Munsturbók

1700 - 1800
Afar merk sjónabók með útsaumsmynstrum bæði sem þekkt eru fyrir en jafnframt sem ekki hafa áður sést. Hún er bundin inn í pergamentspjöld. Laus blöð eru í henni einnig og á eina síðu er skrifaður texti, ættartala, og skriftin virðist benda til að hún sé frá 18. öld. Í textanum er rakin ætt frá Jóni Arasyni biskupi og til Ingibjargar Eiríksdóttur nokkurrar: Biskup Jon Arason, hans son sr. Biörn prestur hans _ dotter Regneidur, hennar son Biarne var ráds madur. Hennar dotter Ragneidur hennar dotter, Rannveig Markus dotter er atte Eygil Jonsson son Jons Eygilssonar á Skarde, Gunnuör Eygils dotter átte Jon Bessa son er bio a gunnsteinsstodumm i langadal þeira dotter Ragneidur Ragneidur var sÿdan kona Eyriks Gudmundssonar Eldra, þeirra dotter Gudrún hennar sonur Eyrikur hans dotter Ingebiorg            ______ Aptur Biskup Jón hans son sr. Björn hans dotter Halldora henar dotter Bergliót _____ sr. Sigurdar j Goddölum henar dotter Oluf ____ Gudmundar Kolbeins sonar er sio á Lytings stödumm j tungu s_urit sonur Olufar var Eyrikur Eldre er bio a Steins stodum j ____ hans dotter Gudrun henar sonur Eyrekur hans dotter Ingibiörg. Biskup Jon Ara son, sr. Biörn profastur hans son Biarne hans dottur Herdjs Þorunn dotter Herdisar og sr. Þorleifs __dis dotter Þorrunar og Brinjolfs Gudmundur sonur Aldis_ hans sonur Eyrikur hans dotter                          Ingibiörg sem bokina á. Á saurblað bókarinnar er skrifað: Margrjet Jóhannsdóttir, á afmælisdag hennar 28. marz 1906,                       frá Daníeli Halldórssyni, fæddum 12. ágúst 1820. Daníel þessi er séra Daníel Halldórsson (d. 1908). Hann var faðir Margrétar, fyrri konu sr. Jóhanns Lúthers Sveinbjarnarsonar, sem var faðir Margrétar þeirrar er bókin er merkt. Margrét var fædd 1904 og því hefur sr. Daníel fært henni bókina að gjöf á tveggja ára afmæli hennar. Það er ekki á hverjum degi sem svona gripir koma fram og er þetta því ómetanleg gjöf. Hún kom til safnsins í litlum kassa undan konfekti að því er virðist og þar er hún geymd.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1700 - 1800
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1997-123
Stærð
22 x 17.5 cm Lengd: 22 Breidd: 17.5 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Munsturbók
Heimildir
Kristín Schmidhauser Jónsdóttir, Sjónabók frá 18. öld, Hugur og hönd 2000, bls. 32-34.