Ull og tóvinna IV

Þjóðminjasafn Íslands – Spurningaskrá 18 Ull og tóvinna 4 Nr. spurningaskrár 1968-1 Til að nálgast pdf. skjal með öllum svörum heimildafólks ýttu á forsíðu skráarinnar hér til hliðar (Mynd 2 af 2). Til að nálgast frekari upplýsingar má senda póst á thjodhattasafn@thjodminjasafn.is Titilmynd skráarinnar: Ljósm. Johannes Klein. Safnnr: Lpr. 1995-92 Hér að neðan má sjá þær spurningar sem heimildafólk þjóðháttadeildar fékk sendar í tengslum við skrána: Þjóðháttaskráning Þjóðminjasafnsins 18. Spurningaskrá Apríl 1968. Ull og tóvinna, IV. Spurningaskrá þessi, sem er hin fjórða um ull og tóvinnu, er væntanlega hin síðasta viðvíkjandi vefnaði. Sum atriði, sem hér er spurt um, eru að öllum líkindum orðin svo fjarlæg nútímafólki, að lítil von er til að hægt sé að gera þeim nokkur viðhlítandi skil í svörum, en samt hefur engu að síður verið spurt um þau, ef svo færi að einhver kynni að greina frá þeim.   Enn sem fyrr væri Þjóðminjasafninu hin mesta þökk á því, ef vinir þess og velunnarar gætu látið því í té sýnishorn af íslenskum vefnaði ásamt upplýsingum um aldur, efni, vefara og þann, sem vann voðina, litun o.s.frv. Það skiptir ekki máli, þótt sýnishornin séu slitin af langri notkun, en á það skal lögð áhersla, að sýnishornin séu ekki klippt úr heilum hlutum eða hlutum, sem halda upphaflegri lögun. Safninu væri ekki síður þökk á, að þessari beiðni væri komið á framfæri við þá, sem líklegir eru til að eiga í fórum sínum vefnaðarsýnishorn. Vefnaður almennt. V
Spurningar og svör