Bein, fornminjar

975 - 1000
Þjóðminjav. afh.: Fornleifar úr kumli að Ljótsstöðum í Unadal í Skagafirði.     Lítil flaga úr tönn, sennilega hvaltönn, L. 4,3 sm, 2,3 sm að br., og þ. um 8 mm, og er á hana rist. Í greininni segir: "Krotið er vel grafið, línurnar jafnar og fastar í rásinni. Uppistaða þess er mannsandlit eða gríma, sem er haganlega fyrirkomið á fletinum. Athyglin dregst fyrst og fremst að tveimur stórum augum, sem stara beint fram, nokkuð sporöskjulöguð, en niður frá þeim og milli þeirra er dregin langur bogi, sem myndar klumbunef. Ofan við augun eru miklar brúnir, og eftir annari þeirra er röð af örsmáum hringlum, þ.e. perlu röð, en í gegnum hina brúnina stendur járnnagli..." "Á enninu eru miklar hrukkur, en þar sér einnig í strikstúfa, sem hverfa úr í jaðrana, en gera má ráð fyrir, að endað hafi sem skrautbönd á svipaðan hátt og skeggið, sem látið er léttast saman við bandabruðninga og slaufur, þótt það sjáist ekki greinilega nema öðrum megin, vegna þess að önnur kinn andlitsins er svo tærð, að ekki er hægt að fylgja strikunum." "Þetta er skreytistíll sá, sem stundum er nefndur " yngri Jalangursstíll."

Aðrar upplýsingar

Ártal
975 - 1000
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1959-52
Stærð
4.3 x 2.3 x 0.8 cm Lengd: 4.3 Breidd: 2.3 Hæð: 0.8 cm
Staður
Staður: Ljótsstaðir, 566-Hofsós, Skagafjörður, Höfðaströnd, Ísland
Sýningartexti
Plata úr tönn, sennilegast hvaltönn, með skorinni andlitsmynd í yngri-Jalangursstíl eða Mammenstíl, kenndum við staði í Danmörku þar sem þekktir gripir með þessum stíleinkennum fundust. Brot af stærri hlut, sem óvíst er til hvers verið hefur. Fundin í kumli, líklegast karlmannskumli, á Ljótsstöðum á Höfðaströnd í Skagafjarðarsýslu. Frá lokum 10. aldar. Spjaldtexti: Plata úr tönn með andlitsmynd í Mammenstíl. Mask carved on tooth, probably a whale tooth, in the Mammen style.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá_Munir Undirskrá: Fundaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bein, fornminjar
Efnisorð:
Útskurður
Myndefni:
Andlitsmynd
Heimildir
Kristján Eldjárn. "Kuml úr heiðnum sið, fundin á síðustu árum". Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1965. Reykjavík 1965, bls. 19-22. Kristján Eldjárn. Kuml og haugfé. Reykjavík 2000, bls. 144-145 og 421-422.

Upprunastaður

65°54'17.1"N 19°19'59.6"W