Skáld

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Jónas Hallgrímsson, þjóðskáld,
frummynd séra Helga Sigurðssonar sú sem Sigurður málari Guðmundsson hefir
gert eftir mynd sína af Jónasi 1860, nr. 978. Mynd þessi er önnur
þeirra fullteiknuðu mynda, er séra Helgi hefir gert af Jónasi; virðist
hún gerð eftir hinni lauslegu teikningu, sem er nr. 154 í Málverkasafninu,
og sennilega er þetta sú mynd, sem forseti Fjölnisfélags sýndi mönnum á
fundi í félaginu á afmælisdegi Jónasar haustið eftir að hann dó og aftur
á fundi í janúar næsta ár. Var hún þá falin Gísla Thorarensen, síðar
presti, á hendur, til þess að láta málara einn, Déllington, gera eftir
henni nýja mynd. Sbr. 978 og Rit J. H. , V., CLXXXII-CLXXXIII, með
aths., og bls. CLXXX með aths. sama stærð.- Þar sem Sigurður málari
hefir gert mynd sína 1860, er hann var hér í Reykjavík, virðist þessi mynd
séra Helga hafa verið hér þá, en samkvæmt því er Baldur Sveinsson hefir
skrifað aftan á bakið í umgerðinni, sem hún er nú í, hefir hún verið í
eigu Ásgeirs etatsráðs Ásgeirssonar, komið úr búi hans í hendur Ásgeirs
Magnússonar (er Baldur segir vera í New York 1913), sem gaf Baldri myndina.
Baldur fól hana til geymslu í Þjóðminjasafninu 12. júlí 1913 og mun
hafa ætlast til að hún færi ekki þaðan aftur. En ekki hefur hún verið
tölusett fyrr. Hún er dregin á hvítt skrifpappírsblað, 23,2 x 19,5
að stærð, er það fest á grátt blað; með opi, sem er minna en blaðið,
18,5 x 14 cm og er það sett í gyllta umgerð, 5,3 cm. að breidd. Umgerð
þessi virðist hafa verið sett um myndina áður en hún kom í eigu Ásgeirs
etatsráðs, en þó ekki fyrr en löngu eftir að hún var gerð, og helst virðist
hún vera sett um myndina erlendis. Skrifað er á hana með blýanti
nafnið Guðni Guðmundsson; bendir það til að Guðni læknir Guðmundsson
hafi átt myndina og jafnvel sett hana í þessa umgerð. Guðni var frá
Mýrum í Dýrafirði, en hann fór til háskólans í Kaupmannahöfn 1872 og mun
hafa verið í Danmörku aðallega, uns hann varð kennari við læknaskólann
hér 1881-82; síðan fór hann aftur til Danmerkur og var læknir á Borgundarhólmi
til þess er hann dó, 1908.- Ásgeir etatsráð dó 1912. Kann Guðni
að hafa fengið myndina á skólaárum sínum í Reykjavík eða er hann var þar
við læknaskólann, en Ásgeir fengið hana eftir hann eða hjá honum
í Danmörku.
Aðrar upplýsingar
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: Mms-7157
Stærð
23.2 x 19.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Mannamyndasafn (Mms)
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Skáld
Heimildir
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins Mannamyndasafns
nr. 5236-17842 [1932 - 1947].