Uppdráttur, skráð e. hlutv.

In preservation at
National Museum of Iceland
Úr aðfangabók:
Vefnaðarbók íslenzk, myndirnar
dregnar upp með bleki: á titilblaðinu, sem er mjög skrautlegt, stendur
: „Nockrir uppdrættir, þénugir til Eptirsjónar við Vefnaðar og Flos-Verk.
Tilheyra Mad me H. Br.D. Steingrímssen“ þ.e. Helga Brynjólfsdóttir,
kona síra Jóns Steingrímssonar í Hruna. Orðin
mjög skemd af fúa.
Handíðir horfinnar aldar - Sjónabók
frá Skaftafelli:
Aðeins hafa varðveist
níu sjónabókahandrit, svo vitað sé, þar af sjö í Þjóðminjasafni Íslands,
eitt í einkaeign hér á landi og eitt í Þjóðminjasafni Dana í Kaupmannahöfn,
en auk þess er kunnugt um fáeina staka uppdrætti á tvíblöðungum, lausum
blöðum, innan um annað efni í handritum og jafnvel í einu tilviki á spássíu
í handriti heilagra manna sagna frá 14. öld. Segir enda í
Brandsstaðaannál árið 1800 að kvenfólk hafi haft „mikið til af uppdráttum
á blöðum til útprjóns, flosverks,áklæða og sessuvera vefnaðar, leturbanda
og útsaums, sem margt kom prýðilega vel út.“
(Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 20.1.2011)
Main information
Object-related numbers
Museumnumber a: 5898
"Museumnumber b": 1909-314
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Uppdráttur, skráð e. hlutv.
References
Handíðir horfinnar aldar.
Sjónabók frá Skaftafelli Þjms. Þ. og Þ. Th. 116. Inngangur
eftir Elsu E. Guðjónsson. Reykjavík, 1994