Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1905)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 6302 Safnnúmer B: 1966-1
Staður
Staður: Stóruvellir, Stóru-Vellir, 645-Fosshóli, Þingeyjarsveit, Bárðardalur, Ísland
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 6302

p1
Ull og tóvinna 3.
Ég skrifa mágkonu mína fyrir þessum svörum. Hún var talsvert
æfð í vefnaðarlistum og lögðum svo saman að svara spurningunum, en verðum
þó að biðjast afsökunar hvað þetta hefur dregist lengi að senda þetta.
Dagrún starfar dálítið enn að ullarvinnu og hannyrðum. Spinnur
úr lopa á rokk og prjónar fín sjöl. Þá er víst ekki meira um þetta
að segja.

p2
Ég undirrituð Dagrún
Pálsdóttir, Stóruvöllum, er fædd þar 15. sept. 1905, og var þar alla æfi
til 1982. Finnst mér ég geti ekki annað en svarað að einhverju leyti
sumu af því sem spurt er um, sem er nokkuð margt. En almennt um vefnað,
og man eftir frá barnsaldri að mikið var um tóvinnu á mínu heimili. Þar
var þá til bæði 15 þráða spunavél og vefstóll, þar sem unnið var til fata
flest það sem heimilisfólkið þurfti til sín úr ull. Pabbi minn Páll
Hermann Jónsson, hreppsstjóri, óf á verjum vetri og bróðir hans líka á
fyrstu árum aldarinnar. Það var til dæmis buxnaefni, venjulega röndótt,
uppistaða frekar gróft, og það var þæft talsvert undir fótum. Það
voru til sérstakir menn, sem það gerðu og ferðuðust jafnvel um í þeim tilgangi.
Það var mikið um að vera er þófið stóð yfir. Þetta var með vaðmálsvendum.
Svo var aftur hvítt vaðmál haft í nærföt frekar fínt. Og síðast svo
þráðardúkur fínn, sem ætlaður var í kjóla og gjarna var sent til Noregs
til litunar og pressunar, og var haft í krakkaföt og betri fatnað. Einnig
var keyptur tvistur bæði hvítur og mislitur, og var ofið úr honum og notað
í milliskyrtur og fleirra því líkt. Á mínum yngri árum voru
það aðallega karlmenn sem ófu, en um 1930 fóru húsmæðraskólar að starfa,
svo sem í Þingeyjarsýslu. Ég var á þannig skóla 1929-30. Var
þar kenndur vefnaður. Næsta áratug óf ég á hverjum vetri

p3
meira og minna. Ef
ég á að telja upp það sem ég gerði yrði það nokkur listi. Fyrst má
segja frá kjóladúk úr ull. Það var mórautt og sauðsvart og það leit
út írótt, en ég man ekki hvað vefnaðurinn hét. Þá var og til hjá
kvenfélaginu í minni sveit tvíbreiður vefstóll, sem farið var með á milli
bæja og setti ég upp í hann fleirri gerðir, og voru þá fleirri um að vefa.
T.d. voru gerðir matardúkar úr tvisti og voru notaðir í tugi ára
og jafnvel til enn í dag. Þar voru líka rúmábreiður úr tvisti, einnig
voru dívanteppi með línuppistöðu, en ullar ívafi. Þau voru með krókbragði,
og eitt enn er hét húsgagnavoð, var það með rósabragsídrætti, bæði úr tvisti
og ull. Það kom út smástykkjótt. Þetta var notað til að yfirdekkja
stóla, og eins í stólsetur og er ekki langt síðan að til var aðeins af
því. En það er varðveitt ögn af þessum gamla vefnaði hér heima í
héraði hjá Kvenfélagasambandinu og er þar til sýnis. Læt
ég svo þessu skrifi lokið og bið velvirðingar á því hvað þetta hefur dregist
lengi.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna

Upprunastaður

65°29'48.4"N 17°27'40.8"W