Ull og tóvinna IV
Þjóðminjasafn Íslands – Spurningaskrá 18
Ull og tóvinna 4
Nr. spurningaskrár 1968-1
Til að nálgast pdf. skjal með öllum svörum heimildafólks ýttu á forsíðu skráarinnar hér til hliðar (Mynd 2 af 2).
Til að nálgast frekari upplýsingar má senda póst á thjodhattasafn@thjodminjasafn.is
Titilmynd skráarinnar: Ljósm. Johannes Klein. Safnnr: Lpr. 1995-92
Hér að neðan má sjá þær spurningar sem heimildafólk þjóðháttadeildar fékk sendar í tengslum við skrána:
Þjóðháttaskráning Þjóðminjasafnsins
18. Spurningaskrá
Apríl 1968.
Ull og tóvinna, IV.
Spurningaskrá þessi, sem er hin fjórða um ull og tóvinnu, er væntanlega hin síðasta viðvíkjandi vefnaði. Sum atriði, sem hér er spurt um, eru að öllum líkindum orðin svo fjarlæg nútímafólki, að lítil von er til að hægt sé að gera þeim nokkur viðhlítandi skil í svörum, en samt hefur engu að síður verið spurt um þau, ef svo færi að einhver kynni að greina frá þeim.
Enn sem fyrr væri Þjóðminjasafninu hin mesta þökk á því, ef vinir þess og velunnarar gætu látið því í té sýnishorn af íslenskum vefnaði ásamt upplýsingum um aldur, efni, vefara og þann, sem vann voðina, litun o.s.frv. Það skiptir ekki máli, þótt sýnishornin séu slitin af langri notkun, en á það skal lögð áhersla, að sýnishornin séu ekki klippt úr heilum hlutum eða hlutum, sem halda upphaflegri lögun. Safninu væri ekki síður þökk á, að þessari beiðni væri komið á framfæri við þá, sem líklegir eru til að eiga í fórum sínum vefnaðarsýnishorn.
Vefnaður almennt.
V
Questions and Answers
Nr. 6319
p1
Ull og tóvinna 4.
Viðmiðun mín verður Fljótsdalshérað og Vopnafjörður, sem á þessarri
öld virðast hafa haldist í hendur með heimilishætti og lífsbaráttu, sem
framundir holskeflur 20. aldar, einmitt byggðist á heimilisiðnaði og nýtni
á öllum sviðum, og þá ekki síst ullinni, og grunar mig að illa hefði gengið
að fá óháskólalærðan mann eða konu til að samþykkja að hægt væri að leysa
vanda þjóðarinnar með því að fækka fjárhausunum, en fjölga gærunum.
Það er alveg ótrúlegt hvað komist var yfir að vinna úr ull, jafnvel
áður en prjónavélar komu á markaðinn. Flestir kunnu að prjóna, allt
frá héraðslækninum niður að smaladrengnum. Sú iðn jókst, en vefnaðurinn
þvarr ört á millistríðsárunum. Fyrir mitt fyrsta sumarkaup, keypti
ég t.d. prjónavél, og prjónaði rekkjuvoð úr fínu eingirni (einþættu bandi).
Þá var illmögulegt að fá álnavöru eða tvist til vefnaðar tímum saman.
Heimilisfólki fækkaði, ekki síst stúlkum, en það var mikið verk að spinna
uppistöðu (eingirni). Það var að vera snúðhart, næstum eins og þráður,
sem notaður var til viðgerðar á öllu sem vel þurfti að endast, eins og
skó og skinnafatnaður. Hör vantaði þá oft í þráðavalið. Þá
(líklega 1923) birtist síðasta hálmstrá heimilisvefnaðar, 24 þráða spunavél
p2
Kvenfél. Vopnafjarðar.
Mig minnir þurfa yfir 20 snúninga á hvert haf, sem mun hafa verið
um 2-3 metrar, þó þessar tölur séu ágiskun, ekki örugt minni. Ívaf
þurfti hálfu minni snúð. Vefnaður almennt: Almennt
nefndur eftir notagildi. Slangan rakin í álnatali að viðbættri venjulegri
vefnaðarrýrnun, t.d. 14 álnir í 12, en þess ber að gæta að affall er tilfinnanlegra
því styttri sem vefurinn er, því alltaf er fram- og afturhnýting sú sama
hvort vefurinn er langur eða stuttur. Einskefta: Tvisttau
var öll einskefta úr tvisti kölluð, og notuð í svuntur, skyrtur og margt
fleirra, ýmist einlitt, röndótt, köflótt eða skokst. Þannig voru
oft peysufatasvuntur munstraðar í sétteringum sauða- og jurtalita, unnar
úr fínustu ull, sömuleiðis sjöl. Þá vinnu sá ég vandaðasta og síðast
frá Egilsstöðum á Völlum unna af Margréti húsfreyju þar. Aftur á
móti sá ég síðast og fínast unnar og prjónaðar skotthúfur á Guðmundarstöðum
í Vopnafirði. Vaðmál: Vaðmálsvend sá ég aldrei, nema
á ullarefnum, og notuð þá eingöngu í vinnu- og utanyfirföt, pils, buxur,
jakka, reiðföt, hvort sem var á karla eða konur. Þessi venjulega
vaðmálsvend eru vígindin til sömu
p3
handar, eins og á
venjulegu erlendu sevioti, og ég vissi til að það var sent í lóskurð, pressun
og litun, ef um vönduð spariföt var að ræða, en það var að mestu fyrir
minn dag. Ég óf bæði einskeftu í pils og vaðmál í buxur og jakka,
litaði bandið fyrir vefnað og pressaði um leið og sniðið var, og það var
vandalaust. En þetta voru líka aðeins vinnuföt. Til vaðmálsvefnaðar
telst fleirra en seviot. Oddavefnaður er bara afbrigði vaðmáls, breytt
um stig. Þetta eða þetta mörg stig til hægri eða vinstri á víxl,
eftir því hve stórir oddarnir eiga að vera. Hringavefnaður:
Hringavefnaður er líka í raun og veru aðeins afbrigði af vaðmáli,
hvort sem um hring eða hálfhring er að ræði, sama og um oddavefnaðinn.
Það eru aðeins fleirri stig og höf, uppbinding og skammel. Yfirleitt
ofið úr einföldu bandi (eingirni), snúðhörð uppistaða, en snúðlint ívaf.
Vormeldúkur: Þekki það aðeins að nafninu. Þá
var amk. ívaf tvíþætt band, og því áferð öll grófari, og mer er sagt það
hafi helst verið notað í yfirhafnir karlmanna, ferðaföt il vetrarferða,
yfirleitt í skjólföt. Áferðin gróf og því að líkum stundum notað sem brekán.
Salún: Orðabók talar aðeins um salún, en ég
p4
heyrði það alltaf
nefnt salon. Þessi vefnaður var nær eingöngu notaður sem ábreiður
á legubekki, og svo síðar sem áklæði á húsgögn og getur verið mjög fallegur.
Í raun og veru tvöfaldur vefnaður, grunnur er einskefta úr eingirni,
en munsturgarn (ég sé þið notið orðið munstur) var tví- eða þríþætt, stig
og uppbinding margbrotin, sem sagt 2 stig einskefta, en geta verið mörg
og flókin munsturstig. Þetta er alveg tvöfaldur vefnaður, þar sem
grunnur er á röngu er munstur á réttu og öfugt, grunnur á réttu munsur
á röngu. Því veltur mikið á litavali, bæði á grunn og munsturlitum.
Mig grunar að Álafoss framleiði enn salún, finnst ég hafa
séð það á nýjum vönduðum húsgögnum, og sem bekki í gluggatjöldum. Það
væri þess virði að athuga það. Ég á sextugt salonteppi, sem ég óf
15 ára á námskeiði á Vopnafirði hjá Kvenfélaginu, eftir að hafa spunnið
í það á spunavél þess, grafið upp til litagerðar rætur, mosa og nýgræðing
í 9 liti í 3 litbrigðum (sétteringum). Eftir hálfrar aldar notkun
er það orðið slitið, og litir hafa dofnað, og þó furðu lítið. Nú
þarf ég að fara að kveðja það, og koma því á eitthvert safn.
Brekán: Brekán hef ég minnst á, en þekki ekki af reynslu. Veit
þau voru grófgerð, en hafa vafalaust getað verið röndótt
p5
eða bekkjótt, en
þar sem ívafið var gróft getur það ekki hafa verið spólað í smá skotskyttu,
heldur vafið á spjaldskyttu. Það voru þunn tréspjöld 5-6 cm. breið,
en 60 cm. löng eða lengri eftir breidd vefsins. Skerðing var gerð
í endana líkt og á netanál, valinn harðviður og vel slípaður. Allt
gróft einfalt, tvöfalt og þrefalt ívaf var vafið upp á svona skilnál, aðeins
mjög fínt eingirni, tvistur og silkilín borgaði sig að spóla á hraðskyttuspólur.
Auðvitað varð að gefa þeim mun meira uppí, sem ívafið vr grófara.
Ég lifði á afskekktu heimili og fylgdist ekki nógu vel með þessum
málum, en ég hygg að ekki hafi verið mikið um vefnað að ræða á heimilum
eftir fyrsta aldarfjórðunginn. Fyrst og fremst vegna fólksfæðar.
En Kvennaskólarnir hafa alltaf haldið við vefnaði, amk. með námskeiðum,
og nú síðar hefur Iðnskólinn það á sinni skrá. Glitvefnaður:
Ég fékk að læra hann á þessu fyrrnefnda námskeiði og óf á píanóbekk,
en gaf hann. Vefnaðurinn er fljótlærður, aðeins einskefta og eitt
munsturskil. Uppistaða og ívaf jafnfínt, en musturgarnið eða bandið
gróft. Stigið til skiftis einskeftan og svo eitt munsturskil, rétta
borðið snýr niður, svo upp koma uppistöðuþræðirnir fyrir hvert spor. Munsturgarninu
er svo bara brugðið undir, og geta vitanlega
p6
verið margir litir
í hverri línu yfir vefinn, og því gott að eiga sem flestar skilhenkur,
og vel þegin hjálp að fá þær undnar upp. Þær eru þannig gerðar að
bandinu er brugðið á víxl um 2 fingur mörgum sinnum, og svo endanum vafið
utan um, en innri endanum svo brugðið undir munsturþræðina og til baka
undir einn til að festa endann, og getur beðið næsta spor svo lengi, sem
þar á að vera sami litur. En nú er ég gengin of langt og farinað
kenna. Það var ekki ætlunin. Auðvitað hefur verið hægt
að vefa jafa fyrir glit og krosssaum, en ég hef ekki séð það gert.
Krossvefnaður: Á fyrrnefndu námskeiði óf ég líka krossvefnaðar
púða. Hann get ég nú hvergi fundið, líklega verið orðinn upplitaður og
annað sett utanum. Flosvefnaður: Flosvefnað er hægt
að vefa á þessa litlu stiglausu vefstóla, sem hægt er að skrúfa á vinnuborð.
Á þeim eru aðeins 2 skil, upp og niður, tekin með skeiðinni og rétta
borðið snýr upp, svo strax er fljótséð ef skakkt er unnið, því hef ég notað
hann við flosvefnað bæði handa ungum og öldruðum. Ekki hef ég neitt
sýnishorn. Sá eini púði sem sonardætur mínar ófu, er hjá þeirri sem
búsett er í Englandi.
p7
Spjaldvefnaður og
fótvefnaður: Þá þekki ég ekki með þessum nöfnum, en hygg að það hljóti
að vera eitthvert afbrigði af gjarðavefnaði eða slyngja, etv. það sama.
Það var bara í minni bernsku kallað að bregða gjarðir. Það
á það sameiginlegt, að hver þráður uppistöðu er jafnfram ívaf. Það
þýðir að gjörðin er ekki lengri en það að lengdinni er hægt að koma í skilhönk.
Sé um lengri munsturkant að ræða, skilst mér að það væri ráð að hafa
hvern þráð á spjaldi. Er ekki var unnið héngu slöngurnar á rúmstöplunum.
Gjarðir voru oft hengdar á bita, ef svo vildi til að hann væri staðsettur
yfir rúmi þess er vann. Ef ekki, sá ég oft þann er vann bregða fæti
á endann og gjörðin eða bandið svo leggjast yfir hnéð. Þetta var
þægilegra en að sitja undinn á rúminu, oft var ekki um annað sæti að ræða.
Mjóstu slyngd bönd voru notuð til að brydda íleppa ofl.,
en breiðari, t.d. sem styttubönd, sokkabönd, og svo 5 cm. breið, sá ég
fóðruð, krækt og notuð yfir samskeyti stuttbuxna og sokka á karlmönnum,
og þótti það góð gjöf, t.d. frá kærustunni. Hæruvoð: Hæruvoð
heyrði ég ekki nefnda, en hafa vafalaust verið góðar mottur. Strigi
var kominn, er ég man fyrst eftir mér, bæði pokar, mjaltasvuntur og hlífðarpils
við verstu verk þóttu sjálfsögð.
p8
Námskeið: Þau
hef ég minnst á og tel þau þörf og gagnleg. Ekki vegna þess að ég
telji að heimilisvefnaður verði hagkvæmur á þessari tækniöld, heldur bara
gleðigjafi til að skreyta tilveruna, eins og annar heimilisiðnaður. Námskeiðsvinna
nú mest rósabandsvefnaður, sem er raunar aðeins einskefta með munsturbekkjum
eins ot t.d. borðdreglar og bekkir í gluggatjöld. Líka vorum við
látnar vefa borðdúka úr tvisti með salúnsvefnaði. Það var mikið verk
í tvíbreiðum vefstól, uppistaða af 1400-1500 þráðum. Síðast sá ég
þá ofna úr silkilíni í munsturþráð. Daladregill: Með
þeim vefnaði óf ég á þessu umrædda námskeiði, bakkabönd. Hef ekki
séð þann vefnað síðan, en mér er sagt að Norðmenn noti hann sem kanta á
þjóðbúninga sína, og að kunnugir geti þekkt af litum og munstri frá hvaða
fylki hver og einn sé. Hundshár: Afi minn, Sveinn,
átti vettlinga, sem unnir voru úr svörtu hundshári af loðnum frönskum hundi,
sem hann átti. Napóleon leið svo illa í mikilli hitatíð, að afi tók
það ráð að klippa hann blessaðann. Benedikt Gíslason frá Hofteigi
getur um þetta í afmælisgrein um Oddnýju Sveinsd. í Fagradal, í Tímanum
27. maí 1959. Hann telur þá hafa litið vel út.
Nr. 6293
p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður almennt: Voðum var yfirleitt gefið nafn eftirvefnaðar
vígindum, oftast fylgdi með til hvers átti að nota voðina: buxnavaðmál,
rekkvoða vaðmál, nærfata vaðmál, allt með vaðmálsvígindum, svo var skyrtudúkur,
svuntudúkur, millipilsadúkur með dúkvígindum (einskefta), svo var vormeldúkur
sérstök vígindi, brekán og ábreiðuverk, allt með sínum sér vígindum. Auðvitað
voru allir vefir reiknaðir út fyrir fram, því fólk vissi upp á hár hvað
þurfti að leggja út til að fá ákveðinn álnafjölda, og vitað var hvað þurfti
í hvað eina. En sjaldan mun hafa verið settur upp vefur t.d. fyrir
eitt brekán, eina ábreiðu eða einar buxur. Það var sama vinnan við
að setja upp vef, hvort hann átti að vera langur eða stuttur. Ég
heyrði að fólk hefði stundum lagt saman, ef það vildi koma upp samskonar
vef. Öll uppistaða í vefi var nákvæmlega reiknuð út. Hespurnar voru
nákvæmlega jafnlangar, en svo réði grófleikinn á bandinu hvað voðin varð
þykk, eftir því þynnri, sem bandið var fínna, bæði uppistaða og ívaf. Ég
man að það stóð einhver klausa um útreikning á vef í reikningsbók, sem
ég lærði þegar ég var krakki. Það stóð: Ein hespa er 11 skreppur,
ein skreppa 44 þræðir, en nú hef ég gleymt lengdinni á þræðinum, en það
var hringurinn á hesputréskrossinum. Ég man að ég heyrði
skrýtlu, sem gerðist á bernskuárum móður minnar á Staðarbyggð í Öngulstaðahr.
Þar voru þá fátæk hjón, þau vildu koma sér upp vef, en áttu ekkert
hesputré, þá gerði kerling sér lítið fyrir og hespaði allt á karlinn, en
vefarar höfðu kvartað sáran um að leggja upp í vefinn úr hespunum frá Guðrúnu
konu Lárusar, en karlinn kvartaði um hvað það væri erfitt þegar hún Guðrún
sín væri að spinna í vef, en hann varð að liggja á hryggnum á gólfinu með
hendur og fætur upp í loft, svo vatt kerlingin upp á hann!
p2
Einskefta: Það
var sú vefnaðar, sem einfaldast var að vefa. Það voru aðeins 2 skifti,
sem stigið var á til skiftis og alltaf einu og vígindin hétu dúkvígindi.
Það var hægt að vefa hvað sem var með dúkvígindum eða einskeftu.
Það var efnið sem réði hvort dúkurinn varð þykkur eða þunnur. Eftir
að tvistur fór að flytjast, fór fólk að kaupa hann til að vefa úr honum,
því hann var ódýr. Margir höfðu tvist í uppistöðu, en ullarband í
ívaf. Eftir að kom fram á þessa öld, var tvistur meira notaður í
allskonar vefnað, en ullarband. Það voru ofnir kjóladúkar, millipilsadúkar,
skyrtudúkar, gluggatjöld og handklæði, en í þau var notað teppagarn í ívafið.
Á síðari stríðsárum settu sumar konur upp sængurveradúka úr tvisti,
því þá var oft illt að fá sængurveraléreft, amk. hér fyrir norðan.
p3
Vaðmál: Vaðmál
var vandasamari vefnaður en dúkurinn (einskeftan). Þar þurfti að stíga
4 kefli eftir kúnstarinnar reglum. Og vaðmál var held ég alltaf úr
alull, en misþykkt eftir því í hvað það átti að vera. Nærfatavaðmál og
rekkvoðavaðmál var oftast hvítt, þó var til að það væri grátt. Í
hversdagsföt var vaðmálið oftast með sauðalitum, svart eða mórautt. Í
spariföt karla og kvenna var vaðmálið víst alltaf litað eða þá bandið áður
en ofið var. Það var mikið notaður hellulitur. Á seinni hluta
aldarinnar sem leið og á fyrsta tug þessarar, fengust allskonar útlendir
litir, sem fólk notaði og margir bæði............... þeir munu hafa útrýmt
jurtalitun en við þá er svo mikil vinna. En á fyrri stríðsárunum
hættu þessir litir að flytjast og þá fóru ýmsir að snúa sér að jurtalitum
aftur, sérstaklega var það þó mosalitur. Klæðavefnað eða
veipu hef ég ekki heyrt nefnda. Ef það hafa verið klæðisvígindi á
því, hefur það eflaust verið notað í spariföt. Sama máli gegnir um
hringvefnað, hann þekki ég ekki. Oddvefnaður mun hafa verið
notaður á rúmábreiður. Eg man eftir 2 ábreiðum, þegar ég var lítil.
Það var einhverskonar oddavefnaður á þeim, en það var notað mjög
gróft band bæði í uppistöðu og ívaf í ábreiður og brekán. Litir voru
alltaf margbreytilegir eftir efnum og ástæðum og smekk hvers og eins.
p4
Vormeldúkur: Vorneldúkur
var talsvert notaður í karlmannaföt, og þótti mjög sterkur. Vígindin
voru sérkennileg og ég veit ekkert um
vefnaðar aðferð.
En á seinni stríðsárum, kom ég upp vormeldúk í föt handa bónda mínum.
Uppistaða var grá (sauðalitur) en ívaf brúnt, heimalitað bandið í
einhverjum útlendum lit. Efnið var þæft og pressað á Gefjun. Útlitið
á því minnti helst á efni sem nú er kallað tveed. Ég saumaði úr þessu
reiðbuxur og sportjakka og þetta var næstum óslítandi, en brúni liturinn
sveik og upplitaðist. En ég á ekkert af þessu efni lengur. Páll
Jónsson á Litlahamri óf þetta, en ég hef ekki heyrt talað um mismunandi
áferð á vormeldúkum, band eða þráð vormeldúka. Salún: Ég
vissi aldrei til að salúnsvefnaður væri hafður á neinu, nema rúmteppum
eða rúmábreiðum. Það er þessi vefnaðargerð sem heitir salún og prufurnar
sem ég sendi sýna mismun á alsalúni og hálfsalúni, en litir gátu auðvitað
raðast með ýmsu móti. Og æfinlega var alull bæði uppistaða og ívaf.
Salúnsábreiður þóttu góðir gripir og ég get trúað að þær hafi heldur
verið sparaðar. Salúnsvefnaður var hafinn til vegs og virðingar á
ný, þegar kvennaskólarnir tóku til starfa. Það var t.d. mikið um
að skólastúlkur, sem væru látnar vefa borðdúka (matardúka) með salúnsmunstri,
en þá var notað útlent garn, oft eitthvert silkigarn í munstrin. Ég
veit að til eru enn í notkun salúnsteppi, sem unnin voru á Laugalandsskóla
og kannske á stöku fornbýl kona gamalt salonsteppi.
p5
Brekán: Brekán
voru með sinni sérstöku vefnaðargerð. Það var hvorki dúkvígindi,
einskefta eða vaðmálsvígindi og ekki heldur salúnsvígindi. Þau voru æfinlega
mjög þykk. Vefnaðurinn var þannig að hann virtist tvöfaldur, annars
kann ég engin skil á brekánsvefnaði, en það hefur án efa verið alull í
þeim og það gróft band. En þetta var allt ofið með sínum sérvefnaði,
brekánsvefnaði. Glitvefnaður: Hann var mjög í heiðri
hafður hér áður. Glitofin söðuláklæði, rúmábreiður og reflar. Þóttu
mikið dýrindi. Það vor ofnar með gliti allskonar rósir og dýramyndir.
Ég álít að vefnaðurinn hafi verið einskefta, en glitnu brugðið með
höndunum í skilið. Margar konur hafa saumað glitmunstur eftir gömlum
sessum eða söðuláklæðum. Ég saumaði sjálf, þegar ég var ung, munstur
úr gömlu söðuláklæði frá Sámsstöðum í Öngulsstaðahr. Ég saumaði það
í heimaofinn dúk. En nú er þetta veggteppi týnt og tröllum gefið
og áreiðanlega líka gamla söðuláklæðið. En þegar kvennaskólarnir
risu upp, var farið að endurvekja glit, krossvefnað og flosvefnað, og hljóta
að vera til hlutir með þeim vefnaði hjá þeim stúlkum, sem lærðu í kvennaskólunum.
Frá krossvefnaði get ég ekkert grein, og ekki heldur flosvefnaði.
Ég heyrði talað um flosofnar sessur og flosofna borða til að skreyta
með föt. Það er sennilegt að þeir hafi verið ofnir á fæti, en ekki
í vefstól. Ég held að flosvefnaður hafi ekki mikið verið
p6
endurvakinn í kvennaskólunum.
Það er áreiðanlega mjög óvíða til gamall flosvefnaður. Hann hefur slitnað
fyrr en margur annar vefnaður og stutt er síðan farið var að hugsa um að
halda til haga gömlum munum, sem taldir voru orðnir ýnýtir. En á
þriðja og fjórða tug aldarinnar fór að koma til vélflos. Það var unnið
með flosnál eða flosvél. Stykkið var þanstrengt upp á grind, munstið
var teiknað á úthverfuna, og svo pikkað með nálinni, sem þrædd var með
fínu garni, og kom þá munstrið út á réttunni. Svo nú fyrir fáum árum
kom það til að fara að flosa stórar myndir í striga með stærri flosvélum
og grófara garni eða ullarbandi, en þegar þetta flos var komið til hefur
varla verið farið að sitja yfir flosvefnaði, sem var mjög seinlegur og
vandasamur. Spjaldvefnað hef ég ekki séð nema á söfnum og
fótvefnað ekki heldur, nema sokkaböndin, sem hún Helga heitin á Stórhamri
óf. Ég sá hana aldrei vefa, og veit ekki hvernig farið var að, en
ívafið hefur áreiðanlega verið undið upp á spjald eða spýtu, og öll þau
sokkabönd, sem ég sá voru með sömu vefnaðargerð, en mjög mismunandi litum.
Gjarðavefnaður: Ég veit ekki hvort það tíðkaðist hér
að vefa gjarðir í vefstólum. Þær voru amk. miklu oftar brugðnar.
Flestir bændur og margir vinnumenn kunnu bæði að bregða gjarðir og
beltistauma og flétta reipi. En aðferðin var svipuð. Það voru
mældir útþræðir, mátulega langir í það sem átti að vinna, þráðafjöldinn
fór eftir hvað það var breitt (gjarðirnar) eða svert (reiptöglin). Þá
voru þræðirnir undnir
p7
í henkur, sem svo
röktust niður jafnóðum og brugðið var. Þá var litunum raðað niður,
því oftast voru hafðir 2 eða fleirri litir. Oddagjarðir þóttu
fallegar, en tenntar gjarðir sá ég úr ull og sennilega hafa þær verið ofnar.
Þegar ég sá brugðnar gjarðir og fléttuð reiptögl var saumað fyrir
endann með reiðinganál (eins og gríðarstór rúllupylsunál). Ekki var
hætt við að byrjunar endinn raknaði upp, og á klifberagjörðum og reiptöglum
var oftast byrjað á að gera auga, sem var svo sett fast um baðstofubita
eða eitthvað annað. Námskeið, skólar: Eins og flestir
vita, var vefnaður hafinn til vegs og virðingar aftur þegar kvennaskólarnir
tóku til starfa. Vefnaðarkennsla var í öllum kvennaskólum. Vefnaðarbækur
voru gegnar út, bæði var safnað saman í þær, því sem vitað var um munstur
og annað sem vefnaði viðkom, og svo kom nýtt til sögunnar. Halldóra
Bjarnadóttir barðist eins og ljón fyrir endurvakningu vefnaðar um allt
land. Kvenfélögin fóru að gangast fyrir vefnaðarnámskeiðum. Stúlkur
sem búnar voru að læra vefnað í kvennaskólunum voru fengnar til að kenna
og til að vefa fyrir konur. Þær ferðuðust milli bæja og settu upp
vefi og ófu líka sjálfar. Það var mikið gert af því að láta þær vefa
dívanteppi, púða og borðdregla. það var held ég aðallega með rifsvefnaði
með rósabragðs bekkjum og fleirri munsturbekkjum. Uppistaðan var
oftast tvistur og ullarband í ívafið og allskonar skrautlirir í bekkina.
Það voru stundum sett upp mörg dívanteppi í einn vefstól, og
vefnaðarkonar hélt svo til á þeim bæ, og óf fyrir margar konur.
p8
Mér er minnisstæðust
ein af þessum farand vefnaðarkonum. Hun var útlærð í vefnaði í Laugalandsskóla.
Hún hét Anna Björnsdóttir frá Siglunesi við Siglufjörð. Ég
veit ekki hvort hún er á lífi eða hvar hún er, en þetta var mjög geðþekk
stúlka og myndarleg til verka. Hæruvoðir þekki ég ekki og
því síður að hundshár væri notuð. Ég spurði Aldísi, hvort hún vissi
til að það hefði verið gert, og sagðist hún ekki hafa vitað til þess. Þá
heyrði ég aldrei talað um að hrosshársband væri ofið í vefstól. Auðvitað
hefði orðið að nota aðra skeið og skyttu, ef þannig ruddi hefði verið settur
upp í vefstól. Aldís vildi meina að þessar hæruvoðir hefðu verið
ofnar úr togi og hærum úr ull, en ekki úr hross eða hundshári. En
meðan öll ull var unnin heima, var tekið ofanaf henni allri, fyrst var
mesta togið gripið af, svo var hún oft látin í poka eða innan í klút og
geymd. Svo var hún hærð. Togið sem eftir var kom í ljós og
var dregið úr. Auðvitað var togið og hærurnar notað í ýmsan grófan
vefnað eða prjónaskap, t.d. voru reiðsokkar prjónaðir úr togi. Þá
heyrði ég talað um að það hefðu verið prjónaðar þvögur til að þvo mjólkurílátin
með bæði úr togi og hrosshári. Ég man ekki betur, en ég svaraði
í spurningaskrá, því sem ég vissi um hrosshárstóskap, og læt því ósvarað
spurningum um það.
p9
Herra Árni Björnsson!
Það má með sanni segja að það sé að fara í geitahús að leita ullar,
að leita til mín með upplýsingar um vefnað. Það var aldrei ofið heima
á mínu heimili, og ég hef aldrei lært að vefa eða kynnt mér vefnað. Reyndar
man ég tvisvar eftir að komið væri upp voðum einhverntíma á öðrum tug aldarinnar,
annað var vaðmálsvoð hvít, sem átti að nota í nærbuxur. Hitt var
kjóladúkur og hann mun hafa verið sendur "út á vélar" þ.e. á
Gefjun til litunar, pressunar og lóskurðar. Það mun að mestu hafa
lagst niður hér að koma upp vefnaði um og eftir 1920. þá var farin
að fást allskonar fjölbreytt álnavara. Ég leitaði því til nágrannakonu
minnar Aldísar Einarsdóttur á Srokkahlöðum hér í hrepp,en hún verður 100
ára í haust, 4. nóvember. Hún er andlega stálslegin, þó fætur séu
að bila og sömuleiðis heyrnin. Hún býr ein og sér um sig sjálf. Hefur
að þessu stungið upp garðinn sinn á vorin, en hún á fallegan garð með stórvöxnum
trjágróðri, blómabeðum og matjurtaplássi. Hún er stálminnug og fylgist
með öllu, jafnt heimspólitík sem bæja
slúðri og lætur sig
flest varða. Hún er fædd í Núpufelli í Saurbæjarhr. Foreldrar
hennar voru Guðríður Brynjólfsd. ættuð úr Skagafjarðardölum og Einar Sigfússon,
bóndasonur fá Núpufelli. Þau hófu búskap í Núpufelli um 1880, þar
fæddust þeim 2 dætur, Rósa og Aldís. Þá fluttu þau að Hrísum í sama
hreppi og bjuggu þar einhver ár, en fluttust þá að Stokkahlöðum 1891 og
bjuggu þar til dauðadags. Þau áttu 3 börn, sem upp komust. Þær
systurnar 2 og son sem Bjarni hét, en ekkert þeirra giftist og nú er Aldís
ein eftir í húsinu, sem byggt var 1922-23. Hún er mjög fornbýl eins
og títt var hér áður,
p10
og ég vissi að hún
mundi eiga vefnaðarprufur. Hún brást vel við með að láta þessar prufur,
en hún mundi nú ekki upp á hár hvenær hver vefur var ofinn. Hún segir
að það sem ofið var meðan þau voru fram í Saurbæjarhreppi muni hafa verið
ofið í Núpufelli. Segir að þar hafi alltaf staðið vefstóll uppi á
hverjum vetri, bæði afi hennar og amma Rósa, kunnu að vefa, svo segir hún
að þar hafi verið aldraður vinnumaður, Guðjón að nafni, sem hafi verið
mikill vefari. Það sem ofið var eftir að þau fluttust að Stokkahlöðum
segir hún að muni hafa verið ofið annaðhvort í Víðigerði eða á Botni. Í
Víðigerði bjó Krisjtán Hannesson, og tók af fólki að vefa, en á Botni bjó
Jóhann Pétur Jakob Rist. Hann var faðir Lárusar Rist sundkennara,
aðfluttur sunnan af landi, en hann var mikill vefari. Þá var húsmennskumaður
í Möðrufelli á fyrsta tug aldarinnar. sem hét Jóhannes Jóhannesson. Hann
var slyngur vefari, og fann upp ýms vefnaðarmunstur. Og þegar ég
man fyrst, bjó á Gilsbakka hér í hreppi Jóhannes Jósefsson og var listavefari
og tók af mörgum að vefa. Hann andaðist 1925. Síðastur
af þessum gömlu vefurum var Daníel Jónsson frá Sellandi í Fnjóskadal. Hann
flutti hér inn í fjörðinn um 1930, og settist að hjá dóttur sinni og tengdasyni
á Litlahamri, Guðmundi Jónatanssyni. Daníel óf mikið eftir að hann
kom hér inn í fjörðinn. Þá var líka að vakna áhugi á vefnaði á ný.
Það voru áhrif frá kvennaskólunum og Halldóru Bjarnadóttur. Ég
fór að spyrja dóttur-dóttur Daníels, Aðalbjörgu Guðmundsd. hvort ekki væru
til prufur af vefnaði afa hennar. Hún sagði það væri til nokkuð af
pjötlum, sem festar væru á spjald. Þær hefðu verið sendar á Heimilisiðnaðarsýningu
og út á það hefði hann fengið skrautritað heiðursskjal, sem til væri. Mér
heyrðist á Aðalbjörgu að þau mundu vera til með að láta Þjóðminjasafni
eftir amk. prufurnar. Dóttur-dóttir hans segir að alls muni hann
hafa verið búinn að vefa 7000 metra alls. Með bestu kveðju Svanhildur
Eggertsdóttir.
Nr. 1463
p1
Ull og tóvinna 4.
Voðum var yfirleitt gefið nafn eftir tegundum, t.d. var mjög algengt
að tala um buxnavoð, skyrtudúk, svuntudúk osfrv. Álnatal var ákveðið
í hvern vef og voru það minnst 40-50 álnir. Bandið var reiknað út
í vefninn eftir því hvað fínt það var og lagt til grundvallar hespufjöldi,
og áætlað víst úr hverri hespu.
p2
Einskeft: Vefnaðarvendin
var nefnd vígindi. Vefnaðarvend þekktist ekki þar sem ég ólst upp.
Væri efnið úr alull hét það ullardúkur eða klæðisdúkur, það þótti
fína að hafa ytri föt úr klæði, og þá hét það klæðisdúkur. Tvistdúkur
var það nefnt ef dúkurinn var úr tvisti og ull (eða einskefta), eins ef
dúkurinn var úr tómum tvisti. Efni uppistöðunnar var tvistur, ef
það var einskefta úr ull og tvisti, en ívafið var ullarband. Litirnir
voru sauðalitir, mosalitir eða deildarlitir (rautt, gult, blátt osfrv.).
Ég man ekki sérstök nöfn á munstrum. Litum var raðað niður á uppistöðum
og svo á spólum, það var kallað að munstra. Einskeftudúkar voru með ýmsum
nöfnum, svo sem: kjóldúkur, millipilsadúkur, svuntudúkur, milliskyrtudúkur.
Liturinn var mjög oft rúðótt í svuntudúk, stykkjótt í milliskyrtudúk,
röndótt í millipils og fatafóður. Sængurveradúkur var tilbúinn úr
tvisti og tog ívafi, sama gilti með tjalddúk og pokadúk, nema þá var efnið
mikið grófara.
Vaðmál: Uppistaðan
var þar yfirleitt alull, og hið sama gilti með ívafið. Litir voru
þeir sömu og áður eru nefndir, nema nú kom til greina hellulitur auk deildarlita
og mosalitar. Spariföt voru eins og áður segir úf fína efni, einkum
gilti það um spariföt kvenna, stakkpeysa og pils voru úr þráðardúk, uppistaðan
úr snúðhörðu bandi, en ívafið var haft snúðling og mýkra. Alullardúkur
var í eftirtöldu: nærskyrtum og nærbuxum karla og kvenna, svo og nærpilsum,
sömuleiðis í rekkjuvoðum yfir og undir, en þar var uppistaðan stundum tvistur
og þótti jafnvel vera betra. Klæðisvígindi voru á sparifataefni,
bæði karla og kvenna.
p3
Í rúmfatnaði var
eins og að framan segir notað vaðmál í rekkjuvoðir, sérstaklega undirvoðir.
Margir höfðu engar yfir-rekkjuvoðir, en þá sængurver úr vaðmáli með
tvist að uppistðu og ull að ívafi. Skyrsíur voru ekki ofnar en notaðar
grisjur, sem fengust keyptar í búðum. Pokastrigi var lítið ofinn.
Það var á flestum bæjum svo að hafa ekki fleirri poka en þá sem fengust
keyptir undir kornvöru, salti og sementi. Hey var mest látið í meisa
og eldiviður í laupa eða taðkistur, sem bornar voru á milli sín. Tjöld
voru notuð á sumum bæjum við heyskap, einkum þar sem langt var að sækja
og fólk þurfti að liggja við. Efni í þeim mun hafa verið ofin einskefta
úr tómum tvisti eða tvist og togi. Ekkert var sent burt til litunar
af venjulegum vefnaði, en af klæðisvefnaði var efni í kvenklæðnað sent
burt til litunar. Klæðisvefnaður: Orðin klæðavefnaður
og veipa þekktust ekki í mínu byggðarlagi. Ég hefi borið það undir
gamlar konur hér búsettar að austan, og kannast þær ekki við þessi orð.
En klæðisvefnaður var sagt og klæðisdúkur, eins og ég hefi áður um
getið. Klæðavend eða venda er líka óþekkt. En klæðisvígindi
til aðgreiningar frá vaðmálsvígindum og einskeftuvígindum. Vígindin
fóru mest eftir því hvernig vefstóllinn var stíginn, hvaða skammel voru
notuð og eins hvað efnið var fínt. Klæðis peysuföt urðu að vera úr
mjög fínu efni, einkum þegar þau voru úr alull. Hversdagspeysur voru úr
grófara efni, sömuleiðis peysupils úr sama efni. Það voru kölluð bara vaðmálsföt.
Uppistaðan var ýmist ull eða tvistur og ívafið ull, nema í dagtreyjum,
þar var ívafið oft tvistur. Eins og ég hefi áður um getið
þá var sama efni í sparifötum karla, nema hvað þau voru úr grófara efni.
En hversdagsföt karla voru úr grófasta efninu, sem unnið var í vefstól
(efni í íveruföt). Litun á sparifötum var vandasöm og því
p4
var sparifataefni
mjög oft komið í litun til þeirra sem kunnáttu höfðu til og vildu taka
slíkt að sér. Liturinn var ætíð svartur á peysufötum og sparifötum
karla, mun oft hafa verið notaður Hellulitur, og líka úrlendir deildalitir.
Hringavefnaður þekktist ekki í minni sveit, og ekki heldur
oddavefnaður. Í grein í Hlín 1918 eftir Sigrúnu Blöndal, um vefnað
segir svo: Fyrrum var ofinn útvefnaður hér á landi, fram á miðja
19. öld, en lagðist þá niður, má sjá menjar þessa vefnaðar í Þjóðminjasafninu.
Vefstólar íslenskir eru yfirleitt mestu gallagripir, allir
skakkir og illa gerðir. Þeir eru aðeins gerðir fyrir fjórskeftan
vefnað og að fjölga sköftum og skammelum í þeim er hið mesta neiðarúrræði.
Af útlendum vefstólum sem ég þekki, þykir mér þeir dönsku
bestir, er jafnlétt að vefa í þeim hvort heldur notuð eru fleirri sköft
eða færri, sérstaklega eru þeir ætlaðir fyrir fleirskeftan vefnað. Þá
minnist hún lítillega á efnið og talar þar um hörgarn, sem sé ágætt í vandarði
fatnað, en fáist ekki nema stöku sinnum í verslunum. Hún talar líka
um að í gömlu íslensku áklæðunum hafi allt band varið spunnið og kannast
ég við að svo var gert. Þessi áklæði þóttu t.d. alveg nauðsynleg
undir reiðver, söðla og hnakka, það voru kölluð undirdekk, en áklæði voru
líka til úr fínu efni, og þau voru notuð sem dúkar, rúmábreiður yfir söðla
ofl. Skeiðar í vefstólum voru 60, 70 og 80 tanna þær fínustu.
Ormeldúkar: Það var kallaður vormeldúkur. Það var ofið
á 4 sköftum, eins og vaðmál, og var uppistaðan úr snúðhörðu ullarbandi,
en ívafið átti að vera úr snúðlinu ullarbandi. Hvorutveggja var til
bandvormeldúkar og þráðarvormeldúkar. Það fór eftir því til hvers
átti að nota dúkinn. Vígindin sáust skýrar á efra borði dúksins. Litir
vor mest deildarlitir eða jurtalitir. Mest voru dúkar þessir notaðir
í yfirhafnir karla og íveruföt karlmanna.
p5
Vormeldúkar voru
einnig notaðir í sparifatnað karla og kvenna, og þá fyrst og fremst í reiðfatnað
fyrir konur og peysufatasjöl. Sængurdúkur mun hafa verið úr vormeldúk
(einni gerð hans). Úr einskeftu-vormeldúk var ofið í millipils og
var þá oft önnur vígindi í bekkjunum að neðan. Salúns-dúkar
og teppi: Þessi gerð vefnaðar nefndist á Héraði salon, eða salons-teppi.
Það var mjög sjaldgæft að sjá það ofið, sem kom til af því að svo
fáir kunnu að vefa það. Í minni sveit var það aðeins ein gömul kona
sem gaf sig út fyrir að vefa í rúmteppi með salonsvígindum, og fór hún
bæ frá bæ til að vefa svoleiðis teppi. Þessi teppi voru öll úr lituðu
ullarbandi með ýmsum litum. Þessi kona sem óf þetta, var aðflutt
úr V-Skaftafellssýslu. Um uppruna þessarar tegundar vefnaðar veit
ég ekki, en þarna á Héraði var þessi vefnaður ekki stundaður nema í mið
Héraðinu. Vefnaðarefni var oftast marglitt ullarband, gróft, stundum tvistur.
Ívafið ar líka marglitt ullargarn og man ég hún hafði oftast 3-4 skyttur
í takinu við hvern vef. Litaval var fjölbreytt, en oft voru sauðalitir
í ívafi, en litað band í uppistöðu, og munstrið myndaðist á rakgrindinni.
Ég tel að þessi áður umgetna kona muni sjálf hafa fengið að ráða munstrum,
en litaval meira samsett af væntanlegum eigendum. Vel má vera að
hún hafi haft eitthvað skrifað af munstrum eða teikningar. Það var
algengara að munstrin þektu allan flötin, en þó var hitt til að það komu
fram sérstakir bekki. Randir milli þeirra voru með öðru munstri.
Um breytingu munstra veit ég ekkert. Hef ekkert kynnst þessu
síðan ég var drengur 8-15 ára. Um vefara hefi ég þegar svarað. Um
verð á salonsábreiðum veit ég ekkert. Húsbændur lögðu til efnið, svo það
var bara vinnan, sem greiða þurfti. Venjan ar að nota salonsábreiðurnar
alla daga jafnt, en hlífðar brekán ofan á hjá karlmönnum, sem unnu grófari
eða óþriflegri vinni. Einkum var það á veturnar á vökunni.
p6
Brekán: Þær
rúmábreiður, sem ekki voru salonsofnar nefndust brekán. Þau munu hafa verið
mjög algeng og ending þeirra var mjög mikil, enda var efnið tvöfaldur tvinnaður
þráður, bæði í uppistöðu og ívafi. Litir voru margskonar og þeir
sömu og í salonsteppum. Munstrin voru að mestur öndótt, en líka voru
til köflótt brekán. Vefarinn þurfti að vera vandvirkur og gefa vel
upp í vefinn, þ.e. að færa þráðinn til í skilinu eftir nauðsyn. Það
varð að gera með fingrum og á þann hátt var síður hætt við að dúkurinn
yrði stífur, heldur mjúkur og voðfelldur. Eingöngu var talað um rúmbrekán.
Það voru engin sérstök ferðabrakán. Vefjarskeiðin var
60 tanna, sú grófasta sem til var. Skytta var æfinlega notuð, en
þær voru ætíð til mis sverar, og í þessu tilfelli var notuð sverasta tegundin,
enda fór mikið fyrir þræðinum á spólunum. Gömul slitin brekán voru
bara notuð sem gólfteppi. Það mun vera langt síðan hætt var að vefa
brekán, sennilega ekkert að ráði eftir aldamót. Hinsvegar eru ennþá til
brekán her og hvar í gömlum bæjum og hafa sama notagildi eins og áður,
en aukin framleiðsla á verksmiðju unnum teppum eru smátt og smátt að útrýma
brekánum algerlega. Glitvefnaður: Ég get ekkert sagt
frá glitvefnaði af eigin raun, og mér er ekki kunnugt um neina austfirska
konu hér á Akureyri, sem geti frætt mig um þennan vefnað. Ég hefi
spurt gamla konu, sem var lengi húsfreyja í sveit fyrir austan og lét vefa
mikið af fataefnum, en hún gat ekki frætt mig neitt um þetta.
Á öðrum stað er sagt frá vefnaðarnámskeiði, sem var haldið á Arngerðareyri
við Ísafjarðardjúp veturinn 1924, og sendi sýnishorn af vefnaði, sem þar
var unninn og má sennilega telja sumt af því undir glitvefnað.
Úr vefnaðarbók Sigrúnar Blöndal hefi ég þetta að segja: Uppistaða tvinnaður
togþráður. Ívaf: Undirband fínt einfalt ullarband, skeið 50 tennur
á 10 cm. 2 þræðir í hafald og 2 í tönn, en af tvisti og togþræði 1 í hafald
og 1 í tönn. 1. og 2. skammel einsk. skammel en 3. munsturskammel
eða glitskammel.
p7
Útdráttur úr grein
í Hlín 21. árg. 1938. Það hefur lengi tíðkast í mörgum sveitum landsins,
að nota salonsofnar ábreiður yfir rúmin, en í sumum héruðum er vefnaður
þessi ekki þekktur. Salonsofnar ábreiður hafa jafnan sómt sér vel
í íslenskum baðstofum og þær fara líka vel á legubekkjum í nýju húsunum.
Vefnaðurinn er einfaldur æfðum vefurum mun því ekki verða skotaskuld
úr því að læra hann.... Ábreiðurnar má vel vefa í einbreiðum vefstól, og
sauma lengjurnar saman í saumavél, en þess þarf að gæta að vefa jafnt svo
allt standist á... Uppistaða tvinnað band, frekar fínt með góðum
snúð. Ívaf: tvinnað band, má vera snúðminna, en ekki smærra. Munsturívaf:
þrinnað band ekki fínt. Skeið 45 tennur á 10 cm. 1 þráður í hafald
og 2 í tönn. Þess verður að gæta að hafa allt vefjarefnið hreint
þegar byrjað er, og fara hreinlega með það. Salonsmunstrið má alltaf
stækka og minnka eftir vild. Það fer eftir skeið og bandi. Einnig
má breyta gerðinni allavega með sama indrætti. Það eru hafðar 2 skyttur
önnur fyrir ívafið og hin fyrir munsturbandið, (sitt fyrirdragið af hvoru).
Fallegt er að hafa salonsábreiðurnar svartar í grunninn og munsturbandið
ekki með skærum lit. Líka má, ef vill, hafa þær þverröndóttar, en þá verður
að láta litina passa vel hvern við annan, því þar á veltur allt um gott
útlit. Undir greininni er ekkert nafn, en aðeins "vefari",
en mér finnst að þetta muni vera skrifað af austfirskri konu. Það
dreg ég meðal annars af að hún segir salonsvefnaður, en ekki salúnsvefnaður.
Trúlegast er það frú Sigrún Blöndal. Hlín frá 1945:
Sveitakona skrifar: Hér í sveit er talsvert unnið af tóvinnu
ennþá, þó fátt sé fólkið. Einn bóndi 73 ára, óf 60 álnir af hvítu
þráðarvaðmáli og 85 ára gömul kona spann allt ívafið. Önnur kona
var hér hjá mér í 2 vikur. Hún spann og prjónaði allan daginn svo
mikið að undrum sætti.
p8
Kafli tekinn upp
úr tímaritinu Hlín 26. árg. 1943. Daníel Jónsson, fæddur að Hallanda
á Svalbarðsströnd. Fluttist að Sellandi í Fnjóskadal með foreldrum
sínum, átti þar heima í 60 ár. Bjó þar 40 ár. 13 ára byrjaði
Daníel að vefa með tilsögn móður sinnar, sem var vefari og átti vefstól.
Daníel hefur gefið eftirfarandi upplýsingar um vefnað sinn. Hefur
ofið ca. 7000 metra alls, sem flokkast þannig: af vaðmáli 3500 metra, af
þráðardúk mislitum og hvítum með breyttum vefnaði og vormeldúk úr ull 2500
metra, af handklæðum, borðrenningum og hálstreflum 500 metra, af bekk-
og rúmábreiðum af ýmsum gerðum 300 metra, af borðdúkum og gluggatjöldum
200 metra. Auk þess hefur hann ofið nokkur hundruð metra af gjarðaborða.
Allan þennan vefnað vann hann samhliða búskapnum, og var því oft
langur vinnudagur. Lengst af fékk hann greidda 10 aura fyrir hverja
alin. Þegar hann var rúmlega hálfsjötugur fór hann á vefnaðarnámskeið.
Þannig segir Hlín. Tóvinnuslýsing frá afdalaheimili
frá 1910-11, útdráttur úr Hlín 28. árg: Það sem ofið var þennan vetur
var sem hér segir: 70 álnir tvistvefur í rúmföt og milliskyrtur, 60 álnir
grófur ullarvefur, 40 álnir fínni ullarvefur. Fjórði vefurinn var
grófur buxnadúkur 40 álnir. Þetta er vel að verið á einu heimili,
enda margar hendur til starfa. Hér á við stakan hennar Ólínu
Andrésd. "Ein þegar varr en önnur spann - iðnin hvatti vefarann -
þá var glatt í góðum rann - gæfan spratt við arinn þann.
Hlín frá heimilisiðnaraðfélagi á Austurlandi 1945: Við höfum ekki
við að setja upp í vefstóla mottudregil. Það er verið með 3ja vefinn
núna. Erum við þá búnar að vefa 94 metra þegar það er búið. Þú mátt
trúa að konurnar eru glaðar og spenntar við vinnuna. Sumir dreglarnir
eru úr ullartuskum og sumir úr silkisokkum, og eru mottur þessar hrein
stofuprýði. Kristbjörg kennari á námskeiðinu hefur sjálf ofið 30
metra af dreglum, og er nú að setja upp 36 m. langan handklæðavef, tvistur
er uppistaðan en ívaf samtíningur. P.s. Sendi þetta til uppfyllingar
fátækt minni.
p9
Flosvefnaður: Það
er alveg sama sagan með flosið og krossvefinn, að ég sá aldrei verkið unnið,
enda þ
ó ég sæi gripi flosaða.
Sér í lagi sessur bæði í stólum og kvensöðlum. Um flosvefnað
farast Sigrúnu Blöndal svo orð í vefnaðarbók sinni: Þessi vefnaður
er unnin í 2 eða 4 hafaldasköftum með beinum inndrætti, 1 þráður í hafaldi
og 2 þræðir í tönn og 2 skammelum með einskeftu uppbindingu. Uppistaða
og varp er með ýmsu móti eftir því hvað vefa á. Hér á landi var áður
fyrr ofið svokallað togflos, var þá bæði uppistaðan og munsturbandið úr
fínu tvinnuðu togi, en undirbandið tvinnað fínt ullarband. Varpið
var 45 tennur á 10 cm. með 2 þráðum í tönn og var þetta íslenska toglfos
fallegt og sérstaklega notað í essur. Aðferð við flosvefnaðinn
er þannig að munsturbandinu er hnýtt um uppistöðuþræðina með kappmelluhnút.
Þetta endurtekur sig yfir alla breidd vefsins aðeins skift um lit
eftir því sem munstrið segir til um. Tvö einskeftu fyrirdrög eru
ofin á milli þess sem hnýtt er. Sporin eiga að vera ferköntuð með
því að hnýta tvisvar, en þó má hnýta oftar í hvert spor, ef með þarf. Þá
er klippt upp úr lykkjunum og endarnir jafnaðir með beittum skærum.
Séu ofnar gólfábreiður með flosvefnaði er haft gróft band eða gróft
hörgarn í uppistöðuna og notuð 25-30 tanna skeið. Undirbandið er
gróft garn, en munsturbandið margfallt harðsnúið band. Einnig má
vefa gólfábreiður og mottur með svokölluðu rósaflosi. Er þá aðeins
hnýtt munstrið en grunnurinn sést á milli. Með þessum vefnaði voru
gömlu hempuborðarnir ofnir.
p10
Krossvefnaður: Ég
þekki hann ekkert af eigin sjón eða raun, nema hvað ég sá efni sem var
kallað krossvefnaður. Í vefnaðarbók Sigrúnar Blöndal segir
svo um krossvefnað: Uppistaða tvinnaður grófur togþráður eða tvistur
nr. 9/12 eða 9/16. Skeið 30 til 38 tennur 10 cm. 1 þráður í hafald
og 1 þráður í tönn. Krossvefnaður er eiginlega brekánsvefnaður,
þar sem hann er ofinn í 2 eða 4 hafaldasköftum með beinum inndrætti, 2
skammelum og varpið haft svo gisið að uppistaðan hylst algerlega. Þrátt
fyrir þessa einföldu uppsetning þá má vefa allskonar munstur með krossvefnaði,
af því að hinum ýmsu litum ívafsins er brugðið í skilin með fingrunum.
Þegar þyrjað er að vefa er stigið á vinstra skammel og bandkhönkunum
brugðið inn í skilið eftir munstrinu, er þá endinn til vinstri og hönkin
til hægri. Því næst er stigið á hægra skammel og farin önnur umferð.
Ganga þá hankarnir frá hægri til vinstri og þannig bindast ívafsþræðirnir
að þeim er brugðið hvorum um annan á litamótum. Við krossvefnað er
ívafið því bundið á litamótum í annarri hvorri umferð. Krossvefnaður
er eins í bæði borð.
p11
Spjaldvefnaður: Sem
drengur sá ég eldri konur setja upp og vefa spjaldvefnað með ýmsum munstrum.
Mest voru þetta styttubönd og mittislindar. Þessi spjaldvefnaður
var ofinn í lausu lofti og var það ekki vandasamt, eftir að búið var að
koma vefnum upp. Það voru notuð pappaspjöld til að búa til skilin.
Spjaldvefurinn var tvíofinn, þeas. hann var með 2 litum, það var
sinn liturinn á hvorri hlið. Uppsetningu spjaldvefs get ég ekki lýst
nánar, en þarna var allt gert með höndum, þar sem engin höföld voru notuð,
en í stað þeirra komu spjöldin, sem voru færð til með höndunum. Auk
sokkabanda voru ofin axlabönd fyrir karlmenn og styttubönd fyrir konur.
Stundum kom fram letur í böndunum, sem gert var eftir krosssaum.
Uppistaðan var fest við rúmstöpul með annan endann og hinn endann
batt vefarinn við sig með því að vefja slönguendanum utan um sig. Sumar
konur notuðu þráðarspotta til að stinga á milli og gera skilið. Það
kom í staðinn fyrir höföld. Fótvefnaður: Það þekktist
líka að vefa bönd með því að bregða öðrum endanum á uppistöðunni við fótinn
á sér en halda í hinn endann með vinstri hendi og nota þá hægri við sjálfan
vefnaðinn. Annars var þetta unnið nokkuð á sama hátt eins og spjaldvefnaður.
Ég hefi ekki meira um þetta að segja, það var talið vandalítið að
vefa þennan fótvefnað og var mest notað til að vefa styttubönd og sokkabönd.
Það var eins og með spjaldvefnað að það var rakið eftir munstri.
Ég held það hafi verið í þessum vefnaði, að skilið væri búið til
úr spottum, sem voru dregnir í gegn með fingrum. Fyrirvafið var undið
á smákefli, sem hægt var að renna í gegnum skilið með hægri hendinni. Fótofin
bönd munu hafa veri ðnefnd eftir þeim munstrum sem notuð voru.
p12
Gjarðavefnaður: Ég
man ekki til að ég sæi nokkurn tíma ofnargjarðir, en ég vissi að það var
víða gert, og þó ekki nema til notkunar á reiðverum, hnökkum og söðlum.
Allar gjarðir sem notaðar voru við reiðinga voru brugðnar í höndum
á svipaðan hátt og þegar reipi voru fléttuð. Þó varð að vanda meira
til uppistöðunnar í gjarðirnar, til þess að fá þær breiðari og flatari.
Um það leyti, sem ég var að alast upp, á voru komnir útlendir
gjarðaborðar, sem voru keyptir mikið í hnakk- og söðulgjarðir, eftir það
dró mjög úr því að gjarðaefni væri ofið. Hæruvoð: Aldrei
heyrði ég talað um að hrosshár væri notað í vefnað. Get ég þar ekkert um
sagt af sjón né raun. Um hærusekki heyrði ég talað og líklega séð
þá, en gerði mér ekki grein fyrir hvernig efni var í þeim.
Vinna á hrosshári var aftur mjög algeng til að flétta úr reipi. Vinna
við að spinna hrosshár var á þessa leið: Hárið var kembt í venjulegum
ullarkömbum, kambar sem hætt var að nota við ullarvinnu. Kembingin
varð að vera vel af hendi leyst svo ekki væru hnökrar eða klessur í. Úr
kembunum voru búnir til vöndlar (sumir kölluðu það vindla). Þegar
búið var að festa einn slíkan vöndul við sperru eða rúmgafl í baðstofu,
þá var tekin venjuleg tvinningarsnælda, og svo var byrjað á spunanum með
því að kingsa til snælduhalanum með vinstri hendi, en með hægri hendi var
hárdúskur dreginn út úr vöndlinum, sem jafnóðum snérist saman í band. Þegar
komið var nokkuð langur bandspotti framan við snældusnúðinn, þá var bandið
tekið af hnokkanum og undið upp á snælduna. Á þennan hátt var hrosshár
spunnið, svo var það undið í 2 jafnstóra hnykla og undið saman tvöfalt
í 1 hnykil. Þannig var svo bandið til, sem síðan var notað í venjuleg
reiptögl.
p13
Vefnaðarnámskeið
haldið á Arngerðareyri, veturinn 1924 af UMF. Huld. Kennslukona
á námskeiðinu var Kristbjörg Kristjánsd. Þingeysk að ætt. Meðfylgjandi
sýnishorn eru unnin á þessu námskeiði af Margréti Gunnarsd., þá húsfreyju
á Arngerðareyri. Kennsla fór fram í samkomuhúsi hreppsins og voru
nemendur 7. Efnið var útvegað frá verksmiðjunni Gefjun og frá Reykjavík.
Engin skýrsla er mér vitanlega til um hvað þarna var ofið, en þau
sýnishorn, sem þið fáið send eru 4, og fer umsögn um þau hér á eftir: 1.
Skilbragð: ofið í jaðarvend. Það er seinlegur vefnaður, vandasamt
að útskýra vinnuna og verður sýnishornið að nægja. Efnið var notað
í puntuhandklæði, poka fyrir óhreint tau ofl. 2. Rósingangur:
jaðarvend uppistaða tvistur, en ívafið silkilín. 3. Gardínutau:
einskefta (stigin á 2 skammel) tvistur nr. 60 í uppistöðu og ívafið er
silkilín. Litunum var vafið upp á spjald til að fá munstrið. 4. Gardínutau:
einskefta. Í uppistöðu var tvistur, en ívafið silkilín og breidd
60 cm. Í inndrætti skiftast á einskeftu- og munsturkaflar. Kaflarnir
dregnir í skeið með 2 þráðum í tönn og 1 þráður í höföld. Aðalefnið er
einskefta. Er smeygt í einskeftuskilið uppdrætti með fingrunum. Tveir
eða fleirri þræðir í hvoru skili eru áætlaðir í hvert munsturspor, eftir
því hve stórt munstrið á að vera. Munsturgarninu er smeygt inn eftir
uppdrætti, og ofið eitt eða fleirri fyrirdrög af ívafinu á milli. Munsturgarninu
er brugðið eins of inn og þar til að gera sporið ferkantað.
Nr. 6436
p1
Ull og tóvinna 4.
Um gjarðir: Hér voru gjarðir ekki ofnar, aðeins brugðnar,
ull og hrosshár voru kembd saman og spunnið á snældu. Oftast stórar
snældur, sumar með útskorinn haus. Undin hnýti eftir lit og gjörðin
brugðin. Oftast oddagjarðir. Endar stungnir með bandi eða garni.
Námskeið: Já, nokkrir áttu vefstóla og ófu. Kvenfélög
stóðu fyrir námskeiðum. Margt var unnið. Reflar og sessur,
teppi og handklæði úr tvisti. Með rósabragði, krossvefnaði, salún,
gliti, bæði íslensku og útlendu. Salúnábreiða er enn til á Björgum
á Skaga. Svava Sigmundsd. Austurgötu 8, Hofsósi á ofna muni,
allskonar teppi, púða, refla úr íslensku bandi. Hér var hrosshár
notað í gjarðir, reipi, hnappheldur og höfuðb. á teyminga, og svo auðvitað
í snörur á flekana við Drangey. Ég lærði hjá gömlum manni
að
p2
snúa snörur til fuglaveiða.
Ull var kembd með svo mýkra yrði. Hundshár. Móðir mín
sagði mér að bændur höfðu drýgt smábandið með hundshári. Ég hefi
aldrei þekkt það. Elskurnar mínar! Nú fóruð þið í geitahús
að leita ullar. Ég hef aldrei ofið nema druslunottu. Þar var
uppistaðan netagarn, brúnt að lit, og ívafið niðurklippt nærföt og sokkar.
Úrklippurnar, sem ég sendi ykkur með, geta veitt upplýsingar um konur,
sem kunna listina, og sýna að ofið er enn. Kær kveðja Pálína Pálsdóttir.
Nr. 1611
p1
Ull og tóvinna 4.
Á svalbarðssrönd var venja að nefna voðir eftir því í hvað átti
að nota þær. Þannig var talað um buxnavaðmál, milliskyrtuefni, svuntudúka
osfrv., án tillits til vefnaðarvendar. Stundum var ákveðið
álnatal í voð (eða vefjaruppistöðu) áætlað fyrirfram. Sérstklega
átti þetta við þegar vefa átti rúmábreiður (brekán), svuntuefni eða handklæði.
Fleirra mætti þó líklega nefna. Í þessu sambandi vil
ég geta um eitt sem algengt var að gera þegar ofin voru handklæði, en það
var að skilja eftir óofna 10-12 cm. á milli hverra tveggja handklæða. Þá
var hægt að hafa handklæðin mislöng, ef það þótti æskilegt. Á þessum
árum var venja að hafa handklæðin með kögri, sem með þessu móti varð sjálfgert,
þegar búið var að klippa sundur á milli þeirra. Því miður get ég ekkert
sagt um einskeftudúka eða einskeftuvefnað. Vaðmál: Uppistaða
vefjarins var ull. Það fór eftir því
p2
hversu fína voð átti
að vinna, hvernig ullin var undirbúin undir spunann. Í öll
fínni vaðmál, t.d. nærfatavaðmál ofl. var tekið ofanaf ullinni, þ.e. togið
dregið upp úr þelinu. Auk þess var ullin oft hærð líka. En
það hét að hæra ull þegar innanúr reyfinu voru teknir hnökrar og hár. Þessi
hár voru úr nýju ullinni, sem vaxin var inn í gamla reyfið og klipptust
í sundur þegar kindin var rúin. Svo var auðvitað reynt að velja bestu
ullarreyfin í þessa vefi. Að öðru leyti var undirbúningur
ullarinnar undir spunanum eins, þ.e. ullin var kembd í kembur í fínum ullarkömgum.
Þetta er þó miðað við að ullin væri að öllu leyti unnin heima. En
það var fyrir aldamót 1900 að farið var að kemba ull í vélum í S-Þingeyjarsýslu,
nánar tiltekið árið 1884. En það ár voru settar upp kembivélar á
Halldórsstöðum í Laxárdal. Um aldamótin 1900 (hef ekki ártalið við hendina),
var svo ullarverksmiðjan Gefjum sett á stofn á Akureyri. Það var
alltaf lítið sent af ull til kembingar af Svalbarðsströnd, austur í Halldórsstaði,
en eftir að
p3
kembivélarnar komu
á Akureyri, fór það vaxandi ár frá ári að send væri ull þangað til kembingar.
Fram yfir 1910 var langmest af ull þeirri, er vinna átti
í vaðmál, spunnin á rokka heima á heimilunum. En um 1915 eða á árunum
öðru hvoru megin við það ár, að keypt spunavél í sveitina og eftir það
var allmikið af vefjarefni spunnið á hana. Vefjaruppistaða
í vaðmál var höfð snúðhörð, en ívafið fremur snúðlint. Algengast var að
ullarvoðir væru einlitar, og þá með ullarlitum. Nærfata- og rekkjuvoðavaðmál
voru hvít eða grá. Buxnavaðmál svart. Stundum var það þó haft röndótt
með því að hafa gráa þræði í uppistöðunni. Annars voru vaðmál sjaldan
munstruð. Eitthvað dálítið var jurtalitað á Svalbarðsströnd,
en aðallega mun það þó hafa verið band, sem prjónað var úr. Einnig
var litað úr útlendum litum, svo sem indigólit, blásteini og brúnspóni.
Á síðustu árum heimavefnaðarins kom það fyrir að vaðmálsvoðir
væru sendar burt til litunar, pressunar
p4
og lóskurðar. Sent
til Gefjunar á Akureyri. Þá er eins og mig minni að ég heyrði
að vaðmál hefði verið sent til Noregs til þessarra hluta, áður en Gefjun
var sett á stofn. En hafi það verið, er víst að það hefur verið sjaldgæft.
Mér er í barnsminni (um 1910), að talað var um klæðisvend,
og vafalítið tel ég að faðir minn muni hafa ofið klæðisvefnað fyrir mitt
minni, því hann óf fyrir suma heldri bændur sveitarinnar. En sumir
þeirra áttu klæðisföt og konur þeirra klæðis peysuföt. En um klæðisvefnaðinn
sjálfan get ég ekkert sagt. Hringavefnað og oddavefnað þekki
ég ekkert, en vormeldúk heyrði ég nefndan, en ekki man ég eftir, að hann
væri ofinn á heimili foreldra minna. Ekki heldur salún.
Rúmábreiður voru ofnar heima, þegar ég var að alast upp. Efni í þær
var litað bæði uppistaða og ívaf. Litirnir voru svart og rauðbrúnt.
Þær voru munstraðar, stórköflóttar. Tíglarnir 6-8 cm. á hvorn
veg. Því miður eru líklega allar þessar ábreiður eyðilagðar. Sumir
nefndu rúmábreiðuna brekán.
p5
Klyfberagjarðir,
svo og hnakk- og söðulgjarðir, voru ofnar heima í Leifshúsum, bæði úr ull
og hrosshári. Efni í ullargjarðir var aðallega tog.
Það var spunnið gróft,
venjulega á rokk eftir að ég man eftir mér. Hrosshárið var táið eða kembt,
síðan vafið upp í vöndla, en úr þeim var það spunnið, oftast á halasnældu.
Ekki man ég hvernig gjarðavefur var settur til, þ.e. búinn undir
vefnaðinn. Ívafið mun hafa verið eins og uppistaðan. Engin
skytta var notuð við gjarðavefnaðinn. Í staðinn var notuð spýta,
ca. 30 cm. löng, er ívafið var undið upp á, um miðju hennar. Endar hennar
voru þá handföng með egg á þeirri hlið, sem að manni snéri, þeim er óf.
Með þessari egg var ívafinu þrýst að í skilinu eða barið að. Ekki
vissi ég til að spýta þessi hétu nokkru sérstöku nafni. Þessu get
ég svo ekki lýst nánar. Þó vil ég taka það fram að ég þykist muna
að oddagjarðir væru ofnar heima. Um glitvefnað, krossvefnað,
flosvefnað og spjaldvefnað get ég ekkert sagt. Sem barn sá ég ofinn
fótvefnað, en get ekkert lýst honum.
Ekki man ég
eftir að vefnaðarnámskeið væru haldin
p6
á Svalbarðsströnd,
enda þurfti þess ekki með, á meðan ofið var á heimilunum, því þá lærði
hver af öðrum, mann fram af manni. Þannig var ofið á flestum heimilum
fram um 1905. Á næstu 20 árunum þar á eftir lagðist heimavefnaður
svo að segja alveg niður. Svo liðu 20 ár, að vefnaður var tæplega
nefndur á nafn, hvað þá að ofið væri. En svo var það árið
1947 (öruggar heimildir um ártalið hefi ég þó ekki við höndina), að Halldóra
Bjarnadóttir setti á stofn Tóvinnuskólann á Svalbarði á Svalbarðsströnd.
Á þessum skóla var kennd alhliða ullarvinna. Þar á meðal að
sjálfsögðu vefnaður. Tóvinnuskólanum stjórnaði Rannveig Líndal frá
Lækjarmóti í Húnavatnssýslu. Skóli þessi starfaði í 9 vetur, eða
til vors 1955. Hann var á einkaheimili, og var þar ekki húnsæði til
að taka nema 8 nemendur hvern vetur. Alls munu 60-70 stúlkur hafa
sótt skólann. Og ég vil taka það fram, að skóli þessi var hin þarfasta
stofnum og þjóðlegur svo sem best varð á kosið. Vefnaður
í skólanum var allur, eða nálega allur, fínni, en sá vefnaður er áður var
unninn á heimilunum. Þar munu hafa verið ofin gluggatjöld, ýmsir
dúkar og margt fleirra.
p7
Nokkrar ungar stúlkur
af Svalbarðsströnd, stunduðu nám í Tóvinnuskólanum, og ófu þar ýmislegt
fyrir sig. En ekki er mér kunnugt að þær hafi ofið heima hjá sér,
eftir að skólanáminu lauk, enda fáar eða engar átt vefstól.
Áður en Tóvinnuskólinn á Svalbarði tók til starfa, og einnig síðar, stunduðu
nokkrar stúlkur af Svalbarðsströnd, sem og úr öðrum sveitum S-Þingeyjarsýslu,
nám í húsmæðraskólum og lærðu þar að sjálfsögðu vefnað, eitthvað misjafnlega
mikið þó. En ekki held ég að þær stúlkur hafi frekar en þær fyrrnefndu,
stundað vefnað heima hjá sér. Ekki vissi ég til að hundshár
væri notað til nokkurra hluta.
Nr. 6219
p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður: Voðin var alltaf nefnd eftir því til hvers átti
að nota hana, t.d. buxnavoð osfrv. Ákveðið álnatal var haft í huga
þegar lagt var upp í voð, áður en rakið var. Í rúmábreiður rúmar
4 álnir. Í buxur ætlaðar 4 álnir, af þæfðri voð. Voðin höfð
svo breið sem kosur var á. Út úr ritti. Það sneiðst betur úr
breiðari voð. Einskefta: Vefnaðarvendin hét heinskefta,
í hvaða flík sem efnið var ætlað. Það var sama hvort ofið var úr
alull eða vefjargarn var notað að einhverju leyti eða eingnöngu. Vefjargarn
var það kallað ekki tvistur. Mun ég halda því.
p2
Uppistaða í einskeftuvoð
var eftir því til hvers átti að nota efnið sem ofið var. Dúkur var
það ekki kallað heldur voð. T.d. kjólavoð. Venjulega voru ofin t.d.
í millipils og milliskyrtur í sömu voðinni. Þá var uppistaðan hvítt
vefjargarn. Í millipils ullarveftur, einfaldur, svo smár sem tök
voru á. Aðalliturinn ljósmórautt. Stundum ljósgrátt með dökkmórauðum,
hvítum og svörtum teinum. Voðin höfð svo breið sem hægt var, alveg
út úr ritt, eins og sagt var. Í milliskyrtur var veftur ljósmórauður
eða ljósgrár, smáröndótt. Aðallitur það bil hálfur þumlungur, svo
mjór sem eitt skaftvaf það er 2 fyrirdrættir. Líka var litaður veftur
í millipils, t.d. rautt og þá oft svartir og hvítir teinar. Ég sá
pils sem notaður aðeins rauður veftur, en það var ekki algent.
Í kjóla var ofin einskefta, uppistaða ýmist garn eða þráður. Oft
röndótt líka einlitt. Að voð væri lituð kannast ég ekki við.
p3
Vaðmál: Uppistaða
í buxnavoð, hversdagsföt, buxur og úlpur. Tvinnaður þráður og tvinnaður
veftur. Vefturinn linur spunnin, og aðeins rennt í gegnum rokkinn
þegar tvinnað var, svo að sem minnstur snúður yrði á honum, þótt hann ætti
að heita tvinnaður. Uppistaðan alltaf einlit venjulega sauðsvört,
ef voðin var bæði ætluð í buxur og úlpur. Ef voðin var aðeins ætluð
í buxur var oft röndótt uppistaðan. Gjarnan átta endar t.d. gráir
eða mórauðir og svo tveir svartir. Það sem ég segi frá að
við mitt bernskuheimili. Oft voru ofin í spariföt handa karlmönnum,
var þá ullin sem nota átti lituð. Jurtalituð úr ýmsum jurtum, oftast
njóla svo fíflum og sóleyjum, kembt saman litaða ullin, og sauðalitir sauðsvart
og mórautt. Voðir voru aldrei litaðar. Aðeins efnið í þær. En
þegar um sparifataefni var að ræða voru voðirnar þæfðar og pressaðar í
vélum eftir að klæðaverksmiðjan Álafoss tók til starfa. Þráður einfaldur
mjög smár tveggja álna þráður, þ.e. lagt upp í voðina 2 álnir úr mörk af
þræði. Sparifatnaður kvenna var ekki unnin heima eftir ég
man eftir. En ég sá bæði dagtreyju og pils úr vaðmáli. Voru
þau notuð hversdags á veturna. Svo voru kastpilsin eða kastfötin, sem svo
voru venjulega kölluð. Þau voru úr sauðsvörtu vaðmáli. Ekki
voru þau felld eins og venjuleg pils. Heldur teknar smáfellur allt um kring,
undir strenginn, til þess að fá víddina. Þau náðu niður á miðja leggi.
Rekkvoðir voru ofnar úr alull eða vefjargarn uppistaða, ullarveftur
vaðmálsvend.
p4
Klæðavefnaður var
algengur þar sem ég ólst upp. Þessi vefnaðarvend var einkum notuð
í karlmannaföt. Var efnið það sama og haft var í fínna vaðmál. Milliskyrtuefni
var ofið. Þá var hafður klæðavefnaður á því, ef haft algarn, þ.e.
uppistaða og fyrirvaf vefjargarn. Þá var voðin langröndótt.
p5
Vormeldúkur: Þráðarvormeldúkur
var ekki jafn algengur og klæðavefnaður og vaðmál. Uppistaða tvinnaður
þráður, veftur einfaldur. Uppistaða oft mórauð, en veftur sauðsvartur.
Oftast haft röndótt. Notað í buxur karlmanna. Voðin mjög vörpuð,
því sást ekki í veftinn. Svo var veftarvormeldúkur. Uppistaðan
gisin. Fáir endar hafðir í tönn. Þá hlóðst vefturinn uppí,
svo hann var meira áberandi. Voðin varð mjög þykk. Þráðarvormeldúkur
var algengari en veftarvormeldúkur. Það þekktist að í pils kvenna
væri svört einskefta með vormelsdúksbekk. Úr lituðum vefti oft tennt.
p6
Salún: Þessi
vefnaðargerð nefndist salún. Ekki veit ég hvenær var fyrst farið
að vefa salúnsábreiður. En fyrir síðustu aldamót óf móðir mín salúnsvoð
í rúmábreiður. Til þess var salúnsvoð aðins notuð, í rúmábreiður.
Uppistaða var þráður einfaldur eða tvinnaður. Veftur einfaldur.
Svart var algengast. Salún oftast rautt, stundum grænt eða
grátt litað. Líka var haft mórautt salún. Salúnsmunstrin þöktu
allan vefflötinn. Vefarar breyttu oft vefnaðarmunstrunum. Svo
sem Jóhannes Eggertsson, sem lengi var vefari í minni sveit. Ég treysti
mér ekki til að lýsa vefnaðarmunstum. Verð á salúnsábreiðum
veit ég ekki um. Þær voru sjaldan verslunarvara. Þess voru dæmi að
ábreiður, t.d. nýjar voru aðeins notaðar á hátíðum og tyllidögum. Ég
hygg að salúnsvefnaður hafi lengst haldið velli, sem vefnaður í mínum átthögum.
Allt til 1950. Salúnsábreiður eru enn notaðar, sérstaklega
í legubekki. Salúnsvefnaður breiddist út frá húsmæðraskólum.
Svo héldu vefarar stundum námskeið. Settu til á bæjum og leiðbeindu
með vefnaðinn. Ég man eftir slíkri vefnaðarkonu. Ég hygg að
það hafi verið stuttu eftir 1920. Hún hét Guðríður Einarsdóttir frá Bjólu
í Holtum. Hún kenndi þennan svokallaða útvefnað.
p7
Flosvefnaður, spjaldvefnaður:
Um þetta get ég ekkert sagt. Hef hvorugan þennan vefnað séð
unninn. Fótvefnaður: Fótvefnaður var hann kallaður
af því að annar endi slöngunnar var festur við linda, sem vefarinn batt
um mitti sér. En í hinn endann var búið til einskonar stig, sem staðið
var í til að herða á slöngunni. Uppistaðan tvinnaður þráður snúðgóður.
Veftur tvinnaður. Svipuð stærð á uppistöðu og vefti. Rakið
mun hafa verið á hælum. Allt um það er ég næsta ófróð. Gerðin
var einskefta. Líklega stundum tennt. Fyrirvafið var undið í skilhönk.
Brugðið gegnum skilið, því ýtt að með spýtu, jafnvel hárgreiðu. Litirnir
skrautlegir eftir því sem efni stóðu til. Efnið í höföldunum var
sterkur togþráður, áður en útlent garn var notað. Veftur var einlitur.
Í hann sást ekki vegna þess hve uppistaðan var þétt. Mjög varpað
eins og sagt var. Böndin voru langröndótt. Þau voru notuð einkum
sem sokkabönd, etv. líka í styttubönd.
p8
Brekán: Brekán
sá ég, en þau voru ekki ofin þar sem ég átti heima. þau sem ég sá
voru með vaðmálsvend. Þau voru stórköflótt, svört og rauð. Brekánsvefnað
heyrði ég ekki talað um. Hann lagðist niður í minni heimabyggð fyrir
mitt minni. Salúnsábreiður voru oft kallaðar brekán. Gömul og slitin
brekán voru notuð t.d. í fjallferðir til skjóls í náttstað.
Glitvefnaður: Um glitvefnað er ég mjög ófróð. Hef ekki séð
hann ofinn nema í húsmæðraskóla. En bæði rúmábreiður og söðuláklæði
voru glitofin. En þetta veit ég svo lítið um. Krossvefnaður:
Krossvefnað hef ég ekki séð nema frá húsmæðraskólum.
p9
Hæra: Hrosshár
var unnið í hæruvoðir. Notað í hærupoka. Ofið í vefstól. Faðir
minn kvaðst hafa ofið hæru. Það voru höfð höföld en ekki skeiðritti.
Slegið að með spýtu. Vendin var einskefta. Faxhár var
kembt í kömbum. Taglhár táið. Sumir spunnu úr kembum, en aðrir
vöfðu í vindla. Stungu al í gegnum þá. Þá voru alirnir reknir
í stoð í baðstofunni. Spunnið á halasnældu. Snældurnar voru eins
og venjulegar halasnældur, nema stærri. Ég kannast ekki við
að hrosshár hafi verið kembt saman við ull. Þó var búkhár kembt saman
við ull og haft í leppa og vettlinga. Þóttu þeir mjög hlýir. Þetta
búkhár var aðeins það sem var kembt af hrossum, en ekki það sem rakað var
af há. Hundshár: Það kannast ég ekki við að notað hafi
verið.
p10
Vefstóll: Teikningin
af vefstólnum, sem fylgir spurningaskránni er mjög frábrugðin þeim vefstólum,
sem ég vandist. Hlutföllin eru önnur. Hann er of hár og of stuttur.
Afturrifur nr. 12 lék ekki í grópi ofan á vængjunum, eins og myndin
sýnir. Hann á að vera undir vængnum. Kragar voru hafðir á rifnum.
Þeir voru tveir. Sinn hvoru megin við uppistöðuna, svo hún
hrapaði ekki og slaki kæmi á jaðrana. Vippur voru ekki notaðar heldur
trissur. Trissurnar voru bundnar í hafaldatré. Trissurnar voru
6, 3 hvoru megin neðan í hafaldatrénu. Og hafaldasköftin fest í þær.
Slagborð var að ofan fyrst þegar ég man til. Svo breyttist
þetta og varð algengt að þau væru fest að neðan. Ystu tennurnar ein
hvoru megin í rittinu (skeiðinni)
hétu hleynar.
p11
Til þjóðháttarnefndar.
Árna Björnssonar. Þó að ég léti til leiðast að svara þessarri
spurningaskrá, er þó langt frá því að ég væri maður til þess. Það
þarf meiri rithöfunda en mig og mína líka til þess. Margar spurningar
eru þannig, að heila ritgerð þarf til að gera þeim full skil. Það
er alveg víst að margt týnist af því, sem margur veit, vegna þess að ekki
er komið og talað við fólkið. Eða spurningarnar hafðar einfaldari.
Nr. 1486
p1
Ull og tóvinna 4.
Herra Þórður Tómasson! Góði vinur! Fyrir nokkru
barst mér 18. spurningalisti frá Þjóðháttaskráningunni, ásamt vinsamlegu
bréfi þínu og tilmælum um svör við spurningalistanum. Réttilega
getur þú þess að við höfum aðeins einu sinni fundist í Skógum, og er mér
minnisstæð alúð þín og áberandi fúsleiki til að fræða mig og förunauta
mína, um allt er þar bar á góma og auganu mætti og væri nú hugur á að endurtaka
heimsókn á það menntasetur. Hingað til hefi ég sýnt lit á
að svara að einhverju, öllum listunum, sem mér hafa verið sendir og oftast
fundist ég hafa einhver svör á reiðum höndum við allmörgum spurninganna,
en nú ber svo við, að með öllu er komið út fyrir mitt þekkingarsvið með
18. listanum, svo að ekki er um annað að gerna en að skila auðu, þó leitt
sé og mér hefði verið ljúft sem fyrr að veita einhverja úrlausn.
p2
Á mínu æskuheimili
var nær ekkert ofið, heldur var verkefninu komið til manna í grendinni,
sem höfðu dálitla atvinnu af því starfi, og var sá vefnaður nær eingöngu
vaðmáls eða þráðardúkar, sem notaðir voru til nærfatagerðar og rúmfata,
einnig þurrkur. Enginn í mínu nágrenni fékkst við afbrigðilegan vefnað,
svo ég vissi, nema ein hjón, Sigurjón Þorgrímsson frá Hraunkoti, seinna
veitingamaður á Húsavík og Júlíana Guðmundsd. kona hans. Þau ófu
árum saman sér til gamans, margskonar vefnað og voru manna fróðust á því
sviði, enda áttu leiðbeiningabækur og blöð um þetta efni. Nú bar
svo til að ég var kennari við skólann á Húsavík veturinn 1916-17 og leigði
hjá þessum hjónum. Fékk ég áhuga á vefnaði þeirra, keypti gamlan
vefstól og lærði að setja upp einfaldan vef, enda óf þá um veturinn í frístundum
tvo vefi, og næstu árin á eftir nokkra vefi heima hjá mér, stundum (eða
oftar) með tvist uppistöðu og ýmist með vaðmáls eða þráðardúks vígindum.
Þetta notaði ég mínu
p3
heimili til áralangrar
uppbyggingar, hvað snerti rúmfatnað, nærföt, handþurrkur og stólasetur,
sem ég óf sérstklega með sterkari uppistöðu og mjórra en vaðmálið.
Nú hafði ég fengið áhuga á fjölbreyttari vefnaði og tryggt mér kennslu
hjá áðurnefndum hjónum, en allt slíkt fórst fyrir. Hjónin fluttu
burt litlu síðar og ekki alllöngu seinna lenti ég sjálfur á ýmiskonar flækingi
og hvarf frá mínum æskuslóðum um 15 ára bil. Afleiðing þessa
ofangreina er því sú, að það lítið sem ég lærði í vefnaði eða kynntist
er með öllu úr minni fallið eins og vænta má, að liðnum áratugum, enda
nýjum áhugamálum skotið upp síðan. Mér fannst skaðlaust að
segja þér þessa sögu, þó merkileg sé hún ekki, en hún á að sýna að gildar
ástæður valda því að auðu er skilað en ekki viljaleysi. Ef
til vill mætti hafa einhvern fróðleik upp úr Júlíönu Friðriksd. ekkju Haraldar
Björnssonar, sem var fósturdóttir Sigurjóns og Júlíönu og ólst upp kringum
vefstólinn þeirra. En hvort hún hefir í hann sest eða nokkuð lært
til vefnaðar er mér ókunnugt, enda þótt ég þekkti hana vel
p4
og undarlegt þykir
mér ef hún á ekki eitthvað í fórum sínum af handverkum fóstru sinnar. Júlíönu
hefi ég ekki séð árum saman og veit ekkert um hennar heilsufar, en sé það
viðunandi, má færa henni kveðju frá mér. Bið þig að lokum
fyrir kveðju mína til Þórs Magnússonar með þökk fyrir jólakort frá Þjóðminjasafninu,
ásamt þökk til hans fyrir 2 vinsamleg bréf, og að lokum einlægar heillaóskir
með sitt veglega og mikilsverða starf. Þér óska ég svo allra
heilla á árinu 1969, sem og öðrum ókomnum. Með vinarkveðjum Sigurður
Egilsson.
Nr. 1971
p1
Ull og tóvinna 3 og 4. Eftir
því hvað ætlast var til að ætti að nota vefjarefnið til vinnufata vaðmál
t.d. til karlmannafata. Með vaðmálsvend, klæðisvend eða hálfhringofið og
svo vormeldúkur. Ormel þekkti ég ekki. Í önnur efni t.d. svuntur, millipils,
milliskyrtur oftast dúkvend. Rekkjuvoðir dúk- eða vaðmálsvend. Peysuföt
klæðisvend og í betri föt ... Ég man aðeins eftir jakkafötum úr mórauðri
ull með klæðisvend. Þau voru sem talið var 5 lóða verki. Þau höfðu verið
sérstaklega vel unnin. Ofin af eigandanum og systur hans. Vann þráð og
fyrirvaf og sneið og saumaði allt í höndunum með saumþræði. Stærð
voðar var ekki neitt visst, að ég held, en þó var reynt að hafa það sem
haganlegast, því af stuttri voð fór tiltölulega meira í afvikur, því sem
ekki var hægt að nota bæði þegar byrjað var og endað, þær sameinuðu í voð
eftir umtali 2 eða fleiri konu um voðina. Svo sinn
p2
svuntudúk, pillipils, ábreiður
oþul. Eins var með fleira. Þá var lagt til eftir því hvað það þurfti að
vera margar álnir. Vefarinn sagði til eftir þyngd hespunnar, hvað úr henni
fékkst í uppustöðuna. Í ein peysuföt þurfti að mig minnir 9 álnir, 3 í
búkinn og 6 í pilsið. Heiti uppsetningar: Einskeftað eða pokavend. Vaðmálsvend,
klæðisvend. Hringofið eða hálfhringofið. Vormeldúkur, ekki ormel. Salún
hefi ég séð sessuáklæði og ofaná rúmi. Brekán sá ég aldrei en ábreiður
sem eldra fólk kallaði stundum brekán.Þau voru með vaðmálsvend og einskeftu,
stykkjótt, hringofin og hálfhringofin eða bara röndótt, ýmist með sauðarlitum
eða lituð.
p3
Glitvefnað, krossvefnað, flosvefnað
og spjaldvefnað heyrði ég talað um en hann var aldrei ofinn hér. Fótvefnaður
var ekki ofinn nema sokkabönd, styttubönd og beislistaumar. Hundshár
hefi ég aldrei heyrt talað um til nota. En þegar ull var vond, stutt í
henni, var sagt það væri eins og að spinna úr hundshári.
p4
Vefnaður: Hér eftir að ég man var
ekki ofið fyrir jól. Þó mun það hafa verið gert þar sem var maður sem ekki
gerði annað. Það mun hafa verið hyllst til að voðin yrði búin fyrir jól.
Það þótti ekki gott að láta vinnuna verða jólafeita. Svo var það myrkrið,
það var svo víða dimmt. Pabbi minn lærði vefnað nokkru eftir fermingu 2
vetur var hann eingöngu við vefnað. Annars ekki nema í ígripum frá gegningum.
Vefstóllinn: Hans vefstóll var smíðaður fyrir hann. Ég veit hver
það gerði sem kemur ekki upp á neitt að nefna. Þessi vefstóll var líkastur
B gerðinni. Vefjarskeiðar voru úr járni úttenntar að ég held. Skeiðin var
talin 80 tanna skeið, 120 og 140 tanna, víst miðað við tennur á þuml. Skyttan
var úr hvalbeini, önnur úr svörtum viði hörðum og þriðja úr brenni. Allar
járnvarðar til endanna og járnvarðar að neðan þar sem þær runnu eftir skilinu
um augað sem
p5
fyrirvafið frá spólunni rann um.
Þá var felld járnfjöður sem hélt spóluteinunum. Spólan var þunnt járn sem
var beygð um heldur stærri tein en hún átti að renna í. Spólurokkur eða
balbínu rokkur var sá sami hér og aðeins færður til fram uppstandarann,
eða brúðan sem líka er kölluð á spunarokkunum. ....stokkur alltaf kölluð
spjálk. Að leggja upp, að setja til vefjarverkið. Ef ekki
var hespað á skrepputré sem.... Ég man ekki hvað langur hringur, hvort
var 2 al. 3 kvartil, 4 þuml. 44 þræðir í skeppunni og hespan 11 skreppur.
Það var kölluð ......
p6
Þá voru balbínaðar hespur. Þær
vour úr tré með tveim snúðum, holum legg, sem teinn gekk í gegnum. Hann
var með fastri trissu sem var með einni skoru, bara ein snúra. Það var
dálítið misjafnt sem á þær komst eftir því hvað þráðurinn var grófur. Þær
máttu ekki vera mjög þungar, svo þráðurinn slitnaði ekki. Þá var til tafla
sem upp var gefin hvað voðin mætti verða löng af þessum hespufjölda og
hespan mörg lóð. Að reikna í skeiðina fór eftir þráðfjölda og hver skeiðin
var sem fór eftir grófleika þráðarins og kannski eftir því hvað vendin
átti að vera. Ég heyrði aldrei að setja upp vef en hjálpaði til að setja
upp ritta í haföld. Eftir því hver vendin var þurfti að draga í höföldin
og eins skeiðina. Rakgrind: Hún var notuð sem hesputré. Það
var sívalningur sem gekk í gegnum kross. Hann var það lengri
en grindarstuðlarnir að efri endinn
var festur við
p7
bita undir loftinu og svo var slá
með holu í sem var látin undir hinn endann og fest svo ekki gengi til.
Þá var látið slá sem stoð á einn kantinn. Það var með ... randanna
og ar skorðað þar sem krossinn kom í, upp í standana. 2 hælar útúr öðrum
til að gera skilið, hinn að neðan var með einum hæl, þar sem endinn á slöngunni
afmarkaði lengdina. Svo verður að snúa grindinni, það verða færri fetar
ef rakið er á mörgum. Þar þurfti að passa að jafnt rektist, svo ekki yrði
mislengjur, eins að ekki slitnaði. Eins var stundum rakið úr hnyklum. Hnyklastokkurinn
var fyrir 24 hnykla og þeir vildu hoppa upp úr. Það áttum við að passa
sem hjálpuðum til. Eins ef slitnaði eða voru að vera búnir. Mig minnir
að balbínurnar væru 18, sem smíðaðar voru með vefstólum, svo voru til aðrar
minni. Balbínugrindin var svokölluð sem þær léku í, nokkurs konar snældustóll.
Þegar skilið var gert var á skilhælnum þar var dreginn hampspotti með snúningi
til að þær festust ekki saman.
p8
Svo var það sem hér var kallaður
fetakambur. Þá var hver feti látinn á milli hverra tinda. Svo var honum
lokað þegar búið var að láta skaftið sem fest var á aftari rifinu, þegar
undið var upp slangan eða vefurinn. Þá var haldið í slönguna svo fast sem
sá gat snúið vefnum. Það varð svo að vera svo fast sem hægt varð til þess
að það gæfi ekki eftir þegar farið var að vefa, sem sagt að strengja þráðinn.
Öðru vísi var hér ekki rakið nema í sokkabönd eða styttubönd og beislistauma,
sem ofin voru í vefstólum. Þá sá ég ofin sokkabönd á fæti og gjarðir í
vefstól. Hafaldaefni var þráður þar til að tvistur kom, svo stálaugun
þau voru hnýtt með tvisti. Hafaldagrindin var 3 rimar í stuðlum, þá var
hnýtt augað um miðslána og annar stuðullinn var laus svo hægt var að taka
hann frá og smokka höföldunum úr, svo var látið í höföldin en dregið í
skeiðina.
p9
Til að halda slöngunni út var notaður
felakamburinn. Það voru 2 við að vinda upp vefinn. Það voru 2 við að láta
í höföldin og draga skeiðina. Fetasköftin voru látin í áður en fetakamburinn
var tekinn úr, þá var slönguendinn bundinn við slána, sem var á milli uppstandaranna
fyrir ofan hafaldasköftin. Yfir uppistöðuna var sett band í endann á fetaskaftinu,
svo þau drægjust ekki úr.
Nr. 8206
p1
Ull og tóvinna I.
Þjóðminjasafn Íslands! 17. des. sl. meðtók ég spurningaskrá
nr.13., 15. apríl 1965. Titilblað fylgdi ekki. Svör eru í molum
eins og fyrri daginn. Þessum blöðum læt ég fylgja sýnishorn af sláturþræði.
Það vildi svo til að ég átti þráðarhnykil afgangs, þegar farið var
að nota bómullargarn til að sauma með. Þráðinn spann gömul vinkona
mín skömmu eftir 1950, þá komin á níræðisaldur. Hef ekki komið mér
að því að fleygja þessu. Þetta er bara það sem að hversdagsstörfunum
lýtur, en sýnir þó, að það má tæja svo toglagð að verkið lofi meistarann.
Samkvæmt ósk sendi ég sýnishorn af jurtalituðu Gefjunarbandi.
Þetta eru afgangar af útsaumsgarni sem skólastúlkur á Blönduósi notuðu
1927-28. Á þeim árum sem M.H. í Garði litaði útsaums- og vefjargarn
fyrir Húsmæðraskólann. Upplýsingar um litunina hef ég ekki undir
höndum.
p2
Rúningur:
Starfið við að losa sauðkind úr reyfi nefndist að rýja eða taka
af, aftekning tel ég hafa verið algengara í daglegu tali en rúningur, þó
hvorutveggja væri vel þekkt. Hvenær sauðfé var rekið á fjall fór
eftir tíðarfari. Ef vel viðraði var geldfé sleppt um sumarmál, aftekning
miðaðist ekki við það. Ef ég man rétt var smalað 3-4 sinnum
á vori. Smaladagar voru þetta kallaðir einu nafni. Í fyrstu
smalamennsku var tekið af sauðum og öðru geldfé, eftir því sem til náðist.
Enn var smalað til aftekningar og mörkuð lömb sem sloppið höfðu ómörkuð.
Á fyrri árum báru ærnar ekki í húsi, heldur út um hagann. Þeirra
var gætt frá morgni til kvölds, geymdar í nátthaga um nætur.
Síðasta vor smalamennska fór fram um mánaðamót júní-júli, þá var fært frá
kvíaánum og síðasta aftekning fór fram um það leyti. Talað
var um að féð væri illa filldið. Væri kindin vel filldin eða komin
góð skil, var fljótlegt að taka af. Ef fé fór illa í ull, var smalamennsku
flýtt, lagað á fénu eða rúið eftir því sem við átti.
Allt var gert til
að sporna við því, að fé týndi reyfi. Ekki var skóglendi til að dreifa,
þar sem ég þekkti til. Í vorsmalamennsku var féð rekið í
stekk, þ.e. hlaðin byrgi úr óhöggnu grjóti. Á Smáhömrum var aðalstekknum
skipt í tvennt, trégrind var í dyrum. Fremst var nokkru stærra byrgi
grasi gróið, þar eða á grundinni fyrir neðan stekkinn var tekið af
p3
geldfé, sem lagt
var niður og bundið. Í lambærnar var haldið, hvort sem þær voru hyrndar
eða kollóttar. Áhöld við rúning voru: hnífar, skæri og sauðaklippur.
Þessi áhöld voru ekki heimasmíðuð. Ullarhrúga nefndist hrúga
eða bingur, hvort sem hún var á vegg eða sléttri grund. Rúnar
ær voru oft látnar vera í fremsta stekknum meðan lömbin voru að sætta sig
við móðurina. Þetta var kallað að láta ærnar lemba sig.
Við aftekningu má segja að hver hafi haft sína siði. Venja var þó
að byrja á hálsi og taka síðan aftur eftir báðum síðum. Allt er þetta
löngu liðin tíð og vinnubrögð önnur. Þar sem ég þekki til í Strandasýslu
er féð rúið með rafmagnsklippum að vetrinum, og svo hefur verið mörg undanfarin
ár. Ullarþvottur: Keytu var safnað til ullarþvotta
í tunnu, sem ekki var notuð til annars. Ullin þvegin við læk. Enn
standa hlóðarsteinar á lækjarbakka, þó áratugir séu síðan þar var hitað
þvæli á ull. Stór pottur var settur á hlóðir, hálffylltur af vatni
og keytu, hlutföll: 3 fötur vatn, 1 fata keyta, ef rétt er munað. Þegar
þvælið var snarpheitt var ullin látin í pottin. Hæfileg þvæla, sem
kallað var, hrært í með priki og fært upp í meis, sem lá á hliðinni yfir
pottinum, og látið síga úr henni. Borin í bala að læknum og skoluð
þar. Tágakörfur voru mikið notaðar við skolunina, og við að bera
ullina á þurrkvöll. Ullin var látin í smádrýli, mesta vatnið látið
síga úr henni.
p4
Væri þurrkur var
ullin fljótlega breidd til þerris á þurran grasbala eða grjóturð.
Athugasemd: Ull var ekki þvegin úr sjóðandi þvæli. Það
magn sem hæfilegt þótti að þvo í einu nefndist þvæla, en lögurinn sem þvegið
var úr þvæli. Eins og fleirri vinnubrögð breyttist þessi
aðferð við ullarþvottinn. Farið er að nota sápu, sóda og ýms þvottaefni
í stað keytu. Ullin látin í tunnu eða stamp, þvæli helt yfir, ull
og þvæli látið í tunnuna til skiftis. Sá ekki troðið á ullinni með
berum fótum. Notuð voru gúmmístígvél, sem þá voru orðin algeng. Væri
þvegin ull flutt um lengri veg áður en hún var þurr, var hún flutt í kerru,
í körfum eða bölum. Ull var ekki pokuð blaut. Þess
skal getið í sambandi við ullarþvottin, að fyrst var þveginn hvíta ullin,
þá mislitur. Hverjum lit haldið sér, ljósgrátt dökkgrátt, mórautt
og svart, síðast þvegnir sneplar og rusl. Ullartegundir:
Ull sem losnaði af fé í fjárhúsi, nefndist garðaló. Var ekki hirt
til að vinna úr. Verið getur að ull af sjálfdauðum kindum hafi verið
nefnd fariull, ég man það ekki, en gærur af sjálfdauðum kindum nefndist
fariroð. Ull sem sauðfé týndi af sér út um haga nefndist hagalagðar.
Ef börn eða unglingar fundu hagalagða var það yfirleitt þeirra eign.
Um það er sauðfé heimtist í 2 reyfum, heyrði ég ekki höfð orð, en
að kindin væri í tveimur reyfum. Þessi ull var þvegin og látin í
kaupstað með annarri ull, þar sem hún fór ásamt flókum í 2. og 3. flokk
eftir mati. Ull sem rökuð var af gærum nefndist einu nafni haustull.
p5
Ull af nárum nefnd
sneplar eða fætlingar. Úrgangsull, öðru nafni rusl.
Vinnuull: Nefndist einu nafni ull, sem ætluð var til heimilisnota.
Húsfreyja valdi vinnuull, áður en söluull var pokuð. Konur
sóttust eftir þelmiklum og þéttum lögðum til að vinna úr. Vinnuull
geymd í pokum á hanabjálkalofti eða pakkhúslofti. Þar sem ég ólst
upp var húsmóðirin frjáls að því að taka frá vinnuull. Vöruskipti
með ull var ekki önnur en þau, að ullin var lögð inn í reikning á Hólmavík,
þar sem tekin var út matvara og aðrar þarfir heimilisins. Þegar farið
var með ullina, var merkisdagur. Húmsóðirin og fleira kvenfólk fór
þá í kaupstað. Börn sem heima voru hlökkuðu allan daginn til heimkomu
fólksins. Ekki man ég flakkara og kannast ekki við að fólk
ferðaðist um með varning.
Sú breyting
varð á, að farið var að selja ullina óþvegna. Um nokkurt árabil var
þó vinnuull þvegin heima, en svo lagðist það einnig af. Litun:
Um jurtalitun verð ég fáorð. Þegar ég man fyrst var lítið
um jurtalitun. Á þeim árum fékkst útlendur litur í pökkum og bréfum.
Þó kom að því að litur var ekki fluttur inn og þá hófst jurtalitun
aftur í meira mæli. Á þessi sviði var Matthildur í Garði í Aðaldal
merkur brautryðjandi. Árum saman litaði hún band fyrir húsmæðraskólana.
Hún gaf út bókarkver
um jurtalitun og skrifaði greinar um reynslu sína og aðferðir. Fleirri
konur munu hafa stundað jurtalitun með góðum árangri. Reyrt band í rauðum
og bláum lit, notað í sokka og vettlinga.
p6
Tóvinna: Ullarvinna
nefndist einu nafni tóvinna. Það tíðkaðist bæði fín og gróf ullarvinna.
Það heyrði til undantekninga ef karlmenn unnu ullarvinnu til jafns
við kvenfólk. Á bernskuheimili mínu voru stundaðir róðrar frá réttum
til jóla og fylgdu því margvíslegar annir, þó konur stunduðu ekki róðra.
Framanaf vetri voru það eldri konur sem spunnu og prjónuðu, en það
gerðu þær allann ársins hring. Ofanaftekning: Starfið
við að skilja að þel og tog nefndist að taka ofanaf ull, ellegar ofanaftekning.
Konan hafði toglagðinn milli þumalfingurs og vísifingurs. Lagðinum
ýmist kippt upp með einu átaki hægri handar eða nokkur hár í senn. Tog
látið falla í lár eða gólf. Þó búið væri að taka stærsta togið, var
eftir að hæra ullina og taka innan úr reyfinu allar illhærur.
Togkambar: Á hverju heimili voru til kambar sem tog var kembt í.
Þeir voru grófari og gistenntari en þelkambar, sem voru þó einnig
misgrófir. Togkembing: Tog var greitt og sett
í kamb eins og hver önnur ull. Konan hélt kömbum sínum í hvorri hendi.
Tennur kambs í vinstri hendi snéru upp, en tennur í hægri kambi niður
er kembt var. Eftir sem annar kamburinn fylltist og hinn tæmdist
var losað um ullina og hún sett í neðri kamb, kembt áfram þangað til fullkembt
var. Hnökrar greiddir úr jafnóðum og kembt var. Ullarlár:
Kannast við ullarlár. Algengt var að geyma í þeim kembur.
Þekki ekki ullarmeis eða ullarkláf.
p7
Halasnælda:
Þegar ég fer að muna var að mestu hætt að spinna band á halasnældu. Snældur
af ýmsum stærðum voru til, en þó kannast ég ekki við önnur heiti en tvinningasnælda
og hrosshárssnælda. Einstaka hlutar halasnældu hétu snúður, hali
og hnokki. Á hrosshárssnælduna var hrosshár spunnið og tvinnað. Jafnóðum
og tvinnað var, var undið í rjúpur á halann og rennt af honum. Geymt
þar til flétta átti reipi eða bregða gjörð. Hrosshársvinna var karlmannsverk,
einnig gróf ullarvinna til sömu nota. Sérstakur tvinningarrokkur
var til, þó var algengt að tvinna á snældu, einkum gróft band, sem rokkur
tók illa við. Band í nærföt og plögg var tvinnað og þrinnað.
Gróf einspinna, fremur snúðlin var höfð í sjóvettlinga. Efni:
vorull og haustull, samkembd. Algeng orð um áferð bands var groddi og svirgull
um gróft band. Hólar og bláþræðir stöfuðu af slæmum kembum, ellegar
vankunnáttu spunakonu. Hnökri á bandi kom af því að hnökri var í
kembunni. Ef undið var af halasnældu, var hún ýmist sett á milli
fóta eða haldið á henni. Togspuni: Sú fjölbreytta
togvinna, sem sögur fara af, tilheyrir liðinni öld, eða öldum, svo mín
þekking er í molum. Af annarra frásögn veit ég að togkemban var teygð
í lyppu og úr henni var spunnið. Á öldinni sem leið var tvinnaður
togþráður mikið notaður til vefnaðar. Ofnir voru dúkar í segl, tjöld,
poka ofl. Úr togþræði voru gerð net, en teinar voru úr hrosshári.
p8
Togþráður var notaður
til allskonar saumaskapar. Karlmannaföt voru stungin með togþræði
og hnappagöt gerð með þeim þræði. Togþráður var sagður koma úr höndum
góðrar spunakonu, líkastur skúfasilki. Togþráður var notaður í fínt
flos, sessur, dúka og ýmiskonar bönd. Þekkti nokkrar konur, sem áttu
spjaldofin sokkabönd. Allar voru þær fæddar á öldinni sem leið. Það
segir sína sögu. Í mínum búskap eignaðist ég tvær tegundir af þræði,
skóþráð og sláturþráð. Skóþráður var einfaldur togþráður,
notaður í skóvörp allatíð meðan íslenskir sauðskinn- og leðurskór voru
í notkun. Þráðurinn var lagður margfaldur í skónálina, eftir því
hvað skæðið var þykkt. Í skóþráð var haft mórautt tog, ef til var.
Sláturþráður var undantekningarlítið hvítur, einfaldur tgoþráður.
Eins og nafnið bendir til var hann notaður til að sauma með vambir
og keppi í sláturtíð. Saumað með stoppunál og rennt að auga.
Snurða eða loki var það kallað ef lykkja kom á þráðinn. Snurða
hafði einnig aðra merkingu. Um missætti milli fólks var sagt að snurða
hefði hlaupið á þráðinn. Kastast í kekki í svipaðri merkingu. Að
snúa snældunni, algengtum skapgarð, svipuð merking, var að koma ár sinni
fyrir borð, vera sér góður. Þegar undið var saman af snældum
var hafður hólkur á bandinu til að jafna það og taka af snurður.
Þráðarleggur: Sláturþráður undinn í hnykla, skóþráður á legg, ekki
man ég að þeir væru skreyttir að öðru leyti en því að þeir voru litaðir.
Man ekki eftir völuskríni, nema að nafninu. Börn léku sér að
völum, en band var oftar undið á gimburskeljar, sem einnig voru leikföng
barna.
Nr. 1487
p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður almennt: Já, venjulega voru þykkri voðirnar kallaðar
voðir eða verk, buxnaverk, svo sem vaðmál vormeldúkur eða klæðavefnaður.
Einskefta aftur á móti kölluð dúkur, skyrtudúkur, svuntudúkur osfrv.
Ef voðin var ætluð í eitthvað sérstakt, þá var miðað við það, að
voðin dygði í það, þegar hún var hlaupin, svo var t.d. með brekán eða ábreiður,
sama var með skyrtu go svuntudúk. Einskefta: Einskefta
var það kallað þegar tvö sköft voru stigin niður og tvö upp í. Lá
því ívafið í miðju á voðinni. Sumir bundu þá saman sköftin og höfðu
aðeins tvö skammel til að stíga á, varla var það þó gjört nema uppistaða
væri tvistur. Einskeftan var þynnri og því brúkuð í svuntur, milliskyrtur
og millipils. Ef uppistaða var úr ull var venjulega ofið vaðmáls
eða vormeldúkur. Þó var einskefta stundum höfð í nærskyrtur. Ég
hygg að ormeldúkur sé komið hingað frá Noregi, en hér mun alltaf hafa verið
talað um vormeldúk.
p2
Hér var lítið um
jurtaliti, en aftur á móti voru sauðalitirnir oft notaðir, sérstaklega
í buxnaefni, og þá oft ofinn vormeldúkur. Fataefni (utanyfirföt)
voru vanalega ofin með vaðmálsvend og oft hvít, en lituð úr hellulit, svört.
Eftir að farið var að nota tvist, var hann pantaður bæði
brúnn, gulur, blár, grænn og svo auðvitað hvítur. Var algengt að
vefja upp á spjald til þess að sjá hvernig litirnir færu saman og hve rændir
ættu að vera breiðar osfrv. Úr tvisti voru ofnir allskonar dúkar,
sem voru þá ýmist röndóttir eða rúðóttir. Kjóladúkar, svuntudúkar
og sængurver voru oft rúðóttir. Það er ívafið var eins og uppistaðan, litum
raðað eins. Aftur á móti voru milliskyrtur, dúkar venjulega röndóttir,
eins millipils. Og í millipils voru oft ofnir bekkir neðan til með
ýmsum litum. Því var það að karl einn í Strandasýslu sagði: "Ekki
þekki ég stúlkuna, en pilsin eru frá
p3
Sunnudal". Þetta
var í snjó og stúlkurnar höfðu brotið upp utanyfir pilsin, og sáust þá
millipilsin. Karl var vefari og þekkti bekkina á pilsunum. Ég
óf töluvert af svona pilsum með bekkjum. Sjaldúka sá ég ekki ofna.
Fatafóður var ýmist röndótt eða einlitt og oftast fremur dökkleitt.
Borðdúka og húsgagnaáklæði sá ég ekki ofið fyrr en Kvennaskólinn
á Blönduósi fór að vefa það, eins var með gluggatjöld. Efni í skyrsíur
sá ég ekki ofið, heldur prjónað eða dregið úr lérefti, til þess að fá það
gisið. Ekki man ég eftir orðinu að "munstra", en að sjá
út "munstrið" eða athuga munstrið. Húsgagnaáklæði sá ég
ekki ofið, en aftur á móti brekán eða ábreiður var þá ýmist hringavefnaður
eða salún, sem var þó miklu fágætara og ekki margir sem það kunnu.
Kastföt hefi ég aldrei heyrt nefnd. Borðdúka sá ég ekki ofna,
sama var með efni í útsaum, en ég sá undirdekk undir hnakka og söðla, sem
saumað hafði verið í, en á mínum
p4
uppvaxtarárum var
aflagt að hafa undirdekk. Aflagt var líka að vefa bakleppa undir reiðing
og segldúka og tjalddúka og pokadúka, þegar ég man fyrst eftir sem var
laust fyrir 1890. Ekki er gott að lýsa gerð einskeftudúka.
Þeir voru svo mismunandi. Mest var ofið úr tvisti (bómullargarni),
og voru helstu litirnir: hvítt, rautt, grænt, blátt og gult. Stundum
tveir litir misdökkir af rauðu, grænu og bláu, en ekki man ég nema einn
gulan lit, appelsínugult.
Þessum litum vr svo
alla vega blandað bæði röndóttu og rúðóttu. Ekki man ég til að þessir
einskeftudúkar væru sendir burt til litunar. Vaðmál: Uppistaði
í vaðmáli var ullarþráður úr þeli. Þurfti hann að vera jafn og hólalaus
og snúðgóður. Ívafið var miklu snúðminna, og mátti vera úr óvandaðri
ull. Það voru ekki nema góðar spunakonur, sem kunnu að spinna fínan
þráð. Fínasti þráður var 4-5 lóð hespan (32 lóð voru í 500 gr). Lóð
er því sem næst 15 2/3 gramm. Hespan var því 60-75 grömm. Svo
fínt vaðmál var haft
p5
í peysuföt. Var
það vanalega hvítt og svo litað í hellulit. Voru þetta oft fín og
falleg föt. Utanyfirföt á karlmenn voru alltaf grófari, 6-7-8 lóða
verk í fín föt, sem þá voru venjulega hellulituð. Ferðaföt og hversdagsföt
voru oft 10-12-15 lóða verk. Þá ýmist úr vaðmáli eða vormeldúk eða
klæðavefnaði. Gátu þau verið röndótt, sérstaklega buxurnar eða smárúðótt,
oftast með sauðalitunum. Það þekktist að utanyfirföt sérstaklega
kvenna voru send norður að Ási í Hegranesi, Skagaf. til litunar og lóskurðar.
Hversdagsföt kvenna voru stundum úr vaðmáli, sem þá var miklu grófara
en peysufataefni, en oft voru hversdagsföt kvenna bæði treyjur, pils og
svuntur, ofin úr tvisti, og þá einskeftu. Það þótti miklu léttara.
Reiðföt kvenna voru oft úr lituðu vaðmáli. Í nærföt karla og
kvenna var gjanan brúkað hvítt vaðmál 6-7 lóða verk. Oft var fínna
vaðmál í skyrtur en buxur, sumir notuðu grátt vaðmál í nærföt, sama var
um nærpils kvenmanna, þau voru stundum ljósgrá. Einstaka stúlkur og piltar
gátu ekki haft vaðmál í skyrtur næst sér, en höfðu þá flúnel eða léreft
innst.
p6
Um og úr aldamótunum
fóru að koma prjónavélar, og þá var farið að prjóna nærskyrtur úr fínu
bandi, en miklu lengur héldust við vaðmáls nærbuxur. Vaðmál þótti
sjálfsagt í rekkjuvoðir og sérstaklega hélst lengi við vaðmál í undir rekkjuvoð,
þó að farið væri að nota flónel eða léreft í yfir rekkjuvoðina, og þá vanalega
kallað lak (yfirlak). Var vaðmál í rekkjuvoðir fremur gróft 8-9 lóða
verk. Allt var þetta vaðmál þæft meira eða minna. Eftir að
ég man eftir var alveg hætt að vefa í poka, segl, tjöld eða í reiðver.
Undirekk voru að leggjast niður. Ég sá þau, og ég man að lengi
var hér til undirdekk undir hnakk með ísaumuðum hreindýrshaus. Var undirdekkið
svart en með rauðri bryddingu allt í kring og hreindýrshausinn saumaður
með rauðu, og sást fyrir neðan hnakkinn, oftast á síðu hestsins. Var
það ofið úr svörtu vaðmáli (eða lituðu í hellulit). Hyrnur á kvenfólk
sá ég aldrei ofnar. Þær voru æfinlega prjónaðar, oftast með sauðalitum,
oft mjög fínt unnar og fallegar.
p7
Klæðavefnaður, veipa:
Ekki var klæðavefnaður algengur, en þó óf ég hann eftir aldamótin
og var voðin höfð í utanyfirföt, og svo mun oftast hafa verið. Gat
þetta verið laglegt ef litum var vel hagað. Enginn vandi var að vefa
klæðavefnað. Það var dregið í höföld eftir röð og stigið eins og
vaðmál. Uppistaða og ívaf var svipað og í utanyfirföt úr vaðmáli,
oft nokkuð gróft hvorutveggja, 10-12 lóða verk eða grófara. Oftast
var uppistaða og efni með sauðalitum, t.d. svart, mórautt og grátt.
Jurtalitir
voru hér nær ekkert brúkaðir, þó væru eitthvað þekktir. Veipu
hefi ég aldrei heyrt. Klæðavefnaður eða klæðisvend var algengast.
Hringavefnaður: Ég óf aldrei hringavefnað, en hann var til
á ábreiðum hér, og vissi ég hann aldrei notaðan, nema á ábreiðum, en oft
kallaður ábreiðuvefnaður. Uppistaðan er röndótt og dregið í höföld
í króka og stigið eins og vaðmál.
p8
Þegar komið er í
miðja rönd í ídrætti, þá er gáranum snúið við. Sama er gjört þegar
ofið er og koma þá út hringar. Þessi vefnaður var laglegur á ábreiðum.
Uppistaða og ívaf á ábreiðum var jafnan gróft 10-12 og upp í 15 lóða
verk. Æfinlega voru þessar ábreiður mislitar og venjulega dökkar. Í
þessum ábreiðum, sem ég man, bar mest á svörtu og rauðu, hvorutveggja litað
í útlendum litum. Oddavefnaður: Þann vefnað þekki ég
ekki, en vel gæti verið að það væri sama og hálf duffel. Það kannast
ég við, þó ég hafi ekki ofið það eða séð það hér. Vormeldúkur:
Þannig var þessi vefnaður nefndur hér, hygg ég að ormeldúkur sé norska.
Vormeldúkur var hér eingöngu brúkað á utanyfirföt karla, érstaklega
í buxur og stundum í yfirhafnir karla. Venjulega var uppistaða í
vormeldúk, gróf og mikið varpað. Bar því mest á uppistöðunni, enda
voru jafnan 3/4 af þræði ofan á ívafi.
p9
Bar því sama og ekkert
á ívafinu. Oft voru vormeldúkar með sauðarlitum, en stundum líka
eitthvað litað í útlendum lit. Vormeldúkur var þykkur og hlýr og
sterkur.
Í spariföt var sjaldan
hafður vormeldúkur, heldur þá haft vaðmál, svart í spariföt, en í ferðaföt
og hversdagsföt þótti vormeldúkur ágætur.
Bandormeldúkur
og þráðarormeldúkur kannast ég ekki við, hefi aldrei heyrt þau orð.
Í kvenfatnað man ég ekki að brúkaður væri vormeldúkur, hann þótti
of grófur og þungur. Millipils voru eins og ég hefi áður tekið fram,
venjulega úr einskeftu, en þó oft með bekkjum, og venjulega úr tvisti,
en vormeldúkur var vanalega ofin úr ull. Salún: Salúnsvefnaður
var í kringum aldamótin alls ekki ofinn hér í kring. Þó var einn
maður í Bólsstaðarhlíðarhreppi, sem óf ýmsan fjölbreyttan vefnað. Átti
hann útlendan vefstól með hraðskyttu með 8 eða 10 hafalda
p10
sköftum, en ekki
man ég að ég sæi frá honum salúnsvefnað. Hér voru til gamlar
ábreiður salúnsofnar fyrir aldamótin, en mjög slitnar, svo að hætt var
að nota þær yfir rúm. Sömuleiðis var til söðuláklæði salúns ofið. Minnir
mig að frk. Halldóra Bjarnad. fengi munstur af því. Voru í því jurtalitir,
bæði gulir og brúnir. Voru bæði ábreiðurnar og söðuláklæðið afar
gamalt, og var sagt að Kristín föðuramma mín frá Miðhópi, hafi átt söðuláklæði,
en hún hefur sennilega verið fædd um 1820. Um 1925 óf ég 4 eða 5
ábreiður með salúnsvefnaði, en þá var farið að kenna vefnað á Blönduóss
kvennaskóla, og ég hafði fengið mér norska vefnaðarbók. Það var kallað
hálfsalún eða bekkjasalún, ef randir voru á milli bekkjanna, sem salúnsmunstur
var á, en alsalún, ef öll voðin var með salúnsmunstri. Ábreiður þær
sem ég óf voru hálfsalún. Það voru svartar randir nokkuð breiðar
á milli salúnsmunstranna. Aðalvandinn við salúns vefnaðinn var ídrátturinn
í höföldin, en auðvitað þurfti aðgæslu
p11
að stíga rétt. Ég
gæti trúað að salúns vefnaður hafi lagst hér niður í byrjum 19. aldar,
eftir aldri þeirra ábreiða, sem ég þekkti með þeim vefnaði. Salúnsábreiður
þóttu merkilegar og munu þær oft hafa verið sparaðar, og það sá ég að eldri
konur gerðu að breiða undir sig í sætin á rúmunum til að hlífa ábreiðunum.
Hér eru nú engar salúns ábreiður til. Brekán: Algengara
var hér að tala um ábreiður en brekán, þó að hvorutveggja væri til. Ég
man nú ekki eftir brekánum, en mér skildist að þau gætu bæði verið einskefta
og með vaðmálsvend, en aðalmunur var sá að þau voru afar gróf bæði uppistaða
og ívaf, en oft talað um það sem gróft var að það væri eins og brekán.
Líklega hefi ég séð brekán í reiðingi. Það var ofið gróft, þverröndótt,
aðallitur svart en gular og grænar randir. Heilt brekán sá ég ekki
svo ég muni. Sjálfsagt hefur verið notuð skytta. Það var við
flestan vefnað nema glitvefnað og líklega krossvefnað, þar var meira og
minna brugðið með höndum.
p12
Glitvefnaður: Frá
glitvefnaði kann ég ekki að segja af eigin raun, nema það sem ég hefi séð
hér á Kvennaskólanum á Blönduósi. Þær hafa ofið veggteppi með glitvefnaði,
nú til nokkuð margra ára, og púða eða sessuborð. Ég get ekki giskað
á hvenær sá vefnaður lagðist niður. Hér má nú sjá á mörgum heimilum,
glitofin veggteppi eftir námsmeyjar frá Kvennaskólanum á Blönduósi.
Krossvefnaður: Þann vefnað þekki ég ekki, en vel getur verið
að vefnaðarkennarar þekki hann. Ekki minnist ég að hafa séð hluti
með þeim vefnaði. Flosvefnaður: Flosvefnað þekki ég
ekki, og minnist ekki að hafa séð hann, en flossaum hefi ég séð og eru
æði margar konur, sem það kunna, er sérstök nál við það notuð, sem konur
þær er kunna geta betur lýst en ég. Ekki man ég eftir neinum gömlum munum
flosofnum.
p13
Spjaldvefnaður: Spjaldvefnað
hefi ég séð. Faðir minn átti spjaldofin axlabönd, sem fyrir löngu
eru glötuð. Mig minnir að stafir hans væru í þeim, og minnir að önnur
hvor systir hans hafi ofið þau, og hafa þau þá verið ofin fyrir 1880. Því
þá fór um það leyti Ingunn systir hans til Ameríku, en yngri systir hans
Gróa var dáin (um tvítugt) töluvert fyrr. Mér var sagt að spjöld
með götum hefðu verið höfð til þess að gera skilin, en spýta með ívafinu
á til að berja fyrirvafið í skilið. Fótvefnaður: Fótvefnað
sá ég. Gömul kona, sem her var óf þannig sokkabönd. Þau voru
vafin um fótinn fyrir ofan kálfann til þess að halda uppi sokkunum, sem
þá náðu ekki lengra upp. Gamla konan rakti slönguna á rúmstokk sínum
milli tveggja nagla. Ég man nú ekki hve margt var á, en ekki geta
hafa veirð mjög margir þræðir á slöngunni, því sokkabandið var ekki nema
um 1 þuml á breidd, ofið. Hún hafði höföld hnýtt úr seglgarni, og
þau þannig tengd saman
p14
að hún togaði helminginn
upp en hinn helging niður til að gjöra skil. Seglgarni brá hún svo
í uppistöðuna og utan um fótinn, en hélt sjálf í á móti. Ívafið hafði
hún vafið upp á spýtu og var á öðrum enda hennar eins og tréhnífur, og
þrýsti hún ívafinu að með þeim enda spýtunnar. Á hinum enda var ívafið.
Vel getur verið, þó ég muni það ekki, að hún hafi einhvernvegin fest
efri enda slöngunnar um mitti sér, því ég man þá hún gjörði skilin, tók
hún í höföldin með báðum höndum, upp og niður. Munstur var nú ekki
annað en gul rönd í miðjunni, en svartir báðir jaðrar. Hún óf að
sér, eða ofan frá og niður eftir. Togaði því spýtuna að sér þegar hún þrýsti
ívafinu í skilið. Þessi bönd munu hafa verið um 1 1/2 alin á lengd
eða nær 1 meter. Ýmsar fleirri konur munu hafa ofið sokkabönd, því
að þau voru algeng á seinni hluta 19. aldar. Svo fóru að koma teygjubönd,
talsvert breið, og þeim smellt allavega saman. Gamla konan kallaði
þetta að fótvefa.
p15
Gjarðavefnaður: Oftast
voru allar gjarðir handbrugðnar og haft í þær tog eða garðaló. Var
brugðið þannig að sett var upp á þumalfingurinn uppistaðan, þannig að annar
þráðurinn var ofan á hinn undir, og síðasta þræðinum brugðið í gegn. Sumir
höfðu sérstakan þráð í ívaf af sama sverleik og uppistaðan. Fyrir
kom að gjarðir voru ofnar, helst hnakk eða söðulgjarðir. Þurfti þá
uppistaðan að vera fínni, en þegar brugðið var. Rakið var milli rúmstuðla
eða nagla. Ég óf einu sinni nokkrar gjarðir. Rakti ég þá eftir endilagri
baðstofunni, sem var 14-15 al. löng á nöglum. Það var held ég aldrei rakið
á grind. Þegar ofið var, voru gjarðir venjulega langröndóttar, t.d.
svartar og hvítar. Sérstök sterk höföld voru til að gera skil, ens
var sérstök skeið. Skeiðin sem ég á er 35-40 cm. löng og mjög gróf.
Ívafið var haft vafið upp á spýtu og var annar endinn hníflaga og
þjappað fyrir vafinu með þeim enda í skilið. Ekkert nafn hefi ég
heyrt á þeirri spýtu, eins heyrði ég þetta aldrei kallað nema gjarðaefni.
Sauma varð fyrir enda gjarðanna áður en sviftirnar með hringjunum
væru saumaðar á. Handbrugðnar gjarðir voru oft oddabrugðnar.
p16
Tenntar gjarðir sá
ég aldrei. Þegar oddabrugðið var, þá var ekki brugðið nema inn að
miðju, en ekki þvert yfir. Námskeið, skólar: Hér voru
aldrei nein námskeið í vefnaði. Nemendur frá húsmæðraskólanum á Blönduósi
hafa sumir ofið, og þá komið með nýjan vefnað. Þær hafa helst ofið
gluggatjöld og handklæði, en þær eru margar ófærar til að setja upp vefi,
og hafa oft ekki vefstóla. Þessar námsmeyjar ófu stundum gólfmottur.
Hæruvoð: Hæruvoðir sá ég aldrei unnar, en algengt var
að spinna hrosshár bæði með halasnældu og á rokk. Halasnældur voru
með renndum snúðum, misstórir snúðar. Stærstir á snældum er ætlaðar
voru til tvinningar. Hrosshár var kembt og vafið í vindla. Gamlir
ullarkambar voru hafðir til þess að kemba hrosshár. Hrosshársrokkar
voru sterkari en venjulegir spunarokkar og snældan miklu stærri. Aldrei
heyrði ég að hrosshár væri kembt sman við ull. Ef spunnið var hfosshár
á halasnældur, var algengt að festa vindlinum við mara í baðstofunni
p17
með al eða nagla,
sem stungið var í gengum hann. Væri spunnið á rokk, var haldið á
vindlinum. Hundshár: Aldrei heyrði ég um það að safnað
væri hundshári til að vinna úr því, en sennilega væri það gott t.d. í illeppa.
Oft vissi ég til þess að illeppar í leðurskó voru hafðir úr hrosshári,
og var það hlýtt og hrinti vel frá sér, ég held að þeir hafi verið prjónaðir
á mjög grófa prjóna. Aths: Vel má vera að ýmislegt
sé ekki nógu glöggt í þessarri skýrslu fyrir þá sem ekkert þekkja til vefnaðar.
Eins er vandséð að lýsa litum. Halasnældum eða hrosshárssnældum,
sem þar voru oftast kallaðar, hefi ég ekki lýst, þær eru til á öllum byggðasöfnum
gjöri ég ráð fyrir. Smá halasnældur, sem kvenfólk spann á voru stundum
með snúðum úr hvalbeini, og voru þeir oft ekki meira en 2-3 þuml. í þvermál.
Nr.1464
p1
Ull og tóvinna 4.
Bréf dags. 9/5 ásamt 18. spurningaskrá, hef ég meðtekið, og ekki
má ég láta því að öllu leyti ósvarað, svo þið vitið þó að það hefir komist
á leiðarenda. En nú er ég alveg spurður í þaul, og skal strax
sagt að varla mun vera til fávísari maður en ég við víkjandi því sem um
er spurt, og því verða svör mín engin eða út í hött. Ég hef aldrei
snert á vefnaði, en aðeins séð venjulegustu aðferðir og hjálpað til að
setja til einfaldar uppistöður fatnaðar og rúmfatavoða. Ég
hef heyrt nöfn voða og vefnaðar, en kann lítið að greina frá gerð, efni
eða útliti þeirra dúka, sem vissulega voru af mörgu tagi.
Brekánsvoð,
buxnavaðmál, skyrtu og svuntudúk, sængurvera- og rekkjuvoðadúk. Þetta
heyrðist allt, og alullar utanyfir fatavaðmál, m.m. og að sjálfsögðu var
lengd vefjar einatt miðuð við hvað margar álnir þurfti í hvað fyrir sig.
Voðir voru ýmist alull, þ.e. uppistaðan ullarþráður, einfaldur
eða tvöfaldur og fyrirvafið ullarband. Garnvaðmál uppistaða þá útlent
vefjargarn, tivstur, en fyrirvaf ullarband, algarn eða
p2
garn uppí garn. Þá
var allt voðarefnið útlent garn, og oftast einskeftuvefnaður.
Vefjargarn
var hvítt eða mislitt, brúnt, blátt, rautt ofl. Ullin: sauðarlitir,
hvítt, svart, mórautt, grátt eða á ýmsan hátt samkembt. Svo var band
litað, og víst voru þeir litir margvíslegir. Litunarmosi og margskonar
grös og jurtir var notað til litunar á margvíslega hugvitssaman hátt blandaðir
og tilbúnir, og svo komu allskonar útlendir litir "smálitir".
Litunum svo raðað í voðina, bekkir, rendur, teinar, eftir einhberjum
kúnstum eða fyrir mundum eða smekk vefara eða eiganda vefsins. En ekki
hætti ég mér út á þann hála ís, að fara nokkuð að lýsa eða skilgreina þau
nöfn, sem nefnd eru í spurningaskránni, en flest þeirra raun og hafa heyrt
nefnd. Litun voða, bands eða ullar var víst vanalega heimilisvinna.
Nokkur metnaður var það, að hafa fallega skift litum í millipilsum
kvenna, skyrtum karla, sængurverum ofl. Dúkaheitin: klæðavefnaður,
hringavefnaður, vormeldúkur kann ég að nefna, en ekki meira. Salún
sá ég sett upp og
p3
ofið. Það var
og er vandaverk. Salúns rúmteppi þóttu jafnan glæsileg, og frásagnarvert
ef salúns teppi voru yfir öllum rúmum í bastofunni. Svo voru
aðrar ábreiður, brekán, af þeim voru margar gerðir, ýmiskonar vefnaður,
og litir á mismunandi hátt, samsettir, köflótt, röndótt, tíglótt, tennt.
Einskefta eða vaðmál. Oftast gróft efni, þykkar voðir, sem
gott var að breiða ofaná sig þegar kalt var. Konu sá ég vefa
á fæti sér, sokkabönd og axlabönd, an aðferðinni kann ég ekki að lýsa,
held að fyrirvafið hafi verið vafið á flata spýtu, og hún dregin í gegnum
skilið. Randir voru eftir endilöngum borðunum.
Gjarðaefni
var stundum ofið í vefstað. Efnið mun oft hafa verið tog. Aðeins
tvenn sköft-hafaldasköft, voru þá notuð. Helst voru þessi ofnu gjarðaefni
höfð í yfirgjarðir með leðursprota og hringustykki. Falleg yfirgjörð
með stórri koparhringju þótti góður gripur. Undirgjarðir hnakka,
söðla, voru oftast brugðnar.
p4
Efnið oftast hrosshár
smátt spunnu tvöföldu. Togband var stundum notað í þær, gjarna voru
þær tvílitar oddgjarðir. Þær voru fallegar útlits og áttu helst að
vera mjúkar. Hringur oftast kopar festar með leðurstykki á báða enda.
Klifberagjarðir
voru brugðnar í þær var haft hrosshár, hampur og saumtog, þ.e. smágerðustu
rætur melgrass. Útlendur gjarðaborði útrýmdi smátt og smátt þessum
heimilisiðnaði. Hærusekki sá ég. Þeir voru ofnir úr
hrosshári, faxhári, smátt spunnu. Ég hygg einskeftuvend hafi verið á þeim.
Þeir voru með breiðum röndum, falleg vinna. Sérstök skeið,
sekkjarritti, hentaði til þess vefnaðar. Hrosshár var táið
hár fyrir hár. Látið falla á gólf niður milli fóta sér, vari var
tekinn fyrir að ekki væri maðkur, þ.e. 2 eða fleirri óaðskilin hár, þegar
nóg þótti komið, var beðjan löguð til og svo vafin upp í vöndul á snoturlegan
hátt. Þegar spinna átti, var al stungið gegnum miðjan vöndulinn
p5
og í tréklump, sem
festur var á sperru eða stoð, svo var spunnið á stóra halasnældu, tekið
fínt til og fest á knokkann. Þá var snældunni kingsað (snúið) svo
snérist á þráðinn. Hann vafinn á snælduna undir snúðinn uns snældan
tók ekki meira. Þá vafið af snældunni í hnykil, svo þegar annar hnykill
var kominn, voru þeir jafnþættir og gjörður einn hnykill úr tveimur. Hann
svo tvinnaður á sömu snældu. Þetta var allt vandasamt verk og seinlegt.
Stundum var hrosshár kembt í gömlum ullarkömbum, en þótti
ekki eins gott og vel táið. Hrosshársrokk heyrði ég talað um, en
sá hann ekki.
Vefnaðarkennsla-námskeið,
komu til sögunnar eftir aldamót. Munu kvenfélög og sambönd þeirra
hafa átt frumkvæði að því, og einnig húsmæðraskólar, þá útbreiddist margskonar
vefnaður, nýjar aðferðir og ný munstur. Að sumu leyti endurvaktar
eldri aðferðir. En ekki |p6 er ég maður til að fjölyrða um það. Þar
munu konur færari til frásagna. Verð ég að láta hér með lokið
þessu fáorða spjalli, sem aðeins er auglýsing um fávisku mína, og bið ég
afsökunar. Hugsanlegt er að betur takist til í annað sinn. Læt
hér með 2 smá salúnsparta.
Nr. 6127
p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður: Margt væri hægt að segja um vefnaðinn, en því miður
er ég ekki fróð um gamla vefnaðinn, því ekki var ofið heima. Það
var maður í sveitinni,sem tók að sér að vefa fyrir foreldra mína það sem
með þurfti fyrir heimilið. Hann hét Sighvatur Jónsson. Þá var
það helst í rekkjuvoð eða rúmábreiður með salúnsvefnaði. Í uppistöðuna
var spunninn þráður en eingirni i ívafið ýmist sauðalitir eða með jurtalitum,
sem ég get ekki greint frá. Þó sagði móðir mín mér að amma hennar
hefði litað úr sortu. Það var að mig minnir úr einir og eitthvað sem hún
sótti í fjöruna, en því hef ég gleymt, en þetta var kallað sorta.
Voðum var gefið nafn eftir því hvað þær áttu að fara í, en aldrei
var sett upp í vefstólinn nema eitt teppi í einu og ekki rakið í grindina
nema það væri ákveðið fyrirfram í hvað voðin átti að fara, t.d. í svuntudúk
eða pilsefni osfrv. Einskefta var það kallað hvað mörg sköft
voru notuð í vefinn, en ekki eftir efninu, enda var einskeftu vend ofin
jafnt úr íslensku sem útlendu efni. Mynstrið kom oftast út hvernig
dregið var í höföldin. Það þekktist ekki að þrykkja í efni. Hér
eru svo margar spurningar, sem ég get ekki svarað. Ég kynntist ekki
gamla vefnaðinum, bara af afspurn. Þegar ég var krakki, þá sendi
faðir minn ull til Danmerkur og fékk hana unn þar í dúka bæði kjóla og
annan fatnað. Ég man eftir kjólum, sem við áttum systur, grænum með
svörtu mynstri í þunnt og fínt. Öll vaðmál, sem unnin voru heima
hjá fólki
p2
voru þæfð undir fótum,
líkt og gert var við eltiskinn, en voðir voru ekki litaðar, heldur bandið
eða efnið sem í þær fór og alltaf ákveðið fyrir fram í kvað voðin skyldi
notuð og hún kölluð eftir því fatavaðmál, rekkjuvoð, svuntudúkur, pilsdúkur.
Þegar rakið er í grindina verður þetta að vera ákveðið áður breidd
og lengd þess sem vefa skal. Litir og litun var mikið notað
úr allskonar jurtum, heyrði ég að fólk talaði mikið um. Annars var
komin útlendur litur fyrst þegar ég man eftir, en ennþá var litað úr mosa.
Það gerðum við systur, þegar ég var innan við fermingu var okkur
kennt að þekkja mosann. Hann er á steinum, er eins og gráhvít skóf
á litinn. Ekki hægt að ná honum nema í rigningu. Við höfðum hníf
og skófum hann af grjótinu. Ég hef ekki séð hann hér fyrir sunnan,
þó ég hafi gáð. Þessi skóf er ekki lík mosa, en þetta var kallað
litunarmosi. Við tíndum þetta í poka, fórum með það heim, létum vatn
í pott, settum mosann í vatnið, létum það sjóða í 10 mínútur, létum 2 peysur
úr ull í pottinn, suðum það í 3 korter, tókum það af eldinum, helltum hálfum
kaffibolla af ediki í pottinn hrærðum í, létum það smástund bíða í pottinum.
Þetta er sá fallegasti og sterkasti brúnn litur, sem ég hefi þekkt,
og litast ekki upp. Ekki vissi ég til að þetta væri almennt gert.
Bæði var ekki hægt að taka mosann að vetri til, svo næst hann ekki nema
í rigningu, svo fastur er hann. Ég kannast ekki við hringvefnað
eða oddavefnað og fleirra sem ég kannast ekki við.
p4
Glitvefnaður: Það
var árið 1922 að Jóhanna systir mín fór til Reykjavíkur til að læra að
vefa á námskeið til Ástu Sighvatsd., bankastjóra, og lærði hjá henni allskonar
vefnað. Hún óf glitvefnað í púða. Uppistaðan var tvistur, en
ívafið var ullarband svart en mynstrið í rauðum lit. Hún óf flos
mottur á gólf, handklæði, dúka, servíettur, rúmteppi með salúnsmynstri.
Hún of peysufatasvuntur úr silkilíni. Pantaði allt efni og vefstól
frá Svíþjóð, en því miður get ég ekki lýst þessu frekar, er búin að gleyma
því. Hún óf allt eftir uppskriftum, og bók sem ég man ekki hvað hét.
Uppistaða í flosmottur var útlent gróft, sem kallað var vefjargarn.
Það líktist seglgarni, en var mýkra, en ullarband í ívafið. Flosið
var vafið uppá prik, svo að það yrði allt jafnt og skorið niður á prikinu,
og því brugðið í vefninn með höndunum, eftir mynstrinu. Þrír endar
í brugðning. Öðru máli gegnir með saumflos með nál. Það var notað
til svo margs. Ég heyrði að það hefði verið flosaðir vestisboðangar
á heldri menn með flosi, sem kallast háaflos, en er þó ekki hátt eins of
nafnið bendir til. Það kunna það margir núna. Eins var flos
notað í kanta til skrauts á föt, líka voru prjónaðir kantar neðan á pilsin.
Það lærði ég af móður minni. Þessi kantur var hafður neðan á pilsin
til styrktar pilsfaldinum. Spjaldvefnað get ég ekkert sagt um þekki
það ekki, en vefnað á fæti t.d. að slingja, sem kallað var, það lærði ég
krakki. Það var gert í kringum skóleppa aðallega saumaða
p5
leppa úr vaðmáli
eða úr afklippum af efni. Leppurinn var sniðinn úr 2 litum í 4 stykkjum,
saumað saman aftur t.d. svart og grænt, ef það er notað látið vera saman,
svo er leppurinn fóðraður með einum lit. Þarf ekki að vera sama efni,
fóðrið þrætt undir, svo er bandið, 2 litir svart og hvítt meira af svörtu,
undið í hankir, endunum fest með nál í leppinn, svo er hönkinni brugðið
gegnum bandið með hendinni og saumað jafnóðum við leppinn með nálinni,
sem fest var með bandið þegar byrjað var. Hún aldrei slitin frá,
fyrr en leppurinn er búinn. Þetta er seinleg vinna og var almennt
ekki notað nema í spariskó eða jólaskóna. Uppistaða í slingingu er
gerð með því móti, að hespa er gerð úr bandinu fyrst og brugðið undir fótinn
eins og venja var þegar band var hespað, svo var það fest við leppinn.
Þetta var allt gert í höndum og það kallað að slingja.
Styttubönd voru líka ofin með nafni eiganda. Það sá ég aldrei, en
heyrði talað um þau í sambandi við spjaldvefnað. Gjarðarvefnaður
var aldrei ofinn í vefstól. Gjarðir voru brugðnar í höndum úr hrosshári,
sem spunnið var á halasnældu. Það er svo gróft að ekki er hægt að
spinna það á rokk, en mig minnir að ullarband hafi verið notað líka sem
þar til var spunnið. Get ekki lýst því, búin að gleyma því.
Vefnaðarnámskeið voru hvergi haldin það ég vissi til á Vestfjörðum
þegar ég var barn. Það var löngu seinna að Húsmæðraskólinn á Ísafirði
fór að kenna eitthvað af vefnaði.
p6
Hæruvoð heyrði ég
aldrei talað um. Í hærur voru notaðir strigapokar, saumaðir saman
í höndum og lykkjur úr snæri settar í hornin og trépollar þar í. Hrosshár
var aldrei notað í neitt annað en gjarðir, það ég þekkti til, því síður
hundshár.
Nr.1480
p1
Ull og tóvinna 4.
Fyrir síðustu aldamót var hér í sveit síðast unnið að vefnaði úr
hrosshári í hærusekki en ekki í annað. Ég sá hærusekki í
mínu ungdæmi, og voru þeir yfirleitt hafðir röndóttir upp og niður. Hrossárið
var ýmist táið eða kembt í kömbum, og vafið í vindil, og fest upp t.d.
með al í rúmstólpa eða dyrastaf. Þegar spunnið var með snældu, sem
flestir gerðu, þó þekktist það að hrosshár var spunnið á gamla rokka. Ekki
er mér kunnugt um mismunandi gerðir af hrosshárssnældum að öðru leyti en
því, að sumar voru með renndum snúð, en aðrar með tálguðum snúð, og allar
voru þær eins og bandsnældur í lögun, nema miklu stærri. Spuni á
hrosshári með snældu, var unnin þannig að snældunni var haldið í hægri
hendi, en með vinstri hendi var reitt úr vindlinum að neðan og snúð aðeins
hleypt á til að jafna
p2
þráðinn. Svo
þegar kominn var hæfilega langur kafli frá snældunni að hrosshársvindlinum,
var snúið með snældunni á það, og þegar kominn var nógur snúður á þetta,
var það undið uppá snælduna með aðferð, sem nefnd var snældukings, og svo
haldið áfram þar til komið var nóg á snælduna, þá undið af henni í hnykil.
Hrosshár var tvinnað á snældu eins og band eða þráður, nema
að þegar það var tvinnað, var notaður steinn með gati í gegnum hann og
var þráðurinn látinn dragast gegnum gatið á steininum þegar tvinnað var.
Það var gert til þess að ekki kæmu snurður á þráðinn við tvinninguna.
Steinninn var kallaður hrosshárssteinn. Um uppsetningu á vefnaði
úr hrosshári, get ég ekki sagt neitt. Ég sá aðeins sinu sinni ofið
hrosshár, þá barn að aldri, og get ég ekki lýst því.
p3
Sérstök höföld voru
notuð við hrosshársvefnað. Mig minnir að þau væru ýmist höfð úr hrosshári
eða hampi. Vefjarkambur var til, sérstaklega til notkunar við hrosshársvefnað.
Vefjarskeið var til hér, sem eingöngu var notuð við þennan vefnað.
Hún var að gerð eins og venjulegar vefjarskeiðar, en mikið gistenntari
og skeiðartennurnar voru úr eir. Skytta var ekki notuð, en fyrirvafið undið
á mjóa spýtu, og henni stungið í gegnum skilið á uppistöðunum.
Hærusekkir voru saumaðir saman á hliðunum, upp og niður, en botninn var
heill og faldur á brúnum á opinu, og á þær festar smá hornhagldir, til
að draga opið saman, þegar pokunum var lokað. Ekki er mér kunnugt
um aðra hluti, sem ofnir voru úr hrosshári. En nokkuð fram á þessa
öld var hrosshár unnið í gjarðir, hnappheldur til að hefta
p4
hross með, beisli
og reiptögl. Ekki hef ég heyrt neitt um, að menn hafi kembt hrosshár
saman við ull í vaðmálsvoðir. Engin dæmi þekkjast hér um,
að menn hafi safnað hundshári og notað það til fata. Ekki
hef ég getað haft uppá neinu af gömlum vefnaðarsýnishornum hér í sveitinni.
Býst helst við að hér sé ekkert að hafa af svoleiðis.
Nr. 5739
p1
Ull og tóvinna 4.
Það hefur dregist hjá mér lengur en ég ætlaði að sýna lit á að svara
þessu. Í og með vegna þess að ég var að reyna að hafa samband við
fólk, sem ég hélt að vissi betur en ég. Mjög fáu get ég svarað.
Talað var um skyrtudúk, buxnavaðmál, sængurveratvist. Tvistur
var úr útlendu garni eingöngu. Ég hef ekki spurnir af að voðir hafi
verið sendar burt til litunar eða þrykkja í þær mynstur. Þar sem
ég veit til var efnið litað áður, væri um litum að ræða.
Ofið var efni til almennrar fatagerðar. Rekkvoðir úr ull og sængurveraefni
og skyrtuefni úr útlendu garni. Ofið var í skyrsíur og poka, en það
var fyrir mína daga. Vefnað í segl, tjöld, í reiðver og bakleppa
undir reiðing hef ég ekki heimildir um. Veiða, hef aldrei heyrt
það nafn, en klæðavend og tel að sá vefnaður hafi verið notaður í betri
fatnað karla. Hringavefnaður tíðkaðist. Hef aðeins
séð hálfhringað í nærföt úr ull, og kjóla og þá
p2
gjarnan úr útlendu
efni. Um oddavefnað get ég ekkert sagt. Vormeldúkur:
Hér um slóðir var þessi gerð kölluð vormeldúkur. Ég hef aðeins
fundið eina undantekningu, sem segir að ormeldúkur sé tamara, en þekkir
þó vormeldúk. Móðir hennar var góður vefari, fædd og uppalin í Fljótshlíðinni.
Salún: Þekki ekki annað nafn. Unnin voru aðallega
rúmteppi, og til var að áklæði á bekki og stóla væru þannig unnin. Litað
bæði úr jurtalitum og keyptum lit. Veit dæmi um bæði samfellt salúnsmunstur
og bekkjað, autt á milli. Ég hygg að vefnaður hafi verið stundaður
dálítið fram á fjórða áratuginn, en mjög lítið úr því, í mínu nágrenni.
Nú munu salúnsábreiður víðast vera slitur ein. Engin dæmi veit
ég að þær hafi verið notaðar spari, en geymdar á milli. Brekán:
Mér er ekki ljóst hvort salúnsábreiður voru kallaðar brekán, en held
það þó frekar. Rúmábreiður voru ýmist nefnd brekán eða rúmteppi,
og þá stundum stytt í teppi. Ég og þeir sem ég hef ráðfært mig við, muna
bæði köflótt og röndótt mynstur.
p3
Um glit, krossvefnað,
flos og spjaldvefnað hef ég ekkert að segja. Veit ekki til að það hafi
veirð unnið hér á heimilum um mína daga. Gjarðarvefnaður.
Eftir þó nokkrar fyrirspurnir fékk ég heimildir um 2 menn, sem ófu
gjarðir. Guðrún Þorsteinsd. á Uppsölum, fædd 26-05-1910, sagði mér
að Þorvaldur Stefánsson, bóndi á Norður Reykjum í Hálsasveit, dáinn 1937,
hefði ofið gjarðir. Þær hefðu verið unnar úr fínna efni (smágerðara)
en þær sem voru fléttaðar eða riðnar. Þær hefðu viljað leggjast saman
og ekki þótt eins góðar. Laufey Hannesd. Brekkukoti, fædd 29-01-1900
segir að faðir sinn Hannes Jónsson bóndi í Brekkukoti hefði ofið
gjarðir. Hann var fæddur 1887, d. 1959. Námskeið, skólar:
Jóney S Jónsdóttir, nú í Gróf í Reykholtsdal, fædd 15-05-1902, greindi
mér frá að 1926 eða 27, hafi verið haldin 2 vefnaðarnámskeið á vegum ungmennafélaganna,
annað hélt UMF Brúin í Hálsasveit og Hvítársíðu, hitt UMF Dagrenning í
Lundareykjadal. Kennari var Guðlaug Jónsdóttir frá Ölvaldsstöðum
í Borgarhreppi. Jóney, sem þá var í föðurgarði í Kópareykjum í Reykholtsdal,
var á námskeiðinu hjá
p4
Dagrenningu. Kennt
var á Lundi og voru 4 þátttakendur, hinar 3 úr Lundareykjadal. Kenndur
var salúnsvefnaður og aðrar algengar gerðir vefnaðar. Ekki
held ég að áhrifa frá vefnaðarkennslu í húsmæðraskólum hafi mikið gætt.
Þó var til að konur sem höfðu verið á húsmæðraskólum stunduðu eitthvað
vefnað á sínu heimili. Skal ég nefna 2, Helgu Sigurðardóttur í Hraunsási,
fædd 1908, dáin 1982 og Vigdísi Bjarnadóttur í Nesi, Reykholtsdal, fædd
1910. Þær voru báðar á húsmæðraskólanum á Staðarfelli. Vefnaður
hér um slóðir fjaraði út vegna fólksfæðar og anna á heimilum, og einnig
vegna aukins úrvals af fataefnum í verslunum. Um 1940 fóru líka að
aukast fjárráð fólks til kaupa á efnum. Ég hef reynt að afla
sýnishorna af vefnaði, en því miður er margt komið í glatkistuna. Á
tveimur bæjum varð mér dálítið ágengt. Ég sendi það hér með.
Nr. 3629
p1
Ull og tóvinna 4.
Um þessa skrá get ég ekkert sagt. Þó vil ég geta þess, að
einhvern tíma á árunum frá 1925 til 1930 var haldið vefnaðarnámskeið í
Arngerðareyri. Ekki þori ég að segja hverjir beittu sér fyrir þessu námskeiði.
Ekki veit ég heldur með vissu hver eða hverjir kenndu þar. Vera
má að Sigurborg Kristjánsd. frá Múla hafi kennt þar, og beitt sér fyrir
þessu námskeiði. Bið svo menn að taka viljann fyrir verkið.
Nr. 6090
p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður almennt: Því miður er ég ekki mjög fróð um vefnað,
þó var vefstóll heima í uppvexti mínum, og æfinlega ofnar 2 eða fleirri
voðir á vetri. Stundum teknar voðir eða voðaefni af öðrum bæjum.
Foreldrar mínir ófu bæði og fleirri, jafnvel ég kunni ofurlítið að
vefa í þá tíð, en ég var ekki hneigð fyrir starfið, og hef aldrei ofið
neitt síðan, enda óvíða vefstólar til nú orðið þar sem ég þekki til. Ekki
á ég nokkurt snifsi til af heimaofnum dúk eða nokkurt klæði, því miður.
Ekki man ég eftir að voðum væri beinlínis gefið sérstök nöfn
eftir því sem átti að sauma úr þeim. Já, það var örugglega ákveðið
álnatal í hvern hlut og lengd voðar oft í samræmi við það, en oft voru
voðir ofnar, sem áttu að geymast og grípa þá til þeirra eftir þörfum.
Einskifta: Það sem algengast var að vefa, og mest notað var
einskifta. Við heima í Árnessýslu, þar sem ég þekkti til, nefndum þetta
einskiftu, en ekki einskeftu, svo ég held ég nefni það svo.
Fyrir utan einskeftu, sem ýmist hafði útlent garn að uppistöðu eða ullarþráð
heimaspunninn, en heima var ívafið ævinlega ullar einspuna og þá ævinlega
unnin úr ofanaftekinni ull. Ég hef oft séð dúka eða föt og gluggatjöld
saumuð úr dúkum eða voðum úr algarni. Mig minnir að útlenda garnið,
sem haft var í voðirnar væri af sumum nefndur tvistur.
p2
Einskeftu dúkar voru
mismunandi að lit, stundum langröndóttir og ívafið líka mislitt. Þá
urðu til köflóttir eða teinóttir dúkar, ýmist voru þá notaðir sauðalitirnir
eða þá unnir úr litaðri ull, svo var þá keypt mislitt garn, ef dúkurinn
átti að verða köflóttur eða teinóttur. Þessir dúkar voru hafðir í milliskyrtur
og millipils, en stundum voru millipilsin einlit með randabekk neðarlega
á flíkinni. Þá var mælt út hve mikið fór í millipils, og svo ofinn
randabekkur neðst eða það sem áætlað var að væri nærri neðst á pilsinu.
Svo var einskefta notuð í krakkakjóla og buxur á yngri drengi, undirlök
í rúm og brekán. Svo í pils handa fulltíða kvenfólki, og margskonar
utanyfirföt, úlpur, reiðföt og kápur á yngr börn. En sjöl eða hyrnur
hef ég aldrei séð heimaunnin öðruvísi en prjónuð eða hekluð. Sparisjöl
voru útlend. Gamlar konur gengu stundum með heimaunnar einskeftusvuntur,
en mjög var það farið að leggjast af þegar éf fór að muna eftir mér. Ekki
hef ég séð skyrsíur úr heimaofnu efni, og mjög lítið var um að einskefta
væri höfð í sængurver, en þó hef ég séð það fyrir langa löngu.
Efni í poka eða tjöld var ekki unnið heima hjá mér. Nei, dúkar heima
voru aldrei sendir burt til litunar. Ekki man ég til þess.
Vaðmál: Mig minnir að ullarþráður og ívaf úr ull væri ævinlega
notað í vaðmál, oftast var það með sauðalitunum, en þó var litað svart
það efni, sem fara átti í karlmannaföt, sem notuð voru sem spariföt. Það
var litað í stórum potti úr útlendum
p3
lit. Man ekki
eftir að hafa séð peysuföt eða spariföt kvenna úr heimagerðu efni eða sjöl.
Jú, hversdagsföt kvenna voru stundum úr vaðmáli, aðallega pilsið
meðan konur gengu í síðum pilsum hversdags, en treyjan var oft úr útlendu
efni, lérefti rósóttu eða dökku og nefnd dagtreyja. Þær voru líkar
í sniði og peysutreyjan. En hyrnur og kjóla úr vaðmáli man ég ekki
eftir. Hyrnur heklaðar eða prjónaðar. Peysufatasjöl voru öll útlend,
þau sem ég man eftir. Hversdagsföt karla voru flest eða öll
úr heimaunnu vaðmáli, oftast með sauðalitum, stundum teinótt, en lang oftast
einlit, grá eða mórauð. Þá náðu karlmannabuxur rétt niður fyrir hnén
og þá með hnepptri klauf upp að hnjám á þeim sem skást voru búnir, en svo
var ekki á öllum, og voru buxurnar þá hólkvíðar fyrir ofan miðjan legg,
ef sokkar voru girtir innan undir. Það var fyrna ljótur búnaður ef
jakki eða bur fór eftir því, og gamall hattkúfur á hausnum. Ekki
að undra þó mórarnir okkar gömlu góðu draugar sem margir voru orðnir gamlir
og úttaugaðir væru ekki beinlínis augnayndi í þvílíkum búnaði. Ekki
voru nærföt fólks heima hjá mér ofin, en gamlan mann þekkti ég, sem sagðist
ekki geta verið í öðrum nærbuxum en ofnum með vaðmálsvend.
Þekki ekki til að vaðmál væri haft í rúmföt. En eins og ég sagði
í allskonar ytri föt hversdags, og reiðföt karla og kvenna, þó voru miklu
fleirri konur í reiðfötum úr útlendu efni, sevioti að mig minnir. Engar
skyrsíur voru úr ofnu efni, ekki pokar, segl eða tjöld voru ofin heima.
Ekki fóður undir föt eða neitt til reiðvera, engar voðir sendar burt til
litunar. Litað heima það sem litað var.
p4
Klæðavefnaður, veipa:
Jú, sumir ófu þessa svonefndu klæðavendardúka. Veipu hef ég
aldrei heyrt nefnt. Þetta var kallað klæðavend. Þessir dúkar
voru hafði í spariföt karla og venjulega lituð svört. Ég man ekki
eftir að þessir dúkar væru ofnir heima, enda áttu allir spariföt úr útlendu
efni, en ég sá marga, sérstaklega eldri menn í þessum fötum, og heyrði
oft um klæðavend talað. Vendin áþekk og á grófu sevioti minnir mig.
Hringavefnaður: Ég þekki ekkert til þessa vefnaðar.
Hef aldrei séð neitt með þessum vefnaði. Oddavefnaður.
Veit heldur ekkert um oddavefnað. Hef aldrei séð hann.
Ormeldúkur: Við í Árnessýslu nefndum þennan vefnað vormeldúk.
Það voru stundum ofnar vormeldúks voðir. Mig minnir bæði þráður
og ívaf væri alltaf úr ull. Þessir dúkar voru notaðir í hversdagsföt
karlmanna og yfirhafnir, úlpur, jakka, reiðföt, en ekki man ég eftir að
spariföt væru saumuð úr vormeldúk, þó getur það hafa verið. Venjulega
voru sauðalitir í þessum dúkum. Þeir þóttu seinunnari en vaðmál,
en sterkari. Ég man ekki eftir kvenfatnaði úr vormeldúk. Þó
getur það samt hafa verið, en bekkjapilsum man ég eftir. Millipils
úr einskeftu með marglitum vormeldúksbekk. Mér fannst þau mjög falleg
þegar ég var krakki. Þá styttu konur sig og gengu í millipilsum og
vildu þær hafa millipilsin sem fallegust.
p5
Salún: Þessi
vefnaður var nefndur salún eða salon, svona ýmist að mig minnir. Ég
held ég nefni þetta ýsmist salún eða salon, ef ég tala um þennan vefnað.
Þegar ég man fyrst eftir var salúnsvefnaður aðeins notaður í rúmábreiður,
en ég hef séð áklæði undir reiðver með salúnvefnaði. Bekki stoppaða
og klædda með salúni, söðulsessur með salúni á efri hlið, og ef til vill
fleirra, ég man það ekki. Ég man ekki eftir að foreldrar mínir hafi
sjálf ofið salún. En í næsta nágrenni við heimili mitt var lausakona,
sem óf salún manna best. Ýmist tók hún vefjarefnið heim til sín og
óf það þar, eða kom á bæina til að vefa. Kona þessi giftist aldrei.
Hún hét Margrét Tómasdóttir, alin upp í Brattholti. Alsystir Sigríðar
Tómasd. frá Brattholti, sem margir hafa heyrt getið. Margrét
eða Manga eins og hún var kölluð, var oft tíma og tíma heima að vefa og
þá helst salúnsvoðir. Hún hafði mjög gaman af sögum og alveg sérstaklega
af Mannamun Jóns Mýrdal. Ég var þá 10-11 ára þegar hún sá Mannamun
heima, sem var fenginn að láni úr bókasafni í sveitinni. Hún hafði
marglesið þessa bók, en varð alveg friðlaus að heyra hana einu sinni enn,
en vildi ekki tefja sig við lesturinn. Hún fékk mig nú til að lesa
bókina upphátt fyrir sig meðan hún var að vefa. Ég sat svo þarna
við hliðina á vefstólnum og þrumaði upp yfir vefslögin allan Mannamun fyrir
hana. Hún skellihló oft og virtist skemmta sér með ágætum, en ég
hef aldrei getað litið bókargreyið réttu auga síðan, hvað þá lesið hana
nema í þetta
p6
eina skifti.
Margir fleirri ófu salúnsvefnað, en þó var það ekki mjög algengt,
en hvenær farið var að vefa salún, veit ég ekki. Ég held það hafi
verið iðkað þar mjög lengi, svo margir áttu salúnsofnar ábreiður, þegar
ég var að alast upp. Efnið var ull þar sem ég þekkti til, spunnin
heima eins og allt í þá daga. Ábreiðurnar voru oft dökkar í grunnin,
en kaflarnir með margskonar litum, oft litaðir úr útlendum litum, en stundum
voru aðeins sauðalitirnir. Ég man ekki eftir öðrum jurtalitum, en
mosalit mjög fallegur brúnn litur, úr skóf á klettum. Ég man ekki
eftir að munstrin væru kölluð nokkuð sérstakt, og man ekki hvort vefarar
fundu upp eða kunnu munstrin utanað. Man ekki eftir að Manga væri
með neinskonar munsturblöð að fara eftir. Mig minnir að mjóar randir
væru venjulega milli upphleyptu kaflanna. Ég veit ekki hvort húsmæðraskólarnir
hafa breytt nokkru um gerð salúnsvefnaðar. Ég sé hann hvergi nú orðið,
og yfirleitt engan vefnað, sem ofinn sé í heimahúsum. Fáir eiga vefstaði
nú orðið, og þó vefnaður sé eða hafi verið kenndur í öllum eða flestum
húsmæðraskólum, eru sárafáar stúlkur, sem eignast vefstaði eða halda vefnaði
nokkuð við. Hér um slóðir held ég að enginn eigi vefstól, ekki þar
sem ég þekki til. Ég veit ekkert hvaða verð var á salúnsábreiðum.
Ég man að sumir höfðu brekán til að setja á þau voru breidd yfir
hálft rúmið yfir salúnsábreiðuna, sem þá venjulega var ný eða nýleg, en
ekki man ég til þess að salúnábreiður væru aðeins notaðar á helgidögum.
Ég veit ekki hvenær yfirleitt var hætt að vefa í sveitum, en 1930
þegar við fluttum til Reykjavíkur var
p7
víða ofið til sveita.
Ég hef hvergi séð salúnábreiður yfir rúmi nú um árabil. Brekán:
Heima voru ábreiður yfirleitt kölluð rúmteppi, en gamalt fólk talaði
gjarnan um brekán, margir kölluðu allt ábreiður, sem breytt var yfir rúmin,
bæði salúnsofinn vefnað og annað. Hvort þau voru úr öðrum vefnaði,
prjónuð, hekluð eða saumuð úr allskonar afgöngum, en langflestir nefndu
þetta teppi eða rúmteppi eins og gert er enn í dag. Þau rúmteppi
ofin annað en salún, voru flest með einskeftuvend með ýmsum litum, röndótt
eða köflótt, en oft einlit. Venjulega var dökkur sauðalitur allsráðandi,
svartur eða dökkgrár með lituðum röndum eða köflum, efnið tíðast alull.
Tennt þekki ég ekki. Ég man aldrei eftir brekánsvefnaði heima, þó
voru til brekán þar. Um vefnaðaraðferð veit ég ekkert og ekki hvenær
alveg lagðist niður að nota þau. Glitvefnaður: Nei,
ég hef ekki séð glitvefnað ofinn, en eina konu kannaðist ég við, og sá
hjá henni mörg stykki með glitvefnaði, sem hún óf á sínum yngri árum, að
hún sagði. Þetta var logandi fallegt, sessuborð, búðaborð og margt
og margt. Hún er vissulega eina konan, sem ég kannast við sem kunni
glitvefnað. Þó sjálfsagt hafi þær fleirri verið til og eru sjálfsagt
ennþá. Þá var þetta ekki algengt eftir að ég fór að muna eftir. Um
aðferð veit ég ekki.
p8
Krossvefnaður: Um
krossvefnað veit ég ekki neitt, hef aldrei séð hann. Engar sagnir
veit ég um konur sem saumuðu glitmunstur í heimaofna einskiftu.
Flosvefnaðu: Um hann veit ég ekkert. Hef aldrei séð
neitt flosofið. En ég lærði einu sinni að flosa með nál í stramma. Það
er það eina, sem ég veit um flos. Engar sagnir veit ég um neinn,
sem kunni flosvefnað, en að flosa með nál kunnu sumir, sömuleiðis að gimba.
Spjaldvefnaður: Lítið get ég sagt um hvernig spjaldvefnaður
var ofinn, en í mínu ungdæmi kunnu sumar konur spjaldvefnað. Ég sá
sokkabönd spjaldofin. Ýmist með rósum eða oddaofið og eina konu hef
ég þekkt, sem gerði allmikið að því að spjaldvefa sokkabönd og fleirra.
Það var Margrét Tómasdóttir, sú er óf salúnsteppin. Ég man
hún gaf mömmu ein svona ofin sokkabönd, en sokkaböndin voru í þá daga mjór
og langur borði, sem vafinn var utanum sokkana neðan við hnéð. En
allir sokkar í þá daga náðu upp að hné, bæði á konum og körlum. En
ég sá Möngu aldrei spjaldvefa og sá aldrei áhöldin hjá henni, svo upplýsingar
um aðferð get ég ekki gefið, og því miður eru sokkabönd móður minnar löngu
ónýt eða glötuð. Fótvefnaður: Hef aldrei heyrt hans
getið fyrr en nú, á spurningalistanum.
p9
Gjarðavefnaður: Nei,
gjarðir voru ekki ofnar þar sem ég þekkti til. Allar gjarðir eða langflestar
voru brugðnar úr hrosshársblöndu. Það er að segja hrosshár og ull
spunnið saman og svo brugðið úr þræðinum. Stundum, ef vantaði gjörð
fljótlega, var hún saumuð úr tvöföldum eða þreföldum striga.
Námskeið, skólar: Ekki minnist ég þess að nein vefnaðarnámskeið væru
haldin í minni sveit þegar ég var að alast upp. Ég held að yfirleitt
hafi húsmæðraskólar ekki haft mikil ágrif í þá átt að efla vefnað, sem
heimilisiðnað eða nemendur yfirleitt ekki haft sérlega mikinn áhuga fyrir
vefnaði. Þó er ein og ein, sem haldið hefur út í lengra vefnaðarnám,
þegar hún hefur lokið húsmæðraskólnámi. Ein kona í Stafholtstungum
fór til Noregs og lærði þar margskonar vefnað, og hefur stundum kennt vefnað
við Varmalands húsmæðraskólann. Ragnhildur Einarsdóttir á Svarfhóli.
Hún er sögð flínk í vefnaði, og kann ef til vill skil á gömlum vefnaði.
Ég veit það raunar ekki, en slæ þessu svona fram. Hæruvoð:
Heima voru hæruvoðir ekki unnar, en gamall bóndi í nágrenni okkar
í Biskupstungum lét vinna þessháttar voðir, amk. framan af
p10
búskaparárum sínum.
Ég sá oft hærupoka frá Brattholti þegar ég var krakki. Bóndinn
hét Tómas Tómasson, faðir þeirra Sigríðar og Margrétar, sem ég hef getið
um. Hann var fornlegur nokkuð, og vildi búa að sínu. Ég sá
aldrei þessar voðir unnar, en sá pokana. Þeir voru margir langröndóttir
og litlar hornsylgjur festar á barmana, svo draga mátti pokaopið saman
með bandi eða snæri, ef þurfti. Ég býst við að vinnsla hrosshársins
til vefnaðar hafi verið eins og ef flétta eða bregða átti úr því. Þá
var hrosshárið og ullin táin. Ullin stundum kembd og kemburnar hafðar
breiðar og þykkar, ull og hrosshári blandað hæfilega saman, undið upp í
stóran vindil. Vindillinn festur upp á bita eða rúmstöðul og spunnið
úr honum með stórri halasnældu. Bandið undið af snældunni þegar hún
var full í hnykla. Ég veit ekki í hvernig vefstað þessar hæruvoðir
voru ofnar. Hef aldrei séð þá, en pokana sá ég stundum.
Ég veit engin dæmi þess að hrosshár væri notað saman við ull í vaðmálsvoðir.
Hundshár: Ég þekki engin dæmi þess að hundshár hafi
verið notað á nok
kurn hátt til fatagerðar
eða neins annars.
Nr.1441
p1
Heiðraði vin! Ég þakka kærlega
ritið um Víðivallabæinn og síðasta bréfið. Ég hefi nú skrifað upp vefjarskýrsluna,
sem ég notaði þegar ég setti upp ullarvefi eða úr ullarþræði. Ég fékk þessa
skýrslu frá Guðm. Jónssyni. Hann var bróðir Friðfinns Jónssonar smiðs á
Blönduósi, sonur Jóns Guðmundss. og Önnu Pétursd. frá Refsstöðum. Sá Pétur
mun hafa verið bróðir Kristján ríka í Stóradal. Guðmundur var afburða vefari
og sá lang afkastamesti sem ég hefi þekkt, og eins voru afköst hans við
að setja upp vefi. Hann óf iðulega 12-15 al. af 5-6 lóða verki og uppundir
20 al. ef grófara var, en auðvitað þurfti það að vera sæmilegur þráður.
Guðmundur bjó á Auðólfsstöðum í Langadal. Var giftur og átti 1 son sem
nú býr ógiftur þar. Það var gaman að sjá Guðmund vefa. Það var eins og
þetta léki allt í höndunum á honum. Guðmundur var skammlífur, hafði einhverja
innan meinsemd og var skorinn upp á Akureyri af Guðmundi Hannessyni og
dó eftir þann uppskurð. Ég óf töluvert á mínum yngri árum ss. vaðmál,
vormelsdúk, klæðavefnað, hálfduffel, hringavefnað (ábreiðuvefnað), salonsvefnað
líka á ábreiður. Allt er þetta uppslitið. Svo óf ég úr tvisti í milliskyrtur
og millipils með bekkjum. Ég átti norska bók um vefna: Haandbok.
Nr. 1482
p1
Ull og tóvinna 4. Vefnaður:
Voðum var gefið nafn eftir því í hvað þær áttu að fara. Álnatal var
ákveðið til ákveðinna hluta t.d. 6 álnir í rekkjuvoð og svolítið meira
í teppi, sem þá var alltaf brugðið innundir til hliðanna og endanna á rúminu.
Einskefta: Það sem var úr tvisti var ávallt kallað
dúkvend. Ekki var mikið um jurtalit, en tvisturinn var svo mislitur
oft sjálfur. Mynstrin voru kölluð t.d. dúkvend og vaðmálsvend. Litirnir
voru undnir á spjald áður og þeim raðað niður. Það var kallað að
raða niður litum, og þá mátti ekki vera einum þræði meira
p2
í einni rönd en annarri, nema að
það kæmi rétt út. Kjóladúkur var eins og milliskyrtudúkur,
nema á litinn. Millipilsdúkur var oft mikið röndóttur í uppistöðunni.
Svuntudúkur var oft svipaður. Oft var höfð rönd neðst þversum í millipilsadúk.
Kjóla og milliskyrtudúkar voru oft rúðóttir. Fatafóður var
oftast einskefta. Allt óvandað var ofið með einskeftu eins og t.d.
reiðingsdýnur. Húsgagnaáklæði ekki ofið né borðdúkar eða handklæði
eða gluggatjöld né til útsaums eða skyrsíur. Einskeftudúkar voru
ekki sendir til litunar. Vaðmál: Uppistaða í vaðmáli
var t.d. hvít, ef hún átti að vera í nærföt og rekkjuvoðir. Þá var
oft höfð haustull með. Svo var haft dökkleitara í ytri föt. Það
fínasta sem
p3
haft var í spariföt, peysupils
oþh. var kallað þriggja lóða verk, þegar átti að vanda það sem best. Vandasamt
var að þæfa það svo það þófnaði ekki misjafnt, því fínna sem það var, varð
að hrista það oftar upp. Það geru 2 með því að taka það í milli sín
og hrist svo small í. Pokavend hét sérstök vend. Í undirdekk
var haft voða fínt, stundum ar saumað í það. Klæðavefnaður
- veipa: Klæðavend var til, og gekk undir því nafni. T.d. var hún
trúlega notuð til karlmannafatnaðar. Uppistaða í hana var heimaspunninn
þráður. Ívafið varð að vera ákaflega lint band. Sauðalitir
voru í hversdagsföt, hafðir dökkir helst. Annars voru litir eftir
því hvað hver hafði ráð á.
p4
Hringvefnaður: Hringvefnaður
var hafður í ábreiður. Bæði tíðkaðist heil og hálf hringað. Uppistaða
oft dökkgrá, þráður og band. Litir eftir ástæðum. Oddavefnaður:
Oddavefnaður var til, og var oft hafður í teppi yfir menn. Þráður
var uppistaða og ívafið band, helst snúðlint. Ormeldúkur:
Sú vend var kölluð Vormeldúkur. Efnið var úr ull því snúðmeira
sem það átti að vera sterkara. Litir eftir ástæðum. Bandormeldúkur
var til og einnig þráðarormeldúrkur. Uppistaðan mátti vera linari,
ef hún var tvöföld. Hvorttveggja var notað nokkuð jöfnum höndum,
eftir því þó í hvað það átti að vera.
p5
Salún: Rúmábreiður voru ofnar
úr því. Litir eftir ástæðum. Vefarar hugsuðu oft sjálfir upp
mynstrin amk. ef eigandi voðarinnar ekki gerði það. Þeir höfðu venjulega
engar fyrirmyndir. Salúnmynstrin voru yfirleitt ekki í bekkjum. Salúnsvefnaður
var ekki mikið notaður. Salúnsábreiður voru notaðar stundum til hátíðabrigða.
Salúnsábreiður tæplega til nú. Brekán: Rúmábreiður
voru oft nefndar ábreiður. "Þú átt eftir að láta ábreiðuna yfir
rúmið" osfrv. Salúnsofnar ábreiður voru stundum nefndar brekán.
Ekki var talað um brekánsvefnað. Brekán voru vanalega rúðótt
eða teinótt og á víxl vaðmálsvend eða einskefta, eftir því hve fínt það
átti að vera. Þræðir voru í uppistöðu
p6
ívaf úr bandi. Notuð var
skytta. Ef efnið átti að vera þykkt, var meira gefið upp í vefinn, (meira
varpað), eða þá sumsstaðar 2 þræðir í tönn og minna varpað. Ekki
voru ofin brekán eftir 1930. Glitvefnaður: Glitofnir munir
munu flestir hafa farið í eyðileggingu. Trúlega hefir verið gott að merkja
í einskeftuna. Glitvefnaður hefir verið iðkaður á þessari öld í skólum
t.d. Flosvefnaður: Stundum var flosað án þess að flosvefa
í stól. Slagborðið var notað til að slá að, ef flosað var í stól. Hálfflos
er til og þó trúlega alflos líka. Flosvefnaður var hafður í púða
t.d.
p7
Spjaldvefnaður: Spjaldabönd
voru úr spjaldvefnaði, bæði sokkabönd, axlabönd og styttubönd. Ívafið
var undið á trénál. Ullistaða og ívaf á spjaldaband var yfirleitt
úr tvisti. Kannske stundum úr fínu bandi.
Hannyrðabókin var til og
blöð úr henni eru trúlega til hjá Tómasínu Þórólfsd. Minni Ólafsvöllum.
Fótvefnaður: Heimildarmaður veit ekkert um hann.
Gjarðavefnaður: Gjarðir voru ekki ofnar í vefstól. Þær voru
brugðnar í höndunum, svo fínt að það komu alltaf randir í odda í gjörðina.
Gjarðir voru nefndar eftir mynstum. Stórt band og hrosshár
nefndist gjarðaefnið. Endinn látinn í hringjuna eða í lykkju yfir eitthvað
p8
og svo var saumað fyrir hinn endann.
Námskeið: Skólar eða vefnaðarnámskeið voru engin í
sveitinni.
Hæruvoðir: Hrosshár
eða faxhár var kembt í kömbum en taglhár reytt. Undir spuna var vafinn
vindill og spunnið á snældu. Sumir höfðu vitlausu snældu, sem kölluð
var. Snældur voru mismunandi stórar eða fínar, stundum var gert gat
upp í gólfið til að snældan færi lengra niður. Hnyklarnir voru hafðir
voða stórir. Prjónaðar voru þvögur úr hrosshári. Ein kona átti
3, eina á mjólkurílátin, eina á pottana og eina á súrdalla. Þetta
þótti betra
p9
en sandur. Þó voru hárin
alltaf klippt sem úr úr þeim gengu. Menn unnu gjarðir og reipi úr
hrosshári og múlbeisli. Hrosshár var ekki kembt saman við ull í voðir.
Hundshár hefur heimildarmaður ekki heyrt getið um til neins.
Nr. 1481
p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður almennt: Það sem hér kann að verða skráð eru aðeins
ófullkomnar endurminningar 10 ára drengs. Lætur því að líkum að lítið
verði á þeim að græða. En á æskuheimili hans var vefstóll og allmikið
ofið, og þaðan stafa þeir fróðleiksmolar, ef nokkrir verða, sem hér kunna
að koma fram. Ekki verður skeytt um að taka spurningarnar
fyrir í þeirri röð sem þær eru settar fram í skránni, enda fæstum þeirra
svarað svo viðhlýtandi geti talist. Voðum var yfirleitt gefið
nafn eftir áferðinni, vendunni. Helstu gerðir vendu voru: vaðmálsvenda,
klæða- eða klæðisvenda. Dúkvenda, vormelsdúksvenda og hringavefnaður.
Vendan fékkst með því hvernig dregið var í höföldin og skammelin
síðan troðin á sinn sérstaka hátt fyrir hverja vendu. Voðin gekk
fljótast fram á vaðmálsvendu, gefið í af ívafinu og eitt högg látið nægja
með skeiðarslaginu. Klæðisvendan var eitthvað seinofnari, en áferðin
varð sléttari og fínlegri á voðinni. Seinlegast þótti að vefa vormeldúk.
Skilin voru frábrugðin, minna gefið í, en voðin barin mjög saman.
p2
Vormeldúkur hafði
allmjög öðruvísi áferð, en t.d. vaðmál og þoldi lengur slit, var notaður
í yfirhafnir karla, ferðabuxur osfrv., skjólgóður og varðist vatni furðu
vel. Vaðmál sem nota átti í utanyfirföt, var oftast með sauðalitum,
stundum röndótt eða smárúðótt, svart, grátt, mórautt á víxl. Hvítt
eða ólitað vaðmál var notað í nærföt, skyrtur, buxur, ennfremur í rekkjuvoðir,
oft framborið sem "rekkjoðir", til að leggja á, þ.e. ofan á undirsænginni,
en ofaná reyndu flestir að eiga línlak. Stundum var fínna vaðmál
unnið í skyrturnar og sumar kvenflíkur. Ábreiður á rúm, voru jafnaðarlega
ofnar hringavefnaði og í 2 litum, stórrúðóttar. Sama efni var einnig
notað í Þverpoka, þeir voru litlir, lítið lengri en hnakktaska, enda notaðir
svipað, bundnir við hnakk. Opið var á miðri hliðinni, oft reimað
saman. Þá var vaðmál notað til þess að klæða með melreiðingsdýnur,
þeim megin sem snéri að bakinu, en aflóga rúmábreiður til að klæða með
utan klakktorfurnar, sem einnig voru úr melrótum. En á seinni árum
reiðinganna kom pokastrigi í stað vaðmáls.
p3
Tvistur, tvisttau:
Allmikið var keypt og ofið úr bómullargarni, tvisti. Hvítu
og marglitu. Úr hvítu garni var ofið í línlök, koddaver, borðdúka
ofl., svo sem þerrur. Úr mislitu með margvíslegu mynstri: röndótt,
teinótt, rúðótt, tíglótt efni í: milliskyrtur,svuntur, sængurver ofl. Einnig
var oft ofið saman ull og tvist, þannig að uppistaðan var tvistur, en ívafið
ullarþráður. Á öllum tvistvefnaði mun hafa verið höfð hin svonefnda
dúkvenda. Þessi samsteypa á ull og tvisti var m.a. notuð í vinnuföt
karla, sem og millipils kvenna. Ekki er mér vel ljóst hvaða gerð
vefnaðar, og hversvegna, var kölluð einskefta. Máske hefur aðeins
verið notað eitt skilskaft í uppistöðu vefsins, í stað tveggja venjulega
og voðin látin taka nafn af því? Mynstur eða fyrirmynd fyrir vefarann,
þegar hann dró í höföld og skeið, var þannig gert að þræðir úr efni því
er þá skyldi vefa, voru undnir upp á lítið spjald í þeirri röð og fyrirkomulagi,
eins og þeir áttu að koma fram á voðinni. Þurfti við þetta aðgæslu
fyrst og fremst þegar rakið var á rakgrindina.
p4
Litun úr innlendum
efnum var nálega úr sögunni þegar kom fram yfir aldamótin síðustu. Var
þá farin að koma í verslanir litur í smábréfum er þótti handhægur. Enda
um marga liti að velja. En áður voru einkum 2 litir innfluttir notaðir,
hellulitur svartur og indigólitur blár. En sumt eldra fólk gerði
á þeim eingan mun, aðeins blár litur, þó raunverulega væri um svart að
ræða. DÖkkklætt fólk var kallað bláklætt, samanber blámaður=svertingi.
Mest notaðir innlendir litir voru: mosalitur, en hann var fenginn
úr skóf, sem vex sumsstaðar í klettum, en þó oftar í stórgrýttum urðum.
Er fallega móbrúnn. Mjög notaður á sokka. Sortulitur er búinn
til með því að sjóða saman blöð af sortulyngi og sortu, en hún fæst í botninum
á alldjúpum pyttum, nefndir sortupyttir. Hefur þarna verkað saman barkandi
efni úr lynginu og járnsambönd og máske fleirri efni í sortunni. Grænn
litur fékkst með því að sverfa eða klippa niður eir og kopar ofan í kúahland,
en lítið mun sá litur hafa verið notaður. Álún þótti festa lit á
ull og bandi. En ekki vissi ég hvernig það var notað.
p5
Spjaldvefnaði kann
ég ekki að lýsa. Að vísu sá ég í æsku gamla konu vefa, að því líkt
telja má slíkan vefnað. Hún óf sokkabönd, axlabönd. Fyrir brön mittislinda
osfrv., en þetta voru mjóir renningar varla meir en 3-4 cm. á breiddina.
Uppistaðan var dregin gegnum göt á stinnum spjöldum, sem ekki voru
stærri en svo sem hálft spil. Hún brá lykkjunni ofan fyrir tána og
stóð á, en hélt á móti með vinstri hendi. Ívafið var undið upp á
prjón, en skilið gert með því að snúa spjöldunum og ívafinu þrýst að með
mjög þunnri spýtu eða jafnvel hnífsbakka. Mér er ljóst að á þessarri
lýsingu er lítið og raunar ekkert að græða, því ekki yrði spjaldofið eftir
henni. En á þeim aldursárum var ég ekki athugull á það sem fyrir
augun bar, síst á það, er mér fannst aðeins tilheyra kvenfólki eða jafnvel
kerlingum einum. Og kann ég ekki annað frá þessari vefnaðargerð að
segja og má vel vera hún sé týnd með öllu, og líklega aldrei verið algeng.
p6
Um þær gerðir vefnaðar,
sem nefndar eru Salún, glitvefnaður, krossvefnaður eða flos, kann ég ekki
neitt frá að segja. Orðið "fótvefnaður" hefi ég ekki heyrt
sem að vísu sannar ekki neitt. Orðin brekán og ábreiða virtust mér
tákna nákvæmlega sama hlut, þ.e. yfirbreiðslu á svefnrúm. En síðar
er farið að tala um rúmteppi, sem er kannske komið úr dönsku, enda sjaldnast
heimaunnið. Gjarðir, þ.e. reiðgjarðir, klifbergjarðir, vissi ég
ekki til að ofnar væru á vefstól. Efni í þær var venjulega allskonar
úrgangsull, tog, kviðarull, illhærur og garðaló. Þetta efni var samkembt
í togkömbum, síðan lyppað í höndum og snúið upp á eða spunnið á halasnældu.
Tvinnað og bandið síðan rakið niður í þá lengd að fullgerð væri reiðgjörðin,
hálf önnur alin, en klifberagjörð ein alin. Gjörðin var brugðin,
þ.e. einskonar vefnaður. Skil var gert með þumalfingri inn í miðju
á rakningnum, ysti þráður dreginn í gegnum skilið, og færðist sá þráður
yfir á hinn helminginn. Svo var farið eins að hinu megin, og þannig
áfram uns lokið var. Stundum voru mislitir þræðir á jöðrum þegar
byrjað var. Komu þá fram oddar.
p7
Hrosshár var að mestu
notað til reipagerðar, síðar varð það söluvara. Taglhárið, sem oftast
var langt var táið sundur með fingrunum. Faxhárið kembt í aflóga
ullarkömbum. Kembingin eða táingin var látin falla í hrúgu fyrir
fótum mannsins. Þegar hrúgun þótti hæfilega stór var hún vafin í
vindil. Spunnið þannig að bor á skafti var stungið gegnum miðjan
vindilinn, fest á rúmbrík. Spunamaður kom svo með halasnældu festi
krók hennar í enda vindilsins og lyppaði fram úr vindlinum með vinstri
hendi, en snéri upp á með því að velta snældunni í hægri hönd. Þegar
þannig hafði verið snúið upp á hæfilega langan enda, var honum vafið um
snælduhalann, og síðan haldið áfram. Hrosshársband var ætíð tvinnað.
Til var að hrosshár væri spunnið á rokk. Hrosshár var notað
í þvögur, en ekki vissi ég hvernig þær voru tilbúnar. Ég heyrði og
talað um að skyrsíur úr taglhári, og veit ekki um aðferðina að búa þær
til Þvögurnar voru einkum notaðar við þvott á tréílátum, ókostur
var að hár losnuðu úr þeim. Ekki vissi ég til að ull og hrosshár
væri kembt saman. Hundshár held ég enginn hafi notað.
p8
Skólar, námskeið:
Sumir kvennaskólar hafa mjög góða kennslu í vefnaði. Ég hefi
séð stúlkur koma með fagra muni sem þær höfðu unnið og ofið þar, jafnvel
vandasaman myndvefnað. En þar með var sagan öll. Mjög fáar
stúlkur og engin sem ég þekki, hefir haft aðstöðu til þess að eignast vefstól,
né tækifæri og tíma til að stunda og nota þessa kunnáttu. Námskeið í vefnaði
munu vera fátíð, sú þau annars til. Nauðsyn krafði þess áður að vefnaður
væri stundaður. Og þó þröngar væru baðstofurnar mátti í ótrúlega
mörgum sjá vefstól á miðju gólfi, þegar kom fram á útmánuði, enda kunnu
þá margir að vefa. Þetta tók að breytast úr aldamótum. Tekið
var að senda ull til vinnslu í voðir, í norskar ullar verksmiðjur, sem
einnig tóku ullartuskur. En brátt tóku íslenskar verksmiðjur við
þessu hlutverki. Kembing ullar lagðist niður. Ullin var unnin
í lopa í verksmiðjum. Rokkar lögðust niður, en handspunavélar komu
í þeirra stað. Nú eru þær nálega horfnar, en ullin unnin í band í
verksmiðjum eða bandið keypt eftir hendinni. Ullarvinnan er horfin
úr sveitum, nema ef prjónaðir eru hálfsokkar og lopapeysur.
p9
Þegar ég nú lít yfir
spurningaskrá þjóðháttaskráningar Þjóðminjasafnsins nr. 18, og ber saman
við svör þau, er ég hefi fest á pappír, verður mér alltof vel ljóst hve
ofurlitlu er svarað af því sem spurt er um. Í svörunum er raunar
ekki annað en það sem allir vita, en flestum ósvarað. Þarf ég því
mjög á því að halda að forráðamönnum þessarar starfsemi líti viðleitni
mína að svara spurningunum sömu velvildaraugum og hin önnur svör mín við
spurningum, sem mér hafa áður verið sendar, og ég leitast við að svara.
En að þessu sinni er svörunum svo áfátt, að telja má nálega sem ósvarað.
Orsökin er einkum sú að starfsgreinin, sem hér um ræðir, er að því
segja má, utan við æfistarf mitt, er teljast verður landbúnaður. Vefnað
sá ég í æsku, en lærði ekki, og eftir að ég komst verulega til vits og
ára var hann nálega horfinn með öllu úr þeim sveitum, þar sem ég var kunnugur.
Er þetta m.a. orsökin að fáfræði minni á þessu efni. Orðlengi
ekki meira um þetta.
Nr. 6237
p1
Ull og tóvinna 4. Gamlir tímar: Fyrst er ég man, þá lítil stelpa í foreldrahúsum, er heimafólk sat við ullarvinnu frá veturnóttum til útmánaða. Þrátt fyrir léleg ljósfæri og þröngan húsakost. Við skulum skyggnast inn í þessar litlu lágreystu baðstofur í íslenskum sveitum um aldamót. Kannske að lítið ljós beri daufa birtu um stofu, þar sem fólkið sat við vinnu. Í stofu þeirri sat allt heimilisfólkið með ullarlagð milli handa sér, táði og tók af tog. Það er ullin af kindunum, sem fyrst kemur til greina, áður en vefstóll er sleginn. Áður fyrr var ullin mikið notið í föt á fólkið. Hún var besti hitagjafinn í vetrarkuldanum. Man ég skammdegiskvöldin heima, þegar búið var að klinka vel aftur bæjardyrum og vita að allar skepnur voru innandyra, bæði í fjósi og fjárhúsi, jótrandi angandi töðugrasið. Mér leið þá notalega vel, þegar ég fann öryggiskenndina og hlustaði á mjúkt rokkhljóðið, er mamma sat á rúmi sínu við lítinn austurglugga baðstofu, og leiðbeindi okkur, jafnframt í lestri og reikningi. Þar sem við sátum með svörtu spjöldin okkar og grifflana. Breytt var fyrir glugga, þá vorum við ekki vör við þó úti ríkti frost og hríðarharka. Mikil ábyrgð hvíldi á húsmóðurinni, sem þurfti að sjá um að dagleg störf færu eftir settum reglum, svo ekki yrðu árekstrar með vinnubrögðin. Mörg voru verkin og fábrotin hjálpartæki þeirra tíma. Eftir mjaltir og umbúning rúma, var gengið til sængurs við mjúk heimaofin sængurver og lök. Við lásum kvöldbænirnar uns svefninn lokaði brá.
p2
Að setja upp vef: Þegar setja á upp vef, skal byrja á því að ákveða breidd og vörpu voðarinnar, sem merkir hve þétt hún á að vera, og reikna út í skeið. Er þá skeiðin rakin eftir því, og talið hve marga reyra hún hefir í 10 cm. Gerum ráð fyrir að setja upp handklæðavef, sem á að vera 20 cm. á breidd, og voðin sé hæfilega þétt með því að nota skeið, sem hefir 100 reyra á 10 cm. og 2 þræði í reyr. En til þess að fá vitneskju um hve margir þræðir verðií voðinni eru reyrafjöldin á 10 cm. margfaldaðar með tugatölunni í breiddinni. Það eru 100.7=700.2=1400, af því 2 þræðir eiga að vera í hverjum reyr, verða 14400 í þessarri voð. Þetta er aðalreglan við að reikna út í skeið, sem kallað er. Ég styðst lítillega við uppskrift dóttur minnar frá kvennaskóla. Að rekja vef: Til þess er stór tré rakgrind notuð, sem tekur mikið pláss, og er þetta mikill vandi, svo vel fari. Mældur er jafnlangur þráður og slangan á að vera löng, og er hann lagður með jöfnu millibili á rakgrindina. Sé rakið af 2 má gera það úr hespunum, en sé rakið af 4 verður að gera það af snældum. Jafnóðum og rakið er, er spotta brugðið á milli hverra 5 eða 10 lykkja, svo hægara sé að telja á slöngunni.
Mjög er áríðandi að skilin haldist hrein. Ég kann alls ekki að setja upp vef, því oftast eru fleirri hjálparhendur við það vandaverk.
p3
Ull og tóvinna: Mörg falleg flík hefur verið unnin úr ull af sauðkindinni, sem víða er þekkt og metin. Því miður er ullinni nú til dags ekki sýndur sá sómi sem í gamla daga. Áður fyrr klæddist fólk aðallega ulalrfötum, annað var ekki fyrir hendi. Því miður er ég hrædd um að ég sé lítt fær um að fræða aðra um þetta dýrmæta efni, sem hefir verið skjól fólks í þúsundir ára. Vefnaður: Vefnaður hefir verið fluttur til Íslands frá Noregi býst ég við, þegar landnámsmenn komu til Íslands. Það má sjá í fornbókmenntum. Nöfn fengu voðir, að sjálfsögðu, eftir notkun hvers og eins. Það yrði langt mál að sortera öll þau orð. Allt var þetta mælt og vigtað eftir vissum reglum. Venjulega 3 álnir lengd á ábreiðu rúma (brekán), og undirlök (rekkjuvoð). Ofið var í fleirri ábreiðuf af sömu sort. Brekán uppistaða, ull-tog venjulega svört og rauð með skáröndum, og 3-4 rauðum bekkjum á endum. Stundum var lagður litaður úr ullinni. Mörg voru þau rúm,sem fólkið svaf í 2 og 2 í sama rúmi, án undantekningar gamals fólks. Einskefta: Einskefta er talin mjög sterkur vefnaður vegna þess, að uppistaða og ívaf binst þar á óbrotinn hátt, því þráður ívafsins er til skiftis ygir og undir einn uppistöðuþráð. Bindingin er því þétt. Einskeftuafbrigði er brekánsvend. Vígindin á voðinni fara eftir því hvernig þessir þræðir bindast saman. Varp, merkir þéttleika voðar eða uppistöðuvaðmál.
p4
Oftast var notuð einskefta í ýmsa dúka og teppi, sængurver og marga fatadúka í fleirri litum. Mest voru þó sauðalitir notaðir nú er bæði band og allavega garn haft í mottur, renning og ótal fleirri stykkil. Litum var raðað niður eftir smekk hvers og eins. Móðir mín óf einskeftudúka og sendi til Akureyrar í litun og pressun. Einnig var sett í vefinn mislitt band, bæði þráð og ívaf. Það er afar erfitt að lýsa öllum þeim margbrotnu aðferðum, sem til heyra vefnaði. Það er aðeins fært þaulæfðum og lærðum vefara. Ég hefi lítið átt við vefnað. Óf þó ögn á Blönduósskóla 1923. Þar kenndi Kristjana Péturs vefnað um tíma. Ekki lærði ég þó að setja til vef. Gaman þótti mér að vefa, og hefði fegin viljað læra þá list, en það voru í Kelduhverfi ýmsir eldri menn, sem ófu fyrir mörg heimili, er ég fyrst man. Dóttir mín lærði vefnað, bæði í kvennaskóla og eins heilan vetur á námskeiði í Reykjavík. Hún leiðbeindi konum hér, að setja upp vefi. Þá hafði ég öðrum hnöppum að hneppa of fylgdist ekki lengur með í þeirri grein. Einskeftuvefnaður er einfaldur og einna vandaminnstur, því mest notaður við vefnað almennt. Það er afar flókið að setja upp vef. Skil ég varla hvernig hægt var að koma því við í litlum og lágreistum baðstofum, innan um margt fólk, börn og gamalmenni. Sagt er að neyðin kenni naktri konu að spynna. Nú væri nauðsynlegt að taka á ný upp vefnað, svo fólk þyrfti ekki að vera atvinnulaust. Lesið vefnaðarbók Sigrúnar Blöndal.
p5
Vaðmál: Vaðmál er, eða var, mjög algengur heima. Hann einkenndist á því að skálínur liggja eftir voðinni, vegna þess að hver þráður byrjar að bindast einu fyrirdragi fyrr eða síðar, en sá næsti á undan. Að öðru leyti vefast allir þræðirnir í einu bindingsmunstri á sama hátt að hver ívafsþráður liggur yfir og undir jafnmarga uppistöðuþræði. Venjulega er vaðmál eins báðu megin. Þessi vefnaður nefndist að mig minnir fata- eða klæðisvefnaður. Ég man eftir því að mamma óf þennan vefnað í ýmsan fatnað fyrir mörgum árum og saumaði sjálf allan fatnað. Hún lærði fatasaum í Reykjavík, þá ung að árum. Klæðavefnaður, veipa: Heima hjá foreldrum mínum, var talað um ýmiskonar ullardúka, bæði á pilta og stúlkur, peysufatadúkar, jakkafatadúkar, sem oftast voru sendir til Akureyrar í litun og pressun. Einu sinni á barnsárum mínum, man ég, að móðir mín vandaði sig mjög að spinna fallegt þelband, sem hún svo sjálf óf úr fatadúk, sem litaður var á Akureyri. Svo saumaði hún jakkaföt úr dúkunum á pabba. Föt þessi þóttu mjög falleg og fékk mamma hrós fyrir. Undirlök uppistaða tvistur, ívaf einfalt band. Kona ein Matthildur að nafni í Garði í Aðaldal, var fræg fyrir jurtaliti sína, sem enn eru notaðir í vefnaði í kvennaskólum.
p6
Hringvefnaður: Hringvefnaður var ekki algengur heim, held helst varla þekktur nema af lestri bóka. Hægt er að breyta þar til með ýmsu móti. Algengastar eru 4-6-8 skafta gerðin nr. 107, 108, 109, 111. Handklæða uppistaða óbleikur tvistur 2.20 - ívaf hör n.m. 16. Breidd 60 cm. Skeið 75 tennur á 10 cm. 1 þráður í hafaldi, 2 í tönn. Rakið: 76.60:10.2 - 912 þræðir. Oddavefnaður: Í bókum hefi ég séð að oddavefnaður sé leiddur af vaðmálsvefnaði, á þann hátt að breitt er um stefnu skilanna þannig, að þau fara í gangstæða átt og mynda odd, þar sem línurnar mætast. Þetta má ýmist gera með inndrætti eða stigi. Annars ófróð um oddavefnað.
Ormelsdúkur: Ormelsdúka vefnaður er þriðja frumbindingin. Hann er sléttur og áferða fallegri en annar vefnaður. Kemur það til af því, að hver uppistaða og ívafsþráður í einu bindingsmunstri bindst aðeins einu sinni. Bindingspunktunum er dreyft á reglubundinn hátt yfir allt bindingsmunstrið. Hver þráður liggur yfir marga aðra, svo vefurinn verður þéttari og gengur því betur. Dúkurinn verður líka sléttari og gljáandi. Allavega breytilegur, mér lítið þekktur, margskefta ýmist notuð, buxna og dúkaefni.
p7
Salún: Salún er hin eina af þessum vefnaðartegundum, er náð hefur verulegri útbreiðslu hér á landi. Mikið ofið, aðallega á suðurlandi, þar sem móðir mín ólst upp. Sá vefnaður var mikið notaður í ábreiður, sem sennilega hafa útrýmt brekánunum, sem ávallt voru þykk og þung. Ekki er vitað hvernig stendur á salún nafninu. Annarsstaðar á Norðurlöndum hefir þessi vefnaður önnur heiti. Það eru margar gerðir af salúnvefnaði, er allar má rekja til tvíkaflaðra dregilsmunstra. En talið er að hið upprunalega munstur sé hið svokallaða salúnsrós. Salún er ofið á 4 sköftum, eru því 2 sköft í hvorum kafla munstursins, fyrsta og annað skaft fyrir einn kafla og þriðja og fjórða skaft fyrir 2 kafla. Inndrátturinn er beinn á hvorum kafla fyrir sig. Gaman að bregða rósamunstri í kafla. Salún er bæði fallegur og fljótofinn. Hentugur til margs, s.s. ábreiður, gluggatjöld, borðdúka, húsgagnafóður ofl. Salúnsmunstur eru mjög smekkleg. Því miður er lítið gert af því að vefa hér í sveit nú til dags. Það eru mörg ár síðan námskeið í vefnaði voru höfð hér. Nú eru þær konur horfnar á braut, því óðum fækkar fólki í sveitum landsins. Enn er þó hægt að treysta á að kvennaskólar landsins sjái um að vefnaður ekki gleymist. Ein kona í N-Þingeyjarsýslu óf heil gólfteppi og balderaði fína borða. Hún er nú látin fyrir mörgum árum.
p8
Brekán: Brekán eða rúmteppi (ábreiður) voru þau nefnd. Efnið tvinnað, ýmist band eða tog, bæði í uppistöðu og ívaf, einskefta. Skáröndótt, heima rauð og svört. Skytta var notuð. Þetta var sterkur vefnaður. Hannes Hallgrímsson í Kelduneskoti var góður vefari. Það eru nú orðin æði mörg ár síðan hætt var að nota brekán, enda flest, ef ekki öll rúm horfin og gleymd. Nú sofa þó hjón saman í breiðum básum.
Ekki veit ég annað, en öll slitin brekán hafi hafnað í ruslatunnum, sem víða eru til. Glitvefnaður: Uppistaða og ívaf brúnt eða svart, fjórþætt kambgarn. Skeið 50 reyrar á 10 cm. Einn þráður í hafaldi og einn í reyrvafi, sem ofinn er í þessarri uppistöðu er hæfilega þéttur, bæði fyrir krosssaum og glitsaum. Mikið ofinn í kvennaskólum. Krossvefnaður: Svipaður brekánsvefnaði. Hafaldagarn eða grófur togþráður, skeið 9/12 eða 9/16, 30 til 38 tennur í 10 cm. 1 þráður í hafald, 1 þráður í tönn. Flos - mottur: Uppistaða netagarn og ívaf band í flosið, þarf kambgarn. Skeið 30 reyra í 10 cm. Ofnir 7 þræðir á milli hnútanna.
p9
Námskeið, skólar: Vefnaðarnámskeið voru hér í Kelduhverfi, sem kvenfélagið sá um. Var þá fengin stúlka til að leiðbeina í þeirri grein. Það eru nú mörg ár síðan. Aðallega var þar ofið úr tuskum mottur. Ekki tók ég þátt í því. Enda hefi ég aldrei kunnað að meta þann vefnað. Tuskumottur safna í sig ryki og þvælast fyrir á gólfum. Dætur mínar fóru í kvennaskóla Laugalands, og ófu mörg mjög falleg stykki með ýmsu móti. Þó nú séu húsakynni rúmbetri en í gamla daga, þá eru þau fyllt með fínum mublum og alskyns óþarfa drasli, svo vefstóll ætti þar ekki heima. Að vísu mætti vefa í auðum fjósum, þar sem búið er að fjarlægja blessaðar kýrnar. Satt að segja er ég alls ekki fær um að lýsa vefnaði, og kann mjög lítið þar að lútandi, þó ögn ég hafi ofið á yngri árum og löngu gleymt.
Verð ég því að biðjast afsökunnar á fáfræði minni. Vefnaður er afar margbrotinn og vandasamur, og þarf langan tíma til að læra hann og nákvæma eftirtekt. Jurtalitir (innlendir): Birkilauf, rauðviðarlauf, einiberjalyng, sortulyng, mosi, tröllasúra, gulmaðra, haugarfi, smári, brunarót, beytilyng, krækiberjalyng, heimanjóli, hreindýramosi, birkibörkur, maríustakkur, túnsóley, ranfang, hvítmaðra.
p10
Gjarðir: Það hefi ég heyrt, að gjarðir væru ýmist ofnar eða brugðnar úr hrosshári, og eins reipi. Þó ég sæi það ekki gert, þá man ég þessar sterku gjarðir við öll venjuleg reiðtygi. Mér virtist þetta efni allra líkast þykkum striga. það var kallað að slá til vef, þegar slegið er með slagslánni, þétt að munstrinu um leið og skyttunni er rennt eftir skilum, og eins á eftir. Ég hefi hvergi séð aðferð gjarða. Gæti þó trúað að vefnaður gjarða sé svipaður brekánsvoð eða gólfmottuvoð eða hærupokavoð, sem mikið voru notaðir um land allt í gamla daga.
Hærupoki: Uppistaða og ívaf tvinnaður togþráður. Skeið 20-30 tennur á 10 cm. 1 þráður í hafald 2 í tönn. Aldrei var hundshár notað heima.
Í gamalli Hlín, las ég hve mikið einyrkja, fátækur bóndi í S-Þingeyjarsýslu hafði ofið í hjáverkum sínum. Hann fæddist 25. júní 1869. Á sama bænum átti hann heima í 60 ár. 40 ár bjó hann sem eigin bóndi. Frásögn hans, hve mikið hann óf, fer hér á eftir. Vaðmál, rúmábreiður, undirsængurveraefni úr tvisti 3500 m. Af þráðardúk, mislitum og hvítum með breyttum vefnaði og vormeldúr úr ull 2500 m. Af handklæðum og borðrenningum og hálstreflum ofl. 500 m. Af bekk- og rúmábreiðum af ýmsum gerðum 300 m. Af gluggatjöldum og borðdúkum 200 m. Auk þess nokkur hundruð metrum af gjarðaborðum. Vefnað lærði hann hjá móður sinni. Þegar hann var hálf sjötugur, þá loks brá hann sér á vefnaðarnámskeið. Ennfremur leiðbeindi þessi starfandi bóndi, byrjendum í vefnaði. Seinna var hann kjörinn heiðursfélagi í Heimilisiðnaðarfélagi Norðurlands í viðurkenningarskyni fyrir framúrskarandi afköst í vefnaði, segir í Hlín. Þarna sést að gjarðar hafa verið ofnar í gamla daga. Það er gaman að spreyta sig á vandasömum spurningum, og hefi ég lært þó nokkuð af þeim og þakka ég ykkur vel fyrir, að endast til þess að senda mér þessi blöð, án lítils árangurs fyrir ykkur. Ekkert er mér eins ljúft, sem að rifja upp æskuatvik mín í föðurgarði. Þó meira ég gæti unað mér undir berum himni þegar vorið kom í allri sinni dýrð og hólmar Víkingavatns fylltust af syngjandi samsöng fugla, sem streyttu flug sitt frá fjarlægum ströndum heim á íslenska fold. Góð kveðja frá Guðnýju.
Nr.1532
p1
Ull og tóvinna 4.
Af voðum þeim, sem spurt er um í þessarri skrá, þekki ég aðeins
3 gerðir, þ.e. vaðmál, einskeftu og klæðisvend. Orðið klæðisvend
var í þessu tilfelli notað bæði sem lýsingarorð og nafnorð. Hver
um sig þessarra voða getur verið úr eintómri ull (alullarvoð), eintómu
vefjargarni eða vefjargarni og ull. Var garnið þá venjulega haft
í uppistöðuna, en ullin í fyrirvafið. Efni voðar segir ekkert til
um það hverskonar voð þetta er. Vendin sker algjörlega úr um það.
Hinsvegar voru voðir, einkum vaðmál, stundum kenndar við efnið, sem
í þeim var eða í hvað þær voru ætlaðar. T.d. þelvaðmál, sem unnið
var úr tómu þeli, og ætlað í spariföt kvenna og karla, og þá oft kölluð
sparifatavaðmál. Oftast voru þau unnin úr hvítu ullarþeli, vaðmálið hellulitað
áður en saumað var úr því. Togvaðmál var kallað vaðmál, sem að mestu
eða öllu var unnið úr togi, haft í hversdagsföt karla, venjulega grá- eða
móleitt að lit, oftast var bæði þráður og fyrirvaf tvinnað (tvöfalt), og
fyrir kom að annar þátturinn var hvítur, hinn svartur. Sá litur var
kallaður sprengt eða sprengdur. Þá voru vaðmál unnin úr ull upp með
öllu saman, eins og það var orðað (óofanaftekinni ull), sem höfð voru í
undirrekkvoðir, hversdagsföt kvenna og nærföt karla. Rekkvoðirnar
voru hvítar, kvenfötin sauðsvört eða lituð svört, karlnærföt grá, annaðhvort
sauðgrá eða indigólituð ull kembd saman við hvíta ull. Kvenfólk var
í prjónuðum nærfötum. Í yfirrekkvoðir var garn haft í uppistöðu,
ull í fyrirvaf, og ýmist haft vaðmál eða einskefta. Eftir að farið
var að vefa garn í garn, eins og það var kallað, þegar vefjargarn var bæði
í uppistöðu og fyrirvafi, var það oft haft í yfirrekkvoðir, en þá voru
það ekki lengur kallaðar rekkvoðir heldur
p2
lök. Þá var
garn í garn og haft í milliskyrtur, oftast annaðhvort röndótt eða brúnt
á lit. Sjálfsagt hefur garn í garn verið notað í fleirri flíkur,
þó ekki geti ég munað það með vissu. Röndótt einskefta var
höfð í milliskyrtur, millipils, telpnakjóla, svuntur ofl. Klæðisvend
var einungis ofin úr góðri ull, enda höfð í spariföt karla og kvenna, lituð
dökkum lit. Ekki man ég eftir að ofið væri í segl, tjöld,
poka eða skyrsíur. Ég sá hvorki segl eða tjöld úr öðru efni en striga.
Pokar komu utanum kornmatinn úr kaupstaðnum. Fyrsta skyrsían,
sem ég sá var prjónuð, ég held úr hvítu vorullartogi. Annars var
gisið léreft eða jafi, eftir að hann fór að fást í verslunum, haft í skyrsíur.
Kastpils og kastsvuntur, er svo var kallað, voru saumuð úr
pokum. Annars voru uppgjafaflíkur, sem ekki þóttu hæfar til annars, hafðar
til að vera í við mjaltir og önnur óhreinleg störf. Ekki veit ég
til að gjarðir væru ofnar í vefstað. Þær voru venjulegast brugðnar.
Brugðningu, svo og kembingu og spuna, bæði á hrosshár og togi í gjarðir
og reiptögl, hefi ég áður lýst, man ekki fyrir víst hvort það var í svorum
við spurningaskrá frá Þjóðminjasafninu eða í bréfi til Orðabókar Háskólans.
Hefi lengi verið í bréfasambandi við báðar þessar stofnanir, og man
ekki alltaf hvað ég hefi skrifað hvorri. Spjaldofnum sokkaböndum
man ég eftir. Og einu sinni eða tvisvar sá ég spjaldofið, en hvernig
vefarinn bjó til skilið eða sló vefinn man ég ekki. Ekki er mér kunnugt
um hundshár væri notað til neins. En einn mann þekkti ég. Hann
var á Suðurnesjum,sem lét vinna búkhár af hestum í sjóvettlinga handa sér.
Nr. 5672
p1
Ull og tóvinna 4.
Það hefur dregist að ég svaraði spurningum Þjóðminjasafnsins, sem
mér bárust í hendur í desember sl., ásamt jólakorti, sem ég hér með þakka.
Því miður treysti ég mér ekki til að svara neinu af þeim spurningum,
sem varða vefnað. Hætti mér ekki út á svo hálan ís, þar ég ekkert
til þekki. Hinsvegar sendi ég hér með afklippu af heimaunnu vaðmáli, sem
systir mín óf, en móðir okkar vann í voðina. Pétur Pálsson, Hofi,
Hjaltadal léði vefstólinn og aðstoðaði föður okkar við að rekja í vefinn
og setja hann upp. Mér hefur verið sagt af fólki,sen nú er dáið,
að faðir minn hafi verið listavefari. En vefstóllinn hans eyðilagðist
í eldi 1905. Nú harma ég að hafa ekki haft hugsun á að fræðast af
föður mínum um vefnað. Hann leiðbeindi Önnu systur minni við vefinn.
Hana minnir að hún væri á 16. ári þegar hún óf voðina. Anna
er fædd 1915. Svo það er yfir 5o ár síðan þetta var unnið. Þetta
vaðmál var unnið í nærbuxur á karlmenn. Úr smá afgang sem til var
saumaði ég kot á son minn ungann. Og úr þessu hálfslitna koti er
þessi bót.
Nr. 1490
p1
Ull og tóvinna 4.
Þórður Tómasson! Þekka bréfið og kveðju þjóðminjavarðar.
Sagt hef ég ykkur áður að ég mun hafa verið um 9 ára þegar vefnaður lagðist
niður á heimili foreldra minn. Hafði þá lítinn áhuga á iðninni, og
hef mestu gleymt. Þess vegna verður lítið um ull í mínu geitarhúsi.
Hér var og aðeins einfaldari vefnaður ofinn. Mér skilst að þið hafið
ekki haft dug í ykkur í sumar er leið að skoða refagildruna í Brokey. Það
getur verið hættulegt að draga allt á langinn. Vefnaður hér
var vaðmál og einskefta eða skefta. Vaðmál var ofið frá ystu til
innstu fata. Ytri föt voru yfirleitt lituð, þó stundum samkembd grá.
Þá ekki lituð. Litur var allur tekinn í búð. Misjafnlega
grófar voðir þessar eins og henta þótti til notkunnar. Nærföt voru
öll úr alhvítri ull og hyllst til, að þau væru fíngerð og voðfelld. Konur
voru í heimaunnum nærfötum, skyrtum og svo nefndum nærpilsum og sennilega
buxum. Millipils voru oft í skærum litum og lögð bekkjum og blúndum. Þá
tíðkaðist að konur brytu upp hin þungu ytri pils, er þær lögðu land undir
fót. Það var list að ganga vel frá því að ekki bilaði. Augnayndi
var það samferðafólki að sjá hin litskrúðugu pils "um fæturnar flaxast
og flagga í hálfa stöng".
p2
Stundum var uppistaða
tvistur, en ívafið band. Það mun hafa heitið einskefta. Þertta
mun hafa verið notað í nærföt og yfir rekkvoðir, jóðir. Tvistur
í tvist var ofinn í milliskyrtur, svuntur ofl. Það var úr marglitum
tvisti. Oftast var það rúðótt, sem kallað var. Það er að ferhyrndir
reitir mynduðust innan fjöllitra teina eða randa, sem skárust. Líka
var til að voðin væri aðeins röndótt. Þessum fjöllitu dúkum var vafið,
raðað á spjald, til skrafs og ráðagerða áður en ofið var sýnishorn.
Segl voru úr einskeftu dúk var hér til þegar ég fyrst men eftir. Þau
voru notuð á skipinu, sem svo var kallað. Það var áttæringur. Segl
þessi voru yfirleitt ekki notuð nema í fiskaferðir undir Jökul. Það
voru lengstu ferðirnar, ein á ári. Þess á milli voru seglin geymd
eins og helgur dómur. Vormel - ormeldúka hef ég heyrt nefnda,
veit ekki hvert ég hef séð þá. Salúnsábreiður voru hér yfir rúmum. Þær
munu hafa verið nokkuð dýrar og ekki var allra að setja til þann vef né
vefa hann. Enn er bér til ein slík ábreiða, marglit og flókið verk. Mér
finnst hún falleg en treysti mér ekki til að lýsa henni.
Brekán munu að mestu hafa verið unnin úr togi. Þau voru oft rúðótt.
Oftast sauðalitir. Sennilega einskefta. Slagborð, skeið og
skyttur voru notaðar hér við allan vefnað.
p3
Fótvefnað sá ég gamla
konu grípa í, þegar hún hafði stund til. Hún brá því á fót sér, að
öðru leyti virtist mér hún hafa allt vefjarverkið í höndunum. Ég
hnýstist aldrei í það. Þetta var með mörgum sterkum litum. Virtist
eiga að vera lindi, mittisband, belti. Gjarðarvefnaður. Hér
í sveit dvaldi eitt ár fyrir um 40 árum maður, sem óf eða reið söðul og
reiðingsgjarðir. Þær vöktu eftirtekt fyrir fjölbreytni og vandvirkni.
Maðurinn hefur átt heima í Staðarsveit, mig minnir á Brekku eða Fossi.
Hann hét Sveinn. Ef þið hafið áhuga á þessu væri leitandi þangað.
Kannske er maðurinn dáinn, en það kynnu að vera aðrir sem kynnu iðnina.
Það er borin von, að mér verði send fleirri plögg af þessu
tagi. Ég er nú við háan aldur og heilsan ótrygg. Þakka viðskiftin.
Hef haft gaman af þeim. Kær kveðja Jónas Jóhannsson.
Nr. 6143
p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður: Vefnaði var gefið nafn eftir vend, og til hvers
voðin átti að notast. Salúnsvoð var aðeins notuð í rúmábreiður, í
setur á stóla og önnur húsgögn (t.d. á púff). Salúnsvoðin, sem átti
að verða í yfirbreiðslu á rúm, var ofin úr tvinnuðu bandi, venjulega voru
þessi teppi nefnd brekán. Voru þau margbreytileg að lit.
Einskefta var notuð í rekkjuvoðir og koddaver, alltaf einlit, hvít voð,
en ofið með röndum í ýmsan fatnað t.d. millipils, svuntur og milliskyrtur.
Uppistaðan var ýmist ullarþráður eða tvistur, ívafið þráður eða bómullargarn.
Voðin sem átti að notast í nærföt var úr þeli, bæði uppistaða og
ívaf. Með vaðmálsvend var voð, sem nota átti í ytri fatnað,
alltaf úr alull. Stundum var hvíta vaðmálið sent í ullarverksmiðju til
litunar, svart ef það átti að nota í viðhafnarföt. Oft var hellulitað
heima. Í barnaföt var stundum litað heima, bæði mosalitað og blátt
með indigólit.
p2
Karlmannaföt voru
oftast með sauðarlit. Vormeldúkur, líka ofinn heima, var
notaður í karlmannaföt og yfirhafnir, var mjög þéttofinn og sterkur. Spjaldvefnaður
var notaður í axlabönd, sokkabönd ofl. Þetta sá ég ekki gjört, en
sokkabönd átti ég, sem voru ofin úr togþræði, jurtalituðum gult, rautt
og svart, orðin á annað hundrað ára gömul, mjög fallega unnin.
Gjarðir voru brugðnar (ekki ofnar) ýmist úr hrosshári eða togi. Þráðurinn
spunninn á snældu. Sylgjan var saumuð á endana á gjörðinni með leðurbót,
saumað með seymi eða seglgarni.
Nr. 1547
p1
Ull og tóvinna 14.
Vefnaður: Ég gat þess í upphafi að það litla, sem ég gæti
sagt um vefnað væri frá uppvaxtarárum mínum á Héraði. Faðir minn
átti vefstól og það helsta, sem honum fylgdi, eins og t.d. balbínur, rakgrind,
vefjarskeið ofl. Óf hann eitthvað flesta vetur frá því að ég man
eftir mér og þangað til foreldrar mínir fluttu frá Refsmýri 1907. Þessi
vefstóll föður míns var af þeirri gerð að fram- og afturrifur, sem líka
var kallaður "bóma" voru á sömu hæð, höföld voru 4 og skammel
4. Ég sá líka aðra gerð frábrugðna að því leyti, að bóman var nokkuð
hærra uppi en framrifur. Það var málvenja á Héraði á þessum árum,
að talað var um að festa upp vef, vefa af kappi og loks að fella vefinn.
Það var þegar skilsköftin voru komin svo nærri höföldunum, að ekki
var unnt að vefa meira, jafnvel þó fremra skaftið væri tekið burt. Þegar
svo var komið, var vefurinn skorinn niður, undinn upp og kallaðist vefjarstrangi.
p2
Þér spyrjið á bls.
1. Var voðunum gefið nafn eftir því til hvers átti að nota þær, án
tillits til vefnaðarvendar. Ég get þess til gamans, að þetta orð
heyrði ég aldrei meðan ég var á Héraði. Þóttist ég vita að það væri
sama orðið og vígindi, sem þar var notað um vefnaðargerð. Síðar sá
ég að samkvæmt stafsetningaorðabók Freysteins Gunnarssonar, er það svo,
að orðin vefnaðarvend og vígindi merkja það sama. Hinu svara ég játandi,
að eftir málvenju á Héraði var voðunum gefið nafn eftir því til hvers átti
að nota þær, t.d. skyrtudúkur, buxnaefni osfrv. Ekki er lengi
gert að telja þær vefnaðargerðir, sem ég heyrði talað um á unglingsárum
mínum. Þær voru einskefta, vaðmál, klæðisvefnaður, vormeldúkur og
salúnsvefnaður. Hér skrifað eftir framburði, eins og hann var á Héraði
á fyrstu 2-3 áratugum þessarrar aldar. Faðir minn var fæddur í Fljótsdal,
og mun hafa lært vefnað af eldri samtímamönnum þar. Veit ég ekki
til að hann fengi sérstaka kennslu
p3
í þeirri iðn.
Hann byrjaði búskap í Refsmýri í Fellum og stundaði talsvert vefnað
á vetrum meðan hann bjó þar, eins og áður segir. Hann óf langmest
vaðmál og einskeftu og nokkuð klæðisvefnað. Fjölbreytnin var ekki
meiri en það. Ég reyni ekki að lýsa vígindum á vaðmáli og einskeftu.
Geri ég ráð fyrir að þau hafi allsstaðar verið eins. Einfaldasti
vefnaður sem til er, er einskefta, segir frú Sigrún Blöndal í vefnaðarbók
sinni, ef ég man rétt. Ekki man ég lengur hvort eins var
krækt upp, þegar ofin var einskefta og vaðmál, þ.e. hvort höföld og skammel
voru tengd á sama hátt. Hitt man ég, að þegar ofin var einskefta,
þá hreyfði vefarinn báða fætur og sló 2 högg með skeiðarhaldinu við hvert
fyrirdrag. Hann stóð annaðhvort á báðum jaðarskammelum eða á báðum
miðskammelum, þegar hann skaut skyttunni. Þegar ofið var vaðmál, hreyfði
vefarinn aðeins annan fótinn, og sló eitt högg
p4
við hvert fyrirdrag
um leið og hann steig á skammelið. Þannig hreyfðist eitt hafald við
hvert fyrirdrag, þegar ofið var vaðmál, en 2 þegar ofin var einskefta.
Talinn var minni vandi að vefa einskeftu en vaðmál. Vefarinn þurfti
aðeins að velja um það frá upphafi, hvort hann vildi standa á jaðarskammelum
eða miðskammelum, þegar hann gerði hlé á verkinu og haga sér samkvæmt því,
þegar hann byrjaði á ný. Þá urðu engin missmíði á vígindum. Vefaranum
reyndist hættara við að misstíga sig þegar ofið var vaðmál. Það varð
að stíga skammelin nákvæmlega rétt. Ef hreyfing hafaldanna ruglaðist,
kom það fram á vígindunum. Þessum fallegu reglubundnu skálínum, sem
allir geta séð á vel ofnum vaðmálskúkum og eins beggja megin.
Satt að segja eru vígindin á klæðisvefnaði ekki vel ljós í huga mínum.
Þykist ég muna að þessi vefnaðargerð var lík vaðmáli, en frábrugðin að
því leyti að vígindin voru ekki eins beggja megin.
p5
Eins og áður segir
heyrði ég nefnda vefnaðargerðina vormeldúk í æsku minni á Héraði. Er
þetta vafalaust sami vefnaðurinn, sem á spurningablaðinu kallast ormeldúkur.
Ég hygg að faðir minn hafi ekki kunnað að vefa hann. Minnist
ég þess ekki heldur að ég sæi hann ofinn af öðrum. Einhvern veginn
fékk ég þá hugmynd á þessum árum að það þyrfti mikinn lærdóm og listfengi
til þess að geta ofið ormeldúk. Hann væri þannig að efra og neðra
borð væri sitt með hvorum vígindum, og oft sitt með hvorum lit. Það
væri á honum rétthverfa og ranghverfa. Ekki man ég hver fræddi mig
um þetta. Í raun og veru er þetta mjög nálægt því rétta. Í vefnaðarbók
frú Sigrúnar Blöndal segir: "Ormeldúksvígindi eru þannig að
heita má að uppistaða og ívaf komi út sitt hvoru megin á voðinni".
Eftirtektarvert er það að frúin skrifar ormeldúkur. Hún var þó alin
upp á Héraði. En hvað sem því líður, tek ég ekki aftur það sem ég
hef áður sagt um framburðin vormeldúk.
p6
Ég hlýt að verða
fáorður um vaðmálsvefnaðinn. Meðan nærföt voru ofin úr ullarbandi
eingöngu, óf faðir minn að vísu talsvert mikið af vaðmáli margan vetur.
En yfirleitt var frekar lítil tilbreytni í sambandi við það. Reyndar
má segja að alltaf væri gaman að því, þegar var verið að búa sig í að festa
upp vef: að balbína, rekja, bóma, draga í höföld og skeið. Þegar farið
var að vefa gekk þetta allt nokkuð jafnt áfram. Að vísu var dálítið
misjafnt, hvað oft þurfti að bæta. Var það verk okkar krakkanna að
hjálpa til við það. Auk þess var okkar verk að sjá um að spóla. Ullardúkar
úr mislitum sauðarlitum voru frekar sjaldgæfir. Voru það sérstaklega
buxnaefni. Á litlum heimilum þurfti ekki að vefa þá, nema á nokkra
ára fresti. Oftast voru dúkar þessir langröndóttir. Litur svartur,
mórauður, hvítur, grár. Munstur gátu verið misjöfn. Voru hvítu
rendurnar venjulega mjóar.
p7
Ekki óf faðir minn
salúnsvefnað. Man ég aðeins eftir einni konu á Héraði, sem óf þann
vafnað, allt þangað til fór að gæta áhrifa frá húsmæðraskólunum. Hún
hét Margrét Ólafsd., og var frá Syðri-Steinsmýri í V-Skaftafellssýslu.
Man ég ekki hvort það er á Síðu eða í Meðallandi. Veit ég ekki hvenær
hún og Páll maður hennar fluttu austur á Hérað. Margrét var flutt að Krossi
í Fellum til Páls sonar síns og Sólveigar föðursystur minnar áður en við
fórum frá Refsmýri 1907. Á þeim árum kynntist ég henni. Var
hún fyrir sig tóvinnu og vefnað. Var hún jafn mikilvirk við hvort
tveggja. Þetta var þó áður en algengt varð að senda ullina í lopa.
Mesta ánægju hafði Margrét af að vefa. Heyrði ég marga undrast
hve vel henni vannst t.d. þegar hún óf vaðmál eða einskeftu. Var
hún þó dálítið hölt. Mest dáðist ég samt að Margréti af því, að hún
gat ofið salúnsteppi alla vega lit og rósabekki með salúnsvefnaði úr mislitum
tvistdúkum.
p8
Þegar ég les þær
mörgu spurningar, sem á blaðinu standa, finn ég mjög til þess hve fáfróður
ég er um efnið, sem um er spurt. Verða það aðeins fáar einar spurningar,
sem ég svara, og ekki alltaf í þeirri röð, sem þær eru á spurningablaðinu.
Rétt er að geta þess strax, að á þessm árum var aðeins um
tvö efni að ræða til vefnaðar. Var það íslenskt ullarband og útlent
garn. Útlenda garnið kallaðist einu nafni tvistur, eftir málvenju
hér. Hann fékkst venjulega bæði hvítur og mislitur. Af hvíta
tvistinum fengust 2 tegundir, önnur mjallhvít og fín, hin blakkari og grófari.
Misliti tvisturinn fékkst í ýmsum litum, t.d. brúnn og blár, gulur
og rauður. Líklega hefur hann líka fengist grænn, þó ég muni það
ekki. Tvisturinn fékkst í svokölluðum búntum. Voru 10 hespur
í hverju, ef ég man rétt. Langmest var notað af hvíta tvistinum.
Þykist ég mega fullyrða að meira var notað af honum, en öllum mislita
tvistinum samanlagt. Blái liturinn mun hafa verið mest notaður af
þeim mislita.
p9
Þér spyrjið á bls.
1: Var orðið tvistur eða tvistdúkur notað um einskeftu, sem var að öllu
leyti úr útlendu garni? Um það vil ég segja þetta: Stundum
var talað um tvistdúk, ef efnið var eingöngu tvistur, bæði uppistaða og
ívaf. Var það án tillits til litar, víginda eða í hvað voðin átti
að fara. Hitt er svo annað mál, að vígindi tvistdúkanna var venjulega
einskefta. Hvítur tvistur var talsvert notaður í uppistöðu. Gaf það
tilfefni til nokkurrar fjölbreytni. Væri t.d. festur upp 40 álna
langur vefur og kallaður sængurfataefni, var engin nauðsyn að vefa sömu
vígindin allan vefinn á enda. Segjum að í helmingnum af þessum
vef væri ívafið hvítur tvistur og vígindin einskefta. Þetta mátti
nota í sængurver, koddaver og lök, rekkjuvoðir. Ekkert var auðveldara
en skifta um og hafa hinn helminginn af ívafinu úr íslenskri ull. Þá
var um leið breytt um vígindi og ofið vaðmál. Vil ég geta þess hér,
að það var talsvert gert að því á fyrstu 2 áratugum aldarinnar, að blanda
á þennan hátt saman
p10
tvisti og ullarbandi.
Þegar þetta var gert voru alltaf ofin vaðmálsvígindi. Ekki
man ég eftir neinu sérstöku nafni á þessu blendingsvaðmáli. Var það
t.d. notað í undir rekkjuvoðir, þótti hlýlegra en lök úr tvisti eingöngu,
einnig líklega meira í nærföt, nærskyrtur og buxur, einkum á karlmenn og
unglinga. Ekki voru þeir allskostar ánægðir með þetta blendingsvaðmál.
Þótti það ekki eins hlýtt og voðfellt eins og alullardúkarnir. Svona
gekk þetta, þangað til prjónavélarnar komu til sögunnar um 1920. Eftir
fá ár gengu allir í prjónanærfötum. Nú eru flestir orðnir of fínir
til þess.
p11
Mér virðist óhætt
að segja, að mislitir tvistdúkar og einskeftuvígindi fylgdust alltaf að.
Ef átti að vefa mislitan vef, þurfti fyrst að velja liti í uppistöðuna.
Venjulega voru þeir ekki fleirri en 3. Þó litirnir væru ekki
fleirri en þetta var hægt að raða þeim á marga vegu. Hugsum okkur
t.d. hvítan, bláan og rauðan lit. Kom þá til sögunnar að velja munstur.
Áttu rendurnar t.d. að vera jafnbreiðar, eða átti einn liturinn að
vera mest áberandi, og hve margir þræðir áttu að vera í hverri litasamstæðu.
Mátti segja hér að kvöl á sá, sem völ á. Þetta varð að ákveða
áður en byrjað var að rekja. Sá ég konur vefja litina á spýtur eða
spjald, til þess að átta sig á röð litanna. Ekki man ég sögnina að
munstra, en nafnorðið munstur var algengt. Mislitir tvistdúkar voru
notaðir í buxur og blússur handa börnum, milliskyrtur handa drengjum og
fullorðnum, í pils og kjóla handa telpum og í treyjur og svuntur handa
konum á ýmsum aldri.
p12
Þér spyrjið á bls.
7, hvort haldin hafi verið vefnaðarnámskeið í héraðinu á seinni áratugum.
Fer hér á eftir í stuttu máli það, sem ég veit um þetta. Árið
1924 var haldið vefnaðarnámskeið á Vopnafirði. Var það Kvenfélag
Vopnafjarðar, sem átti frumkvæði að því. Eina skriflega heimildin,
sem ég hef fundið um þetta námskeið er frá 1947. Það ár átti félagið
40 ára afmæli. Í fórum félagsins frá þessu ári er stutt yfirlitsgrein
um störf félagsins á liðnum árum, eftir þáverandi formann þess, frú Aagot
Vilhjálmsson. Getur hún þess þar, að félagið hafi m.a. gengist fyrir
áðurnefndu námskeiði 1924. Ekki er þess getið þar hver kenndi á námskeiðinu,
hve lengi það stóð, né hve margir nemendur voru. Aldraðar konur hér í þorpinu
segja mér að kennslukonan hafi heitið Þorbjörg Jónsdóttir, og verið úr
Breiðdal. Ekki hef ég fundið nafn hennar í bókinni Kennaratal á Íslandi.
p13
Ekki veit ég með
vissu nema um eina konu, sem var á þessu námskeiði 1924. Hún hét
Sigþrúður Dóróthea Pálína Steindórsd. Er mér sagt að hún hafi borið
af þeim nemendum, sem námskeiðið sótti, bæði hvað snerti afköst og vandvirkni.
Hefur hún þá verið 21 árs. Ef flett er upp í Kennaratalinu,
viðbætinum bls. 402, er í dálki til hægri á miðri síðu nafnið Ingibjörg
Ólafsdóttir, f. 10. okt. 1926 í Leiðarhöfn í Vopnafirði. Foreldrar
eru Ólafur Albertsson, útvegsbóndi í Leiðarhöfn og kona hans Sigþrúður
D.P. Steindórsd., sem áður var getið. Þessi myndarlega kona með nöfnunum
3, deyr á ungum aldri, því miður aðeins 10 árum eftir að hún er á námskeiðinu
á Vopnafirði. Hún lætur eftir sig 3 börn: Albert, Ingibjörgu og Steindór.
Eftir lát móðurinnar alast þau upp hjá föður sínum og frændfólki
í Leiðarhöfn. Þar eiga þau heima enn. Eins og segir í æviþætti
Ingibjargar hefur hún lokið handavinnu kennaraprófi. (er ógift og barnlaus).
p14
Ég hef átt heima
í Vopnafirði síðan 1924. Mundi ég greinilega að síðan hafa verið
haldin 2 vefnaðarnámskeið, á Hofi og Torfastöðum. Ekki mundi ég hvaða
ár þau voru haldin, né hverjir sóttu þau. Þess vegna sendi ég 3 ágætum
konum eftirfarandi spurningar: 1. Hvaða ár og hve lengi stóð hvort námskeið?
2. Hve margir sóttu hvort þeirra og hverjir voru þeir? 3. Hver heldurðu
að hafi verið mesta nýjung í vefnaði, sem fram kom á hvoru námskeiði? 4.
Heldurðu að þau hafi haft einhver varanleg áhrif og þá hver? Jafnframt
bað ég þessar vinkonur mínar að senda mér vefnaðarsýnishorn handa Þjóðminjasafninu
og skrifaði þeim orðréttan kafla af blaðinu á bls. 1, þar sem vikið er
að þessu. Þær töluðu allar við mig í síma, en engin þeirra taldi
sig hafa neitt undir höndum,sem hægt væri að senda safninu. Aðeins ein
þeirra lagði í að senda skriflega frásögn af námskeiðunum. Var hún
bæði greinargóð og með fallegri rithönd.
p15
Vefnaðarnámskeið
1944. Stúlkan heitir Kristín Runólfsdóttir, Ásbrandsstöðum. Fer
frásögn hennar hér á eftir, orðrétt að heita má. Á Hofi var vefnaðarnámskeið
1944, aprílmánuð. Kennari var Malen Guttormsdóttir frá Ketilsstöðum
í Hjaltastaðaþinghá. Nemendur voru 6, þ.e. þessir: Elín Friðriksdóttir,
Guðrún Sigurjónsdóttir, Rannveig Valdimarsdóttir, Sesselja Ingólfsdóttir,
Stefán Helgason, Þórhallur Jónsson. Þessi stykki voru ofin:
6 Bekkábreiður með salonsvefnaði. 6 Borðrenningar með einskeftu
og ýmsum gerðum af rósabandsbekkjum ofið í. 5 Sessur með samskonar
vefnaði. 1 Veggrefill með samskonar vefnaði, óvíst hve langur. 6
Gluggatjöld með köngulóavef. 6 Baðhandklæði með skeljavefnaði. Blússuefni,
einskefta með röndum. Ég vil geta þess að ég hef ekki fundið
nafn Malenar í bókinni Kennaratal á Íslandi. Ég þykist mega fullyrða
að Malen hafi orðið húsfreyja á Stórabakka í Hróarstungu.
p16
Vefnaðarmámskeið
1952. Í mars og apríl 1952 var vefnaðarnámskeið haldið á Torfastöðum.
Stóð það í 6 vikur. Kennari var Ólöf Þórhallsdóttir. (sjá Kennaratal
á Íslandi 2, bls 40). Nemendur voru 8. Þeir voru þessir: Anna
Sigurðardóttir, Guðlaug Pálsdóttir, Guðlaug Sæmundsdóttir, Gunnsteinn Karlsson,
Halldóra Andrésdóttir, Kristín Runólfsdóttir, Ólöf Helgadóttir, Sigrún
Runólfsdóttir. Þar voru ofin 127 stykki og þau eru: 6 Bekkábreiður
með salonsvefnaði. 2 Veggteppi með krókbragðsvefnaði. 30 Stólsetur
með krókbragðsvefnaði. 20 Borðreflar, 14 púðar, einskefta með ýsmum
gerðum af rósabandsbekkjum, handofnum skýjafarsbekkjum, glitvefnaði og
knúppavefnaði. 3 Kaffidúkar með dalavefnaði. 17 Bakkadúkar
með salonsvefnaði. 14 Gluggatjöld, einskefta með rósabandsbekkjum.
18 Handklæði með vöfluvefnaði. 1 stk jafi 2,70m. 1 Gólfdregill 7
m. og 1 m motta í Hofskirkju.
p17
Þess skal getið hér
að Kristín Runólfsdóttir var á námskeiðinu á Torfastöðum, en ekki á Hofi.
Hún segir líka þetta að lokum: "Mér er ekki vel kunnugt
um námskeiðið á Hofi. Ekki veit ég hvað hefur þótt mesta nýjung í
vefnaði á námskeiðinu hjá okkur. Mér finnst yfirleitt þykja mest
varið í þennan elsta vefnað. Námskeiðin höfðu talsvert varanleg áhrif.
Við sem vorum á Torfastöðum gátum öll sett upp vef á eftir og bjargað okkur
við að vefa".
p18
Hvar eru nemendurnir?
Þegar námskeiðin voru haldin á Hofi og Torfastöðum voru nemendurnir
allt ungt fólk, aðeins ein gift kona. Allt átti það heima hér í sveitinni.
Nú er þetta dálítið breytt orðið. Ég nefni hver einstakan án
þess að tefja svo heitið geti. Nemendur frá Hofi: Elin Friðriksd.
er húsfreyja í Eyjafirði. Guðrún Sigurjónsd. og Rannveig Valdimarsd.
eru látnar. Sesselja Ingólfsd. er búsett í Reykjavík. Stefán
Helgason er búsettur hér í þorpinu. Þórhallur Jónsson býr í félagi
við bróður sinn á Hauksstöðum. Nemendur frá Torfastöðum: Anna
Sigurðard. á heima á Felli, Vopnaf. Guðlaug Pálsd. og Guðlaug Sæmundsd.
báðar búsettar í Reykjavík. Gunnsteinn Karlsson búsettur hér í þorpinu.
Halldóra Andrésd. einnig búsett hér. Kristín og Sigrún, systur,
eiga heima á Ásbjarnarstöðum, Vopnaf. Ólöf Helgad, Hátúni, nýbýli
frá Hrappsstöðum, Vopnaf.
Nr.6557
p1
Ull og tóvinna 4.
Það er nú að fara í geitarhús að biðja sér ullar, að spyrja mig
um vefnað eða vefstóla. Um þetta veit ég nánast ekkert.
Það var einu sinni settur upp vefur heima á Krakavöllum, eftir að ég man
eftir. Ég man ekkert eftir vefnum eða vefstólnum. Eftir spunanum
í vefinn man ég vel, og hef áður lýst honum. Þá man ég að vaðmálið
var þæft á hurð, sem var látin á gólfið í búrdyrunum. Karlmaður þæfði
með fótunum og hélt sér í dyrakarmana. Ég vissi til að vaðmál
eða dúkur var sendur úr sveitinni inn á "vélar" (síðar Gefjun)
til þess að láta lóskera það eða lóskera, lita og pressa.
Amma mín Eugenía Jónsd. Norðmanns f. 1861, sagði mér sem barni, að mikið
hefði verið ofið á Barði æskuheimili hennar, og mamma sín Katrín Jónsd.
frá Undirfelli, hefði sjálf teiknað munstur handa vefurunum til þess að
fara eftir. Þá er mín vitneskja upp talin. Frænka mín
Sigríður Kristinsd. í Ólafsfirði, gaf mér uppskrifað á þessi blöð sem ég
læt fylgja. Móðir hennar Helga Grímsd. var systir Dúa afa míns. Mun
hafa verið fædd fyrir eða um 1865. Anna amma hennar, sem hún nefnir
var líka úr Fljótum. Hún var vinnukona, ung á Barði hjá séra Jóni
Norðmann og Katrínu Jónsd. Kannske brekánið hennar hafi verið þaðan.
Margir áttu svona hluti lengi. Hér kemur bréf Sigríðar: Langmest
eða árlega var ofið í nærföt og buxur, kallað buxnaverk, nærfataverk. Buxnaverk
var dökkgrátt með ljósum teinum. Nærfataverk var hvítt. Hvorutveggja
var úr íslenskri ull, sem unnin var heima. Sjaldan var ofið í skyrtur
og sængurver, þá kallað sængurveradúkur, var úr bómullartvisti, hvítur
í grunn með röndum, ýmist bláum eða grænum. Skyrtudúkur hvítur með
bláum röndum, einnig úr tvisti. Viðkomandi mynstur var fyrst myndað á tréspjaldi.
Þráðurinn var þá vafinn utanum spjaldið, til að sjá hvað breitt munstrið
ætti að vera, og svo hve marga þræði þyrfti af hverjum lit. Þessi
vinnubrögð eiga við um röndóttan dúk. Ef köflótt var ofið þurfti
líka að mynda munstrið með ívafinu. Ábreiður og buxnaverk var ofið með
vaðmálsvend. Skyrtudúkur, rekkjuvoðir og nærfataverk með dúkvend.
Amma mín, sem lést í hárri elli árið 1937 hafði yfir sínu rúmi þykka
ábreiðu, sem hún nefndi brekán. Í því var hvít uppistaða og dökkur
ívafsþráður. Mig minnir það vera með vaðmálsvend. Þetta var þykkra
og þyngra en aðrar ábreiður. Vefstóllinn, sem ofið var í var
aðeins 70 cm. breiður og þessvegna þurfti að auka rekkjuvoðir og ábreiður
saman í miðjunni. Lengd vefsins fór eftir því hve mikið þurfti af
efni hverju sinni. Sá vefnaður, sem hér hefur verið lýst fór fram
á heimili foreldra minna Helgu Grímsd. og Kristins Jónssonar í Ólafsfirði.
Veturinn 1934-35 var ég nemandi í húsmæðraskólanum á Hallormsstað.
Þar voru ofnar ýmsar vefnaðargerðir. Svo sem glit, krossvefnaður,
salúnsvefnaður (á teppum), rósabandavefnaði (á servíettur), vöfluvefnaður
(á handklæðum) tvöfaldur vefnaður á teppum. Einnig ofið köflótt í kjóla
(úr tvisti), svo sitthvað sé nefnt, en ekkert af þessu hefur verið ofið
í Ólafsfirði.
Nr. 5646
p1
Ull og tóvinna 4.
Þetta verður víst í molum hjá mér með svörin. Ekki get ég
leitað til annarra, því þeir sem vissu betur en ég eru dánir. Svo
bið ég afsökunar á því hvað dregist hefur hjá mér að svara þessu bréfi.
Einskefta var aðallega notuð í rekkjuvoðir og í nærskyrtur.
Uppistaðan var tvistur, en ívafið eingirni unnið úr hvítri ull. Eitthvað
lítilsháttar notað í fóður, en þá var það litað heima. Annað, sem
talið er upp í þessum kafla spurningalistans var aldrei unnið hér. Aldrei
var ofið efni í skyrsíur her í sveit. Í þær voru notaðir strigapokar
og voru þeir grisjaðir með því að draga úr þeim þræði. Svo voru þeir
vandlega þvegnir og soðnir fyrir notkun. Vaðmál var ofið
og var það notað í utanyfirföt s.s. buxur og kastpils. Var það venjulega
úr sauðsvartri ull og var uppistaðan, sem var kallaður þráður og ívaf,
unnið úr ull heima, sem var þá tætt heima, en svo var farið að koma ullinni
í kembingu í ullarverksmiðjuna Álafoss. Stundum voru voðirnar litaðar
heima, en aldrei sendar í litun.
p2
Veipa: Eitthvað
kannast ég við það, en kann ekki að skilgreina það. Ormeldúkur var
vefnaðurinn nefndur. Ekki kannast ég við annað nafn. Hann var sérstaklega
notaður í spariföt karlmanna, og var þá litaður heima. Ekki get ég
skýrt það nánar, því það var líka fljótlega hætt að vinna í betri föt heima.
Ullin var send í Álafoss, og þar fékkst fataefni út á hana.
Um hringvefnað, glitvefnað og oddavefnað get ég ekkert sagt.
Salún: Salúnsteppi
voru ofin heima. Aldrei brekán. Móðir mín óf salúnsteppi og
sá um að koma þeim upp í vefstólinn, en ég óf þau nokkrum sinnum eftir
að ég hafði aldur til, og aðstoðaði við að koma þeim upp, en einfær varð
ég aldrei við það. Efnið var allt heimaunnið, spunnið og litað. Uppistaðan,
þráðurinn var litaður svartur en í salúnið voru ýmsir litir otaðir og var
tvöfalt band í því. Litirnir í því voru 2.
p3
Salúnsmunstrin þöktu
allan vefstólinn. Þessi teppi voru alltaf notuð yfir rúmin, og eru
enn notuð á mínu heimili yfir legubekki. Ekki veit ég um verð á þessum
teppum, en eitthvað var um það, að þau voru seld. Ég minnist
þess, að það var einn maður hér í sveit sem óf teppi fyrir fólk, en hann
er löngu dáinn. Þessi vefnaður er löngu lagður niður, nema þá í verksmiðjum
Álafoss hefur eitthvað unnið salún í áklæði. Annar vefnaður,
sem nefndur er kann ég engin skil á. Ég held að móðir mín hafi tekið
upp salúnsmunstrin eftir teppum, sem hún hafði fyrir sér.
Gjarðir, reipi og höft: Gjarðir voru unnar úr hrosshári. Var
það kembt og vafið í vindil. Var hann festur upp í stoð, stungið
með tein í miðju vindilsins og svo spunninn á hrosshárssnældu. Var
hún stærri en venjuleg snælda, sem band var tvinnað á. Kambarnir
voru grófir ullarkambar. Hrosshárið var undið saman tvöfalt og tvinnað.
Svo var það undið upp í hankir. Og því næst var það brugðið
í gjarðir, hnakkgjarðir eða í klifberagjarðir. Til hnakkgjarða var
meira vandað.
p4
Hver litur hafður
sér og gátu þær verið mjög fallegar, ef þær voru rétt unnar. Var
talað um að bregða að mig minnir á 5 eða 7 þráðum. Líka voru búin
til reipi úr hrosshári, en það var kallað að flétta reipi, og það var ekki
eins vandasamt. Líka voru búnar til hanppheldur, en stundum voru
búnar til ullarhnappheldur úr úrgangsull. Var þá ullin lyppuð og
tvinnuð á snældu. Ég veit nú ekki hvort ég get skýrt það rétt, að hún var
lyppuð, en það var gert milli fingranna, teygt úr henni og undið upp og
svo tvinnað á snældu. Ég gæti trúað að nafnið lopi væri dregið af
því. Vefnaðarnámskeið voru aldrei haldin í þessarri sveit.
En trúað gæti ég að kvenfélög þar sem þau voru, hafi staðið fyrir
þeim, og á húsmæðraskólum hafa stúlkur lært vefnað. Úr hrosshári
var aldrei unnið annað á mínu heimili, en sem að framan er tjáð. Hærupoka
hef ég heyrt nefnda. Þeir gengdu víst svipuðu hlutverki og strigapokarnir
sem seinna komu til.
Nr. 5662
p1
Ull og tóvinna 4.
Þakka innilega jóla og árnaðaróskir. Vonast til að þjóðin
geti eitthvað fundið í fórum ykkar, sem hún hefir aldrei komist í snertingu
við, nú á seinni tímum, sem sé ef til vill atriði í lífsbaráttunni, sem
ekki má gleymast með öllu, svo vel sé, þótt nú finnist aðeins sem safngripir.
Ull og tóvinna, sem önnur þjónusta í þágu mannkyns á fyrri
árum og öldum, var unnin á heimilunum, sem voru að mestu sjálfum sér nóg
með það sem annað. Horfin tíð. Það fór nú svo, þegar
að vefnaði kom til að breyta ull í föt, að því kynntist ég ekki á heimili
foreldra minna. Ástæðuna tel ég ver þá, að móðir mín Pálína Elíasdóttir
frá Syðri-Steinsmýri, Meðallandi, f. 1885, var yngsta barn foreldra sinna.
Fór úr föðurhúsum 14 ára gömul, er þau hættu búskap, því hefir hún
ekki flutt þann heimamund út í lífið.
Einnig þá farnir
að flytjast útlendir dúkar, svo sem flónel, léreft og klæði í betri fatnað.
Þó algengast heimaunnið í hversdags og vetrarflíkur.
p2
Tímamót framfara
og tísku. Mér finnst tilvalið að forvitnast um vefnað fyrri
tíma hjá frændkonu minni, sem ég vissi að óf sjálf á ungdómsárum sínum.
Læt ég hana hafa orðið. Einskefta ívaf. Uppistaða oftast
útlent garn (nefndist vefjargarn), íslenskt band, alull. Bar þá ýmist
sauðalitir eða litað ýmsum litum, ef átti að hafa í svuntur, millipils
eða milliskyrtur. Var þá gjarnan notað garn ívaf, sem einnig nefndist
tvistur, ívafið og voðin þá nefnd tvistur, tvisttau eða tvistvefnaður.
Í dagtreyjur eða kjóla var notað íslenskt band í ívaf. Var
þá liturinn hafður eftir því hvort flíkin átti að fara í hversdagsföt eða
betri föt. Vaðmál: Uppistaða og ívaf íslenskt band
alull. Uppistaðan spunnin með hörðum snúð nefndist þráður, ívaf spunnið
miklu snúðlinara. Áferð voðarinnar vaðmálsvend. Notað bæði
í kven og karlmanna fatnað, í hversdagsföt, sauðalitir, í spariföt litað
með hellulit, og var þá voðin hrafnsvört í sparifötin einnig fínni spuni.
Voðin þæfð undir fótum, toguð upp hristt vafin upp á slétta fjöl,
rúmfjöl, sett undir farg t.d. þunga kistu, er þá voðin mjög áferðafalleg,
slétt og glansandi. Vaðmál var líka notað í yfir og undir rekkjuvoð,
nærbuxur og nærpils. Var þá notuð hvít ull. Öðru leyti unnið
á sama hátt og hér að ofan er lýst. Vormeldúkur: Unnin
úr sama efni og vaðmál. Áferðin allt önnur virtist mun grófari. Voðin
meðhöndluð á sama hátt og vaðmál. Var helst notuð í yfirhafnir.
Salún, sálún: Uppistaða oft notað vefjargarn (tvistur) ívaf
islenskt band, ýmist litað eða sauðalitir. Haft var sama hefðbundið
munstur frá því ég man eftir t.d. 1908-10, og vei tég ekki hvað langt aftur
í tímann. Munstrið þakti alla voðina, sem höfð var í rúmteppi.
p3
Í minni sveit voru
salúnsteppi á flestum eða öllum bæjum, og notuð alla daga, og svo mun hafa
verið víðar á suðurlandi, á þessum tímum. Þetta munstur líktist mjög munstri
því sem Álafoss framleiðir nú í áklæði. Betri lýsingu get ég ekki
gefið af því. Glitvefnaður: Þeim vefnaði kynntist
ég fyrst 1928. Þá var vefnaðar námskeið í Vík í Mýrdal. Kennari
var Sigurlaug Pálsdóttir, Heiði í Mýrdal. Síðar var námskeið í Skaftártungu.
Kennari Kristín Sigurðardóttir, Búlandi. Námskeiðin haldin
á vegum kvenfélaga. Þá var komin norsk vefnaðarbók með fallegum og
fjölbreyttum munstrum og margskonar vefnaði. Glitvefnaði kynntist
ég þannig: Búið var til sérstakt skil fyrir munstrið og það dregið í með
fingrum, en ekki skyttu. Ofið eftir ýmsum munstrum. Ein kona
óf voðina. Voðin gjarnan höfð í sófapúða, veggteppi, borðteppi og
annað skratu. Áður hefir glitvefnaður tíðkast á þessum stöðum, sem
að framan greinir, svo sem glitofið söðulklæði (undirdekk) og var notað
undir söðul og hnakk, einnig söðulsessur og rúmteppi. Og hafa þau
teppi sjálfsagt verið notuð spari. Ekki veit ég til að neitt sé til
af þessum hlutum lengur, og ekki veit ég hvaða aðferð þá var notuð við
þann vefnað. Athugasemd: Ég hefi undir höndum ofin
teppisbút (brekán) úr búi móðurömmu minnar Gyðríðar Þórhallsdóttur f. 1848,
d. 1941, gift 1867. Þetta segir ekki allt um aldur vefnaðarins, en forngripur
er það, engu að síður. Með vinsemd Helga Jóna Elíasdóttir.
Nr. 1477
p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður: Oftast var voðin kennd við vendina, s.s. vaðmál,
einskefta (einskifta), loku eða tíglavefnaður, þó var einnig talað um buxnavoð
eða buxnaverk, og milliskyrtuvoð, án tillits til vendar.
Einskefta: Jafnan var dregið í á 4 hafaldasköft, þó vefa ætti einskeftu.
Var þá hægt að snúra upp og breyta vendinni í vaðmál eða einskeftu
eftir vild. Var oft þegar ofinn var tvistur, annar endinn á voðinni
vaðmál, en hinn einskefta. Milliskyrtuefni, sængurver ofl. var hér
jafnan ofið úr tvisti sem uppistöðu, eftir að ég man, og oftast einskefta,
oft langröndótt, ýmist ullar eða tvistívaf. Vaðmál: Í
ytri klæðnað á karlmenn var oftast haft vaðmál, einnig í betri kvenpils
eða kvenfatnað. Vaðmál þótti sterkara og endingarbetra en einskefta.
Efni í nærföt á karla og konur var hér meira ofið en prjónað, þar
til prjónavélar fóru að koma, nokkru fyrir síðustu aldamót.
p2
Lokuvefnaður: Oddavefnað
heyrði ég ekki nefndan hér, en ef til vill er það sama og hér var nefndur
lokuvefnaður, sem einnig mátti með sama ídrætti (í höföld) vefa tígla.
Ídráttur var þannig, að t.d. 8 þræðir voru dregnir í röð
fram, svo 7 þræðir í röð aftur, einnig mátti hafa 12 og 11 þræði í röð.
Hægt var að breyta lokuvefnaði í tíglavefnað með því að breyta um
stig, þannig að stíga 8 sköft fram og svo 7 aftur eða 12 sköft fram og
11 til baka. Þótti mörgum þessi vefnaður fallegri en vaðmál.
Vormeldúk heyrði ég nefndann, en sá hann ekki ofinn hér.
Brekán sáust hér á nokkrum bæjum, en yfirleitt gömul, og ekki sá
ég þau ofin hér, eftir að ég man. Salúnsvefnaður: Nokkuð
var gert að því hér, á tímabili, að salúnsvefa rúmábreiður. Mun uppskrift
af ídrætti og uppsnúrum á þeim vefnaði hafa komið hingað frá Dýrafirði
nokkru eftir síðustu aldamót, var þeirri uppskrift svo eitthvað breitt
í fleirri mynstur. Eitthvað er ennþá til af þessum ábreiðum
p3
á nokkrum bæjum ennþá.
Þær síðustu sem til voru hér á heimili, fóru á Byggðasafn Ísafjarðar
fyrir nokkrum árum, og voru þær meira en hálfslitnar. Ekki er mér
kunnugt um að hér hafi verið salúnsofnar ábreiður síðustu 30 árin, enda
mjög lítið um vefnað hér á því tímabili. Fáir hér lögðu fyrir sig salúnsvefnað
og breiddist hann því lítið út. Ábreiður entust yfirleitt ekki vel,
þar sem algengt var þá að hafa rúmin fyrir sæti. Glitvefnað
sá ég ekki ofinn hér, og ekki krossvefnað. Flosvefnað sá
ég aðeins, en kynnti mér hann mjög lítið. Nokkrar konur þekkti
ég í ungæmi mínu, sem ófu spjaldvefnað, aðallega voru að styttubönd er
ég sá spjaldofin. Ekki er mér kunnugt um að til séu hér nú
spjöld eða áhöld frá þeim vefnaði, og ekki heldur spjaldofin bönd.
Fótvefnað sá ég einnig lítilsháttar, heyrði ég það nefnt að slingja.
Var það aðallega haft í bryddingar á leppa, einkum sem notaðir voru í spariskóna.
Ekki kynnti ég mér þann vefnað náið.
p4
Gjarðir: Meiri
hluti gjarða voru handbrugnar í ungdæmi mínu. Þó óf ég gjarðarenning
í vefstað eftir að ég fór að búa (um 1920). Margir höfðu helst hrosshár
í gjarðir, einkum í klyfberagjarðir, þóttu þær sterkari og endingarbetri.
Hnakk- og söðulgjarðir voru oftast hafðar röndóttar. Í handbrugnar
gjarðir var ekki rakið nema hæfileg lengd í eina og eina gjörð, og var
hver þáttur undinn í hönk, sem dregið var innan úr. Var jaðarþráðurinn
hafður fyrir ívaf, einn af öðrum, gátu randirnar þannig skekkst og komið
í odd. Á hnakk- eða söðulgjörðum var skinn- eða leðurbót smokkað
í hringjuna og hún svo saumuð yfir endann á gjörðinni.
Vefnaðarnámskeið:
Veturinn 1925 og 26 voru hér í barnaskólanum í hreppnum 2 vefnaðarnámskeið
á vegum ungmennafélagsins. Kennari á námskeiðum þessum var Hólmfríður
Krisinsd. frá Núpi í Dýrafirði. Eitthvað mun hafa komið þar fram
af nýjum vendum og mynstrum, en þó ekki mikið, og ekki ýttu námskeið þessi
verulega undir vefnað hér, nema í svipinn. Þó var ofið hér á nokkrum
bæjum fram um eða rétt fram yfir 1940.
Nr. 5725
p1
Ull og tóvinna 4.
Það er spurt um ull og ullarvinnu. Það var nú margt unnið
úr ullinni, en nú er víst meiningin að fækka skepnunum sem ullin er af,
og ekki fæst hún af því sem drepið er af blessuðum kindunum, sem mér heyrist
allir fordæma. En ég spyr, lifði íslenska þjóðin ekki mest að því
sem framleitt var í sveitunum áður, og voru víst ekki allir með fullan
maga þá, en nú er þetta gleymt þá gleypt er, en nú er maginn fullur.
En því miður get ég svo lítið lýst nema því sem var unnið í vaðmál
og prjónaföt, því þá var mest hugsað um að heimafólkið hefði fötin sem
hlýjust og endingarbest. Það var margt handtakið sem þurfti að vinna
áður en ullin var komin í flík, og byrjuðu strax þegar haustannir voru
úti að fara að líta á ullarpokana fulla af ull og unnið myrkranna milli,
að taka þar til hendi. Þá var nú fyrst að undirbúa. Þá var
farið að taka ofanaf togið og allar illhærur úr ullinni, ef hún átti að
fara í fallega voð, t.d. hvítt í nærföt, en hitt sem átti að fara í utanyfirföt
karlmanna, buxur og úlpur, það var dökkleitt. Það varð að tvíkemba
eða samkemba, sem kallað var. Það var kembt í ullarkömbum, en þeir
eru nú sjálfsagt óvíða til nú orðið. Það gat verið erfitt verk, en
stundum kembdu karlmenn fyrir kvenfólkið á kvöldin,
p2
þegar þeir voru búnir
við húsaverkin og var það mikil flýtisauki. Það var nú sagt að sumir
sem ekki áttu konur, þyrftu stundum að gá í gegnum kemburnar og ef mikið
voru hnökrar í eða ill kembt, að konuefnið ætti að vera geðstirð, þess
vegna reyndu þeir að vera vandvirkir. Og mikill var munur þegar
kembuvélarnar komu og var farið að spinna úr lopa. Ég man fyrst eftir
því að ein kom að Ólafsdal. Það þótti mikill lúxus, en Adam var ekki
lengi í Paradís, því húsið með kembivélunum brann, og var öskuhrúga þegar
maðurinn kom að einn morguninn. Það var mikil ógæfa.
En þá var það spuninn. Ég man að mamma spann þráðinn, því það var
mikið handaverk, en ég spann ívafið, og það var gaman að spinna á góðan
rokk, en nú er það ekki nema minningin ein, sem lifir, en svo var nú að
fá það ofið, en það var ekki nema fáir sem gerðu það. Það var vandaverk
að vel væri gert. Hvíta voðin var höfð í nærföt bæði á karla og konur,
en það mislita í untanyfirföt. En svo var sumt af ullinni haft í
sokka og vettlinga og mikið þurfti að prjóna, þangað til prjónavélin kom
til sögunnar. Það var spunnið bæði tvöfallt band eða ef fínt var
spunnið þá var bandið þrefallt. Það var margt prjónað fallegt úr
fínu bandi áður á árum. Og er enn.
p3
En það er nú svo
með vefnaðinn að ég er þar mikið ófróð, nema á það sem ofið var á þessa
stóru vefstóla, sem ófu bara vaðmál. Þegar voðin kom heim þá var
að fara að þæfa, það voru oftast karlmenn sem það gerðu. Það var
afmarkað skot í baðstofunum og voðin látin þar svo þæfðu það karlmenn með
berum fótum, svo þetta varð mjúkt og fallegt efni og vel var frá því gengið.
Það var tekið og lagað til og hrist öðru hvoru meðan á þófinu stóð
og vafið svo á fjöl þegar vel og vandlega og sett svo undir þungt farg
og haft þar nokkra daga. Þá var það orðið mikið til þurrt og tilbúið í
flíkur. Svo heyrði ég talað um hraðskyttuvefnað. Það var einn
maður sem átti hann og óf á hann og hafði meir en nóg að gera, en það var
allt efni í því útlent. Það var mjög fallegt og haft í kjóla og ýmislegt
sem fínt átti að vera. Þessi maður, sem þetta gerði, var á Kjörseyri
í Hrútafirði. Mér þykir verst ef þið geti ð ekki komist úr úr þessu.
Það er bæði illa skrifað og vitlaust. Ég þakka innilega fyrir
kortið sem mér var sent af Reykhólakirkju, því það kannaðist ég við, bara
hún fjúki ekki eins og hinar í Saurbæ á Rauðasandi.
Nr. 1538
p1
Ull og tóvinna 4.
Fram yfir 1940 var ofið talsvert hér í sveit og hefir eflaust verið
svo frá öndverðu. Nú er þó svo komið að erfiðleikar eru á að vita
um ýmislegt sem að vefnaði laut áður en leiðbeiningar frá Halldóru Bjarnadóttur
komu hér í sveitina, en eftir þeim var nokkuð ofið á tímabili. Þegar
vefur var settur upp, var hann oftast ætlaður í ákveðinn fatnað, og nefndur
eftir því, buxnavefur, skyrtuvefur osfrv. og fór það ekki eftir vefnaðarvend,
nema að því leyti að á buxnavef var oftast vaðmálsvend, en oftast einskefta
á skyrtuvoð. Talað var um einskeftu og tvískeftu, en ekki
er mér ljóst hver munur var þar á. Ekki veit ég til að ákveðinn álnafjöldi
væri ætlaður í sérstaka dúka, nema teppi. Voð úr einskeftu var þynnri
en úr vaðmáli og því fremur höfð í milliskyrtuefni, svuntur og undirkjóla.
Það var því venjulega einskefta í tvistdúkum, en þó mun stöku sinnum
hafa verið ofið með vaðmálsvend, ef tvistur var
p2
uppistaðan, en ullarband
í fyrirvafið. Tvistdúkur var oft hafður köflóttur, en ullardúkur
sjaldan, því ullarvoðir voru oftast litaðar með hellulit, indigólit eða
lyngaðar, en þá var oft höfð sorta með. Lítið var að því
gert að vinda mislitan þráð á spjald til að sjá hvernig litirnir færu best
saman. Þó vissi fólk hér í sveit um þessa aðferð, en ekki var það
nefnt sérstöku nafni. Um dúka til einstakra nota er þetta að segja:
Kjóladúkur var ýmist einskefta eða vaðmál, og ýmist úr ull eða tvisti,
og stundum var uppistaðan tvistur, en ívafið ull, en einkanlega var það
svo tvistur og ull í millipils, svuntu- og milliskyrtudúkur var yfirleitt
úr tvisti, eftir að hann fór að fást og var enginn munur á þeim.
Sængurver voru úr tvisti, en lök oft úr vaðmáli (ull). Sjaldúkar
voru sjaldan ofnir, veit þó um eitt sjal, sem ofið var fyrir aldamótin
síðustu. Það var úr þelbandi, mosalituðu og sauðsvörtu. Utanyfirföt,
t.d. mjaltapils, þóttu best úr togþræði, en munu
p3
þó oftar hafa verið
úr grófu bandi úr óofanaf tekinni ull. Úr togi voru stundum ofnir
pokadúkar. Þráðurinn (uppistaðan) í hvaða vef sem var, þurfti að
vera snúðharður, en fyrirvafið átti að vera snúðlint, enda fór þykkt voðarinnar
eftir því hvað vel var gefið í, þ.e. hvað fyrirbandið var haft slakt.
Vaðmál voru yfirleitt einlit, nema ef þau voru ætluð í teppi, þá
voru þau oftast köflótt. Sparifatavaðmál var jafnan vandað sem best
mátti verða, hvort sem það átti að vera í karl- eða kvenfatnað, bæði með
spunann á bandinu, og að sem allra jafnast væri gefið í, einnig um þóf
og litun, en það var yfirleitt litað svart. Ígangsföt þurfti
ekki að vanda eins, enda voru þau oft höfð með blönduðum sauðalitum (grá).
Nærföt voru úr ólituðu ullar vaðmáli, þangað til prjónavélar komu
til sögunnar. Ekki er vitað til, að hér hafi verið notaðar
yfirrekkvoðir, og ekki er heldur vitað til að skyrsíur hafi verið ofnar.
Ekki er vitað til
p4
að tjalddúkar hafi
verið ofnir hér, en líklegt er þó að svo hafi verið áður fyrr, því tjöld
urðu menn að hafa í kaupstaðarferðum. Vefur með klæðavend
var oft ofinn og mun hafa verið nefndur klæðavefnaður, en oftast heyrði
ég einfaldlega talað um að vefurinn væri með klæðavend. Veipu heyrði
ég aldrei nefnda. Fremur mun vefur með klæðavend hafa verið ætlaður
í spariföt, og oftast litað svart með útlendum lit, en að öðru en áferð
var enginn munur á því og vaðmáli. Hringofnar voðir voru
mest notaðar í teppi, en einnig stundum í millipils og var þá hafður bekkur
neðst á því. Jurtalitir tíðkuðust dálítið eftir að kom nokkuð fram
á þessa öld (um 1930), en ekki veit ég með vissu hversu lengi menn hafa
þekkt þá, nema að sjálfsögðu liti úr sortulyngi og litunarmosa.
Oddavefnaður og ormeldúkur þekktust hér ekki.
p5
Salúnsvefnaður þekktist
hér, og var notaður í rúmábreiður, teppi, en ekki er víst að svo hafi verið
nema frá því úm 1870. Veit til að kona hér í sveit nam salúnvefnað
af konu, sem fluttist úr V-Skaftafellssýslu um það leyti, en það sannar
ekki að fólk hafi ekki kunnað þessa tegund vefnaðar áður. Uppskriftabækur
gætu eflaust gefið bendingar um það, ef athugaðar væru. Salún var
mjög lítið ofið hér í sveit. Rúmábreiður voru jafnan nefnd teppi
og voru oftast úr vaðmáli, og voru að jafnaði köflótt, en litir mjög mismunandi.
Eftir að vefnaðarbækur komu, voru teppi yfirleitt hring- eða salúnsofin.
Ekki veit ég til að glit- eða krossvefnaður hafi tíðkast hér, og
ekkert kann ég frá flosvefnaði að segja. Hef þó heyrt um konu héðan
úr sveit, sem kunni flosvefnað, og var talið að hún hefði lært það hér,
em veit ekki hvort það er með öllu víst. Ekki veit ég til að spjaldvefnaður
hafi þekkst
p6
né heldur fótvefnaður.
En slanga í sokkabandavef var rakin á fót, en svo sett í
vefstól, en aðeins notuð 2 höföld. Ekki var notuð venjuleg skeið,
heldur bein eða spýta úr harðviði, sem nefnt var sokkabandaskeið, og var
fyrirvafið rakið á annan enda hennar. Gjarðir voru hér brugðnar,
en ekki ofnar og voru oft með oddamynstri (oddagjarðir).
Hrosshár var notað í poka (hærusekki), og voru þeir oftast hafðir röndóttir.
Til að kemba hrosshár þótti betra að hafa grófa kamba, og voru kemburnar
vafðar upp í vindil, sem oftast var festur með því að stinga al í gegnum
hann miðjan og honum svo stungið í spýtu, t.d. rúmstuðul. Spunatækið var
stór snælda, oftast með renndum snúð, sem var um eða yfir 10 cm. í þvermál.
Til var sérstakur útbúnaður til að hafa snælduna í meðan rakið var
af henni, nokkurskonar stóll, sem endar snældunnar voru festir í. Vefjarskeiðar
bjuggu menn til sjálfir, og veit ég til að í þær var notað spónn og
p7
vír. Þegar
spónn var notaður, var hann skorinn í 10 cm. lengur (breidd) og var röndin
notuð til að þrýsta ívafinu að.
Ekki veit
ég til að konur hafi unnið hrosshár, og ekki munu þeir hafa verið margir,
sem ófu hrosshár svo nokkru næmi. Aðallega talað um einn mann, en
þó er víst amk. 3 bændur hafa ofið hæruvoð hér í sveit eftir 1890. Ekki
mun þó nema einn þeirra hafa átt til þess gerða vefjarskeið, en hann átti
tvær og lánaði hinum. Ekki hafa verið haldin vefnaðarnámskeið
hér í sveit, en þegar vefnaðarbækur komu, voru þær mikið notaðar, og var
þá allmikið ofið hér eftir þeim á tímabili, en það sem hér hefir verið
sagt, er miðað við það ástand sem var áður en þær komu hingað.
Nr. 5757
p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður almennt: Voðum var gefið nafn, eftir því til hvers
átti að nota þær. Buxnavoð, buxnavaðmál var sagt hér, hæruvoð, skyrtudúkur,
svuntudúkur. Ákveðið álnatal var reiknað út eftir því í hvað voðin
átti að fara. Sá aldrei ofin tjöld. Einskefta: Þráður
var spunnin bæði í einskeftu og vaðmál í uppistöðu. Þráðurinn var fínn
og snúðharður, ívafið mýkra og aðeins grófara. Tvistur var mikið
notaður, margir litir í svuntur og milliskyrtur, mjög fallega niður raðað,
ég man eftir svuntudúk og milliskyrtum úr tvisti. Í verslanir kom
tvistur með öllum litum. Gulur, rauður, grænn og blár og hvítur.
Ég man ekki útlenda liti á ullarbandi, en sauðaliti og jurtaliti,
sortulyng, dökkbrúnt mest sokkaband, mosalit og fleirra. Kjóladúkar,
mittispilsadúkar, oft með allavega litum bekkjum, fatafóður var einlit
einskefta. Ekki man ég til í þeirri hafi verið ofin gluggatjöld.
Það kom seinna, er konur fóru á skóla, þar sem allskonar vefnaður
var unninn. Konur voru hagkvæmar að ræða litum. Rekkjuvoð sá ég,
sem var ofin einskefta, aldrei sængurver og aldrei skyrsíur, alltaf keypt
léreft í þær. Engir pokadúkar, bara hærupokar. Tveir eru hérna
á safninu. Aldrei sent til litunar það sem fór til heimabrúks nema
vaðmál í peysuföt. Þau voru fín og falleg vaðmál. Ekki allar
konur sem spunnu svo fínt band.
p2
Vaðmál: Uppistaða
var eftir því hvort efnið átti að vera í spariföt eða ígangsföt. Fínna
í spariföt. Í hversdagsföt voru alltaf sauðalitir eins og þeir komu
fyrir. Í fínni föt voru sauðalitirnir samkembdir, sem kallað var,
grátt, mórautt, hvítt. Þessu var blandað saman í höndunum. Fyrst
var togið tekið vandlega ofanaf, síðan ullinni velt við og öll toghár fjarlægð.
Það var kallað að hæra. Þetta vaðmál fór í spariföt, í treyjur
og peysufata og treyjur og pils, og jafnvel kjóla áður fyrr. Sá aldrei
ofnar hyrnur. Þær voru prjónaðar ég sá mjög fallegt peysufatasjal.
Það var grátt að lit þetta var samkembt og heimaofið. Í spariföt
var vaðmálið sent til litunar sá aldrei vaðmál í segl eða tjöld heyrði
talað um vaðmálstjöld. Undirdekk sá ég.
p3
Klæðavefnaður, veipa:
Heyrði aldrei talað um veipu. Aftur á móti vaðmálsvend, sem
notað var í spariföt karla og kvenna, að vefa vaðmál og vefa einskeftu
var ólík áferð vegna þess, að þá var öðruvísi stigið á skammelin. Helst
alltaf sauðalitir, sauðsvart, mórautt, grátt, sjaldan útlendir litir, þá
helst rautt og blátt ofið fyrst og litað í stórum potti úti í hlóða eldhúsi.
Hringavefnaður: Ég heyrði talað um hann, sá hann aldrei.
Get ekkert sagt um hann. Í hann hafa sauðalitir hafðir.
Oddavefnaður: Ég sá gjarðir með oddavefnaði og einnig brugðnar.
Þá voru litirnir sauðsvartir og hvítir. Ormeldúkur:
Þessi vefnaður var alltaf nefndur vormeldúkur í minni sveit. Vormeldúkur
var stundum ofinn úr tvisti, líka úr ullarbandi og tvisti. Þar voru
bæði sauðalitir, jurtalitir og útlendir litir eftir í hvaða vatnað efnið
átti að fara. Aldrei sá ég spariföt úr þessum vefnaði. Heyrði aldrei
um bandorma eða þráðarormeldúk. Vormeldúkur var hafður í millipils,
bekkjapils voru þá fallegir litir í pilsinu að neðan, (bekkir), annaðhvort
tvistur eða fínt band. Mest sá ég hann ofinn úr tvisti. Svo
hefur hann verið ofinn einlitur, notaður þá sem fiðurhelt í sængur, því
hann var mjög fastur og þéttur.
p4
Salún: Ég heyrði
bæði talað um salúnsvefnað og salún. Ég sá rúmábreiður úr jurtalitum
mjög fallegar. Í seinni tíð hef ég ekki séð þær, enda hætt að vefa
í heimahúsum, og býst við að þessi vefnaður hafi verið forn. Vefarar
áttu munstrin í huga sínum. Hafa líka séð fyrir sér önnur munstur,
heldur en þau sem algeng voru í heimasveitinni. Sum voru í bekkjum
og munstralaust á milli (bekkjasalún). Það er svo langt síðan vefnaður
á heimilum lagðist niður, að um ekkert slíkt er hægt að fá neina fræðslu.
Svo voru fyrst þegar ég man eftir fá heimili, sem vefstólar voru
á og sárafáir kunnu að vefa. Það var mikið verk að vefa fyrir mörg
heimili í sveitinni. Það gerðu systur, sem ég var uppalinn hjá. Salúns
ábreiður voru yfir rúmum á hátíðum og sunnudögum, aðrar úr einskeftu eða
vaðmálsvend, virka daga. Brekán: Ég sá þau. Svo
var farið að kaupa fallegt sirs í rúmteppi, og þá hætt að nota brekán.
Ég sá þau bara gömul og slitin. Glitvefnaður: Ég
þekki ekki til glitvefnaðar í heimahúsum. Aftur mun hann kenndur
í Húsmæðraskólum og námskeiðum. Krossvefnaður: Kann
ekki neitt að segja um krossvefnað og aldrei séð hann.
p5
Flosvefnaður: Ég
sá aldrei flosvefnað. Heyrði talað um floshár. Þetta var allt að
leggjast niður þegar ég mundi eftir og mun helst að leita þeirra muna á
Byggðasöfnum. Ég hef aðeins þekkt handflos myndir og púðaborð eða
söðulsessur. Mun flest af þessu gamla tapað, brennt og fleygt, sem
drasl, því miður. Spjaldvefnaður: Ég kann ekki að segja
frá spjaldvefnaði. En á Byggðasafninu í Höfn gætu verið áhöldin sem
notuð voru við vefnaðinn, því get ég ekki lýst. Ég hef þó séð axlabönd
með stöfum. Fótvefnaður: Um hann get ég ekkert sagt.
Hef aldrei séð hann ofinn. Heyrt talað um sokkabönd og svuntubönd,
tíglabönd. Gjarðavefnaður: Ég sá ekki gjarðir ofnar
í vefstól. Gjarðir voru alltaf brugðnar úr hrosshári. Sumar
úr ull. Oddagjarðir úr ull við kvensöðla. Litasamsetning var
helst sauðsvart og hvítt úr ull. Úr hrosshári rautt, hvítt, jarpt.
Veit ekki hvernig var gengið frá endum. Það voru hér um slóðir helst
karlmen
n sem unnu þessi
verk.
p6
Námskeið, skólar:
Ekki man ég eftir námskeiðum í minni sveit, en stúlkur sem fóru á
húsmæðraskóla lærðu vefnað eftir svo mörgum munstrum. Ég sá borðdúka, svuntur,
handklæði, púðaborð, sem dóttir mín óf á húsmæðraskólanum. Í barnaskólum
lærðu stúlkur dálítið að vefa í litlum vefstólum, nú í seinni tíð.
Hæruvoð: Hér á Byggðasafninu eru mjög vel gerðir hærupokar.
Þeir eru gráir með ljósgráum bekkjum, svo sá ég líka hærupoka einlita,
oftast gráa. Hrosshár var tætt (táið), kembt í kömbum, látið í eina
hrúgu, síðan vafið í vindil, síðan fest með löngum al í rúmstöpul eða stoð,
síðan tekinn sá gildleiki,sem við átti og spunnið á halasnældu. Sá
aldrei hrosshár spunnið á rokk. Hrosshárssnældur voru aðeins stærri
og grófari. Ef þurfti að tvinna var sama snældan notuð. Vefjarskeið
og skyttu sá ég ekki fyrir svo grófan vefnað. Vissi bara þetta var
til. Heima var mest brugðið úr hrosshári, gjarðir og taumbeisli og
mottur. Veit ekki til að hrosshár afi verið notað í fatnað.
Hundshár: Þekki ekki að hundshár væri notað. Aftur var togið
af ullinni haft í grófa sokka, sem notaðir voru þá fólk var við heyskap
á blautum engjum.
Nr. 1890
p1
Ull og tóvinna 4.
Vefnaður almennt: Voðum var gefið nafn eftir því til hvers
þær skyldi hafðar. Brekánsvoð, buxnavoð, milliskyrtuvoð, svuntudúkur,
hæruvoð osfrv. Og víst álnatal stundum, t.d. í ábreiður, 6 álnir
í ábreiðuna. Ennfremur í sængurföt 6 álnir í rekkvoðina, heldur styttra
í sængurverið.
Einskefta:
Vendin nefndist fyrst og fremst einskefta, hvert sem efnið var. En
útlent bómullargarn tvísnúið - verksmiðjumerki 20/2 - var oft nefnt tvistur,
en oftast þó vefnargarn, og voð úr því einu saman tvistdúkur, og var það
oftast einskefta. Litir: Sauðalitir voru að sjálfsögðu
mikið notaðir. Lítið var um jurtaliti, helst þá mosalitur, brúnn,
njóla- og rabbargaralitur, gulgrænn, og bætt í fíflakollum til að skýra
litinn. Líka var litað úr sortulyngi, þar sem til náðist, brúnn litur.
Vefjargarn fékkst í ýmsum litum, en þyrfti að lita það, var notaður
útlendur litur, og yfirleitt var lítið litað úr öðrum lit en útlendum.
p2
Litir voru undnir
á spjald til að sjá hvað best færi saman. Ekki kann ég nafn á því
verki, en talað var um að haga litum svo og svo. Mismunandi
einskeftudúkur: Mjög algeng var að nota vefjargarn í uppistöðu, en
hafa ull í fyrirvaf (orðið ívaf aldrei notað) eða veft. Að spinna
veftinn var nefnt að spinna upp í, og oft svo til orða tekið, að þetta
og þetta ætti að vera upp í. a() Kjóladúkur, ýmist garnuppistaða
og ull í fyrirvaf eða algarn, munstur bæði röndótt og teinótt og köflótt,
líka einlitt. Ég man eftir mjög fallegu efni brúnu með ljósum teinum.
Köflóttu efnin munu oftast hafa verið úr algarni. b() Millipils:
Litir, aðallitur oftast ljósgrár eða mórauður, svartar og hvítar
randir eða teinótt, oftast röndótt. Væri alull, var uppistaðan einfaldur
þráður, smár og snar. Stundum var uppistaðan einlit, en rendurnar
aðeins í fyrirvafinu. Þá var breiddin á voðinni látin ráða síddinni.
Séð hef ég líka einlitt millipils, uppistaðan var rautt garn og vefturinn
dökkrauð ull. c() Sjaldúkur: Séð hef ég eitt einskeftusjal.
Það var úr alull, aðallitur gulbrúnn og svartbrúnn bekkur utan um,
fyrirvaf eins.
p3
d() Svuntudúkur:
Uppistaðan einfaldur þráður, smár, ýmist röndótt eða teinótt, t.d.
aðalliturinn dökkmórauður með ljósmórauðu, hvítu og ljósgráu í. Oft
líka ofið köflótt. Annars mun hafa verið fullt eins algengt að hafa
litað efni í svuntur og litað úr útlendum litum. Gömlu konurnar voru
margar gefnar fyrir skæra liti, háfarliti, þar sem því varð við komið.
e() Milliskyrtudúkur: Uppistaðan fínn þráður, einfaldur
eða vefjargarn, oftast haft smáröndótt, líka einlitt. f() Fatafóður:
Því kann ég lítil skil á, hef séð fóður undir gömlum hökli í Hrepphólakirkju,
það er fínt vaðmál, er gult, ef til vill njólalitað. g() Sængurver:
Algarn, oftast bláröndótt eða köflótt, hvítur grunnur, mjóar randir.
Um borðdúka, húsgagnaáklæði og gluggatjöld er það að segja,
að þeir hlutir voru ekki ofnir á heimilum fyrr en húsmæðraskólar komu til
sögunnar, enda hvorki gluggatjöld né yfirklædd húsgögn notuð af almenningi
nema lítillega á stóla. Um efni til ústaums er svipað að segja. Gamlar
sessur, bæði flosaðar og blómstursaumaðar
p4
sem ég hef séð, eru
allar saumaðar í klæði. Ég vil geta þess hér, að einskefta sem ofin
var líkt og jafi nú á dögum, var nefnd jafnþræðingur, þ.e. jafnmargir þræðir
á lengd og breidd, t.d. á þumalfingri. Skyrsíur: Ef
vefa þurfti skyrsíur var haft í hana tog, tvinnað, snart bæði í uppistöðu
og fyrirvaf, og ekki fast ofið, en oftast var reynt að fá striga, ekki
mjög þéttan til þeirra hluta. Um efni í bakleppa, segl eða
tjöld get ég ekki sagt, en pokar, aðrir en hærupokar voru úr grófum þræði
tvinnuðum, jafnþræðingur eða svo að segja, gjarnan röndótt eða köflótt.
Í poka mun hafa verið notuð allskonar úrgangsull. Ég
kannast ekki við, að voðir hafi verið sendar til munstrunar eða litunar,
en hinsvegar voru voðir sendar til þófs og pressunar, eftir að ullarverksmiðjur
komust á stofn hér á landi. Vaðmál: Uppistaða í vaðmál,
sem aðrar voðir, fór að sjálfösðu eftir því, til hvers nota skyldi voðina.
Um liti er hið sama að segja
p5
og um einskeftu,
sauðalitir algengastir, oft samkembdir, en í allt hið vandaðasta voru mest
notaðir útlendir litir, sbr. hellulitur. Um munstur í vaðmáli er
ekki að tala nema á litinn, t.d. köflótt. a() Spariföt kvenna:
Í þau var haft svo gott efni, sem nokkur kostur var. Uppistaðan
var einfaldur þráður nokkuð snar, veftur einfaldur, snúðlinari. Litað
svart. Var líka til með sauðalitum einum. Sagt var um eina
heimasætu (nafngreinda), að er hún vann ull til sparifata handa sér og
systrum sínum, kembdi hún og spann 2 snældur um vikuna. Þetta var
í frásögur fært, enda þráðurinn frábærlega fínn. b() Ígangsföt
kvenna: Grófara vaðmál en til sparifata, dagtreyja oft ljósari. Kannast
ekki við hyrnur nema prjónaðar og plet. Eftir að kjólar fóru að tíðkast,
voru þeir síður úr vaðmáli en einskeftu. c() Í reiðföt var
notað togugra efni, það hratt betur frá sér vatni og óhreinindum.
d-e() Um fatnað karlmanna var svipað að segja og um kvenfatnaðinn.
Hversdagsfötin voru úr grófara efni. Sparifötin oftast
p6
dökk, venjulega lituð
svört. Heyrt hef ég um sjaldhafnarföt unnin á árunum 1915-20, ljósmórauð
að lit. f() Nærföt: Vaðmálsofin nærföt tíðkuðust hjá
gömlu fólki fram um aldamót, en prjónaföt urðu alls ráðandi upp úr því.
Í nærföt var notað hvítt. g() Í rekkjuvoðir var höfð
garnuppistaða og ullarveftur einfaldur. Slíkar rekkvoðir eru enn
til á stöku stað. h() Ég kannast ekki við vaðmálsofnar síur.
i() Ég þekki lítið til pokavaðmáls. Pokar nefndust þverbakspokar,
hnakkpokar, malpokar, engjapokar, eftir því til hvers nota skyldi. Þeir
voru tvíendaðir, sem kallað var, eða tvíbotnaðir, þ.e. opið var á hliðinni,
svo að hægt væri að láta í báða enda. Klæðavefnaður var alþekktur,
einnig nefndur klæðavend. Orðið veipa þekktist, en var lítt notað.
Þessir dúkar voru einkum notaðir í buxur. Var tvinnaður þráður, fyrirvaf
spólað tvöfalt, en ekki tvinnað. Sauðalitir voru venjulegastir, oft haft
teinótt, t.d. 6-8 þræðir af öðrum litnum, en 2 af hinum. Með þessum
hætti voru
p7
t.d. buxur sem ég
átti og gaf Þjóðminjasafninu fyrir nokkrum árum, ljósmórauðar, ef ég man
rétt með dökkum teinum. Hringvefnaður: Hringvefnaður tíðkaðist.
Það voru alltaf heilhringir. Uppistaða var venjulega einfaldur þráður,
fyrirvaf einfalt. Ýmist voru það sauðalitir eða útlendir litir, t.d.
ljósbrúnt eða dökkbrúnt. Þetta efni var ekki mjög þykkt og haft í
utanyfirföt, t.d. kápur og annan fatnað á börn og unglinga.
Oddavefnaður þekktist, einnig sperruvefnaður. Var slíkur dúkur hafður
í utanyfirföt, úlpur, buxur og jakka. Litur alltaf dökkleitur, ýmist
sauðalitir eða útlendir litir. Þá helst brúnt. Þráður oft tvinnaður,
fyrirvaf einfalt. Ormeldúkur: Vormeldúkur var hann
nefndur. Þótti sá vefnaður vandaður og því
p8
hafður í bestu föt.
Oftast var ofinn þráðarvormeldúkur. Hann var mjög varpaður.
Venjulega var uppistaðan einfaldur þráður. Oft voru sauðalitir,
en stundum var þráðurinn litaður, oftast þá dökkbrúnn eða svartur. Stöku
sinnum var þó ofinn veftarvormeldúkur. Var hann mjög veftaður. Hann
var helst hafður í spariföt handa börnum og unglingum, því að helst varð
að sníða hann þversum, þ.e. að breiddin dygði í síddina. Afar seinlegt
var að vefa veftarvormeldúk. Hlóðst vefturinn svo í, að voðin gekk
mjög seint fram. Þótti góður gangur væri ofin ein alin á dag. Vormeldúkur
var einnig hafður í betri föt karlmanna. Fyrir kom að vormeldúkur
var hafður í millipils. Það var þráðarvormeldúkur, og var uppistaðan
þá vefjargarn. Fyrir kom, að slíkt efni var að nokkru með vormeldúksvend,
en að nokkru einskefta, bekkir til skiftis. Kristrún systir mín,
sem er hér aðalheimildarmaður minn, þekkti eitt slíkt pils. Það var frá
Laugum í Ytrahreppi. Voru vormeldúksbekkirnir mjög skrautlegir, rauðir
og rauðgulir litir, um 20 cm. breiðir. Pils þetta mun nú vera á byggðasafninu
á Selfossi. Salún: Nafnið var ætíð salún. Var
það eingöngu haft í rúmábreiður. Þó
p9
man ég aðeins eftir
þverpoka úr salúni, búinn til úr afgangi. Salúnsvefnaður mun ekki hafa
verið algengur fyrr en skömmu fyrir síðustu aldamót. Uppistaðan var
tvinnaður þráður, salúnið tvinnað, einskeftuvefturinn einfaldur, ekki snar.
Ekki þekki ég sérstök nöfn á salúni. Það var til að
vefarar fundu upp salúnsmunstur sjálfir. Þannig var um einn þekktan
vefara, sem var í minni sveit, þegar ég var á barnsaldri. Hét hann Jóhannes
Eggertsson og átti lengi heima í Ásum í Eystrahreppi. Þegar
vefnaðarkennsla hófst, breyttust vefnaðarmunstrin nokkuð og ný komu. Ekki
þekki ég ábreiður með salúnsmunstri, en munsturlausum bekkjum á milli.
Þeir munu hafa verið til, sem ófu salún öðrum fremur. Annars
ófu allir vanir vefarar salún. Ekki þekki ég, að salúnsábreiður væru
seldar. Yfirleitt voru alltaf sömu ábreiður notaðar, bæði virka daga og
helga. Ég hygg að ekki hafi veirð mikið um salúnsvefnað í
minni sveit eftir 1930, en þó þekktist það talsvert lengur, amk. á mínu
heimili. Kristrún systir mín óf síðast salúnsábreiður 1958, í svo
breiðum vefstól, að ekki þurfti að setja saman. Eina af þessum ábreiðum
gaf hún mér, og
p10
á ég hana enn og
nota. Er einskeftan ljósgrá, en salún rautt. Tel ég hana ágætan
grip. Áreiðanlega var allur salúnsvefnaður þá lagður niður á öllum
nágrannabæjum fyrir löngu. Stundum voru salúnsábreiður kallaðar brekán.
Brekán: Hin raunverulegu brekán voru einskefta, mjög
veftuð, svo að uppistaða sást ekki. Var það kallað tvistofið. Einkum
voru notaðir sauðalitir. Ekki þekki ég mun á hvernig gefið var í
miðað við not. Þráður í brekánum var fremur grófur og notuð venjuleg skytta.
Einnig voru til vaðmálsofin brekán, venjulega köflótt. Var
þá oftast annar kaflinn dökkur, en hinn litaður, oftast grænn eða rauður.
Gömul brekán voru oft sett ofan á ábreiðu til hlífðar. Stundum
voru saumaðir úr þeim þverpokar til að færa í og þess háttar. Brekán
með vaðmálsvend voru ofin árið 1940 á nágrannabæ við mitt heimili.
Glitvefnaður: Áklæði hefur verið til á næsta bæ við mitt heimili,
og er með nafni
p11
eiganda. Ártal
er á því, kringum 1870. Annars þekki ég ekki til glitvefnaðar. Eitthvað
mun hafa verið ofið í skólum, og hygg ég að það hafi verið svipað hinu
gamla. Krossvefnaður og flosvefnaður: Ég þekki lítt
til krossvefnaðar og flosvefnaðar. Eitthvað mun hann hafa verið iðkaður
í skólum. Spjaldvefnaði kann ég ekki heldur að lýsa. Fótvefnaður:
Fínn þráður var hafður í fótvefnað, einfaldur, svipaður þeim sem
hafður var í fínar voðir. Rakið var á rúmstólpum. Höföld voru
úr togþræði á sama hátt og höföld í vefstólum. Til var, að notuð
væri fleirri höföld en ein. Konan sem óf, batt löngunni yfir um sig.
Fyrirvaf var undið í hönk. Þegar var ofið, var fyririvafinu
þrýst að með hendi. Venjulega voru litir tveir. Oft var vefnaðurinn
tenntur, sem kallað var, randir utan með, en síðan hvor þráður af sínum
lit.
p12
Við vefnað var slöngunni
venjulega brugðið um rúmstólpa. Mikilsvert var, að það sem brugðið
var um, léti ekki eftir. Því ofna brá vefarinn yfir um sig. Stundum
bruðgu menn um fót sér, þótt lakara væri. Er nafnið vafalaust þaðan
runnið. Helst voru fótofin bönd notuð í sokkabönd, stundum þó axlabönd.
Margrét Tómasdóttir frá Brattholti í Tungum mun hafa verið
sú sem einna síðast kunni fótvefnað hér um slóðir. Hún kenndi Kristrúnu
systur minni, sem er hér heimildarmaður minn. Gjarðavefnaður:
Gjarðir voru ekki ofnar svo að ég vissi til aðeins brugðnar.
Vefnaðarnámskeið: Vefnaðarnámskeið voru stöku sinnum haldin.
Vissi ég um eitt, sem haldið var 1926. Stóð það um það bil
mánuð. Var það á bæ einum í sveitinni, og beittu húsbændurnir á bænum
sér fyrir því. Hefur það ef til vill orðið til þess, að farið var
að nota vefjargarn meira en áður. Vafasamt virðist mér þó, að það
hafi haft mikil áhrif almennt. Var þá mjög liðið á þann
p13
tíma, sem vefnaður
var algengur á bæjum. Varla hafa nemendur húsmæðraskóla átt
verulegan þátt í að efla vefnað, en sennilega þó einhvern. Annars
má segja svo, að þegar kemur fram yfir 1930, fer mjög að draga úr vefnaði
á heimilum, og leggst víða niður, þó að hann haldist talsvert lengur á
sumum bæjum, svo sem áður hefur verið sagt. Hæruvoð: Ofið
var úr hrosshári, einkum til hærupoka. Ég sá það aldrei gert, svo
að ég veit ekki nákvæmlega hvernig það fór fram, en hærupoka hef ég auðvitað
oft séð. Notað var faxhár, og var litum haldið aðgreindum.
Hrosshárið var unnið svipað og það sem haft var í reipi, kembt í
ullarkömbum. Voru venjulega not
aðir ullarkambar,
gamlir grófari tegundin, svokallaðir einfaldir kambar. Þegar hrosshárið
var fullkembt, var tekið úr kömbunum allt í einu. Lét kembingarmaðurinn
það falla á gólfið framan við fætur sér, og var oft haft skinn undir. Þegar
hæfilega mikið var komið, var það undið upp í vindil og síðan spunnið úr
honum. Var hann þá festur upp á stoð eða stólpa, venjulega þannig,
að handnafri var stungið í gegnum vindilinn miðjan og síðan í stafinn.
Spunnið var á venjulega halasnældur.
p14
Þó var venja að hafa
hrosshárssnældu öllu stærri en bandsnældu. Snúðurinn á stærð við meðal
undirskál, tvinnað á sömu snældu og undið í hnykla, sem voru oft stórir,
jafnvel eins og fótknöttur er nú eða jafnvel stærri. Hæra var ofin
í venjulegum vefstól, en sérstaka skeið þurfti, og var hún kölluð hæruritti,
mjög gróf. Oft var uppistaða í 2 litum, t.d. rautt og brúnt eða jarpt,
fyrirvaf venjulega einlitt. Man ég ekki að hafa séð köflótta hærupoka,
en langröndótta oft. Breidd voðar réð vídd pokans, þannig að í einn
poka þurfti tvær lengdir hans af voðinni. Hærupokar voru venjulega
ekki mjög djúpir, tóku meðalmanni í mjöðm í mesta lagi. Sjálfsagt þótti
að hafa á þeim hornsylgju til að geta dregið þá saman í opið. Hærupokar
þóttu góðir gripir, einkum í ferðum. Hrundu þeir frá sér vatni betur
en aðrir pokar. Það mun hafa verið til að hrosshár væri kembt
saman við ull til vaðmáls, en aldrei sá ég það gert. Hundshár:
Ekki veit ég dæmi þess, að menn hafi unnið hundshár til fata eða
neins annars.


