Tóvinna

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1919)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1244 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1244

p1
ULL OG TÓVINNA
Vefnaður: Vefnaður hófst ekki fyrr en eftir nýár á flestum bæjum.
Vanalega var byrjað á einskeftu, eða nærfatavaðmáli. Algengast var
að karlmenn önnuðust vefnað og þá oftast sami maður . Aldrei var
ofið frá fótaferð til háttumála, því sami maður þurfti oftast líka að annast
einhver útiverk. Um afköst daglangt var það breytilegt eftir því
hvaða teg. af vefnaði unnin. Var það þótti gott ef ofnar voru 20 álnir
af einskeftu á dag og 15 álnir af vormeldúk. Mjög sjalda sá ég unglinga
vefa og aldrei undir 16 ára. Til voru menn og konur sem fóru á milli
og ófu,(t.d. í minni sveit var kona sem tók að sér að vefa rúmábreiður
)(salonsvefnað). Um greiðslu fyrir vefnað veit ég ekki, (líklega
25 aurar á alin). Kljásteinavefstólum er lýst í útdr. úr "Hlín
blað 9. Engir vefstólasmiðir voru í minni sveit. Þeir vefstólar
sem ég sá á Austurlandi voru svo til allir eins og teikning B sýnir "Slöngurifurinn"
var niðri, og aðeins slá uppi fyrir höföldin. Hraðskyttu-vefstólar
voru ekki til. Mörg heimili áttu vefstóla, en þeir sem enga áttu
fengu ofið hjá nágrönnum sínum. Veit ekki um gangverð á vefstólum,
enda var sami vefstóllinn á sama heimilinu áratugum saman. Skeið:
Vefjarskeiðar voru ekki heimasmíðaðar, þær voru úr málmi (járni eða
stáli). Þær voru oftast af sömu lengd, en tannafjöldi misjafn frá
70 til 110 tennur. Mjög algengt var 80 tanna skeið. Vefskyttur:
(vefjarskyttur var algengara) Þær voru oftast smíðaðar í heimahúsum
úr birki eða ösp. Teinninn var kallaður spóluteinn. Neðan á
skyttunum voru settir vírar úr messing svo þær rynnu betur. Tréspólur
voru rendar og notaðar til að spóla á ívafið. Þær voru aldrei nema úr tré.


p2
Spólurokkur: Vanalega
voru gamlir rokkar notaðir til að spóla á og var þá settur sérstakur spólusteinn
í stað snælduumbúnaðarins. Spanstokkur var tilbúinn úr þunnri fjöl,
(harðvið). Sumir kölluðu þennan spanstokk, spjálk, (sjá teikn).
Að leggja upp: Svo nefndist það að reikna út uppistöðuþráð. Ymsar
aðferðir voru hafðar við það. Stundum notað ummál hesputrés, en oftar
var það vigt á hespum, (eða hnyklum) þá voru oftast 8 hespur í pundi.
Að reikna í skeið: Það var kallað að leggja í skeið og var kallað
varp. Ef sá útreikningur stóðst ekki og uppistaðan varð of gisin
þá var sagt að voðin væri varplítil. Að reikna í vef: Ég þekki
ekki mun á því og að "leggja upp" sem áður er komið, nema það
var bæði um uppistöðu og ívaf að ræða. Veit ekki neitt umfram það
sem áður er sagt. Rakningsgrind: Það var ætíð kölluð rakgrind
í minni sveit og sá ég bara eina gerð af rakgrindum. Hælatré var
kallað það sem grindarhælar (skilhælar) voru festir á. Rakgrindin
var fest upp í loftið þannig að járnteinn stóð upp úr rakgrindinni og gekk
upp í holu sem var í tréklossa festum í loftið. Að neðan var sami
útbúnaður nema það var klossinn laus, (bara stíflaður af með fleygum).
Rakgrindur voru til þar sem vefstólar voru til. Ummál grindar
mun hafa verið 4-5 álnir. Balbínur, balbínustóll: Snældur
þær sem uppistaðan var rakin af á rakgrindina hétu balbínur

p3
Balbínur voru úr
holu tréskafti með rendum snúð á hvorum enda. Svo voru balbínustólar
og þar voru balbínurnar festar í og léku á járnteinum sem stungið var gegn
um uppistöðurnar á stólnum. Þessir balbínustólar tóku minnst 6 og
upp í 12 balbínur þótti því betra sem þær voru fleiri. Balbínustóll
var úr tréblökk sem lá við gólf og upp úr henni voru tvær eða þrjár uppistöður
og á milli þessara uppistaða voru balbínurnar settar með járnteinum. Ef
uppistöðurnar voru 3 þá var hægt að hafa tvær balbínur hlið við hlið. Það
voru oft sérstakir rokkar til að spóla bandið á balbínurnar þeim var handsnúið
og hét það að balbína. Balbúnurokkur var með stóru hjóli í rokkgrindinni
og allur frágangur svipaður og á venjulegum rokk, þó með því fráviki að
þarna var enginn snælduumbúnaður ofan við rokkhjólið heldur til hliðar
við það í áföstum kassa þar var balbínan á teini og bak við hana trissa
sem var tengd við rokkhjólið með snúru, (eins og á venjulegum rokk).
Handfangið var áfast við hjólöxulinn þannig að ásinn sem gekk í gegnum
hjólið náði nokkuð fram úr hjólgrindinni og þar var handfangið fest við.
Rakningsspaði: Ég þekki ekki það orð, en það voru kallaðir
rakhælar sem héldu uppistöðuþráðunum í réttri röð, svo það mynduðust skil
á milli. Þeir voru festir í einhverja lykkjur sem voru á hinum 4 uppstöndurum
í grindinni.

p4
Rakning á rakningsgrind:
Rakgrindin var sett upp þar sem nóg rými var til að geta athafnað
sig við vinnuna, og gagnrúm kringum grindina. Undir baðstofulofti
var víðast hvar svefnstofa fyrir gesti og oft önnur fyrir heimafólk. Þar
var rakgrindin sett upp og umbúið eins og áður er umgetið. Vanalega
voru 2 menn sem unnu við að rekja. Lengd voðarinnar var mæld með
merki á einhverjum uppistöðuþræði. Þræðirnir voru hnýttir í göt á
hælinn og svo rakið niður. Þræðingin var miðuð við þráðafjölda í
hafaldi þegar ofið var. Þráðarvölur voru ekki notaðar. Fyrsta skilið
var tekið á þræðina strax og búið var að binda þá fasta í hælgötin. Það
var kallað þráðaskil og var bundið á grindina. Ein umferð með þræðina
niður og upp á rakningsgrind var nefnt "gangur" en ein umferð
niður eftir grindinni hét "feti" og var það kallað "að leggja
á grind". Þegar búið var að rekja fyrsta fetann þá var farið aftur
á bak? Merki voru sett í gangaskilin að neðan við ákveðinn þráðafjölda
t.d.50 eða 100 þræði, þar var bundinn spotti og hét bandspottinn "fetaband".
Ekki var rakið utan á fetana heldur ofan við þá, eða neðan við þá.
Fullrakin uppistaða á grind var kölluð "slanga". Þegar
slangan var tekin af grindinni þá var hún kappmelluð upp.(búin til lykkja
og hendi stungið í gegn og slangan dregin upp og ný lykkja myndast og þannig
koll af kolli) það var kallað "að fika ofan". Þegar fleiri
litir voru í uppistöðu þá var búið til munstur á spjald og svo rakið eftir
því. Það var venja að hafa slönguna eitthvað lengri en voðin átti
að verða var því rakin þverhönd fram yfir á hverja alin. Það var
kallað að voðin "skryppi saman". Þekki ekki að rakið væri
á vegghæla eða rúmstópla

p5
Hafaldagrind, hafaldaefni:
Ekki heyrði ég talað um hafaldagrind, en aðeins um hafaldasköft.
Á þessi sköft voru höföldin sett. Hafaldaefnið var rakið á
hafaldasköftin. Ekki man ég eftir nafni yfir það. Efni í höföld
var unnið heima þar sem gamlar venjur voru í heiðri. En aðallega
man ég eftir útlendu garni sem notað var í höföld. Gamlar konur spunnu
hafaldaþráð og var hann nokkuð snúðharður og snöggur. Höföldin voru
hnýtt á sköftin (sem þá voru fest á grind). Hnýtt var bæði ofan og
neðan á hafaldaskaftinu. Mismunandi aðferðir voru við hafaldahnýtingu
en þeim kann ég ekki að lýsa. Miðhluti hafalds nefndist hafalda auga.
Höföld voru geymd á sköftum á þurrum stað. Það band sem varnaði höföldum
að dragast útaf endum skaftanna var af sumum kallað vartág. Það var
þráður milli hnúta ofan á sköftunum. Svo var hann vafinn yfir endann
á skaftinu og bundið fast öðrumegin en öðrumegin varð að hafa endann lausann
til að smeygja skaftini í að ofan. Vefjakambur, Skilsköft:
Vefjakambur var smíðaður úr tré tvær kinnar og tindar á milli. Tindarnir
voru fastir í annari kinninni en lausir í annari. Kamburinn var hafður
jafnbreiður voðinni. Það var kallað að leggja í kamb þegar slöngunni
var dreift í kambinn. Skaftið sem sett var í gangskilið var kallað
rifskaft,(það var með götum) þráðurinn sem festur var við skaftið og dreginn
í fremra gangskilið var kallaður skilþráður. Á endum skaftsins var
skora og vafið þar í. Þessi skilsköft voru 2 fremra og aftara skilskaft.
Skilsköftin voru aftur við bómutréð og færð til eftir því sem með
þurfti.

p6
Að festa upp vef,
og bóma vef: Það var kallað að festa upp vef þegar slangan var undin
upp á slöngurifinn, dregið í höföld og skeið og fest uppistaðan í
framrif. Verkið við að vinda slönguna upp á slöngurifinn var kallað
að bóma. Rifskaftið var sett í gróp á rifnum. Það var sérstakt
áhald sem hélt að jöðrunum og var kallað "kragar". Þeim
var ýtt upp á skaftendana. Tveir menn unnu saman að því að vinda
slönguna á rifinn. Annar þurfti að gæta vel kambsins og halda honum
beint, en hinn hélt á slöngunni og gaf hana vel fyrir svo þurfti að nota
skilsköft til stöðvunar. Skilsköftin voru þunn með grópi á endum
til að binda þau saman. Slangan var ekki látin ganga saman. Skilsköftin
voru svo höfð neðan við "strekkingarslána" og eins og áður er
sagt voru þau færð til eftir því sem vefurinn gekk áfram. Að rétta
í höföld: Verkið var kallað að rétta í höföld og líka kallað að draga
í höföld. Við það unnu æfinlega 2 saman, annar til að rétta og hinn
til að taka á móti þræðinum. Sá sem dró í gegn tók fyrst part af
höföldunum og hélt þeim í greip sinni uns sá partur var búinn og þannig
koll af kolli. Þræðir voru taldir og þráðarendar svo hnýttir í lykkju
þegar komnir voru 50 eða 100 þræðir. Að rétta í skeið, eða að draga
í skeið: Áhaldið sem notað var við að draga í skeið nefndist "gikkur".
Það var úr tré flatt og breitt með krók á enda. Tveir unnu
við að draga í skeið. Skeiðin var höfð flöt og bundin í báða enda
upp í höföldin. En á eftir var hún sett föst í skeiðarskaftið eða
slagborðið eins og það var kallað. "Framhnýtingarskaft"
var það kallað sem uppistaðan var hnýtt fram í eftir að búið var að draga
í skeiðina. Bundið var í skaft með þremur snærum og voru þau kölluð
"krummaklær".

p7
Uppbinding: Þegar
uppistaðan hafði verið bundin við "framhnýtingarskaftið" þrem
snærum sem eins og áður er sagt voru kallaðar "krummaklær" þá
voru sett önnur snæri í skaftið og þau síðan vafin utanum rifinn á sama
hátt og voðin átti að vefjast, svo var hnýtt að, eða stundum dregið gegnum
göt sem voru í rifnum og þar bundinn hnútur svo snúrurnar ekki snérust
á rifnum. Þegar voðin var svo löng orðin að hún náði alveg yfir um
rifinn þá var losað um snærin og þau fjarlægð en "framhnýtingarskaftið"
fest í gróp á rifnum og svo voðin fest með því að strekkja á henni með
handfangi sem var á rifendanum (algengast var að kalla rifinn bómu).
Að draga fyrir: Byrjun á vefnaði var það að stigið var á fótskammelin
eins og vera bar eftir tegund voðarinnar, og fengið fyrsta skil þá var
skyttunni skotið í gegnum skilið og meðan fyrstu umferðir á ívafinu voru
dregnar í gegn var farið mjög gætilega með hvern þráð og aðeins þrýst að
með slagborðinu. Það var kallað "að draga fyrir". Það
var mismunandi langt "gefið upp í". Ívafið var gefið fyrir
í einum stórum boga. Hald var á slagborðinu sem gripið var í og slegið
nokkuð fast strax og eitthvað var búið af voðinni. Spanstokkur var
eins og áður segir meir kölluð "spjálk" hún var stöðugt færð
til eftir því sem voðin lengdist og helst höfð sem næst skilinu. Ef
voð hélt ekki fullri breidd, var sagt að það væri of lítið "gefið
upp í" og "það vefst inn". Ef dregið hafði verið
vitlaust í hafald þá varð skilið ekki hreint og var það kallað "staurar"
væru í skilinu. Hver einstök vinding voðar upp á bómu var kölluð
"færa" eða "áfæra". Verkið var nefnt "að
bóma".

p8
Að fella vef:
Þegar vefnaði á voð var lokið, og hún tekin úr vefstól þá var það kallað
"að fella vefinn". Þráðarendarnir nefndust "neðanafgangar".
Einstöku kölluðu það "krummafætur". Þessir þráðarendar
voru oft notaðir sem þræðing við fatasaum, viðgerð á sokkum o.fl.
Þóf: Vatn var hitað í stærstu tegund af potti sem til var á heimilinu
og þegar það var snarpheitt, þá var voðin látin í þvottabala og vatninu
hellt þar á hana. Voðin var undin þannig að tveir menn oftast karlar höfðu
sitt prikið hvor vöfðu endunum á voðinni um sitt hvort prik og svo var
snúið upp á eftir því sem þurfa þótti til að ná vatninu úr voðinni. Sjálfsagt
var talið að vinda úr voðinn í fjósi svo vatnið rinni í flórinn. Annars
var það úti ef veður var gott, en æfinlega voru höfð borð undir svo voðin
yrði ekki óhrein. Þæfingu önnuðust karlmenn æfinlega það ég vissi
til. Þeir voru staðsettir í baðstofum helst við rúmgafl öðrumegin
og með borð hinumegin, handa þeim að halda höndunum í. Æfinlega var
þæft undir fótum á palli,(þó sá ég menn hafa hurð undir þófi). Þófarar
voru aðeins í nærbuxum og skyrtu og héldu svo vel áfram að þeir voru æfinlega
kófsveittir. Oftast var voðin aðgætt einu sinni eða tvisvar meðan
á þófinu stóð. þá var voðin strekkt til að slétta út allar brigður sem
höfðu myndast í henni.

Þófarar fengu æfinlega
aukakaffi með lummum, eða öðru kaffibrauði. Þegar þæfingu var lokið var
venja að vinda hana upp á þar til gerða fjöl gerðu það 2 menn, annar hafði
fjölina og vatt en hinn sat á móti honum og hélt voðinni beint fyrir. Þegar
búið var að vinda upp á fjölina var tekin önnur fjöl samsorta, og nú var
undið upp á hana af hinni og haldið verulega fast á móti. Það sem
hér hefur sagt verið gilti mest um einskeftu og efni í nærföt.

p9
Útdráttur úr heimilisiðnaðarþáttum
úr "Hlín" 1925-1945.

1925. Vefnaðarnámskeið
voru haldin á Eiðum, í Vopnafirði og í Mjóanesi 1928. Um það hve
hægt sé að vefa margar álnir á dag í hraðskyttuvefstól er ekki hægt að
gefa sígilt svar, því afkastasemi í vefnaði fer eftir ötulleik og atgerfi
þess sem verkið vinnur, en afburða vefarar munu geta ofið eina alin á 10
mínútum. Vefstólar sem notaðir hafa verið frá því er sögur hófust
og til loka 18.aldar eru kljásteina vefstólar, (kallaðuríslenski vefstólinn).
Með Innréttingum Skúla fógeta koma fullkomnari vefstólar (svokallaður
danskur vefstóll). Til Austurlands komu þeir með Jóni vefara, sem
var einn af 4 Ísl. sem Danakonungur bauð utan til verklegs náms um 1800.
(af Jóni er mikill ættbálkur á Austurlandi "vefaraætt").
Steinavefstóllinn var mjög einfalt verkfæri. Uppistaðan (garnið)
lá lóðrétt, í hvern þráð voru bundnir steinar (kljásteinar) til að halda
þráðunum strengdum. Skilið var myndað með skafti sem var smeygt inn
þannig að annarhvor þráður lá fram fyrir það en hinn aftur fyrir. Hitt
skilið var gert um leið og ofið var með því að draga fram með hendinni
þráð fyrir þráð. Seinna voru notuð ófullkomin höföld, fest á skaft
og aðeins þræddir í þau þeir þræðir sem lágu bak við skilskaftið. Gamli
vefstóllinn er enn notaður við myndvefnað með nokkrum breytingum. Nú
er ívafinu ýtt niður í skilið, en áður var ofið neðan frá og upp. Þessi
vefstóll tekur mjög lítið rúm og hefur þann kost að hægt er að sjá uppdráttinn,
(myndina) á bak við uppistöðuþræðina. Íslenski spjaldvefnaðurinn
er gullfallegur, og að því er virðist frumlegastur og fegurstur af bandvefnaði
Norðurlanda.

p10
Nokkur aftriði um
vefnað og vefstól upptekið úr "Hlín": Vefstólar eru fáanlegir
frá Danmörku með sæmilegu verði kr. 200-250 tvíbreiðir, dável sterkir vandaðir
að efni og smíði. (Það mun verða lagt allt kapp á að fá vefstóla
smíðaða hér á landi svo fljótt sem unnt er). Vefjarskeiðar kosta
um 20 kr. Skyttur norskar ágætar kosta 4-5 kr. Spólurokkar
12-15 krónur. Garnvindur hafa verið fáanlegar fyrir 10-12 kr. Vefstóla
og önnur verfjaráhöld útvegar Heimilisiðnaðarfélag Norðurlands. (Úr
4.árg. Hlínar 1920)

Handklæðadregill:
Krossarnir sýna uppbindingu úr skammelum í höföld. Uppistaðan óbleiktur
tvistur nr.16-20 skeið 70-80 á 10 sm. Einn þráður í hafald tveir
í tönn. Það eru vinsamleg tilmæli Hlínar að góðir vefarar sendi
henni lýsingu á inndrætti í höföld, stigi og uppbindingu á skammelum á
vefnaði sínum. Það þarf að fara að safna drögum til íslenskrar vefnaðarbókar.
(úr Hlín 7.árg. 1923)

Vefnaðarnánskeið:
Félagið fékk lánaða vefstóla af ýmsum bæjum því það sá sér ekki fært
að kaupa nýja sem hefði þó verið ákjósanlegt. En nokkuð var keyft
af nýjum áhöldum svo sem vefjarskeiðar o.fl. Margir létu sér fátt
um finnast þegar þeir sáu þessa vefstólagarma. En þegar menn sáu
vefnaðinn á námskeiðinu þá breyttist skoðun þeirra. Það sem þarna
var ofið stóðst fyllilega samanburð við samskonar erlenda muni. (Úr
Hín 8.árg. 1924. )(vefstólarnir voru 7).

Eftir nýár var vorullin
borin inn og farið að vinna hana í vaðmál. Faðir minn var góður vefari
og óf síðari hluta vetrar fyrir sig og sveitunga sína fram á vor oft um
4-500 álnir yfir tímann. Mitt hlutvertk var að rétta þræði balbína
og spóla. Mjög voru þræðir misjafnir og tafði vefnaðinn ef illa var
spunnið. (Úr Hlín 10.árg.)
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóvinna
Efnisorð:
Ull