Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1887)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1333 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1333

p1
Ull og tóvinna 3.
Sjaldgæft mun hafa verið að vefstóll væri settur niður fyrir jól,
en væri það gjört var það venjulega sökum þess að ekki hafði unnist tími
til að ljúka vefnaði veturinn áður, annað hvort fyrir heimilið eða og ekki
síður ef lofað hafði verið að gefa fyrir einhvern sem þurfti að koma í
vefnað, en ekki varð framkvæmt. Þá var sjálfsagt að byrja á því og
efna þannig loforð sitt. En fyrri hluta vetrar var unnið að ullarofanaf-tekt-plagga-tóskap
og smá-bandi, sem var sérstök iðnaðartegund sem var lagt kapp á að koma
til innleggs í verslunina fyrir áramótin. Eftir að tvistur fór að flytjast
var oft byrjað að vefa eftir nýár t.d. í milliskyrtur handa karlmönnum
sem var all títt, ofl. Næst var svo ýmis konar ullartóskapur t.d.
í rekkjuvoðir og utanyfirfatnað. En fínni dúkar einkum ef voru með
fleiri litum voru ekki ofnir fyrr en á útmánuðum, þegar daginn lengdi og
birtan betri. Oftar var það að einn maður annaðist um vefnaðinn eða
hafði yfirumsjón með honum, því fleiri gátu ofið en hann og þá oftar húsbóndinn,
en hafði þá jafnframt útiverk á höndum, t.d. hesta- eða lambahirðingu,tók
kúahey o.þ.l. Fátíðara var að menn ferðuðust um til að vefa fyrir
heimilin eða fengnir til þess þó það væri til.

p2
Tóku frekar vefinn
heim til sín, þótti það hentugra. Atvinna gat það ekki kallast því
það voru þá oftast þeir sem höfðu þrengstan skó hvað aðstöðu og afkomu
snerti sem báðust eftir þessu. Karlmenn stunduðu vefnað aðallega.
Engin ákvæði eða regla mun hafa verið um greiðslu t.d. fyrir alinn
mun það hafa farið eftir geðþótta hvers og eins svo og hvaða tegund var
ofin, fínt, gróft, dúkur, tvistur og ekki síst hvernig tóið hélt. Vefstóll,
ætíð nefndur svo, tvær gerðir. Eldri gerðin, hærri kinnar og slöngurifur
uppi, þeir yngri, slöngurifur undir afturbómu og allur lengri, eða einstakir
hlutir þeirra. Lifa aðeins þessi heiti, tvíbreiðir sömuleiðis. Flest
heimili áttu vefstól, tveir á sumum bæjum þar sem var fleirbýli. Hér
í þessum hreppi er ekki kunnugt nema um tvo vefstóla sem hafi verið smíðaðir
hér og eins á verkstæði á Húsavík, hét sá maður Páll Kristjánsson sem sá
um smíði hans, ættaður úr Mývatnssveit, nú fullra 90 ára til heimilis að
Álftamýri 7, Reykjavík. Heimildarmenn mínir sem eru tvær systur 60
og 70 ára og hafa stundað vefnað (ásamt annari vinnu) fram á þennan dag
og fylgjast vel með vefnaðai og breytingum á seinni árum, telja að teikningin
af vefstól B sé líkust þeim vefstólum íslenskum sem þær hafi mest kynnst
og vildu vísa algjörlega um heiti og annað til vefjarbókar Sigrúnar Blöndal.


p3
Vefjarskeiðar, annað
heiti ekki kunnugt, ekki heimasmíðaðar, allar af sömu lengd, fínum kvartel,
og heiti þeirra eftir því hve margt var á kvarteli t.d. áttaíu reyra skeið,
100 reyra o.s.frv. Mjög sjaldan talam um 80 tanna skeið. Og
þegar dregið var í skeiðina var alltaf talað um hve margir mættu vera í
reyra. Þessar konur höfðu séð gamlar skeiðar úr timbri og látuni.
Orðið vefskytta var ekki þekkt hér, heldur vefjarskytta. Talið
er að þar hafi aðallega verið útlendar. Eitt dæmi mun vera til þess
að maður sem smíðaði skyttu gjörði sér það til gamans að hafa hana á hjólum
eftir erlendri fyrirmynd en þótti lítil bót að. Aldrei annað en spóluteinn
í skyttunni eða aðeins teinn. Renndar tréspólur til þess að
spóla ívafið á. Dæmi voru til þess að hveitilím var borið á pappírsblað,
vafið þétt utan um spóluteininn tekið ofan af honum og látið harðna, varð
það þá harður stingull og ágætt að spóla á það. Spólurokkur ætíð
nefndur svo fylgdu honum spóluteinn og balbínuteinn, mislangir, báðir með
snælduútbúnaði, stjakinn færður til í götunum eftir því hvert verkið átti
að framkvæma. Oftast notaðir uppgjafa spunarokkar. Sérstakir
spólurokkar munu hafa verið til en mér ókunnir. Spjálk aldrei nefnt annað
svo mér sé kunnugt. Teikningin í vefnaðarbók frú Sigrúnar Blöndal
er nákvæmlega eins og hér var notað.

p4
Talað var um að leggja
upp í vef, (einnig að reikna upp í vef) og almennt notað hesputré við fram
útreikning. Skreppurnar á hesputrénu samsvöruðu handraða í vefnum
í uppistöðunni. 50 þræðir í skreppunni, en skreppufjöldi hespunnar
fór eftir því hve mörg hundruð átti að vera á vefnum. Talað var um
fjögra lóða verk, fimm lóða verk o.s.frv. Hér þekkist varla að vinda
vefjartó á völur en þó var það til, þar sem ekki var til hesputré og þóttu
þær konur fara undranærri um hvað eða hvernig mátti leggja upp úr því.
Að reikna í skeiðina var eingöngu viðhaft um þram þátt vefsins. Stóðst
það ekki var talað um að voðin væri of lítið verpt og þá dregið úr skeiðinni
og reiknað upp aftur. Uppistaða og ívaf voru algeng heiti.
Rakgrind eingöngu notað um það vefkfæri, fleiri tegundir ekki þekktar,
þær voru ekki til á öllum bæjum en fengu að rekja hjá grönnum sínum. Miðað
var við að rekja (alltaf talað um að rekja vef) undirbita eða þverslá,
sem grindin næði upp að, var klossi negldur á bitann sem hvolft hafði verið
úr, svo gat myndaðist, var enda á priki stungið niður um það og gegnum
göt sem voru á miðjum þverslám grindarinnar að aftan, gekk prikið þar niður
í gegn. Ekki þó svo að það gengi ofan úr. Stundum var negld
leðurpjatla á bilin svo þröng að prikið hélst í henni en þó grynnra í neðri
endann. Á milli þess sem grindin var notuð var hún lögð saman og
geymd upp á bita.

p5
Balbínur, balbínustóll:
Ætíð nefndar balbínusnældur misstórar holar innan með snúðum á báðum endum
því stærri sem snældurnar voru styttri. Balbínustóll, nauðsynlegt áhald
við vefnaðinn, venjulegast grind með þremur uppi stöndurum með götum sem
vírteinar með lykkju á öðrum enda lágu í gegnum sem snældan snérist á,
6-7 hvoru megin við mið-uppistandarann. Þessir balbínustólar urðu að hallast
að þili eða vegg, en aðrir voru sjálfstæðir, hölluðust lítið eitt aftur
og studdust við bakuppistöður. Þekkti ekki sérstaka balbínurokka, þó kunni
að hafa verið til, ávallt notaðir uppgjafarokkar, breytt til þessa og kallaðist
"að balbína" á þá. Rakningsspaði: og umspurt áhald
þekktist ekki fyrr en með erlendum vefstólum. Rakningsstokkur:
ekki þekktur, en væri rakið af hnyklum voru notaðir koppar og kassar, þvottaföt
o.fl. til þess að láta hnyklana velta í. Rakgrind: var sett upp
í einhverju því húsi í bænum, þar sem var aðstaða (pláss) og umfram allt
birta, hvort var í baðstofu, stóarhúsi eða framhýsi var fólki stundum kalt
við að rekja. Áður en fest var á grindina efra hælatréð tók rakningsmaðurinn
alinmál og mældi með því einn þráð janfmargar álnir og vefurinn átti að
gefa og klippti fram yfir því sem þurfa þótti til að samsvara því, sem
vefurinn myndi styttast við vefnaðinn og lét vinda þennan þráð upp á hnykil
þegar mæld var sú lengd batt hann merki þar í þráðinn og vatt svo því sem
mælt var upp á snælduna aftur með hendinni. Um vafningsspaða þarf
ekki að ræða því þeir voru ekki til og ekki þráðarvölur.

p6
Venjulega voru tveir
við að rekja og var full þörf, ekki síst ef um fleiri liti var að ræða
t.d. dúka sem rekja var í flokkum. Ein umferð á grindina (upp og
niður) nefndist "gengur" en ein ferð upp eða niður "feti"
kallaðist "að leggja á grind" fyrsta fetann. Föst regla
var ekki um hvernig rakið var að ofan eða niður, en sá sem þetta ritar
sá aðeins rakið að neðan. Til þess að fylgjast með þráðarfjöldanum
var settur sterkur spotti í skilið þegar handraðið var unnið, stórt eða
lítið og bundið af. Var því svo fram haldið, brugðið um hvert handrað
sérstaklega þar til rakningu lauk. Vefjarslanga: Dregnir voru spottar
í öll skil áður en hún var látin niður. Heyrt höfum aðeins getið
um að rakið hefði verið á hæla en kunnum engin skil þar á.
Hafaldagrindur: voru til og virðast hafa verið algjörlega eins og teikning
af þeim í vefnaðarbók frú Sigrúnar Blöndal. Ekki er kunnugt um sérstakt
áhald til að rekja hafaldarefnið á, en í sumum tilfellum a.m.k. var það
sniðið þannig til að undið var upp á bók sem hafði það ummál að jafngilti
því sem þurfti til að hnýta 1/2 hafald, því tveir sátu hver á móti öðrum
við að hnýta hafaldið. Vindingurinn var svo skorinn utan af bókinni
og var þá komið tilsniðið efnið. Heyrt hefi líka að undið hefði verið
upp á fjöl o.s.frv. frumstæð vinnubrögð. Efni í haföld var unnið
úr dregnu togi og var mjög vandað til þess.

p7
Til þess að gjöra
þráðinn snöggan og haldgóðan var hann undinn upp á tólgarmola og soðinn
í vatni þar til bandprjónn gekk í gegnum hann. Hafaldsauga
eða aðeins auga: Haföld voru geymd á þurrum stað, stundum hengd upp á skemmuloftum
(gömlum). Stál-höföld fluttust fyrst laust eftir síðustu aldamót.
Vefjakabmur: Talað um að láta í kamb, eða leggja í kamb. Var
þá losað um skilþráðinn og rifskaftið sett í. Skilþráður - almennast
var talað um að "setja til vef" og "vinda upp vef".
Á slöngurifnum venjulega kallaður aðeins "rifur" voru kragar
á báðum endum - stungið spítum í gegnum rifin til að stöðva þá svo vindingurinn
yrði jafn út við. Helst þurfti 4 menn að hjálpast að við að vinda
upp vef. Einn vatt á rifinn, annar hélt í slönguna, þriðji sat í
setbekk að framan, gætti kambsins o.fl. og fjórði gætti rifsins og bómunnar
að aftan, að ekki færi út af eða mikið út að flækjum og slitnum þráðum
ef til fælust. Slöngu-endar greindir sundur og hnýtt á lykkja 1-2
hundruð í hverri. Draga í höföld: Bundið um hafalda sköftin
að ofan. Tveir unnu saman að því að draga í höföld, annar rétti fram
þræðina, sat aftan við eða inní eftir gerð vefstólanna. Ef um toghöföld
var að ræða tók sá sem dró í með fingrunum þráðinn í gegnum augað. En
með vírkrók "hafaldakrókur" eftir það að stálhöföld komu til
notkunar. Þræðina (lagði) sveigði hann til hægri handar út á höföldin
og hnytti saman með lykkju þegar ástæða þótti til.

p8
Skeiðarkrókur: flöt
blikk-þynna ca þumlungs breið og 6-7 þuml. löng, ávöl að framan með gogg
myndað nef, sem var krækt fyrir þræðina. Við það starf voru ýmist
einn eða tveir, eftir því sem hver og einn hafði vanið sig á. Ef
tveir voru við það, var skeiðinni smeygt á milli hafaldasnæranna og lá
langs eftir þeim, voru þau bundin saman svo skeiðin gekk ekki ofan á milli
þeirra. Stóð þá sá sem dró í skeiðina framan við höföldin með hægri
hendlegg yfir og aftanvert við höföldin og krækti með skeiðarkróknum fyrir
þræðina, sem vefarinn tók til að ættu í hvern reyra, en hann sat framan
við höföldin, með vefjarendana í vinstri hendi, en tók þræðina til með
þeirri hægri. Þurfti sá að hafa góða sjón, sem dró í skeiðina, því
gæta þurfti þess vandlega að skilja ekki eftir reyr. En væri einn
við ídráttinn hafði hann skeiðina í "slagborðina" lá það fyrir
fram hann og dró þræðina með hægri hendi, þræðina niður um skeiðina, en
hjálpaðist með báðum höndum að taka þá til. Hnýta á skaftið: aldrei
heyrt talað um "framhnýtingu" eða "framhnýtingarskaft".
Uppbinding ekki heldur, þar voru aðeins viðhöfð vefstólssnæri. Þrjú
fest um rifinn, þrædd í gegn um göt á rifnum sem snærishnútarnir féllu
ofan í, en rás var eftir rifnum sem prikið (skaftið) féll í, þegar það
bar að. Þegar ofnar höfðu verið nokkrar álnir var "tekið undan"
sem kallað var, rekið ofanaf rifnum það sem búið var að vefa og snærin
tekin burt, því annars hlaðaðist óeðlilega mikið á þau og myndaðist þá
"gúlpur" eða miskengja í voðina.

p9
Svo voru snærin notuð
aftur þegar vefnum var að ljúka, þá voru þau hnýtt í skilprikið að aftan
og farið eins að og að framan. Oftast var talað um að fella niður
vef eða fella af. Þegar vefur hafði verið "felldur af"
voru þeir endar sam þá gengu af nefndir "neðangangur" notaður
við botaskaga á fötum. En hinir endarnir frá byrjun vefsins "krummaklær"
lítt nothæft. Að draga fyrir: það var eingöngu nefnt að draga
fyrir þegar farið var að vefa einkum ef það var ekki nema lítið í fyrstu.
"Ég dró aðeins fyrir í gærkveldi". Ekki þekkist nema
eitt orðtak um að gefa upp í, og ein aðferð við það, að gefa upp í einum
boga - á öllum venjulegum vefnaði. Ef um grófan vefnað var að ræða
voru oftast slegin tvö högg og þau þéttingsföst. Var fínni vefnaður
einkum dúkar - var ívafið lagt hægt að með einu höggi og áréttað með öðru
þéttara. "Spjálk": Spanstokkur ekki þekkt heiti.
Teikning af henni er í Vefnaðarbók frú Sigrúnar Blöndal - mjög lík því
sem hér tíðkaðist, ætluð til þess að halda voðinni í jafnri breidd - endunum
stungið í báða jaðra - naglaoddum í endanum og haldið þannig af kross flögu
eða snerli sem hélt þeim niðri svo voðin varð þéttari og útlits betri,
einkum í jaðarinn. Vefarinn hafði alinarlangan seglgarnsspotta sem
hann færði til við lok hverrar álnar með hnút á enda, óf það í voðina við
hver skifti.

p10
"Tæra"
nefndist að hleypa af afturrif og vinda upp á framrif nefndist bæði að
færa og öll athöfnin tæra (nafnorð). Oftast talað um að fella niður
vefinn. Fella af "þóf" var tvenns konar: þurraþóf og votaþóf.
Skal fyrst lýst lítillega þurraþófi: heitu vatni var hellt í stóran
bala og sett í það "blauta-sápa" og sódi og þar næst lítils háttar
af "keytu" mun ekki hafa verið ákveðið mál þar á. Þá var
voðin sett í þetta, stappað á henni með prikum og henni velt til. Að
þessu loknu var þessum legi hellt af og hellt á hana volgu vatni oftar
en einu sinni til þess að ná skólpinu úr, og upp úr því var voðin undin
úti á hlaði, voru við það 3-4 menn. Fór sú athöfn þannig fram, að
fest var sterkt prik eða spíta í dyr sem ekki mátti láta undan, endanum
á voðinni vafið þar um eða faldir í voðinni sem var svo dregin upp úr balanum
og jafnframt snúið upp á hana og sett sterkt prik í lykkjuendann, svo auðveldara
væri að snúa upp á voðina. Var teygt á henni af og til. Þegar
þótti full undið voru prikin losuð úr endanum og voðinni hleypt saman í
harðan hnút sem hún gjörði sjálfkrafa. Þá var hún borin inn og losuð
í sundur og þófarinn tók til starfa sem fór fram í tunnu, eða þó oftar
á palli afmörkuðum í baðstofuhorni, því það þurfti að vera í hlýindum.
Þófarinn, sem var venjulega létt klæddur í skyrtu og einum buxum,
því þetta var hita-starf, fór að þæfa

p11
sem aðallega var
fólgið í því að velta þófinu til og frá með fótunum og sparka á því. Með
ca 30 mín millibili var þófinu kipp. Var það framkvæmt af teimur (venjulega)
konum sem höfðu á milli sín 3-4 al. lengju af voðinni, héldu í jaðrana
og kipptu þeim til hliðar með snöggu handtaki, nokkrum sinnum í hvert sinn
sem kippt var. Voðin jafnaðist og varð áferðarfallegri við þessar
aðgjörðir. Þegar voðin dæmdist full þæfð, sem húsmóðirin réði venjulega
um, var hún vafið lauslega upp á fjöl, en síðan af henni og á aðra og vandað
til þess - sátu þá tveir hver á móti öðrum og strengdu sem best. Þeir
gátu voðina á milli sín, var sú áreynsla svo mikil að konur fengu stundum
strengi í handleggi af átökunum. Síðan var vafið eða saumað utan
um fjölina, hún sett undir kistu og jafnvel farg þar ofan á, mjölsekkir
ef til voru, eða grjót. Votaþóf fór fram með líkum hætti. Fór
alið s.a.s. fram í tunnuskrokk og í fjósi. Var það undið upp úr þvælinu
þegar haft var vatnaskipti en fullnaðar vinding eins og áður er lýst. Venjulega
var það jafnað á eftir votaþófinu með þurru þófi, einni eða tveimur skorpum,
en svo nefndist tíminn á milli þess sem kippt var. Undantekningar
lítið þæfðu karlmenn, oftast heimamenn, en í sumum tilfellum voru eldri
menn fengnir til þess sem voru þá á lausum kili, en atvinna gat það ekki
kallast þó þeim væri eitthvað þægt fyrir. Talað var um "þófarabita"
og "þófaralummur"

p12
og var það föst regla
að baka þær handa þófaranum, því þær tilheyrðu því sem nefnt var tilhald
á þeim árum. Ekki er kunnugt að voðir væru sendar í verksmiðjur
í öðrum löndum til litunar eða lóskurðar né þófs, en þegar Gefjun tók til
starfa á Akureyri var sá háttur tekinn upp að senda þangað voðir einkum
fínni dúka til pressu og lógskurðar, en grófari dúka til þófs.


Skráð í febrúarmánuði
1966 Jónas Helgason
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna