Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1895)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1251 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1251

p1
Ull og tóvinna.
Vefnaður var ein af mestu nauðsynjum íslenzkra sveitaheimila hér áður fyrr,
því mest allur ígangsfatnaður var spunninn og ofinn heima, að viðbættum
rekkjuvoðum og ábreiðum. Víða voru vefstólar til á heimilum, en víða
voru menn sem tóku vefnað af öðrum, og sömuleiðis voru til vefarar, sem
ferðuðust á milli bæja að vefa. Rakgrindur voru ekki eins algengar,
og var þá farið með vefjarefnið þangað sem hægt var að fá það rakið. Var
síðan þráðurinn undinn á þessa grind, þegar búið var að átta sig á því
eftir föngum hvað mátti leggja í langann og breiðan vef úr efninu. Var
gott að finna það út, ef uppistaðan var í hespum með knekkum og vissum
þráðafjölda, en væri þráðurinn í hnyklum varð allt meiri ágiskum, en reynsla
og hyggjuvit gerði mönnum fært að fara nærri um það. Rakgrindin var
venjulega höfð í einhverju framhýsi. Þegar búið var að rekja í vefinn,
sem ég kann ekki að lýsa nánar, var slangan tekin af grindinni og vafin
á

p2
kefli það í vefstólnum,
sem geyma átti þráðinn og skila honum jafnóðum og ofið var. Þar næst
var að draga í höföldin og varð að vanda til þess eins og alls undirbúnings
undir vefnaðinn. Var annar aftan við og rétti í gegn, en hinn tók
við og hnýtti endana saman í smáskúfa, til að tapa þeim ekki aftur í gegn,
þangað til dregið var í skeiðina. Höföldin munu oft hafa verið úr
togþræði, en vandinn var mikill að fá þau nógu snögg, svo efalaust hefir
verið keypt seglgarn til þeirra hluta þegar hægt var. Ekki veit
ég hvort vefjarskeiðar sem ég sá voru innlend eða erlend smíði, en þær
voru úr járn eða stálþynnu á brúnum og einskonar vír á milli, sem kallað
var tennur. Munu hafa verið algengasta 80-90 tanna skeiðar. Var
þráðunum jafnað í þessar tennur með áhaldi sem nefndist gikkur. Var
það látunsþynna með krók á öðrum endanum, sem stungið var á milli tannanna
og þráðurinn

p3
kræktur í gegn. Síðan
voru endarnir festir við þar til gerð skaft, og úr því skafti lágu spottar
með jöfnu millibili sem festir voru við voðmeiðinn. Þá var að opna
skil á vefinn með því að stíga á skammelin, festa enda á ívafinu og skjóta
skyttunni í gegn, síðan var stigið á skammelin eftir því hvaða áferð átti
að vera á vefnum, einskefta, vaðmálsvenda. Skytturnar voru úr tré
með einhverjum hálum renningum neðan á svo skyttan rinni betur eftir þráðunum.
Spólurnar voru úr málmi að minnsta kosti snúðarnir. Oftast
munu gamlir rokkar hafa verið notaðir til að spóla ívafið, annaðhvort fest
á snælduteininn eða tein sem skorðaður var í bandpípuna. Mikið þurfti
að vanda spólunina, því það gat illa tafið vefarann ef ekki rann greitt
af spólunni. Það mun hafa verið erfitt verk að vefa, væri unnið af
kappi, svo altaf væru látlaus högg, en á smærri heimilum mun þetta oftast
hafa verið ígripavinna með

p4
öðrum verkum. Unglingar
þurftu að vera vel vaxnir úr grasi til að geta ofið, bæði náð niður á skammelin
og í skeiðargrindina. Smásaman þurfti að gefa eftir á slönguvefnum
og vinda uppá voðvefinn eftir því sem á gekk voðina, að síðustu var svo
lítið eftir að ekki var hægt að vefa lengra. Þá var vefurinn tekinn
niður og kastað lauslega í endann svo ekki losnaði um ívafið, og síðustu
endarnir klipptir frá. Þessi afgangur var nefndur neðangangur
og var eftirsóttur til að nota sem þarfaspotta, bæði til að bæta með og
þræða. Þá voru öll föt og plögg bætt, svo nóg var við spotta að gera.
Það var ekki fyrr en eftir síðustu aldamót að það fór að tíðkast
að stoppa í sokka, og öll föt voru bætt á meðan þau héldu bótum.
Þá var komið að því að þæfa voðina. Var þá hitað vatn í stórum potti
fram í eldhúsi, síðan var vatnið látið í stamp

p5
og bætt í það stæku
hlandi eftir þörfum, var það venjulega notað á ull og ullarföt, og leysti
óhreinindin mikið betur en sápa og sódi, síðan var voðinni troðið ofan
í stampinn og þvæld aftur og fram þar til óhreinindin voru laus. Þá
var náð í endann og voðin vafin um 2 prik þannig að bil var á milli, síðan
tóku tveir menn sitt prikið hvor og undu þannig voðina á milli sín, með
því að halda í endana á prikunum og snú þeim þangað til ekki var hægt að
vinda betur. Ef þurfa þótti var skolað á eftir úr hreinu vatni og
þá undið á sama hátt. Nú var næst að útbúa stað fyrir þófið, var
það venjulega eitthvert horn í baðstofunni sem hægt var að girða af með
einhverjum húsgögnum. Ef laus botn var í einhverju rúmstæði, sérstaklega
ef það stóð autt, var fjarðlægður helmingurinn af botninum. Væri
gólfið svo gott að hægt væri að þvo það nógu vel, var ef til vill notast
við það,

p6
en annars fleka eða
hurð. Þarna var vaðmálið látið í eins fyrirferðarlitla hrúgu sem
hægt var. Því næst kom þófarinn, sem var búinn að kasta af sér ytri
klæðum og stóð það sokkalaus á nærbrók og skyrtu einni saman. Húsmóðirin
aðgætti hvort fæturnir væru vel hreinir og þá var allt tilbúið að fara
að þæfa. Hann studdi höndum fram á borð eða annað hæfilega hátt og
tróð síðan og stappaði með fótunum og passaði umleið að ekki dreifðist
of mikið úr þófinu. Ekki þótti það gott eða skemmtilegt verk að þæfa
fótaþóf og var oft vikið að þeim bita og sopa framyfir aðra, þófarabita,
og oft munu þeir hafa haft yfir einhver kvæði eða þulur sér til afþregingar.
Ein þeirra var á þessa leið: "Bárður minn á Jökli- Þrándur minn
í Götu - leggstu á þófið mitt.- Ég skal gefa þér lóna - innan í skóna
(illeppa í skóna) - hálfskeifu og nagla þrjá - og láttu ganga þófið þá.


p7
Á meðan á þófinu
stóð þurfti annað slagið að "toga upp voðina, tóku tveir hana þá á
milli og toguðu hana og teygðu á milli sín eins og þegar brotinn er saman
rúmfatnaður, og færðu sig smásaman til þar til voðin var á enda. Þótti
hún verða áferðarfallegri ef það var gert. Svo kom að því að nóg þótti
þæft, eftir að búið var að toga hana í síðasta skifti, var komið með rúmfjöl
og vefurinn vafinn um hana. Var hún látin liggja á borði og vefurinn
vafinn um hana og strokinn og teygður sem kostur var á um leið. Þar næst
var þurru stykki vafið utan um og gengið frá henni neðarlega í höfðalagi
einhvers rúmsins. Höfðalög rúmanna voru venjulega geymslustaðir fyrir
samanbrotin föt og nú var fjölinni með vefnum komið þarna fyrir og látinn
pressast í nokkrar nætur. Þar næst var hann tekinn og vafinn ofan
af fjölinni og breiddur til þerris, út á þvottastagi ef veður leyfði

p8
annars einhverstaðar
innanbæjar. Þegar vefurinn var orðinn vel þurr, var hann tekinn og
vafinn fast og vel upp á skaft eða kefli og geymdur á því þangað til farið
var að sauma úr efninu. Vandaðir dúkar voru sendir til lóskurðar
og pressunar, en á því kann ég ekki frekari skil.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna