Guðbrandur Þorláksson

1541 - 1542 - 1627
Staða
Biskup
Staður
Staður: Hólar í Hjaltadal, 551-Sauðárkróki, Skagafjörður, Hjaltadalur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Skagafjörður, Skagafjörður Sveitarfélag 1950: Hólahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Úr Mynd á þili. (Texti Þóru Kristjánsdóttur): „ Guðbrandur [Þorláksson] (1541-1627) fæddist í kaþólskum sið í Miðfirði. Foreldrar hans voru séra Þorlákur Hallgrímsson síðast prestur á Mel, og Helga Jónsdóttir lögmanns Sigmundssonar. Séra Þorlákur var afabróðir Hallgríms Péturssonar sálmaskálds. Guðbrandur var í Hólaskóla á árunum 1553-1559 og að loknu prófi var hann þar heyrari (kennari) í eitt ár. Hann stundaði háskólanám í Kaupmannahöfn í fjögur ár, m.a. hjá hinum þekkta guðfræðingi prófessor Niels Hemmingsen, er mikið kom við sögu siðaskiptanna í Danmörku, og Poul Madsen, síðar Sjálandsbiskupi. Guðbrandur var rektor í Skálholti árin 1564-1567. Þar hlaut hann prestvígslu og þjónaði Breiðabólsstað í Vesturhópi í eitt ár. Aftur dvaldist hann í Kaupmannahöfn veturinn 1568-1569 en tók við stjórn Hólaskóla veturinn þar á eftir. Hann var vígður Hólabiskup í Frúarkirkjunni í Kaupmannahöfn árið 1571 ... og hélt því embætti til dauðadags. Hann keypti prentsmiðju þá sem Jón Arason hafði sett niður á Breiðabólsstað og endurbætti mikið. ... Biblían sem við hann er kennd kom út árið 1584 í um 500 eintökum og er enn þann dag í dag talin til mestu stórvirkja íslenskrar menningarsögu. Kona Guðbrands var Halldóra dóttir Árna Gíslasonar sýslumanns á Hlíðarenda.“ „Niðurstaða könnunar á listsköpun Guðbrands biskups er sú að þeir munir sem varðveist hafa og eru eignaðir honum séu fæstir eftir hann. Ekki er dregið í efa að Guðbrandur sé höfundur stærðfræðilegra útreikninga Íslandskortins 1590, en ekki er hægt að færa rök fyrir því að hann hafi sjálfur teiknað kortið með öllum skepnunum og umgjörðinni. Hann hafði ýmsa hagleiksmenn í þjónusti sinni sem þar gætu hafa verið að verki. En hvort sem Guðbrandur biskup Þorláksson er höfundur þeirra gripa sem honum hafa verið eignaðir eða ekki, þá fer ekki milli mála að hann var stuðningsmaður lista og hafði augljósan áhuga á allri listrænni sköpun. Hann var höfðingi, ekki aðeins kirkjuhöfðingi heldur sá maður á Íslandi sem mest kvað að í andlegum og veraldlegum efnum þjóðarinnar á ofanverðri 16. öld. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 27.9.2010/ 28.9.2010) Heimildir: Þóra Kristjánsdóttir. Mynd á þili. Reykjavík, 2005; bls. 28 - 33.
Tengd aðföng