Tóvinna

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1905)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 5662 Safnnúmer B: 1968-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 5662

p1
Ull og tóvinna 4.
Þakka innilega jóla og árnaðaróskir. Vonast til að þjóðin
geti eitthvað fundið í fórum ykkar, sem hún hefir aldrei komist í snertingu
við, nú á seinni tímum, sem sé ef til vill atriði í lífsbaráttunni, sem
ekki má gleymast með öllu, svo vel sé, þótt nú finnist aðeins sem safngripir.
Ull og tóvinna, sem önnur þjónusta í þágu mannkyns á fyrri
árum og öldum, var unnin á heimilunum, sem voru að mestu sjálfum sér nóg
með það sem annað. Horfin tíð. Það fór nú svo, þegar
að vefnaði kom til að breyta ull í föt, að því kynntist ég ekki á heimili
foreldra minna. Ástæðuna tel ég ver þá, að móðir mín Pálína Elíasdóttir
frá Syðri-Steinsmýri, Meðallandi, f. 1885, var yngsta barn foreldra sinna.
Fór úr föðurhúsum 14 ára gömul, er þau hættu búskap, því hefir hún
ekki flutt þann heimamund út í lífið.

Einnig þá farnir
að flytjast útlendir dúkar, svo sem flónel, léreft og klæði í betri fatnað.
Þó algengast heimaunnið í hversdags og vetrarflíkur.

p2
Tímamót framfara
og tísku. Mér finnst tilvalið að forvitnast um vefnað fyrri
tíma hjá frændkonu minni, sem ég vissi að óf sjálf á ungdómsárum sínum.
Læt ég hana hafa orðið. Einskefta ívaf. Uppistaða oftast
útlent garn (nefndist vefjargarn), íslenskt band, alull. Bar þá ýmist
sauðalitir eða litað ýmsum litum, ef átti að hafa í svuntur, millipils
eða milliskyrtur. Var þá gjarnan notað garn ívaf, sem einnig nefndist
tvistur, ívafið og voðin þá nefnd tvistur, tvisttau eða tvistvefnaður.
Í dagtreyjur eða kjóla var notað íslenskt band í ívaf. Var
þá liturinn hafður eftir því hvort flíkin átti að fara í hversdagsföt eða
betri föt. Vaðmál: Uppistaða og ívaf íslenskt band
alull. Uppistaðan spunnin með hörðum snúð nefndist þráður, ívaf spunnið
miklu snúðlinara. Áferð voðarinnar vaðmálsvend. Notað bæði
í kven og karlmanna fatnað, í hversdagsföt, sauðalitir, í spariföt litað
með hellulit, og var þá voðin hrafnsvört í sparifötin einnig fínni spuni.
Voðin þæfð undir fótum, toguð upp hristt vafin upp á slétta fjöl,
rúmfjöl, sett undir farg t.d. þunga kistu, er þá voðin mjög áferðafalleg,
slétt og glansandi. Vaðmál var líka notað í yfir og undir rekkjuvoð,
nærbuxur og nærpils. Var þá notuð hvít ull. Öðru leyti unnið
á sama hátt og hér að ofan er lýst. Vormeldúkur: Unnin
úr sama efni og vaðmál. Áferðin allt önnur virtist mun grófari. Voðin
meðhöndluð á sama hátt og vaðmál. Var helst notuð í yfirhafnir.
Salún, sálún: Uppistaða oft notað vefjargarn (tvistur) ívaf
islenskt band, ýmist litað eða sauðalitir. Haft var sama hefðbundið
munstur frá því ég man eftir t.d. 1908-10, og vei tég ekki hvað langt aftur
í tímann. Munstrið þakti alla voðina, sem höfð var í rúmteppi.

p3
Í minni sveit voru
salúnsteppi á flestum eða öllum bæjum, og notuð alla daga, og svo mun hafa
verið víðar á suðurlandi, á þessum tímum. Þetta munstur líktist mjög munstri
því sem Álafoss framleiðir nú í áklæði. Betri lýsingu get ég ekki
gefið af því. Glitvefnaður: Þeim vefnaði kynntist
ég fyrst 1928. Þá var vefnaðar námskeið í Vík í Mýrdal. Kennari
var Sigurlaug Pálsdóttir, Heiði í Mýrdal. Síðar var námskeið í Skaftártungu.
Kennari Kristín Sigurðardóttir, Búlandi. Námskeiðin haldin
á vegum kvenfélaga. Þá var komin norsk vefnaðarbók með fallegum og
fjölbreyttum munstrum og margskonar vefnaði. Glitvefnaði kynntist
ég þannig: Búið var til sérstakt skil fyrir munstrið og það dregið í með
fingrum, en ekki skyttu. Ofið eftir ýmsum munstrum. Ein kona
óf voðina. Voðin gjarnan höfð í sófapúða, veggteppi, borðteppi og
annað skratu. Áður hefir glitvefnaður tíðkast á þessum stöðum, sem
að framan greinir, svo sem glitofið söðulklæði (undirdekk) og var notað
undir söðul og hnakk, einnig söðulsessur og rúmteppi. Og hafa þau
teppi sjálfsagt verið notuð spari. Ekki veit ég til að neitt sé til
af þessum hlutum lengur, og ekki veit ég hvaða aðferð þá var notuð við
þann vefnað. Athugasemd: Ég hefi undir höndum ofin
teppisbút (brekán) úr búi móðurömmu minnar Gyðríðar Þórhallsdóttur f. 1848,
d. 1941, gift 1867. Þetta segir ekki allt um aldur vefnaðarins, en forngripur
er það, engu að síður. Með vinsemd Helga Jóna Elíasdóttir.

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóvinna
Efnisorð:
Ull