Tóvinna

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1874)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 6986 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 6986

p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Um áferð vefnaðar voru notuð 3 orð, eftir því, hve
mikið var gefið upp í og því hvernig dregið var í skeið, jafnþræði, varpað
og varplítið. Jafnþræði var það kallað, er farið var bil beggja.
Varpað var það kallað, er margir þræðir voru dregnir í tönn. Bar
þá meira á þræðinum í voðinni. Varplítið var það kallað, þegar fáir
þræðir voru dregnir í tönn. Voðin tók þá við meira bandi, varð þykkari
og stórgerðari. Einkum voru brekán ofin með þeim hætti. Víindi
hét áferð vefnaðar, uppistaða og ívaf. Prjónn í vefstkyttu kallaðist
ýmist ríll eða prími, undir Eyjafjöllum. Guðfinna Árnadóttir í Efri
Kvíhólma, 20-12-66.

p2
Vefnaður, sokkabandalindi:
Algengt var að vefa sokkabönd í vefstól, röndótt eða einlit. Byrjað
var á því að rekja á hælum í vegg, langsum eftir veggnum. Syðst í
vegginn voru reknir 2 hælar, hvor upp af öðrum, fyrir skilin. Inn
í vegginn var rekinn einn hæll og rakið á hann í einu lagi. Dregið
var í höföld, þó þetta væru ekki nema fáir þræðir, en ekki í skeið. Í
stað hennar og slagborðs var notuð spýta, sérstaklega gerð til þess, tálguð
þunn í aðra brúnina og löguð til endanna. Upp á annan endann var
fyrirvafið undið, hinn var notaður sem handfang. Spýtan var dregin
gegnum skilið og slegið að með henni. Sama aðferð var notuð við vefnað
á gjörðum. Helga Þorbergsdóttir frá Krossi í Landeyjum.

p3
Hælastoðir, skilhælar:
Á stoðum í frambæ voru oft skilhælar til að rekja á uppistöðu í vef.
Rakið var á einni stoð, ef stutt átti að vefa, voru skilhælar þá
fjórir á sömu stoðinni, tveir að ofan og tveir að neðan. Rakið var
milli stoða, ef um langa uppistöðu var að ræða. Til skamms tíma hafa
verið til stoðir með hælagötum. Mýrdalur, Einar Einarsson á skammadalshól
og foreldrar hans 17-04-66.

p4
Rakningsspaði: Sumar
konur notuðu rakningsspaða, er þær röktu í vef. Hann var smíðaður
úr þunnri fjöl, spaðinn sjálfur um 25 cm. á lengd, um 12 á breidd. Handfang
var aftur úr honum um 12 cm. á lengd, um 4 cm. á breidd. Það var
teglt svo það fór vel í hendi. Sneiðingar voru á aftari hornum spaðans.
Með jöðrum spaðans voru kringlótt göt, 4-5 hvoru megin. Rakningskista
og rakningsspaði gengu sama hlutverki, því að þræðirnir lóðguðu ekki saman,
sem kallað var. Heimild um sögnina að lóðga hef ég úr Landeyjum,
mun dregin af no. ló.

Þorbjörg Bjarnadóttir
í Efri-Holtum undir Eyjafjöllum segir eftirfarandi: Ef þráður í uppistöðu
var ekki nógu snar, þá lóðgaði aftan við höföldin. Varð að klippa
lóðhnappana, svo ekki lóðgaði saman. Sama kona segir um rakning með
spaða: Þegar rakið var með spaða, var skilið tekið ofan við spaðann,
upp úr spaðanum, þræðirnir teknir á misvíxl og farið með skilið upp á hælana
á rakningsgrindinni. Þræðirnir komu þá réttir upp á hælana og engin
hætta á snúningum, sem töfðu mjög fyrir við vefnaðinn, þurfti oft að greiða
úr þeim, ef ekki átti að slitna. Betra var að rekja ekki á mörgum,
helst ekki fleirri en 5, sumar konur röktu á 10. Stundum var slithætt,
að ekki stóð spannarlangur spotti, stöðugt var verið að bæta. Rakningsspaðar
voru helst notaðir með fyrrsögðum hætti, er rakið var í garnvoðir. Snúningar
voru allra verstir í þeim. 10-01-62.

p5
Að rekja á hælum:
Rakningsgrindur voru hvergi nærri allsstaðar til. Fóru konur því
ýmist á aðra bæi til að rekja í vefinn eða röktu á hælum. Hælar voru reknir
í veggi, utanbæjar eða inna, tveir skaft- og skilhælar til beggja enda
og nokkrir þar á milli, beinlínis eða í krákustígum, til stöðvunar fyrir
slönguna. Mjög þurfti að vanda verkið, er rakið var á hælum, að jafnstrítt
væri á öllum umferðum, misslaki gerði galla í voðinni.

p6
Að leggja upp: Stikaður
var þráður í hnykli, svo margar álnir, sem voðin átti að vera löng. Í
hvern vef voru þá lagðar upp svo og svo margar álnir. Talað var um
tvítugar og þrítugar voðir að álnatali. Bundið var merki á þráðinn
ull eða bandspotti, er ákveðin voðarlegnd var komin. Við merkið var
neðri hæll á rakningsgrindinni (rakgrindinni) færður til, ef þörf krafði
og rakið til baka, þannig, að merkið var á hælnum. Rakningskonan reiknaði
út hvenær hæfilegt var að hætta að rekja í slönguna með því að telja umferðirnar
og margfalda þær með þráðatölunni. Oftast var rakið á þetta 6-8,
þ.e. af 6-8 þráðarhnyklum. Visst álnatal í voð fékkst úr hverri þráðarmörk,
en fór auðvitað eftir því, hvort þráðurinn var grófur eða smár. Gömlu
konurnar vissu þetta nákvæmlega, höfðu það á tilfinningunni.

p7
Fyrirgernig = inndráttur
í höföld og skeið í vefstól. Guðleif Ísleifsd. frá Teigingalæk notaði
um þetta orðin "að gera fyrir" og "fyrirgerning", í
sambandi við salúnsvefnað. Í Rangárvallasýslu var talað um að draga
inn.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóvinna
Efnisorð:
Ull