Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1880)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1784 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1784

p1
Ull og tóvinna 3.


p2
Vefnaður: Mjög
var það misjafnt, hvenær vefnaður hófst á bæjum. Á sumum bæjum var
siður að hætta heyskap viku fyrir réttir, og var þá byrjað að vinna prjónaband
þegar á réttum. Að vinna í sokkaplögg held ég að allsstaðar hafi
verið það fyrsta, sem byrjað var á, hvað ullarvinnu snerti. Þegar
búið var að vinna prjónabandið var byrjað að vinna vefjarefni. Á
þeim bæjum, er þessi siður var á, var áreiðanlega búið að vefa eina voð
fyrir jól. Þar sem seinna var byrjað á ullarvinnu, var einnig seinna
farið að vefa. Víðast mun einhver einn hafa annast vefnaðinn,
amk. held ég að verra hafi þótt að margir væru að vefa sömu voðina. Hve
lengi hver vefari sat að vef, fór eftir ástæðum, tam. hvort hann hafaði
vefnaðinn í hjáverkum, eða var ekki ætlað annað verk. Sumsstaðar
óf húsmóðirin, en sinnti þó sínum húsmóðurstörfum. Eins var þó um
vinnufólk væri að ræða eða húsbóndann. Það hafði oft einhver föst
skylduverk auk vefnaðarins. Þó sátu sumir allan daginn í vefstólnum,
og voru það helst húsmenn, er voru í kaupavinnu (við heyskap) á sumrin,
en höfðu atvinnu

p3
við vefnað að vetrinum,
og sinntu þá ekki öðrum störfum, og man ég eftir fáeinum vefurum, er það
gjörðu. Ágæt afköst þóttu það, ef vefari óf 12 álnir á dag
af meðalgrófu vaðmáli. Afköst vefarans fóru talsvert eftir því hve
vel var spunninn þráðurinn "uppistaðan". Einnig eftir því
hve fyrirvafið var fínt. Fáir held ég að hafi lært að vefa langt
fyrir innan 14 ára aldur. Eftir einum man ég, er farinn var að vefa
11 ára. Þessi drengur var þá orðinn það góður vefari, að hann var
léður á annan bæ til þess að vefa. Ekki var það almennt, að menn
færu á milli bæja að vefa, þó kom það fyrir, en almennara var að þeir tækju
vefjarefnið heim til sín. Mig minnir að um aldamót væru goldnir
20 aurar fyrir að vefa alin. Ekki man ég eftir að vaðmál væri notað
í vöruskiftum. Aldrei heyrði ég vefjarskeiðar kallaðar öðru
nafni en "skeið" eða "vefjarskeið". Aldrei vissi
ég til, að þær væru smíðaðar hérlendis. Stærð þeirra, eða þéttleiki, var
miðaður við tannafjölda á kvarteli, t.d. 70-80-90 tanna skeið. Flestir
vefarar áttu fleirri mismunandi grófar skeiðar.

p4
Vefstóll: Bæði
nöfnin, vefstóll og vefstaður, voru algeng hér um slóðir í mínu ungdæmi,
og eru raunar enn. Um gamla kljásteinavefstaðinn, veit ég ekkert,
en ég heyrði sagt, að sá vefstaður hefði lagst niður, er Skúli fógeti stofnaði
"Innréttingar" sínar. Einnig hefði spunasnældan þá vikið
fyrir rokknum. Ekki hef ég séð neina hluti úr kljásteina vefstól,
nema einn kljástein, er ég sá sem barn. Um smíði vefstóla
get ég lítið sagt. Þó mun það hafa verið nokkuð algengt, að hagir
menn smíðuðu vefstóla, og víða voru vefstólar til, þó ekki á hverjum bæ,
en fleirri munu þeir bæir hafa verið er vefstóll var á. Á öllum þeim
vefstólum, er ég hef séð hafa rifirnir verið á sömu hæð.
Á meðan söðuláklæði voru almennt ofin, voru víst flestir vefstólar tvíbreiðir,
en er hætt var að vefa þau, sem hér um slóðir, mun hafa verið eftir 1870-80
létu sumir minnka vefstólana. Þóttu þeir léttari og meðfærilegri
einbreiðir. Þeir, er ekki áttu vefstað sjálfir fengu flestir ofið
hjá grönnum sínum, einkum þeim er atvinnu höfðu af vefnaði.

p5
Vefjarskytta: Flestar
vefskyttur, held ég, hafi verið með látúnsdragi að neðan, til þess, að
þær rynnu betur um skilið. Aldrei heyrði ég annað nafn á teini þeim
er spólan lék á en "spóluteinn". Sá aldrei, eða vissi notað,
annað en renndar tréspólur. Spólurokkar: Ekki held
ég að sérstakir rokkar hafi verið smíðaðir til þess að spóla á, heldur
voru gamlir rokkar notaðir, og var þá settur í þá þar til gerður teinn
í stað snælduumbúnings. Spanstokkur: Hér um slóðir var þetta
háhald venjulega nefnt spjálk. Spjálkin var smíðuð úr 2 fjölum, hub. 3ja
cm. breiðum og nálægt 50 cm. löngum. Hún var þannig, að það mátti
lengja hana og stytta, eftir þörfum, og var það þannig gjört, að allt að
helmingur annarrar fjalarinnar var mjókkaður um 2/3 þannig, að 1/3 var
þverstýfður af og klofinn frá báðum meginn. En á hinni fjölinni var
gerð nákvæmlega jafnlöng og breið rauf í miðjuna, svo að mjórri endi féll
nákvæmlega í rauf hinnar. Síðan voru nokkuð mörg göt

p6
boruð í gegnum hliðar
skertu endanna. Lítill teinn úr vír með hring á öðrum enda var svo
rekinn gegnum götin, sem voru látin standast vel á. Sitt á hvorum
enda spjálkarinnar voru 2 mjög litlir en hvassir stáloddar, er stungið
var sitt í hvern jaðar voðarinnar.

Að leggja upp. Það
verk að reikna út uppistöðuþráð í voð heyrði ég ætíð nefnt "að leggja
upp". Eftir að ég man eftir, og það fólk er ég hef fengið upplýsingar
hjá, var ætíð lagt upp úr hespum. Hespurnar voru vigtaðar, og var
svo talað um voðina eftir þyngd þráðarins, t.d. 8 lóða, 5 og 3ja lóða verk.
Oft held ég, að hafi verið lagðar 2 álnir upp úr mörk af þræði. Sama
segja mér 2 gamlar konur er ég nýlega hef hitt. Önnur úr A-Skaftafellssýslu.
Þær muna báðar eftir því að hafa séð rakið úr hnyklum. Þær
minnir að þyngd valanna væri dregin frá þyngd þráðarins.

p7
Balbínustóll og snældur:
Balbínustóllinn var smíðaður úr tré, líkt og mjög grunnur botnlaus
kassi, hólfaður sundur í 2 hólf eftir endilöngu. Í gegnum allar langfjalirnar
voru boruð 6 göt í hverja fjöl, og var 6 gildum vírteinum stungið í gegnum
þessi göt, sem auðvitað þurftu að standast vel á. Á þessum teinum
léku svo balbínusnældurnar. Balbínusnældurnar voru smíðaðar
líkt og gríðarstórar rokksnældur, nema á þeim voru báðir snúðar eins. Hver
snælda var hub. 25 cm. á lengd og hver snúður víst 10 cm. í þvermál eða
meira. Ekki held ég að sérstakir rokkar hafi verið smíðaðir
til að balbína á. Þeir balbínurokkar, er ég sá, voru gamlir spunarokkar,
er breytt hafði verið þannig að þessar löngu snældur komust fyrir á snælduteininum,
og auðvitað var ekkert hnokkatré né þráðarop á teininum, heldur haldið
um þráðinn eins og þegar fyrirvaf var spólað.

p8
Rakstokkur: Rakstokka
heyrði ég þau ílát kölluð er höfð voru til þess að rekja vef úr hnyklum.
Ég hef séð 2 rakstokka. Voru þeir báðir af sömu gerð, nema
hvað annar var stærri og vandaðri. Báðir voru fyrir 12 hnykla.
Sá stærri var um meter á lengd og tæpur hálfur meter á breidd og
um 15-17 cm. á hæð. Honum var skift eftir endilöngu í 2 jöfn hólf
og þeim svo aftur skift í 6 hólf hvoru, svo rúm var fyrir 12 hnykla. Á
allar langfjalirnar var felldur hub. 5 cm. breiður listi með ávölum brúnum.
Átti víst að varna því, að hnyklarnir hrykkju upp úr hólfunum, er þeir
fóru að léttast. Rakningsspaða hef ég aldrei séð, né getað
fengið lýsingu á honum.

p9
Að reikna í skeið:
Aldrei heyrði ég annað nafn á vefjarskeiðum, en skeið eða vefjarskeið,
þó oftar aðeins skeið. Hve margir þræðir voru hafðir í tönn, sem
kallað var, fór eftir því, hve voðin átti að vera varpmikil. Varpmikil
var voðin kölluð, ef margir þræðir voru hafðir í tönn. Voðin var
þykkri og þéttari, ef þræðir voru t.d. 3 í tönn, en þynnri og gisnari væri
t.d. 1 eða 2 í tönn varplítil, sem kallað var. Stundum voru hafðir 2 og
3 þræðir í tönn á víxl, og þótti það víst meðalvarp.

p10
Rakgrind: Grind
þá er voðarefnið var rakið á, heyrði ég ætíð kallaða rakgrind. Ég
sá aldrei nema eina gerð áhalds þessa. Rakgrindin samanstóð
af 2 ferhyrndum trégrindum, jafnbreiðum, en önnur grindin var þeim mun
styttri, að hún féll aðeins liðlega innan í hina. Grindurnar voru allt
að 2 metrar á hæð, en nokkru minni á þverveginn. Efst í hælum, sem þráðurinn
eða uppistaðan var rakin á. Ekki vissi ég önnur nöfn á þeim, en efri
og neðri hæll eða skilhæll. Oftast munu þeir, er áttu vefstóla,
einnig átt rakgrind, þó vissi ég til, að rakinn var vefur á öðrum bæ, en
ofinn var.

p11
Að rekja í vef, var
það kallað, er rakið var af balbínusnældunum á rakgrindina. Rakgrindin
var sett upp, ýmist í íbúðarherbergjum eða framhýsum eða hvar sem rúm var
fyrir hana, og hentug hæð undir bita. Á bitanum var útbúnaður til
þess að festa grindina og var það ýmist úr tré eða leðri. Á miðjum
þverrimum grindanna, voru göt er stóðust á, er grindurnar voru settar saman.
Undir grindinni var hafður þungur og þykkur trébútur, sléttur að
neðan, en ávalur ofan. Upp úr honum miðjum stóð sterkur járngaddur,
er gekk upp í gegnum neðri götin á grindinni. Annar gaddur var settur
í að ofan, gekk hann í gegnum slíðrið á bitanum og efri götin á grindinni.
Á þessum göddum lék grindin, þegar rakið var.

Þegar byrjað var
að rekja var fyrst mældur 1 þráður jafnlangur og voðin átti að vera, og
honum vafið um grindina hæla á milli, og honum fylgt er rakið ar. Síðan
voru hnýttir saman svo margir þræðir, er vera skyldu í hverjum feta. Settur
síðan upp á efri hælinn, og grindinni síðan snúið og fetanum brugðið um
neðri hælinn. Farið með fetann sömu leið til baka og brugðið yfir
efri skilhælinn. Gætt var þess að bregða fetanum yfir hælana, sitt
til hvorrar handar, svo skil myndaðist.

p12
Fullrakin uppistaða
nefndist "slanga". Um leið og rakið var, voru sett nokkurskonar
skreppubönd á slönguna, bæði ofan og neðan við skilið, sem myndaðist við
það að brugðið var sitt til hvorrar hendar yfir hælana. Böndin voru sett
við hælana, oft um hverja 100 þræði. Ekki hef ég heyrt um mismunandi
aðferðir við að rekja. Ef um mislita uppistöðu var að ræða,
var vafið upp á spjald, mynstrið er átti að vera á voðinni, og sent vefaranum.
Hann raðaði þá þráðunum eftir því og festi saman jafnmörgum þráðum
og í mynstrinu voru og festi svo upp á hælinn. Þegar mælt var í voðina
var tekið tillit til þess, að voðin styttist. Gjört ráð fyrir hnútum
og afvikum, og dálítilli styttingu á voðinni.

p13
Höföld: Þau
fyrstu höföld, er ég man eftir, voru úr togþræði, tvinnuðum og mjög vel
spunnum og snöggum. Tel ég víst að hann hafi verið soðinn, því að
það var oft gjört við það garn, er sérlega var vandað t.d. í fín sjöl og
trefla. Aldrei vissi ég þó til, að vefjarefni væri soðið. Ekki vissi
ég heldur til þess, að feiti væri látin í vatnið, þegar soðið var band,
en gömul kona úr Hornafirði segir mér, að hún hafi vitað tólgarmola látinn
í vatn, er sjóða átti í hafaldaþráð. Skömmu fyrir síðustu
aldamót fóru að flytjast í verslanir, hafaldaaugu úr stáli, og urðu þau,
held ég, fljótt algeng. Eftir að farið var að nota "stálaugu"
voru höföldin hnýtt úr seglgarni. Þráðarhöföld voru hnýtt á þar til
gjörða grind er kölluð var "hafaldagrind". Hafaldagrind
sá ég ekki, en hef heyrt henni lýst. Hún mun hafa verið ferhyrnd
grind með miðrim, er myndaði augað. Auðvitað varð önnur endarimin
að vera laus, svo hægt væri að smeygja höföldunum fram af, er búið var
að hnýta. Kona, er kann að hnýta höföld, segir mér að fyrst hafi
verið mælt hve langur sá þráðarspotti þurfti að vera, er fæor í eitt hafald,
síðan var þráðurinn rakinn á eitthvað er mátulega lengd gaf, síðan skorið
af og einn og einn

p14
þráður hnýttur á
hafaldagrindina. Ekki sagðist þessi kona muna eftir neinum sérstökum
hnút er notaður hefði verið. Sagði, að sinn rembihnúturinn hefði
verið hnýttur hvoru megin við augað, en þar sem þræðirnir voru hnýttir
saman, ofan á skaftinu, hefðu oft verið hnýttir margir rembihnútar. Ekki
mundi hún eftir neinu sérstöku nafni á þræðinum, er bundinn var um sköftin
til þess að höföldin rynnu ekki út af. Þó minnir okkur að við höfum
heyrt orðið "varaþráður" haft um þennan þráð.

p15
Fetakambur: Fetakambur
var aflöng ferhyrnd grind. Lengdin var um það bil jöfn lengd rifsins,
en breiddin rúmir 15 cm. eða þar um bil. Umgjörðin var smíðuð úr góðum
og kvistalausum við, um 5 cm. breiðum og vel 2ja cm. þykk, í aðra langrimina
voru festar tennur, einsog, eða líkt og tennur úr hárkambi. Rimarnar
voru grópaðar saman og neðri rimin, sem tennurnar voru í negld föst. Hin
hliðarrimin var grópuð, en ekki negld. Hún var tekin frá þegar lagt var
í kambinn, en fest aftur, er farið var að bóma vefinn. Tennurnar
voru annaðhvort úr harðviði eða málmi. Í þeim fetakambi, er ég man
eftir, minnir mig að væru vírtennur. Bilið milli tannanna í kambinum,
mun hafa verið rúmur cm. Þegar farið var að setja í kambinn,
var rifskaftið sett í slönguna, og því fest. Síðan látinn einn feti
í hvert tannbil, síðan voru skilsköftin sett í slönguna. Skilsköftin
voru 2 mjó ávöl, en þó flöt. Skorur eða göt voru í báða enda skaftanna,
um 1 cm. frá enda. Í skorurnar eða götin, var festur þráður, er þau
voru fest saman með.

p16
Að festa upp vef:
Ég heyrði öll nöfnin: að festa upp, setja upp og setja til vef, og
veit ég varla, hvert algengast var. Að bóma vef: Verkið
að vinda slönguna upp á rifinn, heyrði ég oftast kallað "að bóma"
eða "vinda upp á rifinn. Hef aldrei heyrt orðið "að rifja"
haft um það verk. Rifskaftið var sett í þar til gjört far í rifinu,
og fest undir snúða á endum rifsins. Ég man ekki nafnið á þeim snúðum,
en kona úr Skaftafellssýslu (Hornafirði), segist hafa heyrt þá nefnda "kraga".
Oftast voru aðeins 2 að verki við það að bóma. Annar hélt
í slönguna, en hinn vatt á rifinn. Aldrei heyrði ég eða sá, að vefurinn
ætti að ganga að sér á rifnum. Væri fetakambi vel fest við bómuna,
þurfti ekki nema 2. Annar hélt íslönguna, en hinn vatt upp á rifinn.


p17
Að draga í höföld:
Ekki heyrði ég annað nafn á því verki. Að því unnu oftast 2,
annar rétti en hinn "dró í" eða smeygði þræðinum í hafaldsaugað
með fingrunum, ef höföldin voru úr þræði, en með litlum krók, líkum heklunál,
ef stálaugu voru á þeim. Þegar viss þráðafjöldi var kominn, mig minnir
um það bil 2-3 fetar, var gjörð lykkja á og byrjað á næsta skúf. Ekki
man ég til að höföldunum væri neitt fest og hafaldakamb hef ég aldrei heyrt
nefndan. Að draga í skeið: Ég heyrði ekki annað nafn á því
en krókur. Krókurinn var úr járnþynnu eða mjög fínum vír, oftast
úr járnþynnu. Sá krókur, er ég man eftir var úr stálþynnu, hub. 10
cm. á lengd og um 1 cm. í breiðari endann, en mjór í hinn og sorfið þar
í hann far, til þess að halda þráðunum, líkt og á heklunál. Ég man
ekki annað en að skeiðin væri í slagborðinu, er dregið var í hana.


p18
Að hnýta fram: Það
skaft minnir mig að væri kallað framskaft eða fremra rifskaft, en þó held
ég að stundum hafi það verið kallað framhnýtingarskaft. Verkið að
hnýta á skaftið, var ekki kallað annað en það eða hnýta á framskaftið.
Framskaftinu var fest við rifinn með snærum, er bundin voru um enda
skaftsins, og lágu svo yfir frambómuna, og ofan á rifinn.
Að draga fyrir: Að skjóta skyttunni þegar byrjað var að vefa var
oft nefnt að draga fyrir eða bara að vefa. Þegar búið var að skjóta
skyttunni og vefarinn hafði gripið hana með hinni lausu hendi, setti vefarinn
fingur þeirrar handar, er þá var laus ofan á milli uppistöðuþráðanna, sín
megin við fyrirvafsþráðinn og ýtti honum í einum stórum boga í áttina að
skeiðinni. Þetta var kallað "að gefa í". Greip svo
í miðju slagborðsins og sló því einu sinni eða tvisvar að vefnum. Sá
ekki aðra aðferð við ígjöf.

p19
Spanstokk er lýst
á 5. og 6. blaði. Skilgalla þekki ég ekki. Þegar oft slitnaði
uppustöðuþráður var það vanalega kennt spunakonum. Þráðurinn illa
spunninn. Að fella vef: Heyrði varla annað nafn á því
verki. Einstaka mann heyrði ég segja, að taka ofan vef, en að fella
vef, var víst miklu algengara. Þráðarendar þeir er af gengu er vefur
var felldur voru kallaðir afvikur. Helst voru afvikur notaðar til
þess að þræða með, t.d. þegar verið var að sauma föt. Einkum voru
það tvistafvikur er þannig voru notaðar. Þóf: Er voð
var þvegin áður en hún var þæfð, var ætíð sá þvottur nefndur "að þvæla",
og þvottalögurinn nefndur þvæli. Vatn var hitað í stórum potti allt
að suðu, síðan var bætt í það þvottaefninu, sem oftast var keyta, sódi
og sápa. Fyrir 1890 var það víst oftast keyta.

p20
Um eða litlu fyrir
aldamót, var farið að nota fleirri efni, sérstaklega sóda og sápu. Oft
var þetta notað allt saman. Voðin var svo þvæld upp úr þessu eins
og þurfa þótti. Þvegin svo vel, helst í rennandi vatni. Ef
lækur eða á var ekki við bæinn, var oft farið til næsta bæjar, eða 2-3
km. til þes að komast að rennandi vatni, því áríðandi var að voðin væri
vel þvegin. Væri ekki um neitt straumvatn að gjöra, var ausið uppá,
sem kallað var, en það var seinlegt. Voðin var undin þannig: Þegar
búið var að fullþvo voðina, var stampurinn eða balinn borinn að einhverjum
dyrum, oftast bæjar- eða skemmudyrum, þar sem góðar og stórar hjarir og
lokukengur var. Þá voru teknir 2 sterkir tréstafir, t.d. sterkir
broddstafir. Annar skorðaður við efri hjarakeng og loku þvert fyrir
dyrnar. Hinn stafinn hafði sá í höndum, er vinda skyldi. Fjarlægðist
hann nú dyrnar, síðan var sínum endanum brugðið um hvorn stafinn, en einn
eða fleirri gættu þess, að ekki drægjust sundur endarnir á voðinni er vixllagðir
voru mitt á milli stafanna. Væri voðin löng og þung, þurftu oft fleirri
að halda undir voðina á meðan hún var blautust. Oft var hellt yfir
hana vel

p21
vel heitu vatni,
áður en farið var að vinda. Þótti vindast betur væri hún heit. Þegar
allt var tilbúið, fór sá er úti var að snúa upp á voðina með stafnum, snéri
alltaf til sömu handar, þar til voðin var þurrundin. Voru þá oftast
farnar að myndast snurðuliðir á voðinni. Sá þurfti að vera vel sterkur,
er voðina vatt, ef hún var löng og þung. Fínt vaðmál var vanalega fastara
undið en gróft, því það þótti fínni áferð á þurrundnu þófi en blautu.
Hvar þæft var og hverjir það gjörðu, fór eftir heimilisástæðum.
Væri gott rúm í íveruhúsum, var þæft inni. Ef ekki, þá var
venjulega þæft í fjósi, vegna hlýinda, því betra var að þæfa í hlýju húsi.
Vanalega var þæft á hlera eða hurð. Væri þæft í fjósi var hlerinn
lagður í básinn og þófarinn, em ætíð var snöggklæddur og berfættur studdi
sig við milligjörð básanna, en væru þær of lágar var reiptagli bundið milli
stoða og stuðst við það. Þófarinn hnoðaði svo vaðmálið undir fótunum
af kappi. Þegar hann hafði þæft nokkra stund, var farið að hrist
upp eða "kippa", sem kallað var. Það var þannig gjört,
að 2 tóku í annan enda voðarinnar, annar tók hornin á voðinni sitt í hvora
hendi, en hinn tók í jaðra voðarinnar um það bil hálfan annan meter frá
endanum

p22
því næst breiddu
þeir út endanum, eins og hæft var. Þar næst færðu þeir sínar eigin
hendur alveg saman en linuðu þó ekki á takinu, kipptu svo örsnöggt í sundur
höndum sínum svo snöggt, að oft heyrðist hvellur. Þetta var endurtekið
2-3 eftir því er þurfa þótti. Síðan færðu þeir til hendurnar. Sá
er endann hafði tók í jaðrana þar sem hinn hafði áður, en þófarinn tók
við endanum og lagði voðina á hlerann og gætti hans. Þetta var endurtekið
voðina á enda. Hvenær voð var fullþæfð fór eftir ástæðum, t.d. var
ekki svellþæft vaðmál er átti að hafa í rekkjuvoðir og þynnri föt. Aftur
á móti var mikið þæft slitfatavaðmál. Voðin var hrist "kippt",
hub. á klukkutíma fresti. Ekki þekkti ég þófarabita, en venjulega
var eitthvað haft við í mat, og þófara gefið aukakaffi, oft með brauði
t.d. lummum. Þegar búið var að þæfa var voðin undin mjög
fast og slétt upp á fjöl og sett undir þungt farg og pressuð fleirri daga.
Ég held að farið var að pressa og lóskera hér, var oft sent fínt
vaðmál t.d. í peysu og jakkaföt til pressunar.

p23
Þó nokkuð var gjört
að því að hafa taglhár í leppa. Oftast held ég að karlmenn hafi unnið
þá. Hrosshárið var spunnið eins og í reipi, líklega þó heldur fínna.
Síðan voru prjónaðir úr því venjulegir leppar, og hafðir í skónum,
annaðhvort einir eða undir ullarleppum. Sumir höfðu óspunnið hrosshár
undir skóleppunum. Þetta þótti gott ráð við fótakulda. Tátiljur:
Hér um slóðir hafa líklega verið lítið notaðar tátiljur, en ég heyrði
föður minn segja frá þeim og einn mann sá ég nota þær. Það voru skór.


p24
Þessa þulu lærði
ég sem barn. Aldrei heyrði ég fullorðna þófara fara með hana, en
börn kváðu hana oft, er þau þóttust vera að þæfa. Bárður minn á jökli -
leggstu á þófið með mér - ég skal gefa þér lóna - í leppana innan í skóna
- naglabrot í bátinn þinn - og hálfskeifu undir hestinn þinn - ég skal
gefa þér gull í skel - og meira, ef þú þæfir vel.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna