Fáni

1982 - 1992
Íslenski póstfáninn af strandferðaskipinu Öskju. Þetta er síðasti fáni sinnar tegundar sem notaður var á hérlendu strandferðaskipi. Fáninn var dreginn niður þegar Askja var seld til Noregs í mars - apríl 1992. Gefandi á ljósmynd er sýnir þegar íslenski fáninn var dreginn niður en sá norski upp. Askja var gerð út af Ríkisskipum frá 1982 uns félagið var lagt niður 1992.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1982 - 1992
Safnnúmer
Safnnúmer A: Sms Safnnúmer B: 2003-2-3
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Sjóminjasafn (SMS)
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Fáni
Heimildir
Hilmar Snorrason, 1990. Ríkisskip 60 ára, bls. 34. Reykjavík.