Tóvinna

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1881)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1246 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1246

p1
Ull og tóvinna 3:
Ég byrja á þessum þætti, þó ég sjái að ég hef aldrei verið fær um
að svara nema litlu af því sem spurt er um, hvað þá nú þegar minnið er


p2
stórum bilað, og
víst er að miklu verður ósvarað. Þátturinn er hinn 15. í
tölunni, og er það falleg tala, ef hann yrði hinn síðasti. Ég hef
einnig dálitla von um að geta lagt eitthvað til, sem betur sé fengið en
ekki. Á bernskuheimili mínu var vefstóll, og ofið var þar
á hverjum vetri, og óf ég sjálfur dálítið á unglingsárum mínum. Er
það, sem ég sá á heimili mínu, nær því það eina, sem ég þekki til vefnaðar,
og verður frásögn mín því miðuð við það, sem ég þar sá og heyrði.
það var aðeins óbrotinn vefnaður, sem þar var ofinn, vaðmál og einskefta
til fatnaðar, en misjafnlega fíngerður, eftir því í hvað það átti að notast.
Ég sá á heimilinu salonteppi með nokkrum breytingum, en þau voru
aldrei ofin þar. Hið sama er að segja um glit. Mér skilst það
eigi að bíða næsta þáttar. Nokkuð var einnig á heimili mínu
um vefnað styttubanda og sokkabanda. Styttuböndin voru ofin með kvaðratmynduðum
spjöldum, nálægt 8 cm. á kant. Göt voru í hornunum, og í þau var uppistaðan
dregin eftir vissum reglum, eftir því sem litir áttu að skiftast, en böndin
voru ávallt í fleirri litum, og jafnvel ofin með rósum og myndum, sem litu
út eins og saumuð með krosssaum. Ekki voru þau bönd ofin á mínu heimili,
en aðeins af einföldustu gerð. Spjöldin voru þunn, smíðuð úr harðviði,
og þau sáust einnig erð úr surtarbrandi, hinum svokallaða viðarbrandi.
Þá voru ofin sokkabönd. Þau voru ofin

p3
á fæti, sem kallað
var. Þar voru engin spjöld, en skilið var gert með útbúnaði úr þræði,
sem settur var á uppistöðuna, og ég skildi ekkert í. Allt þetta tilheyrir
víst næsta þætti. Ég sá aldrei bækur með leiðbeiningum um vefnað.
Vefnaður: Ég held það hafi verið misjafnt, hve snemma vefnaður
byrjaði á heimilum, og svo var það á bernskuheimili mínu. Ég held
að aldrei hafi verið settur upp vefur fyrr en á jólaföstu, og jafnvel ekki
fyrr en eftir nýjár. En oftast mun honum hafa verið lokið fyrir sumarmál.
Ekki var það þó svo, að ofið væri á hverjum degi þann tíma. Ekki
man ég til að neitt sérstakt væri látið ganga fyrir. Held það hafi
farið eftir ástæðum í hvert sinn. Ekki get ég sagt glöggt hvernig
yfirumsjón vefnaðarins var hagað á heimili mínu. Faðir minn mun hafa
haft hana á hendi og ofið sjálfur meðan hann lifði, en ég var 7 ára, þegar
hann dó. Eftir það var það móðir mín, og óf hún einnig, en ávallt
voru fleirri, sem það gerðu. Á mínu heimili hafði vefarinn ávallt
öðrum störfum að gegna, og var því óákveðinn tíma dag hvern við vefstólinn.
Meira einn daginn en annann. Þar sem utanheimilismaður var fenginn
til að vefa, hefur hann ekki haft öðrum störfum að gegna, og þá verið við
vefstólinn ákveðinn vinnutíma, sem ég veit ekki hver var.
Ekki get ég sagt með vissu, hvað góð afköst þóttu á fullum vinnudegi, enda
voru afköstin misjöfn, eftir því hvað var ofið. Væri

p4
ívafið fíngert, munaði
hægar fram, og þá þurfti jafnframt að gæta meiri vandvirkni. Það
var með vefnaðinn eins og önnur verk, að misjafnlega var hann gerður og
misjafn var hvað kröfur heimilin gerðu. Var það húsmóðirin, sem þar
réðu mestu og setti svip sinn á allt innan heimilisins. Þar sem eins
var með húsbóndann utanhúss, þá voru slík heimili skólar þess tíma, skólar
sem að sumu leyti stóðu ekki að baki skólum nútímans. Ekki
veit ég hve gömul börn voru er þau byrjuðu að vefa, en misjafnt mun það
hafa verið. Ég man jafnvel ekki hve gamall ég var þegar ég byrjaði,
en vissulega hafði ég oft áður stolist í vefstólinn, þegar hann var auður,
af hinni barnslegu þrá til að gera það, sem ég sá fullorðna fólið gera,
og gera það eins og ég sá það gera. Það þekktist víst ábyggilega
að afbragðs vefarar fóru milli bæja, en ekki heyrði ég þess getið í minni
sveit. Aftur á móti tóku ýmsir vefnað af mönnum, sem ekki höfðu vefstól.
Var vefnaðarkaupið miðað við álnafjölda, og minnir mig ég heyrði
það væri 20 eða 25 aurar á alin. Um kaup aðfenginna vefara heyrði
ég ekkert. Ekki heyrði ég neitt um sölu vefnaðarvöru í minni sveit,
og víst var að aldrei var neitt þesskonar selt frá mínu heimili.
Vefstóll: Ég heyrði áhaldið kallað vefstað. Heyrði einnig
nafnið vefstóll. Virtist það minna notað, þó mér þætti það fallegra.
Ég heyrði sagnir af kljásteinsvefstaðnum, svo ég fékk nokkra hugmynd
um gerð hans.

p5
Minnist ekki hafa
hitt neinn, sem hafði séð hann. Tvær föðursystur mínar fæddar milli
1830 og 1840 höfðu aldrei séð hann. Kann ég engin skil á, nær hann
lagðist niður, en ég tel víst að í minni tíð voru engar leyfar hans til
í Súgandafirði. Um smíði vefstóla veit ég ekkert. Sá eiginlega
ekki nema þann sem var heima hjá mér, sem ávallt var hinn sami, þó stundum
kunni hafa þurft að gera eitthvað við hann. Ég sá að vísu vefstóla
á öðrum bæjum, og virtist þeir hafa sama svipinn, þó eitthvað kunni hafa
munað í smáatriðum. Ég hef því raunar ekki séð nema eina gerð, og
hún er í mörgum atriðum frábrugðin því, sem sýnt er á teikningunum A og
B. Heildarsvipurinn þó líkari B. Ég hefði þurft að gera teikningu
af honum, en hef aldrei verið góður í þeirri list, og er síst betri. Verð
ég því að gera lýsingu af honum með tilvísun til nefndra teikninga, og
reyni ég að gera það svo að heildarsvipurinn skiljist, þó ég sé í vafa
um ýms smáatriði. Nöfn á ýmsum hlutum vefstólsins þekkti ég fá.
Stuðlar nr. 2 á A, voru 4 og allir jafnháir eins og á B, og var
fram- og afturstuðull tengdir saman að neðan eins og sýnt er á A nr. 23,
en ekki heyrði ég nöfn á þeim. Að ofan var gerður tappi á stuðlana.
Náði hann þvert yfir, sagað fyrir þeim svo eftir var þriðjungur breiddar
á þann veginn. Borð gekk á milli fram- og afturstuðuls hvorrar hliðar,
hákvæmlega á sömu hæð og sýnt er á teikningu A. Ekki man ég hvort
það var jafnbreitt og sýnt er á B, svo báðir rifirnir gengu gegnum það,
eða annar búningur var fyrir

p6
þá, en báðir voru
þeir á sömu hæð. Þegar vefstóllinn var settur upp, voru hliðarnar
tengdar saman að neðan eins og sýnt er á teikningu A nr. 19 og 25, en ekki
heyrði ég nöfn á þeim. Ofan á stuðlana framan og aftan, gengu svo
slár, kallaðar bommur, gengu tappar stuðlanna upp í grópar í endum þeirra.
Endar bommanna náðu lítið eitt lengra. Setubekkur nr. 1 og
útbúningur fyrir hann, var mjög líkur og á teikningu B. Ekki
heyrði ég nafn á efsta stykki vefstólsins, sem ber númerið 10, en það var
nokkuð öðruvísi. Náði minna aftur en ívið meira fram. Mig minnir
að 2 stoðir gengju upp undir það með litlu millibili, og væru höföldin
á því millibili. Stykkið nr. 10 náði nokkuð lengra fram, en fremst
á því var lega, sem slagborðið hékk í, en um miðju þess legur fyrir hafaldarúllurnar
2, sem voru gild kefli með litlum trésnúðum með rauf í fyrir hafaldasnúrurnar
lágu í nærri endunum, en í enda keflanna var rekið sívalt járn, sem lá
í legunum. Mig minnir að stoðir þessar niður í efra borð hliðanna
næðu niður í neðra borð þeirra, amk. vinstra megin, en þar var ábyggilega
2 stuðlar mað ás á milli, sem hliðarsköftin 4 léku á. Þá var neðra
borðið milli afturstuðlanna útbúið með eyrum með ás í gegnum, fyrir fótasköftin
4, en þau náðu svo langt frá, að vefarinn gat náð að stíga á enda þeirra.
Þá voru 2 rifir, báðir undir vefnum, kallaðist afturrifurinn
slöngurifur, en hinn frefri taurifur. Þeir voru nokkuð gildur sívalningur
úr tré, en lítið eitt mjórri til endanna

p7
það sem gekk gegnum
hliðarborð. Gekk gildleikinn fast að borðunum, svo þeir gátu ekki
hreyfst til endanna, er þeir voru í vefstólnum. Sá endi sem rifshausinn
var á, gekk lengra út og var ferkantaður, það sem gekk gegnum hausinn.
Hausinn var nokkuð öðruvísi en á teikningu B, aðeins 2 endar til
að taka á, er undið var á rifinn. Þeir virtust gerðir úr plankabút,
nokkuð breiðir um miðjuna, þar sem rifurinn gekk gegnum þá, en mjókkuðu
til endanna, svo þeir urðu sívalir. Á enda rifsins, undir hausnum
var tannhjól gert úr járnplötu. Var það með stórum tönnum, líkt og
á stórviðarsög, tönnuhliðin með nokkrum halla, en beint inn í hjólið hinsvegar.
Ekki man ég hvernig hjólinu var fest á rifsendann. Stöðvari
úr 1.5 vm. breiðu járni var festur á hliðarborðið, sem rifurinn gekk í
gegnum, lék hann þar á sívölum nagla og lagðist niður á tennur tannhjólsins,
drógst hann upp eftir skáhlið tannarinnar, en féll niður er hann kom yfir
odd hinnar, og veitti mótspyrnu að drægist til baka, þó hætt væri að vinda.
Umbúnaður sá, er skeiðin var í, kallaðist einu nafni slagborð,
en ekki man ég nöfn á sérstökum hlutum hans. Hann var aðallega frábrugðinn
teikningunum, að hann hékk á efstu stokkum vefstólsins, þar sem áður er
getið legu hans. Stokkarnir beggja megin skeiðarinnar voru nær eins
og á teikningu A. Var rauf eftir þeim eindilöngum, sem skeiðin lá
í. Upp úr endum undirstokksins gengu spýtur festar í grópir í endum
hans. Þær voru samsvarandi nr. 6 á teikningu A, en að því leyti frábrugðnar,
að þær voru mun lengri og gengu ekki gegnum gat

p8
í efri stokknum,
heldur grópir í enda hans, sem voru svo djúpar og víðar, að hann varð liðlega
færður upp og niður. Breidd þessarar spýtu varð að vera ívið meiri
en þykkt viða þeirra sem slagborðið hékk á. Efst voru spýtur negldar
á hliðar þessar með sömu þykkt og hún. Náðu þeir armar nokkuð lengra
upp og var járnás settur í gegnum þá efst, og lá hann millum þeirra. Var
slagborðið albúið til að setjast á sinn stað og lögðust ásarnir í örmunum
í legurnar. Gæta þurfti þess að stilla ásana í örmunum þannig, að
þegar slagborðið héngi í legunum væri strekktur vefur í miðri skeið eða
ívið ofar. Var þá nokkuð bil milli skeiðar og hafalda. Mig
minnir að hausar rifanna væru ávallt á vinstri hlið við vefara. Vera má
það sé misminni, en ávallt voru þeir báðir á sömu hlið. Þegar vefstóll
var settur upp mátti hæglega setja þá á hvaða hlið sem var, án nokkurrar
auka fyrirhafnar, nema að færa þurfti stöðvarana á tannhjólunum, ef breytt
var um hlið frá því, sem áður hafði verið. Rendur bómanna
á fram og afturstuðlum vefstólsins voru gerðar ávalar, svo vefur og slanga
skemmdust síður og rynnu léttar yfir þær þegar slanga var undin á rif eða
vefur færður meðan á vefnaði stóð. Ég held ég hafi ekkert
frekar að segja, held mig hafa getið flestra nafna, em ég hef heyrt og
nokkurra hluta sem ég hef ekki heyrt nafn á. Ég vona að með hliðsjón
af teikningunum megi sjá heildar svipinn réttan, þó misfellur eða vafi
sé á ýmsum smáatriðum.

p9
Skeið: Það
áhald heyrði ég ávallt kallað skeið eða vefjarskeið. Aldrei sá ég íslenskar
skeiðar eða heyrði þeirra getið. Þær sem ég sá voru útlendar og nákvæmlega
eins að allri gerð og stærð, en ekki kann ég að greina lengd þeirra eða
breidd. Eini munur á skeiðum var sá einn, að tönnurnar voru misjafnlega
margar á kvartils bili. Voru skeiðarnar aðgreinar með tölu tannanna
á kvartilsbili, en vissi ekki hvað um margar gerðir var að ræða hvað tannir
voru flestar eða fæstar á kvartilsbili. Sá var einnig munur að tönnur
voru gildari þar sem þær voru færri. Á mínu heimili voru 2 skeiðar
með mismunandi mörgum tönnum, en báðar um 5 kvartil að lengd. Virtist
mér ekki mætti vera minna með hverjum vefstól.


Vefjarskytta: Ég
held efni skytturnnar væri vanalega beyki eða birki. Var þó óglöggur á
það. Að mig minnir, var hliðin, sem snéri að skeiðinni nokkuð bogin,
en hin bein um miðjuna, en mjókkaði til endanna. Þeir þynntust bæði
að ofan og neðan. Skyttan var nokkuð breið um miðjuna, og var þar
holað í hana rúm fyrir spóluna. Gert var op fyrir bandið af spólunni
í hliðin, sem að vefnum snéri. Það náði neðri hluta spólunnar, en var mjótt.
Við enda þess var settur messingvír eða klætt með messing, sem bandið
rann eftir, svo það gerði ekki skorur í opið.

p10
Spólurnar voru gerðar
úr tré. Voru þær mjóar um miðjuna en með hnúð til beggja enda. Það
sem hnúðurinn var, voru endarnir mjókkaðir til beggja enda með jöfnum halla.
Lítil hola var í endum gróparinnar í skyttunni fyrir enda spólunnar
og rauf niður í aðra þeirra sem oddurinn á spólunni gat farið um, eftir
að fyrri endanum hafði verið stungið í sína holu. Ég man ekki til
að aðrar spólur væru notaðar á mínu heimili, en farnar voru þó að koma
keflisspólur, og þurfti annar búnaður vera í skyttu fyrir þær.
Spólurokkur: Ekki þekkti ég spólurokka fyrir vefjarspólur, og hjá
mér var ávallt spólað á spunarokka. Gekk annar endi spólunnar inn
í pípuna á snældubúningnum, en við hinn var stutt með spýtu. Oftast
voru notaðir gamlir rokkar, en nýir rokkar skemmdust ekkert við það, og
vel mátti snælda vera í snældubúningnum, en væri garn á henni var betra
að taka af henni snúruna. Spanstokkur: Hann var kallaður
hjá okkur spjálk eða spelkur. Hann var gerður úr 2 jafnlöngum þunnum
borðfjölum, nál. 5 cm. breiðum. Sagað inn í hliðar annarrar fjalarinnar
og mynduð tunga með þriðjungs breidd á þeim enda hennar. Í hina fjölina
voru sagaðir 2 skurðir inn í annan endann og tekin úr miðjan, svo rúm fékkst
fyrir tungu

p11
hinnar fjalarinnar.
Þá voru boruð göt með stuttu millibili gegnum tunguna og álmurnar til beggja
hliða. Urðu götin á álmunum að standast á, svo sami vírinn gæti gengið
gegnum þær báðar, og orðið þolinmóður þegar hann gekk gegnum tungu hinnar
fjalarinnar milli álmanna. Stilla þurfti lengd spelkanna með því
að láta þolinmóðinn í hæfileg göt á tungu og álmum. Tveir vírtittir
voru í hvorum enda. Voru sperrur gerðar úr spelkunum yfir voðinni,
tittunum stungið í jaðra voðarinnar og spelkurnar lagðar slétt á voðina
og jaðrar hennar spenntust hæfilega út. Þá var snari á tungunni hennar
meginn við þolinmóðinn, og mátti hann ekki vera fyrir þolinmóðnum en svo,
að hann héldi álmunum niður er honum var snúið þvert á tungunni.
Að leggja upp og reikna í skeið og vef: Ég held best fari
að ég taki þetta sameiginlega. Það er allt sem ég tók ekki eftir,
sem sérstökum verkum, og heyrði engin nöfn á, en varð þó að gera. Í
bernsku minni var margur sem lítið eða ekkert kunni í reikningi, en gat
þó reiknað ótrúlega mikið í huganum og komist að réttri niðurstöðu. Vissulega
höfðu þeir mismunandi aðferðir. Það þarf meiri þekkingu en mína til
að skýra frá þeim. Ég hygg að ef það ætti að vera vel gert yrði það
mikið mál, hver sem það gerði. Efnið í vefinn kallaðist uppistað
og ívaf, sem einnig nefndist fyrirvaf. Efnið í vefinn þurfti að vera
fyrir hendi þegar byrjað var,

p12
sérstaklega uppistað,
við ívafið var hægt að bæta. Ég sá aldrei neitt til að grennslast
eftir lengd spuna á snældum eða hnyklum, en oft sá ég hnykla vegna, en
lengdin var ærið misjöfn, þó þunginn væri hinn sami. Ég heyrði talað um
vef með vissum lóðafjölda, en þekkti það ekkert. En víst er að spunakonur
fóru mjög nærri um hvort efnið var nægilegt. Við rakningu
var tvennt sem maður þurfti að vita: lengd vefsins og þráðafjöldi. Lengdin
var takmörkuð með undirlagningu á rakgrindina og höfð, að ég held, ívið
lengri en vefurinn. Aldrei sá ég þetta mælt á grindina, en ég hygg
að vanur maður hafi vitað nákvæmlega hve marga hringa á grindina þurfti
í hverja ákveðna lengd. Þó þráðafjöldinn væri ekki talinn,
var hann auðfundinn. Breidd vefsins var ákveðinn og þekktur var tannafjöldi
skeiðarinnar á hverju kvartili, og þá kom fram allur tannafjöldinn. Ákveðinn
var fjöldi þráða í tönn, og það með fundinn þráðafjöldinn. Nú var
vanalega rakið á 10 þráðum, 10 í feta, 20 í gang, upp og niður. Þá
þurfti ekki mikla kunnáttu til að finna hve marga ganga þurfti á rakgrind
og hafa menn hlotið að telja þá. Virðist þá öruggast að skrifa þá,
gera strik hvert sinn sem komið var að þeim skilhæl, sem farið frá í fyrsta.
Ekki man ég til ég sæi það gert, og getur þó hafa verið. Aldrei
vissi ég til að skeikaði í þessu. Einum gangi fleirri eða færri munaði
nokkrum tönnum í skeið. Þegar farið var að nota tvist í uppistöðu
vissi maður nákvæmlega hvað leggja mátti upp úr

p13
hverju pundi. Þetta
var eðlilegt. Tvisturinn var allur jafn að gildleika og sama breidd
á því sem ofið var. Með ívaf þurfti ábyggilega annann reikning
og lengdarmál kom ekki til greina. Ég tel enginn hafi getað svarað
því hve margar ívafsumferðir voru á kvartili, enda var það misjafnt og
kom þar margt til greina. Það var því ekki við annað en þungann að
styðjast og áætlun, sem byggð var á reynslunni, og fór það oft nærri. Þetta
gat þó munað nokkuð, þó ofið væri úr sama garni. Mismunandi ígjöf
hafði nokkra þýðingu í því efni, og þá ekki síður hve vel og jafnt vefurinn
var sleginn. Rakningsgrind: Hjá okkur var þetta áhald
ávallt kallað rakgrind og heyrði aldrei annað. Það var eiginlega
2 samkræktar grindur, nákvæmlega eins. Hvor grind var úr 4 viðum,
sem ég heyrði engin nöfn á, en vil kalla 2 stuðla og 2 þverslár. Þverslárnar
voru tryggilega festar í stuðlana, lítið eitt frá stuðulendunum, bæði að
ofan og neðan. Síðari grindin var gerð á sama hátt, en áður en síðari
þversláin var fest, varð að krækja grindinni inn í hina, en gæta þurfti
þess nákvæmlega að sama mál væri milli þverslánna og á fyrri grindinni.
Göt voru gerð nákvæmlega í miðju þverslánna á báðum grindunum. Þá
var gildur ..... gekk gegnum götin á þvertrjánum, urðu götin á þeirri grindinni,
sem ofar var að vera svo rúm að lyfta mætti grindinni á möndlinum. Hinsvegar
var traustlega umbúið að neðri grindin

p14
og öll grindin gæti
ekki sigið niður, en ekki veit ég hvernig það var gert. Þegar grindin
var reist upp, þá lágu þvertré efri grindarinnar jafnt á þvertrjám hinnar
neðri. Þá voru 2 svokölluð hælatré, sem í voru svonefndir
skilhælar, 2 í öðrum en 1 í hinum. Tré þessi voru sett á rakgrindina
þegar búið var að setja hana upp. Voru þau sett millum stuðla á hliðum
hennar sá með 2 hælunum að ofan en hinn að neðan. Hvernig þeim var
fest man ég ekki. Balbínur, balbínustól og rakningsspaða
sá ég hvorki né heyrði getið. Get því ekkert um það sagt.
Rakningsstokkur: Ég tel víst að á sumum heimilum hafi verið kassar
sundurhólfaðir fyrir hnykla þegar rakið var, þó aldrei sæi ég þá.

Hjá okkur var ávallt
rakið úr smákössum eða smáílátum, eftir því sem fyrir hendi var.
Rakning á rakgrind: Ég tel ekki hægt að benda á ákveðinn stað
hvar rakið var á heimilum. Húsakynni voru ólík og hlaut hver að velja
þann stað er hann taldi hentugastan. Hjá okkur var ávallt rakið á
gólfinu undir baðstofuloftinu, sem hentast þótti og minnst hindraði umgang.
Var þar gerður umbúnaður á loftbita fyrir efri enda mönduls grindarinnar.
Ekki man ég eftir nema einum við að rekja, en aðstoð fékk hann til að

p15
setja upp grindina
og undirbúa byrjunina. Ég þekki ekki aðra mælingu á rakgrind, en
ég hef áður sagt frá, talningu hringa á grindinni. Mig minnir að
skilhælar væru ávallt á hægri hlið manns, er maður stóð framan við grindina.
Þeir gátu eins verið á vinstri, en þeir urðu að vera á sömu hlið
bæði ofan og neðan. Ef þeir voru á sama horni bæði að ofan og neðan,
þá stóð á heilum hring, þegar komið var á enda. En það mátti mæla
1/4, 1/2 og 3/4 hrings með því að færa annanhvorn skilhælinn um 1, 2 eða
3 hliðar. Nánar varð ekki mælt. Þér talið um að setja 2 þræði
í hafald. Þetta var gerlegt, en ekki sé ég þar hafi sömu þræðirnir fylgst
í hafaldið, sem voru í gati spaðans. Ég vissi aldrei 2 þræði dregna
í hafald. Þeir hafa hlotið að vefast sem 1 þráður, sá munur einn
frá tveim þáttum í tvinnuðum þræði að þarna liggja þeir samhliða í stað
þess að vefjast hvor annan. Ég held best sé ég lýsi rakningunni
í heild eins og hún kom mér fyrir sjónir. Fyrst var að setja upp
rakgrindina. Hún var tekin fram og efri enda möndulsins stungið í
umbúnaðinn í loftbitanum. Þá var að búa undir hana og var tíðast
að settur var undir hana hæfilegur kassi, sem á var þykk fjöl með hæfilegri
gróp fyrir neðri enda möndulsins. Var grindin og grindurnar færðar
svo þær mynduðu vinkilhorn hvor við aðra. Þá var aðeins eftir að
festa hælatrjánum á sínum stað, svo grindin væri albúin og traust. Þá
voru rakningsílátin látin á sinn stað, hnyklarnir látnir í þau og maðurinn
tók enda þeirr í greyp sér. Ekki man ég til þess að völur væru hafðar
á þráðunum, en hafi það verið, hljóta það hafa verið nautsvölur.


p16
Ég man ég sá eina
nautsvölu með gati á heimili mínu. Hún var orðin gömul og margur
þráðarspottinn hafði farið gegnum hana. Gatið var allt skorið innan.
Mig minnir hún væri notuð á þráð þegar tvinnað eða þrinnað var, en
minnist hennar ekki við rakningu. Rakningsmaður fer nú að
rekja. Tekur endana í hendi sér, festir þá við eina skilhælinn, sem
er neðan og rekur upp, er það að leggja undir verður að gæta þess að hringatalan
verði rétt. Þegar komið er að skilhælnum sem fjær er endanum, skiftir
engu hvort hann fer fyrir ofan hann eða neðan, en fari hann fyrir ofan
bregður hann fetanum niður fyrir endahælinn og kringum hann niður fyrir
hinn hælinn og niður grindina. Fari hann í fyrst undir hælnum sem
hann kemur fyrr að, þá er þetta allt öfugt, og hann kemur á niðurleið.
Þegar fetinn fer undir hælnum á niðurleið fylgir hann neðri jaðri
slöngunnar eða er nálægt honum, undir hælinn að neðan, kringum hann og
upp með og svo áfram uns lokið er. Það er ófrávíkjanlegt að á uppleið
skal fara með hælunum með þeirri hlið og í fyrstu umferð og eins niður.
Gengur svo eftir sömu reglu uns lokið er. Meðan á rakningu stendur
verður rakningsmaður að líta eftir hnyklunum, að þeir hrökkvi ekki úr ílátunum,
sérstaklega þegar að lítið er orðið á þeim. Hann þarf líka að skifta
um hnykla áður en endinn skreppur af þeim. Þá þarf hann að gæta þess
að þræðirnir leggist sem jafnast og sléttast á grindina.
Þegar rakningu er lokið festir maðurinn fetaendann á hælinn. Þá bregður
hann þætti með hælunum gegnum skilin og bindur um þau beggja megin. Þá
er eftir að taka af grindinni, en hann verður

p17
að fá mann til að
styðja við hana, svo hún snérist ekki sjálfkrafa, svo slangan félli niður
eftir grindinni. Þá er tekið skilið fram af eina hælnum, sem oftast
var neðan, hnútur með lykkju gerður á endann og slangan eins og hekluð
í lykkjum uns komið var að enda. Þá var endanum brugðið gegnum hann
og hert lítið eitt að. Var slangan þá örugg til allrar meðferðar.
Ég hef þegar lýst skilum þeim sem gerð voru á skilhælunum.
Virðast þau ekki geta kallast annað en fetaskil, því þau gera þeð
eitt að þau tryggja að fetarnir verða í vefnum í sömu röð og þeir voru
látnir á grindina. Um þráðarskil finnst mér ekki hafi verið að ræða
fyrr en alsett var upp og farið að gera skil með höföldunum. Ég hef
þegar lýst rakningu á rakningsspaða. Maðurinn hélt þráðunum í greip
annarrar handar, en snéri grindinni með hinni og myndaðist borði á grindinni,
sem breikkaði eftir því sem rakið var. Þunnur til jaðranna, en nokkuð
þykkri í miðju. Að öpru get ég ekki lýst því frekar.
Fullrakinn vef heyrði ég ávallt nefndan slöngu og aldrei annað.

Vera má hann hafi
verið nefndur annað á grindinni meðan rakið var, einkum fyrst, þó ég muni
það ekki. Það má telja víst smáhandtök manna hafa verið nokkuð frábrugðin
hjá einum og öðrum, en ég get ekki lýst því nánar. Ég sá
aldrei rakinn vef úr tví- eða fleirlitu garni og þekki ekkert til útbúnaðar
við það. Ekki þekki ég heldur hlutföll milli lengdar slöngu og vefs.
Líklega hefur hún verið lengri, enda ónýttist ávallt nokkuð af báðum
endum.

p18
Aldrei sá ég rakið
á veggjahælum eða rúmstólpum og heyrði þess ekki getið. Held hvorugt
hafi þekkst hér í sveit. Hafaldagrind: Ég heyrði hana
aldrei nefnda öðru nafni. Hún var einfalt áhald gerð úr 5 spýtum,
sem ég heyrði engin sérnöfn á. Neðst var ferköntuð spýta og frá endum
hennar voru 2 nokkuð flatar spýtur grópaðar. Mörkuðu þær lengd hafaldanna.
Að ofan fjórða spýtan lík þeirri að neðan. Göt voru gerð í enda hennar,
svo hún gat gengið niður á þær sem upp stóðu. Þá var spelur mjór,
sem gekk upp og niður miðja grindina, og sem takmarkaði stærð augans. Ekki
man ég hvort honum var fest að neðan eða var þar í gróp og svo í annarri
að ofan þegar grindinni var lokað. Hafaldaefni og höföld:
Þegar ég man fyrst var hafaldaefnið togþráður. Reynt var að hafa
hann sem sneggstan, en ekkert sá ég gert til að gera hann sneggri, og þekki
enga aðferð til þess. Síðar var notað erlent netagarn. Rakið
var hafaldaefnið þannig, að maður tók endann í vinstri, en um þráðinn með
hægri hendi, brá honum unir il sér til að gera hespu, mátaði lengd hespunnar
svo hver umferð passaði í hafald og rakti svo áfram. Þegar hespan
var fullrakin var skorið upp úr henni þar sem maður hélt vinstri hendinni,
og var settur á heildina lauslegur

p19
hnútur.
Þá var hnýtingin. Maðurinn reisti grindina á hné sér með lausa rammann
upp, brá þræðinum fram fyrir hana og þegar komið var að miðspelanum, var
hnýtt báða vegu við hann og að síðustu hnýtt að grindinni næst manninum.
Myndaðist þar fax á hafaldinu, því endarnir voru ekki skornir frá hnútnum.
Gæta þurti að hnútarnir féllu þétt að, en ekki of fast. Ekki
þekkti ég nöfn á lykkjunum sem fóru upp á hafaldasköftin, en það sem uppistaðan
fór um kallaðist auga. Var áríðandi að þau væru jöfn. Mislöng
augu gerðu óglögg skil. Þegar grindin þótti full, var hún opnuð,
garni hnýtt í enda lykkjunnar og hnýtt að. Höföldin síðan geymd þangað
til þurfti að nota þau. Ég held hnúturinn á höföldunum hafi kallast
seilingarhnútur. Sá hnútur hnýttur lítur út eins og 2 lykkum væri
brugðið gegnum hvora aðra og hert að. Ekki get ég bent á ákveðinn
geymslustað fyrir höföldin. Hann varð að vera þurr svo þau fúnuðu
ekki. Stálhöföld þekki ég ekki.

Ekki vissi ég annað
til að aftra því að höföld færu fram af hafaldasköftunum, en hafaldasnúrunar,
sem hnýttar voru á enda skaftanna. Vefjarkambur: Hjá
okkur fetagrind. Það voru 2 ferkantaðir rammar nálega 2 þuml. á kant
og lengdin lík breidd vefstólsins. Stutt

p20
frá endanum voru
tvær um 2 þuml. breiðar, þunnar borðfjalir festar. Gengu þær gegnum
neðri rammann og náðu upp úr þeim efri þar ávallt var gert fyrir enda hans.
Síðan voru boraðar holur með jöfnu millibili milli fjalanna og keyrði
í þær sívalir trétindar að gildleika við blýant eða vel það, og þeir jafnaðir
að ofan. Síðan voru gerð göt í efri rammann, svo eyrun gætu gengið
upp úr honum, boruð göt á þau fyrir ofan hann og tréslpitti sett í. Þá
var grindin öll. Að festa upp: Svo hét verkið
í heild sinni frá því byrjað var í fyrstu þar til hægt var að fara að vefa.
Fyrsti undirbúningurinn var að koma slöngunni í fetagrindina. Grindin
var bundin á aftari bómuna og lokið. Þá var slangan tekin. Tekinn
endinn úr sem skilið var við og raktar upp nokkar lykkjur, leyst utanaf
fetaskilunum í þau látnar tvær skilfjalir, þunnir renningar nálægt þumlungs
breiðar og rúmlega breidd voðarinnar á legnd. Bundið var milli enda
þeirra svo þær rynnu ekki úr skilunum. Fjalirnar með skilunum voru færðar
nokkuð fram og skilin um leið, en aftara rifskaftið látið í skilið í endann.
Var þá farið að láta fetana í grindina. Það átti að láta sem
jafnast, en til þess þurfti maður helst að vita tölu feta og tinda í breidd
vefsins, svo sjá mætti hve jafnt væri hægt að láta í þá. Væri það
ekki, varð mismunurinn að dreifast sem jafnast. Það reið á, að sem
sléttast yndist á rifinn. Þegar þessu var lokið var grindinni lokað.
Slöngunni var

p21
jafnað sem best eftir
rifskaftinu, og það dregið niður að rifnum. Eftir endilöngum rifnum
var laut gerð með þunnum hefli með boginni tönn, sem passaði fyrir helming
skaftsins og á rifnum til beggja enda voru trékringlur. Götin í þeim
miðjum féllu að rifnum, en tekið var úr þeim á einum stað, var þar kringlótt
op, mátulegt fyrir enda skaftsins. Skaftið með slöngunni var látið
niður í lautina á rifnum og kringlunum smeygt upp á enda, svo það sat fast.
Þær voru stilltar þannig að yztu fetarnir féllu niður með þeim. Svo
var bundið um rifinn með snæri og vafið að kringlunum, svo þær hreyfðust
ekki. Þær voru ætlaðar til að halda að slöngunni á rifnum, og þurftu
að vera svo háar að nóg væri fyrir lengsta vef. Þá var hægt
að vinda á rifinn, en til þess þurfti fleirri menn.

Einn gerði ekki annað
en snúa rifnum, en ég held 2 hafi þurft til að halda í slönguna, svo áherslan
yrði jöfn. Hafa þeir þá skift henni milli sín. Vera má þetta sé misminni
mitt. Þegar verkið var hafið gekk það greiðlega, slangan gekk greiðlega
úr fléttunni og skilfjalirnar færðust eftir því sem undið var, gekk því
allt greitt uns því var lokið. Aldrei heyrði ég þetta verk kallað
annað en að vinda á rif. Hef ég lýst því svo greinilega og ég hef
minni til. Það sem ég tel mest hafi þurft að gæta að vel yndist á
rifinn, slétt og með jöfnum þrýstingi yfir allan vefinn.
Þegar búið var, var tekið úr fetagrindinni, og hún tekin. Skilfjalirnar
voru dregnar aftur að bómunni, þangað sem þær voru meðan ofið var, og endi
slöngunnar lá fram í vefstaðinn. Var hann svo langur að hann náði
fram fyrir skeið.

p22
Að draga í höföld
og skeið: Það var ekki margbreyttur vefnaður, sem ofinn var á þessa
vefstaði, en getur þó hafa verð margbrotnari en ég þekki, en þó svo kunni
að vera, hygg ég það órannsakað, hvort ekki er unnt að vefa í þessum vefstólum
áður óþekktan vefnað eða vefnaðarvend.

Þar sem hér var nær
eingöngu ofið vaðmál, var ídrátturinn ávallt hinn sami og uppbindingu þurfti
ekki að hreyfa. Vaðmál var ofið á 4 sköftum.

Tvo menn þurfti til
að draga í höföld, annar dró í höföldin, sat hann inni í vefstólnum framan
við höföldin. Sá sem rétti var aftan við höföldin, og man ég ekki
glöggt um hann. Hann varð að gæta þess að taka jafnan vissan feta,
en til þess varð hann að ná til skilfjalanna.

Hefur hann eflaust
fært þær eftir því sem honum fannst hagkvæmast. Að því mig minnir
var alltaf vani að byrja hægra megin við þann sem dró í. Vitanlega
mátti líka byrja til vinstri. Mundi það þó hafa haft áhrif á vend
þess sem ofið var. Skárákirnar legið til annarrar hendar, ef sama
röð var á ídrætti hafalda, en vendin orðið óbreytt, ef reglan hefði verið
öfug. Sá sem rétti tók fyrst ysta fetann frá, þó hann héldi fleirrum
í hendi sinni. Þá varð hann að gæta þess að taka þræðina greiða úr
fetanum. Þeir gátu verið flóknir fremst og varð að taka endann þar
sem hann var greiður, og draga hann úr því sem ógreitt var. Að síðustu
varð hann að gæta þess að vera búinn með fetann áður en hann byrjaði á
öðrum.

p23
Verk þess sem dró
í, var að draga þræðina gegnum augu hafaldanna. Hann varð að gera það eftir
ákveðinni reglu og aldrei láta útaf bregða. Reglan var ekki margbrotin,
varð skrifuð með 4 tölustöfum, 1234, nr. hafaldaskaftanna. En raðað
var tölunum eftir þeirri röð sem sköftin áttu að takast. Hann varð
einnig að gæta þess að ekki skytust framhjá auð höföld, en ekki var mikil
hætta á því. Þegar allt var komið í gang gekk þetta greiðlega. Maðurinn
sem dró í, lagði þræðina hægra megin við sig, og þegar nokkuð var komið
brá hann hnút á skúfinn og byrjaði á öðrum. Þá var að draga
í skeiðina, en til þess þurfti 2, annan sem taldi þræðina í hverja tönn
og rétti, hinn sem dró í, sat hann frammi fyrir skeiðinni. Sá sem
rétti var á milli hafalda og skeiðar, en ekki man ég hvernig hann kom sér
fyrir. Til að draga í skeiðina, var notað áhald sem nefndist skeiðarkrókur.
Hann var gerður úr blikki, mjór og nokkuð langur. Breiðari
sá endinn sem haldið var um, en hinn mjórri og fremst á honum var skarð
í þá röndina sem upp snéri. Voru þræðirnir látnir þar í og dregnir
gegnum skeiðina. Það var ákveðinn þráðafjöldi í hverri tönn, og varð
sá er rétti að telja þá og jafnframt gæta þess að taka þræðina í réttri
röð úr höföldunum. Sá sem dró í gat ekki séð hvort rétt var talið,
en hann varð að gæta þess að fara aldrei framhjá tönn. Það hefði
verið óþægilegt að bæta úr því. Eins og við höföldin, var hnýtt fyrir
endana framan við skeiðina, eftir því sem áfram munaði. Það tók ekki
mikinn tíma að draga í skeiðina.

p24
Að hnýta fram: Síðasta
verkið við uppfestinguna var að hnýta endunum á fremra rifskaftið, sem
vafðist upp á rifinn í enda voðarinnar. Ekki minnist ég þess að ég heyrði
á því sérstakt nafn, og man ekki ábyggilega smáatriði, sem vafalaust hafa
oft verið mismunandi og jafnvel hjá sama manninum. Ég geri lýsingu
mína eins og ég hygg hana réttasta, en þó kann þar að skeika í einhverju.
Bundið voru 2 snæri um rifinn, nær endunum, svo fjarri miðju að vefurinn
kæmist millum þeirra. Þau voru lögð upp á bómuna og hnýtt þar um
enda rifskaftsins og stillt svo til að skaftið væri bil frá bómunni og
jafnt til beggja enda. Þá var tekinn skúfur úr báðum jöðrum, og þeim
hnýtt á báða enda skaftsins og hélst það svo á sínum stað. Þá var
aðeins eftir að hnýta það sem eftir var á skaftið og var það fljótgert.
Best var að hnýtt væri á skaftið í sem minnstum lokkum, með því ófst
vefurinn fljótar saman, en hvort þess var ávallt gætt, getur verið annað
mál. Uppbinding: Uppbinding var í því fólgin að sett
voru tengsli frá fótasköftunum upp í hliðarsköftin, og úr þeim upp í miðju
hafaldaskaftanna. Þegar ofið var með 4 sköftum eða fleirri varð þetta
að gerast eftir ákveðnum reglum og því flóknari sem sköftin voru fleirri.
Að framan er lýst ídrætti þar sem 4 hafaldasköft eru, en það

p25
allt annað ef aðeins
var ofið á 2 sköftum, ofin einskefta, sem oft var gert, þó ekki væri á
hverjum vetri. Þar var allt svo einfalt sem það gat verið, við ídráttinn
dregið á sköftin á víxl og þess aðeins að gæta að aldrei færu 2 þræðir
samhliða á sama skaftið. Uppbindingin gat engin kallast. Stigið
var aðeins á 2 sköft. Ídráttur í höföld, uppbinding og stig
eru nátengt hvert öðru. Til að fá ákveðinn vefnað eða ákveðna vefnaðarvend,
verður að hafa ákveðinn ídrátt og honum verður að fylgja tilheyrandi uppbinding
og stig. Algengasti vefnaðurinn hér var vaðmálið og vaðmálsvendin.
Hún hafði þau einkenni, að skárákir lágu yfir vefinn, frá hægri til
vinstri eða frá vinstri til hægri og ég held hægt hafi verið að skifta
um það með því að stíga öfugt við regluna. En ekki hef ég sannanir
fyrir því. Ég varð þess einnig var, að fá mátti einnig vaðmálsvend
með breyttum ídrætti, og jafnframt breyttri uppbindingu og stigi. Á
einhvern hátt komst ég upp á að fá fram óþekkta vend, en vitanlega var
það með breyttum ídrætti, og tilheyrandi breytingum. Þetta var að
því leyti frábrugðið vaðmálinu, að í stað skárákanna voru mjóir teinar
langs eftir voðinni. Þetta þótti lagleg tilbreyting og var nokkuð
af því ofið á heimili mínu, en ég vissi ekki til það bærist út af því.
Þessi vefnaður fékk ábyggilega aldrei sérstakt nafn.
Ekki get ég greint formúlur eða reglur fyrir ídrætti, uppbindingu og stigi
þess vefjar, sem ég þekki. Það er algerlega gleymt.

p26
Vefnaðurinn: Þegar
búið var að binda fram á skaftið var allsstaðar bil á milli hnút og því
meira sem meira var í hverjum hnút. Þau bil teygðu sig fram í vefinn
og þurfti nokkra fyrirdrætti til að vefa þau saman svo jafn yrði. Ekki
man ég eftir sérstöku nafni á því er fyrst var farið að skjóta skyttunni
og yfirleitt man ég fá nöfn. Ekki skal þó tekið fyrir ég hafi heyrt
fleirri, þó ég muni það ekki. Spelkurnar voru látnar á svo fljótt
sem hægt var, og var vefnaðurinn þá fyrst kominn í fullan gang. Spelkurnar
voru stilltar á rétta lengd, tittunum í endunum stungið í naumu jaðrana,
en þó svo þeir höfðu fullt hald. Þá voru þær lagðar niður og snaranum
snúið svo þær hreyfðust ekki. Voru þær færðar eftir því sem ofið
var. Eftir það var vefnaðurinn óbreyttur og voru handtökin þannig,
að ég man best. Væri skyttan til hægri handar ýtti maður slagborðinu
aftur með vinstri hendi, og skaut skyttunni með hægri, greip hana með vinstri
og lét ívafið leggjast að vefnum, en hægri hendi stakk hann gegnum vefinn
og myndað á ívafið boga. Þá var skilið og slegið að með slagborðinu.
Þetta gekk svo eins til baka, en þá gerði vinstri hendin það sem
hægri hendin gerði í hinni fyrri og svo áfram til skiftis. Boginn
sem gerður var á ívafið kallaðist ígjöf og heyrði ég það aldrei nefnt öðru
nafni ásamt sagnorðinu gefa í. Ég sá aldrei gefið í á annan hátt.
Ígjöf með fleirri bogum hlýtur að hafa verið seinlegri og vandasamara
að hafa

p27
hana hafna. Það
hafði mikla þýðingu í að vefnaðurinn yrði góður, að ígjöfin væri jöfn og
hæfileg, en hún var aukin og minnkuð með mismunandi stærð bogans á ívafinu.
Þá reið ekki minna á, að vefurinn væri vel og jafnt sleginn, svo
hvergi grisjaði gegnum vefinn. Þegar búið var að vefa svo langt fram,
að of þröng þætti milli vefs og skeiðar, varð að færa til og vefja voðina
upp á rifinn. Það var kallað að færa, og það sem ofið hafði verið
frá því næst var fært, kallaðist einnig færa, en ekki heyrði ég á því önnur
nöfn. Til þess varð vefarinn að standa upp. Hann tók á höfði
afturrifsins og lyfti upp stöðvaranum og tók hann upp úr tönninni á hjólin,
vatt svo sem hæfilegt þótti upp á framrifinn og herti síðan á þeim aftari.
Þegar undið var á rif, hvort sem var slanga eða vefur, var ávallt
undið ofan á hann. Þegar framrifur gildnaði fjarlægðist voðin hné
vefarans, þar sem hún gekk niður á rifinn. Ekki man ég eftir það
kæmi fyrir að voð væfist saman, og heyrði ekkert nafn á því. Það
átti heldur ekki að eiga sér stað, ef spelkur eða spanstokkur, sem er betra
nafn, var færður nógu oft. Ef allt var í lagi átti ekki að reyna
meira eða öðruvísi á tennur skeiðarinnar í jaðri vefs, en annarsstaðar.
Mæliband var jafnan haft í vefnum meðan ofið var og var það látið
í vefinn þegar svo var komið að hann þótti góður. Það var alin á
lengd úr þætti og var hnútur á öðrum endanum. Var hnútnum brugðið
niður framan við það sem komið var, nærri jaðrinum og ofið að, síðan fylgst
með og hann færður þegar full lengd var komin. Alltaf gátu komið
einhverjar misfellur, og man ég best eftir

p28
sliti á uppistöðu,
sem oftast var eitthvað. Hafði vefarinn jafnan hjá sér hnýti af uppistöðuþræði
til að bæta með. Varð hann að hafa gát á þessu, finna þráðin, greiða
hann og bæta. Mest bar á þessu í einstaka voðum og þá gegnum þær
allar. Verst vissi ég þetta vera í erlendum lituðum tvisti, sérstaklega
svörtum. Aldrei heyrði ég þetta talinn neinn fyrirboða á mínu heimili,
enda var illt að kenna það aðsókn einstaks manns, þegar ófögnuðurinn stóð
yfir allan vefinn. Það var sagt stafa af gallaðri uppistöðu og að
því sem tvistinn snerti, að hann væri skemmdur í lituninni, og kölluðu
hann litbrenndan, en þó einn og einn þráður slitnaði vakti enga eftirtekt,
það var dagleg venja. Að koma slöngu eða voð á rif heyrði
ég aldrei kallað annað en að vinda á rif, og á einstaka brögðum, heyrði
ég aldrei sérstök nöfn. Að fella vef: Ég tel mig aldrei
hafa heyrt annað nafn á þessu verki, var það fljótgert og óbrotið. Haldið
var til að vefa svo langt sem unnt var. Skilfjalrinar færðar sno
nærri skaftinu sem unnt var, og þær síðan færðar það næsta höföldunum,
sem þær máttu vera, svo unnt væri að gera skil. Þá var ofið fram
það sem hægt var og síðan uppistaðan skorin framan við skeiðina, en dálítill
spotti stóð fram úr vefnum. Nöfn á afgangi heyrði ég engin. Þá
var dúkurinn tekinn af rifnum og undinn í rúllu.

p29
Þóf: Mér verður
ábyggilega svarafátt við sumum spurningunum viðvíkjandi þessu. Því
er svo varið, að ég veit eða man ekkert viðvíkjandi undirbúning voðarinnar
undir þófið, hvernig hún var vætt og hituð, og að síðustu undin áður en
byrjað var að þæfa. Ég tel að kvenfólkið á heimilinu hafi annast
það og hafi það verið gert í eldhúsinu. Ekki minnist ég að ég heyrði
nein sérnöfn eða orðtæki í sambandi við það. Aðal umsjónina með þófinu
hafði húsmóðirin. Hún fylgdist með hvað því leið og ákvað nær það
væri orðið gott. Hjá okkur var ávallt þæft á baðstofuloftinu í þeim
enda baðstofunnar sem betur þótti henta. Var gólfið þvegið áður en
byrjað var. Ég tel víst að á hverju heimili hafi verið þæft þar sem
hentast þótti, en það gat verið mismunandi. Ég sá aldrei voð þæfða
nema undir fótum. Ég heyrði talað um að þæfa í tunnu, en sá það aldrei.
Sagt var að þar héldist hitinn betur á þófinu, og þófnaði fljótar.
Votaþóf þekki ég ekki. Menn voru léttklæddir við þófið. Það
var allerfitt verk, tók nokkrun tíma og vinna varð af kappi til að halda
þófinu vel heitu. Þófið var þannig, að þófarinn stóð á voðinni, þar
sem hún var látin í hrúgu á gólfið, trauð hana og þvældi á alla vegu undir
fótunum, en varð jafnan að gæta þess hún héldist saman og dreyfðist ekki
til langframa. Þegar nokkuð var liðið á þófið fór húsmóðirin að athuga
það með stuttu millibili. Ekki man ég til hún gerði annað en athugaði
það á nokkrum stöðum. Ekki get

p30
ég greint ljóslega
hvers var krafist til þess að vel þætti þæft. Það var ábyggilegt
að þófarinn fékk jafnan einhvern aukabita, en ekki minnist ég þess það
væri í neinni ákveðinni mynd og get ekki lýst því. Ég tel mig hafa
heyrt það kallað þófarabita, en getur þó hafa verið með fleirri nöfnum,
eftir því í hvaða mynd það var. Ekki kann ég neina vísu um þóf eða
þæfingu, minnist ekki hafa heyrt neina. Á mínu heimili var það heimilisfólkið,
sem þæfði og vann að þófinu, og fékk það engin aukalaun fyrir. Býst
ég við svo hafi verið víðar. Þegar voðin var fullþæfð var
hún illa útlítandi og ærið krippluð og þörf á að slétta hana. Þetta
var gert með því að hrista hana. Það var gert á þann hátt að 2 konur
stóðu með litlu millibili, tók önnur í enda voðarinnar, en hin tók hana
upp hjá sér. Báðar tóku þær í jaðra voðarinnar, strekktu hana millum
sín, hófu hendurnar upp og héldu þeim saman, þá kipptu þær samtímis báðum
höndum snögglega til beggja hliða, og kvað þá við hár hvellur og laus ló
þaut í allar áttir. Ef vel átti að vera urðu stúlkurnar að vera vel
samtaka, varð hvellurinn þá meiri og var góður hvellur öruggur vottur um
góða hristingu. Brátt fór voðin að sléttast og var haldið áfram með
þessa færu þar til hún þótti góð, þá var tekin sú næsta og svo koll af
kolli, uns lokið var. Þá var eftir að þurrka voðina og minnir mig
það væri gert í hjalli, í lykkjum á snúrum eða rám. Ég heyrði eitthvað
talað um lóskurð, en minnir það væri mest í sambandi við hraðskyttuvefnað,
en ég þori að fullyrða,

p31
að af bæjum hér var
vefnaður aldrei sendur til lóskurðar.

Á liðinni öld hefur
heimavefnaður verið almennur, en þó ávallt nokkrir bæir verið sem ekki
höfðu vefstól. Þess hefur verið getið að svo var í bernsku minni
og virtist mér húsakynni þar víða svo þröngleg, að vefstól varð þar ekki
komið fyrir. Framan af öldinni var fjöldi smákota með ýmsum jörðum
í hreppnum, raunar sjaldan öll í ábúð. Var þar síst um betri húsakynni
að ræða og hafa því enn fleirri bæir verið sem engan vefstól höfðu. Hraðskyttuvefstóll
kom hingað að mig minnir á öðrum tug þessarar aldar. Maður sem flutti
hingað hafði hann með sér. Hann hafði áður ofið töluvert og margbreytt,
en var hættur fyrir nokkru. Hann hóf þó ekki vefnað en stundaði aðra
iðn. Vefstólinn seldi hann, og hafa orðið nokkur eigendaskifti á
honum síðan, og er hann hér víst til enn. Eitthvað hefur verið ofið
á honum, en lítið er það og fábreytt. Ég þekki þetta lítið og það
er víst þessum þætti óviðkomandi. Vefnaðarsýnishorn: Það
hefði verið gaman að geta sent safninu sýnishorn af súgfirskum vefnaði,
en ég hygg til einskis sé að fara að leita hans. Nú er langt síðan ofið
var á þessa vefstóla, og enn lengra er síðan mest var notað erlent enfi
í betri fatnað, sem tíðast

p32
hafði betri endingu
og jafnvel verksmiðju unninn vefnað í flestan fatnað. Ég tel því
engar líkur til að hér finnist flíkur úr heimaunnum vefnaði. Þegar
hætt var að nota þær voru þær teknar í sundur til einhverra notkunar, væri
einhver heil brú í þeim. Annars var þeim kastað. Þá
hef ég farið yfir þennan þátt og gert honum þau skil, sem ég get. Það hefur
gengið fljótar en ég gat búsist við, og það hefur orðið fyrirferðar meira
en mér kom til hugar, er þó mörgu ósvarað, en sjálfsagt margt óþarft sagt,
en það ætti ekki að vera skaðlegt. Hitt er lakara hvernig frágangurinn
er. Það er tvísýnt það verði lesið eða skilið á sumum stöðum. Ég
verð að biðja góðfúsa lesendur að afsaka það, eg get það ekki betur. Verk
mín hafa alltaf gölluð verið, og nú er ég orðinn óhæfur til alls.
Ég sé ekki að sé til neins að ég skrifi á blaðið með teikningunum
þau fáu nöfn sem ég þekki eða man. Teikning A er mikið frábrugðin
mínum vefstól, og ég hef getið allra nafna sem ég man á honum með lýsingunni,
sem ég hef reynt til að gera sem skiljanlegasta. Hvernig sem það
hefur tekist.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóvinna
Efnisorð:
Ull