Tóvinna

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1877)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1252 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1252

p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Það mun hafa verið nokkuð misjafnt hvenær vefnaður
hófst eða byrjaði að hausti, en á stærri heimilum, þar sem mikið var ofið,
byrjaði hann í nóvember eða desember. Þar sem ég gerði lítið annað
en vefa á veturna, frá því ég var 15-22 ára eða var ekki annað verk ætlað,
sem og

p2
var furðu nóg, mun
ég miða við það starf mitt hér í þessum svörum. Hér á Laugarvatni,
var mannmargt heimili á mínum uppvaxtarárum, 20 manns og þar yfir, og allt
unnið heima í öll föt, bæði yst og utast, þurfti mikið að vefa. Þetta
frá 150-300 álnir og helst vera búin að ljúka öllum vefnaði fyrir vertíðarbyrjun,
seint á þorra eða þorralok. Þótti því nauðsyn vara á því að búið
væri að vefa 1-2 voðir fyrir jól. Vefnaður var sóttur af miklu kappi,
engu minni en um slátt, og var erftt verk

p3
ef ofið var af kappi.
Eins og áður er sagt var byrjað að vefa í nóv. og des. Vanalega
var byrjað á því að setja upp "garnvoð". Fyrir þráð var
hvítt eða mislitt útlent vefjargarn 40-50 álna ..... og oftast þá konur
við að spinna veftinn. Oft var búið að vefa 1 voð fyrir jól og stundum
2. Óðara en voðin var laus úr vefstaðnum, var önnur sett upp, þó
ekki á sjálfan jóladaginn eða annan. Ég hafði þetta verk, hér á Laugarvatni,
sem áður er sagt. Í vestaðinn var maður sestur kl. 6 að morgni og
ofið hvíldarlaust til kl. 10 á kvöldin, nema 1/2 klst. hvíld í rökkri og
matartíma.


Til var það að góðir
vefarar ófu víðar en á einum bæ. Verkkaup var frá 15 aurum til 25
aura á alin, eftir því hvað ofið var. Væri það lausamenn eða lausakonur,
mun það oft hafa tekið í kaup, efni í góða flík.

p4
Vefstóll, vefstaður:
Ég þekki ekki nema 2 tegundir af vefstólum, og sá mismunur á þeim
var aðallega fólginn í rifstæðunum. Önnur tegundin var með báða rifina
að neðan á hliðunum, en á öðrum var afturrifurinn að ofan á hliðinni, og
kunni ég betur við það lag, var hægara að færa fram á þaim. Ég þekkti
ekki tvíbreiða vefstaði, og óf ekki á þeim, þótt til væru á stöku stöðum,
og kljásteinavefstaði sá ég aldrei, nema á safni, að mig minnir. Þeir
sem áttu ekki vefstól, fengu þá lánaða eða fengu að vefa á öðrum bæjum.
Ég keypti 1 vefstól þegar ég fór að búa og kostaði kr. 40.00. Hann
smíðaði Halldór Bjarnason, kenndur við Hagavöll í Grímsnesi, sem var ágætur
smiður. Sá vefstaður var sá minnsti, sem ég sá og ákaflega hægur,
enda hvergi einni tommu ofstór né of lítill. Skeið: Skeið
eða ritti, sen hún var alltaf kölluð

p5
Rittin voru yfirleitt
útlend, þó munu sum ritti hafa verið íslensk smíði. Látúnsritti þóttu
betri, því þau ryðguðu ekki og voru liprari. 3 tegundir voru hér
til, 80, 70 og 60 tanna á 1/5 alin. Var 80 tanna ritti notað á garn,
70 á fínan þráð, en 60 á grófan þráð. Vefskytta, skytta:
Skyttur voru misjafnar að gerð og afar misjafnar að gæðum. Yfirleitt
voru þeir smíðaðir úr eik, brenni, og birki. Látúnsfjaðrir voru á þeim
að neðan og fyrir endum. Sumar skyttur voru bognar til beggja enda,
aðrar beinar. Þær þóttu mér betri, en hver vefari kunni best við
sömu skyttu og sama lag á þeim, líkt og sama orfið eða árina. Það
kom mikið undir vana sem allt fleirra. í skyttunni var spóluteinn,
sem spólunni var smeygt upp á. Ég vandist einungis blikk spólum,
þorskroðum, spóluroðum eða spelaspólum, búið til úr spelum. Tréspólur þekkti
ég ekki.

p6
Spólurokkur: Spólurokkar
voru ýmist gamlir spunarokkar eða þá smíðaðir einungis til þess að spóla
á þá, voru þeir ósköp einfaldir. Í spólurokkum var sérstakur spóluteinn
og trissa í afturstuðli, svo og vanalegt rokkhjól og sveig. En þegar
notaðir voru gamlir rokkar var teinn notaður fyrir snældubúning.
Spanstokkur: Hann var vanalega úr góðviði og settur saman
þannig, að annar helmingur hans var klofinn eftir miðju, en hinn helmingurinn
gekk upp í hann og voru gataðir svo að hægt var að lengja þá og stytta
eftir breidd voðarinnar í hvorum enda voru járngaddar til að stinga í jaðrana.
Að leggja upp: Vanalega var allur þráður og enda allt vefjargarn
undið upp á sauðarvölur. Minnir mig að 16 sauðarvölur væru raktar


p7
úr mörkinni, sem
alltaf voru dregnar frá þegar voðarefnið var vigtað. Allur þráður og garn
var vigtaður. Af garni var lagt upp í vaðmálnir úr pundinu, en af
þræði 2-3 álnir úr mörkinni, eftir því hvað þráðurinn var smár. Stundum
2 1/4 alin 2 1/2 .... osfrv. Vanir vefarar og spunakonur voru afar
glögg á þetta, ef of mikið var lagt upp, þá spunnu konurnar í snatri, það
sem á vantaði. Þetta var kallað 2 álna 2 1/2 álna þráður osfrv. Völurnar
voru alltaf kallaðar þráðarvölur, sem húsmóðirin geymdi alltaf sjálf árum
saman og skiftu hundruðum. Að reikna út í skeið: Vefarar
voru alvanir þessum reikningi og feilaði ekki nema erkiklaufum, sem kallað
var, en það var líka hábölvað, ef vantaði kannske 100 bil að næði út í
skeið eða 100 var afgangs. Þá varð að draga allt út. Ef að
þráðarvoð átti að ná út á skeið 1 1/4 alin á 60 tanna ritti, sem 300 tannir


p8
og 3 áttu að vera
í tönn, t.d. á vormeldúk, þurfti að vera raktir 900 þræðir til þess að
þetta passaði. Og þaðan af minna sem færri áttu að vera í tönn eða
voðin mjórri. Sami var útreikningurinn, ef um vefjargarn var að ræða,
ef 80 tanna ritti var brúkað, sem sjálfsagt var, þurfti 12 hundrað þræði
út í skeið, ef 3 voru í tönn osfrv. Það mátti ekki feila að rétt
væri reiknað. Það var strax að vita hvort voðin átti að vera varplítil
eða ekki. Að reikna út í vef: Uppistaða var þráður
eða vefjargarn ívafið var veftur. Én man ekki eftir öðrum nöfnum
á vanalegum voðum, en svo var salún, sem stundum var haft í ábreiður ofl.
Rakningsgrind: Var fjórörmuð með okum ofan og neðan,
tittar stóðu upp úr henni, sem gekk upp í bita á húsinu, sem rakið var
í og ......

p9
sem gekk ofan í stein
niður í gólf. Krísholt voru 2, annað efst annað neðst, sem gerði
skilið á voðina á krísholtinu voru 2 hælar með 6 tommu millibili. Rakningsgrind
var víðast til, þar sem vefstóll var. Balbínur, balbínustóll:
Þetta áhald þekki ég ekki, nema það sé sama áhaldið og þekkti og
var kölluð rakningskista. Hún var með 10 rakningshólf og var lykkja
um látúnsvír í hverjum barmi, í hverju hólfi var eitt hnoða, og þráðurinn
dreginn í lykkjuna. Þetta var kallað að rekja á 10.


Ég notaði aldrei
rakningssoaða, þurfti hans ekki þegar ég hafði reikningskistu. Þau
gerðu sama gang að maður sá strax, ef endi slitnaði og þurfti að bæta.
Rakningsstokkur: Ef rakningskista var til, sem var
hólfuð í eins mörg hvolf og rakið var á mörgum, þurfti ekki ílát fyrir
hnykla, en annars

p10
notaðar skálar, stokkar,
askar ofl. Rakning á rakningsgrind: Rakningsgrindin
var sett upp í stofu eða baðstofu undir bita sem áður er lýst. Við
rakning unnu aðeins vefarinn og unglingur, sem fylgdist með, ef slitnaði
þráður eða bæta var við nýjum knekki. Lengd voðarinnar var mæld með
alinmáli. Einn þráður 20-50 álnir eftir því sem voðin átti að vera
löng. Var hnýtt á þráðinn eða slaufa sett á hann og réði hann svo
því hvað voðin átti að vera löng. Ef rakið var á t.d. 10, var það
feti sem svo var skift um á krísholtinu og gerði skilip. Í hafaldi
var aldrei meira en 1 þráður. Ef þráður var mjög snar, var höfð hrossvala
á fetanum, til að jafna þráðinn. Á henni var gat. Skilið myndaðist
á krísholtinu, þráðaskil. Þráðaskilin mynduðust jafnt á báðum krísholtum.
Ein umferð á

p11
grindinni var feti
skilið kom á krísholtinu, sem var tvíhælað að fetinn var settur fyrst ofan
á annan hældinn og niður á tönn um leið og grindinni var snúið við, sama
var gert á neðri hælnum. Fyrsti fetinn var kallað að setja upp á
grind. Það var alltaf rakið niður undan fyrsta fetanum og sömuleiðis
upp eftir, en aldrei ..... utan yfir annað. Merki var sett á krísholtin
við hvert 100. Fullrakið í voð nefndist slanga. Þegar búið
var að rekja voðina var bundið í skilið á efri hælum og slangan svo rakin
niður grindina í nokkurskonar fléttu, og svo bundið í skilið eins á neðri
hælum krísholtsins. Þegar rakin var tvílit eða þrílit voð, voru litirnir
allir raktir undireins, aðeins sorterðir úr fetanum þegar rétt var í höföld
og skeið. Ég þekki ekki aðra skilhæla en krísholtin, sem alltaf voru
höfð á rakningsgrind. Aldrei vissi ég til að rakið væri

p12
á rúmstólpa annað
en uppistöðu í sökkabönd eða axlabönd. Hafaldagrind, hún
var vanalega höfð jafnbreið og höföldin áttu að vera löng með einum titt
í smiðjunni nátulega sverum sem hnýtt var beggja vegna að og myndaði augað
á hafaldinu. Hafaldaefni og höföld: Efni í höföld var
annaðhvort úr mjög góðu togi eða seglgarni. Í höföldin var rakið
á hafaldagrindinni, þvert yfir neðri enda hennar eða kjálka, sem var það
lengri en braiddin á grindinni, sem því nam, að fór í hnútana. Síðan
var skorið í sundur á öðrum okanum og myndaðist þá hinn rétti þráður, sem
hafaldið var hnýtt úr. Hafaldinu var jafnað saman að lengd og brugðið
um annan aðalhældinn og svo hnýttir 2 hnútar sitt hvoru megin við miðhælinn,
sem mynduðu augað og svo hnýtt á hinn hælinn.

p13
Stálaugu fengust,
sem hnýtt var í frá báðum endum, en þau notaði ég aldrei. Það voru
göt á endum hafaldaskaftanna, sem dregin var seglgarnsþráður og og bundin
í hinn enda skaftsins, og varnaði því að höföldin gætu farið út af.
Vefjarkambur: Voru 2 kjálkar rúm 5 kvartel í neðri kjálkann
voru boruð allt að 80-100 göt, sem smíðaðir tittar voru reknir í, síðan
var efri kjálkinn settur yfir, hann var vanalega aðeins grópaður að endilöngu.
Þeir voru settir saman til endanna. Þegar voð var svo sett í kambinn,
var efri kjálkinn tekinn af og fetarnir svo settir á milli tittanna í neðri
komin, jafnmargir milli hvers titts og svo efri kjálkinn settur yfir, gekk
vo öll voðin milli þessarra tinda, þar til búið var að bóma upp.

Sköftin sem voru
sett í skilið hétu skilsköft og skilþráður.

p14
Að festa upp: Allt
sem getið er um í þessarri grein var kallað að setja til voð.
Að bóma vef: Að bóma upp voð. Í afturrifnum var gróp eftir
honum endilöngum, sem plógskaftið var fellt ofan í. Við báða enda
þess voru kragar, sem féllu á rifin til beggja enda og vörnuðu þess að
voðin færi útaf. Þegar bómað var, hélt vefarinn jafnt um slönguna
þegar búið var að setja endaskaftið í aftur eða rifinn, en annar maður
vatt upp á rifinn. Ekki þurfti fleirri til að bóma upp. Þegar búið
var að vinda voðina alla upp á rifinn, voru skilsköftin sett í skilið og
þá tilbúið til að draga í höföld. Hafaldakamburinn var hafður á voðinni
meðan bómað var upp á rifinn, en nú var til þess að alltaf færi jafnbreitt


p15
upp á rifinn, þá
var hann tekinn af. Þegar dregið var í höföld, hélt vefarinn æfinlega
í greip sinni 20-30 höföldum af hverju skafti, og tók við 1 þræði í einu
af þeim sem rétti, og byrjaði að telja í huganum þannig: aftasta,fremsta,
fremra mið aftara mið og svo áfram, ef í vaðmál var dregið og gekk þetta
svo áfram uns búið var að draga í höföldin. Vönun vefara fipaðist
þetta aldrei, þótt hann væri alltaf að masa um annað. Að draga
í skeið: Vefarinn dró í skeiðina með "skeiðarkrók". Ég
hafði til þess flatan járnkrók, sem hafði sorfið hak á báðum endum, mjórri
til að draga í höföldin, en breiðari til að draga í skeið. Sá sem
rétti tók fetana eftir röð og rétti 2-3 enda í einu sitt á hvað eftir því
hvað margir áttu að vera í tönn. Framan við skeiðina voru settir
hnútar og eins framan við höföld. Að hnýta fram: Það var hnýtt
fram, það var gert á skaft

p16
eða járntein sterkan.
Þetta var kallað að hnýta fram, framhnýtingarskaftið var bundið fast
með snúrum, sem festar voru vel á framrifinn. Ef voðin átti að vera
vel veftug, var gefið í meir, stærri boginn osfrv. Milli hvers þráðar
var slegið vænt högg með slagborðinu. Spannstokk hef
ég lýst áður, hann var jafnlangur og voðin var breið. Ef ekki hélst
full breidd var talið að oflítið væri gefið í. Álnarmál:
Það var alltaf haft í voðinni og fært til þegar alin var komin.
Allir vildu hafa góð skil, og var vont úr því að bæta. Kom
það helst til ef illa var rétt í höföld. Hver færa var svo út af
fyrir sig, vanalega 1/4 alin. Þegar búið var að vefa voð,
var hún klippt frá. Það sem eftir var voru afvikur, annað nafn þekki
ég ekki. Þær notuðu konur til að stagla í með. Þetta hét að fella
voð. Þóf: Þegar átti að þæfa voð, stóð mikið til. Settur
var á hlóð helvita mikill pottur

p17
fullur af hlandi
og vatni -þvæli-, sem voðin var þvæld og þvegin í, síðan var hún sett og
rakin á járnkarl, sem var settur þversum í bæjardyr og rakin tvöföld þar
til hún var jöfn. Þá var sett sterkt skaft í hinn endann, sem svo
þófarinn eða annar karlmaður stjórnaði, og snéri nú upp á í sífellu, þar
til fóru að koma á voðina hnútar, hver á eftir öðrum, þar til allt vatn
var undið úr henni.

Þar með var hún tekin
af járnkarlinum, og farið með hana glóðvolga út í fjósbás og látin á stóra
hurð, sem var höfð til að þæfa á. Síðan fór þófarinn úr öllum fötum
nema mittisskýlu eða nærbuxum og gilti það um hvort það var karl eða kona
. Svo hamaðist þófarinn á voðinni eins og bandvitlaus væri, allt
til þess að voðin var fullþæfð. Svitinn rann af þófara í boðaföllum.
Var svo hrist upp, það gerði annar maður með þófara.
Allir kunnu vísuna Bárður minn á jökli. Þófari fékk ævinlega
kaffi og lummur í fjós, en helviti stóra þófaraköku og stóra kæfusneið
í aukabita að lokum, og var það síst oflaunað fyrir verkið.

p18
Meira nenni ég nú
ekki að skrifa um þetta, þótt ég viti að það sé í alla staði ófullkomið.
Ég hef ekkert af pjötlum að senda. Svo bið ég ykkur
alla að forláta þetta riss. Býst ekki við að þið getið lesið það.
Með vinarkveðju Böðvar Magnússon.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóvinna
Efnisorð:
Ull