Tóvinna

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1882)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1256 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1256

p1
Ull og tóvinna 3.
Hvenær vefnaður hófst að hausti, var mjög mismunandi. Á sumum
heimilum voru t.d. 2-3 vinnukonur, auk húsmóður, en á öðrum t.d. aðeins
húsmóðirin ein, og þó sumsstaðar með stóran barnahóp. En vanalegast
var farið að byrja að vinna til vefjar, þ.e. að spinna þráð og fyrirvaf,
þegar mestu haustönnum var lokið, svo sem sláturvinnu og þess háttar. Svo
þegar rokkvinna var búin, þ.e. búið að spinna nóg í voðina, var farið að
undirbúa vefnaðinn. En hvenær vefnaði var lokið að vetri,var ekkert
fast ákveðið. Venja var hér að vefja fyrst þær voðir, sem
áttu að notast í föt á menn, em fóru í útver. Ávallt var keppst við
að klára að vefa og fella vef fyrir jólin, ef verið var að vefa á þeim
tíma, og ekki sett til, sem nefnt var því nafni, þegar þráðurinn var látinn
í vefstólinn, og byrjað á öðrum vef að nýju fyrr en eftir nýjár. Hér
önnuðust konur eingöngu

p2
um vefnað. Oftast
voru það vinnukonur, ef þær voru á heimilinu, en húsmóðirin, ef ekki voru
vinnukonur, og vanalegast var það sama vinnukonan sem óf, þó fleirri væru.
Ekki var neitt ákveðið hvort sú sem óf, sæti við vefnað frá fótaferð
til háttumála. Það fór eftir því hvort flýta þurfti vefnaðinum. Um
afköst í vefnaði daglangt, get ég ekki sagt ákveðið. Það var mjög
breytilegt, t.d. hvort ofin var voð úr fínum þræði og fyrirvafi eða grófu
efni, því ef voðin var gróf, vannst lengri voð á sama tíma, en ef voðin
var fíngerð, og svo voru konur mis fljótar að vefa. Börn eða
unglingar voru aldrei látin vefa, en aðeins fullorðið fólk, en unglingar
voru látnir spóla. Hér voru engir, hvorki karlar né konur, sem höfðu
atvinnu af vefnaði, en á sumum heimilum, t.d. mínu heimili, var tekinn
vefnaður heim, aðallega af fátækum barnafjölskyldum, og aldrei tekin borgun
fyrir vinnuna. Hér var enginn vefnaður notaður í vöruskiftaverslun.


p3
Í mínu ungdæmi gekk
vefstóll, í daglegu tali, undir nafninu vefstaður, en þegar fram liðu stundir
breyttist það smámsaman og var ýmist kallaður vefstaður eða vefstóll.
Ekki er mér kunnugt um neinar sagnir um gamla kljásteinavefstaðinn, og
ekki er mér kunnugt um hvenær notkun hans lagðist niður með öllu. Ekki
eru hér neinir hlutir í geymslu viðvíkjandi honum, og hafa ekki verið
hér til. En hér hefur fyrr á öldum, sennilega verið til kljásteinavefstóll,
því laust eftir aldamót síðustu, var ég að grafa í gömlum húsarústum, er
verið var að endurbyggja bæinn hér, og fann ég þá smásteinahrúgu, og voru
allir steinarnir með gati í gegn, og taldi ég að það væru kljásteinar,
en því miður hirti ég ekki um að halda þeim saman og hirða þá og geyma.


p4
Um smíði á vefstólum
hef ég lítið að segja. Ég sá aldrei vefstól smíðaðann, en faðir minn
smíðaði vefstóla, en það var fyrir mitt minni. Um gerð vefstóla hef ég
einnig lítið að segja. Aðeins sá ég 2 gerðir, að því leyti er varðar
slöngurifinn. Á annarri gerðinni var slöngurifurinn staðsettur aftarlega
í sömu hliðarslá og rifurinn að framan, en á hinni gerðinni, var slöngurifurinn
staðsettur uppi aftast í kverkinni á kambinum sem slagborðið lá á að framan.
Tvíbreiðir vefstólar voru hér ekki. Ekki átti nærri öll heimili
vefstól og urðu því að fá að vefa hjá þeim sem vefstóla áttu. Ekkert
veit ég um gangverð á vefstólum í kaupum og sölu. Um myndirnar sem sýna
vefstólana, og fylgja spurningalistanum, er þetta að segja. Vefstóll
B líkist helst vefstól, sem hér var til. Þó var hann dálítið öðruvísi
að sumu leyti, t.d. voru engin hliðarskammel á honum, og svo voru á honum
2 hafaldatré, sem trissurnar sem

p5
hafaldaskaftasnærin
líku í voru festar í og lágu þau, hafaldatrén, þversum yfir vefstólinn.
Hér var vefjarskeiðin kölluð ýmist skeið eða ritti. Bæði
nöfnin voru fólki jafn töm. Ekki veit ég til að vefjarskeiðar hafi
verið smíðaðar hér heima. En í ungdæmi mínu sá ég heimasmíðaða skeið,
sem notuð var við vefnað á hrosshári, sem spunnið var og ofið og notað
í hærusekki. Var hún lík að gerð og aðrar skeiðar, nema mikið grófari
og tennurnar búnar til úr eirvír. Yfirleitt voru vefjarskeiðar hér
af svipaðri lengd og mjög svipaðar að fínleika, en ekki heyrði ég talað
um ákveðinn tannafjölda í ákveðinni lengd, t.d. kvarteli. Ekki heyrði
ég að heiti skeiða væru miðuð við neina talningu á tönnum.
Vefskytta var hér kölluð vefjarskytta eða skytta. Þær voru dálítið
mismunandi að gerð. Efni í þær var harðviður, svo sem eik, maghoni,
tkk, sem á var kallað hér amerisk eik.

p6
Lengdin á þeim var
12-14 tommur og í miðjunni á þeirri lengd var rauf ca. 5 tommu löng, sem
spólan var höfð í þegar ofið var. Á sumum skyttum var raufin með
botni, en á öðrum opin niður úr. Þær skyttur þóttu léttari. Skytturnar
voru hafðar svolítið bognar, þá runnu þær betur meðfram skeiðinni, gegnum
skilið. Neðan á þeim var gengið frá 2 teinum. Voru þeir úr
eirvír, ef til var. Þeir voru hafðir út við kanta skyttunnar, sitt
hvoru megin, svo þær rynnu betur gegnum skilið á þræðinum, og á framhlið
á þeim, þeirri sem að vefaranum snéri, þegar ofið var, var rauf í gegnum
hliðina á skyttunni, og var fyrirvafið þrætt í gegnum þá rauf, og raktist
þannig af spólunni. Í kringum þá rauf, var skyttan klædd með látúnsþynnu,
til að verja sliti. Teinninn, em spólan lék á, var kallaður prími og féll
hann í gróp í endum holsins á skyttunni, og var í öðrum enda holsins á


p7
skyttunni fjöður
sem príminn féll í. Tréspólur voru ekki hér, hvorki renndar né tálgaðar.
Til að spóla á ívafið, sem vanalegast var kallað fyrirvaf. En spólur
til að spóla á voru búnar til úr skinni, t.d. þykku sauðskinni eða úr útnárum
af hross eða nautsskinni. Fiskroð aldrei notað hér til þess. Áhaldið
sem spólað var á við vefnað hét spólurokkur, og var hann smíðaður sérstaklega
til þeirra nota. Hann var þannig gerður, að smíðaður var kassi ca.
12 tommu langur, en frekar mjór, og voru gaflar nokkuð hærri en hliðarfjalir.
Út frá fjarri enda kassans, þegar setið var við hann, gekk botnfjöl
til hægri var fest þversum yfir kassann að neðan, og í hana voru festir
2 uppstandarar (spýtur), og á milli þeirra kom hjól, og lék hjólásinn,
sem var sveifarás, í rauf í efri nenda uppstandaranna, en yfir kassann
eð endilöngu kom járnteinn, og á hann, móti hjólinu, var festur snúður,


p8
og var svo snúra
á hjólinu og á þeim snúð, sem snérist þegar hjólinu var snúið.
Teininum var stungið í holur í fjarri gaflinum, en á framgaflinum var teininum
smellt í rauf ofan á gaflinum, sem lokað var með smá spýtu, sem fest var
á öðrum enda í galffjölina, og mátti snúa til hliðar þegar opnað var, til
að ganga frá spólunum á teininum eða taka þær af, og svo snúið til baka
þegar lokað var. Spanstokkar voru hér með tvennskonar móti.
Annar var þannig, að 2 spýtur voru búnar til, og voru 2 járnpinnar
reknir í annan endann á hvorri spýtu, og var þeim stungið í jaðrana á voðinni,
sem verið var að vefa, en hinir endarnir voru lagðir á víxl, hlið við hlið
og bundnir saman, og að ofan á þeim var smá spýta, sem snérist á nagla,
sem festur var í aðra langspýtuna, og með henni var spanstokknum lokað,
þannig að hann lyftist ekki þar sem spýturnar lágu á

p9
misvíxl ofan á voðinni.
Hin gerðin var þannig að 2 spýtur voru einnig í þeirri gerð,
og járnpinnar í endum eins og á hinni, og notaðir eins, en samtenging á
spýtunum var með öðrum hætti. Hún var þannig, að á annarri spýtunni
var búinn til rauf í ca. helming af lengd spýtunnar og var fellt af hinni
spýtunni í sömu lengd, þar til hún féll nákvæmlega í raufina á hinni, og
í gegnum báðar spýturnar á köntunum voru boruð nokkur göt, sem stóðust
á, og í eitt þeirra gata var stungið járnnagla í gegnum spýturnar með því
mátti lengja eða stytta spanstokkinn eftir þöfrum. Yfir um spanstokkinn
var hafður hólkur, oftast úr látúni, sem mátti færa til, og hélt hann spanstokknum
niðri um miðjuna þegar ofið var, en þegar færa þurfti spanstokkinn til
í voðinni, var hólkurinn færður út fyrir samsetningu spanstokksins og lyftist
hann þá um miðjuna.

p10
Verkið að finna út
hvað mátulegt var að hafa uppistöðu í vef langa, var nefnt að leggja upp.
Það fundu konur út eftir vigt þráðarins, aðallega hnyklanna, þegar
búið var að vinda þráðinn í hnykla. Ekki heyrði ég farið um það neinum
sérstökum orðum. Ekki get ég sagt um það með neinni vissu, hvað var
venjulegt að leggja mikið uppúr einni mörk af þræði í hnyklum. Það
var mjög mismunandi eftir grófleik þráðarins, og möttu konu það hverju
sinni og þær sem vanar voru í því starfi fóru oftast mjög nærri um það,
hvað mátulegt var að leggja upp úr þræðinum í hvert sinn. Að sjálfsögðu
voru sauðarvölurnar sem þráðurinn var undinn á, dregnar frá þyngd hnyklanna.
Það var gert þannig að jafnmargar sauðarvölur og hnyklarnir voru
margir voru teknar og vigtaðar, því nóg var til hjá unglingunum af þesskonar
dóti, og þannig fannst þyngd þráðarins , svo lítið skeikaði.

p11
Ekki man ég að ég
heyrði neitt orð um það að ákveða fjölda uppistöðuþráða í breidd voðar,
er vefa átti. Við það var ekki hafður neinn útreikningur, heldur
mat. Konurnar möttu það í hvert sinn, eftir sverleika þráðarins,
og oftast stóðst það mat vel, og í sambandi við það, var metið hvernig
dregið var í skeiðina, t.d. hvað margir þræðir voru hafðir í tönn, sem
nefnt var. Srundum voru það 2 eða 2 í annarri hvorri tönn á skeiðinni.
Það var talsvert breytilegt, eftir grófleika þráðarins. Ef
voðin reyndist gisnari, en ætlað var í byrjum, var það kallað að voðin
væri varplítil. Ekki þekktist hér, svo mér sé kunnugt, nein sérstök
aðferð eða verk, við að ákveða efnismagn í voð, aðeins mat þess sem verkið
vann, byggt á fenginni reynslu. Þráðurinn í voðina var nefndur uppistaða,
en þéttleiki voðarinnvar var nefnt varp. En bandið, sem notað var
í ívaf í voð, var kallað fyrirvaf.

p12
Efni í voð, þráður
og fyrirvaf var einu nafni nefnt vefjarefni. Áhaldið sem uppistaða
í voð var rakin á, var nefnd rakningsgrind. Ekki sá ég hér nema eina
gerð af þeim. Trén sem skilhælarnir voru festir í voru nefnd hælatré
eða skilhælatré. Rakningsgrind var þannig fest upp hér, við notkun,
að í miðju bæjardyrahúsi var þverbiti og á hlið hans tréklossi með gati,
og var efri endi grindaröxulsins látinn ganga uppí það gat, en undir neðri
enda grindaröxulsins, var látin hraun eða blágrýtishella, sem grindin hvíldi
á, enda var járngaddur í báðum endum á grindaröxlinum. Ekki voru
rakningsgrindur á öllum bæjum, þar sem til voru vefstólar, og var því farið
þangað, sem þær voru til, og vefurinn rakinn þar. Balbínur eða balbínustóll
var ekki notað hér, þegar rakið var í vef, og var ekki til hér, og hef
ég því ekkert um það að segja.

p13
Ekki var hér heldur
notaður rakningsspaði. Hann var ekki til hér, og sá ég hann aldrei.
Ekki voru hér sérstakir kassar með hnyklahólfum notaðir þegar rakið
var á grind, en notuð voru smá ílát af ýmsu tagi, eftir því sem til var,
og hnyklarnir látnir velta í þeim. Eins og áður er sagt, var rakningsgrindin
sett upp í bæjardyrahúsi. Vanalegast vann ein kona að því að rekja
vefinn, og svo unglingar til að hafa gát á að hnyklar hrykkju ekki upp
úr ílátunum. Áður en byrjað var að rekja, var þráður af einum hnykli
mældur með svonefndum kvarða, sem á nútíðarmáli nefndist tommustokkur,
og mælt af þræðinum eins margar álnir eins og vefjarslangan átti að vera
löng. Það var kallað að leggja upp. Þegar búið var að mæla
mátulega lengd, var sett merki í þráðinn, var hnýtt bandspotta eða ullarhári
þar í þráðinn, dökku ef þráðurinn

p14
var ljósleitur, og
öfugt í dökkan þráð. Rakningsspaði var ekki notaður hér,
og ekkert um hann að segja. Ekki voru þráðarvölur notaðar á þráðinn
þegar rakið var. Fyrst voru þráðarendarnir festir um ytri
hæl, þ.e. skilhælinn, og farið með þráðinn yfir hann, en undir innri skilhælinn,
og þannig myndaðist svonefnt þráðaskil. Ein þráðarumferð niður og
upp rakningsgrind var gangur, en ein umferð upp eða niður nefndist feti.
Rakning fyrsta fetans á grindina var ekki nefnd neinu sérstöku nafni.
Aðeins talað um að byrja að rekja. Þegar búið var að rekja
fyrsta fetann niður, og komið var að innri skilhæl, var fetanum brugðið
undir hann, og yfir ytri skilhæl, og svo til baka, undir ytri og yfir innri
skilhæl, og svo farið eins að á efri skilhælnum, eins og byrjað var. Ekki
var vanalegt að setja merki í gangaskilin við ákveðin þráðafjölda. Þetta
framansagða er um rakningu á rakningsspaða.

p15
Um áferð feta á rakningsgrindinni
var vanalegast þannig, að þegar búið ar að fara nokkrar umferðir upp og
niður, var rakið annaðhvort ofan eða neðan við það, sem komið var en síður
ofan á það. Fullrakin uppistaða á grind nefndist slanga eða vefjarslanga.
Áður en hún var tekin af grindinni, var hnýtt spottum í skilin á
hælunum. Þegar slangan var tekin af grindinni, var hún kappmelluð
jafnóðum, og af grindinni var rakið. Það var kallað að kappmella
slönguna. Ekki veit ég um neina sérstaka aðferð, þá rakin var tví
eða fleirlituð uppistaða. Það kom aðallega fram þegar dregið var
í höföld og skeið, að það væri allt í réttri röð. Ekki er mér kunnugt
um neitt almenningsálit varðandi lengd slöngu og voðar, sem átti að vefa
úr henni, og því ekki kunnugt um neitt nafn á því. Hér var aldrei
rakið á vegghæla né rúmstólpa.

p16
Áhaldið sem höföld
voru hnýtt á var kallað hafaldagrind. Ekki var hér neitt áhald til
að rekja á hafaldaefnið, en mig minnir, að það væri rakið í sambandi við
hafaldagrindina, en man það þó ekki, svo ég geti lýst því. Efni í
höföld var unnið heima. Efni í það var tog, og var það dregið. Til
að gera hafaldaþráðinn snöggan og haldgóðan og stífan, var hann soðinn
í tólg. Í höföldin var rakið þannig að búin var til hespa með eins
mörgum umferðum eins og höföldin áttu að vera mörg, og svo skorið útúr
lykkjunni á hespunni á einum stað, og var því ein lykkja eða ein umferð
á hespunni í eitt hafald. Hafaldahnýting var þannig, að efninu í
hafaldið var brugðið aftur fyrir ysta rimil grindarinnar og farið með endana
sitt hvoru megin við grindina, og hafðir jafnlangir, svo var hnýtt framan
við miðrimil grindarinnar og svo endunum brugðið aftur

p17
fyrir þann rimil,
og hnýtt þar að, og var þar þá komið hafalda eða þráðaraugað, svo farið
með endana fram fyrir fremsta rimilinn á grindinni, og hnýtt þar á endana
og þá var hafaldið tilbúið. Höföld voru geymd á þurrum og
hreinlegum stað. Stálhöföld þekktust hér ekki. Bönd til varnar
því að höföld færu útaf hafaldasköftunum þegar ofið var, hét ekki neinu
sérstöku nafni, enda sjaldan notuð hér, því trissusnærin, sem hnýtt voru
um enda hafaldaskaftanna, vörnuðu því að þau færu útaf efri hafaldasköftunum.
Vefjarkambur nefndist ekki öðru nafni. Lengd hans miðaðist við breidd
vefstólsins. Hann var gerður úr 2 langspýtum, em voru að lengd eins
og vefstóllinn var víður. Í neðri slána var út við enda á henni,
felld í hana þverspýta til beggja enda, og gengu þær spýtur upp gegnum
enda á efri slánni og lokaði þannig kambinum.

p18
Í neðri slána voru
festir trétindar, sem vissu upp eða eins og endaspýturnar, og voru þeir
í röð eftir kambinum að endilöngu með stuttu millibili. Neðan í efri
langspýtuna var búin til rauf, eftir henni endilangri, og þegar kambinum
var lokað féllu tindarnir uppí hana. Verkið við að ganga
frá slöngunni í kambinum, var kallað að leggja í kambinn. Það var
þannig, að slöngunni var dreyft um allan kambinn, og séð svo um, að sem
jafnast væri dreyft í kambinn, en ekki mikið meira í einum stað en öðrum.
Skaftið sem sett var í gangaskilið, og tengt við slöngurifinn,
var kallað rifskaft, en þráðurinn, sem festur var í skaftið og dreginn
í fremra gangaskilið, var kallaður skilþráður. Skaftinu var svo smellt
í rauf, sem var í rifnum og bundið fast við rifinn til endanna. Verkið
að setja vefjarefni í vefstól, þar til það var tilbúið til að byrja að
vefa hét að setja til vefinn.

p19
Verkið að vinda slönguna
uppá slöngurifinn var kallað að bóma vefinn. Eins og áður segir var
rifskaftinu smellt í rauf í slöngurifnum og bundið. Stundum voru
notuð sérstök áhöld til að halda að jöðrunum á slöngurifnum þegar bómað
var. Það voru trésnúðar, sem kallaðir voru kragar. Þeim var
smeygt uppá slöngurifinn og á þeim að innanverðu voru festir skinnsneplar,
dálítið langir, og voru þeir látnir liggja inná slöngurifinn, undir þræðinum
þegar byrjað var að bóma, og þannig héldust þeir stöðugir.
Vanalegast voru 3 við að bóma, þ.e. að vefja slönguna á slöngurifinn, einn
sat í sætinu (setfjölinni), og hélt í slönguna og gaf eftir þegar undið
vr uppá rifinn. Annar snéri slöngurifnum, og sá þriðji annaðist um
að þráðurinn lægi sem jafnast á rifnum. Rifsköft voru ekki notuð
með jöfnu millibili til stöðvunar.

p20
Ef ekki voru notaðir
kragar til að halda að jöðrunum, var slangan látin ganga lítið eitt að
sér á rifnum, smátt og smátt, þegar bómað var. Það var ekki nefnt neinu
sérstöku nafni. Þegar búið var að bóma voru skilsköftin látin
í skilin, og ef ekki var strax farið að draga í höföldin, var bundið um
slönguendana. Að draga í höföld var nefnt því nafni. Ekki var
það venja að festa hafaldasköftin meðan dregið var í höföldin. Þó
munu sumir stundum hafa gert það, að tilla þeim aðeins. 2 unnu að
því að draga í höföldin, annar rétti fram þræðina, en hinn smeygði þeim
í gegnum þráðaraugð á höföldunum, og hafði vanalegast höföldin í greipum
á vinstri hendi, þannig að höföldin á hverju skafti, voru í sitt hverri
greip, þegar um fjórskeftu var að ræða, sem oftast var ofin. Þegar
búið var að draga í nokkur höföld t.d. kvartelsbreidd, var hnýttur hnútur
á það,

p21
og þannig gert áfram.
Þar til verkið var búið. Áhaldið sem notað var til
að draga í skeið var kölluð krækja. Vanalegast var það járn eða tréþynna,
og var hafður haki á þeim endanum,sem stungið var gegnum skeiðina, og þráðurinn
var látinn á og dreginn framan úr skeiðinni. Tveir menn unnu að því
að draga í skeið, annar smeygði krækjunni í skeiðina, tönn fyrir tönn,
og dró þráðinn í gegn, en hinn lét þræðina á krækjuna, eftir því hvernig
ídráttur í skeiðina var hafður, þ.e. hvað margir endar voru í hverri tönn.
Skeiðin var höfð í slagborðinu, þegar dregið var í hana. Ef
það vildi til að hlaupið var óviljandi yfir tönn í skeiðinni, og því enginn
þráður í henni, var það nefnt skeiðarglenna. Skaftið sem uppistaðan
var hnýtt á var vanalegast kallað framskaft eða bara skaftið, og verkið
kallað að hnýta fram. Þegar hnýtt var fram var aðal vandinn sá að
sjá um allir þræðirnir væru nákvæmlega janfstrengdir.

p22
Framskaftið var fest
í rauf á voðrifnum eins og á afturrifnum, og bundið fast til endanna. Um
uppbindingu í vefstól get ég ekki sagt, svo öruggt sé, og því sleppi ég
að reyna það. Vefstólssnæri voru hafaldaskafta og trissusnæri, og
svo skammelasnæri, og snæri þegar byrjað var á vef og endað, og voru þau
snæri nefnd einu nafni vefjarsnæri. Þegar byrjað var að vefa, voru
fyrstu umferðirnar með skyttunni um skilið á uppistöðunni kallað að draga
fyrir. Þegar fyrirvafið var gefið í voðina, var aðferðin
hér sú, að þegar búið var að skjóta skyttunni um skilið og fyrirvafsbandið
þannig komið í skilið, fór vefjarkonan með fingurna á annarri hendi gegnum
uppistöðuna, og færði með þeim fyrirvafsþráðinn aftur, þ.e. nær skeiðinni,
sem jafnast hverju sinni, í hverja voð. Var það kallað að gefa í,
og ef mikið var gefið í, var kallað að voðin væri bandborin.

p23
Ívafið var gefið
fyrir í einum stórum boga, þar næst var slagborðinu skellt fram, og færði
það ívafið að voðinni, sem búið var að vefa. Slegin voru eitt eða
tvö högg með slagborðinu, eftir því hvað þétt, þ.e. fast ofin voðin átti
að vera. Spanstokkur var ávallt notaður þegar ofið var, til
þess að voðin héldi upphaflegri breidd, en herptist ekki saman. Var
hann látinn fylgja fast á eftir, jafnóðum og ofið var, og því hélt voðin
ávallt fullri breidd, og var því ekkert sérstakt orð um það að voðin herptist
saman. Mæliband (alinmál) var ávallt notað þegar ofið var.
Til þess var notað fínt band, t.d. seglgarn, ef til var, og var hnútur
hafður á öðrum enda þess. Það var dregið í gegnum uppistöðuna. Þannig
að hnúturinn var hafður að neðan, en svo lá mælibandið ofaná voðinni, þegar
ofið var, þar til búið var að vefa eina alin, þá var bandið dregið niður
úr voðinni og

p24
bandið fest aftur
með sömu aðferð. Helstu misfellur í vefnaði voru þráðaslit. Að
jafnaði var það ekki annað, og var úr því bætt með því að bæta saman þá
þræði sem slitnuðu. Ekki var almennt talið að það boðaði neitt, þó
þræðir slitnuðu venju fremur. Enda bar frekast á því ef venju fremur
var kalt, þar sem ofið var, og þá allt stirðara. Þó munu einstaka
konur hafa sett það í samband við gestakomu. Einstök vinding
voðar á voðrif eða framrif, sem sumir nefndu, var kölluð áfæra. Var
það nefnt að færa á. Þegar búið var að vefa voðina, og hún var tekin
úr vefstólnum, var það kallað að fella vefinn. Þá var saumað fyrir
enda voðarinnar, svo hún raknaði ekki upp. Þráðarendar sem af gengu
þegar vefur var felldur, voru kallaðir afvikur. Það var notað sem
saumgarn til að bæta utnanyfirföt, sem voru höfð í draslvinnu og í ýmiskonar
óvandað saum.

p25
Þá kemur næst að
segja frá þófinu á voðunum. Um það atriði ætti mér að vera nokkuð
kunnugt, því margar voðir þæfði ég á fyrri árum. Þvottalögurinn var hitaður
að suðumarki, og svo var honum helt í þvottabala, ef til var, annars í
nokkuð stórt ílát og voðin látin ofaní löginn, og þvæld vandlega. Svo
þegar nóg þótti þvælt, var voðin tekin upp úr ílátinu, og undið það mesta
af leginum úr henni. Hér var sett þverslá í bæjardyr, helst sívöl
spýta, og voðinni brugðið margfaldri um þá slá, og úti fyrir dyrum var
sá, sem vinda átti voðina, og hafði sívala spýtu, dálítið langa, og um
hana var voðinni brugðið, líka margfaldri, og séð var um að jaðrar voðarinnar
væur innan í. Því annars var hætta á að þeir rifnuðu. Svo var
snúið á voðina með lausu spýtunni, og kom því snúðurinn á voðina á milli
þessara spýtna, þeirrar sem fest var í dyrunum og þeirrar, sem snúið var
með, og kom því

p26
snúðurinn jafnt á
alla voðina, og var snúið á voðina þar til lögurinn hætti að leka úr henni,
og þá var hún tilbúin undir þófið. Hér önnuðust heimamenn um þæfingu,
og unnu karlmenn alltaf það verk. Voðir voru alltaf þæfðar í baðstofu.
Hér var alltaf notuð ein, sama aðferðin við að þæfa vaðmál, sú, að
þæft var undir fótunum á hurð. Um sérstakan klæðnað var ekki að ræða
við það verk. Yfirleitt voru menn léttklæddir og þæfðu með berum fótum,
því nógur var hitinn, því best þótti að þæft væri af kappi, því þá hélst
voðin frekar volg, og þófnaði þá betur. Þófið var innifalið í því,
að þófarinn væri alltaf á hreyfingu á voðinni, og þrýsti fast á hana með
fótunum, og velti henni til um leið og hún var hreyfð. Þá þófnaði
hún jafnast. Alltaf var, við og við, verið að athuga og hrista voðina
þegar á leið þófið. Það gerðu 2 menn. Þeir héldu

p27
nokkrum kafla voðarinnar
á milli sín, og hristu þeir hana með sérstökum hnykkjum, sem ekki er hægt
að lýsa. Það var kallað að hrista voðina upp. Um það
hvenær voðin var álitin fullþæfð, kom til greina mat þeirra, sem vanir
voru við starfið, og svo annað sem athuga þurfti. Það var þannig
að stundum komu fram í voðinni kaflar, sem þófnuðu meira á einum stað en
öðrum, og þá mynduðust smá pokar sitt hvoru megin við þann blett, sem meira
þófnaði, og ef dálítið fór að bera á þeim, varð að hætta að þæfa voðina,
því þeir stækkuðu því meira, sem voðin var meira þæfð. Þetta var
kallað að voðin væri farin að bryggða. Var talið að það orsakaðist
af misgrófu fyrirvafi, og líka gat það stafað af misgóðri ull, sem fyrirvafið
var spunnið úr. Algengt var að húsmæður létu þófaranum í té, einhver
aukaglaðning meðan á verkinu stóð, því þetta var mjög erfitt verk, ef það
var unnið af kappi, t.d. aukabita eða aukakaffi, ef kaffi var til,

p28
sem vildi oft verða
skortur á, sérstaklega þegar úthallaði vetri.

Þófaraþulur heyrði
ég ekki nema þessa: Bárður minn á jökli - leggstu nú á þófið mitt
- ég skal gefa þér lóna - innan í skóna - naglabrot í skipið þitt - ef
þú leggst á þófið mitt. Ekki er mér kunnugt um launagreiðslur
fyrir þæfingu á voð. Þegar búið var að þæfa voðina, var hún undin
upp á fjöl, t.d. rúmfjöl. Það gerðu 2 menn. Annar hélt fjölinni
og vatt upp á hana og athugaði að engar hrukkur væru á voðinni á fjölinni,
en hinn hélt á móti og toguðust þeir þannig á, svo voðin væri sem best
strengd á fjölinni. Svo var fjölin með voðinni, sett undir farg,
sem nefnt var. Það er, að ofaná voðina var látin fjöl, og eitthvað
þungt ofan á hana. Þannig var hún pressuð. Voðir voru ekki
sendar í verksmiðjur til litunar né lóskurðar, hvorki innanlands né utanlands.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóvinna
Efnisorð:
Ull