Tóvinna

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1903)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 6237
Safnnúmer B: 1968-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr. 6237 p1 Ull og tóvinna 4. Gamlir tímar: Fyrst er ég man, þá lítil stelpa í foreldrahúsum, er heimafólk sat við ullarvinnu frá veturnóttum til útmánaða. Þrátt fyrir léleg ljósfæri og þröngan húsakost. Við skulum skyggnast inn í þessar litlu lágreystu baðstofur í íslenskum sveitum um aldamót. Kannske að lítið ljós beri daufa birtu um stofu, þar sem fólkið sat við vinnu. Í stofu þeirri sat allt heimilisfólkið með ullarlagð milli handa sér, táði og tók af tog. Það er ullin af kindunum, sem fyrst kemur til greina, áður en vefstóll er sleginn. Áður fyrr var ullin mikið notið í föt á fólkið. Hún var besti hitagjafinn í vetrarkuldanum. Man ég skammdegiskvöldin heima, þegar búið var að klinka vel aftur bæjardyrum og vita að allar skepnur voru innandyra, bæði í fjósi og fjárhúsi, jótrandi angandi töðugrasið. Mér leið þá notalega vel, þegar ég fann öryggiskenndina og hlustaði á mjúkt rokkhljóðið, er mamma sat á rúmi sínu við lítinn austurglugga baðstofu, og leiðbeindi okkur, jafnframt í lestri og reikningi. Þar sem við sátum með svörtu spjöldin okkar og grifflana. Breytt var fyrir glugga, þá vorum við ekki vör við þó úti ríkti frost og hríðarharka. Mikil ábyrgð hvíldi á húsmóðurinni, sem þurfti að sjá um að dagleg störf færu eftir settum reglum, svo ekki yrðu árekstrar með vinnubrögðin. Mörg voru verkin og fábrotin hjálpartæki þeirra tíma. Eftir mjaltir og umbúning rúma, var gengið til sængurs við mjúk heimaofin sængurver og lök. Við lásum kvöldbænirnar uns svefninn lokaði brá. p2 Að setja upp vef: Þegar setja á upp vef, skal byrja á því að ákveða breidd og vörpu voðarinnar, sem merkir hve þétt hún á að vera, og reikna út í skeið. Er þá skeiðin rakin eftir því, og talið hve marga reyra hún hefir í 10 cm. Gerum ráð fyrir að setja upp handklæðavef, sem á að vera 20 cm. á breidd, og voðin sé hæfilega þétt með því að nota skeið, sem hefir 100 reyra á 10 cm. og 2 þræði í reyr. En til þess að fá vitneskju um hve margir þræðir verðií voðinni eru reyrafjöldin á 10 cm. margfaldaðar með tugatölunni í breiddinni. Það eru 100.7=700.2=1400, af því 2 þræðir eiga að vera í hverjum reyr, verða 14400 í þessarri voð. Þetta er aðalreglan við að reikna út í skeið, sem kallað er. Ég styðst lítillega við uppskrift dóttur minnar frá kvennaskóla. Að rekja vef: Til þess er stór tré rakgrind notuð, sem tekur mikið pláss, og er þetta mikill vandi, svo vel fari. Mældur er jafnlangur þráður og slangan á að vera löng, og er hann lagður með jöfnu millibili á rakgrindina. Sé rakið af 2 má gera það úr hespunum, en sé rakið af 4 verður að gera það af snældum. Jafnóðum og rakið er, er spotta brugðið á milli hverra 5 eða 10 lykkja, svo hægara sé að telja á slöngunni. Mjög er áríðandi að skilin haldist hrein. Ég kann alls ekki að setja upp vef, því oftast eru fleirri hjálparhendur við það vandaverk. p3 Ull og tóvinna: Mörg falleg flík hefur verið unnin úr ull af sauðkindinni, sem víða er þekkt og metin. Því miður er ullinni nú til dags ekki sýndur sá sómi sem í gamla daga. Áður fyrr klæddist fólk aðallega ulalrfötum, annað var ekki fyrir hendi. Því miður er ég hrædd um að ég sé lítt fær um að fræða aðra um þetta dýrmæta efni, sem hefir verið skjól fólks í þúsundir ára. Vefnaður: Vefnaður hefir verið fluttur til Íslands frá Noregi býst ég við, þegar landnámsmenn komu til Íslands. Það má sjá í fornbókmenntum. Nöfn fengu voðir, að sjálfsögðu, eftir notkun hvers og eins. Það yrði langt mál að sortera öll þau orð. Allt var þetta mælt og vigtað eftir vissum reglum. Venjulega 3 álnir lengd á ábreiðu rúma (brekán), og undirlök (rekkjuvoð). Ofið var í fleirri ábreiðuf af sömu sort. Brekán uppistaða, ull-tog venjulega svört og rauð með skáröndum, og 3-4 rauðum bekkjum á endum. Stundum var lagður litaður úr ullinni. Mörg voru þau rúm,sem fólkið svaf í 2 og 2 í sama rúmi, án undantekningar gamals fólks. Einskefta: Einskefta er talin mjög sterkur vefnaður vegna þess, að uppistaða og ívaf binst þar á óbrotinn hátt, því þráður ívafsins er til skiftis ygir og undir einn uppistöðuþráð. Bindingin er því þétt. Einskeftuafbrigði er brekánsvend. Vígindin á voðinni fara eftir því hvernig þessir þræðir bindast saman. Varp, merkir þéttleika voðar eða uppistöðuvaðmál. p4 Oftast var notuð einskefta í ýmsa dúka og teppi, sængurver og marga fatadúka í fleirri litum. Mest voru þó sauðalitir notaðir nú er bæði band og allavega garn haft í mottur, renning og ótal fleirri stykkil. Litum var raðað niður eftir smekk hvers og eins. Móðir mín óf einskeftudúka og sendi til Akureyrar í litun og pressun. Einnig var sett í vefinn mislitt band, bæði þráð og ívaf. Það er afar erfitt að lýsa öllum þeim margbrotnu aðferðum, sem til heyra vefnaði. Það er aðeins fært þaulæfðum og lærðum vefara. Ég hefi lítið átt við vefnað. Óf þó ögn á Blönduósskóla 1923. Þar kenndi Kristjana Péturs vefnað um tíma. Ekki lærði ég þó að setja til vef. Gaman þótti mér að vefa, og hefði fegin viljað læra þá list, en það voru í Kelduhverfi ýmsir eldri menn, sem ófu fyrir mörg heimili, er ég fyrst man. Dóttir mín lærði vefnað, bæði í kvennaskóla og eins heilan vetur á námskeiði í Reykjavík. Hún leiðbeindi konum hér, að setja upp vefi. Þá hafði ég öðrum hnöppum að hneppa of fylgdist ekki lengur með í þeirri grein. Einskeftuvefnaður er einfaldur og einna vandaminnstur, því mest notaður við vefnað almennt. Það er afar flókið að setja upp vef. Skil ég varla hvernig hægt var að koma því við í litlum og lágreistum baðstofum, innan um margt fólk, börn og gamalmenni. Sagt er að neyðin kenni naktri konu að spynna. Nú væri nauðsynlegt að taka á ný upp vefnað, svo fólk þyrfti ekki að vera atvinnulaust. Lesið vefnaðarbók Sigrúnar Blöndal. p5 Vaðmál: Vaðmál er, eða var, mjög algengur heima. Hann einkenndist á því að skálínur liggja eftir voðinni, vegna þess að hver þráður byrjar að bindast einu fyrirdragi fyrr eða síðar, en sá næsti á undan. Að öðru leyti vefast allir þræðirnir í einu bindingsmunstri á sama hátt að hver ívafsþráður liggur yfir og undir jafnmarga uppistöðuþræði. Venjulega er vaðmál eins báðu megin. Þessi vefnaður nefndist að mig minnir fata- eða klæðisvefnaður. Ég man eftir því að mamma óf þennan vefnað í ýmsan fatnað fyrir mörgum árum og saumaði sjálf allan fatnað. Hún lærði fatasaum í Reykjavík, þá ung að árum. Klæðavefnaður, veipa: Heima hjá foreldrum mínum, var talað um ýmiskonar ullardúka, bæði á pilta og stúlkur, peysufatadúkar, jakkafatadúkar, sem oftast voru sendir til Akureyrar í litun og pressun. Einu sinni á barnsárum mínum, man ég, að móðir mín vandaði sig mjög að spinna fallegt þelband, sem hún svo sjálf óf úr fatadúk, sem litaður var á Akureyri. Svo saumaði hún jakkaföt úr dúkunum á pabba. Föt þessi þóttu mjög falleg og fékk mamma hrós fyrir. Undirlök uppistaða tvistur, ívaf einfalt band. Kona ein Matthildur að nafni í Garði í Aðaldal, var fræg fyrir jurtaliti sína, sem enn eru notaðir í vefnaði í kvennaskólum. p6 Hringvefnaður: Hringvefnaður var ekki algengur heim, held helst varla þekktur nema af lestri bóka. Hægt er að breyta þar til með ýmsu móti. Algengastar eru 4-6-8 skafta gerðin nr. 107, 108, 109, 111. Handklæða uppistaða óbleikur tvistur 2.20 - ívaf hör n.m. 16. Breidd 60 cm. Skeið 75 tennur á 10 cm. 1 þráður í hafaldi, 2 í tönn. Rakið: 76.60:10.2 - 912 þræðir. Oddavefnaður: Í bókum hefi ég séð að oddavefnaður sé leiddur af vaðmálsvefnaði, á þann hátt að breitt er um stefnu skilanna þannig, að þau fara í gangstæða átt og mynda odd, þar sem línurnar mætast. Þetta má ýmist gera með inndrætti eða stigi. Annars ófróð um oddavefnað. Ormelsdúkur: Ormelsdúka vefnaður er þriðja frumbindingin. Hann er sléttur og áferða fallegri en annar vefnaður. Kemur það til af því, að hver uppistaða og ívafsþráður í einu bindingsmunstri bindst aðeins einu sinni. Bindingspunktunum er dreyft á reglubundinn hátt yfir allt bindingsmunstrið. Hver þráður liggur yfir marga aðra, svo vefurinn verður þéttari og gengur því betur. Dúkurinn verður líka sléttari og gljáandi. Allavega breytilegur, mér lítið þekktur, margskefta ýmist notuð, buxna og dúkaefni. p7 Salún: Salún er hin eina af þessum vefnaðartegundum, er náð hefur verulegri útbreiðslu hér á landi. Mikið ofið, aðallega á suðurlandi, þar sem móðir mín ólst upp. Sá vefnaður var mikið notaður í ábreiður, sem sennilega hafa útrýmt brekánunum, sem ávallt voru þykk og þung. Ekki er vitað hvernig stendur á salún nafninu. Annarsstaðar á Norðurlöndum hefir þessi vefnaður önnur heiti. Það eru margar gerðir af salúnvefnaði, er allar má rekja til tvíkaflaðra dregilsmunstra. En talið er að hið upprunalega munstur sé hið svokallaða salúnsrós. Salún er ofið á 4 sköftum, eru því 2 sköft í hvorum kafla munstursins, fyrsta og annað skaft fyrir einn kafla og þriðja og fjórða skaft fyrir 2 kafla. Inndrátturinn er beinn á hvorum kafla fyrir sig. Gaman að bregða rósamunstri í kafla. Salún er bæði fallegur og fljótofinn. Hentugur til margs, s.s. ábreiður, gluggatjöld, borðdúka, húsgagnafóður ofl. Salúnsmunstur eru mjög smekkleg. Því miður er lítið gert af því að vefa hér í sveit nú til dags. Það eru mörg ár síðan námskeið í vefnaði voru höfð hér. Nú eru þær konur horfnar á braut, því óðum fækkar fólki í sveitum landsins. Enn er þó hægt að treysta á að kvennaskólar landsins sjái um að vefnaður ekki gleymist. Ein kona í N-Þingeyjarsýslu óf heil gólfteppi og balderaði fína borða. Hún er nú látin fyrir mörgum árum. p8 Brekán: Brekán eða rúmteppi (ábreiður) voru þau nefnd. Efnið tvinnað, ýmist band eða tog, bæði í uppistöðu og ívaf, einskefta. Skáröndótt, heima rauð og svört. Skytta var notuð. Þetta var sterkur vefnaður. Hannes Hallgrímsson í Kelduneskoti var góður vefari. Það eru nú orðin æði mörg ár síðan hætt var að nota brekán, enda flest, ef ekki öll rúm horfin og gleymd. Nú sofa þó hjón saman í breiðum básum. Ekki veit ég annað, en öll slitin brekán hafi hafnað í ruslatunnum, sem víða eru til. Glitvefnaður: Uppistaða og ívaf brúnt eða svart, fjórþætt kambgarn. Skeið 50 reyrar á 10 cm. Einn þráður í hafaldi og einn í reyrvafi, sem ofinn er í þessarri uppistöðu er hæfilega þéttur, bæði fyrir krosssaum og glitsaum. Mikið ofinn í kvennaskólum. Krossvefnaður: Svipaður brekánsvefnaði. Hafaldagarn eða grófur togþráður, skeið 9/12 eða 9/16, 30 til 38 tennur í 10 cm. 1 þráður í hafald, 1 þráður í tönn. Flos - mottur: Uppistaða netagarn og ívaf band í flosið, þarf kambgarn. Skeið 30 reyra í 10 cm. Ofnir 7 þræðir á milli hnútanna. p9 Námskeið, skólar: Vefnaðarnámskeið voru hér í Kelduhverfi, sem kvenfélagið sá um. Var þá fengin stúlka til að leiðbeina í þeirri grein. Það eru nú mörg ár síðan. Aðallega var þar ofið úr tuskum mottur. Ekki tók ég þátt í því. Enda hefi ég aldrei kunnað að meta þann vefnað. Tuskumottur safna í sig ryki og þvælast fyrir á gólfum. Dætur mínar fóru í kvennaskóla Laugalands, og ófu mörg mjög falleg stykki með ýmsu móti. Þó nú séu húsakynni rúmbetri en í gamla daga, þá eru þau fyllt með fínum mublum og alskyns óþarfa drasli, svo vefstóll ætti þar ekki heima. Að vísu mætti vefa í auðum fjósum, þar sem búið er að fjarlægja blessaðar kýrnar. Satt að segja er ég alls ekki fær um að lýsa vefnaði, og kann mjög lítið þar að lútandi, þó ögn ég hafi ofið á yngri árum og löngu gleymt. Verð ég því að biðjast afsökunnar á fáfræði minni. Vefnaður er afar margbrotinn og vandasamur, og þarf langan tíma til að læra hann og nákvæma eftirtekt. Jurtalitir (innlendir): Birkilauf, rauðviðarlauf, einiberjalyng, sortulyng, mosi, tröllasúra, gulmaðra, haugarfi, smári, brunarót, beytilyng, krækiberjalyng, heimanjóli, hreindýramosi, birkibörkur, maríustakkur, túnsóley, ranfang, hvítmaðra. p10 Gjarðir: Það hefi ég heyrt, að gjarðir væru ýmist ofnar eða brugðnar úr hrosshári, og eins reipi. Þó ég sæi það ekki gert, þá man ég þessar sterku gjarðir við öll venjuleg reiðtygi. Mér virtist þetta efni allra líkast þykkum striga. það var kallað að slá til vef, þegar slegið er með slagslánni, þétt að munstrinu um leið og skyttunni er rennt eftir skilum, og eins á eftir. Ég hefi hvergi séð aðferð gjarða. Gæti þó trúað að vefnaður gjarða sé svipaður brekánsvoð eða gólfmottuvoð eða hærupokavoð, sem mikið voru notaðir um land allt í gamla daga. Hærupoki: Uppistaða og ívaf tvinnaður togþráður. Skeið 20-30 tennur á 10 cm. 1 þráður í hafald 2 í tönn. Aldrei var hundshár notað heima. Í gamalli Hlín, las ég hve mikið einyrkja, fátækur bóndi í S-Þingeyjarsýslu hafði ofið í hjáverkum sínum. Hann fæddist 25. júní 1869. Á sama bænum átti hann heima í 60 ár. 40 ár bjó hann sem eigin bóndi. Frásögn hans, hve mikið hann óf, fer hér á eftir. Vaðmál, rúmábreiður, undirsængurveraefni úr tvisti 3500 m. Af þráðardúk, mislitum og hvítum með breyttum vefnaði og vormeldúr úr ull 2500 m. Af handklæðum og borðrenningum og hálstreflum ofl. 500 m. Af bekk- og rúmábreiðum af ýmsum gerðum 300 m. Af gluggatjöldum og borðdúkum 200 m. Auk þess nokkur hundruð metrum af gjarðaborðum. Vefnað lærði hann hjá móður sinni. Þegar hann var hálf sjötugur, þá loks brá hann sér á vefnaðarnámskeið. Ennfremur leiðbeindi þessi starfandi bóndi, byrjendum í vefnaði. Seinna var hann kjörinn heiðursfélagi í Heimilisiðnaðarfélagi Norðurlands í viðurkenningarskyni fyrir framúrskarandi afköst í vefnaði, segir í Hlín. Þarna sést að gjarðar hafa verið ofnar í gamla daga. Það er gaman að spreyta sig á vandasömum spurningum, og hefi ég lært þó nokkuð af þeim og þakka ég ykkur vel fyrir, að endast til þess að senda mér þessi blöð, án lítils árangurs fyrir ykkur. Ekkert er mér eins ljúft, sem að rifja upp æskuatvik mín í föðurgarði. Þó meira ég gæti unað mér undir berum himni þegar vorið kom í allri sinni dýrð og hólmar Víkingavatns fylltust af syngjandi samsöng fugla, sem streyttu flug sitt frá fjarlægum ströndum heim á íslenska fold. Góð kveðja frá Guðnýju.

Spurningaskrá
Aðfangategund