Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1891)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1276 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1276

p1
Ull og tóvinna 3.
Um vefnað: Ég sem þetta skrifa hef ekki séð ofið síðan um
aldamót, þá barn að aldri. Á heimili foreldra minn var vefur
aldrei "settur til", einsog það var kallað, fyrr en eftir hátíðar.
Haustannir voru miklar og það tók tíma að vinna í vefjarverkið.
Ekki kunnu allir að vefa, og því síður að setja vef til. Heimilum
var nauðsyn að eiga völ á vefara, ekki síður en að einhver væri bænabókarfær,
því nálega allur klæðnaður var heimaunninn. Á þeim tíma er um ég
get, var maður Jón að nafni, sem vann að vefnaði á vetrum. Hann var
kallaður Jón vefari. Voðir voru galdeyrir í skiftum við verstöðvarnar.
Vefstóll og vefstaður var nokkuð jöfnum höndum sagt. Kljásteinsvefnað
hef ég aðeins séð á Þjóðminjasafninu. Gamalt fólk, sem ég kynntist
í æsku virtist kannast við hann. Um smíði eða smiði get ég ekkert
sagt. En vefstaðurinn á mínu bernskuheimili var tigurlegur. Hann
hafði slöngurifinn uppi og var hnarreistur. Annarsstaðar sá ég rifinn
niðri. Mér fannst þeir kollóttir. Vefstaðir voru hér í öllum eyjum.
Ég sé ekki fram á að ég átti mig neitt á myndunum.

p2
Skeið: Skeiðar
voru 3 til á heimili mínu. Ekki hafði ég vit á að athuga efni þeirra.
Mér er ekki grunlaust um að ein hafi verið úr hvalskíði. Ein
var með látúns tönnum. Hún var þeirra mest, nýjust og kjörgripur
talin. Hún mun hafa verið 80 tanna talin. Það lætur nærri að
hún hafi verið 5 kvartela löng, hinar líklega eitthvað styttri.
Vefskytta: Skyttur munu hafa verið úr einhverskonar harðviði. Þær
voru með 2 látúnsvírs spöngum að neðan, vel innfelldum, sem sífellt glönsuðu.
Allar spólur hér voru úr sauðaleggjum. Afturfótaleggur af gamalli
á eða sauð, var helst notaður. Sagað var af báðum endum leggsins.
Spólurokkar: Uppgjafa spunarokkur var hér notaður til
að spóla á. Hann gekk undir nafninu spólurokkur, sem og var haft
um suma menn. Teinninn var sérstaklega gerður til þessa. Hann
var með einni trissu eða kringlu og einni snúru. Spólunni var rennt
upp á teininn framan frá. Ull eða band var vafið um teininn aftur
við trissuna og enda spólunnar þrýst þar á, svo hún sæti föst meðan spólað
var á hana.

p3
Spanstokkur: Spjálk
var það kallað hér. Ekki er ég fær um að lýsa henni að gagni. Hún
mun hafa verið um 4 cm. á breidd. Jafn breið öll, að mig minnir,
með 2 litla odda á hvorum enda, sem stungið var í jaðar voðarinnar. Um
miðjuna lék hún á hjör með spennu, ekki ólíkt því, sem nú er á járnsög.
Ég treysti mér ekki til að teikna hana, enda skildi hana aldrei.
Að leggja upp, að reikna í skeið, að reikna í vef, get ég
engu svarað. Ég mun ekki hafa verið öllu meira en 9 ára, þegar ég sá vef
síðast. Rakningsgrind: Rakgrind var það kallað hér.
Ég kynntist aðeins einni. Þessi grind var mjög mikil að fyrirferð.
Myndi tæplega notast í láreistum húsum. Hér var og er enn stórt
timburhús. Þar var stór vinnustofa, sem bæði var rakið og ofið í.
Bitar eru þar undir yfirlofti. Þegar rakið var, var sleigið
oka með rauf til hliðar á bitanum. Á gólfinu var 11-12 cm. hár kubbur
með runnu spori. Þar í lék fótur grindarássins, en að ofan lék ásinn
í okanum á bitanum. Hælatré var það kallað hér, sem skilin voru gerð
á. Rakgrind mun víðast hafa verið til. Ég er fátækur
í rakverksmálum. Við börn fengum lítið að vera inni á meðan á athöfninni
stóð. Hún reyndi á heilann, og þoldi ekki truflanir.

p4
Balbínu eða rakningsspaða
kannast ég ekki við. Rakningsstokkur: Hólfaður kassi var hér
fyrir hnyklana. Hann var talsvert djúpur, um 30 cm. Vírlykkja
var á kassabarminum við hvert hólf, þar var þráðurinn látinn leika í. 2-3
hólf voru á þverveginn og 5-6 á langveginn. Þó man ég þetta ekki
glöggt. Hafaldagrind: Í mínu minni var smíðuð grind.
Hvernig það var áður man ég ekki. Grindin var með sívölum ás
í miðjunni á langveginn. Breidd grindarinnar var ætluð fyrir lengd
hafaldanna. Auga hafaldsins, sem þráðurinn skyldi leika í var myndað
um miðásinn og hnýtt að beggja vegna. Önnur endasláin var laus og tekin
burt þegar höföldin voru tekin af grindinni.

p5
Hafaldaefni: Hér
voru höföld búin til úr tvisti (vefjargarni). Sennilega tvinnuðum eða fleirri
þættum. Þráðarhöföldum man ég óglöggt eftir, en kann ekki fleirra
um þau að segja. Ekki kann ég að greina frá hvernig höföld voru fest
á sköftin, en víst er að þau röskuðust ekki úr skorðum. Vefjarkambur
mun vera sama áhaldið og hér var kallað tindastóll. Fetagrind var það líka
kallað. Hann var löng grind með tindum í gegnum þvert. Lengdin
var alltaf breidd voðarinnar eða eitthvað meira. Á milli hverra tveggja
tanna mun hafa verið einn feti. Skilsköftum man ég eftir
og sköftum í báðum rifum. Ekki kann ég þar fleirra frá að segja.
Mér er ekki fært að greina frá hvernig vefur var settur, því það
sá ég aldrei. Börn skyldu sofnuð áður. Þó hafði ég óljóst veður
af að það var mikið tilstand. Þetta gerðist að lokinni rakningu,
sem stóð fram á kvöld. Það var ekki venja á því heimili að tvínóna
við störfin.

p6
Að draga í höföld
var rómantískt starf. Það var gert í vefstólnum. Vefarinn, sem hér
var alltaf karlmaður, þræddi höföldin. Til aðstoðar fékk hann svifétta
nótentátu, eftir því, sem tök voru á. Til handagagns höfðu þau rúnnann
stíl eða síl með rauf í oddinn. Þegar hann hafði lagt hinn rétta
þráð í rauf sílsins, rétti hann aðstoðarkonunni áhaldið um augað á hafaldinu,
sem hélt auganu opnu og tók því sem að var rétt. Lítið var um umgang
annarra um vefjarstofuna meðan á starfinu stóð. Þó vafðist verkið
fyrir allt að 3 dögum. Að draga í skeið: Krókur eða
goggur, var áhaldið kallað, sem dregið var í skeiðina með. Hér var
það tálgað úr höfðuðkambi (lúsakambi). Tálgaður var goggur eða krókur
á annann endann. Þetta áhald var rétt á milli tanna skeiðarinnar.
Þræðirnir voru látnir á krókinn, og dreginn þannig í gegn. Tveir
eða tvö unnu að þessu verki. Vefarinn að sjálfsögðu. Væri sunnudagur
áður en verkinu lauk, var skift um aðstoðarstúlku. Ég man þetta vegna
eftirkastanna. Slagborðið var á sínum stað og skeiðin í því. Kallað
var að gefa í. Það var gert í einum boga. Spjálk hélt voðinni
jafnbreiðri. Hún var færð við hverja hleypu, sem kallað var. Kallað
var að fella vef. Afvikur var þráðurinn, sem af gekk kallaður. Hann
var notaður til að sauma með.

p7
Þóf: Voðin
var þvæld úr keytu, keytublandi í stórum bala. Síðan var voðin borin
út í balanum. Síðan voru báðir endar festir um ás eða tré, sem tók
um þverar dyrnar. Þar studdi ráðsett kona að, og gætti endanna. Efldur
karlmaður með járnkarl að vopni dró lykkjuna út eins langt og hún náði.
Brá vopni sínu í lykkjuna og snéri uppá voðina. Allir, sem
vettlingi gátu valdið röðuðu sér á voðina að strjúka af henni vatnið. Þangað
til snéri víkingurinn vopni sínu, að liðir runnu á voðina. Það voru
kölluð börn, sem honum voru eignuð. Nú var voðin fullundin. Gerð
var stía í vinnustofuhorninu. Þófið og þófarinn sett þar inn. Hann
hálfber og þvæfði með fótunum, þar til yfir lauk. Þófarabita fékk
hann, oft fleirri en einn. Þessa naut hann einkum meðan voðin var
hrist upp. Það önnuðust tvær konur. Það voru háir skellir.
Ég var að mestu búinn að gleyma öllu, sem að vefnaði laut. Við
lestur þessarar skrár rifjast það upp fyrir mér, þó hefur sjálfsagt margt
gleymst.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna