Ísland úr fjarska
Árið 1928 fékk Listasafn Íslands að gjöf 24 landslagsmálverk, líklega frá 18. öld eftir óþekktan höfund. Öll bera þau áletrun sem tengir myndefnið við Ísland, til dæmis Eyjafjallajökull og Almannagjá en þó er ljóst að myndasmiðurinn hefur varla komið til Íslands því fátt minnir á íslenska náttúru í þessum verkum. Safnið fékk verkin að gjöf árið 1928 frá erfingjum Tages Reedtz-Thott lénsbaróns af Gavnø og forsætisráðherra Danmerkur. Málverkin voru öll í mjög slæmu ástandi þegar þau bárust safninu og hefur lítið verið hugað að þeim þar til nýlega að áhugi manna á þessum sérstöku verkum hefur vaknað og hafa nokkur þeirra verið sýnd opinberlega á undanförnum árum.
Sumarið 2026 voru þessi fágætu verk dregin fram í dagsljósið á sýningu í Safnasafninu á Svalbarðseyri og grennslast fyrir um uppruna þeirra, sögu og myndefni. Vegna aldurs og ástands var mikið lagt í forvörslu verkanna enda sýningunni meðal annars ætlað að kynna vinnu forvarða fyrir gestum Safnasafnsins og beina athyglinni að þeirri starfsemi sem fer fram bak við tjöldin í söfnum.
Aðföng
24
Aðföng á sýningu

















