Tóvinna

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1895)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1283 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1283

p1
Ull og tóvinna 3.
Hér um Þingeyjarsýslur mun það hafa verið siður að setja upp fyrstu
vefi upp úr áramótum. Oftast mun hafa verið byrjað á nærfatavaðmáli
eða rekkjuvoðaefni, venjulega sinn vefurinn f hverju. Síðar var svo
ofið vaðmál í buxur og önnur ytri föt karlmanna. Eftir að kom fram
um síðustu aldamót var farið að vefa dúka úr erlendu efni, tvisti. Tvistdúkarnir
voru allbreytilegir að lit og gerð. Sumir vefarar ófu sexskeftu og
áttskeftu í milliskyrtur og kjóla. Mun ég koma að því er ég rita
svör við næstu spurningaskrá. Ef ofið var í kjóla eða annað mjög
fínt vaðmál, var það sjaldan ofið fyrr en á úthallandi vetri. Lágu
til þess margar orsakir. Það tók langan tíma að undirbúa ullina í
hina fínu dúka og ekkert áhlaupaverk að spinna 3-4 lóða þráð og ívaf. Svo
var eitt mjög afgerandi atriði í þessu máli. Birtan í gömlu baðstofunum
var lítil, og var því gott að bíða

p2
með að vefa fínu
dúkana þar til að hægt var að nota vorbirtuna. Á þeim bæjum
sem vefstóll var til á, var alltaf einhver maður, sem kunni að vefa í það
minnsta algengan vefnað. Oft var það húsbóndinn sem óf. Svo voru
oft á heimilunum fleirri sem gátu ofið, t.d. unglingar sem voru að læra
vefnað eða eldri menn, sem ekki höfðu þol til að sitja við vefnað að staðaldri.
Margir vefarar voru mjög kappsfullir og þaulsætnir við vefnaðinn,
og sátu í vefstólnum frá fyrstu fótaferð til síðasta háttatíma. Þá
voru aðrir sem höfðu vefnaðinn sem ígripavinnu með fjárhirðingu eða öðrum
störfum. Afköst manna við vefnað voru mjög mismunandi og
kom þar margt til greina, svo sem verklægni áhugi og síðast en ekki síst,
hvernig vefjarþráðurinn hélt, en það var til mikillar tafar að þurfa að
bæta mikið. Unglingar fóru að grípa í vefnað 13-14 ára gamlir, en
ekki mun það hafa verið siður að

p3
láta unglinga sitja
við vefnað fyrr en þeir voru 18 ára eða eldri. Lítið var
það að konur ættu við vefnað, þó voru til konur hér í Þingeyjars., sem
kunnu að vefa. Í flestum sveitum var alltaf eitthvað af mönnum, sem
höfðu nokkra atvinnu af vefnaði. Flestir atvinnuvefarar, sem ég þekkti
tóku vefnaðinn heim til sín, og var þeim á greitt vísst gjald á hverja
alin, sem þeir ófu. Gjaldið var all breytilegt eftir því hvort vefnaðurinn
ar fínn eða grófur. Gamall vefari, sem ég hef átt tal við um þetta
efni, sagði mér að hann hefði sett minnst 10 aura á alinina, en mest 20
aura á alin. Venjulegast gald hefði verið 12-15 aurar á alin hverja.
Ekki get ég sagt um það með fullri vissu hvort greitt var
fyrir vefnað í vöru, en mér þykir það mjög líklegt, að svo hafi verið.
Peningar voru sjaldséðir í viðskiftum manna á milli hér áður fyrr.
Ég vissi til þess að fólk borgaði

p4
vefnað með vinnu,
t.d. við voryrkjur og heyskap. Eftir því sem ég best veit
er orðið vefstaður nær óþekkt í mæltu máli hér í Þingeyjarsýslum, og mun
orðið vefstóll eingöngu notað hér um sveitir. Ekki eru til
hér í sveitum sagnir eða minjar um gamla íslenska kljásteinavefstólinn.
Eitt örnefni þekki ég, sem mun benda til kljásteinavefstólsins, er
það Kljáströnd í landi Höfða í Höfðahverfi. Þar er nú samnefnt býli,
sem byggt var fyrir um 70 árum. Ekki get ég sagt neitt verulega
um vefstólasmíði. Það, sem ég heyrði menn eggja mesta áherslu á,
í sambandi við vefstólasmíði, var það að velja nógu góðan trjávið í vefstólana.
Ekki áttu öll heimili vefstóla og mun það oftast hafa verið
ráð þessa fólks, sem ekki gat verið sjálfu sér nóg í þessum efnum, að koma
vefnaðinum niður hjá þeim, sem gerðu sér það að atvinnu að vefa. Það
þekktist hér í Þingeyjarsýslum að tvær eða

p5
fleirri konur lögðu
saman í einn vef og skiftu svo voðinni eftir því sem þær höfðu lagt til
af efni í vefinn. Oftast 1 alin af voð fyrir hverja þráðarhespu,
sem í vefinn var lögð. Ég hef séð allar þær gerðir af vefstólum,
sem sýndar eru á teikningum þeim er skránni fylgja. Algengasta gerðin
var sú gerð, sem merkt er A. Ég sá vefstóla af þessarri gerð, þar sem slöngurif
var komið fyrir undir slá þeirri, sem rifurinn hvílir á eftir teikningu
A. Var þá komið fyrir tréstykkjum í horninu milli afturuppstandara
og sláar 10, og rifurinn látinn koma í gegnum göt, sem voru á stykkjunum.
Hver maður, sem átti vefstól, átti einnig meira eða minna
af vefjarskeiðum. Oftast munu vefjarskeiðarnar hafa verið útlendar
að uppruna. Ég sá þó í æsku minni eina vefjarskeið, sem ég er ekki
viss um hvort var útlend eða íslensk smíði. Vefjarskeið þessi var
mjög gróf, að mig minnir 60 tanna skeið, og voru tennurnar úr látúni.


p6
Allar þær vefjarskeiðar,
em ég hef séð hafa verið af sömu lengd, þ.e. 5 kvartel. Heiti skeiða var
miðað við það hvað margar tennur voru á hverju kvarteli, t.d. 120 tanna
skeið osfrv. Grófustu vefjarskeiðar, sem ég hefi séð voru 60 tanna
skeiðar. Þær voru notaðar á rúmábreiður og ytrifataefni, ef uppistaðan
var tvinnaður þráður. Fínar vefjarskeiðar, sem höfðu 110-120-130
tennur á kvarteli, voru notaðar á fínustu dúka, sem ætlaðir voru í kjóla
og svuntur. Öllum vefstólum fylgdu skyttur, ein eða fleirri.
Ef ofið var köflótt þurfti að hafa skyttu fyrir hvern lit. Skyttur
þær sem ég hef séð voru margar íslenskt smíði, og að því er ég hygg all
misjafnar að gæðum. Oftast var notað beyki í skyttur, jafnt í hraðskyttur
sem handskyttur. Margir lögðu á það mikla áherslu að skyttur væru sem allra
léttastar og nettar. Það þótti alltaf nokkur vandi að smíða skyttur
og voru það því fáir, sem smíðuðu þær. Þegar ég var að alast upp
í Höfðahverfinu, var þar einn maður, sem smíðaði

p7
skyttur. Það
var Steingrímur Þorsteinsson í Höfða. Ég sá nokkrar skyttur, sem
Jóhann Kristjánsson frá Végeirsstöðum í Fnjóskadal, hafði smíðað. Þær
voru mjög eftirsóttar, einkum hraðskytturnar. Til þess að skyttur
rinnu betur í skili, voru hafðir neðan á handskyttunum nokkurskonar meiðar.
Voru þeir úr málmi, oftast stáli. Neðan á hraðskyttunum voru
tvö hjól, nálægt endum og rann skyttan á hjólum þessum eftir skilinu. Það
þótti mikils um vert að hjól þessi væru vel gerð, og nákvæmlega rétt sett
í. Ef svo ólánlega vildi til að kast var á hjólunum, varð skyttan
rangskreið í skilinu, og gat slitið uppistöðuþræðina. Hraðskyttur
voru með enda úr járni. Voru endarnir oddhvassir. Spólurokkar
fylgdu öllum vefstólum. Voru það oft gamlir spunarokkar, og var þá
settur í þá sérstakur (spólurokkur) spóluteinn í stað snælduumbúnings.
Áhald það sem notað var til að halda út jöðrum á voð, nefndist hér
um sveitir spjálk. Orðið spanstokkur

p8
mun ekki þekkjast
hér um sveitir. Þar sem ég þekkti til var oftast lagt upp
ein alin úr hespu, sem var tólf knekk, og varð þá tólf hundruð á voðinni,
og var það nefnt mikið varp. Væri varpað minna, t.d. ekki hfat nema
ellefu hundruð á voðinni, var lagt lengra upp úr hespunni eða um ein alin
og tveir þumlungar. Minna varp mun ekki hafa verið haft, nema þá
á grófa buxnadúka, sem voru ofnir í rófum skeiðum, og á hafðir 2 og 3 þræðir
í tönn. Venjulega var það ákveðið áður en vefur var rakinn, hvað
mikið skyldi varpað og í hvernig skeið vefurinn skyldi vefast. Ég
hef ekki séð rakið úr hnyklum, og mun það hafa lagst af hér í Þingeyjarsýslum
nokkru fyrir aldamótin síðustu. Ég hef átt tal um vefnað við mann, sem
er fæddur 1878 og heitir Halldór Kristjánsson. Halldór þessi var
góður vefari og óf mikið. Hann sá aldrei rakið úr hnyklum, en hann
sá hnyklakistu með 12 hólfum og jafnmörgum götum á framhlið.

p9
Halldór sá einnigrakningsspaða,
sem á voru 18 göt, og var því hægt að rekja með honum af 18 hnyklum.
Þegar reiknað var út í vef, voru röndóttar og köflóttar voðir mynstraðar.
Var það oftast gjört þannig, að teknir voru þræðir af öllum litum,
sem í vefnum áttu að vera og vafðir upp á fjöl eða pappaspjald. Voru hafðir
saman jafnmargir þræðir og saman áttu að vera í vefnum, t.d. 2 hvítir,
4 gráir, 8 svartir osfrv. Þegar margir litir og litaafbrigði voru
í sömu voð og litum raðað þannig að fyrst var hvítt síðan 3-4 misdökkir
litir og síðast svart, var þetta nefnt "sjattering". Orðið
vafalítið útlent eða af erlendum toga spunnið, en þekki ekki annað orð
yfir þetta. Áhald það, sem uppistaða í voð var rakin á nefndist
rakgrind. Voru þær nokkuð misstórar. Þær rakgrindur, sem ég
sá höfðu þá stærð að hægt var að rekja á þær 50-80 álnir. Tréð sem
skilhælarnir voru festir í nefnist krísholt.

p10
Þó nefndu sumir tré
þetta skammholt. Það orð mun eitthvað vera notað í austur sveitum
S-Þing. Sólveig Indriðadóttir að Syðri-Brekkum á Langanesi, sagði
mér að hún hefði heyrt orðið skammholt notað í Aðaldal. Rakgrindur
voru til á flestum heimilum, sem áttu vefstól. Allir sem áttu vefstól,
áttu meira eða minna af balbínusnældum. Oftast fylgdu hverjum vefstól
12 balbínusnældur. Þær voru um 30 cm. langar og voru snældusnúðarnir
stórir. Var hægt að hafa á hverri snældu 5 hespur eða meira. Balbínusnældur
voru renndar, efnið var oftast eik eða annar harðviður. Þar,
sem ég þekkti til, voru spólurokkarnir notaðir til að spóla þráðinn á balbínusnældurnar,
en þá voru notaðir sérstakir teinar í þá, balbínuteinar. Verkið nefndist
að balbína. Rakningsspaða hef ég aldrei séð, en áður nefndur Halldór
Kristjánsson, sá rakningsspaða í sínu ungdæmi

p11
um 1890. Halldór
sagði að rakningsspaði hafði verið notaður, ef rakið var af mörgum snældum
eða hnyklum, þ.e. 15 þræðir eða fleirri. Spaði þessi var um 25 cm. á lengd,
en 10-12 cm. á breidd í breiðari endann, en hinn endinn var mikið mjórri,
og var haldið um þann enda. Götin voru í röðum 6-8 í röð. Raðir venjulega
3. Efnið í spöðunum var eik eða einhver harðviður. Oftast voru
rakgrindur settar upp í baðstofu, þó sá ég uppsettar rakgrindur í framhýsum.
Áður en byrjað var að rekja í vefinn, voru mældar af einum uppistöðuþræðinum
eins margar álnir og vefurinn átti að vera langur, og þar sett í merki.
Ekki þekki ég það að 2 þræðir væru hafðir í sama hafaldi, og ekki
þekkir áðurnefndur Halldór það. Ekki get ég lýst því, hvernig
fyrsta skilið var tekið á þræðina eða hvernig gengið var frá skilum á krísholtum.
Ein umferð upp og niður grindina nefndist feti. Að rekja fyrsta
fetann nefndist

p12
að leggja á grind.
Halldór sagði mér, að sér hefði reynst best að rekja bæði ofan og
neðan við það sem komið var á grindina. Þá taldi hann að slangan
hefði orðið greiðari. Ekki mátti rekja ofan á það sem komið var á
grind. Ég sá menn nota fetaband, þegar þeir röktu vef
í. Notuðu þeir sama fetabandið í alla slönguna, en brugðu að við
vissan þráðafjölda, t.d. 100 þræði. Fullrakin uppistaða á grind nefndist
slanga. Sett voru bönd í skilin áður en slangan var tekin af grindinni.
Bönd þessi nefndust skilbönd. Almennt var talið að voð yrði
lítilsháttar styttri en slangan sem upp var lögð, en ekki var talið að
þar munaði miklu. Ekki þekki ég til þess að voðir væru raktar
á veggjahæla, en ég sá gjarðaefni rakið á veggjahæla og rúmstólpa.
Þegar ég man fyrst eftir um 1903, voru erlend höföld að ryja sér
til rúms. Höföld þessi voru úr olíubornu hörgarni, og voru með stálaugum.
Ég sá hafaldagrindur, en sá þær ekki notaðar.

p13
Halldór Kristjánsson
sagði mér, að hann hefði hnýtt höföld úr togþræði, og þá notað hafaldagrind.
Hafaldaefnið sagði Halldór að hefði á stundum verið rakið á veggjahæla,
en líka undið á fjöl eða pappaspjald, er var mátulega breitt til að fá
nægilega langann þráð í hafaldið.

Meðan höföld voru
unnin heima, var efni þeirra oftast togþráður. MJög var vandð til
þráðarins. Var talið að það væri ekki á allra færi að spinna góðan
hafaldaþráð. Ég hef heyrt um konur sem unnu sérstaklega góðann hafaldaþráð
og vönduðu efni í þráðinn, sem ætíð var vel dregið tog. Miðhluti hafalds
nefndist auga eða hafaldsauga. Höföld voru geymd á vel þurrum stað,
t.d. á lofti í framhýsum. Ekki veit ég með vissu, hvenær var farið
að nota erlend höföld með stálaugum. Eftir því sem ég hef komist
næst hefur það ekki verið fyrr en nokkru eftir 1890. Móðurbróðir
minn Jón Halldórsson, bóndi í Kotgerði í Höfðahverfi, sagðist

p14
hafa keypt höföld
með stálaugum í Húsavík rétt fyrir síðustu aldamót. Þá var ekki hægt
að fá slík höföld á Akureyri. Ég sá íslensk höföld notuð á Langanesi
eftir 1940. Vefjarkambar voru úr tré, oft úr eik. Vefjarkambarnir
voru þannig smíðaðir að önnur hliðin þ.e. sú, sem upp vissi og var laus
og hægt að taka hana af. Endar þessarar hliðar voru með götum og
gengu endar gaflanna upp í gegnum götin. Á endum gaflanna voru lítil
göt, og voru trénaglar reknir í götin, og var þá lausa hliðin vel föst
meðan slangan var undin upp. Verkið við að dreyfa slöngunni
í vefjarkambinn nefndist hér í Þingeyjarsýslum að leggja í kamb, annað
hef ég ekki heyrt. Þráðurinn, sem festur var við skaftið
og dreginn í fremra gangnaskilið, var nefndur skilþráður. Að vinda
slöngu á slöngurif, draga í höföld og skeið nefndist hér um sveitir, "að
setja til", þó hef hég heyrt "að festa upp", en það er sjaldgæft.


p15
Að vinda slönguna
á slöngurifinn nefndist að bóma eða að vinda upp. Eftir slöngurifnum endilöngum
var kílfar, nægilega djúpt til þess að rifskaftið gat fallið ofan í það.
Á slöngurifnum voru kragar úr tré sinn á hvorum enda. Í kragana
voru festar skinnræmur, sem gengu inn á slöngurifinn, og inn yfir endana
á rifskaftinu. Strax og fyrsti vafningurinn kom á slöngurifinn varð
því rifskaftið vel fast. Áður nefndir kragar vörnuðu því að jaðrar
slöngunnar gengu út, þegar bómað var. Venjulega unnu 3 menn að því
að bóma vef. Einn vatt slönguna á slöngurifinn, annar hélt í slönguna,
en sá þríðji gætti þess að slangan færi jafnt á rifinn. Ekki hef
ég séð það að slangan væri látin ganga að sér á slöngurifnum þegar bómað
var. Þar, sem ég þekkti til, var lögð á það mikil áhersla að slangan
væri sem jöfnust á slöngurifnum. Þegar búið var að bóma slönguna
voru skilsköftin bundin við slá 17 á teikningu A aftan á vefstólnum.


p16
Slöngunni var skift
í 10-15 flokka, og þegar dregið var í höföldin, tók sá sem rétti þræðina
einn flokk í vinstri hönd sína, skar fram úr flokknum, og rétti síðan einn
og einn þráð fram í einu. Þegar hver flokkur var búinn, var lauslega
hnýtt að við höföldin, svo þræðirnir drægjust ekki úr höföldunum. Tveir
menn unnu að því að draga í höföld og skeið. Ég hef heyrt
orðin skeiðarkrókur og skeiðarkrækja, en orðið gikkur, hef ég ekki heyrt
hér um sveitir. Skeiðarkrókurinn var alltaf úr málmi, oft úr þunnu
blikki, og var djúp skora í öðrum enda hans, þar var þráðurinn lagður meðan
hann var dreginn í skeiðina. Oftast var skeiðinni komið þannig fyrir
meðan dregið var í hana, að hafaldasköftin voru bundin saman og skeiðin
látin hvíla á hafaldasköftunum meðan dregið var í hana. Skaftið, em uppistaðan
var hnýtt fram á, nefndist hér um sveitir, framhnýtingarskaft. Verkið
við að hnýta á skaftið nefndist ýmsum nöfnum

p17
t.d. að binda fram,
að hnýta fram, að hnýta á skaft. Framhnýtingarskaftið var fest við voðrifinn
með 3 böndum, snærum. Þegar búið var að festa böndin við framhnýtingarskaftið
og voðrifinn, var byrjað að hnýta fram. Sumir vefarar hnýttu fyrst
fram í miðju, síðan á jörðunum. Þegar farið var að skjóta skyttunni
um skilið og byrjað var á voðinni, var það nefnt að draga fyrir. Sumir
vefarar vildu ekki byrja á voð nema þeir gætu ofið áður en þeir gengu til
svefns, það mikið að einn eða fleirri vafningar kæmust á voðrifinn. Var
einhver þjóðtrú í sambandi við þetta, en ekki veit ég hver hún var. Algengast
mun það hafa verið að gefa ívafið fyrir í einum boga. Alltaf var
slegið að við hvert skil, en mjög var það mismunandi, hvað menn slógu fast
að. Þær voðir, sem voru ofnar þannig, að laust var slegið að, voru
alltaf mýkri og þjálli. Spjálkin var notuð til þess að halda voð
sundur, svo hún næði ekki að vefast inn. Ef spjálk var ekki færð
nógu oft var hætta á að voðin væfist inn.

p18
Margir vefarar mældu
voðirnar um leið og þeir ófu. Höfðu þeir til þess mæliband, sem hafði
ákveðna lengd, t.d. ein alin. Mælibandið var oftast úr seglgarni
eða bómullargarni. Hjá vöndum og góðum vefurum var lítið um misfellur
í vefnaði, en hjá óvönum og óprúttnum vefurum vildu oft verða ýmsar misfellur.
Ég sá konur vera að bæta þráðaslit, en skilgalla mun hafa verið nálega
ómögulegt að bæta. Ég hef þæft voðir, sem voru með áberandi skilgöllum.
Ýmsir trúðu því, hér áður fyrr, að ef mikið slitnaði í vef, þá væri
það fylgjum gesta að kenna, en aðrir voru raunsærri, og kenndu um illum
spuna, og fengu þá spunakonur ekki háa einkun hjá vefurunum. Hver
vinding voðar upp á voðrif var hér um sveitir nefnd færa. Þegar
vefnaði var lokið og voðin var tekin úr vefstólnum nefndist það, að fella
vef, fella niður vef, taka vef niður. Þráðarendar þeir, sem af gengu,
er vefur var tekinn niður, var nefndur undanskurður, en endar þeir, sem
hnýttir voru

p19
fram á framhnýtingarskaftið,
voru nefndir krummabuxur. Þegar átti að þæfa voð, var byrjað
á því að hita keytu í ullarþvotta pottinum. Keytan var síðan látin
í stamp eða þvottabala og voðin þvæld í þessum legi um stund. Síðan
var keytulögurinn tekinn af voðinni og nú var keyta blönduð vatni látin
á voðina og voðin þvæld í þessum legi nokkra stund. Þar næst var
voðin skoluð í hreinu volgu vatni 2-3 sinnum. Síðast var farið með
voðina í læk, ef hægt var, og hún skoluð þar. Að þessu öllu
búnu, var farið að ná vatninu úr voðinni, og var það gjört á þann hátt,
að spýta var sett þvert fyrir dyr og voðin lögð þar yfir. Síðan var voðin
lögð yfir aðra spýtu, oft sveran broddstaf. Var farið með spýtuna
eða stafinn það langt frá dyrunum, sem þurfa þótti, til þess að voðin gæti
verið tvöföld, og voru endarnir látnir koma saman sem næst miðju. Var
nú voðin undin í harðan göndul,

p20
og draup þá úr henni
vatnið. Venjulega fór kona með voðinni og strauk hana meðan hún var
undin. Þar sem ég þekkti til, önnuðust heimamenn um þæfingu,
og var þæft í baðstofu, á gólfi eða hurð. Þæft var undir fótum, nema
um mjög stutta voð væri að gjöra, t.d. 3-4 álnir, þá var þæft undir höndum,
oft í trogi. Ég þekki lítið til votaþófs. Það voru
helst grófir dúkar, t.d. buxnadúkar, sem voru þæfðir í votaþófi 1-2 klukkustundir.
Síðan voru voðirnar þæfðar, sem annað vaðmál, undir fótum, þar til
þær voru fullþæfðar. Flestir þófarar voru létt klæddir við þóf, margir
á nærklæðum einum saman. Voðin var oft aðgætt í þófinu og hrist upp.
Það nefndist að kippa. Ýms orð voru notuð um þóf. Þessi
voru helst. Bloti, þegar voðin var að byrja að þófna. Voðin
er fullþæfð, þegar voðin var búin að fá það þóf, sem talið var hóflegt.
Svellþæft, nefndist það, þegar voðir

p21
voru mikið þæfðar.
Voðir töldust fullþæfðar þegar þær höfðu styttst um eitthvað ákveðið.
Þetta var mjög breytilegt og fór eftir fínleik voðanna. Fínar
voðir voru þæfðar mikið minna en grófar voðir.

Þegar ég man eftir
var þófarabiti að mestu eða öllu lagður niður, en ég heyrði aldra fólk
tala um þófarabita og lýsa honum. Þófarabitinn var fyrst og fremst
smurð flatkaka og eitthvert góðmeti með, svo sem reyktur magáll, súr lundabaggi,
reyktur eða súr bringukollur, hangikjöt eða hákarlsbiti. Að vísu
ekki allt þetta, en meira eða minna af þessu. Þegar ég var
unglingur, heyrði ég gamlan mann segja frá því að þegar hann og bræður
hans þæfðu voðir, gaf móðir þeirra þeim þumlungsþykka sneið af stórum blóðmörskepp.
Það var þófarabitinn á því heimili. Ekki hef ég heyrt
talað um ákveðin laun fyrir þóf á voð. Þar mun greiði hafa mætt greiða
eins og oft hefur verið í samskiftum sveitafólks.

p22
Þegar voðin var fullþæfð,
var hún undin upp á fjöl og sett undir farg. Þar var voðin látin
vera 1-2 sólarhringa, síðan var hún breidd út til þerris. Þá var
hún undin aftur upp á fjöl, og látin undir mikið farg. Var hún látin
vera þar í nokkra daga. Síðan ar voðin tekin af fjölinni og undin
upp í stranga. Stranginn síðan geymdur á þurrum stað, þar til sniðnar
voru flíkur úr voðinni. Ég man eftir því að voðir voru sendar
í verksmiðjur til litunar og lóskurðar, en ekki var mikið gjört að því.
Helst munu það hafa verið fínir dúkar, svo sem peysufata- og kjóladúkar
og dúkar í betri föt karlmanna.

Ritað í nóvember
1966. Halldór Ólason.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóvinna
Efnisorð:
Ull