Vestfirskar harmonikur í áranna rás
Á þessari vefsýningu getur að líta úrval af harmonikum sem voru í eigu vestfirskra harmonikuleikara. Harmonikurnar koma úr safni Ásgeirs S. Sigurðssonar en árið 2008 færðu hann og kona hans Messíana Marsellíusdóttir Byggðasafni Vestfjarða að gjöf Harmonikusafn Ásgeirs. Þá taldi safnið um 140 harmonikur af ýmsum gerðum og frá mörgum tímaskeiðum í þróunarsögu harmonikunnar.
Elsta harmonika safnsins er síðan um 1830 og er hún í mjög góðu ásigkomulagi og í upprunalegum umbúðum. Í safninu eru margir kjörgripir og Ásgeir lagði sig fram við að safna hljóðfærum sem eiga sér langa og merka sögu í íslenskri tónlist.
Safnið heldur áfram að stækka og telur nú rúmlega 220 harmonikur sem varðveitt er að mestu í geymsluhúsnæði Byggðasafns Vestfjarða.
Aðföng
38
Aðföng á sýningu












