Bergþórs- og Gíslahús;Sundbakki IV

1908 - 1909
Hlaðinn grunnur hússins sést vel og eru sjáanlegar 3-4 efstu steinhleðsluraðirnar. Útfrá norðuraustur hlið þess er útskot sem er lítur út eins og djúp hola en þar var stigagangur hússins og inngangur. Einnig er inngangur í húsið, neðri hæðina, á suðaustur hlið þess og sjást þar tröppur. Húsið byggði Milljónafélagið til að hýsa starfsmenn sína. Húsinu var skipt í fjórar íbúðir (tvær á hvorri hæð) og mest bjuggu þar 31 maður sem gera tæpa 5 m fyrir hvern. Var þetta bárujárnsklætt timburhús á hlöðnum grunni. Árið 1928 flutti í húsið Bergþór Magnússon frá Mosfelli ásamt fjölskyldu sinni. Var hann með um 10 kýr og seldi mjólk til Reykjavíkur. Hann var eini maðurinn í þorpinu sem hafði búskap að aðalatvinnu. Gísli Gíslason verkamaður bjó í húsinu frá 1916-1939 og er einn þeirra sem hvað flest ár bjó í þorpinu. Húsið var líklega rifið árið 1939 og var timbrið notað í smíði á öðru húsi. Var húsið 2 metar norðaustan við veginn og um 15 metra austan við skólann (233-111).

Aðrar upplýsingar

Heimildarmaður: Örlygur Hálfdánarson
Titill
Sérheiti: Bergþórs- og Gíslahús;Sundbakki IV
Ártal
Aldur: 1908 - 1909
Safnnúmer
Safnnúmer B: 181168-112
Stærð
Lengd: 11.5 m Breidd: 6.3 m
Staður
Fornleifaskráning: Staður: Viðey, 104-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Heimildir
Örlygur Hálfdanarson: Kort af Sundbakka, teiknað af Árna Tryggvasyni unnið fyrir Minjasafn Reykjavíkur 2005. Viðtal Örvars B. Eiríkssonar við Ólafíu Sigrúnu Símmoníu Einarsdóttur. Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl í Viðey 1906-1942. Örvar Birkir Eiríksson: Fræðsluskilti í Viðey. Með ljósmynd úr safni Örlygs Hálfdanarsonar. Árbæjarsafn 2004.

Upprunastaður

64°9'30.6"N 21°50'7.4"W