Vasaúr

Vasaúr, sem Ólafur Davíðsson hafði með sér, þegar hann drukknaði árið 1903. Kassinn úr silfri og eir, þvm. án trekkjara 4.7 sm, en þ. 1.4 sm. Lok á hjörum báðum megin og hyrni yfir að framan, á skífu hvít smeltihúð, svartar tölur og merki og vísar gylltir. Eru stundatöflur rómverskar og standa innan dílabaugs, sem við eru miðaðar, stundir og mínútur, en utan við eru mínútumerki og hér smáar, arabískar tölur, sekúnduvísir í kumpási neðst og þar sams konar töluletrun. Að ofan trekkjari, kúla með lóðréttum gárum á á litlum staut, h. öll 1.4 sm, hringur í stautnum, tæpl. 2 sm að þvm. Á baklokið grafið skraut. Yfir verki sérstakt lok úr bronzlitum málmi, sem snýst um hjarir, og er á grafið: Cylindre / Remoutoir / 10 Rubis. Merki og tölur mótaðar á ytra bakloki að innan. Lás úrfestar, úr silfri, hangir í trekkjarahring. Sbr. Ísl. Æviskrár, IV, bls. 35.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 15683 Safnnúmer B: 1956-87
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Vasaúr