Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1899)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 3061 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 3061

p1
Ull og tóvinna 3:
Meðfylgjandi þjóðháttarskrá mun ég hafa fengið í hendur vorið 1966,
frá Þór Magnússyni. Það er því orðinn ansi langur ómagahálsinn á
svörum mínum. En í bætiflákann er það helst að bera, að ég hefi stundum,
sem síðan þá ekki verið vel frískur. Þó að mestu valdi hitt, að ég
mun áður hafa verið búinn að svara öllu, sem ég vissi og kunni full skil
á, um svipað efni. Ennfremur minnir mig fastleg, að ég hefði nokkuð
lengi í huga, að leita fræðslu hjá gamalli kunningjakonu minni, viðvíkjandi
þessarri skrá.

p2
En af mun aldrei
hafa orðið, og nú er það of seint. Að ég skrifa þetta núna er mest til
þess að hafa það ekki lengur á samviskunni, að hjá mér liggi svarlausar
þjóðháttarskrár, en í raun og veru komst ég aldrei í verulega snertingu
við þessa hluti, og auk þess búinn að gleyma því litla sem ég vissi ungur.
Það sem ég enn man með fullri vissu er, að faðir minn átti vefstól,
ýmist nefndur vefstóll eða vefstaður, og óf eitthvað á hverjum vetri, þar
til hann seldi eða gaf bróður sínum vefstólinn, veturinn 1911-12, að ég
ætla. Ég hygg að faðir minn hafi ekki verið sérlega mikill eða listrænn
vefari, þó man ég eftir

p3
að hann óf stór verk,
margra álna löng, og að þau voru þvegin uppúr hlandþvæli og síðan farið
með þau út á hlað og skoluð í bæjarlæknum, endarnir síðan festir í hjall-
eða skemmuþil, en digru priki, sem kallað var "snarvölur" stungið
í lykkjuna og síðan snúið upp á af öllu afli til þess að vinda þvælið og
vatnið úr voðinni, uns snurður hlupu á hana, svo að hún mátti heita þurrundin,
þá hengd upp á snúrur og þurrkuð til fulls. Ég man líka eftir
áhaldi, sem kallað var spjálk, og faðir minn hafði til þess að halda út
jöðrunum á voðinni í vefstólnum. Áhald þetta var með smátönnum á
endunum,

p4
sem stungið var í
jaðra voðarinnar, en í miðjunni á spjálkinni, var einskonar þolinmóður,
svo lengja mátti hana og stytta, að einhverju marki. Skeiðin í vefstóli
föður míns mun vissulega hafa verið erlend að uppruna, því hún var úr járni
og þétt, þ.e. lítið bil á milli þráða. Ég man líka að mikið vandaverk
þótti að setja vefinn upp, og mun það einkum hafa verið verk móður minnar,
sem var vel að sér í öllu er að tóskap og saumaskap laut. Það er
rétt svo, að ég man eftir hlutum og áhöldum eins og skytta, spóla, höföld
osfrv., en að lýsa þeim nánar og notkun þeirra, treysti ég mér ekki svo
að not verði að.

p5
Áður en ég lýk þessu
fátæklega skrifi, vil ég geta þess, að á uppvaxtarárum mínum í Steingrímsfirði,
var þar kunnastur vefari og í mestum metum, Soffia á Sandnesi, dóttir Torfa
alþingismanns á Kleifum á Selströnd. Hún var þá að vísu komin nokkuð
til aldurs, f. 1842, en óf samt enn ásamt Guðbjörgu dóttur sinni, konu
fræðaþulsins Sigvalda Guðmundssonar. Hún var ekki hvað síst listrænn
vefari, og þær mæðgur allar ófu svonefnda "vormeldúk" í spariföt
karlmanna, salúnsábreiður í stórum stíl, og einnig, að ég hygg, þótt ég
viti það ekki fyrir víst, glitofin áklæði og brekán. Með fullri vissu
man ég það, að í æsku minni var til á heimili foreldra minna glitofið

p6
söðuláklæði og glitofið
brekán, allt litað úr jurtalitum, frekar fölum, ekki skærum. Að vísu
má vera að gripir þessir hafi verið úr búi ömmu minnar, Ingveldar Finnbogad.,
því að slitnir voru þeir nokkuð, einkum brekánið.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna