Tóvinna

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1902)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 6127 Safnnúmer B: 1968-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 6127

p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður: Margt væri hægt að segja um vefnaðinn, en því miður
er ég ekki fróð um gamla vefnaðinn, því ekki var ofið heima. Það
var maður í sveitinni,sem tók að sér að vefa fyrir foreldra mína það sem
með þurfti fyrir heimilið. Hann hét Sighvatur Jónsson. Þá var
það helst í rekkjuvoð eða rúmábreiður með salúnsvefnaði. Í uppistöðuna
var spunninn þráður en eingirni i ívafið ýmist sauðalitir eða með jurtalitum,
sem ég get ekki greint frá. Þó sagði móðir mín mér að amma hennar
hefði litað úr sortu. Það var að mig minnir úr einir og eitthvað sem hún
sótti í fjöruna, en því hef ég gleymt, en þetta var kallað sorta.
Voðum var gefið nafn eftir því hvað þær áttu að fara í, en aldrei
var sett upp í vefstólinn nema eitt teppi í einu og ekki rakið í grindina
nema það væri ákveðið fyrirfram í hvað voðin átti að fara, t.d. í svuntudúk
eða pilsefni osfrv. Einskefta var það kallað hvað mörg sköft
voru notuð í vefinn, en ekki eftir efninu, enda var einskeftu vend ofin
jafnt úr íslensku sem útlendu efni. Mynstrið kom oftast út hvernig
dregið var í höföldin. Það þekktist ekki að þrykkja í efni. Hér
eru svo margar spurningar, sem ég get ekki svarað. Ég kynntist ekki
gamla vefnaðinum, bara af afspurn. Þegar ég var krakki, þá sendi
faðir minn ull til Danmerkur og fékk hana unn þar í dúka bæði kjóla og
annan fatnað. Ég man eftir kjólum, sem við áttum systur, grænum með
svörtu mynstri í þunnt og fínt. Öll vaðmál, sem unnin voru heima
hjá fólki

p2
voru þæfð undir fótum,
líkt og gert var við eltiskinn, en voðir voru ekki litaðar, heldur bandið
eða efnið sem í þær fór og alltaf ákveðið fyrir fram í kvað voðin skyldi
notuð og hún kölluð eftir því fatavaðmál, rekkjuvoð, svuntudúkur, pilsdúkur.
Þegar rakið er í grindina verður þetta að vera ákveðið áður breidd
og lengd þess sem vefa skal. Litir og litun var mikið notað
úr allskonar jurtum, heyrði ég að fólk talaði mikið um. Annars var
komin útlendur litur fyrst þegar ég man eftir, en ennþá var litað úr mosa.
Það gerðum við systur, þegar ég var innan við fermingu var okkur
kennt að þekkja mosann. Hann er á steinum, er eins og gráhvít skóf
á litinn. Ekki hægt að ná honum nema í rigningu. Við höfðum hníf
og skófum hann af grjótinu. Ég hef ekki séð hann hér fyrir sunnan,
þó ég hafi gáð. Þessi skóf er ekki lík mosa, en þetta var kallað
litunarmosi. Við tíndum þetta í poka, fórum með það heim, létum vatn
í pott, settum mosann í vatnið, létum það sjóða í 10 mínútur, létum 2 peysur
úr ull í pottinn, suðum það í 3 korter, tókum það af eldinum, helltum hálfum
kaffibolla af ediki í pottinn hrærðum í, létum það smástund bíða í pottinum.
Þetta er sá fallegasti og sterkasti brúnn litur, sem ég hefi þekkt,
og litast ekki upp. Ekki vissi ég til að þetta væri almennt gert.
Bæði var ekki hægt að taka mosann að vetri til, svo næst hann ekki nema
í rigningu, svo fastur er hann. Ég kannast ekki við hringvefnað
eða oddavefnað og fleirra sem ég kannast ekki við.

p4
Glitvefnaður: Það
var árið 1922 að Jóhanna systir mín fór til Reykjavíkur til að læra að
vefa á námskeið til Ástu Sighvatsd., bankastjóra, og lærði hjá henni allskonar
vefnað. Hún óf glitvefnað í púða. Uppistaðan var tvistur, en
ívafið var ullarband svart en mynstrið í rauðum lit. Hún óf flos
mottur á gólf, handklæði, dúka, servíettur, rúmteppi með salúnsmynstri.
Hún of peysufatasvuntur úr silkilíni. Pantaði allt efni og vefstól
frá Svíþjóð, en því miður get ég ekki lýst þessu frekar, er búin að gleyma
því. Hún óf allt eftir uppskriftum, og bók sem ég man ekki hvað hét.
Uppistaða í flosmottur var útlent gróft, sem kallað var vefjargarn.
Það líktist seglgarni, en var mýkra, en ullarband í ívafið. Flosið
var vafið uppá prik, svo að það yrði allt jafnt og skorið niður á prikinu,
og því brugðið í vefninn með höndunum, eftir mynstrinu. Þrír endar
í brugðning. Öðru máli gegnir með saumflos með nál. Það var notað
til svo margs. Ég heyrði að það hefði verið flosaðir vestisboðangar
á heldri menn með flosi, sem kallast háaflos, en er þó ekki hátt eins of
nafnið bendir til. Það kunna það margir núna. Eins var flos
notað í kanta til skrauts á föt, líka voru prjónaðir kantar neðan á pilsin.
Það lærði ég af móður minni. Þessi kantur var hafður neðan á pilsin
til styrktar pilsfaldinum. Spjaldvefnað get ég ekkert sagt um þekki
það ekki, en vefnað á fæti t.d. að slingja, sem kallað var, það lærði ég
krakki. Það var gert í kringum skóleppa aðallega saumaða

p5
leppa úr vaðmáli
eða úr afklippum af efni. Leppurinn var sniðinn úr 2 litum í 4 stykkjum,
saumað saman aftur t.d. svart og grænt, ef það er notað látið vera saman,
svo er leppurinn fóðraður með einum lit. Þarf ekki að vera sama efni,
fóðrið þrætt undir, svo er bandið, 2 litir svart og hvítt meira af svörtu,
undið í hankir, endunum fest með nál í leppinn, svo er hönkinni brugðið
gegnum bandið með hendinni og saumað jafnóðum við leppinn með nálinni,
sem fest var með bandið þegar byrjað var. Hún aldrei slitin frá,
fyrr en leppurinn er búinn. Þetta er seinleg vinna og var almennt
ekki notað nema í spariskó eða jólaskóna. Uppistaða í slingingu er
gerð með því móti, að hespa er gerð úr bandinu fyrst og brugðið undir fótinn
eins og venja var þegar band var hespað, svo var það fest við leppinn.
Þetta var allt gert í höndum og það kallað að slingja.
Styttubönd voru líka ofin með nafni eiganda. Það sá ég aldrei, en
heyrði talað um þau í sambandi við spjaldvefnað. Gjarðarvefnaður
var aldrei ofinn í vefstól. Gjarðir voru brugðnar í höndum úr hrosshári,
sem spunnið var á halasnældu. Það er svo gróft að ekki er hægt að
spinna það á rokk, en mig minnir að ullarband hafi verið notað líka sem
þar til var spunnið. Get ekki lýst því, búin að gleyma því.
Vefnaðarnámskeið voru hvergi haldin það ég vissi til á Vestfjörðum
þegar ég var barn. Það var löngu seinna að Húsmæðraskólinn á Ísafirði
fór að kenna eitthvað af vefnaði.

p6
Hæruvoð heyrði ég
aldrei talað um. Í hærur voru notaðir strigapokar, saumaðir saman
í höndum og lykkjur úr snæri settar í hornin og trépollar þar í. Hrosshár
var aldrei notað í neitt annað en gjarðir, það ég þekkti til, því síður
hundshár.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóvinna
Efnisorð:
Ull