Alþingismaður

Hópmynd. Alþingismenn í efrideild 1894, hópmynd, tekin í garðinum bakvið Alþingishúsið, st. 15,2 x 20,2, límd á spjald, sem er 23 x 28 cm. Þessir menn eru á myndinni: Þorleifur Jónsson, þá bóndi í Stóra-dal, síðar póstmeistari í Reykjavík, 2. þm. Húnvetninga; Sigurður Stefánsson, prestur í Vigur, 1. þm. Ísfirðinga; Þorkell Bjarnason prestur á Reynivöllum, 6. konungkj. þm; Jón A Hjaltalín, skólastjóri á Möðruvöllum, 5. konungkj. þm.; Hallgrímur Sveinsson biskup, 2. konungkj. þm.; Árni Thorsteinsson landfógeti, 4. konungkj. þm.; Kristján Jónsson yfirdómari, 3. konungkj. þm.; Magnús Stephensen landshöfðingi; Lárus E. Sveinbjörnsson háyfirdómari, 1. konungkj. þm.; Jón Jónsson bóndi í Bakkagerði, síðar á Sleðbrjót, 2. þm. Norðmýlinga; Guttormur Vigfússon, bóndi í Geitagerði, 2. þm. Sunnmýlinga; Jón Jakobsson bóndi á Víðimýri, síðar landsbókavörður, 2. þm. Skagfirðinga; Sigurður Jensson prófastur í Flatey þm. Barðstrendinga. Sbr. Lesbók Morgunbl. XIV., 50.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: Mms-4710
Stærð
15.2 x 20.2 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Mannamyndasafn (Mms)
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Alþingismaður
Myndefni:
Póstmeistari
Heimildir
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.1-5235 [1908-1931].