Sólmyrkvinn 12. ágúst 2026 - Frásagnir og minningar

Þjóðminjasafn Íslands - spurningaskrá 146 Sólmyrkvinn 12. ágúst 2026 - Frásagnir og minningar Safnnr. 2026-3 Í tilefni af almyrkva sólar þann 12. ágúst 2026 leitar Þjóðminjasafn Íslands nú eftir frásögnum af sólmyrkvanum. Viljir þú deila með okkur viðhorfum, minningum eða reynslu þinni verðum við þakklát. Svörin mega gjarnan vera lýsandi og ítarleg og taktu dæmi af eigin reynslu. Öll svör bæta við þekkingu á þessum atburðum. Svör þín munu síðar birtast nafnlaust í menningarsögulega gagnagrunninum Sarpi (www.sarpur.is). Athugaðu að þér er alltaf velkomið að sleppa spurningum og svara eingöngu þeim sem höfða til þín. Getir þú ekki lokið við að svara er hægt að ýta á „vista“ neðst í svarviðmótinu, þá færðu tölvupóst með hlekk og getur haldið áfram síðar. Einnig er hægt að taka upp svörin t.d. á farsíma og senda á þjóðháttsafn Þjóðminjasafns Íslands á netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is. Mikilvægt er að upptökunni fylgi sömu bakgrunnsupplýsingar og spurt er um í skránni; nafn, fæðingarár, kyn o.s.frv. Upptakan verður skrifuð upp og birtist sem nafnlaust svar á Sarpi. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.
Spurningar og svör