Jón Jacobson

6.12.1860 - 18.6.1925
Staða
Landsbókavörður, Alþingismaður, Forngripavörður
Staður
Staður: Laufásvegur, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík Staður: Hjaltastaður, Múlaþing, Hjaltastaðaþinghá, Ísland Sveitarfélag 1950: Hjaltastaðahreppur
Annað nafn
Jón Jakobsson
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Fæddur á Hjaltastað. Foreldrar: Jakob Benediktsson prestur og kona hans Sigríður Jónsdóttir. Aðstoðarbókavörður á Landsbókasafni 1895 og forngripavörður 4.10.1897-1907. Landsbókavörður 15.6.1908-1924. Jón Jacobson (tók sér ættarnafnið Jacobson 1915)   F. á Hjaltastað í Útmannasveit 6. des. 1860, d. 18. júní 1925.  For.: Jakob Benediktsson (f. 12. júlí 1821, d. 6. nóv. 1910) síðast prestur í Glaumbæ og k. h. Sigríður Jónsdóttir (f. 27. sept. 1827, d. 15. des. 1910) húsmóðir.  K. (24. ágúst 1895) Kristín Pálsdóttir Jacobson, f. Vídalín (f. 10. febr. 1864, d. 6. maí 1943) húsmóðir. For.: Páll Vídalín alþm. og k. h. Elínborg Friðriksdóttir Vídalín, f. Eggerz.  Börn: Helga (1896), Jón Vídalín (1897), Sigríður (1899), Gunnar Jakob (1900).  Stúdentspróf Lsk. 1880. Nám í latínu og grísku við Hafnarháskóla 1880—1887, lauk ekki prófi. Dvaldist með föður sínum á Víðimýri í Skagafirði 1887—1890, hóf þá sjálfur búskap þar og var bóndi til 1896, jafnframt póstafgreiðslumaður. Aðstoðarbókavörður í Landsbókasafni 1896—1908, jafnframt forngripavörður 1897—1907. Landsbókavörður 1908—1924.       Umboðsmaður Zöllners stórkaupmanns um langan tíma eftir að hann fluttist til Reykjavíkur. Margsinnis latínukennari við Lærða skólann og síðar Menntaskólann í forföllum hinna föstu kennara og tíðum prófdómari við stúdentspróf. Endurskoðandi Landsbankans 1900—1909.       Alþm. Skagf. 1892—1900, alþm. Húnv. 1903—1908 (Heimastjfl.). Varaforseti Ed. 1905, 1. varaforseti Ed. 1907.
Tengd aðföng