Munsturblað

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Úr aðfangabók:
Munsturblöð í skinnkápu. Er kápan
22 sm á h., en br. 16-17 cm. Blöðin eru alls 17, l. mest 19 sm, en br.
mest 14,5 sm, eru þau brúnleit og dregin á munstur með dökkbrúnu bleki.
Kápan, af bók, er skorpin og rifin,
og blöð öll rifin mjög á brúnum. Blöð þessi munu úr eigu langömmu gefanda,
Katrínar Jónsdóttir frá Undirfelli, prestkonu á Barði í Fljótum.
Handíðir horfinnar aldar - Sjónabók
frá Skaftafelli:
Aðeins hafa varðveist
níu sjónabókahandrit, svo vitað sé, þar af sjö í Þjóðminjasafni Íslands,
eitt í einkaeign hér á landi og eitt í Þjóðminjasafni Dana í Kaupmannahöfn,
en auk þess er kunnugt um fáeina staka uppdrætti á tvíblöðungum, lausum
blöðum, innan um annað efni í handritum og jafnvel í einu tilviki á spássíu
í handriti heilagra manna sagna frá 14. öld. Segir enda í
Brandsstaðaannál árið 1800 að kvenfólk hafi haft „mikið til af uppdráttum
á blöðum til útprjóns, flosverks,áklæða og sessuvera vefnaðar, leturbanda
og útsaums, sem margt kom prýðilega vel út.“
(Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 20.1.2011)
Aðrar upplýsingar
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1960-60
Stærð
22 x 16 x 0 cm
Lengd: 22 Breidd: 16 Hæð: 0 cm
Staður
Staður: Barð, 570-Fljótum, Skagafjörður, Fljót, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Munsturblað
Heimildir
Handíðir horfinnar aldar.
Sjónabók frá Skaftafelli Þjms. Þ. og Þ. Th. 116. Inngangur
eftir Elsu E. Guðjónsson. Reykjavík, 1994
Upprunastaður
66°2'52.1"N 19°6'47.4"W