Lykill, til að opna skrá

1880 - 1890
Lykill úr járni. Er hann 6,7 cm á lengd, breidd mest 3,4 cm og grannur mjög, þvermál við legg 0,4 cm. Handfangið, sem er sporlaga og lárétt á, snýr þversum við skegginu. Ofurlítið er lykillinn skekktur og með holum. Fundinn í kálgarði að Skálholti um 1880-1890. Móðir gefanda Guðlaug Steingrímsdóttir, ólst þar upp að miklu leyti, átti hún lykilinn síðan og sonur hennar eftir hana, þangað til hann nú gefur hann.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1880 - 1890
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1965-69-1
Stærð
6.7 x 3.4 x 0.4 cm Lengd: 6.7 Breidd: 3.4 Hæð: 0.4 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti