Rótargrefill

Rótargrefill. Lítið áhald, smíðað úr tré og járni. Handfangið, úr furu, er hér um bil sporbaugslaga í þverskurði og l. þess um 16.8 sm, en þvm. 3.1 sm. Stungið í enda flötum járnflein, sem breikkar og þynnist fram, l. utan handfangs 9.9 sm, br. um 2 sm og þ. um 0.8 sm. Litlu, þríhyrndu járnblaði er fest með tveimur hnoðnöglum á kinn fleinsins við enda að framan, einn odda veit á ská út frá fleini, bakki á fremri brún og sveigja þar inn, en hinum megin sveigja út og þar er egg á. Spöng um handfangið hjá enda að framan, járnborði, um 1.6 smá br., festur saman með hnoðnagla á endum, og verður hér mest þvm. skafts, 3.5 sm. Rifa í handfang og brestir. Eggin sljó og ójöfn. Ryð á járni. Viður víða dökkur. Spöngin eilítið laus. Áhald þetta var notað tl að rífa upp hvannarætur. Sbr. Ísl. Þjóðh., bls. 41 og 95.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 15485 Safnnúmer B: 1954-117
Staður
Staður: Byggðasafn Skagfirðinga, Glaumbær, 560-Varmahlíð, Skagafjörður, Langholt, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Rótargrefill