Handrit, skráð e. hlutv.

Skrifuð rímna- og kvæðabók, sem halda má að Sigfús Jónsson að Laugalandi í Eyjafirði hafi ort og skrifað. Þetta er kver með tréspjöldum, dökkbrúnt skinn á kili og hornum, en yfir spjöldum að utan gulleitur, módröfnóttur gljápappír. Hæð 13,7 cm, breidd 8,9 cm og þykkt 2,7 cm. Hvítur pappír, skrifað með brúnu bleki, í kverinu 181 tölumerkt síða, en titilblað og saurblað fremst og aftast. Ein hönd og vel skrifað. Þetta letrað á titilsblaðið: "Nokkrar / einstakar Rímur / af ýmsum / og / Smá = Qveðlingar, / orktir af / Dannibrogsmanni / Sigfúsa Jónssyni." Skeytt er við hálfri síðu aftan við bls.166, eitt blaðanna laust, band laslegt og kverið velkt orðið og skellótt. Skrifað á aftasta saurblaðið: "Velæruverðugum presta / Sr. H. Einárss. Martaeins / a / Miklagarði." Gefandi fékk bók þessa hjá Guðrúnu Benediktsdóttur frá Breiðamýri. Hann giskar á að móðir hennar, sem erfði fyrir mörgum árum systur sína Kristínu, til heimilis í Eyjafirði, hafi átt hana, og þannig sé hún komin frá Eyjafirði. Hann telur Sigfús gert hafa.

Aðrar upplýsingar

Sigfús Jónsson, Hlutinn gerði
Gefandi:
Tryggvi Sigtryggsson
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1962-9
Stærð
13.7 x 8.9 x 2.7 cm Lengd: 13.7 Breidd: 8.9 Hæð: 2.7 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti