Stíll, óþ. hlutv.

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
„Stíll“ úr eir, eg get
ekki nefnt þetta annað, því það er lagað sem
brauðstíll, en hefir þó ekki það verið, er frammjótt og sívalt fram, en
ferstrent uppeftir: utan um sívalninginn að framan hefir verið látúnspípa,
og
eru leifar eptir af henni, því þessi hlutr er orðinn mjög étinn: uppeptir
einni
hliðinni á þeim ferkantaða enda, gengr látúnsfjöður, þar á synast grafnir
nokkrir stafir einkinnilegir, en sem ekki sést hvað eiga að vera, með því
og að
fjaðrirnar sem verið hafa á hinum hliðunum, eru burtu, af efri enda á þessum
hlut synist vera höggvið. Með því hlutr þessi er heldr ekki heill: get
eg ekki
meira um hann sagt. Bæði þessi nútöldu nr. eru austan úr Fljótsdalsheraði,
það
siðara fanst einhversstaðar í jörð.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Þorvarður Kjerulf
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: 3561
Safnnúmer B: 1891-40
Stærð
10.5 x 0 x 0 cm
Lengd: 10.5 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Ormarsstaðir 1, Ormarsstaðir, 701-Egilsstöðum, Múlaþing, Fell, Ísland
Sýningartexti
Stíll, ritstíll frekar en brauðstíll,
sem ritaðar hafa verið með á vaxspjöld stuttar minnisgreinar eða orðsendingar.
Áletrun virðist hafa verið en er nú ólæsileg. Aldur óviss, fannst
í jörðu á Fljótsdalshéraði.
3561
Ritstíll, sem skrifað hefur verið
með á vaxtöflur, stuttar orðsendingar eða minnisgreinar. Áletrun nú ólæsileg
og aldur óviss.
Spjaldtexti:
Ritstílar úr
kopar og rostungstönn. Með þeim voru stuttar orðsendingar eða minnisgreinar
ritaðar á vaxtöflur.
Styluses of copper
and walrus ivory, used for writing brief messages or notes on wax tablets.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Stíll, óþ. hlutv.
Upprunastaður
65°13'32.1"N 14°35'53.5"W



