Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1911)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 6557 Safnnúmer B: 1968-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr.6557

p1
Ull og tóvinna 4.
Það er nú að fara í geitarhús að biðja sér ullar, að spyrja mig
um vefnað eða vefstóla. Um þetta veit ég nánast ekkert.
Það var einu sinni settur upp vefur heima á Krakavöllum, eftir að ég man
eftir. Ég man ekkert eftir vefnum eða vefstólnum. Eftir spunanum
í vefinn man ég vel, og hef áður lýst honum. Þá man ég að vaðmálið
var þæft á hurð, sem var látin á gólfið í búrdyrunum. Karlmaður þæfði
með fótunum og hélt sér í dyrakarmana. Ég vissi til að vaðmál
eða dúkur var sendur úr sveitinni inn á "vélar" (síðar Gefjun)
til þess að láta lóskera það eða lóskera, lita og pressa.
Amma mín Eugenía Jónsd. Norðmanns f. 1861, sagði mér sem barni, að mikið
hefði verið ofið á Barði æskuheimili hennar, og mamma sín Katrín Jónsd.
frá Undirfelli, hefði sjálf teiknað munstur handa vefurunum til þess að
fara eftir. Þá er mín vitneskja upp talin. Frænka mín
Sigríður Kristinsd. í Ólafsfirði, gaf mér uppskrifað á þessi blöð sem ég
læt fylgja. Móðir hennar Helga Grímsd. var systir Dúa afa míns. Mun
hafa verið fædd fyrir eða um 1865. Anna amma hennar, sem hún nefnir
var líka úr Fljótum. Hún var vinnukona, ung á Barði hjá séra Jóni
Norðmann og Katrínu Jónsd. Kannske brekánið hennar hafi verið þaðan.
Margir áttu svona hluti lengi. Hér kemur bréf Sigríðar: Langmest
eða árlega var ofið í nærföt og buxur, kallað buxnaverk, nærfataverk. Buxnaverk
var dökkgrátt með ljósum teinum. Nærfataverk var hvítt. Hvorutveggja
var úr íslenskri ull, sem unnin var heima. Sjaldan var ofið í skyrtur
og sængurver, þá kallað sængurveradúkur, var úr bómullartvisti, hvítur
í grunn með röndum, ýmist bláum eða grænum. Skyrtudúkur hvítur með
bláum röndum, einnig úr tvisti. Viðkomandi mynstur var fyrst myndað á tréspjaldi.
Þráðurinn var þá vafinn utanum spjaldið, til að sjá hvað breitt munstrið
ætti að vera, og svo hve marga þræði þyrfti af hverjum lit. Þessi
vinnubrögð eiga við um röndóttan dúk. Ef köflótt var ofið þurfti
líka að mynda munstrið með ívafinu. Ábreiður og buxnaverk var ofið með
vaðmálsvend. Skyrtudúkur, rekkjuvoðir og nærfataverk með dúkvend.
Amma mín, sem lést í hárri elli árið 1937 hafði yfir sínu rúmi þykka
ábreiðu, sem hún nefndi brekán. Í því var hvít uppistaða og dökkur
ívafsþráður. Mig minnir það vera með vaðmálsvend. Þetta var þykkra
og þyngra en aðrar ábreiður. Vefstóllinn, sem ofið var í var
aðeins 70 cm. breiður og þessvegna þurfti að auka rekkjuvoðir og ábreiður
saman í miðjunni. Lengd vefsins fór eftir því hve mikið þurfti af
efni hverju sinni. Sá vefnaður, sem hér hefur verið lýst fór fram
á heimili foreldra minna Helgu Grímsd. og Kristins Jónssonar í Ólafsfirði.
Veturinn 1934-35 var ég nemandi í húsmæðraskólanum á Hallormsstað.
Þar voru ofnar ýmsar vefnaðargerðir. Svo sem glit, krossvefnaður,
salúnsvefnaður (á teppum), rósabandavefnaði (á servíettur), vöfluvefnaður
(á handklæðum) tvöfaldur vefnaður á teppum. Einnig ofið köflótt í kjóla
(úr tvisti), svo sitthvað sé nefnt, en ekkert af þessu hefur verið ofið
í Ólafsfirði.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna