Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1901)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1238 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1238

p1
Ull og tóvinna 3.
Það hefur í rauninni enga þýðingu fyrir mig að fara að fást við
þessa skrá, því um vefnað veit ég ekkert. Lengi var regla
á sveitaheimilum að vinna ull eingöngu heima, það sem heimilisfólkið þurfti
til fata og rúmfatnaðar. Var þetta lengi nær allt úr ull. Þetta
var þá ofið þar til prjónles er uppfundið og ryður sér til rúms. Eftir
það tíðkast þetta tvennt jöfnum höndum. Eftir að ég fer að muna,
er oft hafður tvistur í uppistöðu, en það þær stutt. Vefnaður
mun hafa hafist svo fljótt sem haustannir minnkuðu, svo að það væru tiltök.
Allataf mun það, hvað fyrir var látið sitja að hverju sinni, verið háð
þörfum og getu hvers einstaklings um sig, eða öllu heldur heimilis.
Karlmenn ófu sem oftast, en til mun einnig hafa verið að konur ófu.
Væri enginn vanur maður til, var einhver sá sem líklegastur þótti látinn
byrja á því. Til var að einstaklingar ófu heima hjá sér fyrir aðra,
en ekki títt. Hversu lengi maðurinn var að, mun mest hafa verið því
háð, hvort ann þurfti að sinna öðrum störfum eða ekki. Þar sem ég þekkti
var það oftast húsbóndinn sem óf, en ekki var það nein undantekningarlaus
regla. Til var að heimamenn skiftust einhvern veginn á um það, eftir
því sem hvor eða hver hafði tóm til frá öðrum störfum.

p2
Ræður því af líkum
að engin regla gat orðið undantekningarlaus um tímalengd og tilhögum í
vefstólinn. Sæti maður í vefstól allan daginn, heyrðist mér
það þykja lítið, ef hann náði ekki að vefa 20 álnir, en oft mun hafa verið
ofið miklu meira á dag, líka minna. Á meðan vefstólar voru
stórir og þungir, og allt miðað við alm. voðir, segir sig sjálft, að til
hefur þurft fullorðið fólka að vefa. Unglingar tóku áður mun síðar
út þroska, en nú gjörist, og yfirleitt var heldur sú stefna ríkjandi að
láta ekki unglinga fara að glingra við vandasöm störf, fyrr en þeir höfðu
þroska til að leysa þau vel af hendi með sómasamlegum afköstum.
Ekki er mér kunnugt um ákveðið greiðsluform fyrir vefnað, en hygg
að beinar greiðslur hafi miðast við álnatal. Svo er alkunnugt frá
eldri tíð, að greiðslur voru óákveðnar, en hver gjörði öðrum greiða, eftir
því sem efni og föng stóðu til, og varð það furðu sjaldan að misklíð, svo
skiftin jöfnuðust furðu þægilega. Aðeins heyrði ég í daglegu
máli nefndan vefstól. Kljásteinavefstóllin var í minni tíð ekki nefndur
nema sem fornaldar fyrirbæri, og engar sagnir heyrði ég um hans tilveru
öðruvísi en það. Aldrei sá ág eða

p3
hafði spurn af neinu
sem honum var tengt. Hygg ég hinn "nýja" gafa rutt
sér ört til rúms eftir að Skúli kom með hann, og þó hann hefði ekkert annað
gjört fyrir þjóð sína, en það, ætti það að hafa dugað nafni hans til langlífis.
Um smíði vefstóla veit ég lítið. Á Bóndastöðum, en
þar var ég í 7 ár, var þá þar nýlega smíðaður vefstóll, eftir Karl Magnússon,
sem var bróðir húsbóndans, nýlega lærður trésmíður af Akureyri. Þessi
vefstóll var sá fyrirferðarminnsti og hagkvæmasti sem ég sá, þar til vefstóllin
sem Björn Helgason útvegaði ÞJMS nú í ársbyrjun 1966. Allir aðrir
voru mun fyrirferðameiri að ofan, en hagrænt var, og líka stærri um sig.
Þessi stóll var notaður árlega fram um 1920 eða svo lengi sem ég
fylgdist þar með. Hvorki þekkti ég tvíbreiðan vefstól eða önnur slík
afbrigði. Ég veit ekki í hverju hraðskyttuútbúnaður var fólginn.
Mörg heimili áttu vefstól, en þau sem ekki áttu þá, urðu
auðvitað að bjargast á góðu samkomulagi við náungann og hjálpsemi hans.
Bæði gat komið til greina að fá vefstól að láni, en allra hluta vegna
held ég fremur hafi vefnum verið komið fyrir hjá einhverjum,sem gat og
vildi vefa hann. Vefstólar voru örðurgir í flutningi, fyrirhöfn

p4
ærin að taka þá sundur
og setja upp aftur. Rúmfrekir þar sem þröngt var. Bóndastaðavefstóllinn
líktist mest B, en þó með frávikum. Þeirra mest var að skeiðarhaldið
hreyfðist á þolinmóði að neðan í hliðarstykkjunum. Setubekkurinn hékk í
krókum, ofl. smávegis bar þeim á milli. Vefjarskeið þekkti
ég aðeins með því nafni, heyrði aðeins nefnt ritti. Þær sem ég sá voru
aðeins með stáltönnum, og ógjörlegt að vita fyrir víst, hvort þær voru
smíðaðar hérlendis. Hygg þær þó fremur útlendar verið hafa. Ekki
sá ég þær nema af einni lengd, grófleiki þeirra var talinn tölum, en við
hvaða lengdarmál þær miðust, veit ég ógjörla (60 tanna skeið, 80 tanna,
og mig minnir að heyra nefndar bæði 40 og 100 tanna skeiðar, en sá aðeins
það algengasta, sem mig minnir aðværi um 70). Ekkert veit ég um skeiða
smíði. Af efni í tennur kæmi einkum til greina hvalskíði og látun,
en harðviður í kjálka. Þær skyttur sem ég sá, voru helst
úr birki, sem er létt og slétt og þægilegt að vinna. Neðan í þeim
voru látúnsteinar, sem slegnir voru flatir, þunnir og fjaðurmagnaðir (skíðin),
svo þær rinnu léttar. Spóluteinninn var úr

p5
járni, stundum látúnsvír,
fyrir endana voru lagðar hlífar umhverfis oddana úr látúni eða eir, og
slípaðar vandlega, svo hvergi væri arða sem festist í þræði. Í auga
skyttunnar var oftast hafður hringur, sem sagaður var af stút á meðalaglasi,
því glerið var varanlegasta efni til þess að þráðurinn skæri það ekki,
en ella festist hann í skorum. Spólur voru oftast renndar
eða tálgaðar úr tré, þó sá ég spólur með málmlegg, en snúðum úr horni.
Ég þekkti ekki annað en spólur til þessarra nota, en hólkar úr öðru
efni hefðu getað komið í þeirra stað. Áríðandi þótti svo vel rektist
af spólunni, að spóla rétt á hana, þ.e. að spóla fyrst hnúða yst við snúðana,
en fylla síðan á milli og mátti þá spólan verða nokkuð full, án þess að
sakaði. Spólurokkur nefndist það sem spólað var á, oftast
var það aflagður spunarokkur, sem notaður var til þess, með sérstökum teini
í stað snældukerfis. Jafnvel var þá til að sami rokkur gæti gilt
líka fyrir balbínurokk, en þá þurfti teinninn að vera langur. Líka
var til, að nota venjulegan rokk til að spóla á, var þá rekin spýta í pípuna
að framan, löguð vel fram, og spólunni smeygt þar á, og haldið með vísifingurs
gómi við enda spólunnar á meðan spólað var. Börn og unglinar voru
látin spóla.

p6
Til þess að halda
voðinni í sundur framan við skilið var notað áhald, sem stundum var kallað
"sprauða" en oftar spanstokkur. (sjá kort á bakhlið). Spanstokkurinn
var 2 stykki, klauf var í annað stykkið, sem myndaðist við það að söguð
var úr því miðjan, nema stuttum spaða til endans, sem þynnstur var í endann
út í egg, og þar voru reknir upp í hann látúnsoddur nokkur. Af hinu
stykkinu voru sagaðir jaðarnir, nema í endann, þar sem skilinn var eftir
annar spaði jafnlangur hinum, og bryddur á sama hátt. Tindurinn í
öðrum hlutanum gekk svo eftir miðhlutanum í hinum (klaufinni). Boruð
voru göt þvert í gegnum báða hlutana með jöfnu millibili, og þar var rennt
í gegnum einum nagla, sem lengdi eða stytti spanstokkinn, eftir því sem
stykkin voru dregin sundur eða saman. Loks var ofan á miðtindinum
lítill snerill, sem hélt niðri kjálkunum á hinu stykkinu. Ég held
að þetta stykki hafi stundum verið nefnt þana eða þön. Kallað var
að setja upp vef, en útreikningur á þráðafjölda og lengd slöngu, að leggja
upp. Þá var stuðst við tölu hespanna, en þær voru með vissri tölu
knekka (skreppa), og þar höfðu þær vissa lengd.

p7
Væri lagt upp eftir
vef, voru völurnar auðvitað dregnar frá, en þar sem ég þekkti var lagt
upp eftir lengd. Lóðaverk heyrði ég nefnt, en kann ekkert að segja
frá því. Næst var lagt í kamb. Hliðin var tekin úr
kambinum, hann bundinn með tindana upp á vefstólinn fyrir framan höföldin
og slöngunni dreyft þar á milli tannanna, eftir vissri tölu. Síðan
var endi slöngunnar svo dreyfður, festur við rifinn, og tekið að vinda
upp á hann, eftir að kambinum hafði verið lokað, hélt hann þá eðlilega
áfram að greiða slönguna í ákveðinni dreyf á rifinn. Þá þurfti að
halda í slönguna á meðan undið var og sá ég oft gjöra það eldri konur.
Var slangan þá leyst úr lykkju brögðunum, sem hún hafði verið hnýtt
í, þegar búið var að rekja, jafnótt og undið var á rifinn.
Næst var komið fyrir skilsköftum tveim, rétt framan við afturslána á stólnum
(bakbómuna), endi slöngunnar greiddur, deildur og talinn vandlega niður
á sköftin í "göngum", minnir mig að væru 5 þræðir í gangi. Hver
gangur var svo lagður ofan á annað skaftið, en neðan á hitt, næsti neðan
á aftara skaftið, en ofan á hitt,

p8
og þannig myndað
skil á sköftunum. Næst voru höföldin sett upp, og þá kom að því að draga
í þau Settist þá vefarinn fyrir framan þau í vefstólinn, en
einhver meðhjálpari aftan við þau. Vefarinn hafði í hendi lítinn
vírkrók, sem hann renndi í gegnum hvert auga, en sá sem átti að rétta í
höföldin lagði ákveðinn þráð í krókinn, sem þá var kippt í gegn. Aðstoðin
hélt hverjum gangi í vinstri hendi, en rétti með hinni þræðina eftir vissri
röð, og var því ekki þakksamlega tekið, ef röðin ruglaðist eitthvað, því
það sem ekki var alveg rétt, varð að draga úr og leiðrétta. Veit
ég að mörgum unglingi þótti fátt leiðinlegra en "rétta í höföld".
Þegar búið var að draga í höföldin, en á hvert hundrað var hnýtt
fyrir framan þau, kom að því að draga í skeiðina, en þá þurfti enn að reikna
hve marga þræði ætti að draga í hverja tönn. Til þess var notaður krókur
sem kallaðist gikkur. Hann var næfurþunnur að framan, til þess að
ganga á milli tanna í skeiðinni, oft úr hvalskíði eða góðri spýtu. Að
þessu loknu var tekið sívallt skaft út úr rauf á voðar rifnum og tengt
í enda slöngunnar, en það síðan tengt við rifinn með einum 5 snærispottum,
sem

p9
undnir voru á rifinn.
Þá kom loksins sú stóra stund að vefarinn gat sest í vefstólinn,
tekið fyrsta skilið og sent eftir því skyttuna með fyrsta þráðinn (dregið
fyrir). Snærin voru undin upp á rifinn, þar til skaftið kom að honum,
þá voru snærin leyst úr, skaftinu rennt í sína rauf, og brugðið rúmum vafningi
af voðinni yfir það, og þá loksins var búið að "setja upp vefinn".
Ég þekkti ekki annað nafn á uppistöðu en ívaf og fyrirvaf algengt,
þó hið fyrra tíðara. Rakgrind hét það áhald, sem vefur var
rakinn á. Sá ég aðeins eina gerð þeirra, sem í miðju var smellt saman
í gróp, svo leggja mátti grindina saman, flata í flutningi. Mig minnir
að eftir henni miðri og endilangri gengi sívallt skaft, sem þá myndaði
um leið þá endastúfa, sem hún snérist á og um. Klossi með hæfilegri
holu fylgdi henni laus, til að festast í loftið þar sem rekja skyldi, og
annar í gólfið, sem gat þurft að hlaða undir, vo bilið yrði mátulegt. Rakgrindur
voru ekki nærri jafnmargar vefstólum, sem eðlilegt er, því það tók aðeins
stund úr degi að rekja. Þegar rakgrindin var komin á staðinn, voru balbínurnar
settar í sinn stól og byrjað að rekja.

p10
Um rakgrindina er
til þessi gáta: Í sporinu snýst hún svo lipurt og létt - litfögrum
böndum hún vefur sig þétt - hún er svo afbragðsvel útlimagrönn - átthyrnd,
höfuðlaus, bein eins og hvönn. Balbínustóllinn var grind, sem balínurnar
voru festar í, í 2 röðum, þannig að teini var rennt í gegnum hverja, í
rauninni aðeins stór snældustóll. Grindin var svo reist upp og skorðuð
þar sem haganlegast lá fyrir rakrindinni. Tala balbínanna mun hafa
verið eitthvað misjöfn. Fyrsta umferðin á rakgrindinni ákvað lengd slöngunnar,
en svo var haldið áfram, umferð eftir umferð af öllum balbínunum, þar til
slangan hafði fengið þá þykkt (þráðafjölda), sem ætlað var. Balbínurokkur
líktist nokkuð skotrokk, nema að hann varð auðvitað að hafa langan tein
með trissu á, í stað snældukerfis. Verkið nefnist að balbína.
Rakningsspaða veit ég ekkert um, og sá aldrei. Sá aldrei rakið
nema af balbínum. Sennilegt þykir mér að fyrsti þráður hafi
verið mældur og merktur að lengd, á rakgrindina, en veit það ekki. Skilið
held ég aðeins hafi verið myndað í

p11
vefstólnum, eins
og ég þegar hef lýst. Skil á grindinni man ég engin, nema að hnýtt
væri á milli umferða á einum stað, líkt og knekk í hespu, og er þetta þó
óljóst. Vafalaust hefur verið rakið aðeins annarsvegar við fetann.
Annað hefði orsakað mislengd í slöngunni. Fullrakin uppistaða á grind,
nefndist slanga, þegar hún var rakin ofan af grindinni, þá var henni brugðið
í hálf hnýttar lykkjur, svo minna færi fyrir henni. Reynt fólk hefur
farið nærri um hvað slangan styttist við það að vefast í voð.
Hafaldagrind nefnist það sem höföld voru búin til á, hnýtt. Efnið
var rakið á spjald, sem gaf í hverjum hring mátulega langan spotta í eitt
hafald, en þegar búið var að vefja á það, var skorið sundur á annari röðinni.
Þó munu spottarnir stundum hafa verið tveir (í hálft hvor), og minnir
mig það vera svo, það eina skifti sem ég hnýtt höföld. Tveir
menn sátu hvor á móti öðrum og hnýtti sína hliðina hvor, en grindina höfðu
þeir á milli sín. Miðju beggja enda var brugðið saman, annar hnýtti
þá augað um sívalninginn með réttum hnút, síðan annan réttan utan við hliðarskaftið,
og mig minnir þrælahnút utan við spottann. Hinn hnýtti aðeins tvo


p12
hnúta á sama hátt.
Réttur hnútur er sá, sem kemur út eins og reipahnútur, gagnstætt
rembihnút, þar sem yfirbragðið er hnýtt til annarrar handar, heldur ver,
en herðist meira. Til voru á síðari tímum stálaugu í höföld, þau
sá ég aldrei. Ég þekki ekki til að unninn væri hafaldaþráður, en
vafalaust mun hann hafa verið úr togi. Vefjarkambur er einfalt
áhald að smíði. Hann var nógu langur til þess að ná yfir vefstólinn,
svo hægt væri að binda hann í hliðarstykkin á meðan verið var að vinda
upp á slöngurifinn. Í aðra hlið hans voru settir fastir, með vissu
millibili, tindar úr góðum viði t.d. brúnspæni. Í enda þeirrar liðar
voru settir fastir endabútarnir, sem mynduðu gaflana, en á hinum enda voru
þeir stallaðir við hina hliðina, og þar gengu eyrum á þeim í gegnum, sem
svo var einum trénagla smeygt í gegnum hvort, þegar kamburinnv ar lokaður.
Lausa hliðin var svo tekin úr þegar lagt var í kambinn. Í henni
var aftur nót, sem fól vel oddana á tindunum. Þegar það var búið,
var kambinum lokað aftur, og undið í gegnum hann lokaðan, þar til slangan
var komin á rifinn og þjónustu hans lokið að því sinni.

p13
Vefarinn sendi skyttuna
með einu snöggu bragði í gegnum skilið, en tók við henni með hinni hendi,
greip þá einum fingri í gegnum uppistöðuna undir ívafið, og ýtti því frá
sér í boga (gaf uppí), til þess að voðin herptist minna saman. Steig
hann þá í sama vetfangi skilið á, og sló skeiðinni að, fleygði skeiðarhaldinni
frá sér og sendi skyttuna aftur osfrv. Festi varla augu á þessm hreyfingum
góðra vefara. Spanstokkurinn var dreginn sundur í þá lengd, sem breidd
voðar átti að vera, stilltur eftir götum og naglanum rennt í þau, svo lengdin
var föst. Þegar svo var búið að vefa dálitla pjötlu var spanstokkurinn
settur í, oddunum var þrýst ofan í jaðra dúksins, en þá bognaði áhaldið
um naglann, síðan var þrýst ofan á kryppuna þar til stokkurinn var beinn,
snerlinum snúið út yfir jaðrana, og sat þá þönfin föst í réttri breidd.
Þegar lokið var að vefa, var voðin felld. Endarnir sem
af gengu nefndust "krummabrækur". Undir þóf var vaðmálið
þvegið og þvælt í stóru íláti, úr heitu þvæli með nógu þvottaefni í, sem
oftast mun, lengi fram eftir hafa verið að mestu keyta. Helst var
undið úr voðinni í útidyrum með því að bregða þar í voðina

p14
sterku kefli, t.d.
broddstaf, og setja hann fastan innan við stafina, en bregða öðrum slíkum
í voðina fleirfalda, og vinda með því spankefli úti á hlaðinu. Þetta
var kröftug vinding. Var svo þetta fært eftir þörfum, en hinn undni
endi lagður ofan í bala og tekið þegar að þæfa, þegar lokið var að þvæla
og vinda. Venjulega var voðin þæfð í baðstofu, eftir að ég
man, en getið heyrði ég þess, að þæft hefði verið í fjósi. Þá heyrði
ég að stundum hefði verið byrjað að þæfa í bala, áður en undið var (nefnt
votaþóf), en undið síðan og þæft að venju undir fótum. Venja
mun verið hafa lengi, að menn klæddu sig úr ytri buxum og þæfðu berfættir,
enda svo ósleyti hreyft sig, að menn héldu á sér hita. Tróð maður
þar af allri orku í erg og gríð, færði með fótunum inn það sem tróðst út
úr hrúgunni og reyndi að velta vaðmálinu svo vel til sem hægt var, svo
jafn þófnaði. Hjá vönum mönnum var þófið ekki oft skoðað, nema til
að fylgjast eð hvenær nóg væri þæft. Hyllst var til að þófarinn hefði
handfestu, helst í fleirri en eina átt, t.d. í skoti aftan við rúmsenda.
Tíðkast mun hafa lengi að þófarinn fengi auka hressingu, eftir að ég man,
var

p15
það kaffi, en vel
skyldi vera með því. Og út í það ef til var, og þófarinn kunni að
meta slíkt. Þófaraþulu heyrði ég aðeins eina, og hygg að hún sé þar
varla öll, svo hljóðandi: Bárður minn á jökli - leggstu nú á þófið
mitt - ég skal gefa þér lóna - innan í skóna - nýja skeifu og nagla þrjá
- en láttu ganga þófið þá. Þegar þófi var lokið, var voðin
hrist og kippt. Gjörðu það 2 á milli sín, oft karl og kona. Gekk
þá á stórum brestum, og þótti því betra, sem meira small í voðinni, og
varð oft að glensi. Síðan var hún lykkjuð upp á þvottasnúrur og þurrkuð,
en líklega hefur hún pressast betur ekki mjög þurr. Það tíðkaðist
áður, að sérstakir menn fóru um og þæfðu, en einkum munu það hafa verið
hálfgjörðir umrenningar, sem hlutu stundum af því auknefni eða nafnbót.
Þetta getur hver sæmilega laginn og atorkusamur maður, en mjög fór
mönnum fram í því sem öðru, með nógri æfingu.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna