Höfundarréttur: Myndstef, Kristín Jónsdóttir-Erfingjar

Við fjósið

Varðveitt hjá
Listasafn Íslands
Í málverkinu Við fjósið sjáum við unga konu horfa skáhallt inn myndrýmið í áttina að tveimur rauðleitum kúm eins og hún sé að kalla þær heim í fjós til mjalta í kvöldhúminu. Þetta er stemningsmynd þar sem ró hvílir yfir öllu myndsviðinu. Kvöldhúmið var viðfangsefni norrænna listmálara um aldamótin 1900 þar sem þessi sérkennilega birta norðursins og táknræn merking rann saman við dulmögn náttúrunnar. Þetta samband manns og náttúru eða öllu heldur skynjun á breytilegri birtu verður hér viðfangsefni Kristínar þó komið sé langt fram á miðja síðustu öld enda viðfangsefnið ótæmandi. En það eru ekki síður kyrralífsmyndir en landslagsmyndir Kristínar sem marka henni sérstöðu og þá vegna litrófsins og stemninganna, birtunnar og formrænnar byggingar. Kristín var fyrst íslenskra kvenna til að útskrifast frá Listaháskólanum í Kaupmannahöfn og tókst að samræma vinnu við myndlist húshaldi og barnauppeldi.

Aðrar upplýsingar

Titill
Verkheiti: Við fjósið Enskt verkheiti: By the Cowshed
Ártal
= 1950
Safnnúmer
Safnnúmer A: LÍ-946
Stærð
80 x 100 x 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá
Áletrun / Áritun
Áritun: K. Jónsdóttir
Efnisorð / Heiti
Efnisinntak: Atvinnulífið
Efnisinntak:
Landbúnaður
Efnisinntak:
Fjós
Efnisinntak:
Sveit
Efnisinntak:
Fjall
Efnisinntak:
Sveitalíf
Efnisinntak:
Kýr
Efnisinntak:
Sveitastörf
Efnisinntak:
Fata, skráð e. hlutv.
Efnisinntak:
Kona
Höfundarréttur
Höfundarréttur: Myndstef Höfundarréttur: Kristín Jónsdóttir-Erfingjar