Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1899)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 6143 Safnnúmer B: 1968-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 6143

p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður: Vefnaði var gefið nafn eftir vend, og til hvers
voðin átti að notast. Salúnsvoð var aðeins notuð í rúmábreiður, í
setur á stóla og önnur húsgögn (t.d. á púff). Salúnsvoðin, sem átti
að verða í yfirbreiðslu á rúm, var ofin úr tvinnuðu bandi, venjulega voru
þessi teppi nefnd brekán. Voru þau margbreytileg að lit.
Einskefta var notuð í rekkjuvoðir og koddaver, alltaf einlit, hvít voð,
en ofið með röndum í ýmsan fatnað t.d. millipils, svuntur og milliskyrtur.
Uppistaðan var ýmist ullarþráður eða tvistur, ívafið þráður eða bómullargarn.
Voðin sem átti að notast í nærföt var úr þeli, bæði uppistaða og
ívaf. Með vaðmálsvend var voð, sem nota átti í ytri fatnað,
alltaf úr alull. Stundum var hvíta vaðmálið sent í ullarverksmiðju til
litunar, svart ef það átti að nota í viðhafnarföt. Oft var hellulitað
heima. Í barnaföt var stundum litað heima, bæði mosalitað og blátt
með indigólit.

p2
Karlmannaföt voru
oftast með sauðarlit. Vormeldúkur, líka ofinn heima, var
notaður í karlmannaföt og yfirhafnir, var mjög þéttofinn og sterkur. Spjaldvefnaður
var notaður í axlabönd, sokkabönd ofl. Þetta sá ég ekki gjört, en
sokkabönd átti ég, sem voru ofin úr togþræði, jurtalituðum gult, rautt
og svart, orðin á annað hundrað ára gömul, mjög fallega unnin.
Gjarðir voru brugðnar (ekki ofnar) ýmist úr hrosshári eða togi. Þráðurinn
spunninn á snældu. Sylgjan var saumuð á endana á gjörðinni með leðurbót,
saumað með seymi eða seglgarni.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna