Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1892)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1255 Safnnúmer B: 1966-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 1255

p1
ULL OG TÓVINNA 3

Ef satt skal segja,
jafnast það því sem mest við ullarleit í geitahúsi að leita til mín með
fræðslu um vefnað og eru ástæður fleiri en ein og sú er mestu veldur, að
á mínu æskuheimili var ekki ofið sem talist gat nema

p2
einn vetur, að vinnumaður
sem átti vefstól kom með hann og óf eitthvað, en þann vetur var ég í skóla
og kynntist ekki þeirri atvinnugrein þá. En svo var það löngu
seinna (veturinn 1916-17) að ég var kennari á Húsavík og keypti þennan
gamla vefstól og lærði að nafni til að setja upp vef og vefa einfalda vefnað,
vaðmál og þráðardúk, en kennarar mínir voru Sigurjón Þorgrímsson veitingamaður
og Júlíana Guðmundsdóttir kona hans og þar að auki setti ég upp einn vef
með daglegri vefnaðarkonu Jakobínu að nafni. Óf ég þarna tvo vefi
í hjáverkum um veturinn. Næstu tvo vetur á eftir óf ég dálítið heima
á Laxamýri, en þó ekki svo mikið að verulega tyldi í mér kunnáttan, enda
snéri mér að öðrum verkefnum og nú í dag, þegar ég er spurður um þessa
iðngrein, er flest sem að henni lært fallið svo í gleymsku, að nær ómögulegt
er að rifja það upp,

p3
þannig að treysta
megi á að rétt sé munað, enda munu fleiri komast að sömu raun um það að
illa tollir í minni það sem illa er þar fest og sérstaklega þegar alveg
er skift um verkefni, verksvið og áhugamál. Samt skal það játað að
mér gast vel að vefnaði og hefði kosið að halda honum við mig, en óviðráðanlegar
orsakir gerðu það ókleyft. Tvo vefstóla mun ég hafa smíðað handa
öðrum, en þrátt fyrir það, eru mér gleymd sum heitin á hlutnum sjálfum
og fylgifé hans. Gerð þessara þriggja vefstóla er ég hafði kynni
af, var mjög lík B teikningu. Er þá þarna gerð grein fyrir tveim
megin ástæðum fyrir því að liðsinni mitt á þessu sviði verður í molum og
sennilega einskis virði, þó ég reyni að skrifa eitthvað upp til reynslu.
Árlega var spunnið í 2-3 vefi á mínu heimili og sent á nágrannabæi,
því nokkrir menn í grenndinni tóku vefnað af öðrum og var þá greitt visst
á alin, en ekki man ég hvað það var mikið né heldur þori ég að segja um
afköstin. Var voðinni skilað beint úr vefstólnum og þófið framkvæmt
heima. Tækin sem ofið var í heyrði ég aldrei nefnt annað en


p4
vefstóll og engum
kynntist sem ofið hafði í kljásteinavefstólnum, en heyrði menn lýsa honum,
sem séð höfðu að minsta kosti einhverjar leyfar af honum, en ekki er mér
kunnugt um að neinn hafi geymst hér um slóðir fram á okkar daga.
Vefstólar með slagborðið fest að neðan, munu hafa verið algengari hér og
sennilega verið betri, einkum vegna stöðugleika. Hinir vildu riða
til, einkum ef þeir voru veikbyggðir. Tvíbreiðan vefstól sá ég. Hraðskyttuvefstól
sá ég ekki, en heyrði honum lýst og vissi að hann var til hér um slóðir,
en náði ekki útbreiðslu. Allar skeiðar sem ég sá voru útlendar og
var mér ekki kunnugt um að heimasmíðarðar skeiðar væru notaðar. Fimm
kvartela skeiðar voru algengastar og 80 tanna á kvarteli það grófasta,
en fullt eins mikið notaðar þéttari (fleiri tanna). Ritti hefi ég
aldrei heyrt. Skyttan var mjög þýðingarmikið áhald við vefnaðinn
og reynt að vanda til hennar, en þess má þó geta að allir vefarar voru
ekki jafn ánægðir með einhverja vissa gerð, heldur réði smekkur, hverju
maður vandist mest og svo sérvizka, eins og er á mörgum sviðum. Algengastar
voru heimasmíðaðar skyttur, en

p5
þegar ég fór að vefa
mátti fá danskar skyttur, sem voru öllu liprari en þær sem áður voru algengastar.
Skyttan var smíðuð úr völdu efni oftast beyki eða brenni, eins og
það var kallað og sem var aðalefniviður í hrífuhausa og annað sem vanda
þurfti. Var hún oftast látunsklædd til enda og stundum að neðan svo
að hún væri hálli og rynni betur. Skyttu sá ég einnig með smáhjólum
að neðan (útlenda). Renndar spólur voru eingöngu notaðar það ég til
vissi, enda rennibekkir til hér um slóðir. Spóluroð þekki ég ekki.
Spólurokkur er eina nafnið sem ég þekki á spólutækinu. Algengast
var að breyta uppgjafarokk í spólurokk og voru það oft eymdaráhöld eins
og fram kemur í orðtakinu spólurokkur. Litlu eftir að ég fékk vefstólinn
komu litlir handhægir spólurokkar með prjónavélum Favorit. Voru þeir
skrúfaðir á borð og mjög fljótvirkir og notaði ég þá ekki annað áhald við
spólun. Spanstokkurinn sem við kölluðum spjálk var í líkingu
við meðfylgjandi teikningu. Var hún í tvennu lagi, klof á öðrum hlutanum
en eins og hamarskora á hinum. Nokkur göt boruð gegnum bæði stykkin
sem

p6
nagla var stungið
gegn um og með því að skifta um göt var hægt að stytta og lengja spjálkina
í samræmi við voðarbreiddina. Að leggja upp, reikna í skeið og reikna
í vef, er mér fallið svo úr minni, að ég þori ekki um það að fjalla. Orðið
fyrirvaf þekki ég aðeins, en ívaf meira notað hér og aftur uppistaða.
Rakgrind reyndu flestir vefarar að eignast, en til var þó að fara varð
á aðra bæi til að rekja, enda á sumum bæjum svo lítill húsakostur, þó vefstól
væri troðið í þrönga baðstofu, að rakgrind varð hvergi fyrir komið til
rakningar og naumast til geymslu og var helst reynt að rekja í bæjardyrunum
eða skemmu. Var rakgrindin sett neðan í bita, en trébútur hæfilega
hár á gólfið, en naglar eða teinar í rakgrindarásnum að ofan og neðan látnir
í holu neðan á bitanum og aðra í kubbnum og var þá hægt að hringsnúa grindinni.
Skilhælatrén heyrði ég nefnd grísholt, en má vel vera að hrísholt
sé réttara. Eins og áður er getið var algengast að breyta gömlum
spunarokk í balbínurokk og hann þá notaður bæði til að balbína og spóla
á skyttuspólunar. Balbínusnældurnar vor helst renndar, en þó oft
tálgaðir snúðarnir og þeir helst límdir á gegn um boraðan trélegg og voru
um 25cm.langar á

p7
milli snúða og snúðurinn
(eða hausinn) um 8-10cm.þvert og leggurinn 2-2 1/2cm. gegnum boraður fyrir
vírtein 4-5mm. Balbínustóllinn eða snældustóllin var grind á fæti
svo að hann gæti staðið óstuddur á gólfi og það hár að allt að 5 snældur
kæmust í hæðina og var hann tvöfaldur (fyrir tvær raðir og tók þá 10 snældur).
Hér þrýtur mig kunnáttu og minni. Man að rakin uppistaði hét
slanga og talað var um að fika ofan af grindinni. Þekki aðeins rakningu
á grind þó ég heyrði þess aðeins getið að bjargast mætti við aðra aðferðina.
Hafaldagrind sá ég aðeins, en hnýtti ekki höföld sjálfur fyrr en
stálaugu fóru að fást og hnýtti ég ein höföld með þeim. en svo komu fullkomin
málmhöföld, sem þóttu bera af hinum, en höföld með stálaugu og vaxborið
hafalda garn voru líka ágæt. Fyrst sá ég stálhöföld nálægt 1918 og
munu þau ekki hafa komið öllu fyrr um þessar slóðir. Aðeins
eina gerð af vefjarkambi sá ég sem leit sem næst þannig út (sjá mynd).
Tveir trérenningar ca 1"á kant. Holur boraðar dálítið
inn í þá með jöfnu millibili ca.2cm og sívalar spýtur um 8mm í þvermál
reknar í andstæðar holur. Lengd þeirra ca. 8-10cm.

p8
Talað var um að setja
upp vef eða setja til stundum. Kragar voru á rifnum til varnar því
að slangan færi út af hliðarfjölunum. Tvo þurfti til að vinda slönguna
á rifinu. Tveir þræddu í höföldin, rétti annar og hinn tók við. Voru
unglingar notaðir við að rétta í höföldin, en voru oft latir við það. Þá
var það og unglingavinna að spóla. Þegar búið var að draga í nokkur
höföld minnir mig að hnýtt væri lauslega að nokkrum þráðum, jafnóðum og
þræddist, svo að ekki dragist úr aftur. Við skeiðarídráttinn krók
úr þunnu efni, sem gekk út á milli tannana og lagði hjálparmaður þræðina
í krókinn. Talað var um að hnýta á skaftið. Gæði og útlit
voðar var að sjálfsögðu háð vandvirkni og lagni vefara. Sem jöfnust uppígjöf
og ásláttur skifti miklu máli og jaðrar vor mjög misjafnir. Einnig
voru vefar misjafnlega þolinmóðir við að bæta þegar slitnaði og létu sumir
marga þræði slitna áður en bætt var. Skilgallar vildu og koma fram
hjá óvönum eða hroðvirknum og mæltist allt þetta illa fyrir, enda fengu
vefarar misjafna dóma á verk sín, eigi síður en aðrir. Þráðarspuni var
ekki vandalaust verk og gerði illa spuninn þráður vefurum oft gramt í geði,
enda gerður oft mun á heimilum þegar þeir tóku vefi af öðrum.

p9
Að taka vefinn niður,
hét að fella hann. Man ekkert sérstakt um afgansendana. Tvennskonar
þóf tíðkaðist. Votaþóf í tunnu eða stórum bala og þurraþóf á hreinu
trégólfi og þæft undir fótum í báðum tilfellum það ég til þekkti og af
karlmanni. Til var það, að þófarar færu milli bæja, en oftast varð
heimamaður til þess. Aukaglaðning til þófara. þófarabiti er vel þekkt
venja. Fyrst þegar ég man, var voðin þvætt í hitaðri
keytu í stórum bala eða stampi, en seinna lagðist það niður. Votaþófið
var helst framkvæmt í fjósinu, niðri í stampi eða bala, en þurraþófið á
timburgólfi eða hurð. Var voðin undin áður en þófið byrjaði þannig að hún
var lögð tvöföld saman og annar endinn settur fastur en sterkur göngustaður
settur á hinn endann og snúið uppá af miklum krafti og jafnframt maður
látinn strjúka vatnið úr henni og þetta því gert útivið ef verður leyfði.
Þófari var léttklæddur og berfættur (á brókinni einni). Við
þurraþófið var voðin tekin upp tvisvar til þrisvar og kippt sem kallað
var (dustuð) þannig, að fullgildur kvenmaður (eða karlmaður) tók í voðina
á móti þófaranum 8-10m. frá honum og jafnframt því að toga í voðina, var
hún lögð saman tvöföld og þá rikkt sundur svo snökkt og fast

p10
sem kraftar leyfðu
og reynt að láta smella sem hæst í um leið, en til þess urðu báðir að vera
vel samtaka og þurfti nokkra æfingu til, ef vel átti að smella. Þegar
fullkippt var fyrstu færu, var önnur tekin, þar til lokið var allri voðinni
og gátu það stundum verið nokkrar færur ef voð var löng og húspláss takmarkað.
Húsmóðir dæmdi um hvenær fullþæft var, en á það bar ég lítið skyn.
Að þófi loknum var voðin undin upp í stranga og stundum sett í pressu
og á seinni árum voru voðin sendar til Akureyrar í lóskurð og litun.
Á meðan ég átti vefstól, óf ég fyrir mitt heimili undirlök og koddaver
og notaði tvist í uppistöðu, en ull í fyrirvaf (ívaf) og með vaðmálsvígindum.
Gafst þetta mjög vel svo að heimili bjó að árum saman, en enga pjötlu
á ég þó til að senda safninu. Því miður man ég ekki lengur nöfn
á nærri öllum hlutum vefstólsins, enda aldrei heyrt sum. Var of skamman
tíma samtíða vefstólnum og þá einnig skilmerkilegu fólki, er kunni skil
á hlutum vefstólsins.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna