Ull

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1882)
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1480 Safnnúmer B: 1968-1
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar og svör
Nr.1480

p1
Ull og tóvinna 4.
Fyrir síðustu aldamót var hér í sveit síðast unnið að vefnaði úr
hrosshári í hærusekki en ekki í annað. Ég sá hærusekki í
mínu ungdæmi, og voru þeir yfirleitt hafðir röndóttir upp og niður. Hrossárið
var ýmist táið eða kembt í kömbum, og vafið í vindil, og fest upp t.d.
með al í rúmstólpa eða dyrastaf. Þegar spunnið var með snældu, sem
flestir gerðu, þó þekktist það að hrosshár var spunnið á gamla rokka. Ekki
er mér kunnugt um mismunandi gerðir af hrosshárssnældum að öðru leyti en
því, að sumar voru með renndum snúð, en aðrar með tálguðum snúð, og allar
voru þær eins og bandsnældur í lögun, nema miklu stærri. Spuni á
hrosshári með snældu, var unnin þannig að snældunni var haldið í hægri
hendi, en með vinstri hendi var reitt úr vindlinum að neðan og snúð aðeins
hleypt á til að jafna

p2
þráðinn. Svo
þegar kominn var hæfilega langur kafli frá snældunni að hrosshársvindlinum,
var snúið með snældunni á það, og þegar kominn var nógur snúður á þetta,
var það undið uppá snælduna með aðferð, sem nefnd var snældukings, og svo
haldið áfram þar til komið var nóg á snælduna, þá undið af henni í hnykil.
Hrosshár var tvinnað á snældu eins og band eða þráður, nema
að þegar það var tvinnað, var notaður steinn með gati í gegnum hann og
var þráðurinn látinn dragast gegnum gatið á steininum þegar tvinnað var.
Það var gert til þess að ekki kæmu snurður á þráðinn við tvinninguna.
Steinninn var kallaður hrosshárssteinn. Um uppsetningu á vefnaði
úr hrosshári, get ég ekki sagt neitt. Ég sá aðeins sinu sinni ofið
hrosshár, þá barn að aldri, og get ég ekki lýst því.

p3
Sérstök höföld voru
notuð við hrosshársvefnað. Mig minnir að þau væru ýmist höfð úr hrosshári
eða hampi. Vefjarkambur var til, sérstaklega til notkunar við hrosshársvefnað.
Vefjarskeið var til hér, sem eingöngu var notuð við þennan vefnað.
Hún var að gerð eins og venjulegar vefjarskeiðar, en mikið gistenntari
og skeiðartennurnar voru úr eir. Skytta var ekki notuð, en fyrirvafið undið
á mjóa spýtu, og henni stungið í gegnum skilið á uppistöðunum.
Hærusekkir voru saumaðir saman á hliðunum, upp og niður, en botninn var
heill og faldur á brúnum á opinu, og á þær festar smá hornhagldir, til
að draga opið saman, þegar pokunum var lokað. Ekki er mér kunnugt
um aðra hluti, sem ofnir voru úr hrosshári. En nokkuð fram á þessa
öld var hrosshár unnið í gjarðir, hnappheldur til að hefta

p4
hross með, beisli
og reiptögl. Ekki hef ég heyrt neitt um, að menn hafi kembt hrosshár
saman við ull í vaðmálsvoðir. Engin dæmi þekkjast hér um,
að menn hafi safnað hundshári og notað það til fata. Ekki
hef ég getað haft uppá neinu af gömlum vefnaðarsýnishornum hér í sveitinni.
Býst helst við að hér sé ekkert að hafa af svoleiðis.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ull
Efnisorð:
Tóvinna