Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1932)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1328 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1328

p1
Ull og tóvinna 3.
Vefnaður: Á árunum um og eftir 1900, var vefnaður stundaður
á 3 bæjum í Mjóafirði, Reykjafjarðarhreppi. Það voru bæirnir Skálavík,
Botn og Látur. Ekki er nú unnt að hafa spurnir af fólki því er þá
var til heimilis á 2 hinum fyrrnefndu bæjum, né heldur eru til leyfar af
vefstól eða vefnaði þess. Á þessum tíma var margbýli á Látrum, eins
og jafnan áður. þar voru 52 manneskjur til húsa. Þar hokraði
Jón Sigurðsson á sjö hundruðum. Hann dó 1933, 77 ára að aldri. Var
kona hans Guðrún Jónsdóttir, og áttu þau 2 dætur, og hún eina. Svo
ólu þau upp 1 fósturdóttur. Var Jón hinn hagasti til munns og handa,
og var vefnaður jafnan stundaður á heimili hans. Hann óf mikið sjálfur,
en auk þess Halldóra dóttir hans, og síðar Marsibil fósturdóttir hans.
Þá voru kljásteinavefstólar horfnir, en eldra fólk mundi þá. Þessar
stúlkur báðar voru farnar að vefa um fermingaraldur.

p2
Það var settur upp
vefstóll á haustin, þegar önnur verk voru búin. Var gripið í vefnaðinn
eftir því sem tóm gafst til milli verka, framan af vetri, en vejulega var
ekki nein sérstök aðvera við það fyrir hátíðar, nema ef tekinn var vefnaður
að, þá var setið við allann daginn. Þó var það nú tíðast, að það
var ekki mikið um vefnað fyrir aðra, fyrr en eftir hátíðar, því sjaldnast
var fólk búið að spinna í vefnað að ráði, fyrr en um það leyti.
Baðstofan á Látrum var palllaus, og var vefstóllinn settur upp í
einu rúmstæðinu. Rúmið var þá tekið upp og sett fyrir gafl á meðan.
Þegar tekinn var vefnaður að, fékk Jón oft slægjur í staðinn, eða
þá að það var ekkert tekið fyrir. En ef greitt var í peningum þá
var vanaleg greiðsla 10 aurar fyrir hverja alin. Það þóttu góð afköst
að vefa 6-7 álnir á dag, en afköstin fóru auðvitað eftir því, hvort ofið
var gróft

p3
eða fínt. Það var
fljótlegra að vefa úr grófu. Einstaka hamhleypa komst í 10 álnir
á dag. Ekki er nú vitað um neina menn hér í sveit, sem smíðuðu
vefstóla og sennilega hafa vefstólar þeir er síðast voru við lýði, verið
gamlir. Einn vefstóll er til nú, á Eyri í Mjóafirði, og er hann fyrir
víst, meira en aldar gamall. Þess var getið að ofið var á
3 bæjum í Mjóafirði. Yfir á sveitinni, eins og kallað er, voru víða
til vefstólar, en ekki allsstaðar ofið að staðaldri, nema í Reykjarfirði.
Þar var Ólafur Jónsson bóndi, og hafði flutt frá Lágadal 1890. Hann
óf mikið, en annars þekktist, að menn væru fengnir að til að vefa. Voru
það aðallega menn sunnan yfir heiði, því nokkrar samgöngur voru milli bænda
í innri hluta Reykjarfjarðarhrepps (Ísafirði) og bænda í Gufudals- og Múlahreppum,
í sambandi við fjallskil ofl.

p4
Skeiðar voru misjafnlega
grófar, eftir því hvað verið var að vefa. Þær voru allar jafnlangar. Sennilega
algengast 5 kvartil á lengd og stærðin miðuð við tannafjölda í kvarteli.
Allt frá 50 tanna, uppí 90 og 100 tanna. Þær skeiðar sem ég
hef heyrt um og séð, eru úr járni og/eða látuni og taldar keyptar og innfluttar.
Skyttan var hinsvegar heimasmíðuð úr hörðum og sleipum viði.
Sumar voru koparslegnar á röðunum, og á nefinu, svo þær rynnu betur.
Teinninn í skyttunni var kallaður spóluteinn. Spólurnar voru
sumar úr tré, en heimagerðar spólur úr blikki voru fullt svo algengar.
Það voru oftast notaðir venjulegir rokkar til að spóla á.
Þá var rekinn teinn upp í snældubúninginn, og spólan sett þar upp
á og skel eða öðru smálegu haldið fyrir framan spóluna, svo að hún rynni
ekki fram af.

p5
Áhald það, sem hélt
út jörðum voðarinnar, hét spjálk. (það er algengt ærheiti á glannhyrndum
ám). Það var tréstykki, sem hægt var að lengja og stytta og var nagli
í götunum til að festa. 3 naglar voru í hvorum enda og stóðu þeir
í jaðrana. (Hér er teikning). Stærðarhlutföll í ofanteiknuðu
rissi eru ekki alveg rétt. Spjálkin er lengri og mjórri.
Það var kallað að leggja upp, að reikna út uppistöðuþráð í voð. Bandið
var vigtað. Reiknað var með að það væri alin af snældunni í rakningu.
Það var talað um uppistöðu og svo bæði ívaf og fyrirvaf, sem táknaði það
sama. Uppistaðan var rakin á rakgrind. Þær munu hafa verið
til þar sem vefstólar voru. Þetta er nokkuð fyrirferðarmikið áhald
og vitað að hún var fest upp í gat

p6
sem gert var í bita
neðan í bæjardyralofti. Þetta voru eiginlega 2 ferhyrndar grindur,
hvor innan í annarri, og hægt að leggja þær út eða saman, því þær leika
á ás, sem tengir þær saman. Þollar eru festir á grindina og rakið
á þá. Tveir voru við rakninguna. Venjulega var rakið
úr hnyklum, sem látnir voru liggja í rakstokk, en það var stokkur með er
hólfum, hvert hólf ca. spönn á hvern veg. Hnyklarnir voru í hólfunum
og fetakambur lagður ofaná til að hafa það greitt. Sagt er, að áður
fyrr hafi verið rakið af balbínum sem svo eru nefndar. Gömul kona,
sem dó í Skálavík um 1940, þá fjörgömul, talaði um þetta. Við rakninguna
mun ekki hafa verið notaður neinn rakspaði. Ef átti að vefa eitthvað
smálegt, svo sem styttubönd, mittisbönd, var ekki notuð rakgrindin, en
rakið við fót sér eða á rúmstuðli. Gamalt fólk hefur heyrt sagt frá
því, að rakið væri á veggjarhæla.

p7
Uppistaðan á rakgrindinni
hét slanga. Þegar hún var tekin ofan, var það gert á sérstakan hátt,
svo að hún flæktist ekki. Það var gert bragð á slönguna, og hún dregin
í gengum það bragð, svo að lykkja myndaðist, sem slangan var aftur dregin
í gengum, og svo koll af kolli. Slangan dregin tvöföld í gegnum hverja
lykkjuna af annarri. Tveir unnu einnig að því að vinda upp á rifinn,
annar snéri en hinn hélt við slönguna. Höföld voru úr þreföldum
togþræði. Þau voru hnýtt á hafaldagrind. Það er veigalítil
ferköntuð grind, með spýtu í miðjunni, og var hún til að merkja, hvar hnýta
skyldi hafaldaraugun. Hnútarnir voru hnýttir sitt hvoru megin við
þessa spýtu. (Hér er teikning).

p8
Hafaldakambur var
notaður við að draga í höföld. Tveir unnu við það, annar rétti fram
þræðina. Haki var notaður við að draga í skeið. Var algengt
að nota greiðubrot. Oftari voru einnig tveir við það, annar rétti
höföldin, hinn dró í. Þá var talað um að hnýta á skaft og
framhnýtingarskaftið fest við rifinn með löngum snærum vöfðum á rifinn.
Vefjarhnútur er eins og hafaldahnútur (sýnishorn fylgir). Hann
raknar ekki, og var notaður ef uppistöðuþráður slitnaði, en það var algengt.
Það var kallað að gefa í (fyrirvafið) og ígjöf. Ef voðin hélt
ekki fullri breidd, vantaði ígjöfina eða það voru ekki nógu margir í tönn
í höföldunum. Voðin mæld með alinmáli. Það var þráður, sem
stungið var ofan í jaðarinn, og dreginn úr þegar komin var alin, og látinn
í aftur. Ef illa var undið upp á rifinn, varð boðin skökk (lausari
öðru megin).

p9
Það var kallað að
fella voðina, þegar hún var tekin úr vefstólnum. Spottarnir, sem af gengu,
hétu afvikur. Var þeim haldið saman og notaðir til að sauma með.
Þæfð var voðin undir berum fótum á gólfi. Það geru
karlmenn oftast, en einnig konur. Voðin þvegin fyrst, áður úr keytu,
en síðar úr sápu. Þegar notkun hennar varð almennari. Voðin
rennblaut, þvegin var undin uppúr bala úti. Húnvar undin tvöföld
á keflum, og undin alveg í snargarð, göndul. Annað slagið var voðin
aðgætt meðan á þófi stóð, slegin og hrist úr henni lóin. Seinast
var hún undin uppá rúmfjöl og pressuð.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna