Gróttubátur

1910 - 1912
Þetta mun vera fyrsti báturinn sem Albert smíðaði.  Hann var gerður fyrir segl, en þann útbúnað allan vantar nú.  Móðir gefanda, sem er systir Alberts átti bátinn síðast. Tvær árar fylgja bátnum. Hann er í raun fremur leikfang en eiginlegur bátur. Seinni tíma viðbætur:    "... smábátur, smíðaður af Albert Jónssyni í Gróttu á árunum 1910-1912, afh. af Páli Guðmundssyni ..." (Árbók Hins íslenska fornleifafélags 1980, bls. 135).   Páll Guðmundsson, Lækjarsmára 6, Kópavogi, sem giftur er frænku Alberts, segir að hann hafi aðallega notað bátinn við ferðir milli Gróttu og lands. Það var áður en uppfyllingin eða garðurinn milli lands og eyjar kom. Ennfremur notaði Albert bátinn talsvert við hrognkelsaveiðar rétt við Gróttu, og var þá aðeins með eitt til tvö net. (Skráð 13.12.2004. Ágúst Ólafur Georgsson).

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Gróttubátur
Ártal
1910 - 1912
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1979-4
Stærð
330 x 150 cm Lengd: 330 Breidd: 150 cm
Staður
Staður: Grótta - Gróttuviti, Gróttuviti, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarnesbær, Seltjarnarnes, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Bátaskrá Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Bátur
Efnisorð:
Árabátur
Heimildir
Heimildamaður: Páll Guðmundsson, Lækjarsmára 6, Kópavogi. Munnlegar upplýsingar 13.12.2004. Tengdamóðir Páls var systir Alberts Þorvarðarsonar í Gróttu.