Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1902)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 7709 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 7709

p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Því miður kann ég fátt frá vefnaði að segja. Sjálf
hef ég aldrei ofið, en fyrst þegar ég fer að muna, var til vefstóll á heimilinu.
Ég var mjög ung þegar hætt var að vefa að staðaldri á Smáhömrum og treysti
mér engan veginn til að greina frá heiti á hinum ýmsu hlutum vefstólsins.
En þess skal getið að mynd C kemur mér kunnuglegast fyrir sjónir. Ekki
mun hafa verið byrjað að vefa fyrr en eftir áramót, því sjóróðar voru stundaðir
frá réttum til jóla. Hjónin á Smáhömrum, sem þá voru Matthildur Benediktsd.
og seinni maður hennar Björn Halldórsson, hjálpuðust að við að setja upp
vefinn, en hann óf. Það man ég ekki eftir að hún gerði, en hún var
frábær spunakona fram á elliár. Úr tvisti var ofið efni í lök (hvítt),
einnig í milliskyrtur karla, ýmist röndótt eða rúðótt. Úr ull voru
ofnar rúmábreiður og vaðmál í ytri föt, einkum karlmannsbuxur. Þar
sem ég þekkti til, var hætt að vinna vaðmál í rekkjuvoðir og nærföt. Þá
voru prjónavélar komar til sögunnar og prjónaföt tekin við af vaðmálsnærfötum.
Hringprjónavélar komu fljótt á flest heimili. Þó hægt færi
urðu breytingar á klæðnaði fólks. Þegar komnar voru fasta verslanir
á Hólmavík, fór að fást ýms vefnaðarvara, sem áður var sjaldséð, t.d. klæði
í peysuföt, sem þá voru spariföt kvenna, cheviot ofl. ensk ullarefni í
karlmannaföt. Þá voru einnig komin á markað innlend verksmiðjutau.
Ekki man ég hvenær hætt var að nota vefstól á Smáhömrum,
eitthvað mun hafa verið gripið til hans á fyrri stríðsárunum, svo man

p2
ég að farið var að
lána á aðra bæi, vefjarskeiðar, skyttur ofl., ef eitthvað bilaði. Upphaflega
var allt til, sem tilheyrði vefstól og vefnaði, t.d. voru til spólurokkur
og balbínurokkur, sem ekki voru notaðir til annars.

Tvistur sem afgangs
var frá þessum tíma, var árum saman notaður í þræðingar (við fatasaum).
Kannast einnig við "afvikur", notaðar til hins sama. Vefstólar
munu ekki hafa verið til á hverjum bæ, en ég þekkti dæmi þess að vefarar
tóku vefnað heim til sín, og man ég að nefna 2 menn, sem það gerðu í Tungusveit.
Það var Eggert Einarsson, bóndi á Tindi og Guðmundur Björnsson, Miðdalsgróf.
Oftast voru það karlmenn, sem ófu. Þó voru undantekningar
á því. Soffía á Sandnesi, var orðlögð vefnaðarkona, og munu dætur hennar
og etv. fleirri afkomendur hennar hafa tekið það í arf. Um
eða fyrir síðustu aldamót óf Anna Eymundsdóttir, Bæ á Selströnd, vaðmál
í peysuföt handa sér, og saumaði þau sjálf, en móðir hennar Guðbjörg Torfad.
frá Kleifum spann þráð og fyrirvaf. Mér hefur áskotnast smá
vaðmálsbót úr þessu peysupilsi. Annað er ekki eftir af því, og þennan
bút sendi ég nú Þjóðminjasafni til varðveislu. Engan annan gamlan vefnað
hef ég undir höndum. Mér er sagt að Anna hafi ekki átt vefstól,
en henni þótti mjög gaman að vefa og greip í það, ef tækifæri gafst. Um
árabil var hún búsett á Hólmavík. Þá óf hún gólfrenninga og mottur,
svokölluð "tuskuteppi". Uppistaðan var netagarn, fyrirvafið niðurklipptar
tauræmur eða prjón.

p3
Þessi tuskuteppi
voru víða notuð á þeim árum. Þau voru stöðug á gólfi, hlýleg og endingar
góð, af því hafði ég reynslu. Þeir renningar sem ég sá voru með einskeftuvefnaði,
fast ofnir og endarnir bryddaðir en ekki faldaðir. Þeir voru þverröndóttir.
Aths: Eins og vaðmálspjatlan, sem ég sendi ber með
sér, er hún ekki tekin af ónotuðum stranga. Fyrst var saumað peysupils
og notað árum saman, uppúr því var saumað kjólpils og að síðustu síðbuxur
á dótturson vefarans, og úr þeim er þessi bót klippt. Þetta sýnir
endingu íslenska vaðmálsins, og því get ég þess hér.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna