Magnús Stephensen
18.10.1836 - 3.4.1917
Staða
Landshöfðingi
Staður
Staður: Skálholtsstígur 7, Landshöfðingjahúsið/Næpan, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Þingholt, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Magnús Stephensen sýslumaður og Margrét Þórðardóttir.
Kona hans: Elín Jónasdóttir (f. 13.ágúst 1856, d. 15. júlí 1933) sýslumanns Thorstensen Jónssonar alþm og landlæknis og Þórdísar Pálsdóttur Melsteð amtmanns og alþingism.
Stúdend 1855 Reykjavík. Lögfræðipróf 1862 Hafnarháskóla. Vann frá 1863 í hinni íslensku stjórnardeild í Kaupmannahöfn, varð 8. maí 1865 aðstoðarmaður þar. Annar yfirdómari og dómsmálaritari í landsyfirrétti 1870 - 1877. 1. yfirdómari 1877 - 1886. Jafnframt settur amtmaður í suður og vesturamtinu frá 1. maí 1883 til 10. apríl 1886. Landshöfðingi 10. apríl 1886, lausn 27. jan. 1904 frá 1. febr. að telja. Bjó síðan embættislaus í Reykjavík til æviloka. Aðstoðarmaður konungsfulltrúa Hilmars Finsen á Alþingi 1871 og 1873. Skrifstofustjóri Alþingis hinn fyrsti 1875.
Tengd aðföng

