir
áhaldi, sem kallað var spjálk, og faðir minn hafði til þess að halda út
jöðrunum á voðinni í vefstólnum. Áhald þetta var með smátönnum á
endunum,
p4
sem stungið var í
jaðra voðarinnar, en í miðjunni á spjálkinni, var einskonar þolinmóður,
svo lengja mátti hana og stytta, að einhverju marki. Skeiðin í vefstóli
föður míns mun vissulega hafa verið erlend að uppruna, því hún var úr járni
og þétt, þ.e. lítið bil á milli þráða. Ég man líka að mikið vandaverk
þótti að setja vefinn upp, og mun það einkum hafa verið verk móður minnar,
sem var vel að sér í öllu er að tóskap og saumaskap laut. Það er
rétt svo, að ég man eftir hlutum og áhöldum eins og skytta, spóla, höföld
osfrv., en að lýsa þeim nánar og notkun þeirra, treysti ég mér ekki svo
að not verði að.
p5
Áður en ég lýk þessu
fátæklega skrifi, vil ég geta þess, að á uppvaxtarárum mínum í Steingrímsfirði,
var þar kunnastur vefari og í mestum metum, Soffia á Sandnesi, dóttir Torfa
alþingismanns á Kleifum á Selströnd. Hún var þá að vísu komin nokkuð
til aldurs, f. 1842, en óf samt enn ásamt Guðbjörgu dóttur sinni, konu
fræðaþulsins Sigvalda Guðmundssonar. Hún var ekki hvað síst listrænn
vefari, og þær mæðgur allar ófu svonefnda "vormeldúk" í spariföt
karlmanna, salúnsábreiður í stórum stíl, og einnig, að ég hygg, þótt ég
viti það ekki fyrir víst, glitofin áklæði og brekán. Með fullri vissu
man ég það, að í æsku minni var til á heimili foreldra minna glitofið
p6
söðuláklæði og glitofið
brekán, allt litað úr jurtalitum, frekar fölum, ekki skærum. Að vísu
má vera að gripir þessir hafi verið úr búi ömmu minnar, Ingveldar Finnbogad.,
því að slitnir voru þeir nokkuð, einkum brekánið.
Nr. 1276
p1
Ull og tóvinna 3.
Um vefnað: Ég sem þetta skrifa hef ekki séð ofið síðan um
aldamót, þá barn að aldri. Á heimili foreldra minn var vefur
aldrei "settur til", einsog það var kallað, fyrr en eftir hátíðar.
Haustannir voru miklar og það tók tíma að vinna í vefjarverkið.
Ekki kunnu allir að vefa, og því síður að setja vef til. Heimilum
var nauðsyn að eiga völ á vefara, ekki síður en að einhver væri bænabókarfær,
því nálega allur klæðnaður var heimaunninn. Á þeim tíma er um ég
get, var maður Jón að nafni, sem vann að vefnaði á vetrum. Hann var
kallaður Jón vefari. Voðir voru galdeyrir í skiftum við verstöðvarnar.
Vefstóll og vefstaður var nokkuð jöfnum höndum sagt. Kljásteinsvefnað
hef ég aðeins séð á Þjóðminjasafninu. Gamalt fólk, sem ég kynntist
í æsku virtist kannast við hann. Um smíði eða smiði get ég ekkert
sagt. En vefstaðurinn á mínu bernskuheimili var tigurlegur. Hann
hafði slöngurifinn uppi og var hnarreistur. Annarsstaðar sá ég rifinn
niðri. Mér fannst þeir kollóttir. Vefstaðir voru hér í öllum eyjum.
Ég sé ekki fram á að ég átti mig neitt á myndunum.
p2
Skeið: Skeiðar
voru 3 til á heimili mínu. Ekki hafði ég vit á að athuga efni þeirra.
Mér er ekki grunlaust um að ein hafi verið úr hvalskíði. Ein
var með látúns tönnum. Hún var þeirra mest, nýjust og kjörgripur
talin. Hún mun hafa verið 80 tanna talin. Það lætur nærri að
hún hafi verið 5 kvartela löng, hinar líklega eitthvað styttri.
Vefskytta: Skyttur munu hafa verið úr einhverskonar harðviði. Þær
voru með 2 látúnsvírs spöngum að neðan, vel innfelldum, sem sífellt glönsuðu.
Allar spólur hér voru úr sauðaleggjum. Afturfótaleggur af gamalli
á eða sauð, var helst notaður. Sagað var af báðum endum leggsins.
Spólurokkar: Uppgjafa spunarokkur var hér notaður til
að spóla á. Hann gekk undir nafninu spólurokkur, sem og var haft
um suma menn. Teinninn var sérstaklega gerður til þessa. Hann
var með einni trissu eða kringlu og einni snúru. Spólunni var rennt
upp á teininn framan frá. Ull eða band var vafið um teininn aftur
við trissuna og enda spólunnar þrýst þar á, svo hún sæti föst meðan spólað
var á hana.
p3
Spanstokkur: Spjálk
var það kallað hér. Ekki er ég fær um að lýsa henni að gagni. Hún
mun hafa verið um 4 cm. á breidd. Jafn breið öll, að mig minnir,
með 2 litla odda á hvorum enda, sem stungið var í jaðar voðarinnar. Um
miðjuna lék hún á hjör með spennu, ekki ólíkt því, sem nú er á járnsög.
Ég treysti mér ekki til að teikna hana, enda skildi hana aldrei.
Að leggja upp, að reikna í skeið, að reikna í vef, get ég
engu svarað. Ég mun ekki hafa verið öllu meira en 9 ára, þegar ég sá vef
síðast. Rakningsgrind: Rakgrind var það kallað hér.
Ég kynntist aðeins einni. Þessi grind var mjög mikil að fyrirferð.
Myndi tæplega notast í láreistum húsum. Hér var og er enn stórt
timburhús. Þar var stór vinnustofa, sem bæði var rakið og ofið í.
Bitar eru þar undir yfirlofti. Þegar rakið var, var sleigið
oka með rauf til hliðar á bitanum. Á gólfinu var 11-12 cm. hár kubbur
með runnu spori. Þar í lék fótur grindarássins, en að ofan lék ásinn
í okanum á bitanum. Hælatré var það kallað hér, sem skilin voru gerð
á. Rakgrind mun víðast hafa verið til. Ég er fátækur
í rakverksmálum. Við börn fengum lítið að vera inni á meðan á athöfninni
stóð. Hún reyndi á heilann, og þoldi ekki truflanir.
p4
Balbínu eða rakningsspaða
kannast ég ekki við. Rakningsstokkur: Hólfaður kassi var hér
fyrir hnyklana. Hann var talsvert djúpur, um 30 cm. Vírlykkja
var á kassabarminum við hvert hólf, þar var þráðurinn látinn leika í. 2-3
hólf voru á þverveginn og 5-6 á langveginn. Þó man ég þetta ekki
glöggt. Hafaldagrind: Í mínu minni var smíðuð grind.
Hvernig það var áður man ég ekki. Grindin var með sívölum ás
í miðjunni á langveginn. Breidd grindarinnar var ætluð fyrir lengd
hafaldanna. Auga hafaldsins, sem þráðurinn skyldi leika í var myndað
um miðásinn og hnýtt að beggja vegna. Önnur endasláin var laus og tekin
burt þegar höföldin voru tekin af grindinni.
p5
Hafaldaefni: Hér
voru höföld búin til úr tvisti (vefjargarni). Sennilega tvinnuðum eða fleirri
þættum. Þráðarhöföldum man ég óglöggt eftir, en kann ekki fleirra
um þau að segja. Ekki kann ég að greina frá hvernig höföld voru fest
á sköftin, en víst er að þau röskuðust ekki úr skorðum. Vefjarkambur
mun vera sama áhaldið og hér var kallað tindastóll. Fetagrind var það líka
kallað. Hann var löng grind með tindum í gegnum þvert. Lengdin
var alltaf breidd voðarinnar eða eitthvað meira. Á milli hverra tveggja
tanna mun hafa verið einn feti. Skilsköftum man ég eftir
og sköftum í báðum rifum. Ekki kann ég þar fleirra frá að segja.
Mér er ekki fært að greina frá hvernig vefur var settur, því það
sá ég aldrei. Börn skyldu sofnuð áður. Þó hafði ég óljóst veður
af að það var mikið tilstand. Þetta gerðist að lokinni rakningu,
sem stóð fram á kvöld. Það var ekki venja á því heimili að tvínóna
við störfin.
p6
Að draga í höföld
var rómantískt starf. Það var gert í vefstólnum. Vefarinn, sem hér
var alltaf karlmaður, þræddi höföldin. Til aðstoðar fékk hann svifétta
nótentátu, eftir því, sem tök voru á. Til handagagns höfðu þau rúnnann
stíl eða síl með rauf í oddinn. Þegar hann hafði lagt hinn rétta
þráð í rauf sílsins, rétti hann aðstoðarkonunni áhaldið um augað á hafaldinu,
sem hélt auganu opnu og tók því sem að var rétt. Lítið var um umgang
annarra um vefjarstofuna meðan á starfinu stóð. Þó vafðist verkið
fyrir allt að 3 dögum. Að draga í skeið: Krókur eða
goggur, var áhaldið kallað, sem dregið var í skeiðina með. Hér var
það tálgað úr höfðuðkambi (lúsakambi). Tálgaður var goggur eða krókur
á annann endann. Þetta áhald var rétt á milli tanna skeiðarinnar.
Þræðirnir voru látnir á krókinn, og dreginn þannig í gegn. Tveir
eða tvö unnu að þessu verki. Vefarinn að sjálfsögðu. Væri sunnudagur
áður en verkinu lauk, var skift um aðstoðarstúlku. Ég man þetta vegna
eftirkastanna. Slagborðið var á sínum stað og skeiðin í því. Kallað
var að gefa í. Það var gert í einum boga. Spjálk hélt voðinni
jafnbreiðri. Hún var færð við hverja hleypu, sem kallað var. Kallað
var að fella vef. Afvikur var þráðurinn, sem af gekk kallaður. Hann
var notaður til að sauma með.
p7
Þóf: Voðin
var þvæld úr keytu, keytublandi í stórum bala. Síðan var voðin borin
út í balanum. Síðan voru báðir endar festir um ás eða tré, sem tók
um þverar dyrnar. Þar studdi ráðsett kona að, og gætti endanna. Efldur
karlmaður með járnkarl að vopni dró lykkjuna út eins langt og hún náði.
Brá vopni sínu í lykkjuna og snéri uppá voðina. Allir, sem
vettlingi gátu valdið röðuðu sér á voðina að strjúka af henni vatnið. Þangað
til snéri víkingurinn vopni sínu, að liðir runnu á voðina. Það voru
kölluð börn, sem honum voru eignuð. Nú var voðin fullundin. Gerð
var stía í vinnustofuhorninu. Þófið og þófarinn sett þar inn. Hann
hálfber og þvæfði með fótunum, þar til yfir lauk. Þófarabita fékk
hann, oft fleirri en einn. Þessa naut hann einkum meðan voðin var
hrist upp. Það önnuðust tvær konur. Það voru háir skellir.
Ég var að mestu búinn að gleyma öllu, sem að vefnaði laut. Við
lestur þessarar skrár rifjast það upp fyrir mér, þó hefur sjálfsagt margt
gleymst.


