Gjarðarhringja, af reiðtygjum

900 - 1000
Lítil járnhríngja; það er hófhríngja.  Hún er brotin í tvennt, en bæði brotin eru til.  Hún er að eins einn þumlúngur og 8 línur á breidd, og ætla eg því fremur, að hún hafi verið sverðfetilshríngja eða beltishríngja, en af hestbúnaði. Þó gæti hugsazt, að hún væri af beizli, t.a.m. kverkólarhríngja. -   Um dys það, er allir þessir gripir (nr. 1-11) hafa fundizt í hefir Arngrímur Gíslason bókbindari gefið skýrslu þessa:   ,,Vorið 1860 fundust í Baldursheimi við Mývatn leifar af dysi, að öllum líkindum frá heiðni. Það er blásið upp úr holti, hérumbil 200 faðma beint í austur frá bæjardyrum, og sást fyrst höfuðkúpa af manni, sem er 17 5/8 þumlúngar að hríngmáli, og fannst þá um leið spjót (nr.3). En vorið eptir, árið 1861, fannst sverð mjög ryðgað (nr.2). Var þá farið að grennslast eptir meiru, en því miður af eptirtektalitlum únglíngum, og var því óreglulega mokað upp dysið, svo ekki verður sem nánast sagt frá, hvernig leifar þessar litu út. Dysið snýr frá austri til vesturs, höfuð í austur, svo beint horfði móti dyrum, og spjótið til hægri handar og tafl (taflmaður) (nr.6) og 24 beintöflur (nr.1). Líka lítur út fyrir, að skjöldur hafi legið til þeirrar handar, og sjást eigi aðrar leifar þess en naglar, og lítið eitt af tré í kríng. Til vinstri handar lá sverðið, og sneri oddur niður. Nokkur smástykki komu þar af járni, sem auðsjáanlega eru af umgjörð meðalkaflans, slétt, en bjúg, með lítið barð á röndinni (af skjaldarbólunni). Sverðið hafði verið í tréslíðrum, og sjást leifar þess utan á sverðinu báðumegin. Hjá því lá lítið brýni, með gati í annan enda og lítil glertala 1) brotin, með gyllingu auðsjáanlegri. Beinin láu rétt, handleggir niður með hliðum og fætur réttir, og má kalla, að leifar þessar horfði frá landnorðri til útsuðurs. Lærleggirnir voru 17 ½ þumlúngur, með hlössum, að lengd, og samsvarandi því að gildleika. Hérumbil einnar álnar lángt frá fótagafli dyss þessa var annað dys, að hesti, og var það krínglótt, voru leifar hryggsins hríngbeygðar vestanfram, en fótleggir allir til samans austan fram, höfuð í norður, beygt inn að fótleggjunum. Engi merki fundust til reiðskapar, önnur en kjaptamél (nr.10), er var uppi í höfðinu, og ein lítil járnhríngja. Hesturinn hefir verið í meðallagi stór, og úngur, er vel má sjá af tönnunum. Hér að auki fannst lítið ryðgað járn, er menn héldu að væri leifar af lítilli öxi.["]   Það getur varla verið vafi á, að dys þetta og allir þeir gripir, er í því hafa fundizt, sé frá heiðni, eða frá því fyrir 1000, enda eru þeir mjög fornlegir. Það er kunnugt, að tíðska var í forneskju að grafa menn með hestum sínum og jafnvel hundum (nr. 87), svo sem segir í Svaða þætti (Flateyjarbók I, 436), að Svaði ,,var grafinn af sínum mönnum, ok þar með hundur hans og hestur at fornum sið", enda sannast þetta af ymsum dysjum, er könnuð hafa verið hér á landi, svo sem á Gautlöndum (nr.85-87). Hestar voru látnir í haug með mönnum, til þess að þeir gæti riðið til Valhallar og híngað í heim frá Valhöll (Sögubrot af fornkonúngum kap.9, Helgakviða Hundíngsbana önnur, Hákonarmál 13. er). - Eptir að kristni var lögtekin (1000), mun kristilegur gröptur fljótt hafa orðið almennur hér á landi, sem sjá má af Njálu (bls. 146), að þeir voru grafnir að kirkju er féllu á alþíngi 1012, og menn vita enn sem komið er engi rök til þess, að nokkrir hafi verið heygðir með hundum og hestum eptir það, en allt bendir á hið gagnstæða, bæði fornrit og fornleifar. Þó að menn fyrst framan af, meðan kirkjur voru mjög strjálar, kunni að hafa verið grafnir úti á víða vángi, þá eru engi líkindi til að með þeim hafi verið grafnir hundar eða hestar, og hafi slíkt átt sér stað á laun, þá hefir það það eflaust lagzt af, þegar Ólafur helgi fékk hér numið úr lögum ýmislega forneskju (um 1020, sbr. Fornmanna sögur IV, 280; Flateyjarbók II, 51. 239), eða fyr (Íslendíngabók kap.7). Eins er það næsta ólíklegt, að hundar eða hestar hafi verið látnir fylgja í gröfina óbótamönnum, er dysjaðir voru utan kirkjugarðs. Það má því, eptir því sem enn er kunnugt, telja það sem öldúngis gilda og óræka sönnun fyrir, að eitthvert dys sé frá heiðni, ef í því finnast hundsbein eða hrossbein samanvið mannabein. Hér á landi getur það varla hafa komið fyrir, að menn og menn og hestar hafi fallið saman og því verið dysjaðir saman, því að hér börðust menn aldrei á hestum, eins og þó kom fyrir í Noregi, en þau tvö eða þrjú dæmi, sem í sögum vorum (Njálu og Sturlúngu) koma fyrir um vopnaviðskipti á hestbaki, verða að eins af tilviljun. Sömuleiðis mun það fljótt hafa lagzt af, að grafa með mönnum vopn þeirra eða vildargripi, sem þeir eptir heiðinni trú áttu að skemta sér með í Valhöll, svo sem taflið, er fannst hjá Baldursheimi, og má því ætla, er slíkir gripir finnast í dysjum samanvið mannabein, að þeir muni vera frá því fyrir 1000-1020. Enn er það fornleikamerki, ef leirker eða þvíumlíkt finnast í dysjum með mannabeinum. Þvílíkt leirker fannst t.a.m. í Hildishaugi, er áður var nefndur (nr.7), og mun Hildir hafa átt að hafa í því nesti sitt til Valhallar. Til þeirrar venju, að taka með sér nesti í hauga, bendir orðtækið, að berja nestið, sem haft er enn í dag um þá, er berjast í andarslitrunum. Að allur þessi fundur (Baldursheims-fundurinn) sé frá því úr heiðni, eða frá því fyrir 1000, ætla eg fullsannað.   Allir þessir gripir (nr.1-11) gáfust safninu fyrir meðalgaungu alþíngismanns Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum. 2) 1) Glertala þessi hefir eigi komið til safnsins, og er það skaði því að öllum líkindum hefir hún upprunalega verið úr steinasörvi. Þó getur verið, að hún hafi síðar verið höfð fyrir knapp, með því að hún fannst ein í karlmannsdysi. Síðan höfum vér fengið fleiri þesskonar tölur til safnsins (sjá nr. 157). 2) Gripir þessir frá Baldursheimi (nr. 1-11) voru nefndir og skýrt frá þeim í Þjóðólfi (,,Merkilegur fundur", sjá Þjóðólf XIV. ár, nr. 17-18, bls. 70-71), áður en þeir komu híngað til safnsins, þótti því nú þörf á ítarlegri skýrslu um þá, og það því fremur, sem þeir eru merkari. Bréf Jóns Sigurðssonar alþíngismanns, sem afhendir þá safninu, er þannig látanda:   ,,Eptir mér gefinni heimild af Jóni bónda Illugasyni í Baldursheimi innan Þíngeyjar sýslu, sem er eigandi forngripa þeirra, er fundust í Baldursheimi árið 1861, og sem lýst er í Þjóðólfi, 14. árg. nr. 17-18, afhendi eg hérmeð téða forngripi þeim herrum, Jóni stúdent Árnasyni og Sigurði málara Guðmundssyni, í þeirri röð sem nú skal greina: 1. goðmynd eða taflmaður, 2. teníngur úr beini, 3. 24 töflur úr beini (líkast til úr kotrutafli), 4. leifar af sverði, 5. fjaðraspjót, 6. brot af skaldarbólu, 7. brot af tigilhníf, 8. leifar af öxi, 9. járnhríngja, líklega af sverðfetli, 10. kjaptamél, 11. lítið brýni með gati.   Þessa forngripi afhendi eg ofangreindum mönnum með eptirfylgjandi skilmálum: 1. að með þeim verði byrjað að stofna íslenzkt forngripasafn í Reykjavík, sem sé landsins ævarandi eign. 2. að þeir strax og fleiri forngripir safnast í sama augnamiði, og þegar stjórn og fyrirkomulag gripasafnsins er komið á fastan fót, afhendi umsjónarmönnum safnsins gripina í sama ásigkomulagi og eg nú afhendi þá. 3. að svo framarlega sem ekkert verður af stofnun forngripasafns, og engin sýnileg merki sjáist til þess að liðnum tveim árum hér frá, að slíkt fyrirtæki muni fá framgáng, þá áskil eg mér óskertan rétt til að taka gripina aptur."   Staddur í Reykjavík 15. Juli 1863. Jón Sigurðsson.

Aðrar upplýsingar

Ártal
900 - 1000
Safnnúmer
Safnnúmer A: 11 Safnnúmer B: 1863-12
Stærð
4 x 3.5 cm Lengd: 4 Breidd: 3.5 cm
Staður
Staður: Baldursheimur 1, 660-Mývatni, Þingeyjarsveit, Mývatnssveit, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá_Munir Undirskrá: Fundaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Aarbøger for nordisk Oldkyndighed og Historie 1882. Bls. 70-71. Kristian Kålund: Bidrag til en historisk-topografisk beskrivelse af Island II. Kmh. 1879-82. Bls. 169. (Ísl. þýð.: Íslenskir sögustaðir I-IV. Rvk. 1984-86). Kristín Huld Sigurðardóttir: "Haugfé. Gripir úr heiðnum gröfum." Hlutavelta tímans. Menningararfur á Þjóðminjasafni. Rvk. 2004, bls. 64-75, reiðver 73-74. Kristján Eldjárn. Hundrað ár í Þjóðminjasafni. Rvk. 1994, bls. 1. Sami: Kuml og haugfé. Rvk. 2000, bls. 200- 203, 317-19. Sami: "Þórslíkneskið svonefnda frá Eyrarlandi." Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1982. Rvk. 1983, bls. 62 - 75. Sigurður Guðmundsson. Skýrsla um Forngripasafn Íslands I. Rvk. 1868, bls. 5 - 51. Þjóðólfur XIV, 70-71.

Upprunastaður

65°31'12.0"N 17°3'24.1"W