Uppdráttur, skráð e. hlutv.

Úr aðfangabók: Vefnaðarbók íslenzk, myndirnar dregnar upp með bleki: á titilblaðinu, sem er mjög skrautlegt, stendur : „Nockrir uppdrættir, þénugir til Eptirsjónar við Vefnaðar og Flos-Verk. Tilheyra Mad me H. Br.D. Steingrímssen“ þ.e. Helga Brynjólfsdóttir, kona síra Jóns Steingrímssonar í Hruna. Orðin mjög skemd af fúa. Handíðir horfinnar aldar - Sjónabók frá Skaftafelli: Aðeins hafa varðveist níu sjónabókahandrit, svo vitað sé, þar af sjö í Þjóðminjasafni Íslands, eitt í einkaeign hér á landi og eitt í Þjóðminjasafni Dana í Kaupmannahöfn, en auk þess er kunnugt um fáeina staka uppdrætti á tvíblöðungum, lausum blöðum, innan um annað efni í handritum og jafnvel í einu tilviki á spássíu í handriti heilagra manna sagna frá 14. öld. Segir enda í Brandsstaðaannál árið 1800 að kvenfólk hafi haft „mikið til af uppdráttum á blöðum til útprjóns, flosverks,áklæða og sessuvera vefnaðar, leturbanda og útsaums, sem margt kom prýðilega vel út.“ (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 20.1.2011)

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 5898 Safnnúmer B: 1909-314
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Handíðir horfinnar aldar. Sjónabók frá Skaftafelli Þjms. Þ. og Þ. Th. 116. Inngangur eftir Elsu E. Guðjónsson. Reykjavík, 1994