Tóvinna

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1923)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 6276 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 6276

p1
Ull og tóvinna 3.
Ég þakka fyrir vinsamlegt bréf frá 14. febrúar. Gott ef eitthvað
nýtilegt finnst í þeim molum, sem maður er að reyna að sópa saman.
Því miður kom þetta síðasta verkefni að tómum kofunum hjá mér, eða
svo má heita. Þetta er orðið það fjarlægt. Foreldrar mínir
áttu ekki vefstól. Við vorum á leigujörð, Hægindi í Reykholtsdal,
1926-36. Eigandi jarðarinnar, Helgi Þorbergsson, f. 22-11-1859, d.
7-10-1947, átti heima þar. Hann átti vefstól, og óf fyrir heimilið
fyrstu árin. Hel, að ég hafi verið 8 ára, þegar hann síðast
"setti til vef" heima. Hann gat þá notað mig til að rétta í höföld,
og eitthvað spólaði ég líka. Ég man þetta óljóst, enda meir en hálf öld
síðan, en spólurokkurinn var apparat með titti sem spólunni var smeygt
uppá, og handsnúið. En ég veit líka að gömlum rokkum var breytt í
spólurokka. Vefstóll var aðalnafnið, en ég heyrði þó nefndan vefstað.
Ég hef aðeins heyrt um kljásteinavefnað. Laufey Hannesd.,
man að móðir hennar Ólöf Sveinsd. í Brekkukoti, ættuð úr Fljótshlíð hafi
heyrt í æsku, að gott hefði þótt, eða góð afköst, að vefa alin á dag í
kljásteinavefstól.

p2
Ég man nöfnin skeið
og ritti. Efni kopar og járn. Bestar voru harðviðarskyttur.
Sumar voru látúnsklæddar að neðan. Spólusteinninn kallaður
prími, en Laufey Hannesd., sem ég hef meiri hluta af þessum svörum frá,
segir að faðir sinn hafi slegið til spólur úr járni.

Laufey rissaði upp
mynd af spanstokk, sem fylgir þessu. Orð notuð um uppistöðu voru
ívaf og uppistaða. Rakningsgrind hef ég áreiðanlega heyrt,
en Laufey segir rakgrind. Hún nefnir ás, grind og grísholt. Grísholt
efst og neðst, sem rakið var uppá af rakgrindinni. Uppistaðan var
nefnd slanga. Við Laufey munum bara aðkeypt hafaldagarn. Ég
man eftir brúnni, nokkuð stórri hnotu. Höföld voru geymd í kommóðuskúffu,
og reynt að verja þau fyrir slaga. Þráðurinn í fremra gangskilinu
- skilþráður. Tveir unnu saman við að draga í höföld. Annar
rétti fram þræðina.

p3
Þráðarendar frá voð
voru kallaðar afvikur, og var notað sem þræðigarn (að þræða sauma), en
mig rámar í að hafa heyrt krummabuxur líka. Faðir minn þæfði í baðstofuhorni,
og var hlaðið í kringum hann. Þar þæfði hann undir fótum, léttklæddur
og kófsveittur. Ég man þegar móðir mín og amma voru að hrista það
upp. Þær létu smella hátt. Það var talað um þófarabita, en
ekki man ég hvað pabbi fékk, en hann þurfti mikið að drekka. Það
sem ég kann úr vísu: Bárður minn á jökli - leggstu nú á þófið mitt.
Lengra nær ekki minn lærdómur í því. Voðin var undin
upp á fjöl, og sett undir farg, til pressunar.

Ég sendi nokkur vefnaðarsýnishorn
fyrir ári síðan, flest frá Brekkukoti í Reykholtsdal. Hef fengið
lofun fyrir bót á einum bæ, og þarf að kanna á öðrum bæ, en hef ekki tök
á því núna. Þetta er aumt, en ég get ekki betur. Ég
veit ekki hvort ég á að endursenda verkefnablöðin, ef svo er, þá látið
mig vita. Ég held að ég sendi þetta síðasta, svo eitthvað verði í
umslaginu.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóvinna
Efnisorð:
Ull