Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1898)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1289 Safnnúmer B: 1966-1
Staður
Staður: Þóroddsstaðir 1, Ölfus, Ölfus, Ísland
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1289

p1
Ull og tóvinna 3.
Ef ofnar voru fleirri en ein voð á bæ, var byrjað um jólaföstukomu
eða fyrr, en væri aðeins ein voð ofin, var ekki byrjað fyrr en eftir áramót.
Víðast var vefnaði lokið fyrir vertíð, í byrjun febrúar. Ofnar voru
flest 4 voðir á bæ, en víðast ein eða tvær. Fyrr var ofið í nærföt
og

p2
rúmfatnað, en síðar
í utanyfirföt. Það var eftir ástæðum heimilisins, hvort vefarinn
sat við allan daginn eða milli mála. Á fámennum heimilum var oftast
aðeins ofið milli mála. Duglegur vefari óf um 10 álnir á dag eða eina alin
á klukkustund af vaðmáli. Ef aðkomumaður óf, var greiðslan miðuð
við alin, og var 10 aurar á alin fram yfir s.l. aldamót (Jörg. Bjarnas.).


p3
Ýmist ófu konur eða
karlmenn, oftar þó karlmenn. Unglingar fóru að læra að vefa skömmu
eftir fermingu. Vefstaður var algengara nafn og eldra , en
vefstóll var líka notað, einkum á síðari árum. Á flestum bæjum mun
vefstaður hafa verið til, og notaður þó þröngt væri, jafnvel svo þröngt
að taka varð upp rúm í baðstofu, til að koma honum fyrir. Þó var
ekki allsstaðar ofið, heldur var efni komið fyrir annarsstaðar. Þrengsli
eða mannleysi hafa valdið því. Breidd vefstaðs leyfði 5 kvartela
breiða voð, en voðir voru sjaldan breiðari en 4 1/2 kvartel. Ritti,
sjaldan kallað skeið, var 5 kvartel með 60-80 tannir á kvarteli. Þó
voru til 100 tanna ritti, notuð þegar ofinn var tvistur, garn í garn. Rittið
gekk inn í gróp í slagborðinu, sem líka var kallað skeiðarslag. Það
hékk venjulega niður úr kjálkanum efst á væng vefstaðsins, og var

p4
fært til á kambinum
ofan á kjálkanum eftir þörfum. Skyttan var úr harðviði, mjó og rennileg.
Endar hennar voru bryddaðir með látúni, og á annarri hlið hennar
var látúnsplata með rifu fyrir veftinn. Neðan á skyttunni voru 2
látúnsfjaðrir, til þess að hún rynni betur um skilið. Spólan lék
á spóluteininum úr járni. Spólurnar voru oftast járnpípa, en stundum
tréspólur renndar með hnúð á báðum endum. Skinn eða roðspólur höfðu þekkst
áður fyrr. Spólurnar þurftu að vera 20-30 á bæ. Spólurokkar
voru oftast gamlir spunarokkar. Látinn teinn með skoruhjóli á, í
stað hnokkatrés, og spólunni stungið upp á teininn framan við brúðuna.
Einnig höfðu verið smíðaðir sérstakir spólurokkar. Þá hafði
borið við, að notaðir væru venjulegir spunarokkar. Var þá spólunni
stungið upp í pípuna á hnokkatrénu.

p5
Spanstokkur var notaður
til þess að spenna út voðina. Hægt var að lengja hann og stytta með
því að færa lítinn tein, sem tengdi saman báða hluta stokksins og einnig
hólk, sem hélt hlutunum í skefjum. Í endum spanstokksins, sem smíðaður
var úr harðviði, voru broddar, sem stungið var í jaðra voðarinnar. Þegar
ákveðin var legnd voðar, var miðað við þyngd þráðarins. Mörk af þræði
átti að gera 2 álnir. Jafnvel var sú nákvæmni viðhöfð, að taka einn
hnykil og mæla nákvæmlega með kvarða, og reikna eftir því. Ef vefjargarn
var notað í uppistöðu, var reiknað með 9 til 10 álnir úr pundi garns í
vaðmál, en 11 álnir í einskeftu. Í uppistöðu var talið hæfilega 1200
þræðir, hvort sem notað var garn eða þráður. Fyrirvafið nefndist veftur,
spunninn úr ull. Tvistur var það kallað, ef garn var notað bæði í
uppistöðu og fyrirvaf. Rakið var á rakningsgrind. Jafnvel
farið á

p6
aðra bæi til þess,
ef ekki var hægt að koma grind við heima. Skilhælar voru fastir í
krísholtum. Rakningsstokkar voru sumsstaðar notaðir með 10 til 12
hólfum. Lykkjur voru á barmi hvers hólfs fyrir þræðina. Annars
voru víða notuð hvers konar ílát undir hnyklana. Alltaf var þráður
og garn undið í hnykla á völur, áður en rakið var. Sumir röktu á
5 þráðum, og fengu þá 10 þræði í feta, einu sinni niður og einu sinni upp
á grindinni. Aðrir röktu á fleirri þráðum, og höfðu fleirri þræði
í feta. Slanga nefndist rakin uppistaða. Hún var lykkjuð
upp af rakningsgrindinni, vo að hún ekki flæktist og hægara væri að meðhöndla
hana. Höföldin voru áður gerð úr vönduðum togþræði, en síðar úr seglgarni.
Beggja vegna augans var hnýtt þverhnút, en aðra hnúta veit ég ekki
um. Höföldin voru tekin af sköftunum. Undið utan um þau, og
geymd uppihangandi.

p7
Að setja til við,
að setja upp, var sumsstaðar talið tveggja daga verk. Talað var um
að leggja í kamb, aðrir að láta í kamb. Tvö skilsköft voru til þess
að halda silunum réttum. Að bóma var það kallað að vinda slönguna
upp á þráðarrifinn. Það var vandasamt og þurfti 3 menn til þess.
Rifskaftið féll inn í gróp í rifnum. Á því voru lykkjurnar
á slönguendanum. Kragar voru á báðum endum slöngurifsins, til að
halda að þráðunum. Á krögunum voru göt fyrir enda rifskaftsins, ennfremur
spengur sem uppistaðan vafðist yfir þegar byrjað var að bóma. Þar
með var all stöðugt. Á vefstað B, voru hliðargrindurnar eða vængirnir
tengdir saman að neðan með slám, en að ofan með bómum. Yfir þá fremri
lá voðin, en yfir þá aftari lá uppistaðan, og svo niður á rifina. Upp
úr vængjunum stóðu kjálkarnir. Yfir þá lá tréð, sem uppihöldin héngu
í

p8
og í þeim hékk slagborðið.
Tvo þurfti til að draga í höföldin. Annar rétti fram þræðina,
en hinn dró þá í gegn með skeiðarkrók,sem aðrir nefna krækju eða krók,
og stjórnaði sá verkinu. Einn dró í rittið, 2-3 þræði í hverja tönn.
Að hnýta fram var að hnýta þræðina á framhnýtingarteininn
eða voðarteininn. Mér skilst, að þeir hlutir, sem kallaðir voru sköft,
ef þeir voru úr tré, væri kallaðir teinar, ef þeir voru úr járni. Þrjú
snæri tengdu svo framhnýtingarskaftið eða teininn yfir frambómuna við voðarrifinn,
framrifinn,. Að draga fyrir var það nefnt að hefja vefnaðinn
með því að skjóta skyttunni í fyrsta sinn gegnum skilið.
Að gefa í hét að færa fyrirvafið með hendinni fram í skilið, í boga um
miðju, áður en það var slegið fram með slagborðinu. Færa: Þegar
bilið milli voðar og hafalda

p9
var of þröngt fyrir
skyttuna, var slakað á þráðarrifnum og undið upp á voðarrifinn. Hét
sá partur voðarinnar, sem færður var færa, og verkið að færa.
Lengd voðar var mæld jafnótt og ofið var með álnarlöngu bandi, sem sett
var við byrjun voðarinnar, og fært þegar alin var ofin. Að
fella voð var að klippa hana frá uppistöðunni. Það sem klipptist
frá hét afvikur. Þær voru notaðar til viðgerða, bæta flíkur og stoppa.
Þóf: Voðin var þvegin svo vel sem hægt var úr góðu
þvæli, og hreinu vatni, og síðan undin. Járnkarl eða önnur sterk
stöng var skorðuð þversum yzt í dyr, bæjardyrnar. Önnur stöng, t.d.
sterkur broddstafur, var tekinn og yfir þessar stangir var voðin lögð og
endarnir hafðir innan í. Sá sem vatt

p10
snéri svo upp á voðina,
með því að snúa lausu stönginni og toga í voðina. Annar var til aðstoðar,
fór höndum um hnúta og snurður. Víðast var þæft í fjósinu. Látin
var slétt hurð á auðan bás. Oft þurfti að taka nautgrip af básnum
og láta út í hesthús. Á hurðinni var voðin þæfð með því að troða
á henni og velta henni til með berum fótum. Menn voru mjög léttklæddir
við að þæfa. Oftar þæfðu karlar en konur. Stundum þæfðu tvær
konur saman. Alltaf fékk þófari, þófarabita og aukakaffi líka væri
það til. Voðin var hrist upp nokkrum sinnum, 3-4 sinnum. Tveir
hrisstu voðina, slógu til svo small í, teygðu og toguðu á alla kanta, lítinn
hluta í einu og færðu til á hurðinni. Farið var eftir útliti voðarinnar
og lónni, þegar ákveðið var hvort voð væri fullþæfð. Einnig urðu
smellirnir lægri og dimmari þegar fullþæfð voð var hrisst. Votaþóf
var þæft undir fótum í íláti með vatni í.

p11
Fullþæfð var voðin
hrisst og teygð vel og vandlega og vafin upp á rúmfjöl, látin á slétta
fjöl eða kistulok, önnur fjöl ofan á, og síðan farg, grjót. Undir
farginu var voðin svo í 2 daga, áður en hún var þurrkuð. Ekki mátti
þurrka nýja voð úti í frosti. Það var talið spilla efninu, ef það
fraus.

p12
Það er mest til að
sýnast, að ég svara ullar og tóvinnuspurningu 3. Ég hef ekki verið til
heimilis neinsstaðar, þar sem ofið var eða vefstaður upp settur, og get
því fáu svarað af eigin þekkingu. Að vísu man ég nokkurn vegin eftir
útliti vefstaðs í aðalatriðum, en þekki fátt af nöfnum, og einstök verksnöfn
eða vinnubrögð þekki ég ekki. Ég tók mig loks saman í andlitinu
og spurði gamla Ölfusinga: Önnu Bjarnadóttur og Jörgen Björnsson,
hjón frá Þurrá, og Sigurberg Jóhannsson frá Grænhól. Þau eru öll
yfir 80 ára, og minni þeirra farið að bila, og Þjóðbjörgu Jóhannsdóttur
frá Sogni, og er mest af þessu frá henni komið. Ég vona að þetta sem hér
er skráð, sé ekki rangt, þó það sé fátt.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna

Upprunastaður

63°57'36.3"N 21°16'1.5"W